Fréttir 2005
 
Miðengi
Upp
Fréttir 2017
fréttir 2016
Fréttir 2015
Fréttir 2014
Fréttir 2013
Fréttir 2012
Fréttir 2011
Frettir 2010
Fréttir 2009
Fréttir 2008
Fréttir 2007
Fréttir 2006
Fréttir 2005
Fréttir 2004
Fréttir 2003

 

31. des 2006

       Lítur út fyrir að ætla að verða ansi gott verður í kvöld.  Öll hross í Miðengi komin í aðhald, þannig að ég ætla að vona að þau fari ekki á fjallið í nótt, nú og ef þau fara þá er alltaf til spræk hjálparsveit.....sem munar nú ekki um að skokka á fjallið svona daginn eftir þrettándann.

     Förum svo í bæinn í kvöld í mat til Hödda og Möggu, strákarnir ætla að koma með okkur en Sigga ætlar að vera hjá Freydísi.

30. des 2006

        Allir að skoða Blaðið í dag bls. 2, þar er semsagt frétt um ljósálfa í Grímsnesinu og kominn tími til að fjalla um eitthvað jákvætt hér í sveit en undanfarið hafa blöðin verið full af fréttum úr Grímsnesinu en held að þar sé verið að fjalla um svartálfa...........allavega eitthverskonar álfar en kannski vilja jafnvel svarálfar ekki einusinni kannast við þá og ég er ekki bara að tala um fréttir úr Byrginu, held að það hafi bara verið síðast í gær í Fréttablaðinu sem fjallað var um ,,Svartálfa" í Grímsnesinu.   Hvað um það gott að enda árið með eitthverju jákvæðu og hvað er betra en að hafa nokkra ljósálfa.  Það eru svo myndir af ljósálfunum í myndalbúminu mínu.

       Dóri fór svo á Selfoss að vesla inn fyrir næsta ár en ansi var minn maður kátur þegar hann kom með fullann poka af ,,sprengjum" hef nú grun um að hann hafi fengið ansi ríflega fyrir aurinn sinn enda bara Ljósálfar hjá Tintron.  Held að það séu nú ekki margir dagar síðan Dóri sprengdi síðasta kínverjann eða hvað þetta nú allt er en hann átti mikið dót sem hann hefur sparað síðan um síðustu áramót.  Held að næsta skref verði að ganga í Hjálparsveitina, honum mundi nú ekki leiðast að fá að snúast í kringum strákana eða láta þá snúast í kringum sig.

29. des 2006

         Guðni Reynir og Bjössi fóru í hestaleiðangur í dag, fóru með folaldið undan henni Bóthildi og fengu rauðskjótta hryssu í staðinn, þetta er líklega 12 vetra hryssa sem virðist vera alveg alþæg og töltgeng, ansi fallega skjótt og ansi feit enda að koma úr mýrinni sú hefur ekki þurft að kvarta yfir jólin.

      Nú við fórum svo í mat núna í kvöld til Bensa og Kristínar, fengur þetta líka rosa góða hreindýr, þetta er ekkert smá gott kjöt verð ég að segja.

    Elding komin heim en amman í Reykjavík var alls ekki tilbúin að láta það eftir sínu fólki að fá hvolpinn, fannst nú stúlkan hálf aum að skila hvolpinum og hvolpurinn var líka frekar fúll að vera ekki í dekri lengur en sjálfsagt á hún eftir að komast á gott heimili.

28. des 2006

        Rok og rigning í dag, af hvolpum er það að frétta að Elding er líkast til komin með heimili en það kemur betur í ljós á morgun eða laugardaginn.

        Búin að uppfæra næstu hvolpa en það verður vonandi undan Ýlu og Orra, en Ýla gæti lóðað hvenær sem er en vonandi bíður hún dálítið þar sem það er nýbúið að para Orra og spennandi að sjá fyrst hvernig það kemur út.

        Kýktu á Móu í dag en er líkast til búin að selja hana, þannig að vonandi fer hrossunum aðeins að fækka svona rétt áður en þeim fjölgar aftur í vor þegar folöldin fara að fæðast en nú fer að styttast í það hehe

27. des 2006

         Bensi bróðir á afmæli í dag til hamingju með daginn.

         Eitt stykki kálfur kom í fjósinu í morgun, og í þetta sinn kom dauður kálfur ekki gerst lengi held ég bara.  Reyndar sparar það aðeins merkin eða þannig en við vöknuðum upp við það þegar var verið að merka kálf um daginn að síðasta merkið bara notað, er reyndar búin að panta merki en reikna með að þetta geti tekið mánuð að fá ný merki sérstaklega svona þegar mikið er af hátíðisdögum á dagatalinu.  Þannig að nú er Guðmundur á Bíldsfelli búinn að fá tvo ómerkta kálfa en vonandi þekkjast þeir þegar merkin koma.

     Annars bara rok og rigning þessa dagana held ég.

     Sigga og Sammi komu aðeins heim í gærkvöldi svona rétt til að borða hehe og Sammi að tengja græjur fyrir Dóra ekki það að mér fannst nógur hávaði í húsinu fyrir þegar Dóri er að hlusta á músík en nú held ég að húsið sé farið að nötra og spurning hvort lætin eru ekki farin að heyrast yfir í næsta hús...

26. des 2006

      Tvær tíkur fóru í dag suður með sjó en hann Bjartur II er kominn heim aftur, það kom því miður upp ofnæmi í fjölskyldunni sem hann fór til þannig að nú er hann að leita að heimili eins og Elding, bæði eru þau rosalega falleg þannig að það fellur eitthver vonandi fyrir þeim.

   Sigga farin á Selfoss aftur og ekki gott að segja hvenær henni hentar að koma heim, en strákarnir eru heima og sá um að hreyfa hrossin með Bjössa.

25. des 2006

          Fórum í bæinn til Hödda og Möggu og tengdó í jólaboð, rosagaman og mikið gott að borða held að maður éti á sig gat alla daga núna.

      Bjössi kýkti svo á Geir sem er hann er semsagt lifandi og nokkuð heill kannski smá brákaður á hausnum en það er ekkert sem kemur á óvart.

24 des 2006

Gleðileg Jól

       Fæddist jólaboli í fjósinu í dag, rosafallegur hryggjóttur enda undan henni  Búkollu sem er hryggjótt og svo undan hryggjóttu nauti auðvitað átti þetta að vera kvíga en svona getur þetta verið.

      Þá eru allir hundhvolparnir farnir á ný heimili en tvær tíkur fara svo á annann í jólum og þá eru bara tvær eftir heima önnur fer væntanlega til USA í janúar en hin er óseld ennþá.

     Hér var hamborgarahryggur í matinn rosagóður frá SS keypti tvo stóra svo við gætum nú nartað í afganga á morgun næstum annar alveg eftir þegar búið var að borða, en undir miðnætti var Dóri búinn að klára svotil allann afganginn þannig að við verðum að finna eitthvað annað til að narta í á morgun.

      Allir saddir og sælir með sitt.

23. sept 2006

       Nú eru hvolparnir aðeins farnir að fara að heima en það eru tveir farnir næstu tveir fara svo á annann í jólum.  Annars er maður bara búin að gera allt sem maður nennir að gera smá tiltekt eftir en annars bara allt í rólegheitum held ég bara.

     Guðni Reynir flokkaði allar kindurnar í stýjur í gær og í dag voru hrútarnir settir í féð þannig að það er búið að hleypa til.

      Sigga var svo að vinna í sjoppunni í dag og er loks komin heim til að vera allavega í tvo til þrjá daga vona ég.

22. des 2006

      Fór á Selfoss í morgun og ætlaði að klára allt sem ég átti eftir, var svo komin heim um miðjann dag og var bara ekki búin að gera neitt eiginlega af því sem ég ætlaði að gera.  Fór svo aftur í kvöld með Dóra með mér og við náðum bara að klára þetta allt saman eða næstum.

21. des 2006

       Tvær ferðir á Selfoss í dag og reyndar alveg þess virði að sjá ánna en sú er orðin rosaleg, fór líka að álfavatni svo til að sjá hvað væri hátt í vatninu og viti menn farið að fljóta yfir veginn.  Fór svo með pappíra í tryggingarnar út af hvolpunum þannig að þetta ætti allt að vera klárt þegar hvolparnir fara.

19. des 2006

          Fékk frí fyrir Dóra í skólanum í dag og fórum til Reykjavíkur en ég þurfti að ná í hundfóður og hvolpapakka.  Sigga og Sammi fóru líka með, fór með krakkana niður á Hverfisgötu, Smáralindina og í Kringluna, skrapp svo aðeins niður á HRFÍ til að skila inn frumritum af pappírum en ættbækurnar fara vonandi í póst á morgun.

18. des 2006

       Fór með alla hvolpana í dýralæknisskoðun og gekk líka svona ljómadi vel, allir bara við hestaheilsu og allir pappírar klárir svo hægt sé að fá ættbækur og tryggingar.  Gekk ótrúlega hratt að koma þessu í gegn enda tveir dýralæknar, Sigga og Sammi að hjálpa mér og svo var ég búin að fylla út alla pappíra sem ég gat.  Veðrið var reyndar alveg ömurlegt rosa mikil rigning.

15. des 2006

     Fór á svona míranda kynningu í síðustu viku, sem er nú ekki í frásögu færandi nema hvað ég keypti eitthverja jojoba olíu og fótakrem en sá þarna á kynningunni að þetta væri nú alveg nauðsynlegt  að eiga fór nú ekki á milli mála.  Búin að bíða spennt eftir að fá vörurnar sem komu svo í gær, en nú vill ekki betur til en að ég man bara ekkert til hver þetta lífsnauðsynlega krem er ætlað....það er alveg með ólíkindum hvað maður getur verið ruglaður verð ég að segja en þetta kemur engum á óvart sem til þekkja.

      Gengur rosa vel með hvolpana og allir nema ein tík komin með heimili.  Held að þeir bíði spenntir aftir að komast að heiman og taka stjórnina hehe

11. des 2006

        Búin að panta fyrir hvolpana í dýralæknisskoðun en fer með þá næsta mánudag, er svona að gæla við að fá ættbækurnar áður en ég afhendi hvolpana um jólin en það er jú alltaf best ef það er hægt.  En skrifstofan á HRFÍ fær víst jólafrí þetta árið eheh svo það er bara að vona að þetta náist alltsaman fyrir jólin.  Nú eins að græja trygginguna á hvolpana, fæ ekki ættbækur fyrr en búið er að örmerkja og ekki tryggingu fyrr en búið er að fá ættbókarnúmer þannig að þetta hangir hvert á öðru en held nú samt að þetta ætti allt að hafast.  En ég læta alla hvolpa með tryggingu frá mér allavega þá sem fara hér innanlands svo er það bara nýrra eiganda mál hvort þau endurnýja trygginguna eftir árið, en þessi trygging virkar víst ekki þegar þeir eru farnir úr landi blessaðir en í þetta sinn á ég ekki von á að það fari nema einn hvolpur erlendis, og sá verður líkast til bara sóttur alla leið frá USA.

10. des 2006

       Kolla og Diddi komu við í dag að kýkja á hvolpa og hesta, ekkert smá flott myndin sem Kolla tók af hvolpunum og allir kyrrir, þó sá ég nú að það eru eitthver Kersins gen í þeim voru nú ekki alveg tilbúnir að vera kyrrir hehe

8. des 2006

       Fór í bæinn í morgun að sækja hundafóður, ekkert smá sem þessir hundar éta verð ég bara að segja.  Nú það passaði svo að þegar ég kom heim sá ég að díf dagatalið kom með póstinum, var nú frekar spæld að hafa ekki vitað þetta áður en ég fór í bæinn því ég held að ég hljóti að eiga fullann kassa af dagatölum í bænum, verð bara að nálgast þau seinna.

7. des 2006

        Letin alveg að drepa mig þessa dagana, uppfæri varla, þetta er nú meiri aumingjaskapurinn, en sjúkraþjálfarinn talaði um að ég þyrfti að finna þessa hárfínu línu og vera á henni, semsagt þegar ég er þokkaleg í skrokknum ekki rjúka til og gera allt sem ég hefði átt að gera í vikunni, fæ það alltaf í hausinn, veit þetta svosem.

    Fórum austur í Hemlu að ná í hest sem við áttum þar en fór fyrir ca 2 árum að sækja hann en þá náðist hann ekki heim, en átti að koma í næstu ferð, sem var semsagt í gær.  Bara snyrtilegur foli held ég bara, þarf auðvitað að reyna að selja hann sem fyrst en ekki hvað.

      Nú svo komu hér tvær konur að skoða hvolpa, aðrar tvær komu svo í gær, er nú eiginlega að verða nokkuð viss um að losna við slatta um jólin enda væri það svosem ágætt.

3. des 2006

        Er bara búin að vera löt og ekki bara í að uppfæra heldur bara almennt.  Eitthvað var bætt inn í hesthús um helgina þannig að flest tryppin sem á að fara að byrja á eru komin á hús.

      Stóru krakkarnir eru búin í skólanum og byrja í prófum á morgun, vonum bara að þetta eigi eftir að ganga þokkalega.

     Hvolparnir dafna bara vel, blása út og eru bara flottir.

27. nóv 2006

     Það virðist lítið vera að lagast ástandið í fjósinu kýrnar enn með skitu, en þetta byrjaði á föstudaginn, þetta fer nú frekar illa í nýbærurnar en vonandi fer þetta að lagast.

     Fór í Styrk í morgun, var nú bara ansi þreytt verð ég að segja og lítið búin að afreka í dag, rétt að færa mig úr einum sófanum í annann.

26. nóv 2006

         Bara búin að vera löt í dag, rétt farið út í fjós til að mjólka en annars bara verið inni í bæ.

25. nóv 2006

      Búin að setja inn nýjar myndir af hvolpunum, þeir eru bara fínir held ég.  Annars allt í rólegheitum, kýrnar enn með skitupest held ég, vona bara að þetta gangi fljótt yfir.  Og ekki enn búin að taka mynd af kálfinum hehe verð nú að reyna að gera það fljótlega, svona allavegana áður en hún verður mikið skítug.

      Bjössi og tengdajpabbi búnir að koma jólaséríunni utan á húsið hér ekki seinna vænna í myrkrinu.

       Guðni Reynir var að keppa með Selfoss í dag, gekk svona ljómandi vel held að hann hafi jafnvel potað inn marki.

24. nóv 2006

      Það þurfti að kalla til dýralækni í morgun út af júgurbólgu vonandi kemst sú kusa í lag.  Nú eftir hádegið þegar Bjössi og Dóri fóru út í fjós að vasast eitthvað þá var þar nýborin kusa og sú var bara við það að leggjast í doða, það þurfti aftur að kalla til dýralækni og kusa komin á fætur í kvöldmjöltum, hún átti naut þessi.  Annars er bara ansi mikil drulla í fjósinu núna held bara að kannski sé skitupestin komin sú sem var að ganga í fyrravetur og vor held ég bara en það er bara að vona það besta.

23. nóv 2006

      Það fæddist flottasti klálfur í heimi held ég hér í fjósinu í morgun og kvíga meira að segja, gráskjöldótt reyni að muna að taka myndir á morgun og setja inn á síðuna.

    Sigga fór svo til miðils í dag, held að henni hafi bara fundist þetta mjög spennandi, þannig að nú er að liggja yfir spólunum sem við fengum í gær og í dag og finna út hvaða skilaboð það eru sem maður á að taka eftir.

22. nóv 2006

       Fór í bæinn í dag en Guðni Reynir átti tíma hjá miðli, þetta var voða gaman og fengum það alveg á hreint að GR kemur aldrei til með að verða formaður piparsveinafélagsins.

     Annars lítið um að vera.

21. nóv 2006

      Fór í bæinn í morgun að sækja bílinn sem varð eftir um helgina, bara heppin með veðrið, það kom smá snjófjúk svona rétt þegar ég var að nálgast heimundir.

      Bjössi og Bensi fóru með óskilahross til sinna eigenda eða allavegana í viðeigandi hólf.  Sóttu svo tvær kvígur í Klausturhóla í bakaleiðinni, smá styggar blessaðar og aðeins horn á annarri, vona að ég sé að fara rétt með en er ekki búin að skoða gripina.

20. nóv 2006

     Bjössi og Bensi tíndu inn folöldin sem eiga að vera inni í vetur þannig að Brynja er búin að fá félagsskap, Brynja er ættuð frá henni Lilju í Kóp, þetta er ansi myndarlegt folald þó hún sé nú ekki fædd fyrst af þeim sem eru inn vel stór og falleg semsagt, hún sker sig eiginlega úr hópnum því hún er rauð, en svo eru tveir brúnskóttir folar inni annar frá Jonna og hinn frá Höllu Karen, svo á Bjössi einn jarpskjóttann og ég einn vindóttann.  Svo er hún Lísa mín komin inn þessi elska og aðal stjarnan heeh spennandi að vita hvernig gengur með hana í vetur.

19. nóv 2006

     Vorum komin heim uppúr hádegi, sá bylur í kollafirðinum en annars bara ágætis færð enda þurftum við ekkert að koma við í bænum, hefði auðvitað þurft að sækja bílinn sem ég skildi eftir á föstudeginum, en bara við veðurofsa heeh Linda var hvort eð er búin að koma tíkunum heim.

     Guðni Reynir og Bjössi fóru svo að Björk að sækja sér hrúta en Bjössi á Björk hringdi og átti hrúta handa okkur, Inga í Danaveldi og Bjössi notaði tækifærið eheh nei var nú reyndar búin að tala við Ingu um að fá hrút.

    Skildist svo að Bensi hefði fundir tófugreni úti í hrauni svona næstum inni í sumarbúðstað hjá Bubba og Dóru, það sást brot af einni rjúpu en sú hafði lent í tófunni þannig að það er enginn rjúpa í hrauninu núna held ég.

18. nóv 2006

       Kalt í Húsafelli en kannski bara kaldara heima datt ekki í hug að fara út úr húsi nema rétt yfir í næsta hús að borða en Jonni og Linda buðu í mat, og ekkert smá gott.  Gróa og Toni kýktu í heimsókn, alltaf jafn gaman að hitta þau. Ég fór nú í fyrra fallinu að sofa svona eins og vanta er.

     Merfolaldið mitt hún Brynja sem er undan Sólon frá Hóli og hefur verðið við móðurhlið austur í sveitum í sumar kom svo með flutningabíl heim í dag, Bensi tók á móti henni og ekki hissa þó Hreinn hafi verið í hesthúsinu líka.

17. nóv 2006

        Byrjaði daginn á sjúkraþjálfun, stoppaði í Olís sem ég geri nú stundum, hringir ekki eitthver sérfræðingur í mig sem Pétur hafði uppá og tilkynnti mér að ég ætti að mæta klukkan 13.00 og klukkan rétt um 12.00 svo ég brunaði í bæinn, líklega ekki með áfall á ynnra eyra hvað sme það nú er, brunaði aftur austur og gerði mig klára í Húsafellsferð en Tengdó bauð í sumarbústað,  meiri þeytingurinn á mér alltaf því ég þurfti svo að koma Ýlu og Tíbrá suður en þeir sem ekki vita það þá eru þær hluti af tíkunum mínum en þær áttu pantað í augnskoðun um kvöldið.  Kersins Linda auðvitað boðin og búin í að redda mér eins og alltaf, skildi eitt stykki bíl og tvær tíkur eftir hjá henni og hún sá um afganginn, fór með tíkurnar í augnskoðun og báðar í lagi þannig að nú er ég þarna með tvær tíkur nothæfa í ræktun en báðar með HD A, svo er bara að vona að Orri sé með augu í lagi en er að hugsa um að nota hann á Ýlu.  Brunuðum svo í Húsafell og höfðum það bara gott.

16. nóv 2006

         Skítakuldi í dag eins og svosem undanfarna daga held ég bara.  Fór með bílinn á verkstæðið svona til að fá nýtt útvarp, það gekk svosem ágætlega, saknaði nú samt aðeins að hafa ekki bara hljóð í bílnum.  Sótti svo Siggu og Freydísi út í skóla og drifum okkur út á Borg að horfa á Dóra og co en það er dagur Íslenskrar tungu og eitthver uppákoma í skólanum, rosa fínt hjá krökkunum og gaman að hlusta, eitthverra hluta vegna sá ég nú Dóra næstum ekkert, hafði lag á að fela sig á bakvið og láta lítið fyrir sér fara.  Nú komum svo aðeins við heima en brunuðum svo á Selfoss, en Freydís var að fara að vinna klukkan 16.00.  Nú það hefur svo aðeins fjölgað á Engjó en Sigga tók með sér hvolp, líklega er þetta leið fyrir drengina....svona hvolpar laða að sér stelpur og kannski ekki vanþörf á því eða hvað Orri minn hehehe

15. nóv 2006

        Fór í sjúkraþjálflun í morgun og brunaði svo í bæinn til að sækja dálítið hundafóður en það er alveg með ólíkindum hvað þetta er fljótt að klárast.

14. nóv 2006

       Fór í nálastungur í morgun, og samkvæmt bókinni á ég að vera agalega þreytt í dag, hvað um það sjaldan sprækari.  Er reyndar alveg jafn heyrnarlaus og í gær, ekki gott mál það en enn eru dagar til stefnu.

      Fór svo í bæinn í kvöld með GR en hann mátti koma og skoða blátt lið í bænum, gekk líka svona agalega vel, virtist alveg falla inn í hópinn, en ég hef svosem ekki mikið vit á þessu.

13. nóv 2006

     Búin að vera hálfléleg í dag, hausinn eitthvað að angra mig og er með svo mikið suð í öðru eyranu að ég er eiginlega bara hálfheyrnarlaus, fór í Laugarás til Péturs í morgun, hann fann svosem ekki neina einfalda skýringu á þessu, ét eitthverjar töflur í nokkra daga og sé svo til hvert ég verð skárri eður ei.

     Toni er búinn að bæta inn myndum á síðuna sína og ekkert smá flottar myndir enda líka ekkert smá flott fólk hehe

12. nóv 2006

      Sviðaveislan var í gærkvöldi, þetta tókst svona líka orsalega vel, allir bílar heilir heima í morgun held ég bara og slatti af aukabílum sem voru svo sóttir í dag.  Setti inn myndir á albúmið, vona að það séu allir sáttir með það.  Það snjóaði dálítið í gerkvöldi og nótt en var svo rigning í morgun, er nú ekki frá því að veislan hafi staðið til sex í morgun en þá fór Bensi og Kjartan Gunnar í morgunfjós held að það hafi nú fleiri ætlað með en töpuðust á leiðinni í fjósið.

10. nóv 2006

       Búið að vera sýnishornaveður í dag, í augnablikinu er bylur, er nú ansi fegin að FSu ballinu var frestað og börnin í húsi, GR heima og Sigga á Engjó....held það allavega.  Er búin að ná mér í myndir af henni þegar hún var í hármódelinu, á bara eftir að fá samþykki hennar til að lauma einni á síðuna.

9. nóv 2006

        Fór í nálastungur í morgun, en annars bara verið heima í dag, veðrið búið að vera ágætt svona fyrripartinn en undir kvöld komið rok og ringning allur snjór farinn held ég bara en það endist nú ekki lengi samkvæmt verðuspá en það er spáð vitlausu veðri í fyrramálið enda settu Bjössi og Dóri hestakerruna í hús áðan og allt annað í var svona allavega það sem þeim datt í hug að gæti fokið, vonum bara það besta.

8. nóv 2006

      Það var bara allt hvít í morgun þegar ég druslaðist á lappir, og reynar núna undir kvöld er staðan sú sama allt hvítt, held meira að segja að spáin sé snjókoma og leiðindarfæri þannig að kannski var bara vit að fara í bæinn í dag, en ég fór til að sækja hundafóður og eins að fara í RV og ná í dúka og ýmislegt fyrir sviðaveisluna, það hefur fjölgað dálítið síðan í gær en nú eru skráðir 79, veit samt af viðbót sem er erlendis en kemur heim á morgun en þá ætti ég að fara að fá endanlega tölu á mannskapinn.

7. nóv 2006

        Það eru orðnir 71 sem eru búnir að panta í sviðin, þannig að ég held að þetta verði bara gott, á jafnvel von á að fleiri tínist til, en enn vantar dálítið uppá þá sem voru búnir að tala um að mæta örugglega en svona er þetta bara þetta er samt bara orðið dágóður hópur held ég bara.

        Hvolparnir vikugamlir í dag og dafna bara rosalega vel, held bara að ég þurfi að fara suður á morgun og sækja meira fóður en tíkin þarf nú slatta ef hún á að mjólka í 7 hvolpa, nú fyrir utan alla hina hundana.

6. nóv 2006

Sverrir á afmæli í dag, til hamingu með daginn orðinn 25 held ég bara

      Það tosast í sviðaveisluna, síðasti dagur í dag þannig að ég geri ráð fyrir að sveitunginn panti á morgun er það ekki bara.

4. nóv 2006

         Sótti Siggu á Engjó í morgun en hún var að vinna í dag, þurfti svo að koma henni niðureftir aftur, finnst nú ansi langt í bílprófið hennar hehe

      Það fæddist ein kvígan enn í fjósinu ansi mikið stór og myndarleg svona eins og hún á kyn til.  Það er svo búið að vera að gera og græja í skemmunni fyrir sviðaveisluna en þetta stittist óðum.

       Gróa og Toni kýktu við í dag, voða gaman að fá þau í heimsókn, en þau eru á suðurlandinu þessa helgi og stefna á Sviðaveilsu um næstu helgi....hvergi betra að vera en fyrir sunnan skulum við vona.

3. nóv 2006

         Sigga er bara flott, þetta er dálítið öðruvísi en rosa fín samt.  Annars er allt í rólegheitum og bara ekkert að frétta held ég.  Verið að undirbúa Sviðaveilsuna en það eru bara 20 búnir að panta (næstum ekkert af heimafólkinu) en allir þykjast ætla að koma svo við sjáum til hvað verður en það er ekki síðasti dagur fyrr en á mánudag en þá kannski tekur fólk við sér.

2. nóv 2006

          Fór í nálastungur í morgun, hvorki verri né betri af því svosem en sjáum til.

        Sigga verður allann daginn í Reykjavík út af eitthverju hármódeldæmi, vona svo bara að hún verði sátt við útkomuna í fyrramálið þegar hún vaknar ógreidd hehe

       Við Bjössi fórum svo á Hótel Geysi að borða í kvöld en ég átti gjafabréf á þriggja rétta máltíð fyrir tvo síðan ég útskrifaðist. Maturinn var rosa fínn og takk fyrir okkur Hafdís og Adam.

1. nóv 2006

        Er aðeins að lagast af kvefinu, kannski sólhatturinn sé bara að virka.  Fór í sjúkraþálfun í morgun, get varla orðið hreift mig ansi stirð, fer aftur á morgun, með illu skal illt úr reka eða eitthvað.

     Hvolparnir dafna bara vel allir búnir að þyngjast ef oft léttast þeir fyrst eins og þessir hafa sjálfsagt gert en eru semsagt komnir í fæðingarþyngd og sumir gott betur. 

     Sigga er svo að fara í bæinn á morgun en hún er búin að láta plata sig til að vera hármódel á eitthverri sýningu eða eitthvað í henni Reykjavík á morgun, spennandi að sjá hvernig hún lítur úr eftir klippingu og alles þar sem hún fær engu að ráða sjálf, hún sagði nú samt að hún gæti þá bara farið í hárlengingu hehe

31. okt 2006

        Tengdapabbi á afmæli í dag, til hamingu með daginn Reynir.

         Var auðvitað á rölti meira og minna í nótt að gá að tíkinni, hún gerði svo alveg eins og ég var búin að spá, gaut ekki fyrr en í morgun fyrsti hvolpur kom rétt fyrir átta í morgun og hún var búin um tíu leitið ekki lengi að þessu.  Það komu 7 hvolpar, 4 tíkur og 3 hundar, ansi skræpótt, það er ágætt því þá hafa ónefndar eitthvað til að smjatta á, passar innan um alla hina ljótu hundana mína.

     Er orðin alveg full af kvefi, gat nú verið nema ég sé kannski komin með ofnæmi fyrir hundum, Bjössi var eiginlega að vona það held ég sá alveg fyrir sér að fækka hundunum en svo heppin er hann nú ekki, bara venjulegt kvef er ég hrædd um.

30. okt 2006

        Fór í sjúkraþálfun í morgun, er nú bara aumingji ligg svo bara fyrir fram að kvöldfjósi, kem heim um hádegi og er orðin rólfær um fimm leitið.

      Held að nú sé farið að styttast í Sölkuhvolpa held bara að hún sé komin með sóttina en sjálfsagt gýtur hún á morgun en ég er víst með að vaka í nótt og trúa að þetta sé bara alveg að koma, það hefur nú ekki sjaldan gerst að ég vaki alla nóttina en tíkin sefur.  En sjáum til.

29. okt 2006

          Það var rosa gaman í matarklúbbnum í gærkvöldi held meira að segja að við höfum ekki komið heim fyrr en um tvö leitið í nótt.  Góð mæting, vantaði Hermann og svo Jóu og Snæbjörn allir aðrir mættir.

      Það mættu svo tveir rúningsmenn hér um klukkan níu í morgun, og tóku ullina af 46 gimbrum þeir voru nú ekki lengi að þessu, stákar úr flóanum ansi seigir held að þeir hafi jafnvel talað mig inn á að rýja féð hér eftir ca 3-4 vikur hver veit nema það verði bara gert.

     Svo var farið að smala Búrfellið hér eftir hádegið náðist bara slatti af fé allt frá Björk og Klalusturhólum, held svo að það hafi tapast ca 5 veit ekkert hver átti það.

       Nú við drifum okkur svo í leikhús um kvöldið fórum að sjá ,,Viltu finna milljón" tókum krakkana með held að þau hafi bara skemmt sér vel, sérstaklega Dóri hann veltist um af hlátir en þetta var virkilega gaman, enda er Eggert alltaf í uppáhaldi hann bara klikkar ekki held ég, en reyndar voru þau öll rosa góð, semsagt mæli með þessu.

28. okt 2006

        Kláraði að gera slátur í dag, semsagt komin með slatta til að setja í súr.  Það verður svo matarklúbbur að Bíldsfelli í kvöld, vonandi komast sem flestir, enda ekki verið klúbbur síðan í útilegunni góðu þar sem vantaði nú aðeins í hópinn loks þegar við mættum.

27. okt 2006

       Túnið var smalað í dag, ásetningsgimbrarnar valdar og bólusettar, held að þær séu 46 og svo tveir hrútar.  Guðni Reynir er búinn að grandskoða bókhaldið og það virðist bara vanta einn flekkóttann hrút alla annað lítur út fyrir að vera komið, reyndar miðað við að eitthver sex lömb sem ákveðin lömb séu dauð en Guðni Reynir hefur ekkert séð þau í sumar, töpuðust sjálfsagt snemma undan eða eitthvað.

       Sigga var að vinna í dag og ætlar svo á Selfoss í kvöld, en á að vinna á morgun líka þannig að ég held nú að hún þurfi að fara að finna sér bílstjóra hehe annars get ég svosem alveg skutlast þetta annað eins hefur nú verið keyrt í kringum fótboltann.

26. okt 2006

Tengdamamma á afmæli í dag til hamingju með daginn ári eldir en í gær..

        Það var bara bullandi snjókoma í morgun þegar ég fór í fjósið, og snjóaði bara helling í dag, móflekkótta kindin sem GR vantaði kom labbandi heim með hvítann hrút og gráa gimbur, við vorum nú að vona að hún kæmi með flekkóttann hrút úr hrauninu sem vantar, með sér en ó nei hún var nú ekki að hafa fyrir því.

     Krakkarnir eru að fara í vetrarfrí það er að segja stóru krakkarnir Sigga og Guðni Reynir, aumingja Dóri þarf að fara í skólann verður sjálfsagt ekki kátur með það.  Hann sagði mér í gær að það væru bara fullt af krökkum með samning við foreldra sína um að fá einn frídag í mánuði, ég var nú ekki alveg til í það, þá bauð hann upp á einn dag í viku og fannst það bara mjög sjálfsagt og að hann mætti alveg við því, góður...

