Fréttir 2012

                   
Miðengi
Upp
Fréttir 2017
fréttir 2016
Fréttir 2015
Fréttir 2014
Fréttir 2013
Fréttir 2012
Fréttir 2011
Frettir 2010
Fréttir 2009
Fréttir 2008
Fréttir 2007
Fréttir 2006
Fréttir 2005
Fréttir 2004
Fréttir 2003

 

              

                            

      31. des 2012

         Frekar kalt í dag en kannski ekki svo  margar mínusgráður á mæli.  Hér er allt autt og stefnir ekki í neinn snjó í bili held ég.  Skaust á Selfoss í morgun með tengdamömmu, verið að ná í það sem gleymdist fyrir kvöldið. 

       Við borðuðum svo saman hjá tengdó, vorum ellefu í mat, tengdó, mamma og pabbi, Gunni Har og svo við ásamt börnum og tengdasyni.  Maturinn tókst svona ljómandi vel en við vorum með kalkún og léttreyktann lambahamborgarahrygg sem var reyktur á Böðmóðstöðum og annann hrygg af veturgömlu sem var reyktur í Krás aðeins misjafnt hvað fólki fannst best en niðurstaðan með hryggina var sú að þeir voru rosalega ólíkir en báðir bestir ekki slæmt það.  Fórum svo á brennuna á Borg rosalega flott flugeldasýning fannst mér.  Nú svo var horft á skaupið hér mér fannst það nú bara ljómandi gott hló alveg helling en fannst nú þjóðhátíðarsketsarnir langt út fyrir öll mörk.  Annað bara fínt.

Gleðilegt ár kæru vinir og takk fyrir samfylgdina á liðnu ári reyni að vera duglegri að uppfæra að ári...

25. des 2012

       Sigga fór í bæinn í morgun í jólaboð hjá foreldrum Arnars, þau komu svo aftur austur seinnipartinn.  Fórum í súkkulaði til tengdó alltaf jafn gott að fá súkkulaði með rjóma.  Svo var það hangikjöt hér hjá okkur en Höddi var hálflasinn og treysti sér ekki en kom nú samt austur, strákarnir komu ekki úr bænum.   Þannig að við vorum sex úr þessu húsi í matnum tengdó mættu og Jonni og Linda, Sverrir og fj mættu svo eftir matinn og eins Steinar og Rakel.  Sævar og Herdís voru aftur hjá foreldrum Herdísar en mamma hennar varð fimmtug í dag til lukku með daginn.  Það er nú bara þannig að þegar börnin eru komin með maka þá fjölgar jólaboðunum um helming ekki einfalt að ná öllu og alls ekki holt að éta hangikjöt jafnvel tvisvar á dag en mest um vert að hittst :)      Sigga og Arnar fóru svo í bæinn í kvöld en spáin er ekkert spes fyrir morgundaginn og óþarfi að taka sjensa á því. 

24. des 2012

       Höfðum það bara rosalega gott í dag, mikið étið og fullt af pökkum, allir mikið sáttir og sælir takk fyrir okkur og

Gleðilegt jól. 

23. des 2012

        Sigga kom austur fyrir hádegið svo hún gæti nú farið með okkur í skötuna á Borg.  Mér fannst skatan bara rosalega fín og vel sterk takk fyrir okkur. 

21. des 2012

       Fór á Selfoss í morgun og kláraði held ég svona næstum allt, vantar kannski smá brauð og smjör til að steikja aspasinn uppúr en annars bara allt komið í hús.  Var svo heppin að hitta á Hjalta og Bjarka í Bónus og plataði þá til að hinkra og bera allt dótið út í bíl, þetta gos er svo ansi fyrirferðamikið.  Nú í heimleiðinni kom ég við í Vaðnesi og sótti Tupperwere dollur hjá henni nöfnu minni, svo er bara spurning um að fara að taka til svona allaveg ef ekki verður heimsendir í dag, byrja bara á morgun til öryggis. 

20. des 2012

Sigga búin að fá út úr prófunum sínum og náði öllu bara snilld :)

        Skaust á Selfoss í dag, tók tengdamömmu með, var nú frekar léleg og gerði nú bara brot af því sem ég átti eftir,  komum við í Vaðnesi en Helga ekki heima svo ég prufa bara aftur á morgun.  Mamma og pabbi kýktu hér við í dag nú Gunni kom líka við og Daddi kom í kaffi. 

19. des 2012

        Hér voru nokkrar skjátur sæddar í dag þrettán stykki, ég brunaði á Selfoss að sækja sæðið ætlaði að fara á L-200 bílnum en hann vildi ekki í gang svo ég fékk bíl hjá Bensa.  Nú það passaði svo að þegar ég kom heim mætti Auður til að sæða, ég átti þarna persónulega fimm kindur og nokkuð viss um að fjórar voru örugglega að ganga en ekki  gott að segja með fosystukindina mína hún er nú dálítið undarlega stundum.  Gunni Har kýkti svo við hér líka. 

      Sigga kom svo austur aftur en karlinn orðinn eitthvað skárri.  Dóra, Bubbi og Stjáni kýktu líka við, nú og svo fórum við Sigga að kýkja á hann Ásbjörn Ask sem þau Steinar og Ragga eiga, rosaflottur stákur.  Nú svo brunuðum við á Selfoss og keyptum eitthvað af jólagjöfum en ég skutlaði Siggu svo í bæinn en hún hefði þurft að bíða svo lengi eftir strætó.

18. des 2012

        Við Bjössi skutluðumst aðeins á Selfoss í morgun karlinn fór í klippingu og ég sótti mjólk og ost. Sigga fór svo í bæinn í kvöld en kemur líklega aftur á morgun en Arnar er orðinn lasinn og hún vildi fara og hugsa um karlinn.

17. des 2012

      Reykjarvíkur ferð í dag en við Linda fórum í bæinn að kýkja í IKEA, sóttum svo Siggu sem var að klára síðasta prófið, nú svo fundum við kjól fyrir mig, og fórum svo í Kost sem mér finnst bara snilldarbúið.  Skildum svo nýja bílinn hennar Siggu eftir í bænum en tókum bílinn hans Guðna austur en Sigga ákvað að skella sér aðeins í sveitina. 

16. des 2012

         Sæðingarkindurnar fengu svo seinni sprautuna í kvöld og svo verður sætt eftir 62 tíma segja þeir sem eru búnir að skoða þetta. 

15. des 2012

        Í dag var hleypt til lambgimbrana, allir lambhrútarnir með álíka margar gimbrar nema Harry sem fékk bara eina gimbur en svo fer Karlotta til hans eftir sæðingar já og kannski forystukindin hans Gunna Har.  þóroddsstaðahrúturinn verður svo að bíða þar til heypt verður til ánna en það verður næsta laugardag. 

14. des 2012

         Aðeins snúist á Selfossi í dag, kýkti svo aðeins á Þóroddsstaði.  Annars bara verið að gera ekki neitt. 

13. des 2013

        Auður hringdi í morgun en stefnan tekin á Þjóðgarðinn með Kolla að kýkja eftir kindum.  Þau fundu sex hausa tvö lömb úr Þingvallasveit, tvær veturgamlar frá Eyvíndartungu og tvo lambhrúta frá Eyvík þannig að þetta var í raun ferð til fjár

12. des 2012

        Fór á Selfoss í morgun og sótti bílinn sem við fundum handa Siggu líkst mikið vel á gripinn en þetta er blár station bíll Toyota Corolla, bara flottur.  Skildi Raminn eftir hjá Gesti en hann ætlar að athuga með kerrutengilinn því ljósin eru eitthvað skrítin á kerrunni en bara aftaní Raminum.  Nú og svo er dollukynning í kvöld í Vaðnesi hjá henni nöfnu minni ég kýkji klárlega til hennar. 

11. des 2012

        Fór í bæinn í morgun, tengdamamma skellti sér með en ég átti tíma hjá taugalækninum mínum.  Ég verð sett á eitthvað áfram allavega fram á haust er ekki alltaf miðað við haustið með ásetning?  Við kýktum svo á Siggu og Arnar í heimleiðinni.  Nú og svo er Jonni eða Eyþór búnir að finna bíl fyrir Siggu :) kýktum á bílinn í heimleiðinni og leist svona ljómandi vel á.

10. des 2012

           Fór á Selfoss í dag með afmælisboðskortin í póst þetta er nú ekki einfalt orðið að póstleggja eitthvað, nú eru bréfin líka komin í A eða B póst en þetta hafðist nú.  Þegar ég kom svo heim var Gunni mættur í kaffi og með fullann poka af kleinum og ástarpungum ekki leiðinlegt það.   Nú það hefur gengið illa að finna bíl fyrir Siggu þetta er meira og milla allt handónýtt eða allavega mikið bilað það sem Jonni hefur skoðað fyrir okkur en þetta hlítur að finnast.

9. des 2012

         Kalt úti í dag finnst mér en ekkert svo mikið frost.  Skutlaði Þóru á rútuna á Selfoss og kýkti aðeins á krakkana á Engjó.  Adam kýkti svo við hér í kaffi annars bara rólegheitadagur í dag.