25. okt 2006

        Þá er búið að redda ræðumanni í sviðaveisluna enda vilja jú allir koma og ekki verra að fá svið líka.  Þá er bara að sjá hvort einhverjir gefa sig fram í að vera með atriði???? Sjáum til með það.

      Fór í sjúkraþjálfun aftur í morgun, var nú ansi þreytt þegar ég kom heim steinsofnaði bara í stólnum mínum og náði ekki einu sinni að horfa á nágranna...

       Það er nú farið að styttast í hvolpana hennar Sölku en í dag er hún líklegast á degi 54 þannig að við þurfum kannski að bíða fram á dag 63 eins og síðast þegar hún gaut en sjáum til hvað hún getur haldið í sér.

       Svo hringdi rúningsmaðurinn sem við ætlum að fá hér til að rýja lömbin og hann ætlar að mæta kl 9.00 á sunnudagsmorguninn þannig að þá verður allt að vera orðið klárt í rúning, mikið verði ég kát að fá smá ull hehe

24. okt 2006

       Nú fer að komst mynd á sviðaveisluna, en Maggi ætlar að koma og spila á svo eftir að græja skemmtiatriði,,,,,,eða finna einhvern sem hefur getu og nennu til að koma og skemmta okkur en reyndar erum við Miðengismenn svo skemmtileg að það liggur við að það dugi.

      Bjössi búinn að fara í marga hringi að leita að flekkótta hrútnum sem vantar úr hrauninu og eins vantar enn móflekkótta tvílembu, þetta verður nú eiginlega að fara að finnast, það finnst alltaf einhvað sem vantar ekki liggur við.

      Nú ég held að nú sé Sigga alveg flutt á Engjaveginn sem verður þá til þess að Dóri er alveg á því að hertaka herbergið hennar Siggu hér heima en þeim semur nú bara svo vel Siggu og Dóra að það ætti nú ekki að vera vandamál.   Nú Dóri fór aðeins niðureftir til Siggu í dag á meðan GR var á æfinu og tók þetta allt út, Geiri stendur í stórframvæmdum kominn með gröfu og alles það á semsagt að laga grindverkið fyrir snjóa skilst mér.

23. okt 2006

       Fór í sjúkraþjálfun í morgun, virðist nú versna í hausnum við þetta brölt enda kannski von á því en held samt í heildina að þetta sé að virka.

    Haldið þið ekki að Dóri minn hafi komið með eiginhandaáritun handa mömmu sinni heim úr skólanum, og þá frá einni af uppáhaldshljómsveitinni minni, Hundur í óskilum, þeir eru bara flottastir.

       Gunna frá Bjarnastöðum kom svo hér í dag og færði mér blóm frá smalahundafélaginu Smala takk fyrir það, rosafallegur vöndur og nammi með hehe það er nú einhvað fyrir mig.

      Fór svo á friendtex fatakynningu á Gömlu Borg, bara fullt af flottum fötum auðvitað fann ég einhvað sem mér bráðvantaði hehe

      Nú svo kýkti Höddi í Haga í kvöld en nú er aldeilis að stittast í Sviðaveisluna en hún verður hér í skemmunni laugardaginn 11 nóv, þurfum að fara að láta þetta berast svo fólk geti nú tekið daginn frá en þetta veður vonandi bara gaman, en það stendur til að hafa svo ball á eftir svo lengi sem fólk endist... 

 

22. okt 2006

Folaldasýningin komin á netið

Solla Stirða og Folarnir 2006 númer 4 á videóinu svo það þarf ekki að bíða mjög lengi

        Hér er allt í rólegheitum og eiginlega ekkert um að vera, reyndar fóru GR og Bjössi að hjálpa Gumma í Hólum að smala og gekk bara vel.  Sigga að vinna í dag og við Dóri bara að gera ekki neitt held ég bara.

21. okt 2006

        Það er mikið búið að vera að gerast hér í dag.  Byrjaði á að sækja Siggu á Selfoss, nú svo var hér smalaeðlispróf á vegum smalahundafélagssins Smala, þetta er bara snilld svona próf, verð nú bara að segja það, en þetta gengur í raun út á að finna út hvort hundurinn finnur það eðli sem hann var í upphafi ræktaður til að gera..er þetta mjög flókið? Semsagt verið að kanna hvort ákveðnir hundar og þá í hinum ýmsu tegundum, séu enn með það eðli sem þeir voru ræktaðir til að gera í upphafi, sumir voru alveg klárir á þessu aðrir virtust átta sig en svo voru þarna enn aðrir sem virtust ekkert vita hvað þeir voru að gera þarna.  Þannig að sumir náðu, aðrir náðu og æskilegt að mæta aftur og enn aðrir náðu bara alls ekki.  Gutti litli náði og þarf ekki að mæta aftur afar efnilegur hehe nú Tíbrá fékk að prufa og náði en æskilegt að koma aftur.  Ég var rosalega ánægð með þetta og gaman að sjá svona margar tegundir mættar, veit meira að segja að það koma kona alla leið úr Skagafirði bara til að fara í þetta próf með sína hunda.  Þetta verður vonandi svo haldið aftur og hver veit nema DÍF taki þetta upp svona til að prufa hvort smalaeðlið sé nú enn til staðar.

       Nú svo var það folaldasýningin eða bara Folasýningin hehe, það gekk bara vel að ná þeim mæðum heim en Jonni og Sævar voru á hjólum út á túni og ráku heim en þar tóku Bjössi og co við þeim og allt gekk vel, takk fyrir það.  Gekk vel að koma þeim á kerru og niðureftir en þar biðu svo Folarnir 2006, Orri, Davíð og Kjartan Gunnar, verð nú að segja að þeir voru langflottastir strákarnir og stóðu sig með prýði, allir í eins peysum og vel merktir, í bakið stóð MIÐENGI og á frontinum var mynd af hesti og þar stóð svo Folinn 2006, þeir voru nú aðeins smeikir við þá merkingu en voru greinilega ekki ennþá alveg vissir um það hvort þeir væru sjálfir að mæta sem Folar á sýningu eða hvað, treystu mér greinilega ekki alveg... hvað um það folaldið mitt hún Solla Stirða var bara ansi fín, fór þarna um á fallegu brokki og tók í tölt, sparaði samt skeiðið sem ég sá í sumar, en ótrúlegt hvað hún var sjálfstæð það var bara eins og hún vildi ekki einusinni leita að mömmu sinni, var bara alveg sama.  Held að það eigi að vera hægt að sjá videó á www.hestafrettir.is því var allavega lofað í gær á sýningunni.  Nú folaldið sem ég valdi sem flottast vann auðvitað jörp hryssa úr Landeyjunum, ansi falleg fannst mér, nú annars voru þetta almennt ansi falleg folöld.  En enn og aftur það fór ekkert á milli mála að Folarnir 2006 voru langflottustur sýnendurnir og hefðu þeir átt að fá sérstök verðlaun, Takk fyrir þetta strákar, en þið vitið að hér eftir þurfið þið alltaf að mæta.......svona ef mér dettur í hug að sýna folald eða fola,,,hver veit

20. okt 2006

         Doðakusan hún Netla tók þá ákvörðun í nótt eða morgun að réttarst væri nú að halda haus, var bara hin sprækasta í morgun sem betur fer.

        Bensi og Bjössi fóru aftur að smala í dag og gekk ágætlega, gekk ekki eins vel hjá Guðna Reyni og Dóra en þeir fóru út í hraun og ætluðu að sækja restarnar, tvílembu og svo stakann hrút, en fundu ekki nokkra skepnu, ekki kátir drengir sem komu hér heim.

       Annars er nú svosem ekki mikið um að vera endalaus rúntur á Selfoss og loka aftur á Patrol, fór í morgun í sjúkraþjálfun, sótti Siggu svo í skólann því GR var að drífa sig heim að smala, var varla komin heim með Siggu þegar hún fattaði að hún ætlaði að vera á Selfossi í nótt með Freydísi, nú svo er Sigga að vinna á morgun þannig að ég þarf að sækja hana aftur í fyrramálið en þetta fer nú að verða snúið því svo er hér einhvert smalaeðlispróf sem byrjar klukkan 10.00 Gutti minn á að mæta 10.15, þannig að þetta verður allt á síðasta snúning hjá mér reyndar eins og oft áður. 

       Á morgun er svo folaldasýningin þetta verður vonandi bara gaman, svona allavega ef hryssan næst heim en hún er þó allavega komin í túnið þannig að það eru líkur á að hún náist.  Folarnir sem ætla að fara með hana á sýninguna er líka klárir, þeir klikka ekki stákarnir held bara að þeir séu að verða spenntir, held samt að þeir séu búnir að fatta að það á að sýna folaldið en ekki þá....

19. okt 2006

        Haldið þið að önnur kusan sem fékk doða í gær hafi ákveðið í morgun að steinliggja aftur, Bjössi hélt nú bara að hún dræpist, Gunnlagur kallaður út og kusa bara hress eða þannig vill nú samt ekki standa upp ennþá.

      Þegar Jonni fór í vinnuna í morgun sá hann hest fastann í girðingu, þetta var nú hálf skrítið því þessi hestur ásamt þremur öðrum áttu að vera inni í nótt, vel gengið frá öllu í gær einn hesutr í hverri stíu og sérstaklega farið yfir að hliðin væru lokuð, nú og líka lokað út, samt fóru þeir allir út og lokuðu á eftir sér hurðinni, mjög undarlegt.  Þetta voru hestar sem áttu að fara í þriðju leit í morgun, klárarnir fundust nú samt þegar fór að birta, gekk ágætlega að smala skildist mér og fullt af fé spennandi að sjá hver á svo þetta fé.

   Nú Guðni Reynir kom ansi beyglaður heim eftir æfingu í kvöld, venjulega er hann ansi snöggur að hoppa upp úr tæklingum en þarna var hann ekki nógu snöggur eða óheppinn, allur blóðugur og rispaður en þetta fylgir víst.

18. okt 2006

       Fór í morgunfjós í morgun, enginn kálfur hehe en þegar ég gaf fóðurbætinn, þá voru þarna tvær kusur önnur sú með alla kálfana og svo ein sem á að bera á næstu dögum en ekkert farin að stálma, sú stóð nú samt en virtist bara í fílu, hvað um það í níu fjósi voru þær báðar konmar með doða og sú óborna að bera.  Gunnlaugur var kallaður til og nú er allt í himnalagi, komin þessi fína kvíga í fjóið og kýrnar sprækar.

       Fór í sjúkraþálfun í morgun, var alveg ótrúlega dugleg fannst mér, fór svo í bæinn, þurfti að snúast smotterí, tók svo Sölku með í heimleiðinni og sú er orðin sver, það er ekki að sjá að hún þurfi að bíða í næstum tvær vikur eftir að góta, og er nú ekki frá því að það séu þó nokkrir hvolpar í henni.

      Bjössi og Bensi eru svo að fara að smala á morgun það er að segja í þriðju leit, á nú ekki von á að við eigum fé þarna en vonandi smalast bara vel, sjálfsagt vantar einhverjum einhverjar kindur.

17. okt 2006

       Þegar Bensi mætti í fjós í morgun mætti hann tveimur kálfum, nú svo þegar komið var í níu fjós þá var önnur kusan sem hann hélt að ætti klálf, að bera, þannig að það komu þrír nautkálfar í morgun, niðurstaðan var svo sú að Drottning gamla átti tvo kálfa, enda eru þeir alveg eins.  Bensi og Guðni Reynir fóru svo með kálfana á Bíldsfell seinnipartinn og komu með eldra naut heim í staðinn til að hafa í kvígunum.

      Einhvað tíndist heim af fé í dag, þannig að samkvæmt nýjustu tölum vantar tvílembu og einn flekkóttann hrút, annað er komið eða talið dautt.

       Nú og Solla Stirða er svo komin heim í tún, en Bjössi náði að möndla hana inn í tún í dag, sú gamla var nú alveg á því að fara í hina áttina en þegar hún sá að Bjössi ætlaði að gefast upp ákvað hún að gefa eftir hehe

16. okt 2006

         Fór bara ekkert af bæ í dag og varla út úr húsi heldur, brrrrr rosalega kalt.  Það var svo slátað lömbum í SS í dag, þetta kom nú frekar illa út, að okkar mati en sláturhúsið vill hafa lága fitu, sem tókst svona ljómandi vel 5,54 í fitu, sem er bara rosa fínt og borgað vel fyrir það EN ekkert sérlega gott til átu hehehe, af 150 lömbum sem fóru í sláturhús voru 2 held ég felld fyrir fitu og tvö voru marin þetta er nú ansi lítið feit lömb.  Þannig að nú er bara að verða sér úti um hrút sem er að gefa mikla fitu, þannig að vonandi jafnar það sig út, þannig að þó sá hrútur gefi falllömb á fitu annarstaðar þar sem menn/konur eru komin lengra í ræktuninni þá kannski væri þetta bara fínt hér, sjáum hvað verður.

      Nú svo kom kálfur svona frekar óvænt í fjósinu í dag, og mátti litlu muna að hann fæddist ekki bara úti held að þessi kýr hafi átt að bera í febrúar 2007 samkvæmt mínum bókum en svona geta þær platað mann en sem betur fer er hún búin að vera geld í einhverjar vikur.  Það þarf ekki einusinni að taka fram að það kom kvígukálfur..

15. okt 2006

       Hálf er maður búinn að vera lélegur í dag og kannski ekki á það bætandi, var að rifja upp hópinn af fólki sem var að raga féð í gær, nú það var Guðni Reynir 17 ára, ég sem er nú ekki til mikils gagns, pabbi á annari löppinni og mamma á hinni, Hreinn farinn að nálgast sjötugt og Gunni Har sem er rúmlega sjötugur, nú svo var líka hann Daddi sem reyndar hvarf rétt undir lokin, ekki gott að segja hvað varð um hann en hefur ekki sést síðan.  Reyndar var hann ekki sá eini sem hvarf hér í gær því Einar Ásgeirsson var hér í smölun svo bara allt í einu hvarf hann líka, hugsa að honum hafi bara verið rænt en við Bjössi urðum ekkert vör við að hann færi en sá samt að hann kom heim úr smalamennskunni þannig að ég held að hann sé ekki tapaður alveg.  Veit svo að  Bjössi og Bensi fóru að mjólka á meðan við vorum að raga féð. En þegar maturinn var til þá var nú fullt af fólki þarna þannig að það skilaði sér nú. 
       Nú sláturbíllinn sem átti að koma klukkan 1500 kom að verða klukkan 1800, held svo að bíllinn hljóti að hafa verið meira og minna villtur, því héðan ætlaði hann að Hömrum en held að hann hafi nú ekki verið kominn þangað um hálf átta svo ekki er nú gott að vita hvert hann fór.

14. okt 2006

Einar Óli er 12 ára í dag, til hamingju með daginn Einar okkar.

      Dagurinn byrjaði á snarvitlausu veðri, rok og rigning,  það átti að byrja snemma að smala austurgirðinguna, en dróst nú aðeins að fara af stað en þetta gekk nú samt ótrúlega vel.  Ég var hér heima að vasast í engu eins og vant er, en það var ansi mikið rafmagnslaust, fór fyrst í um klukkutíma, en datt svo út aftur held ég þrisvar fram að hádegi, ekki gott fyrir tölvuna og hitaveituna en vona að þetta hafi nú allt sloppið.  Nú eftir háldegi var svo hraunið smalað gekk líka ágætlega vorum svo búin að raga allt féð uppúr klukkan 1900, Guðni Reynir sá nú reynda að það vantaði dálítið fé og þá sérstaklega úr Farinu, en auðvitað kannaðist enginn af þeim smölum sem fóru yfir Farið að hafa misst af fé.  Hvað um það þetta gekk allt saman og komin 140 lömb í sláturdilkinn en það verður sótt á morgun. 

13. okt 2006

        Sjúkraþálfun í morgun en annars bara allt í rólegheitum.  Fór svo seinnipartinn á Stuðla með Ýlu og Týru í seinna parvó þannig að þá er það búið þar til að ári.  Sótti svo barka í bílinn hans Dóra, þannig að á morgun ætti hann að geta platað einhvern til að græja bíllinn fyrir sig.  Nú svo fórum við í pizzapartý til Einars Óla en hann á 12 ára afmæli á morgun.

12. okt 2006

        Byrjaði á að fara með Siggu til læknis en hún er alltaf að drepast í hausnum kerlingartuskan, nú svo var Dóri sóttur í skólann og Sigga keyrð í skólann.
        Við Dóri fórum svo og sóttum Patrolinn okkar, hann var reyndar ekki alveg tilbúinn því að útvarpið dó þegar rafmagnið var tekið af bílnum og það var bara alveg sama hvaða kódar voru settir inn ekkert virkaði svo það var steft á að fá nýtt úrvarp en það virtist sama sagan og með vélina, ekkert útvarp til í landinu og ekkert í Evrópu.....hvað um það sjálfsagt er verið að smíða útvarp einhvernstaðar og það kemur bara þegar það er til, sakna nú ekki útvarpsins því krakkarnir eru alltaf að hækka það og ég bara geðvond ehehe þannig að þetta er bara gott.
      Nú svo var snúist einhvað á Selfossi, Sigga sótt í skólann og brunað í bæinn, fyrst með símann hans Dóra í viðgerð síðan í Kringluna en Siggu vantaði skó og reyndar ýmislegt.  Nú eftir kringluferðina þá var stefnan tekin á Vélaver og þessi flotta hestakerra sótt, ekkert smá flott kerra. Nú reyni að setja inn mynd á morgun.

   Það á svo að smala á laugardaginn og nú er bara að krossleggja fingur og vona að veðrið verði þokkalegt, en spáin er svosem ekkert spennandi en kannski rætist úr þessu.

11. okt 2006

      Búin að vera löt í dag og ekki einusinni farið af bæ.....

      Það fæddist enn ein kvígan í fjósinu í gær, alveg með ólíkindum en ansi gott samt, nú kusan hans GR  hún Botna er ekki alveg í lagi eftir að hún var svo hún var bara sett í sér stíu með eina fjóra kálfa svo er bara að sjá hvernig þetta virkar en Guðmundur og Stína á Bíldsfelli virðast alltaf geta vanið kálfa undir kýr svo við hljótum að geta þetta.

       Af bílnum mínum er það að frétta að það er komin ný vél í hann og ný túrbína en hvað þá....jú útvarpið fékk svo mikið sjokk við þessar nýjungar að það múkkar víst bara ekki í því svo það verður bara sent til Japans EN ég þarf samt ekki að bíða eftir að það komist í lag heldur verður bara sett nýtt útvarp í hann og svo er bara að vona að vélin fái þá ekki sjokk yfir útvarpinu en það væri nú svosem eftir því en vona bara að ég geti sótt bílinn minn á morgun.

10. okt 2006

       Fór í skjúkraþálfun í morgun, næst var það Nóatún og keypti efni til sláturgerðar, auðvitað var þetta allt forsið þannig að það tók aðeins lengri tíma að byrja á þessu en til stóð.  Hvað um það aftur á Selfoss eftir háldegi, og var varla komin heim þegar ég þurfti enn og aftur að fara nirðureftir með dótið hennar Siggu sem Guðni Reynir hafði farið með heim, einhver misskilingur þar á ferð en þurfti samt að fara með lyf til Siggu þar sem hún var svo slæm í hausnum.  Það var svo ekki fyrr en um fimm leitið sem ég gat byrjað á slátrinu en þetta er nú voða fljótgert þegar allt er klárt, held að þetta hafi allt verið komið í frost um sjö leitið nema auðvitað það sem ég ætla að sjóða á morgun.  Gerði slátur úr tveimur líturum af blóði og sex lifrum, það er þá alltaf hægt að búa til meira seinna ef þannig liggur á mér.

      Náði í nýjann digital lykil fyrir stöð 2, voða sniðugt nema hvað nú eru allar stöðvar týndar sem voru inni, ekki gott þarf einhvað að finna út úr þessu í dag.

9. okt 2006

        Við Bjössi fórum með Neista í bæinn í morgun í nudd og hnikkingar, er nú bara ekki frá því að við sæjum mun á liðleika klársins svona þegar á leið.  Það verður svo ,,hnikkt" á þessu um miðjann desember en klárinn á að vera í hvíld þangað til og svo er bara að vona að hann verði algóður í vetur.  Fór með Bjössa að skoða hestakerrur í Vélaver svona á meðan Neisti var að jafna sig, yrði nú ekki hissa þó karlinn fengi sér hestakerru...

       Þegar við komum svo heim þá var kominn eitt stykki kálfur í fjósið, lifandi kvíga undan fyrsta kálfs kvígu samt ekki þeirri sem við töldum vera komna að burði, en svona getur þetta bara verið.

8. okt 2006

         Fór á hundasýningu í bæinn í dag en að þessu sinni var bara hann Gutti litli sem fór á sýningu, hann varð í öðru sæti í sínum flokk, en hann var sýndur í hvolpaflokk eldir, hann var nú svo fínn og glansandi að það var nú næstum bara fyndið, fannst hann voða fínn á sýningunni en svo þegar hann kom heim þá sá ég virkilega hvað hann glansaði hægt að spegla sig í honum, takk fyrir þetta Linda og Kolla.  En þessi glans endist varla lengi allavega var Guttinn voða kátur með að komast í fjósið í kvöld enda ekki sýning fyrr en í mars eða einhvað hehe

7. okt 2006

        Einhvað búið að eltast við hross og kindur í dag, tittirnir komnir heim, og viti menn hesturinn minn sem heitir Hæringur og var hvítur í sumar er kominn með gráann ál, haus og lappir.....mjög undarlegt finnst mér.

        Nú svo fæddust tvær kvígur í fjósinu í kvöld en bara önnur lifandi en svona getur þetta verið.

5. okt 2006

        Fór í sjúkraþjálfun í morgun og viti menn komst lifandi frá því.  Samt alltaf að drepast í hausnum þessa dagana hélt að ég væri komin í betra lag.

     Búin að tala betur við ,,Folanna" sem ég ætla að senda á folaldasýninguna allavega tvo af þremur þetta verður ekkert mál, næst er bara að ná þeim mæðgum heim það verður nú kannski meira mál en sjáum hvað setur.

4. okt 2006

        Fór að Stærri Bæ í dag en það var verið að sækja restar af hryssum sem voru undir Markúsi frá Langholtsparti.  Tvær voru á leið í sónar en hinar 5 átti bara að sjá til með skildist mér.   Annars bara allt í rólegheitum, farið að kólna ansi mikið og reyndar ringdi rosa mikið í dag, hef líklega aldrei labbað svona mýri eins og á Stærri Bæ þar sem var nú bara vatn fannst mér, enda þekki ég nú ekki mikið til mýra hér niður í skógi.

     Skráði Sollu Stirðu á folaldasýninguna en fékk enginn viðbrögð frá Óðni, múkkar bara ekki í karli enda kannski kominn með kvíðakast fyrst Trillta Bleik kemur á svæðið, en það er nafnið sem hann notaði á hana í sumar þegar þær mæðgur voru í girðingu hjá Hróð.  Spurning hvort þarf ekki að fara með fleiri liti á þessa sýningu, Jonni á brúnskjótt og Bjössi jarpskjótt, ég á reyndar líka vindótt en sá er svo spakur að ég held að það þýði ekkert að fara með hann, nú og svo á Bensi rautt......Halla Karen Brúnskjótt.....ekkert brúnt til og ekkert jarpt.

3. okt 2006

Mamma á afmæli í dag, til hamingu með daginn.

          Sko, sá á einhverri hestsíðunni að það á  að vera folaldasýning í Ölfushöllinni 21 okt, er ekki bara málið að smala á kassabílinn einhverjum folöldum og skella sér með þau á folaldasýningu.....held að það sé málið, en þetta er jú ekki einfalt skal ég segja ykkur, fæ klárlega einhverja til að koma folöldunum niðureftir og heim aftur, en þá er það aðalmálið en það er að fá einhverja til að reka þau fram og til baka í höllinni, var mikið að velta þessu fyrir mér hvernig ég snéri mér í þessu því klárlega hleyp ég þetta ekki og fékk þá þessa snilldarhugmynd. 
     
Orri, Davíð Adams og Kjartan Gunnar  þið eigið að mæta á FOLASÝNINGU
 í Ölfushöllinni laugardagskvöldið 21 okt. í viðeigandi klæðnaði að sjálfsögðu.

         
Nú er bara að treysta á að þeir lesi bara stóra letrið held að það geti ekki klikka ef ég þekki þá rétt, nú og ef þeir lesa smáa letrið þá gera þeir þetta nú fyrir hana fóstur sína.

2. okt 2006

          Fór á Selfoss í morgun og pantaði varahluti í Böggý bílinn hans Dóra, vonandi kemur þetta sem fyrst, en ekki alveg einfalt að ferðast um á Böggý þegar bensínbarkinn er slitinn, hvernig sem það gat nú gerst.

       Annars bara allt í róglegheitum, gott veður og maður snýst bara í kringum sjálfan sig. 

1. okt 2006

        Mamma hélt upp á sextugsafmælið sitt í dag, hún á reyndar ekki afmæli fyrr en á þriðjudaginn en dagurinn í dag varð fyrir valinu til að halda upp á herlegheitin, þetta tókst svona ljómandi vel, allir saddir og sælir eftir daginn, við Sigga fórum svo með afganga á Engjóz, en það má nú ekki svelta drengina og kannski ágætt að fá stundum einhvað annað en pizzu.  Fannst nú á Orra mínum að hann væri bara að verða spenntur að komst í smalamennskuna, sem verður 14 okt, veit samt ekki alveg hvort ég á að fá hann og félaga í að smala fé eða hreinlega að fara í eftirleit og smala því fólki sem ekki skilar sér á réttum stað og tíma þegar smalamennskan ætti að vera búin, nei það eru engir svoleiðs smalar hér en samt gott að vera við öllu búin hehe það hlítur að koma að því að það þurfi eftirleit á mannskapinn.

30. september 2006

       Búið að vera ansi gott verður í dag, Guðni Reynir og co fóru upp að Búrfelli í morgun en GR ætlaði að ná í einhverjar ákveðnar kindur sem hann þóttist vita af þarna.  Auðvitað fann hann ekkert, og var frekar ósáttur, fór svo aftur eftir kvöldmjaltir og þá fann hann þær um leið en var þá ekki á réttum bíl og ekki með Voða með sér þannig að það náði ekki lengra en veit þó að þær eru ekki farnar langt.

       Adam og Elvar kýktu við í dag og mættu að sjálfsögðu í kvöldfjós, en held að Elvar sleppi því ekki ef hann er á ferðinni á mjaltartíma og þó það sé kannski ekki mjaltartími þá bíður hann bara og athugar jafnvel hvort ekki sé þá hægt að mjólka fyrr.

29. september 2006

        Búin að snúast á Selfossi meira og minna í dag, en Dóri þurfti nauðsynlega að komast í klippingu og strípur, og Skúli Már stunginn af á sjóinn, sagði Dóra að Skúli yrið 37-45 daga á sjónum man þetta ekki alveg,,,, það var ýmislegt sem Dóri hafið um þetta að segja, ,,heldur þú að svona snyrtipinni endist svona lengi á sjónum?" og ,,hann verður þá að hætt að reykja því annars verður hann að kaupa svo mörg carton af sígarettum ef þær eiga að endast allann þennann tíma" Dóri semsagt stórefaði að Skúli hefði efni á því, en ef menn hafa nú 2-300 þúsund í kaup á mánuði á sjónum þá kannski reddast þetta... hef ekki hugmynd um hvar hann Dóri fær uppl. um þetta kaup, en nú er bara að sjá hvort karlinn endist á sjónum hehe en hef nú trú á að það breytist ekkert en Skúli ætti að vita út í hvað hann er að fara, alvanur á sjónum held ég en samt hafið Dóri ekki mikla trú á þessari sjómennsku hans.  Hvað um það Dóri fékk samt sem áður klippinu og stípur þó svo Skúli væri ekki á svæðinu, og kom nokkuð sáttur heim.

28. september 2006

      Dekurdagur í dag, fór í plokkun og litun í morgun, laumaði mér svo í ljós og svo var það klipping og strípur, ansi dugleg þykir mér.  Nú fór svo með Gutta í kvöld í sýningarþjálfun, þetta er svo þægur hundur að það hálfa væri nóg, allavega gekk mjög vel, var svo komin austur aftur fyrir klukkan 10 í kvöld svo ég missti af myrkrinu í Reykjavík en nóg af myrkrir hér fyrir austan og læt það bara duga.

27. september 2006

        Bara ekki farið að heiman í dag, hver hefði nú trúað því.  Bara búin að vera að snúast í kringum sjálfa mig enda er það svosem full vinna.  Kiddi frændi kom í morgunkaffi og lá bara vel á honum eins og alltaf svosem.  Nú fór svo út og tók aðeins myndir af Tintron en hann var hér heima við, ástamt Hróu sem er að sjálfsögðu systir Hróa, en þau eru svo spök bæði tvo og ekkert mál að nálgast þau, Solla Stirða er ekki eins spök og kannski bara réttnefni hjá Óðni á þær mæðgur Brjálaða Bleik veit nú samt svosem ekki við hvort hann átti en ég er nú samt aðeins hissa því hún Hryðja mín á spökustu hrossin á bænum og svo kemur Solla eins og skrattinn úr sauðaleggnum, ansi mikið stygg, en viti menn hún á eftir að verða flottust.

26. september 2006

         Fór á fóðurfund í Þingborg í dag, þetta var svosem ágætt en var hann Sverrir Heiðar ekki bara búinn að kenna okkur þetta allt á Hvanneyri í nautgriparækt, allavega allt sem skipti máli held ég, reyndar fór þetta fram á ensku og var þýtt jafnóðum en þá tók þetta lengir tíma og ekki laust við að maður dottaði eða næstum því.

       Fór svo núna í kvöld með Gutta á sýningarþjálfun hjá Heimsendahundum eða fólki, Linda sá um að trimma með Guttann og gekk bara rosalega vel hann var auðvitað flottastur eða þannig, fannst hann allavega rosalega duglegur að læra þetta og held bara að honum hafi þótt þetta dálítið skemmtilegt allavega var hann ekki skelfingu lostinn þó svo að honum hafi nú þótt þessir stóru hundar hálfundarlegir, ég var nú eiginlega sammála honum, mjög undarlegir hundar.

25. september 2006

        Það er búið að vera ansi gott veður í dag, fór á Selfoss í morgun að redda æfingarakstri á nýja bílinn hennar Siggu, þannig að nú getur Sigga farið að rúnta reyndar með annað hvort mér eða Bjössa en það er þó betra en ekkert.

        Annars er bara allt í rólegheitum og ekkert að gerast held ég bara, aðeins farin að huga að sviðaveilsunni en svosem ekkert meira en að klóra mér í hausnum, reyndar notaði ég tækifærið á réttarballinu og reddaði atriði eða spilara eða þannig hvernig var það aftur Geiri í Klausturhólum veistu nokkuð hverju þú lofaðir það var jú svo mikill hávaði að fólk sagði bara já og nei til skiptis því það heyrðist bara ekkert hvað fólk var að reyna að segja, þannig að ef einhver hefur verið svo óheppin að hafa talað við mig er ég vís með að plata einhverjum atriðum á fólk.  Orri og Davíð Adams gætu til dæmis hafa lofað því að vera með dansatriði í latex var það ekki klárt strákar held það bara og klárlega munið þið það ekki er ég viss um....