8. des 2012

        G. Har  og Ingþór kýktu við í dag, tengdamamma rölti sér niður á bæ líka og Sigga kýkti austur.  Það kom svo dýralæknir hér í dag og sprautaði 13 gibbur en það stendur semsagt til að sæða þær hér eftir rúma viku svo er bara að velja hrúta en nú verður tæpast aftur snúið.

7. des 2012

          Við Inga skutumst aðeins á Selfoss í dag þódálítil hálka og aðalega inná Selfossi bílaplönin verst. 

          Matarkúbbur á Hlemmiskeiði í kvöld, það vantaði Bigga og Mæju og Bíldsfellshjónin en það er ekki hægt að draga klúbbinn fram á næsta ár því þá fer jú allt í rugl.  Það var alveg fljúgandi hálka sóttum Klausturhólahjónin en fórum svo í gegnum Selfoss svona til að þurfa ekki að skauta niður brekkuna hjá Skálholti, við vorum svo komin heim um hálfþrjú eftir æðislegt kvöld og frábærann mat.  Takk fyrir okkur.

5. des 2012

        Fór á Selfoss í morgun, kýkti svo á hana nöfnu mína í Vaðnesi og pakkaði þurrkaða kjötinu svo það klárist nú ekki bara  um leið.  Gunni Har kýkti svo hér við í kaffinu.  Það er nú varla verandi úti hér því það er svo hált en svo fór að snjóa/slydda undir kvöld þannig að það er umhleypingaveður. 

      Prufaði að elda ferska aspasinn í gær, og vá hvað þetta er gott ég bræddi hvítlaukssmjör og bætti smá hvítlauk útí á pönnu setti svo aspasinn niðurskorinn á pönnuna og lét þetta krauma aðeins stráði svo salti yfir, þetta er bara gott.

4. des 2012

        Tysabri dagur í dag, við tengdamamma fórum suður ég reyndar byrjaði á að fara í MBF á Selfossi og sækja mjólkina og ostinn.  Við tókum Gaur með í bíltúr svo við fórum beint í Kópavoginn til Siggu og skildum hann eftir þar. Ég skildi Ingu svo eftir já Gústu frænku en fór svo uppá spítala í lyfjagjöfina.  Nú svo sótti ég Ingu í Kringluna stussuðumst aðeins í bænum, fórum líka í Kost en þar keypti ég ferskann aspas sem ég ætla að prufa að elda eins og hún Cathy gerði hér í sumar, og fórum svo til Siggu og Arnars og sóttum Gaurinn.  Nú brunuðum svo bara austur.

       Annars er ég búin að vera með dálítinn svima undanfarið og hún Jónína sem er á taugadagdeildinni  hélt að það myndi nú kannski lagast eftir lyfjagjöfina.  Fór svo í lyfjagjöfina og er svona ansi lág í blóðþrýstingi, í tveggja stafa tölu í efri mörkum og í kringum 60 í neðri.  Nú og svo er ég svo lág í sykri var 3,5 um daginn svo þau ráð sem ég hlusta helst á er að borða lakkrís :) og mikið af honum já og nammi :)

3. des 2012

        Við Inga fórum til Stínu í Haga í morgun að sækja þurrkaða kjötið og vá hvað það er gott, algjört nammi bara.  Bensi kom svo með í kringum 30 kíló í mitt hús  hugsa ég af kjötfarsi sem var gert á Böðmóðstöðum.  Inga og Linda hjálpuðu pakka að pakka en við vorum alveg ótrúlega snöggar að pakka þessu.

2. des 2012

       Skutlaðist í Vaðnes í dag með kjöt í pökkun,  Þessi pökkunarvél er algjör snilld nú og svo er líka alltaf gaman að kýkta á hana nöfnu mína. Fölöldin voru svo tekin inn um helgina þannig að nú fer að fjölga í hesthúsinu.

1. des 2012

        Fór til Stínu í Haga í dag með kjöt í þurrk.   Get varla beiðið eftir að fá að smakka.

30. nóv 2012

        Búin að vera frekar löt í dag en skaust nú samt austur á Rangárbakka og sótti hann Jaka.  Gunni Har kýkti svo við og lagði alla hnífana á fyrir mig.  Ég kýkti svo aðeins út í fjárhús en þar voru tengdamamma, Bragi og Bensi að skera kjöt.  Pakkaði svo aðeins af kjöti og skar niður gúllas þannig að nú fara allar kistur að verða rúmlega fullar en ætla að kýkja til Stínu í Haga í fyrramálið með kjöt í þurrk og til hennar nöfnu minnar í Vaðnesi að pakka smá já og svo kemur hangikjétið heim á morgun smakkaði  það sem var reykt á Böðmóðstðum um daginn og vá hvað það var gott svo það var ekki spurning um að fara með fleiri skrokka þangað. 

 

29. nóv 2012

         Fór á Selfoss eftir hádegið fattaði allt í einu að ég átti eftir að sækja um nýtt P merki en það gamla gidir til 4 des en það er voða gott að hafa þetta merki  þegar ég fer uppá spítala í lyfjagjöf þá get ég lagt í gjaldstæðin.  Nú svo G. Har við og við kláruðum að færa inn rollubókhaldið hans reyndar vantar tvær gimbrar sem hann á eftir að fá yfir á sitt nafn en þær skila sér örugglega á næstunni.  Búið að rigna dálítið í dag og núna undir kvöld er farið að snjóa en er nú ekki viss um að það endist lengi.

28. nóv 2012

        Heilmikið um að vera í dag, þannig er að við erum búin að vera að reyna að selja bílinn hennar Siggu og ekkert gengið, settum svo Braga í málið og hann sagði mér að tala við Hilmar í www.bilaborg.is en hann gæti ekki selt bílnn þá væri þetta nú eftitt.  Þetta var semsagt á þirðjudegi í síðustu viku og viti menn bíllinn bara seldur í dag, bara snilld svo ég þurfti að bruna í bæinn og kvitta á pappíra.  Fékk bílinn hans Guðna lánaðann og skildi hann eftir í bænum hjá krökkunum og tók  strætó heim.  Var komin í bæinn til að skrifa undir um 10 mín yfir fimm og náði hálfsex strætó austur, ekki lengi gert.  Posinn bilaður í strætó þannig að líklega borgaði ég ekki neitt, allavega vildi hann ekki virka hjá mér og fleirum skidist mér. Nú ég var ansi lurkum lamin þegar ég kom heim, mikill náladofi í höndum og komin í bælið um átta leitið.

     Annars fór ég í morgun í Austurkot að sækja Jaka fór svo í Ranágrhöllina en þar er Siggi Sig en ég skildi Þoku eftir þar og Jaka líka svona ef hann ditti um sölu en sækji Jaka örugglega aftur fyrir helgi en vonandi getur hann selt merina. 

27. nóv 2012

         Búin að vera að dunda við að baka í dag,  mamma og pabbi kýktu svo við en þau voru að koma úr bænum og sóttu varahlut í kaffibrúsann minn og nú er pabbi búinn að púsla brúsanum saman og brúsinn snarvirkar.  Gunni Har kýkti svo við hér í kaffi. 

26. nóv 2012

         Fór á Selfoss í dag, kom við á TR, Jötunvélar, Búnaðarsambandinu, Krónunni og einn búð þar að auki, hitti þar líka þessa fínu Íslensku tík sem heitir örugglega Hnúks Perla hef nú séð hana áður en hún er nú bara ansi lík honum Prins gamla sem var afi hennar.  Annars bara kalt úti og veturinn klárlega kominn. 

25. nóv 2012

          Kjartan Gunnar minn var svo ansi óheppinn í dag að hann velti bílnum undir Ingólfsfjallinu, bíllinn ónýtur en strákurinn heill sem er nú fyrir mestu, já og tíkin litla slapp líka en þessi hálka er svo agalega lúmsk. 

         Lísa kom í dag og sónaði fyrir okkur 16 hryssur, sjö tómar en níu fengnar.   

24. nóv 2012

          Mikið um að vera í dag, Sigga og Arnar komu austur að hjálpa til.  Það var semsagt klárða að rýja féð, svo var skorðið eitthvað af kjöti, nú og svo voru 19 rollum slátrað þannig að þetta er nú bara slatti, takk fyrir alla hjálpna öll sömul :)

23. nóv 2012

        Haldið áfram að rýja féð í dag, gekk bara ljómandi vel en ég reikna með að það verði klárað á morgun.  Skaust fyrir hádegi að sækja ullarballa en ekki má nú klikka á að hafa nóg af þeim.

22. nóv 2012

        Veturgamla féð rúið í dag og gekk bara ljómandi vel enda góður mannskapur 

21. nóv 2012

         Sótti tvo lambhrúta að Hömrum og einn að Þóroddsstöðum þannig að nú eru allir ásetningarnir komnir í hús :)   Guðni Reynir fór með mér þannig að þetta gekk bara ljómandi vel.

F:2012 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Nr/Nafn 

K/H

 

  Faðir nr/Nafn

  Móðir nr/Nafn

  Þ/F 

 

Óm/Ómf

  Lag/T

 

Ár

9

 

 

 

 45

 

36

 5

 

 2012

Hamarar

H

 

Hergill

Gonta

 

2,7

 

 

 

Haus

H+h 

B+útl

Bak

Malir

Læri

Ull

  Fætur

Samræmi

  Alls 

  Athugasemd

8

8,5

8,5

9,5

9

18

8

8

8,5

86

 

 

F:2012 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Nr/Nafn 

K/H

 

  Faðir nr/Nafn

  Móðir nr/Nafn

  Þ/F 

 

Óm/Ómf

  Lag/T

 

Ár

42

 

 

 

 46

 

31

  4

 

 2012

Hamrar

H

 

 Sokki

 Píla

 

2,2

 

 

 

Haus

H+h 

B+útl

Bak

Malir

Læri

Ull

  Fætur

Samræmi

  Alls 

  Athugasemd

8

8,5

8,5

9

9

18

8

8

8

85

 

20. nóv 2012

         Fór uppí Reykholt um hádegið að sækja ískáp sem Gunni Har hafði gefið Siggu, svo þegar ég var á leiðinni heim og fór að hægja á bílnum hér við afleggjarnann því bara hægði hann ekkert á sér svo ég fór framhjá afleggjaranum en bíllinn stoppaði svo í brekkunni uppað Kerinu, bakkaði svo bara heim að afleggjara og keyrði á 10 heim þar sem bremsurnar virkuðu ekkert.  Skildist svo að altanatorinn væri farinn og eitthvað með rafmagn og loft virkaði ekki og þessvegna virkuðu bremsurnar ekkert.  Eftir hádegið fór ég svo í bæinn að sækja efni í nýtt bútasaumsteppi og fara með teppin sem Linddís Lilja og Bjarni Anton eiga til Báru, fór líka ásamt Siggu og Arnari með bílinn hennar Siggu á bílasölu svo er bara að sjá hvort þeir gera selt hann.

19. nóv 2012

        Skaust á Selfoss að sækja hundafóður.  Aðeins hálka en ekki mikill snjór samt bara aðeins föl. 

18. nóv 2012

Orri minn, (Kerins Orri) fór svo á hundasýningu í dag og viti menn hann var valinn besti öldungur sýningar ekki leiðinlegt það til hamingju Linda og Orri :)

        Fórðum héðan um hádegið að kýkja á fé við Kaldárhöfðann, ég, Bjössi, Guðni Reynir og Gunni Har fórum héðan, Gummi Brúney og Kjartan Gunnar mættu líka og Bjössi á Björk Inga og Auður.  Það var bara skipt liði og allt sem sást náðist en það voru þrjár veturgamlar og tvö lömb frá okkur og svo einn lambhrútur frá Efra Apavatni.  Ekkert sást í kringum Búrfellið ja nema rjúpnaskyttur.  Okkur var svo boðið í kaffi og pönsur í Kaldárhöfaða til Onnu Soffíu en ég hef líklega ekki komið þarna inní bæ í rúm þrjátíu ár, verð nú að segja að ég skil ekki alveg hvernig allir fjallmenn komust þarna inní eldhús á fjallferðardaginn en í minningunni var nóg pláss :) takk fyrir okkur.

17. nóv 2012

       Klárað að rýja lömbin í dag allaveg þar til fleiri lömb mæta heim.  Svo var farið að leita að folaldinu og hrossunum tveim sem vantar, hrossin fundust en ekki folaldið þetta er bara ömurlegt er nú ekki mjög bjartsýn en auðvitað vonar maður að það verði bara komið í hópinn á næstu dögum, en það er alveg vonlaust að finna það í hrauninu held ég. 

16. nóv 2012

        Skutlaðist á Selfoss eftir hádegið og sótti Bjarka en það á að ragast í hrossunum sem eru hér úti í hrauni, taka folaldsmerarnar heim og tveggja vetra tryppin eiga að koma heim líka en þau veturgömlu voru tekin heim um daginn.  EFtirr fyrstu skoðun vantaði eina skjótta meri og folaldið hans Kjartans, svo kom sú skjótta og meri frá Adam með henni, þá var skannað aftur og nú vantaði folaldið og fimm hross, þessi fimm fundust en ekki folaldið, enn vantaði samt fjögur hross en við fundum tvö af þeim þannig að á morgun verður leitið af þessum tveimur og vonandi veður folaldið með þeim.  Brúney og strákarnir komu svo og byrjuðu að rýja lömbin og gekk bara vel þetta veður svo klárað á morgun. 

15. nóv 2012

      Gunni Har kýkti hér við í dag, nú og svo kom hann Kjartan Gunnar hér og kláraði að járna fyrir mig og Dóra.  Annar fór svo að snjóa hér í kvöld og allt orðið hvítt.  Mamma og pabbi kýktu líka við hér þannig að það er alltaf smá rennerí á fólkinu.  Ég skaust svo út í leikskóla og sótti Jaka, hafði nú smá áhyggur af því að ég fengi barnið ekki afhent en svo voru nú þarna konur að vinna sem þekktu mig svo þetta slapp nú allt til. 

14. nóv 2012

        Rigning og heilmikil hálka í morgun, Bjössi og tengdpabbi fóru að Fossi í dag og sóttu kálfa.  Nú Kjartan Gunnar kom svo seinnipartinn að járna fyrir mig og Dóra en ég á þrjár hryssur sem þarf að járna og Dóri eina hryssu og graðhestinn.  Annars er bara heilmikið að gera hjá Dóra hann má varla vera að því að fara í skólann en hef nú grun um að það sér bara af því að það er meira gaman í vinnunni en skólanum en þetta púslast bara rosalega vel saman hjá honum.  Guðni Reynir er aftur búinn að vera í sauðfjárslátrun í SS það er að segja í réttinni en nú er það búið en Einar stöðvarstjóri plataði hann til að vera eitthvað áfram í stórgripunum sem er bara mjög gott.

13. nóv 2012

       Sótti lyf í folaldið á Selfoss í morgun og gaf folaldinu, það er nú lítið að braggast og komið með dálítinn hita eða 39.7°C en gáfum því pencilín og það braggast nú aðeins svo er bara að sjá hvað það gerir. 

12. nóv 2012

        Snérist aðeins á Selfossi í morgun, fór svo á Engjó og tók Bjarka og Hjalta með og skildi þá eftir í Klausturhólum til að hjálpa til við rúninginn þar, en annars bara rólegheit.  Folaldið undan Nös er klárlega eitthvað veikt og Svenni kom og kýkti á það seinnipartinn, niðurstaðn er fitubólga hvað sem það nú er, það fékk pencilin, selen og eitthvað af vítamínum já og kannski eitthvað fleira en það er bara ansi lélegt vonandi braggast það nú samt.

11. nóv 2012

        Folaldasýning í morgun bara gaman nú og hann Bjarki okkar Dóra fékk meira að segja þriðja sætið ekki slæmt það, en þetta var bara flott og mikið af folöldum nú og svo var kaffi og með því að venju ekkert smá flott alltaf hreint í Hólmarshöllinni. 

 10. nóv 2012

        Annar í sviðaveislu í dag, en veislan tókst líka svona rosalega vel fullt af fólki og bara gaman.  Þegar farið var úr í fjárhús í morgun var ekkert af fólki eftir ;) en það fannst hringur, ónýtur sími sem Bjarki á, heill sími, púðurdós já og gleraugu, en skilst að það vanti samt einn síma og lyklakippu en það gæti nú komið í leitirnar fyrir rest hver veit.  En það er semsagt bara púðurdós og gleraugu sem enn eru óskila hér.  Þóra fór svo suður í dag, Sigga og Arnar líka og Óðinn, Guðrún og Styrmir en Bjarki og Kjartan Gunnar eru nú samt eftir hér í kotinu ásamt heimafólki.

9. nóv 2012

Arnar á afmæli í dag til hamingju með daginn þinn

        Skaust á Selfoss í dag að redda svona restum allt að verða klárt fyrir sviðaveisluna.  Hjalti Pétur, Bjarki og Ási komu hér uppúr hádeginu og skrældu 40 kg af rófum og voru bara snöggir að því.  Sigga og Arnar komu svo seinnipartinn með kartöflumúsina þannig að nú fer þetta allt að vera klárt.  Veislan byrjaði svo um átta leitið og tókst líka svona ljómandi vel eins og alltaf takk fyrir komuna allir.

8. nóv 2012

         Var að hugsa um að fara í bæinn en slapp við það :)  sótti svo Þóru á rútuna nú og svo er sviðaveislan á morgun :)

6. nóv 2012

        Fór í Tysabri í dag, tengdamamma fór með mér í bæinn við fórum svo aðeins í Hagkaup og biðum svo eftir Siggu sem fór í klippinu en svo var stefnan tekin að heimsækja Báru og co en Gróa var í bænum nú og svo hittum við Svenna líka mikið gaman að kýkja á þau. takk fyrir okkur.  Þegar ég var svo komin heim fór ég á dollukynningu til hennar nöfnu minnar í Klausturhólum en Maren er farin að kynna dollur :) bara gaman að drífa sig. 