24. september 2006

      Þetta var nú aldeilis réttarball, þegar maður hefur farið á svona réttarböll í gegnum árin þá hafa mætt á milli 20 og 80 manns held ég bara, einhvað var þetta nú öðruvísi núna, ég sat í kaffistofunni við gluggann og sá hvern bílfarminn af öðrum, fullann af ljóskum mæta á svæðið, við forum farin að halda að þetta væri einhver misskilingur og þetta væri kannski bara busaball en ekki réttarball, en hvað um það held að þetta hafi farið vel fram allavega það sem maður sá, krakkarnir bara ánægðir en samt ansi hissa á öllum þessum fjölbrautaskólakrökkum sem mætti meira að segja Siggu blöskraði og fannst orðið ansi margt á ballinu en var nú samt ansi heppin og gat laumað sér inn í Engjavegslimmann sem var á svæðinu, þeir eru nú bara flottastir strákarnir þar. Vorum komin heim á milli þrjú og fjögur en þá voru krakkarnir svangir svo ég fann einhvað til handa þeim, hugsa að klukkan hafi bara verið farin að nálgast hálffimm þegar ég fór að sofa en það passaði að fara svo í fjós klukkan sex verð nú að segja að ég var ansi þreytt og ekki í raun í boði að leggja sig eftir fjósið því fjárhundanámskeiðið beið.  Mætti þar um hálftíu og var fram að hádegi kom Gutta þá heim og fór svo aftur í bóklega partinn.  Fékk svo frí í kvöldfjósi og náði mér í smá kríu.  Svo var að sækja Siggu í vinnuna, Kiddi frændi kom svo við að snýkja sér kaffi en núna var hann ekki einn á ferð heldur kom Gunni Páll og Vala með honum, hef bara ekki séð þau síðan á ættarmótinu hér um árið sem minnir mig á að ég verð eiginlega að fara að koma ættarmótsnefnd á laggirnar.

23. september 2006

          Fór með Gutta á fjárhundanámskeið, hann er nú reyndar í yngri kantinum, en um að gera að nýta tækifærðið og prufa fyrst það er nú námskeið hér í sveit.  Var varla komin heim um ellefu leitið þegar rokið var á Sefoss og þessi líka fíni bill keyptur handa Siggu en þetta er víst WV Bora einhver voða fín sporttípa sér innfluttur á sínum tíma og líklegast eini bíllinn á landinu af þessari gerð, svo var mér allavega sagt. Eftir hádegið fórum við svo í jarðaförina hans Kjartans í Vaðnesi, þetta var eiginlega alveg mögnuð athöfn, lagavalið öðruvísi en maður er vanur en rosalega falleg athöfn hugsa að svona mundi maður vilja hafa þetta sjálfur þegar þar að kemur. 

          Það er svo réttarball í kvöld og spennandi að vita hvort ég endist fram yfir miðnætti.

22. september 2006

       Dóri búinn að vera í fríi í dag, held að það hafi verið kennaraþing sem var hið besta mál.  Sigga var svo komin heim uppúr hádegi og auðvitað var tækifærið notað og henni skellt á hestbak, fyrst fór hún á jarpa hryssu sem er kölluð Gjörð, það er nú alveg magnað með þessa hryssu að eins og hún er nú frek þá lét hún samt bjóða sér að fara monthringinn fram og til baka og fannst það ekkert mál og dúllaðist bara á tölti og það vantað bara að hryssan spyrði hvað næst og brosti, nú og svo var það hann Freiser sem heitir á pappír Freyr, Sigga prufaði hann inn í gerði, leist nú varla á að komast á bak ekkert smá stór þessi hestur, 155 cm á band var hann mældur, þetta gekk semsagt svona ljómandi vel líka.

      Fór á Selfoss með dekkið af Böggíbílnum hans Dóra í viðgerð, gleymdi svo að taka dekkið heim en þeir á Sólningu voru svo almennilegir að bjóðast til að skutla dekkinu hingað heim svona í leiðinni, mín fór nú svo bara að mjólka og svoleiðs, er að átta mig á því núna að ég veit nú bara ekkert hvort dekkið kom eða ekki og kannski er það bara komið undir bílinn sem er hér utan vegar einhvernstaðar, fer í málið á morgun og kanna þetta því það er nú ekki ólíklegt að einhver hafi tekið á móti dekkinu þó svo að ég hafi misst af því.

    Nú og svo ætlum við Gutti að fara á fjárhundanámskeið á morgun, ég að rifja upp og hann að sýna mér hvernig hann hefur hugsað sér að vinna á næstunni, ætla rétt að vona að við verðum sammála um þetta því ég er aðeins smeik um að hann sé kannski dálítið harður og ég kannski dálítið lin og því mjög sniðugt að byrja strax.

     Svo dó þurrkarinn minn í dag, það hlaut nú að koma að því en ég held næstum að hann hafi verið frá síðustu öld eða allt að því, en hversu einfalt getur þetta nú orðið að redda nýjum þurrkara...eitt símtal í Fossrafsmenn og þessi fíni þurrkari til handa mér sem kostaði innan við 25.000 og svo annað símtal í Jonna sem kom svo með gripinn, þetta gerðist eiginlega bara sjálft, aldeilis fín þjónusta sem ég hef hér, takk fyrir það.

21. september 2006

      Hringdi í Möggu í hádeginu svona til að láta vita af réttarballinu sem verður á laugardagskvöldið, en skildist að það væru bara ,,allir" að fara á tónleika á laugardagskvöldið ...maður fylgist greinilega bara ekkert með orðið, ég hef reyndar aldrei fylgst mikið með í raun, er ég farin að halda, svo er ég skömmuð ef ég uppfæri ekki síðuna og læt nú vita af öllu sem er að gerast eða ekki að gerast hvað um það alalfólkið mætir nú samt á réttarballið hugsa ég hinir eru þá bara ekki lengur aðal hehe, frétti meira að segja að sumir ætli að mæta á limmó,, 

       Sá í sunnlensku blaði í morgun að vegkantur gaf sig hér þegar steypubíllinn valt, ég verð líkast til að fara og skoða þetta því ég vissi ekki betur en að það væri ekki kantur og vegurinn er bara breiður þarna, held ennþá að það hafi þurft snilling til að velta þarna enda sést það svosem á myndinni í blaðinu að bíllinn veltur á jafnsléttu næstum upp í móti, jæja hvað um það hugsa að ég gæti þetta klárlega ekki þó ég reyndi, enda ekki talinn neinn snillingur þegar kemur að bílum.

     Vorum að skoða bókhaldið okkar um kýr og kvígur, einhvað hefur maður nú klúðrar þessum kvígum held ég því það virðist vanta tvær kvígur sem ættu að vera komnar að burði, það er því þrennt í stöðunni, þær eru týndar úti í hrauni, þeim hefur verið stolið,,,trúlegt hefur einhver reynt að handsama kvígur sem eru nærri tveggja ára úti á túni hehe eða þessir gripir hafa kannski aldrei farið út í vor vegna þess að hugsanlega hafa þær kannski bara drepist sem smákálfar og ég klikkað á að skrifa það í bókhaldið... en það stendur nú til að smala landareignina ca. 14 október og við erum að taka um að smala ekki sportreið og líta hvorki til hægri né vinstri og fara bestu götuna heim, og þá ættum við nú að sjá hvort það kemur einhvað meira úr hrauninu en hross og svo auðvitað kindurnar sem á að smala.

      Guðni Reynir sagið nú farir sínar ekki sléttar hér í gærkvöldi, það er nefninlega þannig að hann Einar Óli frændi okkar sem er að verða 12 ára er með vídeóvél og er að búa til bíómynd, Einar Óli er byrjaður að mynda og búin að raða í hlutverk og allt, haldið þið að hann hafi ekki komið hér eitt kvöldið og tilkynnt Guðna Reyni það að hann væri rekinn,,,,,það var bara ekkert annað, Guðni Reynir var nú hálf hissa á þessu en fékk þær skýringar það það þarf að mæta í tökur takk fyrir ef menn vilja handa hlutverkinu.  Nú Sigga hefur samt ekki enn verið rekin en ég held að það sé vegna þess að hún er aldrei heima svo hægt sé að reka hana.

20. september 2006

       Það virðast allir sem ég hef heyrt í að Kersins Orri er meira spennandi til ræktunnar en Engjavegs Orri....alveg er ég hissa haha

      Fór í Húsasmiðjuna til að kaupa timbur í girðinguna á Engjoz, fyrst drengirnir þar eru svona framtakssamir þessa dagana, Geiri þarf bara að sækja það, því kerran er jú á Engjó, hef reyndar ekki séð M.Benzinn í einhvern tíma þann sem er með dráttarkúluna, en sjálfsagt finna þeir út úr því strákarnir, sem minnir mig á það að við Sigga fóru í Reykjavík í dag að skoða bíla, en Sigga er nú að verða frekar óþolinmóð og vill endilega fara að fjárfesta í bíl, hugsa að Ford Mondeo verði fyrir valinu það er líkast til bíllinn sem við getum orðið sammála um, en helst vildi hún nú samt sportbíl eða M.Benz, var nú aðeins að sjá svona Benz bíla í Reykjavíkinni í gær og gat nú ekki betur séð en að í allavega 90% tilfellum þá voru eldir konur undir stíri hehe þannig að það eru kannski bara ónefndir menn á Engjoz og svo gamlar konur sem aka um á svona bílum....veit ekki en það lítur þannig út.  En endilega kýkið nú á Engjoz síðuna og sjáið hvað krakkarnir eru að bralla þar.

     Nú Guðni Reynir fór út í hrun á sunnudaginn var að kanna skemdir eftir Setterinn, kindin sem var lamblaus var enn að rolast þarna niðurfrá lamblaus, stráknum tókst nú samt að finna tvö af þremur lömbum og koma þessu saman en þriðja lambið sá hann svo út í hruni áleið heim en það er hrútlamb og ekki hægt að ætlast til að það lamb fari nú að leita mikið að mömmu sinni á þessum tíma.

19. september 2006

         Reddaði mér mynd af Engjavegs Orra þannig að nú eru þeir báðir á forsíðunni enda báðir Best in Show......fullt af vitnum að því.

        Annars er ég bara búin að vera heima í dag held ég í rólegheitum, fór núna í kvöld að Stóra Hálsi með ameríkanana að ná í lopapeysur sem þær áttu pantaðar og vit menn haldið þið ekki að þær hafi veri búnar að panta þessa líka flottu peysu handa mér sem auðvitað smellpassaði á mig, en ekki hvað.  Þetta eru ekkert smá flottar peysur sem hún Ásdís er að prjóna endilega kýkið á það HÉR.

18. september 2006

        Hér eru tvær konur úr Ameríkunni og þar sem þær eru nú hundakonur var dagurinn notaður í að fara í Mekka Íslenska hundsins í Grundarfjörð semsagt, vorum reyndar búnar á sjá hundana hennar Dittu á sýningunni en kýktum á þá sem voru að vinna um helgina, Önnu Dóru hunda og Kollu hunda en þær voru að vasast í smalamennskum um helgina hef ég grun um, þetta var rosa gaman og ég er nú bara ekki frá því að það sé styttra í Grundó núna en fyrir þrem vikum, komum svo við í Hveró að kýkja á Sölku sem var auðvitað rosa kát að sjá okkur.

      Nú ég missti svo af því hér heima í staðinn að það valt steypubíll fyrir utan eldhúsgluggann minn eiginlega fyrir framan húsið hans Sverrirs, þetta er alveg með ólíkindum og þarf líkast til algjörann snilling til að velta á beinum vegi sem er ekki einusinni með kanta sem talandi er um, bíllinn var víst á leið niður í sumarbústaðahverfi og er ekki ástæða til að ætla að hann hafi þá verðið fullur af steypu hugsa það bara, þetta var víst um hádegi og kranabíll að vasast í því allann daginn að koma honum á réttann kjöl.

17. september 2006

         Jæja þá er hundasýningin búin og maður komin heim, þetta gekk bara ljómandi vel held ég hjá Kersins hundunum, allir nema einn fengu fyrstu einkunn og 3 eða 4 meistaraefni, held að það hafi verið sýndir sjö Kersinshundar þannig að þetta er nú aldeilis gott, dómarinn reyndi að mæla alla hunda en held að það hafi einhvað verið undarlegt málbandið hennar því að tík sem hefur margmælst á ræktunnarámskeiði 42 cm var allt í einu orðin 39 cm en held að menn og konur geti þá bara almennt bætt við 3 cm á þessa fínu mælingu.  Nú ég nældi mér í besta ræktunnarhópinn, mætti með einn meistara og tvö meistaraefni, hinn hópurinn sem var skráður mætti ekki því miður en við fengu fyrstu einkunn og eðalilega fyrsta sæti og heiðursverðlaun, og þessa líka fínu dollu.  Nú Ýrar Akkur fékk sömu meðferð með afkvæmahóp en þar var sama sagan hinn hópurinn sem var skráður mætti ekki, það var nú samt dálítið skondið að afkvæmahópurinn hann Akks var allur Kersins.... rosa flottur hópur.  Nú og það endaði svo með því að það var valinn besti hundur sýningar og hver annar en Kersins Orri nældi sér í þá dollu, þessir Orrar eru bara flottastir, Kersins Orri og Engjavegs Orri,,, sá síðarnefndi hefur líka fengið dollu held ég en það var fyrir drag hehehe  Spurning hvort ég get ekki reddað mér mynd af þeim félögum allavega Kersins Orra og vitið þið að ég þekki menn sem væru alveg vísir til að redda mér mynd af Engjavegs Drag Orra.... þarf aðeins að vinna í því.

16. september 2006

        Byrjaði á að skutla Siggu í vinnuna fór svo í Skeiðaréttir en þar var fullt af hundafólki, allstaðar að úr heiminum, verst fannst mér að ná ekki alveg að tengja nöfnin við andlit en átti sjálfsagt að kannast við fullt af fólki sem var þarna.  Nú úr skeiðarétt var farið á Hestakránna og étin rosa góð kjötsúpa, þaðan haldið að Gullfoss og síðan Geysir skoðaður, nú á laumuðum við okkur heim ég Dorte og Linda sem var bara snilld því þá gat Linda aðeins æft sig í að sýna þessa hunda sem ætla á sýningu á morgun og finna út að líklega er kleina málið en ekki Coco Puffs hehe nú restin af hópnum sem var semsagt í rútu fór í Skálholt og þaðan að Kerinu þar sem við hittum þau aftur en Linda fór með rútunni í bæinn aftur.

      Það voru svo sónaðar 8 hryssur hér sem voru hjá Eið frá Oddhól og allar með fyli, nú ein sem hafði farið snemma í vor undir Galdur frá Laugarvatni og sú með fyli, ein sem hafði verið hjá Erp en hún var ekki með fyli en það var einhvað eggjastokksvesen á henni og svo átti Lísa dýralæknir eina hryssu sem var líklega hjá Ás frá Ármóti minnir mig og sú líka með fyli þannig að í gær voru 2 staðfesta en núna eru þær orðnar 8-9 sem gætu kastað næsta vor þetta passar nokkuð vel því það er 3 mera kvóti á mér og af þessum 8-9 á ég bara 4-5, Bjössi eina og hálfa og Jonni hálfa, Lísa eina og þá er ein eftir ??? jú líklega á ég hana en hún kastar kannski í apríl þannig að það er hægt að færa þann kvóta yfir á 2006 er það ekki bara hehe, ég ætti nú ekki annað eftir en að fá 6 folöld næsta vor,,, verð eiginlega að selja Móu held að það sé málið en hún er jú Móvindótt og fór undir Eið sem er líka vindóttur þó það sjáist ekki og þá eru 75% líkur á að það komi vindótt en verra ef það sést ekki hehe

       Nú úr fjósinu og reyndar af túninu er það að frétta að Dóri var á hjólinu sínu úti á túni að smala held ég bara og fann þá kálf á ráfi, það fannst svo kvíga sem átti þennann kálf þannig að þetta fór nú allt saman vel og kusa sett inn í fjós ásamt kvígukálfinum sínum.  Nú Lísa dýralæknir var auðvitað sett í að skoða kýr og kvígur sem við vorum orðin þreytt á að bíða eftir kálfi úr.  Nú hún Buska sem átti að bera eftir viku og er líka þessi fína mjólkurkýr, var nú bara ekkert þesslega orðin að það stæði nokkuð til að bera, nú það passaði bara alveg það var enginn kálfur í henni frekar fúlt og nú er það SS sem verða kátir á þriðjudaginn, svo var það kvíga sem greinilega er kálflaus sem var skoðuð þar kom dálítið merkilegt í ljós, það fannst enginn kálfur í henni heldur en það fannst ekkert leg heldur, þannig að það er vonlítið eða bara alveg vonlaust að fá úr henni kálf, og enn kætist SS það er að segja ef við tímum þá að láta þá fá svona grip sem er líkast til bæði naut og kvíga, en svoleiðis gripir eru sérlega góðir til átu enda ekki nothæfir í neitt annað.

      Svo er bara hundasýning á morgun og jólin bara næsum komin eða þannig, ótrúlegt hvað tíminn líður, næsta helgi gæti bara farið í að fara með Gutta á fjárhundanámskeið rosa gaman vona ég svona allavega ef hann er klár í slaginn.

   Nú og fyrir á sem sáu lögguna fara héðan með sírenur, þá er sko skýring á því, það hringdi sumarhúsaeigandi sem hafði séð Irish Setter vera hér úti í Fari að atast í kindunum okkar, og sáu blóð...ekki gott, þannig að það var hringt líklega í oddvitann, atast aðeins í honum, og hann hringdi í lögguna (var ekki heima en svona var mér sagt þetta) sem kom á staðinn en aumingja löggan var bara varla mætt þegar þeir fengu útkall í Tungurnar þar sem einhver hafði dottið af hestbaki, þannig að það var ekki það að við værum svona leiðinleg......Guðni Reynir fór svo undir kvöld niður í Far að kanna féð sem þar var og fann eina ær sem var einhvað löskuð á einum fæti og búin að tapa lömbunum þrem....þannig að í fyrramálið þegar verður orðið bjart fer hann og leitar að kindinni aftur til að sjá hvort lömbin verða komin til hennar eða hvort þau eru löskuð einhverstaðar.

15. september 2006

        Við Sigga ásamt Sólon og Viðari fórum með Samma út á völl í dag, og Sammi að fara alla leið til New York og svo til Detroit ekkert smá ferðalag, en þetta verður bara gaman hjá honum og enn meira gaman að koma aftur heim þegar hann er búinn í skólanum...

13. september 2006

         Það voru réttir í morgun, Dóri fékk réttarfrí og fór með okkur, þetta gekk svona ljómandi vel held ég bara, áttum tvær ær og fimm lömb, og GR nokkuð viss um ættir og uppruna þessara kinda þannig að þetta var hið besta mál.  Nú þarna í réttunum voru held ég einar sex eða átta skepnur úr Borgarfirðinum og svo eitt lamb úr Gnúpverjahrepp held ég bara, ekki gott að segja hvaða ferðalag var á því.  Annars bara lítið um að vera hér á bæ, fór aðeins á Selfoss og sá þennann líka flotta sportbíl á sölunni hjá Sverri, skilst að þessi bíll gæti jafnvel passað inn í safnið á Engjó hehe en sjáum til hvað verður en Sigga er klárlega ekki að fara að fá sér svona sportbíl en ágætt ef hún getur horft á bílinn...

12. september 2006

         Dóri og Bjössi fóru ríðandi upp í Búrfellsdal í smalamennsku í dag, gekk þokkalega en skildist að féð sem átti að vera komið í réttirnar hafi líka farið úr réttunum þannig að það þurfti að smala fénu sem var í heiðinni og líka fénu sem ákvað að koma sér aftur upp í heiði eða þannig. Annars held ég að fjallferðin hafi gengið ágætlega allavega vestanmegin, og sagan sem kom til byggða var á þá leið að það hafi verið mun þurrari mannskapur vestan megin en austan megin, þökk sé áfengisbanninu en það sást víst í gestabók í Gatfelli að menn voru ansi blautir að utan en alveg þurrir að innan og ónefndir konu þakkað það hehehe (ekki mér samt)
        Skildist að Böðvar á Efri Brú hefði smalað sína heimasamalamennsku og náð 1/3 af sínu fé þannig að einhverstaðar ætti restin að vera, það vill til að mönnum finnst rosa gaman að smala og réttast væri að hafa réttarballið eins og til stendur og svo annað loks þegar allt fé verður komið til síns heima.

        Annars bara rigning í dag finnst mér.  Nú af Engjó er það að frétta að Jóhannes Geir Geitungabani stóð í stórræðum í dag og kallaði út meindýraeyðir en það stóð til að klára að þökuleggja en tókst ekki betur en það að menn urðu fyrir heiftarlegri árás geitunga sem voru víst neðanjarðar og ekki sáttir við fyrirhugað verk, en Engjavegsbúar sáu við þeim skulum við vona en það ætti að verða fært í garðinn á morgun.

        Búin að laga aðeins til í linkunum en það var alveg kominn tími á að henda því út sem ekki er uppfært og bæta nýju við nú og eins að laga smotterí.

11. september 2006

        Selma kýkti í morgunkaffi í morgun og sótti Sölku sína. 

       Bjössi fór og smalaði Miðfellshraunið og gekk bara vel ekki kind að sjá um hádegið, svo er bara að vona að þeir sem áttu að taka við fénu sem hann rak á hafi náði því og komið því þangað sem það átti að fara en á morgun verður vonandi smalað heim á bæji og féð handsamað.  Voði og Brella fóru með Bjössa og ég er ekki frá því að þau hafi gert meira gagn en ógagn, þau komu meira að segja óþreytt heim en svo er heiðarsmalamennska á morgun og þá vona ég að Brella missi sá kíló og Voði reyndar líka....en vona nú samt að ég þurfi ekki að sækja þau á bíl hehe en þau eru jú orðin 9 ára gamla settið.  Dóri er búinn að fá frí í skólanum á morgun og ætlar að smala heiðina með pabba sínum og auðvitað á Skjóna sínum besta hesti í heimi.

        Guðni Reynir fór svo inn í Kringlumýri strax eftir skólann, aðeins að líta á mannskapinn, var svo kominn heim held ég þegar aðal fjörið byrjaði innfrá.

        Skilst að Böðvar á Efri Brú sé að fara að senda í slátur á morgun og Guðni Reynir ætlar að kýkja uppeftir eftir skóla og fyrir sláturbíl og reyna að næla sér í kindur.....

9. september 2006

        Endalaust skutl, ná í Siggu á Engjó, keyra Siggu í vinnuna og sækja hana í vinnuna og koma henni á Engjó aftur, svo verður þetta væntanlega allt endurtekið á morgun.

      Við erum farin að hýsa kýrnar alveg, þannig að það eru bara geldar kýr, kvígur og kálfar úti, nú og í einni ferðinni í dag líkega þegar ég var  að skutla Siggu í vinnuna sáum við frekar sprækann nýfæddann kálf á hlaupum, og ekkert smá sprækur líkast til fæðst í gær en þá var ég einmitt að leita að einni kvígunni sem ég hélt mig sjá eina á ráfi en var auðvitað alveg hrofin þegar ég fór að leita, taldi víst að hún væri komin saman við hinar kvígurnar en líkast til ákveðið að nota leiðindarveðrið og bera, þetta var hið fínasta naut, ljósrauður og mikið sprækur.

8. september 2006

       Fór á Engjó í morgun og málaði smá, þannig að það er frá í bili.

       Kolla og Diddi komu frá Grundó í dag svona rétt að kýkja á góða veðrið en ég er nokkuð viss um að það var verra veður fyrir vestan hehe

       Skaust svo í bæinn með Tíbrá en hún er á hlíðninámskeiði eða einhvað, ég sendi semsagt Tíbrá og Lindu saman þetta verður vonandi gaman og lærdómsríkt fyrir þær báðar.  Gutti ,,litli" fékk að fljóta með svona rétt til að kýkja á Bjössa og Láru en vildi endilega fá þeirra álit á hversu flottur hann nú væri hef nú ekki efast um að hann væri flottur en sem border?? En viti menn held að þeim hafi bara litist ágætlega á hann allavega er hann núna skráður í sýningarþjálfun sem hann hefur reyndar ansi gott af held ég, held að það hafi bara alveg gleymst að kenna honum að ganga í bandi!!!! haldið þið að það gæti verið?? Þarf líkega að prufa á morgun og sjá hvort þetta er ekki bara meðfætt.

7. september 2006

          Jæja fyl númer tvö staðfest en það er hún Nös er er með 18 daga gömlu fyli og sá lukkulegi er Aron frá Strandarhöfi, það gengur ekki eins vel að koma fyli í þá gráu hana Litbrá ven enn er smá von, og hver veit nema það komi þá jólafolald eftir rúmt ár...

           Annars er bara ekkert að frétta svosem, Guðni Reynir var veikur í gær og Sigga í dag, Dóri fór svo í bíó með skólanum og labbaði sér svo á Engjaveginn, skildist það þar hefði hann verið í einhverjum skipulagsmálum með Geira og urðu þeir víst alveg sammála að þarna vantar uppþvottavél...veit ekki alveg á hvern þetta vantraust er, en hef enga trú á að það hafi verið einhvað óuppvaskað þar á bæ.

6. september 2006

        Búin að vera ansi léleg í hausnum í morgun og vel fram yfir hádegi, þoli greinilega illa að fara seint að sofa, en það var samt þess virði að fara með krakkana og gaman að heyra hvað þau voru kát með tónleikana.  Dóri var nú líka ansi þreyttur í morgun en var dröslað í skólann samt sem áður enda var það svosem okkar val að fara hehe

5. september 2006

        Fengum nýjann bíl í dag eða þannig, í staðinn fyrir Patrolinn því það er ekki nóg með að það sé ekki til vél í landinu í hann, en það átti að koma vél um mánaðarmótin, en þá kom í ljós að það er ekki til vél í heiminum, og enginn veit hvar okkar Patrol er á biðlistanum eftir vél þannig að umboðið varð að lána okkur bíl, það er nú bara þannig, við fengum semsagt jeppa með dráttarkúlu, næstum nýr keyrður 15 þ held ég, þetta er Pathfinder, voða fínn en ég mundi nú ekki vilja skipta kann nú betur við Patrolinn.

      Nú fór svo með fullann bíl af krökkum á tónleika í gærkvöldi og Guðni Reynir með annann farm af krökkum, það var voða gaman hjá þeim og við komum heim á milli 12 og 1 í nótt, það er nú svosem ekki mín sterka hlið að vaka svona lengi og fæ það sjálfsagt í hausinn á morgun en ég hafði svosem alveg tíma til að skutlast þetta.

3. september 2006

         Það er ekki annað að sjá en að þrjóskan í honum Geir hafi bara hreinlega borgað sig, þetta er ekkert smá stórt dýr sem hann náði, spennandi að vita svo hvað tarfurinn viktar.

       Annars lítið um að vera, skaust reyndar til Reykjavíkur í kvöld að sækja Sölku en hún var aðuvitað búin að redda sér fari suður frá Grundó, svo er bara að telja niður dagana í næstu Kersins hvolpa, ca eftir 60 daga.

2. september 2006

         Heyrði í hreindýraveiðimönnum í dag og þetta er nú ekki alveg að gerast, líklega af því að Geir er með augastað á ákveðnu dýri, og lætur ekki nokkur fjöll aftra sér, heldur klifrar bara upp á næsta fjall, held að Bjössi sé nú hálfhissa á þessari þrjósku í karli..

1. september 2006

         Fór að Fossi í morgun og sótti tíkina mína hana Týru, hún er bara falleg og meira að segja þæg líka, reyni að taka mynd bráðum og setja á síðuna.

       Haldið þið ekki að hann Bjössi minn sé bara farinn á hreindýraveiðar með Geir, bíð rosa spennt eftir að sjá veiðina allavega hreindýrahausinn en það stendur til að setja hann upp á vegg hér í stofunni þegar rétti hausinn verður tilbúinn, en mér skilst að það sé jafnvel búið að velja hausinn bara eftir að ná dýrinu með þennann ákveðna haus.

31. ágúst 2006

       Skaust til Reykjavíkur til læknis og er auðvitað agalega hraust en það var verið að kanna einhvern lungnasjúkdóm sem er víst að angra hið ýmsasta fólk í föðurfjölskyldunni, Bensi bróðir fór líka og slapp í gegn , það er auðvitað leitun að svona hraustu fólki hehe

     Fór svo í Grundarfjörð, Gosa skilað og Salka pöruð, mikið kaffi drukkið hjá Kollu, nú svo kýktum við Kolla á Önnu Dóru sem var auðvitað að heyja og hver hefði trúað því en þarna var bara rok....held að það sé næstum alltaf rok þarna fyrir vestan, nú skoðaði hundahótelið það er bara flott, og sá mér leik á borði og skildi tíkina eftir, hún verður svo bara að húkka sér far suður, er það ekki bara málið?

30. ágúst 2006

       Stefni á að fara með Sölku í Grundarfjörð á morgun, en það stendur til að para við Eldhamars Frey.  Þarf að fara til læknis í fyrramálið í Reykjavík og passar að rjúka svo í Grundarfjörð, en Gosi verður ábyggilega ansi kátur með að komast heim til sín og sinna.

29. ágúst 2006

        Orri á afmæli í dag, orðinn 19 held ég bara, eigum við ekki að reikna með að Engjavegsbúar standi í stórbakstri eða hvað???   Til hamingju með daginn Orri minn.

       Guðni Reynir sótti vigtarseðilinn í sláturhúsið í dag, alveg hissa hvað þetta var þokkalegt, og sérstaklega hissa hvað það flokkaðist vel....

       Annars bara allt í rólegheitum.

28. ágúst 2006

       Ömurlegur dagur svona fyrripartinn allavega, var enn og aftur ósofin og hausinn ekki góður, var skárri fyrir hádegi en agaleg eftir hádegi, fór svo að lagast uppúr kaffinu.

       Bjössi og Bensi á Hæðarenda að snúa og raka og rúlla.... þetta verður hellingur af heyji.

      Sláturbíllinn kom og sóttu féð eftir kvöldmjaltir, Jonni og Bjössi skutust með Erp sem er storðhestaefni þeirra bræðra, upp í stykki en Hafsteinn kom og sótti hryssuna sem var hjá honum.

    ÉG skipti svo um umbúðir á hryssunni hennar Kollu, var voða spennt að sjá hvernig sárið liti út, og viti menn þetta var alveg ótrúlega fínt, átti að setja spenapencillin í sárið þar sem saumarnir voru en það var bara ca 1 cm af öllu þessu sári sem hægt var að sjá að það hefði verið sár, þar svo að skipta á þessu aftur á miðvikudag, föstudag og sunnudag hugsa ég ef merin étur á ekki þessar umbúðir hehe þetta verður bara gott held ég, og á ótrúlegum tíma, hún er ekkert hölt þegar hún gengur en ég hélt að saumarnir mundu nú aðeins taka í en það virðist ekkert pirra hana, nú og hún fær ekkert að hlaupa strax þannig að þetta grær örugglega hratt og vel.

      

27. ágúst 2006

         Ég átti morgunfjós í morgun, var nú eiginlega alveg ósofin, nú þurfti svo að koma Siggu í vínnu á Borg um kl 10.00 og vera svo komin með Tíbrá og Gosa í skapgerðarmat í Sólheimakot klukkan 11.00, þetta gekk svona ljómandi vel nema hvað þetta er allt of mikið labb fyrir mig, en sem betur fer fór Hrings Linda með Gosa í gegnum þetta hefði líklega bara tæplega komist þetta allt saman en semsagt allt gotið hennar Doppu Dóru sem er á landinu það eru 4 af 5 hundum fór bara ansi vel í gegnum þetta, þrátt fyrir að ég hafi nú heyrt raddir um að það þessir hundar væru allir geðveikir, já eða þá ég geðveik að para saman Ýrar Akk og Doppu Dóru, en veit svosem alveg hver hefur verið mest yfirlýsingarglöð um þessa geðveiki, kannski sumir þurfi bara að líta í eigin barm eða hvað???

     Bjössi og Bensi fóru að Hæðarenda og slóu einhvað af túnum en það þarf víst að heyja í útigangshrossin mín skilst mér já og annara hross líka.

     Varð að gala í Sigurð Inga aftur, en nú var það hún Snúra, hún leit til að byrja með út fyrir að vera með súrdoða en líkast til var þetta bara bland af doða og súrdoða, en hann kom í tæka tíð og náði að dæla í hana lyfjum en hún var nú að verða þessleg að leggjast bara fyrir þegar hann kom, þetta er ótrúlega fljótt að gerast með kýrnar að leggjast svona það voru 19 lítrar af mjólk í henni í morgun, en Guðni Reynir glöggur að átta sig á þessu þegar hann setti kýrnar inn.

     Guðni Reynir og Dóri tóku sig svo til og smöluðu túnið en Guðni Reynir ætlar að senda einhver lömb í sumarslátrun, eins að láta 2-3 ær og 3 sauði þetta verður svo sótt á morgun og slátrað á þriðjudag.