4. nóv 2012

         Fengum hringinu í morgun úr Mjóanesi og þar áttum við tvílembu, með hrút og gimur ekki slæmt það :)  Eftir hádegið var svo hringt úr sumarhúsahverfinu við Álftavatn, og þar var líka tvílemba þannig að nú vantar bara fimm ær með lömbum á svo eftir að fá frekari uppl hjá Guðna Reyni hvað vantar af stökum lömbum.  Nú svo kom sláturbíllinn og sótti það sem átti að fara í sláturhúsið.  Nú auðvitað lentu gimbrarnar í líflambadilknum enda mjög fallegar gimbrar.

3 nóv 2012

        Kertúnið smalað í dag, og öll lömb tekin heim og þær ær sem eiga að fara í sláturhúsið.  Nokkur lömb svo keyrð uppá tún aftur en þau fara svo í heimaslátrun.  Það stóð nú til að setja rúmlega 50 gimbrar á og viti menn þær urðu 75, enda ansi fallegar og ómögulegt að velja á milli.

      Sigga, Arnar og Gaur komu svo heim í dag mikið gaman að sjá þau.  Gaur voða kátur að komast svo aðeins í fjárhúsið :)

2. nóv 2012

       Fór í morgun til hennar nöfnu minnar í Vaðensi að pakka folaldakjötinu, fór svo á Selfoss en var komin heim uppúr hádegi.   Brjálað veður hér seinnipartinn í dag en sjálfsagt sem mun betra en víða annarstaðar, eitthvað fór nú að losna af hýsinu en Bjössi heldur að það sér loftkælingin en það verður skoðað nánar þegar veðrið lagast.

1. Nóv 2012

        Brunaði í bæinn í morgun en þurfti að ná í poka til að vakúmpakka folaldakjötinu, fara með saumavélina í viðgerð og sækja poka í kaffivélina ekki má maður nú klikka á því.  Í bakaleiðinni kom ég svo við í SS og sótti folaldakjötið.  Nú Bragi kom svo hér og úrbeinaði folaldið fyrir mig, Jonni og Bensi komu svo líka að hjálpa til þannig að þetta er allt að gerast og ekkert smá magn af kjöti af þessum folöldum.

31. okt 2012

Tengdapabbi á afmæli í dag til hamingju með daginn þinn

         Fór í þessa hefðbundnu krabbameinsskoðun í Laugarás í morgun og keyrði í gegnum Selfoss á leiðinni heim en hér heima var snjófjúk þegar ég fór en alveg autt fyrir austan Borg, svo var alveg autt niður Skeið en aftur aðeins hvítt á Selfossi.  Þetta tók nú ekki upp hér í dag en samt varla hægt að kalla þetta snjó.

      Það er svo verið að steypa úti í fjárhúsi alltaf verið að gera og græja. 

30. okt 2012

       Bjössi og tengdapabbi fóru með tvö folöld í sláturhús í dag og sóttu svo tvo kálfa í Eyði Sandvík, ég skaust á Selfoss og sótti kálfafóður og verslaði aðeins inn en gleymdi örugglega eitthverju. 

28. okt 2012

       Jói var að smala í dag en við vorum nú að vonast til að fá fé úr Töglunum en ekki neitt en samt slatti úr Grímsnesinu, 17 stykki skildist mér.  Það munar um hverja skjátuna sem næst. 

27. okt 2012

         Enn verið að gá að fé en við finnum bara ekki nokkra skjátu.  Fénu var smalað heim í dag og farið yfir féð en það vantar 7 ær með lömbum nú og sjálfsagt eitthvað af stökum lömbum.  Sláturærnar teknar frá en þær eru rúmlega þrjátíu.

26. okt 2012

Tengdamamma stötug í dag til hamingju með daginn þinn

        Við Bjössi, Jonni og Linda fórum í bæinn í dag byrjuðum á að fara til Hödda og Möggu og fórum svo á Hótel Borg þar sem tengdó gistu en þau buðu okkur svo út að borða á Grillmarkaðinn ekkert smá góður matur þar takk kærlega fyrir okkur.  Vorum svo komin heim um hálfeitt.   Nú Guðni Reynir er svo aftur komin með sláturbólu ekki gott það og var sendur í Laugarás en þar var brennt fyrir og hann á að mæta aftur á mánudaginn. 

      Það kom svo sláturbíll hér í dag og tók síðustu hrútana en það voru um 40 stykki, bara fín meðalvigt og gerðin ríkur upp en set inn endanlega niðurstöður þegar síðustu lömbin verða farin en það er slatti af gimbrum sem eiga eftir að fara. 

25. okt 2012

         Búin að vera að breyta og mála í dag, en klára vonandi að koma þessu í þokkalegt stand á morgun.  Smöluðum svo saman á Kertúninu í dag en það á að senda ca 40 lambhrúta í SS í fyrramálið.

      Gunni kýkti við í kaffi í dag annars bara allt við það sama.

24. okt 2012

       Fórum að Efra Apavatni í dag að sækja tvílembu, Gummi átti svo tvílembu líka sem við tókum með okkur í leiðinni þannig að þetta er nú smá saman að tosast.  Við Inga drifum okkur svo í bæinn fórum í Rúmfatalegarinn og snérumst smá í bænum og fórum svo til Siggu en Gaur er á leið í pössun til Siggu reyndar spurning hvort þeirra er að passa en Sigga er mikið heima að læra og finnst ágætt að hafa Gaur hjá sér nú og svo þegar Arnar er búinn að vinna fara þeir út að leika sér saman.

23. okt 2012

         Fór á Selfoss að stússast í morgun alltaf eitthvað sem vantar.  Nú Bjössi og tengdapabbi fóru svo að sækja hana Jóru hans Felmmings en hún er búin að vera hjá Spuna í Vesturkoti og var víst með 14 daga fyl 1 okt ekki leiðinlegt það. 

22. okt 2012

         Byrjaði á því í morgun að plata Kjartan Gunnar og Bjarka til að fara með mér með tvo línubrjóta í SS en þeir náðust í þjóðgarðinum á Þingvöllum annar úr Þingvallasveit og hinn úr Borgarfirðinum held ég.  Rúntuðum svo aðeins um 5. og 6. braut til að kýkja eftir fé en sáum ekkert en Bjarki sá nú samt ull á girðinu svo það hefur verið skjáta á 6. braut en líklega vonlítið að finna hana nema geta farið þegar sést til hennar.  Bólusettum svo lambhrútana sem komu að vestan en þeir eru í góðu yfirlæti inni.

      Eftir hádegið var svo slátrað slatta af lömbum, G. Har, Bnesi, Bjössi, tengdapabbi, Bjarki og Kjartan Gunnar voru allir að hjálpa til takk fyrir hjálpina þetta gekk bara rosalega vel.  Annars ekkert að frétta af fé en það hlítur nú að koma meira bráðum. 

21. okt 2012

         Þjóðgarðurinn smalaður í dag, gekk bara ágætlega held ég náðust örugglega um 50 hausar og sjálfsagt góður slatti samt eftir en ekki gott að segja.  Við fengum tvær ær og þrjú lömb en vantar eitt lamb úr þessum hóp en fengum samt stakt lamb þar sem rollan og hitt lambið voru komin.  Fengum svo líklega úr Efstadal eina kind en sú átti hrútlambið sem kom á Ketilvöllum um daginn og svo gemsi með lamb í Laugardalshólum þannig að þetta smá tosast.

20. okt 2012

         Við Gunni Har fylgdum Dóru á Stærribæ til grafar í dag.  Sigga og Arnar komu svo í heimsókn en voru farin aftur í bæinn þegar við komum að vestan, en brunuðum svo beint vestur ásamt henni Brúney og fórum að Gaul en þar var hrútadagur í gangi,  alltaf jafngaman að koma vestur á hrútadaginn þeirra.  Sótti þar forystuhrútinn minn sem ég átti pantaðinn í dag og fékk svo flekkóttann frá Hjarðarfelli.  Fórum svo heim að Hofstöðum og fengum tvo hrúta þar á eftir að fá dómana á þeim, en set inn hér dómana á þeim flekkótta.

F:2012 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Nr/Nafn 

K/H

 

  Faðir nr/Nafn

  Móðir nr/Nafn

  Þ/F 

 

Óm/Ómf

  Lag/T

 

Ár

466

 

 

44 

 

30

  4,5

 

 2012

Lukku-Láki

 

 Snær

Magnad 

106

 

1,8

 

 

 

Haus

H+h 

B+útl

Bak

Malir

Læri

Ull

  Fætur

Samræmi

  Alls 

  Athugasemd

8

8

8,5

9

8,5

18

7,5

8

8,5

84

 

 

       Karlarnir hér heima voru svo í fjárstússi smöluðu kertúnið og tóku úr sláturlömb, þeir fóru svo uppað Kaldárhöfða og ætluðu að ná hóp sem er þar á röltinu en þær voru nú ekki á þeim buxunum en Bjarkarsvipur var nú á sumu fénu og rauk það bara í átt heim til sín.  Guðni Reynir þóttist svo sjá þarna skjátu sem kom heim í fyrstu rétt en hún hefur greinilega stungið af aftur með hrútinn sinn svo það fækkar hægt því sem finnst svona allavega ef þær strúka jafnóðum.  