26. ágúst 2006

        Dagurinn byrjaði nú ekki vel, hryssan hennar Kollu ásamt Faxa gamla tóku á rás um túnið og enduðu hinu megin við girðinu, nú Faxi sjálfsagt stokkið yfir en hryssan fór á rimlahliðið, það mátti nú þakka fyrir að hún braut sig ekki en fláði þó dálítið skinn framan af framlöpp, það var að sjálfsögðu rokið með hana á Selfoss í bróderingu til Sigurðar Inga sem var á bakvak, hugsa að hann hafi saumað um 20-30 spor, þetta leit nú frekar illa út fannst mér en Sigurður Ingi sagði að þetta væri nú með meiri saumaskap sem hann hefði lent í, svona á smáskeinu eða þannig, semsagt mikið saumað en bara fláning ekkert í sundur, ótrúlega vel sloppið.

    Nú eftir hádegi var svo farið í hinn árlega reiðtúr í Tungurnar með Valla og Siggu, að þessu sinni var riðið að Hvítá sáum þar fólk sem var greinilega í flúðasiglingum, og viti menn Sigga fann bara fullt af villtum jarðaberjum og hrútaber líka.... fórum svo þaðan aftur í Holtakot, aðeins aðra leið til baka.  Þetta tókst svona ljómandi vel, frábær leið í frábærum félagsskap.  Nú þegar við komum svo í Holtakot beið okkar Baunasúpa að hætti Siggu, rosalega góður matur, held að sumir hafi næstum misst sig í átið hehe, fórum svo heim,,, já svona einhverntímann um nóttina, skildum hestabílinn og hrossin eftir en ekki hvað, þetta verður sótt svona þegar vel stendur á kannski bara um jólin eða einhvað.

25. ágúst 2006

       Lítið búið að vera að gerast í dag, fór á Selfoss, mest að snúast í kringum sjálfa mig hehe, Sigga fór svo að vinna strax eftir skóla, Guðni Reynir að keppa í fótbolta, það eiga víst ekki að fara neinar sögur af þeim leik, en mikið fúll maður sem kom hér heim eftir leikinn.

24. ágúst 2006

        Fór niður í tún í dag og sótti Hæru mína, Bót og Móa fylgdu fast á eftir en við settum þær út í hraun, þarna eru folöld hún Gjörð og hann Tintron sem þarf líklegast ekkert að spekja mikið allavega ekki eins og Sollu, þannig að kannski róa þau Solluna í vetur.

23. ágúst 2006

         Fyrsta fylið var svo staðfest í dag, hugsið ykkur að það skuli vera kominn 23 ágúst og ég ekki búin að fá staðfest fyl fyrr en núna en það er hún Hryðja mín sem ríður á vaðið með þetta en hún fór undir Hróð frá Refstöðum, þarna ætla ég að fá blésótt og sokkótt nokk sama með grunnlitinn en gott væri ef þetta yrði hryssa með mikið fax.  Annars er folaldið sem hún er með núna bleik tvístjörnótt hryssa ansi lífleg og með svo mikið hófskegg, bara aldrei tekið eftir svona hófskeggi hjá folaldi, þessi hryssa  sem fékk nafnið Solla Stirða, er undan Forna frá Horni og hún er sko ekki mikið stirð, veður um á ölum gangi og vill helst vera á undan Hryðju sem er nú svosem ekki neitt rólyndis hross.  Hvað um það hugsa að í vetur væri ráð að spekja þessa hryssu,, en held að það verði nú ekkert úr því hjá mér en hver veit.

        Gosi kom í dag en við erum að fara í skapgerðarmat á sunnudag og ferðin notuð suður, svo er bara að vona að maður botni einhvað í þessu... en það á víst að mæta með allt gotið í einni röð, þannig að það verður spennandi að sjá hvernig þetta gengur.

22. ágúst 2006

      Þurfti að fara í bæinn, sótti hundafóður í leiðinni. 

      Sigga og Guðni Reynir mættu í fjölbraut í dag, sóttu stundaskrá, skildist nú á Guðna Reyni að hann væri með 5 göt í sinni skrá sem væri nú fulllítið, en hann er með 15 einingar þessa önnina, Sigga er aftur bara með 1 gat í sinni stundaskrá, held meira að segja að það hittist á sama tíma og gat hjá Freydísi.....þvílík heppni fyrir þær, Sigga er aftur með 22 einingar þannig að hún veit hvað hún hefur að gera fram að jólum.

21. ágúst 2006

        Fyrsti dagurinn hans Dóra í skólanum í dag eða reyndar skólasetning, og búið að ráða kennara handa honum og tvo frekar en einn ekki veitir nú af hehe annars eru þau ekki óþekk það má nú ekki misskilja það þau eru bara svo ansi lífleg.  Gat nú ekki séð nýja oddvitann á skólasetningunni en held nú að sá ,,gamli" hafi alltaf mætt þó svo hann ætti kannski ekki alltaf  barn í skólanum...

19. ágúst 2006

         Ferðin búin að vera ansi fín, ekkert vesen meira en vona var á sem voru einn og einn haltur hestur.  Þannig að í dag var síðasti sjens að ,,villast" eða einhvað.  Gekk rosa vel í Gjábakka, þaðan átti svo að fara í Driftina í átt að Kaldárhöfða  niður í Búrfellsdal og heim.  Veit ekki hvað var í gangi en Sverrir fyrstur...það gat ekki endað nema á einn veg, allt í einu blasti bara Kringlumýrin við, líklegast tekin vitlaus beygja eða kannski gleymst að beygja,  og takið eftir held að Sverrir hafi verið alveg edrú sem kannski skýrir málið...

      En ósköp held ég að þeir sem fóru af stað 10 ágúst hafi nú verið fegnir að komast heim.

18. ágúst 2006

         Riðið frá Húsafelli í Skógarhóla, Ingþór sendur heim meira lasinn en í gær held ég bara.  Fór með hjólhýsið og Dóra ásamt Evu og Vin inn í Skógarhóla, en á morgun ætlar Dóri að ríða heim með pabba sínum.

       Held að Ganda og Gúbba hópurinn hafi bara aldrei lent í því áður í skála að standa úti í rigningunni af því að ,,annar hópur" reykti svo mikið inni í skálanum,,, mjög skrítið fannst mér og reyndar fleirum líka.  Þetta fólk kenndi sig við Kjósina datt ekki í hug að segja þeim frá því að ég væri ættuð úr Kjósinni enda líkast til frá öðrum bæ.

17. ágúst 2006

          Þarna er hópurinn kominn í Húsafell, og einhvað orðið halt hjá Davíð og Sollu, aftur fór Adam af stað tók með sér tvo hesta og Gest, en tók einn hest og Gumma heim, Ingþór vildi alls ekki heim þó hann væri einhvað slappur.

16. ágúst 2006

        Þennann dag ættu mitt fólk að vera í Álftarkrók held ég bara.  Ekkert símasamband þannig að á meðan þyrlan fer ekki ætti að vera í lagi með þau.

      Patrolinn minn dó svo endanlega í morgun, ekki gott, Adam sem var búinn að skipuleggja að fara á honum norður að ná í Brján og Kisa, hvað um það hann fór þá bara á sínum bíl það er alltaf hægt að redda sér bíl einhverstaðar eða þannig.

14. og 15. ágúst 2006

          Rosa fínt fyrir norðan aðstaðan á Hofi hreint frábær og skipti engu máli svona á hvíldardegi þó það væri rigning.  Tíminn notaður í að gera og græja það sem laga þuftir, trússbílinn og Davíð svona einnar helst.  Nú Brjánn minn heltist í gær og ber sig illa svona stundum allavega hver veit nema hann reddi sér fari suður og þá verður kannski Kötturinn tekinn með en hann er búinn að vera haltur síðan á Hveravöllum eða jafnvel fyrr.

   Við Hulda fórum svo heim á þriðjudeginum, en þegar ég kom heim þá voru þeir Bensi og Guðni Reynir farnir að rúlla, og háin alveg skraufa þurr.

13. ágúst 2006

       Fór að Hofi ásamt Huldu og Sollu, ætluðum á mínum Patrol en hann var ekki alveg til í að fara blessaður en átti að vera orðið klár og á núna að verða klár á þriðjudaginn þegar ég kem heim.  Gekk rosavel norður fórum á Patrolnum hennar Sollu.

     Bensi og Guðni Reynir voru heima og ákváðu að slá Kertúnið seinni slátt.

12. ágúst 2006

        Á miðvikudaginn sem var 9 ágúst þá byrjuðu Miðengismenn á því að fara með hrossin sem áttu að fara í hestaferðina, já það er hestaferð í gangi fyrir þá sem vita það ekki.  Semsagt farið með hesta á kerrum upp að Kjóastöðum en það á semsagt að ríða norður Kjöl, stoppa svo tvær nætur að Hofi í Vatnsdal og koma svo suður Arnarvatnsheiði og enda hér heima.  Semsagt allir hestar komnir að Kjóastöðum á fimmtudagsmorgun og lagt af stað þaðan, man auðvitað ekkert í hvaða kofa var farið en kemst að Því fljótlega og bæti því inn. Þeir sem lögðu af stað í þessa ferð voru Gunni og Eva á Selfossi, Jonni, Bjössi og Sverrir í Miðengi, Ingþór á Selfossi, Davíð á Selfossi nú og Valli smiður sem tók að sér að koma mannskapnum að Hveravöllum, og svo trússarinn hann Skúli Már sem gegnir líka nafninu ,,Red stallion" held að það þurfi ekkert að útskýra það meira.  Segsagt dagur eitt gekk vel allavega ekkert sem fréttist til byggða sem þykir í frásögu færandi.
         Dagur tvö var þá að koma sér að Hveravöllum það er þá föstudagurinn 11, þetta gekk líka ágætlega, Kötturinn reyndar haltur og ekkert við því að gera svosem nema að botna hann.  Ég fór inneftir með Siggu hans Valla og Gummi Óskars kom með, því að Gummi ætlaði að taka við af Valla og Eva ætlar að fara til byggði í bili allavega.  Þarna voru grilluð forsin læri og auðvitað þau bestu sem sögur fara af.  Smá vesen samt með bílinn því að stuðarinn datt næstum af en kúlan sem kerran hangir á er föst við stuðarann, en aðstaðan á Hveravöllum var alveg ljómandi varðandi þetta, suðutæki og alles, þetta semgsagt lagað, við sem ætluðum til byggða ákváðum að vera um nóttina, þetta var bara gaman, þurfum samt fyrr en seinna að hafa upp á lækni sem getur lagað hrotur, allavega einn sem Gandar og Gúbbar ætla klárlega að koma í aðgerð....við nefnum engin nöfn en Hulda veit alveg um hvað málið snýst.
         Dagur þrjú, lagt af stað frá Hveravöllum í norðurátt, man ekki heldur hvað sá kofi heitir, nú dagurinn byrjaði á að Eva eldaði hafragrautinn, hvernig verður þetta í fyrramálið þegar engin Eva verður með??? Það verða þá allir mikið svangir á Hofi þegar þangað verður komið á sunnudag, semsagt það rétt náðist að koma trússbílnum og kerrunni að hesthúsunum þegar stuðarinn datt aftur af, og aftur soðið, held að einhver hestakaup hafi átt sér stað þarna í réttinni en er nú ekki viss um hver græddi á því.
         Búin að frétta að þeir komust í kofa, veit svo sem ekkert hvernig fór með mat en sjálfsagt geta þeir bjargað sér.  Þegar ég kom á Hveravelli í gærkvöldi var það fyrsta sem mér var sagt að þegar ég kæmi að Hofi þá ætti ég að koma með bjór og 4 lítra af víni,,,ég asnaðist til að spyrja hvort ekki vantað brauð og einhvað að borða en er nú ekki viss um að það hafi verið svara vert hehe

8. ágúst 2006

       Við Sigga og reyndar Dóri líka fórum á Engjó í dag og byrjuðum að grunna gluggana á loftinu enda ekki seinna vænna en að drífa í því þar sem það styttist í skólann.  Það fannst ýmislegt spennandi og ekki spennandi þarna á loftinu.  Nú er næsta skref að lakka gluggana og mála litla herbergið, þetta er svosem ekki mikið sem þarf að gera, en kannski aðeins að finna út úr stigapallinum hvað er best að gera þar.

      Tók mynd af Kettinum, það er semsagt hestur sem Jonni á og sá heitir Kisi, setti myndina í myndaalbúmið undir litir en ég er ekki alveg að átta mig á þessu lit en klárinn er kannski bara moldóttur vindóttur eða bara leirljós.  Dóri sagði samt að hann væri bara móljós...það er bara flott litarheiti og lýsir litnum vel held ég bara.

7. ágúst 2006

       Jæja þá er þessi helgi bara búin að börnin heil og heima, það er nú bara þakkarvert.  GR fór aftur í Galtarlæk í gærkvöldi en þurfti að taka á sig krók út af slysi sem varð rétt utan við Selfoss, Sigga var nýbúin að hringja í hann og biðja hann að taka sig heim í leiðinni og skildi bara ekkert í því af hverju hann var svona lengi en þá þurfti hann að fara í gegnum Stokkseyri til að komast heim, hefði kannski bara verið fljótari að fara upp Skeið en áttaði sig auðvitað ekkert á því, og Sigga á Borg en hvað um það þetta hafðist allt saman.

      Það var svo gott veður um sex í morgun þegar við fórum í fjós, bara sól og blíða en það klikkar bara ekki ef það er svona gott um klukkan sex á er klárlega orðið skýjað um ellefu en í þetta sinn var orðið skýjað um sjö þannig að þetta entist stutt.

6. ágúst 2006

          Það er alltaf einhver að koma...eða fara.... eða jafnvel vera.  Orðin alveg rugluð á þessu.

        Guðni Reynir fór í Galtarlæk í gærkvöldi og kom heim í morgun, Jóhannes fór með honum, skildist á GR að gæslan hefði alveg fínkempt bílinn hjá honum meira að segja leitað í húddinu að víni en auðvitað fundu þeir ekkert sem von var.

5. ágúst 2006

        Búið að vera heilmikið um að vera í dag, Lísa kom að gelda, það var hægt að gelda þrjá af fjórum folum og þessi eini sem ekkert var komið niður í var sá stæðsti og ekki nóg með það heldur var ég alveg viss um það í vor að það væri komið niður í honum sá kúlur og alles, veit bara ekkert hvert þær hafa skroppið.  Nú svo var örmerkt einhver slatti af folöldum og ein eldri hryssa, og tveir klárar skoðaðir, annar frá Stjána frænda, sá hefur líkast til gripið á sig í sumar og orðinn ansi aumur, nú hinn var hann Neisti sem Bjössi á en sá er bara með bólgur í baki sem í raun skýrir ansi margt,,,næstum allt.

        Annars bara búið að rigna í dag, hvolpurinn frá henni Kollu sem fer til Danmerkur fór með Dorthe í dag, vonandi gengur það allt vel svosem ekki ástæða til að ætla annað.

4. ágúst 2006

        Linda á afmæli í dag, til hamingju með daginn.

      Nú er semsagt að skella á verslunarmannahelgin með tilheyrandi rigningu, held að það geti bara varla klikkað, veit ekki alveg hvað varð um hitabylgjuna sem Siggi Stormur lofaði, þó er líklegt að hún hafi bara fokið í burtu.

     Hér er komin Hollensk kona sem ætlar að vera í nokkra daga, og skoða lífið í sveitinni, hestana og svo auðvitað hundana.

      Sigga er farin í útilegu á útihátíðina Rollan 2006, skilst mér en svo er hún líka að vinna alla helgina þannig að þetta hentar bara ágætlega held ég.

      Það fæddist svo eitt stykki nautkálfur hér undir kvöld.

2. ágúst 2006

       Fór í dag að Fossi að skoða hvolpana, þeir eru ekkert smá flottir, en ekki hvað hehe semsagt virkilega flottir hvolpar.

     Bjössi, Guðni Reynir og tengdapabbi fóru í bíltúr í dag inn á afrétt svona bara til að skoða held að þeir hafi bara verið nokkuð sáttir.

1. ágúst 2006

        Loksins komst ég í sólbað, það semsagt var sól í dag og ekki mikill gestagangur þannig að ég náði meira að segja að ná í smá kríu en brann samt ekki sem betur fer.

       Það er svo verið að vinna í fjóshlöðunni, skipuleggja upp á nýtt og breyta, í gær var steypt í gólfið það semsagt aðeins hækkað, og nú er verið að gærja meiri járnabindingar svo það verði hægt að steypa meira.

31. júlí 2006

           Nú fer aldeilis að styttast í að Freydís komi heim, reyndar er búið að telja niður dagana síðan hún fór út í sumar, en nú er Dóri líka farinn að telja niður.

          Er farið að lengja eftir að Óðinn hringi svo ég geti sótt Hryðju mína sem er hjá Hróð frá Refstöðum, ég hringdi því í karlinn og viti menn búið að sóna einu sinni og ekki staðfest fyl í Hryðju enn en hver veit.. skildist nú á honum að ef ekki hefði verið fyrir hana Hryðju mína þá hefði bara tekir 2-3 mín að smala saman!!! þannig að það er líklega ástæðan fyrir því að hún var sett áfram í girðinguna, það er að segja menn kátir með að fá aðeins að hlaupa, en hún fór víst alltaf í hina áttina, og hafði lag á að taka stóðið með sér, hefði nú getað sagt karlinum það að næsta ár kæmi ég með Drottningu og þá mundi hann grátbiðja um að Hryðja kæmi aftur, kannski ég bjóði honum það ef hann kvartar þegar ég sæki Hryðju hahah

30. júlí 2006

        Hér kom fullur bíll af Þjóðverjum að skoða íslenska fjárhundinn í morgun, auðvitað þurfti að rigna helling en mér tókst að koma á þá dagatölum og derhúfum alltaf að auglýsa hehe, þarna var einn útvarpsmaður með í ferð með einhverjslags upptökutæki og það átti að reyna að ná einhverju gelti, auðvitað gelti ekki nokkur hundur fyrir hann mér fannst það nú dálítið skondið því auðvitað gelta þeir stundum en einhvernvegin virðist það alltaf hittast þannig á að þegar það koma útlendingar að skoða múkkar ekki í hundunum.

       Fórum í Þrastalund að borða, það er nú ekki oft sem við erum bara fimm hér heima í húsinu, annað hvort eru fleiri eða Sigga að vinna, Guðni Reynir í boltanum eða bara ég á flakki.

29. júlí 2006

         Hugsa að við höfum lagt af stað um klukkan níu á Vallarmótið, gekk ljómandi vel og í þetta sinn náði fararstjórinn að fylgja hópnum.

        Dóri og Steinar kepptu í barnaflokki og gekk bara vel, bæði þeir og hestarnir gerðu þetta alveg eins og átti að gera, þeir voru bæði hestar og menn að fara í fyrsta inn næstum inn á hringvöll, kannski kýkt á svona völl á námskeiðinu, en semsagt enginn datt af baki og enginn dæmdur úr keppni.  Held að Dóri sé farin að líta yfir stóðið og kanna hvort þar leynist keppnishestur, komst að því að Skjóni er kannski ekki alveg rétta típan í að keppa á, en góður útreiðahestur.

     Hestarnir voru svo keyrðir heim, þurftum að fara tvær ferðir en kassabíllinn dó í gær þegar Bjössi var á leið heim eftir að hafa skutlað klárunum á Bjarnastaði, er nú ekki alveg klár á hvað er að en allavega er það ekki neitt smotterí, mikið bilað semsagt eða mikil vinna að laga þetta.

28. júlí 2006

        Í dag var svo riðið frá Bjarnastaðavelli inn í Kringlumýri með krakkana, ég ákvað að drífa mig með enda svosem ekki um marga að ræða hér á bæ fólk bundið í vinnu og svoleiðs en munar ekkert um þó ég sé ekki heima einn dag hehe, Sigga var að vinna svo hún komst ekki með í þetta sinn.  Við semsagt lögðum af stað frá Bjarnastaðavelli um klukkan 1600 hugsa að við höfum verið á milli 30 og 40 ekki alveg viss.  Þetta gekk svona rosalega vel sérstaklega hjá krökkunum, Farastjórinn lent í basli og varð eiginlega bara eftir, þannig að við vorum með ansi spræka krakka fremst í flokki, enda ekki verið að fara of hægt, vorum tvo og hálfann tíma inn eftir, nú fararstjóinn kom svo passlega þegar við vorum að grilla pylsurnar.  Þetta semsagt tókst svona agalega vel, þessir krakkar eru bara flink og ekki laust við að þau hafi bara líka verið þæg.

26. júlí 2006

         Ansk....lyf búin að vera agalega léleg, svona er þetta bara á víst að gefa þessu sjens í viku,,,, en held áfram að éta lyfið sem dregur úr dauðsföllum þannig að mér ætti að vera óhætt ...

    Semsagt dagurinn farið í að færa sig úr einum sófa í annann, mjólkaði nú samt kýrnar mínar, Dóri og Steinar fóru á reiðnámskeiðið, gekk ágætlega svosem Dóra tókst samt að detta af baki, held að honum hafi fundist þetta bara fyndið.

25. júlí 2006

         Fór í bæinn til taugalæknisins, hann fékk þá flugu í höfuðið að setja mig á einhver lyf til að koma betra lagi á vefjagiktina....þannig að nú ét ég lyf við mígreninu sem er með klausu í fylgiseðli ,,Dregur úr dauðsföllum" og svo er þetta nýja lyf sem á að virka á vefjagiktina, þar stendur ,,ef þú fellur skyndilega í svefn skaltu forðast akstur...." hversu skyndilega er verið að tala um heheh

       Búið að keyra allar rúllur heim, þannig að fyrri sláttur er klárlega búinn.

24. júlí 2006

        Búið að keyra heim slatta af rúllum, langt komið með Búrfellið en það verður klárað á morgun og eins reikna ég með að Ásgarðurinn verið kláraður morgun.

        Dóri og Steinar fóru aftur á reiðnámskeiðið aftur í kvöld og eru bara mjög sáttir.

23. júlí 2006

        Krakkarnir fóru út á lónið hér í dag á gúmíbát, bara gaman held ég, veðrið ennþá rosa fínt en vantar samt aðeins uppá að ég fari í sólbað, vonandi verður léttskýjað á morgun þá.

        Dóri og Steinar fóru svo á reiðnámskeið út á Bjarnastaðavöll seinnipartinn, skildist að það hefði bara gengið vel, Steinar var á Hróa og Dóri á Skjóna sínum,  Hugrún í Austurkoti er svo að kenna.  Ég spurði Dóra hvort hestarnir hefðu ekki bara verið skildir eftir því þetta er jú á hverju kvöldi núna þessa viku en ég fékk það svar að maður skilur ekki milljónir eftir úti í móa....

22. júlí 2006

        Það var farið á Bingó á Gömlu Borg, þetta kvöld og auðvitað var farið ríðandi en ekki hvað, meira að segja ég fór með, Sigga og tengdapabbi fengu vinning sem var reiktur og grafinn lax, bara flott og svo vann Emma líka vinning, gjafabréf í Baðhúsið, þetta var bara rosa gaman og gekk alveg ljómandi vel, enginn datt af baki, og við komin heim já veit það nú ekki alveg en það var komið myrkur, held að Bingóið hafi ekki verið búið fyrr en undir miðnætti.

21. júlí 2006

Pabbi á afmæli í dag, til hamingju með daginn gamli.

         Frábært veður, fórum með hóp af fólki úr Rangárvallasýslunni niður að Álftarvatni en þar var það svo Björgvin á Torfastöðum sem lóðsaði mannskapinn yfir, við vorum 5 frá Mieðngi sem fórum með, ég, Bjössi, Jonni, Dóri og Emma, við fylgdum svo fólkinu út í Eyju og notuðum tækifærði og sáum hvernig á eða á ekki að komast í land hinumegin,,,,ekki meira um það.

       Það var svo klárað að rúlla í Ásgarði þannig að það á bara eftir að keyra heim rúllur bæði úr Ásgarði og svo af Búrfellinu, þá fer þetta nú alla að klárast á reyndar að slá Kertúnið aftur en það verður varla fyrr en í ágúst.

       Við Sigga kýktum svo aðeins á Engjó seinnipartinn, Sigga ætlaði að gera slatta á loftinu, en held nú að tíminn hafi bara farið í spjall...enda liggur svosem ekkert á, þyrftum samt að fara að laga til þarna svo hægt sé að gera einhvað, losna við dót og þ.h

        Höddi og Magga komu svo austur, ætla að sletta aðeins á bústaðinn og svoleiðs.

        Hér var svo farinn leiðangur út í hraun að athuga með álfa og kannski smá drauga, það fannst svosem ýmislegt t.d skjaldbaka...mjög skemmtileg ferð.

20. júlí 2006

        Veðrið er búið að vera æðislega gott í dag, og auðvitað ýmislegt að gera þannig að ég mátti bara ekkert vera að því að fara í sólbað, en Sigga og Dóri tóku það út í staðinn.

        Begga frænka kom svo í heimsókn í dag með strákana sína og Runa og hans konu, það er nú eiginlega alveg ótrúlegt hvað er langt síðan maður hefur hittst, og Runa frænda hef ég nú bara ekki séð í mörg ár en viti menn hann hefur ekkert breyst og Begga ekki heldur, stráknarnir hennar hafa samt stækkað síðan á ættarmótinu um árið.  Við Begga ákváðum að halda ættarmót hér að ári ca. síðustu helgina í júlí, þannig að það er bara spurnig um að fara að senda út bréf og fá fólk til að taka helgina frá??? er það ekki bara málið þá hafa þeir sem búa erlendis eins og Ollýar leggur tíma til að skipulegga heimsókn,,,er það ekki bara málið???

       Búið að klára að heyja Búrfellstúnin og slá þau tún í Ásgarði sem verða slegin, Ásgarðstúnunum var svo snúið í dag og það stendur til að rúlla þeim á morgun, þetta eru óáborin tún en það veitir ekki af að heyja í útigangshrossin líka.

        Það kom hér hestahópur úr Rangárvallasýslunni sem er með hestana hér í nótt en á morgun stendur svo til að fara ríðandi með hópunum niður að Álftavatni en þar tekur Björgvin á Torfastöðum við hópnum og kemur þeim yfir vatnið.

      Það stendur svo til að fara ríðandi á Gömlu Borg á laugardagskvöldið með krakkana en þá er bingó á Gömlu Borg og alveg kjörið að mæta á það, spurning um að taka trússhest með til að ferja alla vinningana heim.

19. júlí 2006

       Búið að rúlla stóra túnið á Búrfelli og eina sléttu fyrir neðan veg, verður klárað að rúlla á Búrfelli á morgun held ég og svo einhvað slegið í Ásgarði.

       Tengdó fóru á hestbak og fundu lamb úti í læk sem virtist ekki ætla að komast sjálft í land var bara að vandræðast í læknum, Guðni Reynir fór á staðinn og náði því upp úr læknum, en auðvitað lenti það vitlausu megin við lækinn, það vill til að hann er fljótur að hlaupa strákurinn og náði lambinu og dró það yfir lækinn gamli seigur.

18. júlí 2006

       Það var eiginlega alveg sólarraust í dag, held að það hafi jafnvel dropað aðeins en ekkert sem hefur að segja, það var snúið á Búrfellinu og ég reikna með að á morgun verði allavega annað túnið þar rúllað, hitt túnið þá á fimmtudag.

      Hrossin í hrauninu voru sótt í kvöld en Bjössi ætlar að halda Hildi undir Erp,  ég ætlaði nú alltaf að reyna að lauma einni hryssu undir Hæring minn en það var alveg vonlaust enda engin griðing til fyrir tittinn með eina meri, ætli Erpur verði ekki settur í þessa ,,engu" girðingu....sem er ekki til, hugsa það bara.

        Bætti inn tveimur myndum í albúmið mitt undir hestaliti, jarpt hestfolald sem Selma á sá veður grár og svo brúnblésóttri hryssu.

17. júlí 2006

       Það er bara skollin á þessi bongóblíða svei mér þá. Ingveldur kýkti í morgunkaffi, margt spjallað, svo rauk ég á Selfoss með Siggu í klippinu og strípur og með Dóra í klippingu, Dóri var ekki alveg sáttur reyndar klippti Skúli Már hann eins og Dóri vildi en klippti burt allar strípurnar í leiðinni sem er bara algjörlega ómögulegt, það verður húfa næstu daga eða þar til tími vinnst til að fara í strípur.... kýkti á Engjavegsbúana, held að Sigga vilji bara flytja starx, helst í gær, en það er næstum mánuður í skólann þannig að hún situr uppi með foreldrana hér heima þangað til.  Erna Karen kýkti svo í sveitina með strákana, svo var bara kominn tími á að mjólka en þessi dagur er búin að fjúga burt og ég fór ekkert í sólbað en það stendur til bóta.  Bjössi fór svo upp á flugvöll og sótti Emmu en hún er komin í heimsókn og ætlar að vera í ca 10 daga held ég.

16. júlí 2006

          veðrið búið að vera ágætt í dag og nú undir kvöld er bara að skella á þessi líka rosa blíða, gæti bara verið að hún eigi að endast einhvað skildist mér.  Bjössi búinn að slá annað túnið á Búrfelli, þar frétti Bjössi að það væri komin Helga á Hæðarenda...ekki skrítið við erum bara bestar.

        Það bar ein kýr úti á túni í dag sem er nú varla í frásögu færandi nema hvað að ég reikna alltaf út ca hvenær þær eiga að bera, og þessi komin aðeins fram yfir þann tíma, ég sagði einmitt við Bjössa eitt kvöldið í fjósi að nú væri hún Sturta loks farin aðeins að stálma, það passaði að daginn eftir fullyrti Bensi að ég hefði bara ruglast um heilann mánuð í þessum útreikningum mínum og setti Sturtu með kvígunum út á tún, þar var hún í rétt einn eða tvo daga og bara svo þar,,,,,þannig að ég er kannski ekki alveg eins rugluð og er látið í veðri vaka haha eða hvað?

15. júlí 2006

             Held að það hafi komið fleiri og stærri dembur í dag en í gær og jaðraði við að það snjóaði hehe nei kannski ekki alveg.  Jonni og Bjössi fóru með Nös undir Aron og tóku hryssuna sem Anna Dóra og Jón Bjarni eiga, með þetta gekk nú ekki alveg snuðrulaust fyrir sig því það var bara vegargerðarvesen á leiðinni og þeir festu kassabílinn, held að það hafi verið ýta eða einhvað sem dró þá svo upp.  Held að þeir hafi þurft að labba slatta með merarnar, hvað um það þetta hafðist allt saman, hryssurnar komnar á sinn stað.

        Annars bara allt í rólegheitum, Íris kom hér í dag með Eddu og krakkana, ekkert þeirra hefur breyst mikið Edda alveg eins og hvolpur held ég bara, spurning hvort ekki væri ráð að skella henni á sýninguna núna í sept.

14. júlí 2006

          Það var ekkert smá sem ringdi fyrripartinn í dag en svo fór þetta nú að lagast seinnipartinn.  Anna Dóra kom að vestan, með Gosa og Rögg í HD myndatöku, eina hryssu í sónar og svo eina sem er með folaldi og á að fara undir Aron á morgun.

           Gummi og Leifa kýktu í heimsókn með krakkana sem er nú reyndar orðið fullorðið fólk eins og börnin hér, allavega þeir tveir sem teljast kannski ekki alveg fullorðnir ennþá halda að þeir séu fullorðnir..

         Á morgun á svo að fara með hryssuna hennar Önnu Dóru undir Aron og eins fer Nös undir Aron, það verður spennandi að sjá að ári hvað kemur, nú eins verður sónað eftir viku undan Aron en þar er hún Litbrá mín, ætla rétt að vona að það verði fyl í henni, grá hryssa held ég bara.

13. júlí 2006

          Þá eru þeir feðgar Bjössi og Dóri búnir að taka saman allar rúllurnar og koma þeim heim, ekki lengi gert fyrir vana menn en held nú líka að rúllurnar séu mun stærri og færri en undanfarin ár, á móti kemur að færri  rúllur settar á vagnana og því jafnmargar ferðir.

          Nú það er búið að raða í hvert rúm á Engjaveginum í vetur, þetta verður örugglega bara gaman hjá krökkunum og allir að líta eftir öllum heheh, nei held að það þurfi ekki þetta verður vonandi þessi fína sambúð og Sigga verður ekki ein á Engjó í vetur, nú Orri klár á að það sé stutt í þvottavél hinum megin við götuna og ég er nokkuð viss um að hann ætlar ekki að setja sjálfur í vélina,,,, hugsa samt að það verði styðst með þvottin fyrir þá sem geta lært á þvottavélina sem er í húsinu en kannski er það fullflókið

11. júlí 2006

          Búið að keyra heim slatta af rúllum, Niðurtúnið búið og búið að opna inn á það fyrir graðhestinn og hryssurnar, hann er búinn að fara smá rúnt um túnið en hryssurnar ekki búnar að fatta að elta hann nema auðvitað Móa sem passar vel upp á að tapa ekki klárnum.  Nú Bensi, Bjössi, Guðni Reynir og Dóri standa í rúlluakstri en Dóri sagði mér að það væru bara þeir færustu og flinkustu sem færu í þennann akstur og stjórnun heheh hinir sætu heima og þar átti hann að sjálfsögðu við mig.

        Held að strákarnir Guðni Reynir og Sammi séu að fara vestur á Ólafsvík að keppa í fótbolta á morgun, hend að það sé kominn tími á að þetta lið taki sig saman og vinni kannski eins og einn leik hehe

10. júlí 2006

          Þá er búið að rúlla öll heimatúnin og reyndar allt sem var flatt, kláraðist um hádegi, en núna um kl 2100 þá eru síðdegisskúrirnar ekki enn komnar...

          Það koma kálfur í fjósinu í dag, ein kvígan enn sem er svosem voða gott en var kannski ekki óskastaða undan þessari kú því hún er með verulegann júgurgalla, skil nú eiginlega ekki af hverju henni var haldið í fyrra hehe en svona er þetta og hver veit nema þessi kvíga verði úrvalsgripur þegar upp verður staðið.

       Nú Bjössi fór til sérfærðings á Selfossi í dag, það fór eins með hann og samstæðuna, eða þannig hann er mikið skárri en samt það bólginn að læknirinn taldi ekki hægt að gera þessa aðgerð fyrr en í haust, þannig að þetta er nú bara frestun á aðgerðinni, karlinn sleppur ekki við þetta skildst mér.

       Fór í Þingborg í dag að sækja ull sem Gunni Har hafði gefið mér, ég semsagt fór með ullina í Þingborg þar sem hún var þvegin og síðan kembd fyrir mig þannig að nú er bara að fara að spinna og prjóna, fékk góðann slatta af mórauðu og svo gráflekkótt með mórauðu ívafi hehe rosa fallegur litur get bara varla beðið eftir að sjá hvernig sá litur kemur út þegar ég verð búin að spinna úr honum.

9. júlí 2006

              Bara gengið vel í dag, búið að rúlla allt Niðurtúnið og Austurtúnið sunnan farvegs, þá er bara eftir austan farvegs en það ætti að nást fyrir hádegi á morgun, þetta er allt að gera sig, hugsa að við eigum bara ansi mikið af heyjum þetta árið, eigum reyndar Búrfellið eftir en reikna með að það eigi að fara í hrossin en sjáum hvað heysýnin segja.

8. júlí 2006

             Það er nú búið að ganga dálítið brösulega í dag með vélarnar loksins þegar þurrkurinn kom.  Traktórinn sem bilaði fór í bæinn og annar kom í staðinn, sá var víst ekki alveg rétt útbúinn til að hægt væri að hengja samstæðuna aftaní, svona umhugsunarlaust, Ingþór kom og reddaði því, nú og þá virkaði ekki samstæðan, ekki eins létt og smurt og hún átti að gera en það var svo ekki fyrr en um kaffileitið þegar vélinni var hótað að henni yrði hent á haugana að hún sá að sér og fór að vinna, en þá fór þetta virkilega að ganga, það var svo rúllað fram yfir leikinn, það er Þýskaland-Portúgal.

        Nú Bjössi er einhvað lélegur, með þetta stærðar kýli á bakinu, var farið með hann í Laugarás bæði í gær og svo í dag, á svo aftur að fara með hann á morgun, Gylfi hótaði honum aðgerð á mánudag, vona bara að það virki eins á karlinn og samstæðuna, snarlagist við það...en er nú kannski ekki alveg eins björt á að það virki eins og það virkaði á samstæðuna, fyrir þá sem ekki vita þá er samstæða vél sem rúllar og pakkar heyjinu, allt í einni græju.

7. júlí 2006

          Allt að gerast, byrjað að rúlla nýræktina, búið að slá niðurtúnið og verið að snúa því í dag og pabbi er að slá austurtúnið, ef þurrkurinn endist fram yfir helgi ættum við að klára að heyja hér heima í þessari lotu þá er bara eftir eitt tún á Búrfelli.  Annars fór nú illa undir kvöld því að traktórinn sem notaður er til að rúlla bilaði og er mikið bilaður skilst mér, ansk.... hvað um það, það er líkst til von á traktór úr umboðinu á morgun og þeir taka þá þann bilaða suður, gæti nú tekið einhvern tíma að laga hann en ekkert hægt að rúlla fyrr en varatrakórinn kemur því að það víst ekki minni en 100 hestafla traktór á samstæðuna og bara einn svoleiðs til hér, sá bilaði...

     Blinda kusan er enn staurblind, bara ekkert að gerast en mjólkar ágætlega og virðist ekki líða neitt illa.

6. júlí 2006

         Komin sól og búið að slá alla Nýræktina og líka Kjarrtúnið, búið að snúa þessu öllu líka, reikna með að þetta verði tekið saman á morgun og þá verður Niðurtúnið líka slegið, semsagt allt að gerast, það gæti jafnvel tekist að klára að heyja í þessum þurrk ef hann endist fram yfir helgi það væri nú ekki verra.

5. júlí 2006

        Lítið gert í dag en þó vorum við Dóri svo dugleg að gera rabbabarasultu, held að honum hafi nú ofboðið sykurinn sem ég setti í pottinn en sjálfsagt verður hann búinn að gleyma því næst þegar honum langar í sultu, þetta er nú búið að standa til í nokkur ár...en var svo auðvitað enga stund gert..

4. júlí 2006

          Rigning Ringing og slagveðurs rigning, það liggur við að ég sé bara orðlaus,  hvað um að eitt stykki kálfur fæddist í dag og það var kvíga en ekki hvað...Brella það er sú sem á kálfinn er gjörsamlega kolvitlaus, nema í mjöltum en semsagt ansi mikið geðvond ef það er einhver umgangur í kringum hana.

3. júlí 2006

           Dóri búinn að vera uppi á Kertúni að raka dreifar í dag, gekk bara ljómandi vel.  Það átti að vera gott verður í dag og var það nú kannski fyrir hádegi, en fannst nú samt dálítið kalt.

        Skoðaði bloggið hennar Ingveldar í morgun eins og flesta daga, uppveðraðst öll og sá að nú væri kannski bara kominn tími á að taka sér tak og éta gingsen eða einhvað svoleiðis, fékk mér 2 gingsen í morgun og aðrar tvær um hádegið og svona til að vera viss um að verða rosa spræk þá skellti ég í mig smá nammi og einu drykk sem heitir Bomba og á að vera þvílíkur orkudrykkur,  allavega veður Dóri hálfvitlaus af þessu, nú þetta virkaði þetta líka ljómandi vel, tókst hjálparlaust að velta mér á hina hliðina um miðjan dag og var nærri búin að sofa af mér kvöldfjósið sem byrjar um klukkan 5 eftir hádegi og þá búin að vera hálf rænulaus síðan ég fékk mér Bombuna...spurning hvort ég sleppi ekki Bombudrykknum á morgun og sé hvort ég get vakað heilann dag og jafnvel komið einhverju í verk,,,,held reyndar að allir svona orkudrykkir og reyndar kaffi líka virki alveg þveröfugt á mig því ég á það alveg til að sofna af kaffinu.

       Ætlaði að kýkja á Tintron og athuga með hvort það væru flottar hreyfingar í honum, hann var rosaflottur hehe lá og sólaði sig og það eina sem ég sá hreyfast var taglið því hann var jú að reyna að slá flugurnar frá sér, vildi ekki vera að trufla hann, skildi hann svo vel að vilja bara vera í rólegheitum.

2. júlí 2006

         Allt gott í dag, heyið náðist í nótt auðvitað ekki þurrt en betra en að láta rigna mikið í það.  Nú það er líka búin að vera rigning í dag þannig að úr því sem komið var þá var það best.

        Úrslitin á landsmótinu okkar urðu þau að Sverrir fékk verðlaunin fyrir brokk, Halla Karen fyrir ásetu og Jonni rest, Sigga vann hann nú samt tvo skeiðspretti en það var eftir að móti lauk og því eðlilega ekki tekið með en það fréttist nú að Jonni hefði verið ansi tapsár svo það var nú gott að hann vann skeiðsprettinn sem tíminn var tekin á, Sigga líka rosa sátt með að vinna hina tvo hehe.

       Við Elvar fórum svo upp á tún að kýkja á Tintron og svo hann Glóblésa hennar Selmu, þeir voru hinir sprækustu og nokkuð ljóst að sá jarpi verður grár held ég, ekki eins augljóst með Tintron en hallast helst að móvindóttu eða bara stökkbreyttur hehe kannski er líka bara smá héla á honum síðan hann var í móðurkvið á Búrfaellinu í vetur en ansi voru hrossin héluð þegar þau komu heim.
       Við tókum eina mynd af Tintron og bættum í albúmið.

1. júlí 2006

          Það er búið að vera heilmikið um að vera hér í dag, spáin þokkaleg og því var farið að slá, við Elvar Björn fórum meira að segja að snúa.  Nú undir kvöld var spáin ekki eins þokkaleg og til stóð og því eru Bensi og Bjössi úti á túni að reyna að rúlla en það er nú ekki alveg einfalt því þessi nýja fína vél er nú ekki að virka eins og hún átti að gera en sjáum til hvað verður.

        Við Elvar kýktum út í bústað til Kidda frænda en hann vildi endilega gefa mér gúrkur, nú við fórum ekki bara heim með gúrkur heldur gúrkutré eða hvað það nú er og tómatplöntur búin að koma þessu fyrir og hengja upp í þvottahúsinu og nú er bara að halda í þessu lífi.

      Landsmót Miðengismanna 2006 var svo haldið hér í Miðengi, það átti að gera það um miðjann dag held að það hafi verið af því að Jonni var smeikur um að Sigga mundi vinna hann í skeiði....og Sigga að vinna um miðjann daginn en það varð nú úr að þessu var frestað fram á kvöld því það var líka verið að vasast í heyjum í dag, reyndar í kvöld líka þannig að Bjössi og Bensi fengu ekki að vera með veit nú svosem ekki enn hver úrslitin urðu en reyni að setja þau inn á síðuna á morgun.  Dóri fór allaveg það hratt á stökki að hjálmurinn þeyttist aftur af honum og hestinum en það kom sem betur fer ekki að sök og spurning um að athuga með festingarnar á hjálminum betur.  Nú það var keppt í brokki, tölti, stökki og skeiði, hugsa að það hefði alveg verið hægt að hafa fíflagang með líka og nokkrir álitlegir í þeim flokk, bæði viljandi og kannski óviljandi líka.  Hreinn og Gummi Þór sáu um dómgæslu og þrátt fyrir ýmsar tilraunir var mér tilkynnt að það væri bara ekki hægt að múta þessum dómurum.....þó ýmislegt væri reynt.

30. júní 2006

        Það er alveg magnað með hann Tintron það er folaldið mitt undan Hæru, að það er bara enginn litur á honum, búin að skoða og margfara yfir bókina og hann passar tæpast inn í nokkurn lit sem hann ætti að vera í miðað við ættir og erfðir og eiginlega ekki inn neinn lit sem ég þekki, mjög dularfullt, hann passar helst inn í móvindótt eða mósótt vindótt en er með rauðann blæ á ennistoppnum sem ætti eiginlega ekki að vera með þessu lit sem er á búknum en þar er hann eins og þau hross sem eru móvindótt, hann er með þann sama lit í kringum augun, hvergi nokkurstaðar svart hár eða húð..hann er líklega bara stökkbreyttur hehe 
      Í gær ætlaði ég að halda henni Hæru minni svo undir Tind frá Horni en nú kemur hann Flygill sterkur inn en ég heillaðist af honum í Ölfushöllinni, hann er móálóttur undan Aron en ekki hvað..

      Elvar Adamsson er mættur hér í helgarfrí, nú við fórum hér eftir fjós að kýkja á Gerplu hryssuna hennar Selmu sem var að kasta og náðum fínum myndum, það kom jarpur hestur verður líklega grár, Elvar var alveg klár á því að fyrst Selma eigandinn væri á Spáni þegar svona stórviðburðir ættu sér stað, þá væri ekkert annað fyrir hann að gera en að skíra folaldið snöggvast, og fyrst það var strákur þá skírið hann folaldið Glóblési, hann er reyndar ekki með neina blésu en ef hann veðrur grár fattar það enginn hehe
      Elvar sá nú samt þegar hann horfði yfir hrossin að fallegasta hrossið væri ,,hestableiki hesturinn" en það er auðvitað hún Hæra mín, enginn annar hestur hér á bæ sem er ,,hestableikur".

    Það er svo búið að vera skýfall öðru hvoru hér í dag, og sól þess á milli alveg magnað veðurfar, það lítur svo ekki vel út í kortunum finnst mér, bara rigning og við sem vorum að hugsa um að fara að heyja...það þarf líkst til að vera til hey í kýrnar og ég tala nú ekki um öll þessi folöld.

29. júní 2006

         Hæra er köstuð, en hún kastaði um hálfþrjú í nótt, þetta folald er undan Aron frá Strandarhöfði og viti menn ég fékk móvindótt???  hestfolald akkúrat það sem ég vildi hann er bara fallegur og voða skrítinn á litinn.  Er að hugsa um að halda Hæru núna undir Tind frá Horni 1 jarpblésóttann Kormáksson.

        Nú ú fjósinu er það að frétta að hún Bumba sem er enn blind villtist aðeins í morgunfjósi og tók eina beygju aðeins of fljótt og datt ofaní mjaltargrifjuna, var nú alveg hissa að hún skildi ekki slasa sig því þetta er um 1 metri niður og á flísar...og líka alveg hissa á hversu vel gekk að drusla henni upp aftur en það hjálpaði víst heilmikið að hún sér ekkert og streittist því ekkert á móti, aumingja Bumba.

28. júní 2006

           Hæra komin að köstun, læt vita í fyrramálið hvað kom... hún hlítur að verða köstuð þá.

          Eiður frá Oddhól mætti svo í dag, hryssunum leist bara ágætlega á hann held ég.

         Annars bara veðrið bara rosaflott fyrir hádegi en eftir hádegi þá fór að rigna og rigna enn meira undir kvöld kannski ég verði að setja Hæru mína bara inn hehe

27. júní 2006

         Lítið um að vera þessa dagana HM í fótbolta, ég held með Frökkum og hef fulla trú á að þeir vinni bara þessa keppni þar til annað kemur í ljós...

        Sigga alltaf að vinna í sjoppunni og strákarnir hér heima að vinna, Dóri og Sammi kláruðu að mála hundagirðinguna þannig að næst er að skella einhverju á pallinn en karlpengingurinn hér á bæ er langt kominn með hann, nú á ég bara eftir að finna út úr þessu með hliðar á þennann pall..er sjálf aðseins búin að vera að slást við rósirnar mína, klára vonandi á morgun þannig að hægt verði að bæta á þær mold og einhvað.

      Hæra er enn í rólegheitum en ég held að hún geti kastað eftir ca viku...vona allavega að hún dragi það ekki lengi en ég held að ég sé að fara með hana í hest strax eftir landsmót þannig að þetta er allt að gerast.  Er að hugsa um að fara með hana undir Skrúð frá Litlalandi en er ekki ráð að sjá hvað gerist á morgun með hann á landsmóti, hann mætti mér alveg að meinalausu hækka aðeins í hæfileikum án þess að það skaðaði hann hehe

     Við fengum dýralækni hér í dag í fjósið, í fyrsta lagi var slatti af júgurbólgu í fyrstaklálfkvígu sem er nýborin og svo það sem er svo skrítið er að hún Bumba er búin að vera aðeins utanvið sig í nokkra daga, héldum að það væri bara einhver leti í henni en svo þegar hún fór að ganga á veggi í morgun þá kom það nú í ljós að hún er bara roðin staurblind, sennilega einhver skýking því hún var með hita og því ekki hægt að keyra hana beint í sláturhús, Sigurður Ingi dældi í hana einhverju gumsi setti meira að segja einhvern áburð í augun á henni en hún getur varla versnað í augunum svona staurblind...

25. júní 2006

        Í dag er búið að vera allt í rólegheitum, enda búið að vera mikið að gera í útreiðum og að sinna félagslegum þáttum þessa helgina...

       Annars kastaði Bóthildur hér í kvöld og það kom þessi flotta hryssa undan Galdir frá Laugarvatni, það er svo skrítið að hún er næstum alveg eins og Hrói sem er albróðir hennar. Fór út í hraun og sá hryssuna hennar Selmu sú á ekkert svo langt í köstun, sama með Hæru þannig að þetta er allt að gerast.  Sá reyndar jarpt hross úti í hrauni sem ég kannaðist ekkert við, með frostmerkingu í baki,,,, finn út úr því eins og það fannst út úr þessum rauða hesti sem reyndist rauð hryssa frá Stjána frænda í Keflavík, held nú samt að hann eigi ekki þennann jarpa hest, en það var svona draugahestur sem sást hér um daginn og hvarf svo alveg en kannski hefur hann bara horfið úr reiðhestagirðinunni yfir í tryppagirðinguna, verð að komast að því hver á þessa skepnu og hvort hún á kannski bara að vera hér.

24. júní 2006

          Við Guðni Reynir mjólkuðum í morgun og gekk bara vel, nú þegar líða tók á morguninn var boðið í morgunkaffi og alles hjá Lindu og Jonna, bara snilld.  Lilja hringdi svo um hádegi og viti menn Jörp var köstuð, komin þessi líka fína rauða hryssa, það lítur ekki út fyrir að það séu nokkrir sokkar á henni en það gerir ekkert til, hryssan er falleg og laust í henni tölt og brokk, hvað vill maður meira.

        Sverrir er enn skakkur eftir byltuna í gær, alveg sama hvað var ruglað í honum, þá gleymdi hann sér bara ekki og haltraði alltaf um þannig að lítast til er hann nú meiddur, það kom svo í ljós seinnipartinn þegar var litið á hann af Miðengismönnum að hann virtist bólginn og var settur í einhverskonar sokk sem á að halda um öklann, þetta var reyndar algjört klúður að fá Lísu ekki til að líta á hann áður en hún fór, Lísa er jú dýralæknir og hefði farið létt með að græja strákinn, en hvað um það einhverstaðar fundust hækjur sem hann sást svo skakklappast með hér seinnipartinn.

      Þegar kom að kvöldfjósi þá var bara kominn kálfur úti í móa, sem var nú kannski ekki svo slæmt nema hvað kusa var ansi ill og vildi alls ekki sjá hundinn eða Guðna Reyni nálægt sér, held að Guðni Reynir sé búinn að hlaupa ansi mikið í dag og kusa á eftir....

     Það var svo farið í reiðtúr undir kvöld stefnan tekin á Borg að sækja Siggu í vinnuna en ekki hvað, það kom reyndar í ljós að það er hestur hér sem enginn kannast við, rauður og með frostmerkingu,  þannig að nú er verið að kanna hvort þeir sem áttu og tóku rauðu hestana sína héðan í morgun, tóku rétta hesta hehe og ef svo er þá þarf að kanna einhvað nánar, svo er líka spurnig hvaða hest vantar en ef þetta hefur ruglast í morgun þá er líklegt að eigandi heststins sem vantar hafi kannski bara teymt hann sjálfur upp á kerru.....en eigum eftir að sjá hvað og hvort einhvað vantar en það er klárt að hér er auka rauður hestur....

     Held að Bóthildur sé alveg komin að köstun, orðin aðeins pirruð og vill enganvegin vera, orðin alveg troðjúgra en ekki farið að leka úr henni, vona bara að það verði fædd hér hryssa í fyrramálið,,,,en sjáum til hvað kemur og hvenær.

       Var nú aldeilis seig í morgun því ég útbjó mér myndaalbúm, þetta er bara snilld, og eiginlega alveg ótrúlegt að ég skuli ekki löngu vera búin að þessu en semsagt þetta ætti að vera orðið klárt.  slóðin er http://midengi.vefalbum.is á samt eftir að finna út úr einhverjum atriðum en sjáum hvernig þetta virkar og endilega setjið inn comment...

23. júní 2006

          Í kvöld var farið í vatnið, held að það hafi nú ekki verið talið hversu margir fóru úr hlaði né hversu margir komu aftur en hef trú á að þetta sé svipuð tala. Hef grun um að þetta hafi verið nærri 40 manns, nú þetta gekk rosa vel, en ansi var mikið í vatninu, sumir voru skynsamari en aðrir hehe og göfu vit á að vera bara á bakkanum og fylgjast með, aðrir fóru af stað en þar sem það virtist ansi óljóst hvar væri best að fara og eftir að hafa riðið í hringi í smá tíma snéru nokkrir við en restin af mannskapnum hélt ótrauð áfram, hugsa að það hafi verið ca helmingurinn sem þrjóskaðist við og fór alla leið út í eyju. Það passaði svo að þegar allir voru að komast í land og menn við það að fagna því að hafa komist þetta án þess að detta þá datt Orri, en hann var á Brjáni mínum, held að Orri hafi farið næstum alveg á kaf, rétt hjálmurinn sem stóð uppúr vatninu hehe hann brosti nú samt í hring þegar hann kom uppúr, leiddist þetta ekkert

      Það sem ég næstum gleymdi var að það gekk svona ljómandi vel hjá Sverri, ekkert vesen og þar af leiðandi engin athygli...vorum samt rétt ókomin heim þegar hann þurftir að sýna hversu vel hann væri ríðandi á Bjór-Blésa, klárinn datt auðvitað á hausinn og ofan á strákinn, hann var ansi haltur og fékk sína athygli sem á vantaði... sjáum hvort hann verður ekki búinn að gleyma þessu í fyrramálið..

        Annars var slegið hér um einn ha. í gær og tekið saman í dag, það tók því nú varla að slá þetta það var svo lítíð á túninu, en gott til að prufa vélarnar.  Held að í næsta þurrk verði samt ansi mikið tilbúið í slátt svo nú er bara að vona að annaðhvort þessi þurrkur verði lengur eða næst komi fjótlega.

22. júní 2006

              Gott verður í dag, eiginlega bara mjög gott, búin að vera úti í garði að klippa rósir gaman, gaman er allavega búin að komast að því að þær eru ekki dauðar eins og ég var farin að halda.  Dóri og Bjössi eru að dunda í pallinum og ég held hreinlega að maður sjái fyrir endann á því þetta semsagt gæti hreinlega klárast fljótlega.

         Var nú líklega ekki búin að segja frá því að síðustu tvær ærnar eru bornar, önnur átt tvö lömb fyrir um viku en hin bara á mánudaginn held ég og átti eitt golsótt lamb, nú á þriðjudag var lambið svo horfið, GR leitaði hér um allt og rollan líka, það var bara hrofið lambið, nú á miðvikudagskvöld fór GR með heimalingana upp á tún og var ég að vona að ef lambið væri í gjótu mundi kindin vísa á það þegar hún heyrði í lömbunum, en þegar GR kom upp á tún þá var kindin bara með lambið sitt og alveg hissa á þessu umstangi, þannig að kannski var lambið bara aldrei tínt eða hvað..

21. júní 2006

          Jæja þá lét sólin sjá sig, Dóri búinn að vera úti að mála en ekki hvað...Bjössi rauk í að setja pall í skálina hjá okkur það er fyrir framan stofuna, og gott ef grindin er bara ekki að verða tilbúin þannig að það er bara að raða á hana pallaefni, kannski meira að segja á morgun og þá er ekki lengur hægt að draga það að gera garðinn fínann, allavega ekki afsökun á sem mark er á takandi eða þannig en auðvitað getur rignt fram á haust og það gerir það öruggleg hehe

        Held að það verði slegið næst þegar það mikill þurrkur verður orðin að maður sjái allavega 2-3 daga í röð sem verða þurrir.

      Það er svo stefnan að fara í vatnið á föstudagskvöldið, þetta verður bara gaman hugsa ég og spennandi að sjá hversu margir mæta, þykist ætla að fara en veit ekki hvort ég nenni út í vatn þetta árið, en ég fór í fyrra allaleið fyrir þá sem ekki muna það, bara betra að hafa það á hreinu.

      Sigga er komin í smá frí í vinnunni það er hún verður í fríi á fimmtudag og föstudag og kannski fyrripart á laugardegi, held að það sé að myndast langur listi yfir það sem hún þarf nauðsynlega að gera hehe

        Ég sat hér við símann í morgun alveg viss um að nú mundi Lilja hringja en hún á hana Jörp sem ég fékk lánaða undir Sólon frá Hóli, Jörp er komin ansi nálægt köstun skilst mér og Lilja búin að koma sér yfir í sveitinni held ég....kannski af því að hún er víst komin í sumarfrí en líklegast bara til að fylgjast með hryssunni hehe, er nú orðin ansi mikið spennt, og gaman að sjá hvort Jörp tímir að splæsa smá skokkum á folaldið, eða kannski bara stórum sokkum hver veit...

20. júní 2006

         Dóri og Bjössi fóru í morgun upp að Þóroddsstöðum og sóttu hana Spólu mína en hún er búin að vera hjá Galdri síðan snemma í vor, held að það þurfi ekkert að sóna hana ef hún er ekki fylfull þá er bara einhvað mikið að henni, en það ætti að koma í ljós í vetur.

         Annars er bara lítið búið að vera í gangi í dag, ég að drepast úr leti, hef þó náð að fara úr einum sófa í annann.....það er jú afrek.

         Selmu Salka er komin í pössun en Selma og fj. eru að fara til Spánar á morgun og ætla að vera í viku.  Sýndist Salka bara nokkuð kát með að komast í fjósið, vissi alveg hvar mjólkurdreitillinn var, rataði semsagt í þetta allt síðan síðast.

19. júní 2006

          Byrjaði á því í morgun að fara upp að Fossi og skoða hvolpana þar, þeir eru auðvitað bara flottir.

       Það er eins og veðurguðirnir hafi ekki alveg ákveðið sig enn hvort það á að rigna í dag eða ekki en það er samt búið að vera þokkalega þurrt seinnipartinn í dag.

       Guðni Reynir er á Selfossi að keppa í fótbolta maður bara krossleggur fingur og vonar að þeir vinni strákarnir.

      Nú og hann Ívar minn sem er hestur sem ég á er kominn í Grundarfjörð og ætlar að kanna hvað Kolla getur kennt honum.

      Svo fer að stittast í að Eiður komi hér, það eru komnar 2 hryssur í girðinguna og sjálfsagt á ég eftir að kýkja betur í stóðið hvað ég á þar sem væri nú hægt að halda hehe, en það stendur til að reyna að fá einhvað af vindóttu undan honum, en þá er réttast að forðast að fara með rautt undir klárinn, brúnt væri flott, og vindótt best, þannig að það er málið að finna réttann lit á hryssunum sem eiga að fara í klárinn....

18 júní 2006

          Reynir Már átti afmæli 16 júní og orðinn 17 ára, til hamingju með daginn.

        Á föstudaginn fórum við í útilegu, í ausandi rigningu, fundum lítið fyrir því í hjólhýsinu, en matarklúbburinn fer árlega í þessar ferðir, við höfum nú verið léleg við að mæta en nú var semsagt ákveðið að drífa sig, mætingin var nú ekkert sérlega góð en gott fólk hehe þannig að þetta var bara æði, en við mættum hjónakornin með Dóra, Árni og Sigrún á Bíldsfelli með Ingþór með sér, og Gummi og Leifa í Klausturhólum en með þeim voru Einar Ásgeir og Helga Rún.

       Fórum heim um háldegi í dag en Kiddi afi hefði orðið níræður í gær þann 17 júní og fólkið hans afa ákvað að mæta hér út í bústað til Dóru frænku, það var rosa fínt veður, og ansi góð mæting.  Núna í kvöld er svo farið að rigna ansi duglega.

      Það fæddust svo hvolpar á Fossi í dag, sex stykki, og enginn eins og foreldrarnir á litinn, en svona getur þetta verið.

       Merarnar mína eru ekkert að fara að kasta held ég en heyrði í Lilju á msn en hún á Jörp sem ég fékk lánaða undir Sólon frá Hóli og hún sagði mér að það gæti verið að það færi að styttast í folald þar......er svo spennt.

15. júní 2006

        Freydís fór til Danmerkur í dag, það verður nú hálfskrítið að hafa þær ekki báðar annað hvort hér eða þar...

        Það hefur nú aðeins stitt upp öðruhverju hér í dag, nú er bara að vona að grasið spretti dálítið.

      Matarklúbburinn er svo að fara í sína árlegu útilegu núna um helgina, það var búið að ákveða að hittast miðja vegu á milli Hóla í Hjaltadal og suðurlands, en svo skildist mér að Birgir ætlaði á Akureyri þannig að það fannst mér allavega ansi langt og nú er stefnan tekin á sólina sem er jafnvel búin að boða komu sína á Klaustur, en sjáum til á morgun í hvaða átt verður beygt.

14. júní 2006

Freydís á afmæli í dag og orðin 16 loksins, loksins, hehe til hamingju með daginn Freydís okkar.

      Jæja rigningin komin aftur það getur bara varla klikkað, og það ekkert smá mikil rigning, eiginglega bara úrhellir.

       Kýkti á hvolpana hjá Steina í dag, þær eru bara flottar tíkurnar.  Nú annars bara allt í rólegheitum.

13. júní 2006

        Það er búið að vera gott verður í dag, Dóri og Sammi búnir að vera að mála meira og minna í allann dag, en þeir byrjuðu á skjólveggjunum.

      Frétti það alveg óvart að Sverrir og Halla Karen eru bara flutt af Engjaveginum.

      Við Bjössi fórum með Hryðju mína undir Hróð frá Refstöðum núna í kvöld, búin að snúast í margar hringi með hvaða meri átti að fara og þetta var semsagt nýjasta hugmyndin og nú er ekki aftur snúið með það.  Þegar við slepptum hryssunni í girðinuna þá þurftir hún að hlaupa stórann hring í girðingunni og viti menn Solla stirða var ekki mikið stirð hún tók bara rosa skeiðsprett, var rosa flott.

      Það er svo farið að aukast dálítið undir Bóthildi, hún kastaði um mitt sumar í fyrra og var haldið á folaldagangmáli undir Núma, fór svo í sónar hélt semsagt ekki og þá undir Galdur.

11. júní 2006

         Rigning er vægt orð fyrir veðrið í dag, sem betur fer var samt þokkalega hlýtt.  Annars bara allt í leti í dag eða þannig.

       Guðni Reynir var að keppa í gær sem er nú varla frásögu færandi nema hvað hann meiddist á mjöðminni og ætlaði að setja á sig kælisprey....minn maður greip spreyið og setti á sig, hitti sem betur fer ekki á meidda blettinn því hann hafði gripið lím hehehe og auðvitað límdust stuttbuxurnar við hann þannig að nú er hann meiddur á tveimur stöðum á mjöðm það var nefninlega ekki gott að rífa stuttbuxurnar frá hehehe

       Fór að skoða Sollu stirðu í dag, semsagt folaldið mitt hún er bara flottust held að það geti enginn hér á bæ mótmælt því af einhverju viti nema Halla Karen kannski því hún er sú eins hér sem er það tölvuvædd að hún gæti mótmælt, það má þakka fyrir ef hinir folaldseigendurnir hér á bæ, Bensi, Jonni og Bjössi komist á netið hvað þá reynt að setja uppl. á heimasíðu.  Þannig að Solla Stirða er flottust og ekkert stirð lengur.  Hektor getur þá verið flottastur....