19. okt 2012

        Við Bjössi fórum í morgun uppað Ketilvöllum og sóttum þar lambhrút frá okkur, tvílembu frá Vaðnesi með tvo hrúta og svo veturgamlann hrút frá Auði en sá var útigenginn.  Ég fór svo í Vaðnes og fékk kaffi hjá Helgu og skilaði af mér tvílembunni.  Fór svo eftir hádegið á Selfoss að versla og snúast smá.  Aftur heim og nú smúlaði ég pallinn á  bílnum fyrir verðina vestur en Bjössi var búinn að þrífa pallinn en svo þurfti að sækja féð í morgun svo það þurfi að smúla aftur.  Fór svo á Selfoss og fékk vottorð á bílinn, og enn og aftur þurfi ég svo að fara á Selfoss nú að sækja Dóra en hann var að koma frá Hólum.

     Við fengum svo fimm hausa úr Búrfellinu sem Gummi og co veiddu, rolla og tvö lömb innan af afrétt og gemsi með lambi sem átti að vera hér austur í girðingu. 

16. okt 2012

        Bjössi, Jonni, Kjartan Gunnar og Bensi fóru að smala í morgun, tengdapabbi skutlaði þeim inná fjöll.  Við Gunni fórum svo um hádegið að bjarga Kolla sem var með rúmlega fulla kerru en við hittum á hann við Vörðuna þar sem hann var búin að taka eina skjátu af kerrunni og binda aftaní svo það væri rýmra á kerrunni og beið bara, en þetta voru 18 hausar sem hann var með þarna.  Við tókum Vaðensféð sem voru 8 hausar fórum svo niður í Kringlumýri og hjálpuðum Bensa og Kjartani að reka inn rollu og hrútlamb frá Kolla, tvær frá Siggu á Apavatni og lambhrút úr Klausturhólum. Brunuðum svo niður í Vaðnes með hópinn og skiluðum af okkur og tókum Brúney með okkur en nú lá leiðin að Ketilvöllum og sóttum þar lambrollu frá Vaðnesi, fórum svo aftur í Kringlumýri og tókum lambið sem kom innanað í gær frá Vaðnesi og tókum svo Klausturhólalambið og eina skjátu sem ákvað í nótt að gefa upp öndina í réttinni.  Skutluðum þeirri dauðu í Eyvík þar sem er stutt í gáminn, fórum svo í Klausturhóla með þeirra lambhrút en Kjartan Gunnar beið svo hér uppá vegi með Veðneskerruna og tók restina af´fénu heim já og Brúney fór með honum.  Fór svo um túnið þegar ég kom heim og allt í góðu þar.

15. okt 2012

        Hæringur dó í morgun þetta er bara ömurlegt en Svenni dýralæknir kom í dag og skoðaði hann og fann hvað hafði verið að og liðurstaðan sú að þó svo hann hefði farið í skurðaðgerð hefði það ekki getað bjargað klárnum, á samt eftir að fá þetta aðeins nánar hvað var en hann drapst úr lífhimnubólgu held ég og fékk hana út af kýli innvortis og eitthvernir samgróningar voru held ég líka í gangi en orsökin ekki klár held ég en á eftir að heyra í Svenna.

       Fórum í morgun á tveimur bílum með tvær kerrur inná afrétt, byrjuðum að ná rollu með lambi á Báskógarheiðinni (sýnist á korti að það sér allavega nafnið á þessum slóðum)  Niður á Hofmannaflöt smöluðust svo tvö stök lömb, tvær einlembur alveg snælduvitlaus önnur þeirra, og svo þrjár veturgamlar.  Næst var rekið að í Ingólfshólfi og svo teknar þrjár við Gjábakka í heildina voru þetta 26 gripir þar af 6 frá Mjóanesi.  Eina sem eftir varð voru tvær kindur ansi mikið ofarlega í Björgunum veit ekki alveg hvort þær vilja mæta á morgun.

14. okt 2012

          Heiðarsmalamennska í dag, og við Guðni og Gunni fórum hér í Ásagarðslöndin en fundum ekkert.  Miðengismenn smöluðu niður í Klausturhóla og næstum allt rollur frá Björk sem búið var að taka undan, ein tvílemba frá Björk og hrútur og sauður frá Klausturhólum en rest semsagt frá Björk man nú ekki hversu margar rollurnar voru en eitthvað um 45 hausar ef ég man rétt.

     GR ansi fúll yfir að fá ekkert fé svo hann og Hjalti Pétur fóru út í hraun og fundu eina rollu með gimbralambi sem hann vissi af.      Þegar við svo komum hér heim var Hæringur aftur orðinn veiku og nú enn veikari en áður en Svafa kom og gaf honum hitalækkandi og sýklalyf en þetta lítur ekki vel út en klárinn var bara mjög sprækur í morgun frekar skrýtið allt saman.

      GR kættist nú samt hér í kvöld þegar hringt var og honum sagt að það væru að koma sex kindur frá Miðengi og Vaðnesi sem hefður verið í Eyvindartungu, þeir feðgar ruku af stað út á Borg að sækja féð sitt en viti menn af þessum sex áttum við bara eina og hana vantaði nú eiginlega ekki því hún mætti aldrei í fyrrahaust en lambið hennar kom í Eyvindartungu í fyrra, ekkert lamb fengum við nú samt með henni :( er Vaðnes átti þarna fimm hausa sem var nú ljómandi gott, en þetta var nú ekki til að bæta skapið hjá Guðna því hann átti nú von á að við ættum allavega helminginn af fénu fyrst við vorum látin sækja

13 okt 2012

           Það var farið í Gíslagirðinguna þegar Guðni Reynir var kominn heim úr vinnunni í dag, þar náðist ein tvílemba og stakt lamb en það sást svo ein rolla hér í hrauninu með gimbralambi sem Guðni Reynir ætlar að eiga til góða ef illa gengur að finna fé. En svo sást ein rolla með lambhrút líklega í Ásgarðslöndunum en líklega hefur sú farið út óborin en leitum að henni á morgun áttum nóg með að ná þessu í Gíslagirðingunni.

        Fórum svo í mat til Siggu og Arnars í kvöld, strákarnir fóru með okkur og mikið rosalega var nú gaman og maturinn góður, fengum bæði grillað lamb og naut, kartöflur sósu og þetta líka rosalega góða salat takk fyrir okkur krakkar. 

12. okt 2012

         Lítið um að vera í dag, Hæringur vonandi orðinn alveg góður og ég mátti taka æðarlegginn úr honum í kvöld.   Annars skaust ég á Selfoss í morgun og sá einn Árvirkjabíl á hvolfi rétt ofan við Öndverðarnes, ótrúlega lúmsk þessi hálka.    Hér kýkti svo kona í heimsókn með tík sem er úr sama goti og Skvísa, mér brá nú aðeins því ég skildi ekki alveg hvað þessi kona var að gera með Mímir hennar Hönnu Kötu, rosalega eru þau nú lík enda alsystkin.

       Held að það eigi svo að kýkja í Gíslagirðinuna á morgun og kannski í sumarbústaðarlöndin og sjá hvað finnst. 

11. okt 2012

          Gunni Har kýkti við í morgun og ætlaði að skoða dómana á hrútunum en ég gat ómögulega fundið blöðin sama hvað ég snéri öllu við en ég vissi svosem hvar ég hafið látið þau en viti menn fann þau svo í kvöld þegar ég sá Guðna Reyni lauma þessu á sinn stað en þá hafði þetta verið í vasa hans :) 

        Fór eftir hádegið með henni Hönnu Kötu á Selfoss til Kristínar og Nonna að hjálpa henni með kaffi en kistulagningin hennar Dóru á Stærri Bæ var í dag og kaffi hjá Kristínu og Nonna.

       Í gærkvöldi þegar Bjössi fór um túnið þá var bara allt í góðu en svo þegar hann fór í morgun þá var ein rolla afvelta á miðju túninu og helv tófan búin að éta mikið af hausnum á henni þannig að ekkert mark sást og merkið alveg horfið já og bara allt skinn af hausnum, rollann auðvitað dauð en svosem ekki víst að hún hafi verið það þegar tófan mætti á svæðið. Bara ömurlegt.

10. okt 2012

          Fór eftir hádegið og heimsótti Hönnu Kötu allt of langt síðan ég kýkti í kaffi, kom svo við í Klausturhólum í bakaleiðinni með bútasaumsteppið til hennar Arndísar litlu hún er nú meiri gullmolinn.

9. okt 2012

        Brunaði í bæinn í morgun byrjaði reyndar á því að koma við í mjólkurbúinu og sækja mjólkina mína svo til Siggu með smotterí og þá uppá spítala í Tysabri.  Þetta gekk allt ljómandi vel, flýtti mér svo austur og fór með fjóra veturgamla hrúta og tvo lambhrúta út að Björk en þar voru þeir Guðmundur og Ágúst að dæma.  Lömbin hennar Gunnu voru búin í dómi og bara flott nú og Bjarkarlömbin flott að vanda hrútarnir okkar komu líka bara ágætlega út bara mjög sátt með þá, báðir gemsalömb  

F:2012 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Nr/Nafn 

K/H

 

  Faðir nr/Nafn

  Móðir nr/Nafn

  Þ/F 

 

Óm/Ómf

  Lag/T

 

Ár

37

 

 

 

 52

 

32

 4,5

 

 2012

 

Kollóttur

 

Víðir

Hraunháls Snegla

105

 

2,2

 

 

 

Haus

H+h 

B+útl

Bak

Malir

Læri

Ull

  Fætur

Samræmi

  Alls 

  Athugasemd

8

8,5

9

9

9

18

7.5

8

8,5

85,5

 

 

 F:2012 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Nr/Nafn 

K/H

 

  Faðir nr/Nafn

  Móðir nr/Nafn

  Þ/F 

 

Óm/Ómf

  Lag/T

 

Ár

23

 

 

 

 48

 

32

  4,5

 

 2012

 

H

 

Vafi

Bjarkar Evra

107

 

2,7

 

 

 

Haus

H+h 

B+útl

Bak

Malir

Læri

Ull

  Fætur

Samræmi

  Alls 

  Athugasemd

8

8

8,5

8.5

8,5

17,5

7,5

8

8,5

83

 


     Veturgömlu hrútarnir fengu svo á bilinu 82-84,5 stig.

8. okt 2012

        Fór í morgun með útlendingana uppað Keri og svo að Stóra Hálsi til Ásdísar að kýkja á lopapeysur.  Seinniparturinn af deginum fór í dýralæknisstúss og að ná sama hrútunum sem eiga að fara á hrútasýninguna á morgun.

7. okt 2012

          Fórum inná afrétt í dag að leita að fé, skyggnið misgott en náðum þó slatta af fé en hefði nú mátt vera meira innfrá en það var bara ein tvílemba í Tröllhálsinum frá mér og svo rolla með lamb við Ingólfshólf frá Kolla annar var hér nær byggð.

 6. okt 2012 

       Sigga kýkti heim í dag alltaf gaman að fá hana í heimsókn.  Kom með sá bút í teppið sem ég er að sauma svo nú get ég farið að klára það.  Auður á Hömrum fór svo inná afrétt og var búin að fylla kerruna svo við fórum inná Hofmannaflöt og sóttum þar slatta af fé en við áttum eina tvílembu þar en sú var inn við Söðulhóla. 

3. okt 2012

Mamma á afmæli í dag til hamingju með daginn elsku mamma.

          Fór í bæinn í morgun en átti tíma hjá Hauk taugalækni.  Mamma og tengdamamma skelltu sér í bæinn með mér og fóru í búðarráp.  Nú ég fór á meðan til Hauks sem var búinn að fá niðurstöður úr MRI, fólkið sem las úr myndunum sá að það var ýmislegt að gerast í hausnum á mér, svo það var víst fundur og fengnir sérfræðingar sem lásu úr þessu líka og niðurstaðan er sú að það er bara ekkert að gerast í hausnum á mér allavega voða lítið þá, sem þykir víst gott, litlar eða engar breytingar og engar bólgur svo ég get nú verið kát með það og verð áfram á Tysabri allavega fram á næsta ár eða ný fjárlög ríkisins, ekki það að mér skilst að kostnaðurinn á Gylenia og Tysabri er nokkurnveginn sá sami en ég er bara sátt við að vera á Tysabri. Fór svo í Virku að ná mér í búta í bútasaumsteppi sem verður bara flott.  Komum svo aðeins við hjá Siggu nú og svo brunað í Bónus í Hveró, skotist í búðina Öll með tölu sem er á Hellu og pakki sóttur handa Dóra í leiðinni þannig að það var heilmikið flandur á okkur.

2. okt 2012

         aðeins stússast á Selfossi annars  bara lítið um að vera. Kjartan Gunnar kýkti aðeins í kaffi og G. Har kýkti líka við.

1. okt 2012

         Sláturbíllinn kom í morgun og sótti lömbin.  Meðalþyngdin var 17.1 kg úr þessum hóp sem gerir í heildina 16.9 fyrir tímabilið.  Gerðin núna var 8.07 en fyrir tímabilið 7.95 og fitan rt 6.64 en heildarfjöldinn er 166 lömb.  Þetta er mikið betra en í fyrra en auðvitað eigum við eitthvað af lömbum sem eiga eftir að fara í sláturhús.

      Fengum svo tvær ær og eitt lamb sem línubrjóta en þau komu að Skarði í Lundarreykjadal.  Það þarf þá ekki að leita að þeim en þetta er nú frekar spælandi allt mislitt og spari eins og gengur hjá okkur Gunna Har 

30. sept 2012

          Túnið smalað og sláturlömb tekin frá.  Féð sett svo aftur í túnið og restin af lömbunum uppá Kertún en það er ansi mikið gras þar.  Í fyrramálið kemur svo sláturbíllinn en það voru 123 lömb tekin frá í sláturhús. 

29. sept 2012

          Mikið að gera í dag, byrjaði á að fara með eitt rúm á Selfoss, náði svo í Dóra, þá fór ég og Dóri og Guðni Reynir út í Ásgarð að sækja kindur náðum fimm á túninu í Ásgarði og svo tvílembu í Ásunum allt frá okkur.  Fórum svo heim að borða en eftir hádegið var haldið að Efri Brú ég, Gunni Har og strákarnir fórum saman í bíl með hundana en á leiðnni þangað við Ásgarð voru aðrar fimm kindur sem við náðum allar frá Klausturhólum, einni tókst meira að segja að velta mér ofaní skurð en það gerði nú ekkert til ég sleppti kvikindinu nú ekki.  Svo fórum við að Efri Brú vorum send fram og til baka en þegar við vorum á leiðinni út ú refahús tókst Bensa að festa bílinn sinn þar sem fjórhjóladrifið virkaði ekki.  Ég var á L-200 bílnum og gat dregið bílinn hans upp og tók svo kerruna.  Í bakaleiðinni festi ég svo bílinn og hann fór alveg á kaf, Bensa bíll átti ekki roð í að ná honum en svo kom Bjössi á Björk þarna en honum tókst heldur ekki að losa bílinn svo kerran var sett aftaní Bjössa bíl og farið niður að fjárhúsi en þar biðuð Guðni Reynir, Dóri, Bjössi og Jonni með hóp af kindum, þetta passaði á kerruna, við áttum eitt lamb, Mjóanes eitt lamb, ein kind úr Eyvík, og restin frá Klausutrhólum, Björk og Apavatni. 
       Kristín kom svo með stóra bílinn þeirra og nú tókst að ná L-200 upp en það er spil á stóra bílnum og þannig náðist hann.  Nú þá var það Kaldárhöfði en þar náðust níu kindur allt frá Klausturhólum og Björk en sex urðu eftir á vísum stað en þær voru frá Klausturhólum og Gummi sækir þær á morgun.  Bjössi á Björk hafði brunað að Björk með allt féð og kom svo aftur og sóttu restina af fénu og hrossin.    Fyrst var svo komið í Miðengi og hrossin skilin eftir, næst var farið að Klausturhólum en þar hafi tekist að smala helling af fé, þó ekki mikið af ókunnu en smá reytingur.  Þá fórum við að Björk og Gummi kom með óskilin þangað, hver tók svo sitt fé og brunað heim.  Fattaði ekki fyrr en í myrkri að ég hafði ætað að sækja tvær hryssur og allt of seint að hringja svo ég hringi bara í fyrramálið og fæ að sækja þær þá.  

28. sept 2012

          Lítið um að vera í dag, ætlaði að skutlast á Selfoss en það var svo leiðinlega mikið rok að ég frestaði því til morguns, en nóg svosem að snúast á morgun en maður tekur bara daginn snemma. 

27. sept 2012

        Lítuð um að vera í dag, rollurnar snúa meira og minna rétt á túninu sem betur fer.  Gunni Har kýkti svo í kaffi, og svo kom hún Perla í heimsókn mikið gaman að fá hana.  Nú hugsalega er  bíllinn hennar Siggu að seljast það væri nú ekki leiðinlegt.

26. sept 2012

         Bjössi og Reynir fóru að Fossi í dag að sækja kálfa og komu heim með fimm kálfa, ekki slæmt það.  Nú ég skaust svo á Selfoss með pappíra á fullt af stöðum eins og gengur og kýkti svo á vistina á hana Perlu, rosa fín íbúð sem hún er með.  Nema hvað netið er ekki komið í gagnið sem er nú frekar skrítið á skólavistinni. 