10. júní 2006

           Aðeins tosaðist Lísa upp í yfirlitinu fékk 8 fyrir stökk þannig að þá er það komið fyrir þetta árið.  Nú er bara að leifa henni að þorskast og byrja svo aftur næsta vetur.

         Er búin að vera á úrtöku á Selfossi í allann dag sem ritari hjá dómara, þetta var nú bara dálítið skemmtilegt, aðeins að átta síg á því hvað þeir eru eiginlega að spá með að gefa kannski bara 7,7 eða einhvað,,,,fór að heima rétt fyrir tíu í morgun og kom ekki aftur heima fyrr en undir níu í kvöld, en semsagt er reynslunni ríkar, segi nú ekki að ég gæti dæmt hross en var samt aðeins farin að átta mig á því hvar á skalanum hrossið mundi lenda svona allavega þegar fór að síða undir kvöld hehe

9. júní 2006

          Jæja þá er Lísa búin að fara í dóm á reyndar eftir að fara í yfirlit í fyrramálið.  Var nú voða fegin að við fórum suður að sjá hana, okkur fannst hún bara rosa fínt fjögra vetra tryppi,  held að hún hafi bara gert allt sem hún var beðin um þessi elska.  Dómararnir voru samt aðeins sparir á tölur eins og þeir hafa reyndar verið í vor, þannig að sem betur fer fórum við að sjá hana því annars hefði maður nú ekki verið mjög kátur en vorum semsagt mjög ánægð með það sem við sáum hehe.  Hvað um það ætlaði að fara bara með hana í graðhest í sumar og halda áfram með hana seinna en fór svo að hugsa málið og af fenginni reynslu þá veit ég að ef merin fer í hest núna þá verður hún auðvitað aldrei sýnd meira þannig að nýjasta ákvörðunin er að setja hana bara út í móa og halda áfram næsta vetur, það væri eiginlega sind að klára ekki dæmið þar sem hún er svo mikið efni, nú varðandi bygginguna þá var Halla Eygló búin að dæma hana í vetur hér heima, og viti menn það skeikað hvergi kommu, en Halla Eygló var ekki að dæma hana í dag, átti nú von að það mundi kannski aðeins breytast en svo var ekki, bara gott mál.

      Litla Solla stirða hleypur hér um allt og er bara dugleg og sést ekkert lengur að hún hafi verið aðeins stirð í gær.

       Nú þarf ég að fara að finna út hvaða hryssa fer undir Hróð frá Refstöðum en á líkast til að mæta með hryssuna á sunnudaginn.  Hugsa bara að ég fari með Hryðju því hún er svo nýköstuð að hún ætti að halda á folaldagangmálinu.

      Eiður frá Oddhól verður svo í girðingunni hér fyrir framan húsið hjá mér, en ég ætla að setja Móu undir hann, alveg klár á því, nú svo fer þetta nú allt að skýrast hjá mér með hryssurnar því þeim fækkar smásaman sem eru eftir heima þannig að þegar kemur að seinna gangmáli og ég þarf að fara með hryssu undir Aron þá fer ég bara með það sem eftir verður hehe hugsa samt að það verði bara hún Hæra, en hún kastar seinnipart sumars hugsa ég og er með Aronsfyli þannig að ef það er ekki alveg ómögulegt þá auðvitað fer hún bara aftur.

8. júní 2006

        Loksins, loksins, loksins.....ég er semsagt búin að fá folald, og það ekkert smá folald, þetta er semsagt fífilbleik tvístjörnótt hryssa og geri aðrir betur.  Þegar ég var að koma inn úr fjósi í morgun sá ég Hryðju mína liggja og svo stóð hún bara allt í einu upp og ég sá að folaldið var bara að koma, gat nú samt labbað inn og náð í myndavélina og náð að smella aðeins af, fór svo aftur að skoða dálítið seinna og sá það að hún var með smá beinkröm þannig að hún átti erfitt með að rétta úr kjúkunum, hún fær líka nafnið Solla stirða.  Þetta er samt allt að koma hjá henni, hún er komin á spena en það var smá baras þar sem hún er svo stór, og nú undir kvöld virðist hún alveg ná að fylgja Hryðju.

        Það voru svo skólaslit í dag hjá Siggu og Dóra, þau fengu bara fullt af níum fannst mér, stóðu sig semsagt mjög vel bæði tvö.  Er samt ekki alveg að sjá út úr þessum einkunnum að Dóri verði myndlistamaður eða Sigga sunddrottning en hver veit svosem.

7. júní 2006

         Það er búið að rigna og rigna og rigna í allann dag það var ekki fyrr en undir kvöld sem fór að stytta upp.

     Jonni og Bjössi fóru á Hellu að kýkja á Nös, en viti menn það á ekki að sýna hana fyrr en eftir viku, Bragi gleymdi bara alveg að láta þá vita,,,,en hvað um það þeir rata þá á Hellu í næstu viku hehe

      Það eru komnar sperrur í húsið þeirra Sverris og Höllu Karenar, þannig að nú fer þetta að líta út eins og hús og það ekkert smá hús.

6. júní 2006

          Allt í rólegheitum í dag, engin folöld, annars eru karlarnir hér búnir að moka út úr fjárhúsinu og nú er verið að girða einn ganginn enn, líklega fyrir hross og kvígur í þetta sinn, Dóri fékk meira að segja frí í skólanum til að girða.........ath það er kominn 6 júní og skólinn ekki enn búinn, það verða skólaslit á fimmtudaginn þannig að þetta fer nú að klárast enda alvetg kominn tími til held ég.

     Guðni Reynir fór að keppa í fótbolta á selfossi núna í kvöld held að þeir hafi bara unnið strákarnir.

5. júní 2006

          Sigga fór í skólaferðalag í dag, og farið var í Þórsmörk, ég heyrði í henni um miðjann dag og hún var nú bara hálfhissa á þessu, haft orðrétt eftir henni  ,,Hér er allt fullt af höfum og árum, væri ekki sniðugt að setja brú hér og kannski bara veg líka" Geir ef þú lest þetta er þá ekki tími kominn á að fara með stelpuna í Þórsmörk og útskýra þetta fyrir henni.  Þrátt fyrir þetta orðalag hennar Siggu fékk hún 8 í Íslensku í samræmdu prófunum, hvernig sem á því stóð hehe

       Ég fór út í dag að taka mynd af folaldinu og athuga hvort þetta væri ekki meri eftir allt saman en viti menn þetta er svo ansk. styggt að það var nú bara varla hægt að ná mynd hvað þá meira, þannig að ef þetta er hestur þá sannfærist ég ekki fyrr en í vetur líkast til.

        Nú Lísa mín verður sýnd næsta föstudag í Kópavoginum, nú fer að verða síðast sjens að hætta við en talaði við Hugrúnu í dag og hún telur bara rétt að kýla á þetta, þannig að það er bara hið besta mál finnst mér.  Nös verður líkast til sýnd á miðvikudaginn á Hellu á samt eftir að frétta meira af því.

 4. júní 2006

          Höddi á afmæli í dag 4? til hamingju með daginn Höddi okkar.

        Hér var svo veisla í gærkvöldi og framundir morgun held ég bara, rosalega gaman, og vel lukkað.

       Fór núna um kl 2130 held ég að kýkja á hryssurnar, sá að það hafði snaraukist undir Sunnu hans Jonna, samt ekki farið að leka úr henni svo ég var bara alveg róleg, það passaði svo um kl 2230 þá var hún bara köstuð hehe og samkvæmt reglunni þá hefði þetta átt að vera hryssa en Jonni er alveg viss um að þetta sé hestur, held að ég verði nú að gá sjálf á morgun, en kannski er þetta bara rétt hjá honum, semsagt brúnskjóttur Forsetasonur, tek myndir á morgun en mér sýnist hann vera ansi mikið hvítur blessaður karlinn, en það gerir ekkert til því Jonni getur bara baðað gripinn...

3. júní 2006

        Drottning kastaði í morgun og Bensi fékk rauða hryssu, ég átti nú von á að það kæmi blésa en ekki einusinni strik.  Þetta var nú eiginlega smá klúður sé ég því ég ætlaði með Drottningu undir Hróð frá Refstöðum, en hann fer í girðinuna 15 júní og samkvæmt mínum útreikningum veður Drottning nýbúin í látum, þannig að kannski verð ég bara að hugsa þetta alveg upp á nýtt, finna aðra hryssu undir Hróð og finna svo einhvað spennandi fyrir Drottningu, en sjáum hvað setur allavega fórum við með Litbrá undir Aron, hefði auðvitað getað farið með Drottningu hehe og ruglað enn meira í þessu en það verður allavega ekki aftur snúið með Litbrá, hún er komin í girðinguna hehe

       Hér verður svo haldið upp á útskriftina mína í kvöld, hef trú á að hér verði mikið stuð, ef ég þekki mitt fólk rétt.

2. júní 2006

        Hér var allt í rólegheitunum fyrripartinn, Sigga er reyndar komin með æfingarakstur þannig að nú þarf maður að verða duglegur að snúast.

       Undir kvöld sá ég að Drottning það er semsagt hryssa var komin með mjólkurdropa á spenann þannig að nú kemur væntanlega folald í nótt eða á morgun, klárlega blésótt og annað hvort rautt eða leirljóst hugsa ég, fyrst Bensi á folaldið þá bendir allt til að það sé rautt en Drottning hefur verið gjöful á leirljóst og þessvegna er þetta alveg óljóst.

     Ég varð að hringja í dýralæknir um hálfellefu í kvöld því hún Mýsla var komin með doða, ég hafði ekki einsusinni hugmynd um að hún væri að bera í kvöld, því miður því hún fékk líka doða í fyrra áður en hún bara, og auðvitað mundi það enginn nema ég.  Hvað  um það Páll kom og dældi alskonar djúsi í hana og dró úr henni þessa fínu kvígu, svo er bara að vona að sú gamla fari á lappir.

1. júní 2006

         Jæja þá erum við loksins orðnar búfræðingar, en við vorum 6 fjarnemar sem vorum að útskrifast í gær, þetta tókst bara ágætlega held ég.  Eftir útskriftina fórum við saman út að borða og fyrir valinu var Fosstún eða Steinsnar er nú ekki alveg viss hvort þetta heitir eigninlega, frábær staður og maturinn rosa góður.

       Annars er lítið að frétta, enn að bíða eftir fleiri folöldum og bara 3 ær óbornar.

31. maí 2006

          Setti inn auglýsingu í gær um g-streng sem fannst í bílnum mínum eftir hestaferðina, hef bara engin viðbrögð fengið, þó er nú rétt að segja frá því að ef eigandinn gefur sig ekki fram fljótlega hef ég trú á að Miðengismenn fari af stað í öskubuskuleiðangur....en þá semsagt verður stregurinn mátaður á þær konur sem til greina koma.....

       Annars er sauðburður næstum búinn held að það séu 5 ær eftir óbornar ínni í húsi.

       Var að skoða dómana á Hellu, þetta er alveg með ólíkindum, haldið þið ekki að hún Anna Dóra eigi hryssu sem fékk 9 fyrir haus í fyrra, semsagt bara ansi gott, nú sú hryssa fór í dóm í gær held ég og er komin í 7,5 fyrir haus.....það hlítur einhver að hafa keyrt yfir hausinn á hryssunni eða einhvað, öðruvísi getur þetta varla gerst, þannig að ég veit ekki hvernig þeir fara með hana Nös sem þeir bræður eiga, en vonandi gengur þetta vel með hana.

         Nú á morgun er það svo Hvanneyri, en það stendur til að útskrifast....gamla seig

30. maí 2006

           Kýkti á Gloríu í nótt á milli tvö og þrjú og viti menn fæddur brúnskjóttur hestur, til lukku með hann Halla Karen, nú getur Sverrir virkilega öfundað þig hehe

         Held að Hryðja kasti næst en hélt nú samt að hún yrði ein af þeim síðust.  Bjössi fór út í stóð í dag að sækja Litbrá en hún er að fara undir Aron frá Strandarhöfða.

         Annars bara allt gott, eða svona eins og hægt er.  Bara örfáar ær eftir að bera, og nú vantar bara að hlýna aðeins.

29. maí 2006

         Hildur kastaði í morgun um sex leitið og átti jarpskjóttann hest, búin að setja myndir inn á folöldin 2006.  Fór svo núna um hádegisbilið að kýkja á hinar hryssurnar og nú er farið að leka mjólk úr Gloríu þannig að Halla Karen fær folald í dag eða nótt hugsa ég.

28. maí 2006

        Fórum í hestaferð á föstudaginn, það var riðið út að Borg og gekk bara vel, þó datt undan tveimur hestum, Hróa og Kisa (hver á hest sem heitir Kisi eiginlega) Þeir voru járnaði í Hólarétt og allt toldi undir þann daginn.   Á laugardeginum var farið af stað eftir hádegi og riðið út í kringum Minni Borg, veðrið var æðislegt og rosalega gaman, allar skeifu toldu undir og allir toldu á baki nema Jonni en hann var að reyna að ná í ,,einhvað" sem hann missti og datt úr kyrrstöðu hehe en náði auðvitað í það sem datt..... Í dag var svo farið ríðandi heim með rekstur ekkert smá flottir á því.  Solla og Svava fóru fyrstar af stað og það fyrir hádegi,,,, restin fór svo af stað eftir hádegi en Hermann og Tengdapabbi fóru styðstu leið með 5 hesta restin fór Búrfellshringinn en þá voru eftir 5 hestar í rekstri.  Ég fór á bílnum heim og var varla komin heim þegar ég þurfti af stað aftur með járningartækin, dottið undan Bleka, ég náði þeim við gáminn en strákarnir sem voru þar slóu undir klárinn og ég send að fjárhúsinu á Hæðarenda en þar var dottið undan Hróa aftur sama löppin, gekk bara vel að járna þar og menn að verða kátir þegar þeir fóru aftur af stað, þrír klárar voru lagði af stað og MK í fyrirstöðu, loks þegar restin af hópnum fór af stað rosa flottir... sá ég að þeir gleymdu restinni af rekstrinum sem voru reyndar bara 2 hestar, það er jú ekki hægt að muna allt.   Annars gekk þetta bara rosa vel það vel það þegar menn komu heim var ákveðið að skella sér í reiðtúr á þeim klárum sem ekki höfðu farið í ferðina.  Það var kýkt undir klárana þegar heim var komið og enn og aftur dottið undan Hróa og aftur sama löppin,  hver var að járna eiginlega???  Dottið undan Bleka að aftan, dottið undan Feng og svo var dottið undan BjórBlésa en nafnið á honum er tilkomið vegna þess að Bjössi átti þennann klár og klárinn átti það til að rjúka svo Bjössi vildi láta hann, auðvitað var þetta akkúrat það sem Sverri vantaði en Bjössi vildi tvo bjóra fyrir klárinn en Sverrir tímdi bara einum svo Bjössi lét Sverri hafa hálfann hestinn fyrir einn bjór...
         Nú hestaferðin gekk semsagt rosalega vel, Toni tók helling af myndum sem hann setti á myndasíðuna sína,,,dálítið skrítið með þessar myndir en ég sé ekki mikið af hestum en kannski eiga þær myndir eftir að koma hehehe

       Held að Hildur kasti núna næsta sólahringinn og kannski bara í kvöld en það er farið að leka úr henni mjólk en ég sá svosem ekki hvort var byrjað að leka úr henni í gærkvöldi.

25. maí 2006

            Er nú ekki viss hvort hér komu rigningardropar í dag en bara niður við Vaðnesvegamót var skýfall,,,vonandi náði aðeins að væta hér í hrauninu og svo er spáð úrkomu á morgun.

         Setti inn mynd af Hæring töffara, hann er svo skrítinn á litinn blessaður en hann verður örugglega alveg hvítur fyrir rest en í fyrrasumar var hann orðin hvítur og ekkert kolóttur en núna er smá kola í honum það kemur út af bleikálótta litnum og ætti að vera svart en þar sem hann er vindóttur er ekkert svart í honum bara grátt í staðinn.

        Það er að snarkoma undir bæði Hildi og svo allt í einu undir Hryðju þannig að hver veit nema Hryðja sé bara með fyli við Forna frá Horni mikið væri það nú gaman en hún fór reyndar fyrst undir Hróa frá Skeiðháholti en var sónuð geld þaðan.

24. maí 2006

           Held að það sé bara aðeins að hlýna og jafnvel að lygna líka.  Bólar ekkert á folöldum, en það ætti nú að vera farið að stittast í þau, núna held ég að Hildur verið fyrst.

           Ingþór á Bíldsfelli kom heim með Dóra í dag, þeir fóru að skoða Dagskrána sem er blað hér á suðurlandinu og Dóra til mikillar skelfingar(hann er 11 ára)  þá sá hann að skólastjórinn hans er í vinstri grænum....Dóri er svo rosalega pólítískur og reyndar þeir bræður báðir.  Ingþór vildi vita hvað vinstri grænir væru eiginlega og Dóri sagði honum að það væri fólk sem væri á móti öllu alveg sama hvað það væri, alltaf á móti.....þannig að nú er það alveg klárt hjá þeim félögum....

          Bjössi, Jonni og Emma fóru svo að Pulu að skoða Nös, fannst þeir nú ansi montnir þegar þeir komu heim, enda mega þeir bara vera það held ég merin er semsagt bara flott, vonandi gengur svo vel á Hellu þegar hún verður sýnd þar held að það verði eftir Hvítasunnu.

23. maí 2006

            Það bólar ekkert á folöldum sem er kannski bara eins gott því að er svo kalt og mikið rok, en samkvæmt veðurspá þá á þetta að lagast um helgina en þá stendur til að fara í vortúrinn, en í þetta sinn á að fara út að Borg allaleið, enda ekki annað ráðlegt á kosningardaginn en að vera nærri kjörstað svo enginn villist nú,,,,

        Sauðburður gengur vel en þó eru að koma dálítið af vansköpuðum lömbun, með skúffu og kreppta fætur, GR telur sig geta rakið þetta í ákveðinn hrút en svo er jú möguleiki að það séu aðrar ástæður, þarf að fara að rifja sauðfjárræktina upp greinilega.

21. maí 2006

          Fór í borgarfjörðinn í dag að kaupa kýr og reyndar kvóta líka.  Bensi og Bjössi fóru á kassabílnum en ég fór á Patrolnum með hestakerru, auðvitað verður maður að stjórna þessu hehe, nú átta kýr fóru á bílinn, og sjö þeirra eru mjólkandi í dag en ein er í geldstöðu og á að bera um 17 júní, held reyndar að sú kú sé með lámark 2 kálfa alveg ótrúlega mikill gripur.  Nú á hestakerruna settum við svo þrjá smákálfa hélt þegar ég fór af stað að þetta væru smákálfara, en þetta voru sko engir smá smákálfar eða þannig fæddir um ármót og voru enn í mjólk og kögglum, þarna leyndist meira að segja hryggjótt kvíga og auðvitað undan Tein en ekki hvað.

20. maí 2006

         Fór í bæinn með þrjá hunda í augnskoðun það voru Kersins Prins og Kersins Salka og svo tók ég hann Stjörnuljósa Krumma með líka, nú það var allt í góðu lagi með þá alla og reyndar alla Íslendingana sem ég frétti af sem betur fer.

18. maí 2006

        Sigga á afmæli í dag 16 ár til hamingju með daginn, og hún er ekki sú eina sem á afmæli í dag því Hulda á Selfossi, Silla á Akureyri og Harpa Rós á Ormsstöðum eiga allar afmæli í dag...

          Sigga fór í fyrsta ökutímann í dag og gekk bara vel, hún byrjaði líka í ökuskólanum því nú er hægt að taka bóklega partinn á netinu á www.ekill.is  algjör snilld, nær að vinna þetta á netinu frekar en að sofa á Selfossi yfir bókinni.

        Það er búið að ákveða að sýna Lísu mína í Kópavoginum en ekki á Hellu, þetta verður voða spennandi að sjá hvernig þetta gengur allt saman en það á svo að sýna Nös á Hellu.

      Fór í bæinn í dag og búin að finna efni í svuntu og blússu en ég ætla að útskrifast í Íslenskum búning en ekki hvað..er búin að fá húfuna sem ég útskrifast með en viti menn Halldór er auðvitað búinn að máta húfuna og það var nú bara alveg eins og Emil í Kattholti væri komin hér hehehehe

17. maí 2006

         Halldór búinn að vera úti á túni í allann dag að slóðadraga og gengið bara vel.  Sigga farin í Ártanga en þær stöllur ætluðu að fara að passa skildist mér.

        Sauðburður gengur bara sinn vanagang, næstum öll lömbin hvít í ár en samt ansi mörg með einhvern blett einhvernstaðar....

        Bragi kom og sótti Fjölnir i dag og ætlaði að fara með hann út að Strönd held ég, þannig að nú hefur maður engar áhyggjur af honum fyrr en eftir nokkur ár held ég bara.

         Það er búið að vera glettilega kalt í dag þrátt fyrir sólina, en það hlítur að fara að hlýna.

16. maí 2006

             Það eru búinar að vera skúrir meira og minna í dag, sem er nú bara gott því þá ætti að spretta enda áburðurinn nýkominn á túnin.

         Sauðburðurinn gengur bara vel, og það lítur út fyrir að hægt verði að sleppa fénu jafnóðum eða næstum því, en nú erum við búin að girða Mieðngið endanlega af eða þannig, skulum samt sjá hvort mikið Miðengisfé verður í fjallinu í haust.

         Ég er búin að ná öllum prófunum og þá ætti að vera kominn tími til að athuga með búninginn, hvort ég passa nú í hann eða hvað.

       Ekkert bólar á folöldum en ég á eftir að labba út og kýkja á Drottningu og sjá hvort það er að styttst í hennar folald.

        Fór í Austurkot að skoða Lísu mína og dreif svo í að skrá hana á Hellu en það er jú alveg ómögulegt að segja hvernig staðan verður á henni þá en þessi ungu tryppi geta verið klár á þeim tíma sem ætlast er til eða ekki,,,, mjög ótryggt en sjáum hvað setur kannski verður hún tilbúin í þetta og kannski ekki, vona bara það besta.

       Sótti Dóra í skólann um leið og skólinn var búinn því hann nennti ómögulega að fara alla leið niður að Kiðjabergi, og auðvitað var hann að flýta sér heim til þess að vinna en semsagt nú er loks komið að því að fara að slóðadraga.......en hann er búinn að bíða eftir því í næstum ár held ég bara.

15. maí 2006

            Bjössi og Bensi kláruðu að bera á í dag, og viti menn þegar það var búið þá kom bara þessi fína gróðraskúr þannig að þetta ætti allt að vera í góðum gír.

          Ærnar að komast á skrið í burði en þetta ætti að vera komið alveg á fullt um helgina.

          Það er svo von á Siggu heim á morgun loksins og svo á hún afmæli á fimmtudaginn og verður 16 ára.

14. maí 2006

            Þá er GR kominn heim alsæll með ferðina veit ekki hvort var meira gaman leikurinn það er Liverpool-West Ham eða trail days hjá Chalton.  Held samt að það jaðri við að hann sé farinn að halda með West Ham hehe.  Þetta gekk semsagt rosavel allt saman.

          Nú úr fjárhúsinu er það að frétta að það báru 2 þrílembur (eitt lamb dautt að því) og svo 3 tvílembur (þar var líka eitt dautt lamb)  ein kindin átti svo tvö vansköpuð dauð lömb þannig að sex ær báru í dag.

13. maí 2006

           Haldið þið ekki að ég hafi bara setið límd yfir fótbolta í dag en það gerist nú ekki oft en ástæðan var jú sú að Guðni Reynir er í Cardiff og var að horfa á Liverpool-West Ham, ætlaði að horfa með öðru auganu en það er nú bara eins gott að vera með sterkt hjarta í svona leikjum, mikið stress og rosalega held ég að það hljóti að hafa verið gaman að vera á leiknum, örugglega mest spennandi leikur EVER....

        Talaði svo við Siggu í dag og spurði auðvitað hvar hún væri og svarið sem ég fékk var ,,í rútu" en hún var semsagt í rútu í danaveldi.

       Dóri var ansi þreyttur eftir gærdaginn og vaknaði ekki fyrr en um hádegi, en núna undir kvöld er hann enn á hestbaki, og er búin að vera að snúast í allann dag, elta hross og rollur.

       Held að sauðburður sé kannski aðeins að fara af stað en í dag báru tvær tvílembur, þannig að þegar GR kemur heim annað kvöld þá verður ánum óhætt að fara að bera á fullu.

       Setti myndir sem Emma tók, inn á síðuna en þarna er hann Gutti sem er bara þægur, en hann á eftir að læra ýmsa takta af Voða sem er jú föðurbróðir hans.  Nú og svo er þarna mynd af honum Fjölni en þetta er enn eitt graðhestaefnið, en liturinn er ansi fallegur og nægur gangur til staðar, þannig að svo er bara að bíða og sjá hvort þetta dugar til, en það er jú alveg óvíst.

12. maí 2006

        Það var ansi kalt í morgun fannst mér svona miðað við hversu heitt var að sjá út um gluggann. Guðni Reynir kominn til Englands og Sigga alsæl í Danmörku þannig að það er frekar fátt í kotinu núna.

     Kýkti á merarnar í dag og gott ef Hildur Hektorsdóttir verði ekki bara fyrst að kasta en hún fór undir Sólrík frá Útey og þetta er hennar fyrsta folald, það er farið að myndast heilmikið júgur undir henni þannig að ef það kemur skjótt hryssa á næstu dögum þá hlítur hún að heita Silvía Nótt eða hvað??

       Gutti litli ætlar að smella alveg inn í hundana hér og ekki nóg með það þá held ég að þetta sé bara í fyrsta sinn sem hér kemur hvolpur sem Voði er forvitinn um, venjulega er hann skelfingu lostinn ef hann sér hvolp en ekki í þetta sinn, kannski sér hann að þetta er jú frændi hans hehe

        Dóri var bara veikur í nótt með uppköst og illt í maganum en búinn að vera sprækur í dag, sendast í allar áttir fyrir mig á Böggy bílnum, fór 3 ferðir á hestbak, tvær ruslaferði og hver veit hvað, mikið að gera hjá honum í dag svo er bara að sjá hvað þetta endist hjá honum.

11. maí 2006

           Þá er Sigga komin til Danmerkur, hún hringdi í dag og hélst að það væri örugglega 30 stiga hiti veðrið var svo gott.

         Þurfti að fara í bæinn í dag, og notaði tækifærið og sótti Gutta í leiðinni en það er nýji Border Collie hvolpuinn okkar, kannski ég taki mynd af honum á morgun og setji á netið.

         Annars bara allt í rólegheitum, ekkert farið að bera, það er ærnar eru enn í pásu og ég held að það sé ekkert á leiðinni að koma folöld, kannski kemur ein Sivía þann 18 hver veit.

          Fyrsta hryssan fór svo í graðhest núna í kvöld en hún Spóla sem átti dautt folald í byrjun mars fór aftur undir Galdur frá Laugarvatni,,,maður gefst ekki svo glatt upp, enda Galdur gefið okkur góð hross.

10. maí 2006

            Fór í síðasta prófið í dag, vona að þetta hafi sloppið en sjáum til.  Nú ég hélt upp á daginn með því að þjóta til Reykjavíkur og fara í aðgerð...það var semsagt verið að setja í mig einhverja tannplötu sem seinna verður svo skrúfuð tönn á held ég.  Er nú alveg hissa hvað þetta var lítið mál, er allavega spræk og uppistandandi og ekki að éta verkjalyfin sem ég átti að gera... Þannig að ég er búin að koma ansi miklu í verk í dag, nú svo ætla ég að eiga afmæli á morgun.

          Sigga er að fara til Danmerkur í nótt eða reyndar í fyrramálið, með 10 bekk í Reykholti, henni gekk bara vel í stærðfræðinni í morgun þannig að hún getur alveg verið kát með þessi próf allavega þar til hún fær einkunnir en hún ætti nú að tosast í gegnum þetta.

          Guðni Reynir fór líka í síðasta prófið í dag, erfitt próf sagði hann, og hann sem lærði allavega í tvo tíma í morgun,,hummmm kannski það dugi bara ekki til.....

         Það var svo fundur hér í kvöld og verið að skipulegga hestaferðina sem er alltaf í ágúst, nú á að fara ríðandi norður Kjöl, gista tvær nætur að Hofi í Vatnsdal og ríða svo suður Arnarvatnsheiði, þetta verður ekki nein smá fer held ég.

9. maí 2006

         Gekk þokkalega í prófinu í morgun og nú er bara eitt próf eftir, búin að lesa um kartöflur í allann dag og sé að ég kann bara ekkert í þessu, var nú nokkuð góð með mig áður en ég fór að lesa heheh, hefði kannski bara ekkert átt að lesa þá mundi ég ekkert fatta að ég kynni þetta ekki fyrr en í prófinu á morgun en sjáum til.

       Það er búið að vera hitabylgja hér í dag held ég bara, rosa heitt og næstum logn.

       Guðni Reynir er á æfinu og Dóri fór í bíó á Selfoss þannig að við Sigga erum bara heima að læra en held samt að GR hefði alveg mátt líta í bók án þess að skaðast af því, en eins og ég þá eru Sigga og GR að fara í síðasta prófið á morgun, GR að klára önnina en Sigga að klára samræmdu pórfin, hún á svo kannski eftir einhver vorpróf nú og svo á Dóri eftir vorprófin,  það verður nú samt voða gott að klára þetta.

          Guðný á Ormstöðum kom svo hér í kvöld og var með reiðnámskeiðið og útreiðar þetta lukkaðist voða vel held ég, ég lét reyndar ekki sjá mig, var inni í bæ að lesa um kartöflur hehe en nú er þetta alveg að taka enda.  Nú skildist að Brjánn minn sem er aðal hesturinn hafi verið raspaður og ekki veitt af, kominn með skakkt bit eða einhvað og aukatönn,, þannig að það er nú ekki skrítið þó hann hafi stundum fóðrast illa annars er hann voða fínn núna eftir veturinn, kannski hefur Dísa tuggið ofaní hann eða gefið honum fljótandi eða komst hann kannski bara í bjórinn? Hummm ekki gott að segja þegar Brjánn er annarsvegar.

8. maí 2006

           Held að það sé bara hitabylgja í gangi hér í dag, ekkert smá heitt.  Nú ég fór í fyrsta prófið í morgun, af þremur, þetta gekk þokkalega, vona allavega að ég nái þessu svo er eitt á morgun og síðasta á miðvikudaginn þannig að þetta er allt að gerast.

         Má nú til með að segja frá því hversu mikill snillingur hún Brella gamla er.. það er semsagt Íslenska tíkin mín sú elsta, hún semsagt fór í gær út að læk að vinna hehe en það var verið að kýkja á girðingarstæði, sú gamla mátti nú ekki missa af þessu og auðvitað þurfti hún að kýkja í lækinn í leiðinni og viti menn haldið þið ekki að hún hafi komið með fisk með sér heim úr læknum,  hef nú aldrei vitað til að hundar veiddu fiska en ef það er matur annars vegar kemur ekkert á óvart með Brellu mína...hún gaf nú ekki með sér blessunin en druslaðist heim með fiskinn til þess að það væri á hreinu að hún væri með einhvað sem hinir hundarnir fengju ekki, hún semsagt sýndi veiðina og passaði sig svo á að éta hana alein....

         Fór á vorfagnað hestamannafélagssins Trausta á Gömlu Borg á laugardagskvöldið og það var bara gaman, ég meira að segja var allt ballið, er enn að jafna mig var samt að keyra, hversu mikill auli er hægt að vera eiginlega ég bara spyr?

5. maí 2006

         Það báru tvær ær í gær og ein komin í dag þannig að nú held ég að þetta sé allt að verða búið í bili.

        Strákarnir hafa það aldeilis gott hér í affallinu af heita vatninu sulla bara og alveg næginlega heitt skilst mér á þeim.

2. maí 2006

       Aðeins eru ærnar farnar að slá af en það var bara ein nýbornin í morgun og svo er bara allt í rólegheitum.