25. sept 2012

          Fór í bæinn í dag í MRI voða gaman að venju ;) komst að meira að segja fyrr en ég átti að mæta því sú sem átti að vera á undan mér mætti ekki.  Heppin ég.  Inga fór með mér í bæinn og við kýktum svo á Siggu og Arnar áður en við fórum austur.  ÉG fór svo eina ferð um túnið og allt í góðu lagi.  Bjössi fór í Klausturhóla og sótti eina rolluskjátu og lamb en lömbin undan rollunnni komu í Klausturhólarétt og rollann sem átti lambið sem kom núna í Klausturhólum kom í heimasmalamennsku úr Austurgirðingunni.

24. sept 2012

           Ljómandi veður í dag. Bjössi fór um túnið í morgun og snéri einni afvelta við, ég fór svo um miðjann dag og snéri annari afvelta við, en í kvöldferðinni snéri allt rétt sem við sáum.   Dóra, Bubbi og Stjáni kýkti hér við í dag.  Nú og seinnipartinn þá fór ég að Ketilvöllum en þar áttum við rolluskjátu með tvö lömb en það hafið verið keyrt á annað lambið sem drapst.  Alltaf leiðinlegt þegar svoleiðis er en þetta var þessi fína botnótta gimbur en  held að bíllinn hafi nú sloppið nokkuð vel en ökumaðurinn lét vita að Ketilvöllum en það eru nú ekki allir ökumenn sem láta vita.

23. sept 2012

            Rólegheitadagur í dag en þó var farið uppað Búrfelli og níu kindur sóttar í kringum Ásana, vorum svo heppin að Kjartan Gunnar og Hjalti fóru með okkur en Dóri og Bjarki sáu um að horfa á boltann á meðan og senda strákunum reglulega uppl. um stöðuna.  þetta smá tosast en held að það séu ca 35 hausar af fullorðnu fé sem vantar en um næstu helgi verður túnið smalað og um 150 lömb send í sláturhúsið.  

22. sept.2012

            Byrjað á að smala hraunið og gekk bara svona ljómandi vel.  Ég dundaði mér við að útbúa hádegiðsmat og gera klárann kvöldmat á meðan.  Ca 160 ær komu úr Hrauninu sem er nú bara nokkuð gott.  Hér voru svo um 20 manns í hádegismat en ég útbjó kjúklingasúpu að hætti hússins en súpan getur nú bara ekki klikkað.  Eftir hádegið var svo farið í Austurgirðinguna og hún smöluð, byrjað á Búrfellsmýrunum hér fyrir neðan veg.  Þetta gekk líka ljómandi vel en það komu tæpir 60 hausar þaðan.  Ég, Gunni Har, Daddi og Guðni vorum að lesa á númerin af fénu úr hrauninu á meðan hinir smöluðu.  Vorum búin að því og náðum að fá okkur smá kaffisopa áður en næsta holl byrjaði.  Mannskapurinn borðaði svo Lasange úti í hesthúsi þegar þetta var allt afstaðið, líklega aðeins fleiri í kvöldmat en í hádeginum.  Það ringdi alveg ótrúelga lítið á meðan var verið að smala sem var nú alveg ágætt.

21. sept 2012

          Fór að Selfoss í morgun að snúast aðeins, engin smá rigning.  Eftir hádegið fórum við Gunni með kjöt í vinnsluna á Böðmóðstöðum til Huldu og Jóns.  Þegar við komum svo heim voru karlarnir farnir út í Gíslagirðinu og hún smöluð svo það sé nú ekki eftir í fyrramálið, gekk ljómandi vel bara.  Sigga og Arnar komu svo heim í kvöld en Arnar ætlar að smala á morgun en Sigga að hjálpa mér og kýkja svo í bók hef ég grun um.  

20. sept 2012

          Fór á rúntinn í morgun byrjaði á að fara að Arnarbæli með markaskrá og smá glaðning handa Árna en hann var að girða svo ég hitti ekkert á hann.  Fór svo að Þóroddsstöðum með markaskrá og það var nú í raun ferð til fjár því það var nýbúið að stiga lömbin á bænum og ekkert smá flott verð ég að segja, falaði svo besta hrútinn af Bjarna sem var ekkert mál svo þar er kominn fyrsti ásetningshrútur ársins með 87 stig ansi flottur hrútur þar á fer.  Reyndar er einn hér heima kollóttur sem er kannski fyrsti ásetningur ársins en hann er ekkert stigaður ennþá.  Held að ég hafi skrifað þetta nokkuð rétt hjá mér en gleymdi alveg að horfa í hvað hann var þungur.  Ég fylli svo bara í þetta þegar ég veit þetta betur.

F:2012 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Nr/Nafn 

K/H

 

  Faðir nr/Nafn

  Móðir nr/Nafn

  Þ/F 

 

Óm/Ómf

  Lag/T

 

Ár

39

 

 

 

 

 

36

  5

 

 2012

Þóroddsst

H

 

Norðanrhútur

 

105

 

4,5

 

 

 

Haus

H+h 

B+útl

Bak

Malir

Læri

Ull

  Fætur

Samræmi

  Alls 

  Athugasemd

8

8,5

9

9.5

9

18,5

8

8

8,5

87

 

 

      Nú þegar heim var komið tóku við skúringar og bakstur svona svo ég eigi allavega eina kökusneið um helgina en það á að smala um helgina. 

19. sept 2012

         Klausturhólaréttir í dag en við fengum alveg frábært veður.  Áttum þrettán hausa í réttunum og allt komið inní tún. Við Inga fórum svo á Selfoss eftir hádegið en það vantaði orðið ýmislegt eins og t.d hundafóður.   Guðni Reynir kom frekar snemma heim úr vinnunni og við fórum á rúntinn að athuga hvar væri fé en slatti í kringum Búrfell vonandi tekst að ná því um helgina. 

18. sept 2012

         Frábært veður í dag, byrjuðum á að fara í réttir í Kringlumýri en þar áttum við ekkert fé enda Guðni Reynir búinn að taka sitt fé heim.  Sáum slatta af fé á leiðinni inneftir og í heimleiðinni byrjuðum við á að taka eina móflekkótta með tvo hrúta sem í Kaldárhöfðanum en sú kind var frá Klausturhólum.  Næsta stopp var við fjárhúsið á Efri Brú en þar var ein tvílemba frá okkur.  Næsta stopp var í Háumýri sem er fyrir neðan Giljatungu en þar voru sjö hausar allir fá okkur.  Nú og svo túnið í Ásagarði en þar tókum við átta kindur allar frá Klausturhólum, þessi hópur er allavega ekki eftir.  Sáum svo að það var komið fullt af fé á Búrfellsmýrarnar en svo er spruning hvort þetta er að koma úr fjallinu eða hvort þær hafa snúið við en girðingin ætti að halda en það kemur í ljós þegar farið verður í þetta fé aftur um helgina.

        Sigga kom svo og kýkti á okkur seinnipartinn alltaf gaman að fá hana í heimsókn. Arnar skrifaði svo undir samning í kjötiðn í dag þannig að þetta var aldeilis góður dagur.

 17. sept 2012

        Heiðarsmalamennska í dag, við Gunni Har fórum inneftir í morgun með tvo hesta en það átti að skipta út tveimur.  Keyrðum svo Bjössa og Adam að Kaldárhöfða en þeir ásamt Dóra og Hjalta ætluðu að smala í kringum Búrfellið og alla leið heim.  Við Gunni og Bjarki vorum svo komin uppað Búrfelli uppúr hádeginu, Bjarki fékk að hlaupa í fjallinu og tókst að ná einhverjum skjátum niður, sumt rann að Miðengi og annað austrúr þar sem reynt var að koma því í réttir.  Við reyndum að smala Búrfellsmýrarnar og náðum slatta af fé inní austurgirðinu svona svo að það tolli þar.  Það voru svo mikið þreyttir smalar sem komu hér heim og flestir kátir aðeins þyngra hljóðið í öðrum enda mann kannski bara komnir á aldur....

16. sept 2012

        Við Gunni, Guðni Reynir og Daddi fórum inní Gatfell í morgun, bara kátir fjallmenn þar að venju.  Skutluðum Bjössa og Dóra niður á Hofmannaflöt, Jonni og Gummi Óskars komu svo í gegnum Goðaskarðið en þar náðust í heildina 18 kindur en við áttum eina tvílembu þar.  Við tókum svo féð okkar í okkar kerru, fylltum svo kerruna hans Bensa líka og Gunna kerru og pallinn á L-200 bílnum, keyrðum allt okkar fé heim og fengum okkur að éta, nú og svo var brunað inní Kringlumýri með restina af fénu og tekið á móti safninu sem var nú bara nokkuð stór miðað við oft áður.  Við áttum ekkert fé í Laugarvatnsrétt en tvílembu í Mjóanesi sem Guðni Reynir fór með heim í tún svo það verður nú ekkert rosalega margt í réttunum hugsa ég.