       Held bara að það sé farið að styttast í vorið en Guðni Reynir fór í fyrsta prófið í morgun og gekk ágætlega sagði hann.  Nú Sigga er svo að fara í fyrsta samræmda prófið á morgun, svo nú er bara að krossa fingur og vona að þetta gangi nú vel.  Dóri og próf....er nú bara ekki alveg viss hvenær hann byrjar en ég fer í þrjú próf í næstu viku, mánudag þriðjudag og síðasta á miðvikudaginn 10 maí.

1. maí 2006

            Hér var svo hópur sem kom saman með hesta og alles í kvöld en Guðný á Ormsstöðum var að segja okkur til og svo var farið í reiðtúr.  Verð nú að segja að það er mun betri mæting á þetta en aðalfundina hér í gegnum árin...

            Komin frá London þar var sungið

We are the Chelsea and
We are the best
We are the winner
So fuck all the rest

       Held að það þurfi ekkert að útskýra þetta meira ÁFRAM CHELSEA!!!!!!!!!!

       Nú hér er eitthvað undarlegt að gerast, en þegar Guðni Reynir og co. fóru út í des á Chelsea leik þá slapp eitt stykki lambhrútur í féð og var yfir nótt í fénu, og athugið; bara einn lambhrútur og bara eina nótt,,,,,,,,,hvað um það nú eru bornar hér 3 þrílembur og 14 tvílembur, held að þetta geti bara alls ekki staðist, en það hefur engin skýring fundist enn og enn bera ærna.

27. apríl 2006

          Jæja þá er ég búin að skila síðasta verkefninu í skólanum og nú er það bara fótbolti í London og svo eru prófin eftir.

         Held að það hafi borið þrjár tvílembur í dag, og kynjahlutföllin eru 9 hrútar og ein gimbur, þeir ættu að verða þungir í haust blessaðir..

         Er orðin ritari í hrossaræktardeildinni, held að þetta gæti bara verið spennandi að vasast enn meira í hrossum, það verður allavega spennandi að sjá hvað verður fundið fyrir næsta ár.

26. apríl 2006

           Það eru komnir hvolpar hjá Steina undan Kötlu, endilega kýkið á www.sunnusteinn.is

         Hér var fundur í dag en við erum í sunnuverkefninu ásamt nokkrum kúabændum á suðurlandi, við reynum að hittast reglulega og ráða okkar ráðum, þetta er mjög gaman finnst mér.

       Það bar ein kind enn í dag og sú átti 3 lömb reyndar eitt þeirra dautt, en svona getur þetta verið.  Þannig að það eru komnir 4 hrútar...

       Það er allt að skýrast með ferðina hans GR til Charlton, Gauji þjálfari lét plata sig í að fara með stráknum, enda held ég að GR fái mikið meira út úr því en að dröslast með mömmu sína hehe.

       Bensi bróðir er á spítala og er í eittherjum rannsóknum, vona bara að það finnist eitthvað út úr þessu.

       Aðalfundur hrossaræktardeildar Goða verður svo í kvöld, ætla klárlega að mæta, og reyna að skipta mér af því hvaða hestar verða hafði í huga við vali á hesti í deildina næsta ár, en finnst nú mest spennandi að reyna að nálgast einhvern hest sem maður annars hefði ekki tök á að halda undir, t.d einhverjir klárar sem eru ALLTAF fyrir norðan eða austan.

24. apríl 2006

         Var nú full fljót má mér þarna því núna undir kvöld eru komin tvö lömb, það er semsagt ein ær borin þessi sem fékk doðann um daginn hún átti tvo hrúta...

         Nú er farið að styttast í Chelsea ferðina og eins gott að þeir vinni svo ég þurfi nú ekki að vera í stresskasti.  Þetta fór frekar illa um helgina fannst mér en Guðni Reynir fer nú samt til Englands 12-15 maí ca en hann er að fara á eitthvað fótboltadæmi hjá Carlton og getur notað ferðina í að sjá bikarúslitaleikinn á laugardeginum. 

       Talaði við Hugrúnu í morgun og svei mér þá ef Lísa mín (það er albínóhryssan mín) hafi ekki sloppið í gegnum fyrstu skoðun þannig að nú er bara að sjá hvernig hún höndlar framhaldið en vonandi gerður hægt að sýna hana í vor.

         Það stittist svo óðum í folöld en hugsa nú samt að það verði ekki fyrr en um miðjann maí sem þau fyrstu koma.

        Engin lömb heldur komin sem er hið besta mál.

23. apríl 2006

        Það var bara ágætis mæting í matarklúbbnum, það vantaði reyndar Þóru og Hermann og svo Sigrúnu.  Þetta var alveg ágætt og ég vakti fram yfir miðnætti sem er nú bara alveg nýtt eða þannig.

       Ömurlegt verður í dag, vægast sagt endalaust rok og svo haglél líka, enda datt netið út það er sendirinn á Seiðishólnum en það klikkar bara ekki ef eitthvað er að veðri, þá held ég að þetta sé fyrsti og kannski eini staðurinn sem er klárt að netið dettur út hehe.

22. apríl 2006

        Dóri varla stoppað í dag á bílnum, þetta er víst bara gaman, Bjössa tókst samt að ná bílnum svona þegar Dóri sá ekki til, og fór smá rúnt, hann var ekki alveg að komast upp einhverja brekku á bílnum það var svo mikil drulla, og hringdi í Siggu sem fór á gamla jeppanum og Dóri auðvitað með til að redda þessu.  Þetta var víst ekkert mál með bílinn en Dóri sá að það væri réttast að hann tæki litla bílinn heim.  Nú þá tókst Bjössa að festa jeppan og enn var hringt og nú var það Guðni Reynir sem fór á traktór til að redda þessu.  Það var nú dálítið skondið þegar þau komu svo öll heim að krakkarnir þrír voru öll undir stýri en bóndinn fékk bara far.

       Það er svo matarklúbbur í kvöld í Klausturhólum, það verður örugglega gaman, getur ekki klikkað.

21. apríl 2006

          Enn eitt verkefnið frá í skólanum en á þá bara tvö eftir, þetta er semsagt að klárast.

          Hér var fjárfest í eitthverskonar farartæki, ekki einusinni viss hvað þetta heitir Böggybíll eða eitthvað þessháttar, tek myndir þegar ég verð búin að finna batterí í vélina.

         Rok og rigning í dag ekki spennandi veður finnst mér.  Bensi bróðir og pabbi farnir til Englands að horfa á Chelsea-Liverpool, er aðeins smeik um að þeir haldi með vitlausu liði, allavega Bensi það er þó smá von í að pabbi haldi með Chelsea en þó er það alveg óvíst.  Ef Chelsea vinnur þá keppa þeir víst 13 maí og það er akkúrat helgin sem Guðni Reynir er að fara til Englands á eitthvern æfingardag hjá Carlton en það er á sunnudeginum og því alveg kjörði að sjá Chelsea vinna eitthvað á laugardeginum held að það sé eitthver bikar en um næstu helgi erum við að fara til London öll fjöldskyldan að sjá þá vinna eitthvern annann bikar, er nú ekki alveg inn í þessum dollum sem er verið að keppa um.

20. apríl 2006

          Ég sit allann daginn bara fyrir framan tölvuna og vinn verkefni en þetta smá tosast.  Krakkarnir fóru á hestbak og prufuðu að fara í affallsvatnið af borholunni, hestunum fannst þetta ekkert sniðugt.

        Það fæddist svo eitt stykki kálfur og auðvitað var það kvíga hvað annað.

        Nú og fyrir þá sem misstu af stákunum í kvöld þá voru auðvitað aðalgellurnar þar Sigga og Freydís en ekki hvað...

19. apríl 2006

         Búin að liggja yfir bókhaldi í dag eða þannig er að reyna að klára enn eitt verkefnið í skólanum, þetta gengur þokkalega, held að ef ég næ að klára þetta og skila séu bara 3 verkefni eftir af vetrinum eitt á dag eða þannig, skila þessu 20, einu í nautgriparækt 21 og svo einu í rótarávöxtum þann 22 apríl, þá er þetta næstum komið en lokadæmið í bókhaldinu er svo 27 apríl held ég og þá loks eru bara prófin eftir.

      Erum svo að fara til Englands á fótboltaleik 29 apríl ef fljúgum út 28 og komum heim 30, muna bara áfram Chelsea.

         Fórum í sviðaveislu til Hödda og Möggu en þau eru svo flink við að salta svið, hef aldrei smakkað söltuð svið áður en fannst þau eiginlega bara betri en þessi venjulegu það var hálfgert hangikjötsbragð af þeim bara gott.

        Eigum við svo ekki að horfa á Strákana annaðkvöld ekkert bólaði á stelpunum okkar í kvöld en ég trúi ekki öðru en að það sjáist til þeirra versla...

18. apríl 2006

           Fórum í bæinn í dag með Guðna Reyni til ofnæmislæknisins.  Sigga og Freydís þurftu að versla í leiðinni mjög áríðandi að fá sér peysu skildist mér á Siggu.  Þær voru svo heppnar að hitta á SVEPPA sem var að afgreiða, hehe hver veit nema það sjáist til þeirra í Strákunum í kvöld.  Nú Sigga keypti sér ,,peysu" sem hefði nú frekar flokkast undir það að vera bolur hjá mér en svona er maður vitlaus.

        Á meðan stelpurnar voru að vesla fórum við Dóri með Guðna Reyni til læknisins.  GR er allur að lagast af asmanum, sjálfsagt eru lyfin að virka vel en svo fór hann í ofnæmispróf því GR er alveg viss um að hann sé með ofnæmi fyrir kjúkling.  Nú út úr ofnæmsiprófinu kom svo að hann er bara með þó dálítið ofnæmi fyrir fisk, má samt borða skelfisk og lax og silung en annar fiskur er ekki í lagi.  Skýringin á þessu með kjúklinginn var svo sú að á kjúklingabúum eru kjúklingar oft fóðraðir á fiskimjöli og það getur dugað, ég var nú alveg hissa á þessu.  Dóri varð nú ekki kátur og fannst GR bara vera að græða.......þetta er jú draumastaða fannst Dóra.  En Dóri er nú ekki lengi að redda sér því hann komst að þeirri niðurstöðu að ef ég hefði fisk í matinn gæti hann bara eldað fyrir GR og þá borðað með honum hehehe.  Næsti tími hjá GR er semsagt í haust ef allt gengur vel.

16. apríl 2006

        Gleymdi því alveg í gær að segja frá því að hér fæddist kálfur þessi líka fína kvíga, mikið skjöldótt undan fyrsta kálfskvígu, held að þetta gæti bara orðið ágætist gripur það er að segja kvígan sem bar ómögulegt að segja um kálfinn hehe.

       Bara rok í dag, og gott að geta setið inni í bæ og étið páskaegg.  Sigga var að vinna í dag, þannig að hún var ekki heima.

        Annars bara allt gott, það var reyndar búið að vera eitther vesen með vatnið og ekki alveg ljóst hvað var að, alveg nóg af vatni samt en það fannst úr fyrir rest að líkast til dældi eitthver dæla eitthvað vitlaust þannig að þegar búið var að snúa vírunum í allar áttir eftir leiðsögn rafvirkjans þá bara allt í einu virkaði þrýstngurinn aftur en þetta var í fínu standi ??? Það er spruning hvort eitther hefur hreinlega ruglað þessu fyrir okkur því þetta var jú margtjekkað af fleiri en einum aðilla...sé nú samt ekki fyrir mér að eitthver hafi farið af stað með skrúfjárn nema að viðkomandi hafi haldið að hann væri að laga eitthvað...en við hljótum að eiga daug til að klína þessu á.

15. apríl 2006

         Fórum með Lísu nýbaðaða í Austurkot í morgun, svo er bara að sjá eftir hálfann mánuð hvert verður framhaldið.

        Hér kom hópur af fólki seinnipartinn til að fara á hestbak, en þetta er árvisst held ég hjá þessum hóp.  Það var víst dálítið skondið að vera í hesthúsinu og gefa kvöldgjöfina eftir að hópurinn var farinn af stað, því reglulega kom nýr reiðhestur heim með hnakk og alles en engann knapa, eitthver var samt á bíl og gat sótt knapana.  Einn klárinn kom víst fjórusinnum heim knapalaus en sá knapi kom alltaf hlaupandi á eftir klárnum....hann þarf líkast til ekki í ræktina á næstunni eheh.

        Við Dóri fórum svo á Selfoss til þess að sýna Höddu og Möggu Engjaveginn, gluggarnir orðnir þvílíkt flottir hjá Valla, veit bara ekki hvernig þetta endar, þetta verður flottasta ömmuhús ever....

14. apríl 2006

          Við Emma fórum að Morastöðum í Kjós í dag að skoða Border Collie hvolpa en til stendur að fá sér einn svoleiðs, svona til að hann nái nú að læra eitthvað af Voða snilling.  Þarna voru þrír hvolpar sem komu til greina og auðvitað var ég orðin alveg rugluð á þessu, þetta var ein tík og tveir hundar sem ég var að velja úr.  Gat nú ekki einusinni ákveðið mig hvort ég vildi hund eða tík, þannig að það var tekin mynd af þessum þremur og ég fór með myndina heim.  Myndin var svo látin ganga hér heima á milli heimilisfólksins og viti menn þau bentu öll á sama hvolpinn, þennann sem svaf á myndinni......ekki hina tvo sem var búið að

13. apríl 2006

          Hér er allt í rólegheitum, vatnið mallar bara fínt en undir kvöld var samt eitthvert vesen á rafmagninu, kann nú ekki að segja frá því en held samt að þetta verði í lagi.

          Miðengismenn fóru í skírdagsreiðtúrinn eins og venjulega og í þetta sinn var farið til Hólmars á Minni Borg en held að það hafi verið fermingarveisla á Gömlu Borg og því tæplega æskilegt að fá fullt af hestamönnum inn á gólf hehe.  Hér voru semsagt allir komnir heim um 1900 held ég, held samt að eitthverjir hafi farið ,,afturábak" eða þannig seinna um kvöldið.

11. apríl 2006

         Búið að tengja heita pottinn þannig að nú er bara allt ao verða klárt í þessu húsi, held að það eigi bara eftir að renna í pottinn hjá Jonna og Lindu, það er ef potturinn er kominn en líkast til en allt tengivesenið klárt.

      Það er nú ekki laust við að maður sé aðeins farin að huga að gróðurhúsi en látum páskana líða svo Bjössi fái ekki hjartaáfall.

      Hjólhýsið er komið út, nú er bara að binda það niður svo það fari ekki á flakk en það er búið að vera ansi hvasst í vetur finnst manni en vonandi er það yfirstaðið þó það sé nú frekar ólíklegt.

      Emma baðaði Lísu í dag og sú er orðin flott næstum hvítari en hvítt svei mér þá...en Lísa fer svo til Hugrúnar í Austurkoti núna á laugardaginn, það er nú vandfundinn tamningarmanneskja sem slengir því ekki á mann að albínói sé ljótt hehehehe en hafið frétt að Hugrún hefði eitthverntímann sagt að albínói væri flott....nú og svo er hún bara svo flink líka en sé ekki fyrir mér að senda eitthvern með hross í dóm sem finnst hrossið mitt ljótt bara af því að liturinn er ekki kannski í uppáhaldi..alveg óviðkomandi útlitinu á hrossinu.

10. apríl 2006

         Jæja allt að gera sig vatnið komið á húsið okkar og til Jonna og Lindu þetta virðist allt virka.  Búið að tengja inn á hesthúsið og fjósið líka, þannig að þetta er bara snilld.

       Nú held að mjaltakerfið sé næstum alveg klárt, búið að tengja mælana svo það lítur út fyrir að maður sjái fyrir endann á þessu en á morgun verður potturinn tengdur, svo er spurning hvort það taki bara ekki eitthvað nýtt við hehe

9. april 2006

          Fór upp í borholu í morgun þegar ég var búin að mjólka til að mæla hitann á vatninu, hann er enn í 67 C° þannig að þetta er líkast til komið til að vera en sjáum hvað snillingarnir segja sem koma í dag og tengja heim.

8. apríl 2006

             Fór með Siggu upp í borholu að skoða núna eftir fjós sem var um kl. 1900 nú ég tók með mér kjöthitamæli,,, en hann hlítur að virka og þar stóð ROASTBEEF og 67 C° þetta er nú bara ansi mikill hiti miðað við það sem við áttum von á, nú Úlfar mældi rennslið aftur í dag og það er rétt um 6,9 lítrar á sek, hvað vill maður meira...en við áttum von á að hitinn væri um 54 C° en hann mældist strax 61 C° sem okkur fannst nú bara fínt.  Þetta er þó ekki alveg að marka fyrr en á morgun um miðjann dag skilst mér.

       Fór svo út í dag að taka myndir af Emmu á Lísu minni, þetta var nú frekar klúðurslegt hjá mér því önnur vélin varð batteríslaus og á hinni fann ég bara ekki takkann sem tók upp videó..fyrr en Emma var næstum komin heim, en ég get bara tekið upp meira seinna.

7. apríl 2006

Kolla á afmæli í dag, til hamingu með daginn Kolla mín orðin 25 held ég bara..

            Endalaust rok, nú annars er svosem lítið að frétta en það setndur til að dæla upp úr borholunni á morgun og verður spennandi að sjá hvort þetta virkar, ætla rétt að vona að þetta virki því þetta er búið að taka ansi langann tíma, og miklar spugleringar af þeirra hálfu sem hafa jú vit á þessu, ég sit bara hér heima á bæ og bíð hehehe, en sjáum hvort það verður ekki strókur hér á morgun, eða er það ekki þannig sem þetta verður dælt beit út í loftið til að byrja með, held það er veit svosem ekkert um það...

6. apríl 2006

          Við Emma fórum að sækja Nös í dag og kýktum á Engjó svona í leiðinni, Valli og Bjössi eru búnir að setja næstum alla gluggana í, Valli var að vinna við eitthvern frágang en það á líkast til eftir að taka eitthvern tíma því það er líkast til mesta vinnan,  þessi frágangur en þetta verður rosa flott.

       Mjaltakerfið er komið í gagnið en verður líkast til endanlega klárt á morgun, þetta virkar bara vel held ég tekur smá tíma að finna út hvernig þetta virkar en samt er þetta nú fljótlært sýnist mesta mausið vera að finna út hvernig á að stilla þessum tækjum upp þegar búið er að mjólka, það er vegna þess að allar slöngur eru nýjar og því ekki mjög liðlegar ennþá.

      Nýjustu fréttir af hitaveitunni eru þær að nú á víst að dæla upp úr holunni á laugardaginn, og dæla fram á sunnudag eða mánudag, allavega hlítur þetta að fara að koma inn á ofnana mína, vonandi allavega.

4. apríl 2006

            Fórum í gærkvödi að Puli með Nös í skoðun, þetta er allt á fínni leið en Nös varð eftir og á að fara í járningu en kemur svo aftur heim og Emma heldur áfram með hana.

         Ég sá ýmsa spennandi graðhesta þarna, ætla auðvitað að verða fyrst að pansta svo ég segi ekki nokkrum manni frá hvað ég sá hehe

     Var svo á Hvanneyri í gær að læra kúadóma og átta mig á klaufskurði, áttaði mig ágætlega á kúadómunum og áttaði mig líka á því sem ég svosem vissi að það er ekki alveg einfalt þetta klaufskurðardæmi,,

       Nú af hitaveitunni er það að frétta að það sem átti að gera fyrir mánaðarmót er enn ógert, og nú verður þetta í fyrsta lagi klárað á föstudag, held að þegar upp verðru staðið þá hafi Bjössi nú haft rétt fyrír sér með að það yrði gott ef hitaveitan kæmi inn fyrir páska....

2. apríl 2006

             Búið að vera ansi gott veður í dag, fór út og greiddi úr faxinu á Hæring, hann var bara svo þægur ekkert mál að gera þetta en reyndar fékk hann smá nammi, reyndi nú ekkert við taglið en það rignir úr því fyrir rest hugsa ég.

       Bjössi tilkynnti hér um daginn og hafði það eftir sæðingarmanninum að nú fæddust bara engar kvígur svona almennt.  Það stemmir nú varla því hér fæddist ein á fimmtudaginn og önnur núna í kvöld.

       Sigga búin að vera að vinna í sjoppunni á Borg í gær og í dag, held bara að henni líki þetta ágætlega.

1. apríl 2006

           Matarklúbbur á Bíldsfelli, þetta var mjög vel heppnað, fín mæting og gott að borða eins og alltaf.  Dóri fór með okkur og var svo ánægður að hann fór fram á að það yrði svona matarklúbbur einu sinni í viku lámark.

           Dóri og Steinar tóku sig til hér í dag og ákváðu að baka köku og það enga smá köku, karmellubomba, með bræddri karmellu og alles, þetta var rosa gott hjá þeim og lukkaðist vel, þeir þurftu enga aðstoð en ég fékk víst uppvaksið....enda slapp ég við að baka og hvað getur maður frarið fram á þegar búði er að baka tertu fyrir mann hehe

30 og 31 mars 2006

          Þessa daga var ég á Hvanneyri að læra bústjórn, þetta gekk rosa vel við vorum reyndar ekki nema þrjár sem gátum mætt og fengum því enn betri leiðsögn, og ekki veitti af þetta er nú ekki alveg einfalt.

      Það bólar ekkert á mönnunum sem ætluðu að setja hitann á hér fyrir mánaðarmót, nú er búið að lofa okkur að dælan verði sett niður á þriðjudaginn, það er líkast til 4 apríl þannig að nú er bara að bíða og sjá.

      Það er svo verið að vinna á fullu í að setja upp nýja mjaltakerfið sem verður vonandi klárt næsta fimmtudag skilst mér það er þá 6 apríl.

28. mars 2006

          Haldið þið að það séu ekki bara mættir menn frá MBF eða Remaflo til að setja upp nýja mjaltakerfið, þetta verður vikudæmi held ég að koma þessu upp en það verður aldeilis munur þegar þetta verður klárt.  Nú svo á morgun þá á að koma eitthver langþáður loki sem vantar í hitaveituframkvæmdina, skilst að ef lokinn kemur á morgun þá er von í að hitaveitan verði komin í hús fyrir mánaðarmót og viti menn ég er ekki viss um að þeir átti sig á að það eru mánaðarmót um helgina,,,, fer á Hvanneyri á fimmtudaginn og kem líkast til ekki heim fyrr en á hádegi á föstudag og þá verður kannski komin hitaveita inn í hús, ekkert smá spennandi.

27. mars 2006

       Fór aftur í bæinn í dag en nú var kominn tími á að sækja hundafóður, búin að vera að snúast í allann dag í Reykjavík og reyndar á Selfossi líka.

26. mars 2006

          Við drifum okkur í bæinn í fermingarveislu til hennar Bjargar Jósepsdóttur, voða gaman að sá hana en það er orðinn dálítill tími síðan ég hef séð hana og þau reyndar öll, þetta var mjög vel heppnað.  Ég notaði tækifærið og plataði Guðna Reyni til að keyra um að gera að nota hann í það fyrst hann er kominn með próf. 

25. mars 2006

        Man alveg hvað ég gerði á laugardaginn en ég, Emma, mamma hennar Emmu og Selma fórum í Ölfushöllina, mér fannst nú ansi mikið um fallega fola en þarna var ungfolasýning, nú við vorum 4 og ég er nokkuð viss um að við kusum hver sinn hestinn hehe, en auðvitað var sá sem ég kaus flottastur það fór nú ekki á milli mála en hvernig sem á því stóð þá lenti hann í öðru sæti, hann heitir Flygill frá Horni, móálóttur töffari undan Aron en Aron átti 3 fola þarna, mér fannst nú vera svipur með þeim, svona útliti og hreifingu ætla ég að fá í vor en bara vindótt ekki að spyrja að því.

24. mars 2006

          Nú er orðið svo langt síðan ég uppfærði að ég er eiginlega búin að gleyma hvað var í gangi á föstudaginn, en við fórum allavega upp í Tungur til að sjá leikritið Blessað barnalán sem leikfélagið í Tungunum setti upp, þetta var bara frábært maður ekki bara brosti heldur hló hehe

23. mars 2006

          Löngu kominn tími á að skrifa eitthvað inn, en svona er þetta maður bara liggur í leti og druslast ekki einusinni til að uppfæra.

       Nú við erum búin að bíða eftir mönnum til að klára hitaveitudæmið, og viti menn þeir eru mættir, og ég ekkert smá kát, veit samt ekki hvort hægt er að hleypa hita á allt fyrir helgi en nú kannski þarf ég að fara að verða duglegri að uppfæra svo þið getið fylgst með en þetta hitaveitudæmi er búið að vera í gangi í örugglega ár eða meira er ekki alveg viss.

      Í gær komu loksins menn til að rýja féð, þetta voru tveir menn annar Englendingur og hinn Svíi, þeir voru mættir um hálftíu í gærmorgun og voru búnir um níu í gærkvöldi og rúðu 214 stykki.  Þetta eru bara heilmikil afköst finnst mér.  Nú er féð semsagt lokað inni því það er skítaikuldi.  Það stóð reyndar til að rýja á föstudaginn, búið að svelta féð og allt klárt en eitthver miskilingur var í gangi og enginn mætti.  Nú á laugardeginum var svo ein rollan komin með doða, sjáflfsagt þar sem hún hefur ekki þolað að vera svöng í smá tíma en kalkið reddaði henni alveg og hún hin sprækasta í dag.

      Guðni Reynir fann það út að það vantar númer í einn þriðja af fénu sem er nú ansi mikið finnst mér, en sjálfsagt er skýringin sú að nú erum við með gjafagrindur sem við höfum ekki verið með áður og merkin verða líksta til eftir í þeim.

      Nú Guðni Reynir sótti pappírana sína á sunnudaginn og er farinn að keyra út um allt, held að þetta eigi nú eftir að spara nokkrar Selfossferðir hjá mér.

     Fórum með Linda til dýralæknis á mánudaginn en hann hafði gripið á sig, hann var svosem ekkert haltur en leiðindar sprunga í hófnum á honum sem var röspuð næstu alveg í geng eða þannig, og nú er bara sjúkrajárning en Bjössi ætlar með hann til Steindórs á eftir sem ætlar að slá undir folann en held að Jonni sé að dunda við að smiða skeifu sem á að redda þessu alveg, hugsa svo að klárinn verið í fríi fram á haust.

         Frétti svo að Axel er fundinn,,,,,,,hver hefði trúað því að hann findist og er hann sjálfsagt hin kátasti með sig, er ekki alveg viss hvar hann var en sjálfsagt búin að gleðja margar hryssur á haustdögum, og auðvitað ættu eigendur hryssnana að vera kátir líka fyrstu verðlauna klár búin að spranga um í stóðinu í allann vetur og enginn tekið eftir honum fyrr en núna en það var ekkert smá búið að leita og spyrjast fyrir, þannig að kannsi vill sá sem fann hann í sínu stóði bara ekkert láta fréttast hehe.  Hef samt fulla trú á að eigendur klársins séu ansi kát og kannski hissa líka........maður gat nú ekki átt von á þessu held ég.

16. mars 2006

           Það er svosem heilmikið búið að vera að gera undanfarið bara ekki nennt að uppfæra.  Sko í dag fór Guðni Reynir í verklega bílprófið og náði því með sóma þannig að nú er bara að bíða fram á sunnudag eftir að ná í eitthvern pappír niður á löggustöð.  Til hamingju með þetta Guðni Reynir okkar.

      Nú á mánudaginn var þá fórum við Emma í Borgarfjörðinn, Emma að skoða skólann á Hvanneyri og ég að skoða Gustsdóttur sem ég auðvitað féll alveg fyrir, þær liggja nú ekki á lausu hryssur undan Gust frá Hóli en semsagt þarna leyndist ein sem ekkert var farið að auglýsa og nú er hún komin hér heim í hesthús.  Set inn myndir eftir helgi en fékk lánað videó þar sem hún er í reið og ekkert smá flott, nú auðvitað er hún grá þessi elska og heitir Litbrá frá Litla Bergi.  Bæði langaði mig agalega í grátt og undan Gust og svo taldi ég mig eiga Aronstoll á húsi og vantaði eiginlega hryssu sem yrði köstuð á réttum tíma... og þarna er hún komin.  Er svo búin að reyna að finna út hvaða hryssa ætti nú að fara hvert og hvenær, fæ ég þá ekki e-mail þar sem ég sé að ég á fyrragangmál undir Aron en ekki hús...heppin ég finnst mér, en nú þarf ég kannski að raða öllu upp á nýtt, hvað með það, búin að næla mér í toll undir Hróð frá Refstöðum en búin að horfa mikið á þann hest undanfarin ár en hann alltaf fyrir norðan en loks kemur hann suður og gott ef ég nældi ekki í síðast lausa plássið, var að hugsa um að fara með Drottningu Oddsdóttur undir hann, hún hefur gefið blésótt og ég held að þetta gæti bara passað vel saman, en hver veit kannski skipti ég um skoðun ekki gott að segja.  Var líka að hugsa um að fara með eina hryssu undir hann Skrúð frá Litlalandi, sem er alveg óvart sljóttur nver hefði trúað því að ég skildi velja svoleiðs lit...

10. mars 2006

          Allt í rólegheitum í dag, nema kannski Dóri hann virðist orðin fullfrískur, talar tungum og er upp um allt og út um allt, það er semsagt ekki hljóð í húsinu lengur.  Guðni Reynir er aftur enn með hita en hann verður nú að fara að hrista þetta af sér því það stittist í bílprófið og hann þyrfti að komast í ökutíma áður.

      Nú kálfurinn var dauður í morgun þegar við komum í fjós það var svo sem ekki við öðru að búast eins og hann var nú slappur orðin.

      Var að skoða kodakgalleríið hennar Kollu þetta er bara sniðugt þyrfti að koma mér upp svona myndasafni, nóg er til af myndum en maður er nú ekki duglegur að setja þær á netið, en svona gallerí mundi kannski verða til þess að myndirnar yrðu settar inn.

9. mars 2006

            Dóri er búinn að vera veiku síðan á öskudag, ég var nú farin að velta fyrir mér í morgun að það er búið að vera óvenju hljótt í húsinu í meira en viku, engin læti, bara rólegheit.....mjög skrítið en svei mér þá ef ekki er að komast eðlilegt ástand á bæinn, hann er samt enn með smá hitavellu þannig að hann verður heima á morgun en ætti að vera klár í skólann eftir helgi.  Hann var að enda við að segja mér hvernig væri best að kæla Vodka....þannig að nú er þetta allt að koma hjá honum.  Nú svo er Guðni Reynir búinn að vera veikur síðan á mánudag, og hann sem ætti eiginlega að vera að æfa sig fyrir bílpróf en það er vika í prófið sjálft og 10 daga í 17 ára afmælið.

         Nú Valur er búin að tengja inn hér heita vatnið þannig að mitt hús ætti að vera orðið klárt í hitaveituna, þannig að nú er bara að bíða eftir að það verði tengt upp í holu.

        Nú ég er alltaf að rembast við þetta nám mitt og hver veit kannski klárast þetta fyrir rest ég er farin að halda það....

       Í gær fórum við Bjössi og Emma í Austurkot til Hugrúnar með hana Lísu í reiðtíma, það stendur nefninlega jafnvel til að sýna hryssuna í vor og Hugrún farin að undirbúa hryssuna og Emmu, en Emma ætlar að þjálfa Lísu til að byrja með svo er bara að sjá hvort Lísa verður klár í vor eða kannski bara í ágúst, Lísa verður allavega hreinni í ágúst hehe en þegar hitaveitan verður komin inn hver veit þá nema hægt verði að skola af merinni.... en hún á jú að vera hvít, hvít og sjannahvít með blésu, bara flottust.

      Það er svo kálfræfill að drepast í fjósinu, er nú ekki bjartsýn á hann en hver veit kannski rankar hann við í nótt, held nú samt að ástandið hér í þessu fjósi sé nú ansi gott og við ansi heppin miðað við suma sem lenda endalaust í nýjum áföllum...

     Kiddi frændi kýkti við í dag, ansi langt síðan ég hef séð hann og karlinn kominn með svona flott skegg,,,, það má mikið vera ef hann verður ekki jólasveinn næsta ár í Kringlunni passar alveg í hlutverkið.

7. mars 2006

         Það var bara allt hvít hér í morgun en það fór nú fljótt.  Það er bara allt að gerast þessa dagana en hitaveitan er held ég bara alveg við það að koma í hús þetta verður bara á næstu dögum allavega í mars maður má nú ekki vera of bjartsýnn.

5. mars 2006

         Það er búið að vera mikið að gerast í dag.  Við Emma fórum á hundasýningu með Tíbrá og Frey.  Tíbrá fékk fyrstu einkunn og fyrsta sæti í sínum flokk og fékk svo framhald upp í opinn flokk, hún fékk svo meistaraefni og fékk að keppa í meistaraflokknum, skil ekki alveg hvernig þetta virkar.  En í þeim flokki fékk hún fjórða sætið, sem er bara flott held ég.  Það voru fjórar tíkur í keppni þar og Kersins fékk annað og fjórða sætið.  Nú Annars fengu allir Kersins hundarnir fyrstu einkunn sem var nú bara gott því það var mikið af bláum borðum sem voru afhentir fannst mér.

 

     Nú Freyr kom sá og sigraði í orðsins fyllstu merkinu.  Besti Íslenski hvolpurinn í eldri hvolpaflokk og svo gerði hann sér lítið fyrir og varð besti hvolpur sýningar. Finn vonandi mynd fljótlega.

       Það sem gerðist hér heima á meðan var ekki eins gott, fyrst misstum við eins kú sem drapst úr doða líkast til en hún bar fyrir um 4 dögum það var starx fenginn dýralæknir á hana þá þó hún væri ekki orðin neitt sérlega slöpp en það dugði ekki til.  Svo þegar Bjössi kýkti á hrossin sá hann að Spóla sem átti að kasta í maí var að láta folaldinu sínu..  Það þýðir ekkert að gráta það en svona er þetta bara.  Rauðstjörnótt en ekki vitað um kyn enda skiptir það svosem ekki nokkru máli.

 

        Í gær var myndakvöld hestahópsins okkar Ganda og Gúbba, mæting í grímubúningum.  Þetta var bara gaman og sumri alveg óþekkjanlegir, héldum jafnvel að það væru boflennur á ferð.

             

                  

27. feb 2006

         Hér er allt í rólegheitum, jafnvel veðrið er gott þessa dagana.  Linda og Egill komu í dag til þess að líta á hundana sem þau ætla að sýna um næstu helgi..... auðvitað voru bæði Freyr og Tíbrá agalega fín og ekkert svo mikil fjósalykt af þeim nema Linda hafi bara ekkert minnst á það en það væri nú ólíkt henni hehe.  Freyr og Tíbrá eru semsagt bara klár í sýningu og auðvitað bara flottust en ekki hvað...

        Það er von á mönnum hér á miðvikudag til þess að malbika mjaltarbásinn, þar sem kýrnar ganga, held að þetta verði bara bylting því það er ekki gott að hafa þessar flísar sem eru þarna og svo eru mottur ofaná flísunum svo kýrnar detti nú ekki á hausinn en þetta er alltaf út um allt og skýtur undir mottunum þannig að þetta verður bara æðislegt held ég.

22 feb 2006

        Jæja það er farið að styttast í aðalfund díf.... það verður nú einhvað fjör eins og alltaf.  Það styttist líka í hundasýninguna við Emma förum með Tíbrá og Freyr.  Annars er bara allt í rólegheitum, búin að vera að slæpast í dag á Selfossi fór svo með GR í Hveragerði.  Sigga tók þátt í eitthverri stærðfræðikeppni í dag var nú ekki kát þegar hún kom heim blessunin.

20 feb 2006

       Hér er svosem heilmikið búið að vera að gera en ég löt að uppfæra.  Síðasta laugardag var hér folaldasýning sem tókst bara vel, Halla Eygló kom svo og byggingardæmi nokkrar hryssur, var nú bara mjög sátt við mitt.  Um kvöldið fórum við Bjössi ásamt Siggu á Broadway að sjá Nínu og Geira ásamt matarkúbbnum, þetta var rosa flott og voða gaman.  Nú nýja tíkin kom svo líka á laugardeginum hún Þórdunu Skráma, afskaplega sæt tík, Sigga hefur tekið að sér að hugsa um gripinn og eru þær rosa góðar saman.

14 feb 2006

           Bara fullt af afmælum í dag Sævar Ingi orðin 15 ára og Voði orðin 9 ára. Til hamingju með daginn báðir tveir. Keypti þessa fínu mottu handa Voða gamla til að liggja á í þvottahúsinu en viti menn Brella gamla var nú ekki lengi að finna út að þessi motta væri örugglega fyrir hana, sjáum til hvort Voði fær smá horn til að lúra á.

        Búin að vera ótrúlega seig í dag, fór í bæinn rétt fyrir eitt í dag, fór á 4 staði víðsvegar í Reykjavík og svo í Bónus í Hveragerði en var samt komin heim um kl 1600 og geri aðrir betur.

13 feb 2006

             Veðrið búið að vera rosa gott í dag, það lítur eiginlega út fyrir að það sé að koma vor held ég bara.  Það var frí í skólanum í dag hjá Dóra og Siggu, Sigga var reyndar hjá Freydísi í dag en Dóri afrekaði heilmikið í dag, fór á hestbak og fór tvær ferðir fyrst á Skjóna sinn og svo tók hann Feng hans Guðna Reynis traustataki og fór eina ferð á honum, Dóri var nú samt að hugsa um að rukka Guðna Reyni fyrir metragjald...

        Kom því loks í verk að uppfæra Kersins síðuna en setti inn myndir sem hann Gústi tók af öllum Kersins hundunum sem mættu á DÍF sýninguna í janúar.

12 feb 2006

          Veðrið búið að vera gott í dag, kannski smá kalt þegar ég fór í fjós í morgun, en ágætt samt.  Það gengur bara vel með nýju merarnar mínar hjá henni Emmu, en hún er nú ótrúlega seig.  Hef nú svosem ekki komið miklu í verk í dag en það er svosem ekki frétt. En er þó að rembast við að uppfæra ....

10 feb 2006

           Það er eitthvað ekki í lagi veit ekki alveg hvað það er.

          Hvað um það rok og rigning, þessir umhleypingar ætla bara ekkert að gefa eftir.

           Guðni Reynir er að hugsa um að taka heldur betur á í boltanum, það á að koma sér af stað í eitthvert prógram og virkilega taka á öllu fram á vor,,,, nema kannski stærðfræðinni hef ég grun um.

8 feb 2006

             Það er búið að vera ferlega kalt í dag, held að það hafi verið um -10 í morgun.

          Fór í bæinn í gær, átti tíma hjá lækni út af mígreninu, og var send til taugalæknis, fór fyrir mörgum árum og fékk þá einhvert lyf sem átti að halda mígreninu niðri,  það er nú dálítið skondið að lesa fylgiseðilinn því á seðlinum sem ég fékk þá stóð ,,gott við matgræðgisköstum", jæja það semsagt var ekki að virka alveg eins og vonir stóður til varðandi mígrenið þannig að nú fékk ég nýtt lyf og hvað haldið þið að standi þar á fylgiseðli........,,dregur úr hættu á dauðsfalli", þannig að það lítur út fyrir að ég lifi fram á vor allavega.

        Annars er bara allt í rólegheitum eða þannig það er reyndar verið að grafa hér allt upp því að nú á að fara að leggja hitaveituna heim að hverju húsi og Valli alveg í essinu sínu að geta verið úti að grafa það lítur út fyrir að það verði jafnvel komið heitt vatn hér inn í húsin fyrir vorið ef allir sem ætla að redda hinu og þessu ná að gera það en það eru dælur og allskonar einhvað sem ég kann ekki að nefna sem þarf víst til að þetta gangi nú allt saman upp.

       Frétti að það hefði verið rosastuð á þorrablótinu í tungunum en þar voru sveitungarnir látnir heyra það en það er kannski málið að fara bara að rækta einhvað grænt og þá kannski yrði gert grín að sveitunganum en í tungunum var víst kanabis þema............eða allavega einhverjar plöntur.

5. feb 2006

Hún litla frænka var skírð í dag og heitir hún  Vala, til hamingju með það.

        Búin að gera ansi mikið síðan ég kvittaði síðast, búin að fara á Akureyri og valdi mér tíkarhvolp, hana Þórdunu Skrámu, þetta er ansi snotur tík ein og reyndar gotið í heild sem hlítur að vera gott, mjög svipaðir allir Eyju hvolpar.  Nú hvolparnir undan Urði eru líka ansi fínir, og greinilegt Kersins gen í þeim, en það er gengið sem passar upp á að þeir séu klárlega aldrei kyrrir nema rétt má meðan þeir sofa og alls ekki ef á að mynda þá.....

    Nú ég er líka búin að skila af mér á Hvenneyri einu stykki vinnubók sem var farin að liggja aðeins á mér, voða gott að geta klára einhvað. Ég er líka búin að mála þvottahúsið en Emma hjálpaði mér með það Bjössi og Valli settu svo voða fínar plötur á veggina.  Og svo er ég búin að mála ganginn og var rétt að klára að mála sjónvarpskrókinn, Bjössi, Valli og tengdapabbi voru svo á fullu hér í gær að leggja kork á gólfið, og ekkert smá flott, á morgun verður svo vonandi klárað að leggja korkinn í eldhúsið og eldhúskrókinn.  Nú hafði nú vit að að láta lofa mér því hér um síðustu helgi að það yrðu settir loftalistar, sem þótti nú ansi einfalt síðasta laugardagskvöld en er nú viku seinna ekki í tísku hehehe, sem er reyndar bara betra því ég tolli svo ansi lítið í tískunni.

30. jan 2006

       Jæja þá eru komnar myndir úr þorramorgunverðinum sem var hjá Jonna og Lindu á laugardagsmorguninn.

  ,,Sumir" meira uppáklæddir en aðrir, enda heyrðist að ,,sumir" hefðu klætt sig upp í rafmagnsleysinu sem var þarna um nóttina sem skýrir nú kannski ýmislegt....

   Svo er það bara Akureyri á morgun þannig að ef ég fæ mail eða hringingar um að fjarlægja myndir þá virkar það ekkert heheheeh

29. jan 2006

        Það er búið að vera rok og rigning hér í allann dag held ég bara.  Sófinn minn sem var í sjónvarpskróknum er farinn í yfirdekkingu á Laugarvatn, þannig að nú er bara að klára að mála smá og leggja smá gólfefni hehe kannski finnst þeim sem leggur gólfefnið 60 fm ekkert smá en þetta er engastund gert hugsa ég sér í lagi ef ég er ekki að skipta mér af sem verður nú seint því einhver verður jú að segja til hvernig er best að gera þetta en ég ætla nú að reyna að halda mér á mottunni.

   Hér var annar í þorrablóti í gær, dagurinn byrjaði svosem ekki vel því rafmagnið var ekki inni þegar átti að mjólka frekar ömurlegt en það kom inn um 7 held ég.  Nú svo undir hádegi var hinn margrómaði morgunmatur hjá Lindu, hafragrautur, flatkökur með hangikjöti og egg að ógleymdum drykkjarföngum sem var Jagermefter og hin ýmsu hollu drykkjarföng ég mætt meira að segja með Íslenskt Brennívín, held að það hafi mætt 26 af þessum 31 sem fóru á blótið, en þorrablótið var á föstudagskvöldið, það byrjaði ansi vel maturinn var mjög góður fannst mér en ansi söknuðu Miðengismenn þessa siðs að geta svo gengið í afgangana í kjallaranum.  Nú svo var Jóhannes Kristjánsson auglýstur sem veislustjóri og var bara ansi góður, nú um klukkan hálfellefu þegar hann var búinn að segja fullt af skemmtilegum bröndurum þá var maður nú orðinn spenntur að heyra annál úr sveitinni því það er jú ekkert innansveitarblót nema menn geti hlegið hver að öðrum, Miðengismenn búnir að gera hina ýmsustu skandala á liðnu ári og ég reynt að uppfæra alla vitleysuna á síðunni, en viti menn bara enginn annáll og engar tilkynningar, þannig að uppúr hálfellefu var bara byrjað ball, ég verð nú bara að segja að ég og reyndar allir sem ég heyrði í voru ansi vonsviknir því þessi skot á sveitungann eru jú það sem manni finnst svona blót eiga að snúast um því ef það eru engin skot á sveitungann þá er eins hægt að fara einhvert annað á blót eða bara éta sinn súrmat og horfa á gamalt skaup....

   Jóhannes var samt rosagóður fannst mér, en hugsa að ég spyrji næstu nefnd út í þetta hvort það verði ekki innansveitaratrið áður en ég kaupi miða.

  Veit svosem ekkert hvað öðrum fannst nema mínu heimafólki, var nú farin heim fljótlega eftir miðnætti, var örugglega tvo tíma á ballinu sjálfu en hef venjulega farið heim uppúr miðnætti en þá hefur ballið verið að byrja. 

26. jan 2006

       Í gær komu hrossin mín að norðan loksins.  Mér líst nú bara nokkuð vel á þau svo er bara að sjá hvernig gengur en Emma og Bensi járnuðu merarnar í gærkvöldi, sú jarpar var ansi hörð reynar öskuill yfir þessari meðferð, en þetta hafðist nú samt en sú móvindótta var bara eins og engill lá við að hún spyrði hvað löpp á ég að lyfta núna.

      Nú í dag hef ég svo lítið verið heima, byrjaði á að sækja Siggu og Freydísi upp í skóla fyrir hádegið því nú þurfti að leggja lokahönd á lúkkið fyrir þorrablótið....neglur kjóll og alles, ég fór nú á sunnu sms fund á meðan stelpurnar græjuðu þetta allt.  Sótti Dóra í leiðinni í skólann hann virðist nú vera ansi hress blessaður og hefur bara tvíefldst við að fá þennann tvíburabróður en reyndar var hann aðeins farinn að finna til seinnipartinn í gær.

24. jan 2006

        Hér er búið að vera heilmikið að gera í dag, byrjaði daginn á að fara í plokkun og litun eða ætlaði að gera það, var semsagt bókuð kl 1000 hjá konu sem vinnur bara eftir hádegi... hvað um það þurfti svosem ekkert í þessa plokkun, nú notaði tímann til að kaupa mér slatta af málingu, já nú á að klára að mála.  Þá var það tannlæknirinn og gekk ótrúlega vel.

        Var varla komin heim og var reyndar enn í Nóatúni þegar Dóri hringdi alveg að drepast í rófubeininu en hann kvartaði líka í gær, en nú var hann enn verri og sagði mér að það hefði örugglega snúist upp á rófubeinið hvernig sem það er nú hægt.  Jæja auðvitað endaði það með því að ég var að sækja pilt í skólann og fór bara með hann beint í Laugarás til Péturs læknis sem var ekki alveg að sjá að það hefið getað snúist upp á rófubeinið án þess að nokkuð kæmi fyrir, niður staðan var semsagt sú að líkst til er Dóri með tvíburabróðir ..mér fannst það nú ekki spennandi en Dóra fannst það bara æði og mikið kátur með þetta, það hefði verið agalegt ef Dóri hefði sjálfur verið tvíburi fannst honum, þá hefði hann jú ekki verið aðal...hvað um það held að hann verði ekki eins kátur ef þetta versnar meira, en hann er bærilegur núna og virðist hafa nælt sér í frí í skólanum á morgun.

       Nú þegar við komum svo heim var flutningabíll að renna úr hlaði en hann hafið komið með gólfefni til að setja hér á ganginn, sá að ef ég bara mundi patna þetta og láta standa hér í nokkra daga á gólfinu þá væri það allavega byrjunin enda er ég búin að kaupa málingu á veggina þannig að þetta er allt að gerast.

23. jan 2006

         Það er búið að vera rosalega gott verður í dag, logn og úrkomulaust og við forstmark held ég bara.  Guðni Reynir þarf að eyða seinnipart dagsins í dag og á morgun í ökuskólanum og klára bóklega pakkann, hann var ekki mjög kátur, frá klukkan 1700-2100 ansi langt sérlega ef menn eru búnir að vera í skólanum frá 0800-1600....en þetta drepur hann varla.

      Nú haldið ekki að ég sé bara búin að bóka flug á Akureyri þriðjudaginn 31 jan, nú á að fara og kýkja á hvolpana hjá Sillu og ekki seinna vænna, og hver veit nema ég velji mér tík úr Eyju goti......

22. jan 2006

         Við ákváðum að fara í Þrastalund og athuga matseðilinn, núna í kvöld og viti menn þetta var bara æði, og auðvitað pantaði maður hamborgara eins og alltaf þrátt fyrir að ýmislegt annað spennandi væri í boði.  Maturinn semsagt æði og aðstaðan orðin ansi flott, kominn risaskjár og auðvitað var bolti í sjónvarpinu en ekki hvað.  Semsagt endilega kýkið þarna þetta er orðið ansi flott finnst mér, og auðvitað er líka til manni þarna hehe.

       Annars er veðrið bara búið að vera leiðinlegt rok og annaðhvort rigning eða snjófjúk um helgina en ekki klikkað að það er ansi hált hér á hlaðinu, liggur við að það hafi verði ófært úr í fjós gangandi vegna hálku.

20. jan 2006

        Það er slatti snjór hér ennþá, og ansi hált.  Svosem ekkert að frétta nema það telst auðvitað frétt að ég hef ekkert farið af bæ í allann dag,  búin að vera að slást við að útbúa verkefnabók sem á að skila núna í janúar.  Annars erum við að fara núna á eftir í þorramat hjá tengdamömmu upp í sumarbústað en það telst nú varla að vera að fara af bæ.

      Tíbrá er loks að klára að lóða á degi 21 allavega, nú og það passar þá að Brella gamla er byrjuð að lóða og nú eru ekki nema tæpir 5 mánuðir síðan hún lóðaði síðast, held bara að það sé að styttast á milli lóðaría hjá henni með aldrinum.

19. jan 2006

        Hún Emma á afmæli í dag og er tvítug, til hamingju með daginn Emma, held bara að hún sé farin út á hestbak.

       Ég fór á Hvanneyri á sunnudaginn og kom ekki heim fyrr en seinnipartinn á þriðjudeginum, þetta gekk allt betur en á horfðist en á þriðjudeginum dó bara Patrolinn úr kulda, enda sýni mælirinn á bílnum -16° svo það var ekki skrítið eða þannig en líkast til hefur verið raki í olíunni.

15. jan 2006

          Nú er stefnan tekin á Hvanneyri, við eigum reyndar ekki að mæta fyrr en í fyrramálið en það er nú ekkert mjög spennandi að rjúka af stað eldsnemma og ómögulegt að segja í hvernig veðri maður lendir þannig að við förum bara í dag og ég kem ekki heim fyrr en á þriðjudag, meira ástandið á manni.  Við ætlum að fara þrjár saman, ég, Sigríður á Fossi og Hildur á Spóastöðum, held reynda að Bertha og Gulla komi úr Landeyjunum og fari í dag líka ekki að taka neina sjensa þá þessu veðri.

14. jan 2006

Hundasýning.

        Það var hundasýning í Ölfushöllinni í dag, deildarsýning DÍF sú stæðast frá upphafi held ég bara og þrátt fyrir mikla snjókomu þá var bara asni góð mæting.

       Það gekk bara glimrandi vel hjá Kersins hundunum, Fengum besta yngir hvolp hann Kersins Frey, í eldir hvolpaflokk fékk Kersins Tíbrá Töfradís fyrsta sætið í tíkum en tapaði svo fyrir hundinum.  Nú og allir Kersinshundarnir sem voru eldir en í hvolpaflokk fengu 1. einkunn,  held að þau hafi verið 5, en svo voru 6 Kersins hunar í hvlpaflokkunum.  Nú Brenda gamla ákvað að mæta enda mætir hún allstaðar þar sem von er í nammi og Linda sem er nú eignlega
Kersins Linda var auðvitað með nammi handa þeirri gömlu en Linda sýnir bara alla mína hunda held ég allavega þá sem ég á ennþá.  Nú Brenda gamla fékk fyrstu einkunn og heiðursverðlaun í öldun og annað sætið, hún mætti svo stolt í afkvæmasýningu en þar voru tveir hópar og það fékk hún fyrsta sætið, eins voru tveir hópar sem mættu í ræktunnarbúsýningu og fengum við fyrsta sætið þar líka. Held að við höfum fengið einhver heiðusrverðlaun við Brenda er nú samt ekki mikið inn í þessu en var með fullann vasa af borðum í hinum ýmsu litum tvær róstettur og alles, held meira að segja að Brenda gamla eigi einhverja borða í bænum hjá Lindu. Voða lukka.

         Takk fyrir Linda og co þið eruð bara snillingar að nenna þessu.

        Nú hann Steini mætti svo í parakeppni með Kersins Kötlu og Sunnusteins Sunnu Rögg sem er dóttir Kötlu og þarf náði hann sér í fyrsta sætið.

        Þann 11 jan, það var á miðvikudaginn var þá fór hér rafmagnið vegna þess að einhver gröfumaður tók í sundur rafmagnið einhverstaðar við Búrfell, og víst ekki í fyrsta skiptið í vikunni hehe aumingja maðurinn, hvað um það það tók netið dálítinn tíma að jafna sig á þessu.

       Fimmtudaginn 12 jan vorum við í bænum í jarðaför.

       Föstudagurinn 13 jan var ansi mikið um að vera. Halldór og Elli í Mjóanesi tóku upp á því að halda upp á 22 ára afmælið, það var samtals og þetta var nú ekkert smá partý.  Rósa í Mjóanesi bakaði tertu ársins heill fótboltavöllur og pizzustaflinn sem hún kom með var mannhæðarháur held ég bara en hér eru myndir af deginum.

                         

      Nú Siggi á Hæðarenda kom svo þennann sama dag til þess að rífa eitt hús, en auðvitað var drengjunum sagt að húsið hafi bara verið gámamatur eftir afmælið hehe

                              

10. jan 2006

           Haldið þið ekki að hann Guðni Reynir hafi gefið sér smá tíma í dag til að fá sér jakkaföt og ekkert smá flottur, það var næstum sama hvað honum var sýnt honum var eiginlega sama en sem betur fer var Sigga með í ferð og gat valið á hann bleika skirtu,,, hann verður allavega þorrablótsfær og gott betur.  En þrátt fyrir að hann gæfi sér smá tíma í þetta í dag þá mátti hann ekki vera að því að koma með til Valgerðar ömmu til að fá buxurnar styttar aðeins þannig að við giskuðum á þetta og svo er bara að láta drenginn máta næst þegar er laus stund.

        Það stóð til að fara til Reykjavíkur á æfingu fyrir hundasýninguna en það var bara endalaus snjókoma svo við ákváðum bara að sleppa þessari æfingu, það er alveg óþarfi að æfa þetta of mikið hehe

9. jan 2005

         Held að það séu búnar að vera allar gerðir af veðri í dag, frekar leiðinlegt.  Svenni dýralæknir kom í dag og kýkti á fylfullu hryssurnar mínar sem voru á fjallinu og það er allavega folald í Spólu sem leit ekki vel út og á að kasta í byrjun maí, þannig að Hæra og Sunna hans Jonna ættu að vera í lagi því þær litu mikið betur út.  Nú svo fékk ég hann til að skoða hann Hæring en hann er alltaf haltur svona öðru hverju, niðurstaðan var sú að líkst til hefur hann fengið hófsperruvott í fyrra þannig að það þarf bara að passa upp á hófana á honum en hann, klippa þá reglulega og þ.h en þetta er líklega ekkert sem á eftir að há honum ef vel er um hann hugsað.   Nú svo kom Bjarni Þorkels í heimsókn í hesthúsið svona að kýkja á nýja húsið og hrossin en þegar við fórum að skoða hrossin sá ég að það er nú ansi mikið til hér undan eða útaf hans hrossum og þá einna helst undan Galdir sem er jú bestur hehe.

8. jan 2006

         Hér er bara allt gott að frétta, hrossin sátt held ég þó er eitt tryppi sem hrofið mikið til fjalla í gær, kannski fannst henni þetta bara gaman þrátt fyrir sveltið en ansi eru þau sum orðin kviðlítil, þarna er hryssa, hún Spóla sem á að kasta í byrjun maí en núna er hún bara þvengmjó ræfillinn, það getur bara tæpast verið í henni folald ennþá en er nú að velta fyrir mér svona næst þegar það kemur dýralæknir að láta líta á hana og þá kannski hinar fylfullu hryssurnar líka.

       Veðrið er búið að vera ansi ömurlegt bara slyddudrulla og bara ömurlegt veður, það var þó skárra í morgun, Guðni Reynir fór til Reykjavíkur fyrir hádegi og var að fara að keppa með 2. flokki í dag en svo er hann víst að fara að keppa með meistaraflokki í kvöld hann á eftir að verða uppgefinn í fyrramálið en er svo heppinn að hann byrjar ekki fyrr en um kl 10.00 í fyrramálið.  Þannig að hann gistir bara á Engjaveginum.

7. jan 2005

          

             14.00

       Öll 19 hrossin komin heim í aðhald, helst yngstu tryppin sem eru slök en auðvitað eru þau öll svöng eðlilega.

            13.00

 

                

          Það er búið að ná tveimur hrossum og stóðið alveg rólegt, nú að á að reyna að teyma þá niður á vel völdum stað og sjá hvort restin eltir ekki, nú er bara að vona að þetta gangi vel en það er farið að snjóa aftur. Svipað sjónarhorn bara klukkustund seinna en vonandi gengur þetta vel.

          12.00

          

         Þá eru þeir lagðir að stað á tindinn, það mættu 3 hjálparsveitamenn, þeir ætla allir upp og Sverrir fer með þeim, hrossin sáust áðan efst upp á fjallinu vestanmegin ca fyrir ofan Giljatungu sem er á milli Ásgarðs og Syðri Brúar, held samt að þeir ætli að reyna að koma þeim niður austan megin.

           11.00

          Þá er farinn af stað stór hópur af fólki til að finna og koma hrossunum heim.  Það fóru  6 heimamenn og svo ætla að mæta 6-7 frá Hjálparsveitinni Tindron held ég, nú ef stóðið finnst upp á fjalli þá fer meiri mannskapur af stað til að vera klár í fyrirstöðum svo hrossin endi nú á réttum stað.  Þannig að nú er bara að krossa fingur og í fyrsta lagi vona að hrossin finnist og ef það tekst nú að þau komi þá heil heim öll 19 stykkin.

   Annars er aðalfréttin í dag sú að Halldór á afmæli og er orðin 11 ár til hamingju Dóri flotti.

6. jan 2005

           

           22.40

           Það er ekkert að frétta af hrossunum en Tindronsmenn eru búnir að skipuleggja leit á morgun, hugsa að þar komi einir 6 menn og annað eins af heimamönnum sem ætla að fara af stað í birtingu, en það er ekki fyrr en undir klukkan 1100.. og komið myrkur um 1700 þannig að það er vonandi að leitin sjálf taki ekki of langann tíma svo það gefist tími fyrir myrkur að koma stóðinu heim.  Nú best væri auðvitað að þau yrðu komin í fyrramálið en núna er hávaða rok og rigning bara ömurlegt veður en það er einhverslags sunnanátt og þá þurfa hrossin að fara á móti veðrinu svo ég er nú ekkert of bjartsýn.

          

            14.50

           Hrossin enn ófundin og ekkert sést til þeirra í dag þrátt fyrir að maður hafi keyrt í marga hringi, fram og til baka hehe, er ansi smeik um að þau séu bara upp á fjalli, sem er ekki gott.

           10.50

           Hrossin létu ekki sjá sig í rúllunni, og ég sem var svo viss um að þetta mundi narra þau heim, ég keyrið Búrfellshringinn áðan og sá ekki nokkurt hross.  Bjössi og Emma eru farin af stað með kýki þannig að kannski koma þau auga á hrossin.

5. jan 2005
 

           19.50

           Jæja Gummi í Klauturhólum sá til hrossana seinnipartinn og þá voru þau á leiðinni niður sem betur fer.  Bjössi og Dóri fóru á traktórnum upp að Búrfelli með rúllu því hrossin þekkja jú hljóðið í traktórnum og vonandi draga þau sig að rúllunni í nótt en þá kannski hægt að sjá hvort þau eru komin í fyrramálið kannski jafnvel kl 10.30 ef það er ekki þoka og alles...

       Nú að öðru það fæddist eitt stykki kálfur hér í dag, rauðsokkótt kvíga.

           14.50

           Hrossin eru fundin en það verður þrautin þyngri að ná þeim því um leið og þau sáu bílinn hlupu þau upp á Búrfellið og alveg upp á topp,,, og fjallið orðið hvítt af snjó þannig að það er ansi hált, veit ekkert hvernig verður staðið að því að ná þeim lifandi niður... Held að það sé stefnan að reyna að ná þeim niður á laugardaginn með aðstoð Hjálparsveitarinnar Tindron ef þau ramba ekki sjálf niður áður.

           kl 10.40

         Það er orðið nokkuð bjart og engin hross komin í rúlluna því miður.

            kl 09.30

         Það var leitað um allt í gær að hrossunum og ekkert fannst þó fundust fullt af hófförum í Búrfellsdalnum, það sást líka að hún Hildur sem kom heim í gær, hafði tekið sig út úr hópnum þar og komið sér heim.  Í gærkvöldi var svo keyrt inn í Kringlumýri í von um að hrossin væru þar við kofana en þarf var ekkert.

     Í dag stendur svo til að fara á Hjálparsveitabílnum og leita meira.  Þetta er svo pirrandi þegar þetta myrkur er alltaf, og þar að auki alltaf rok og rigning held ég bara, og auðvitað alltaf einhverjar sunnanáttir þannig að hrossin þurfa að berjast á móti veðrinu ef þeim dytti í hug að koma sér heim.

4. jan 2005

        
        
kl 10.50

         Í morgun þá var eitt hross komið heim, hún Hildur, veit svosem ekkert hvaðan hún kom.

3. jan 2005

        Það bólar ekkert á hrossunum okkar og búin að finna út að þau eru 20 sem vantar, frétti svo ekki fyrr en í dag að þau voru á Búrfellsveginum á nýársnótt, hefði nú verið gott að vita það starx þá um nóttina allavega morgunin eftir en semsagt fréttum þetta ekki fyrr en í dag.

       Held að það eigi að safna saman liði hér á morgun og bara að finna gripina þetta gengur ekki svona,  þetta er bara ömurlegt.

2. jan 2006

         Það snjóði aðeins fyrripartinn í gær, en svo fór að rigna og var bara slagveður í gærkvöldi og snjórinn sem hafði komið er allur hrofinn núna og enn rignir núna fyrir hádegi.

      Við erum bara búin að hafa það gott um hátíðarnar en gott ef ekki hafa laumast smá kíló á mann alveg óbeðin, svo nú er bara að slaka aðeins á átinu, svo maður komist nú í þorrablótskjólinn......

        Bjössi átti afmæli í gær held að hann hafi bara yngst um eitt ár karlinn svei mér þá.

        Nú og hrossin okkar eru týnd, þau fóru á gamlárskvöld, eða um nóttina og Bjössi og krakkarnir voru að leita í gær en fundu ekkert ekki einusinni för eftir þau þannig að það er smá möguleiki að þau séu í austurgirðinunni þar sem þau eiga að vera en fela sig bara, er að vona að þegar birtir á eftir þá verði þau bara komin í heyið, en þau hross sem áttu að vera í hrauninu og upptúninu eru enn á sínum stað.

     Haldið þið ekki að fína Glampadóttirin með blésuna sem ég ætlaði að kaupa hafi ekki loks fundist núna á milli hátíðanna og auðvitað dauð í einhverju ræsi, það er alltaf svona þegar einhver flott hross eru í dæminu, hér biðu menn og konur spennt eftir að sjá gripinn sem var líka svona gasalega glámblésótt.

 

Miðengi | Fréttir 2017 | fréttir 2016 | Fréttir 2015 | Fréttir 2014 | Fréttir 2013 | Fréttir 2012 | Fréttir 2011 | Frettir 2010 | Fréttir 2009 | Fréttir 2008 | Fréttir 2007 | Fréttir 2006 | Fréttir 2005 | Fréttir 2004 | Fréttir 2003