15. sept 2012

        Við Gunni og Guðni Reynir  brunuðum inní Gangnamannakofa Borgfiðringa í morgun, (sáum reyndar við gömlu  brúnna á Ásgarslæknum fjórar kindur og allar frá Miðengi en þetta var kindin Einar með gimbrarnar sínar og einn lambhrút) og tókum með okkur fimm hesta,en okkar menn fóru af stað þaðan, það smalaðist bara rosalega vel í dag, féð rann í fyrstu tilraun inní réttina á Hofmannaflöt en held að það hafi verið um 100 kindur allavega, held að af því höfum við átt nærri 60 hausta svo það er nú ekki slæmt.  Skildum kerruna svo eftir við réttina og fórum inní Gatfell í kjötsúpu og súkkulaðiðköku ekki leiðinlegt það.  Tökum svo féð okkar bara heim á morgun en það fer ekki illa um það í réttini í nótt og hver veit nema þær narri til sín fleiri kindur.  Guðni Reynir og Daddi komu svo með okkur Gunna heim. 

 14. sept 2012

        Þá er komið að fjallferð, held að við Gunni séum bara spenntust hehe en keyrðum einn farm af mönnum og hestum inní kofa seinnipartinn, en ansk fannst mér kalt innfrá en vonandi smalast bara vel en sáum fullt af fé á leiðinni en það var nú bara þokkalega staðsett.

13. sept 2012

         Seinnipartinn fóru Miðengismenn í reisugill til Magga og Sirrýar en þau eru að byggja sér hús hér niður á Snæfoksstöðum.  Það var nokkuð stór hópur sem fór ríðandi héðan en við Linda höfðum nú vit á að fara á bíl, orðið kalt og myrkur en þó var nú ekki alveg orðið myrkur þegar komið var heim.  Takk fyrir okkur.  Á morgun á svo að fara í að flytja hross inná afrétt en Gunni Har kom hér í dag og við orðin voða spennt að stjórnast í þessu á laugardaginn. 

12. sept 2012

          Fór til augnlæknis í morgun  og allt í lukkunar standi, sjónin ekkert breyst en fékk upplýsingar um hver linsustyrkleikinn á að vera en ég fékk um daginn linsur í sama styrkleika og gleraugun og það var ekki að gera sig fyrir framan tölvuna enda sagið augnlæknirinn að linsurnar sem ég hefði fengið væri fínar ef ég stundaði gólf....já og kannski dugar þær í rigningu þegar maður vill sjá kindur.

       Kom svo við í sjoppunni á borg á leiðinni heim þar sem ég var með markaskrár sem áttu að rata til síns heima.  Sigga kom svo í dag en hún kýkti á Helgu og Arndísi.  Annars bara allt við það sama. 

11. sept 2012

           Tysabri í dag, tengdamamma fór með í bæinn.  Ég mætti uppá spítala eins og vant er fór í blóðprufu sem ég átti reyndar að fara í eftir 4 vikur en þar sem ég á viðtal við taugalækni eftir þrjár vikur þótti bara snilld að fara í blóðprufuna núna.  Við kýktum svo aðeins í Elko nú svo heimsóttum við krakkana en Sigga var heima nú svo kom Herdís og þá Arnar en Sævar Inga sáum við ekki í þetta sinn.  Komum svo við í Bónus í Hveró á leiðinni heim og vorum komnar heim um hálfsex leitið held ég. 

10. sept 2012

          Búið að vera bálhvasst hér í dag, og snarvitlaust veður fyrir norðan og norðaustan líka en ekkert samt  fokið hjá okkur held ég en þegar ég skaust á Selfoss í morgun sá ég trampólín úti í móa og ekki trampólínið hans Jóseps, en þau komu víst í gærkvöldi og gengu frá sínu :) snilld.

        Vigtaseðill kom í dag fyrir þessa 35 hausa sem fóru í sláturhús í gær, 16,8 meðalvigtin á lömbunum en þau voru 31 þetta var bara ljómandi gott enda svosem valið úr.

  9. sept 2012

           Smöluðum túnið í dag en Guðni Reynir, Bjössi og Gunni ´Har fóru með tvær kerrur af skjátum í sláturhúsið eftir hádegið.  Sigga kom svo aðeins heim í dag og kýkti svo á afa sinn og ömmu sína á Selfossi, en þau Arnar eru eitthvað að spá í lopapeysur fyrir sviðaveisluna.

8. sept 2012

         Frábær dagur í dag en við fórum héðan í morgun uppúr níu, Brúney, Kjartan Gunnar, Gunni Har, tengdamamma og ég og stefnan tekin á Ljárskógarrétt.  Vorum komin þangað um eitt leitið og sáum reksturinn koma að, fullt af fé en mér fannst lömbin líta ljómandi vel út.  Hittum fullt af frábæru fólki, fylgdum svo Hróðnýjarstaðarfólkinu heim  og ekkert smá vel tekið á móti okkur þar, takk fyrir okkur.  Skoðuðum svo fjárhúsið þarna og vá hvað þetta er flott og sniðugt hús snilldarhönnun á því fannst okkur.  Held að klukkan hafi nú verið farin að nálgast 10 þegar við fórum af stað heim en við vorum komin heim um eitt leitið. 

7. sept 2012

         Á morgun er svo stefnan tekin í Dalina í Ljárskógarrétt :) mikil tilhlökkun í gangi hjá okku Gunna Har allavega, þetta verður  bara gaman. 

6. sept 2012

           Bjössi, Dóri, Hjalti Pétur og Bjarki  búnir að vera í flaginu í dag.  Það passaði þegar Hjalti Pétur og Bjarki komu þá gat Bjössi stungið af og farið með tengdapabba að sækja hann Klett frá Hvammi en hann er hér að sinna hryssunum hans Flemmings.

       Hér kom svo stúlka í dag sem var að vandræðast með svarta labradortík sem var hér uppá malbiki og vissi ekkert hvað hún átti að gera við tíkina.  Ég gat lesið á örmerkið og fundið út hver átti tíkina en þá var hún úr bænum en konan sagði mér að tíkin hafið farið með bóndanum að smíða í bústað hér uppundir Seiðishólum, tíkin aldrei farið á flakk en nú semsagt var eitthver órrói í henni og gott ef hún var ekki bara að byrja að lóða og því stakk hún af, en sem betur fer var þessi unda stúlka nógu skynsöm og tók tíkina uppí bíl svo ekki yrði keyrt á hana, þannig að þetta fór nú allt saman vel. 

5. sept 2012

         Búið að rigna eldi og brennisteini í dag og ekkert farið í falgið.  Mamma og pabbi komu svo hér færandi hendi, lopapeysa handa Dóra og fullt af ullarsokkum fyrir fjallferðina :) takk fyrir okkur.

4. sept 2012

           Í dag fór ég og sóttur tvær hryssur frá honum Flemming en þær höfðu verið hjá honum Tígli, þær stoppuðu nú ekki þar nema í 11 daga en önnur var með fyli þannig að það var nú bara nokkuð gott.
           Karlarnir svo búnir að vera að taka grjót úr flaginu enda fínt verður í dag og þetta smá tosast. 
           Hér komu svo sjónvarpsmenn og tóku viðtal við Guðna Reyni í kvöld ekki gott að vita hvað kom út úr því.

3. sept 2012

          Aftur farið að rigna enda komið haust svosem.  Allt gengur bara sinn vana gang ég skaust á Selfoss, skólinn hjá Dóra kominn á fullt en hann er bara í einum tíma á dag :( en honum leiðist það nú ekki nú og svo er kann kominn með vinnu með skólanum og byrjar í næstu viku bara frábært en hann verður að stússast í hrossum í Austurkoti.

2. sept 2012

         Sól og gott veður í dag þannig að ég gat sett þvott út á snúru ekki slæmt að fá svoleiðs daga inná milli.  Fékk frábæra heimsókn í dag en Begga frænka og Olla frænka komu í heimsókn ásamt Víði manninum hennar Ollu.  Ansi langt síðan ég hef séð Ollu en hún hefur ekkert breyst. 

      Fór svo með Siggu og Arnari á Sólheima að skoða myndlistarsýninguna hennar Guðrúnar Láru sem er mamma Arnars, og vá hvað þetta voru flottar myndir mæli klárlega með að fólk fari og kýkji. 

1. sept 2012

         Enn rignir en svo er voða milt á milli skúra.  Skaust á Selfoss í morgun en hundamaturinn var búinn.  Tók svo Dóra með heim í leiðinni.  Stákarnir fóru svo í Paintball í dag og svo út að borða á Kaffi Krús núna í kvöld en þetta er semsagt lokahóf hjá Bleika Pardusnum sem er fótboltaliðið sem þeir eru búnir að vera að spila með í sumar.  Annars bara rólegheit hér í dag. 

31. ágúst 2012

         Búið að rigna slatta í dag.  Aðeins rennerí á fólki hér, en Bragi kom við í kaffi, nú svo komu mamma og pabbi en þau voru að koma að vestan, nú Inga og Reynir komu líka við.  Þá kom Gunni Har og svo kýkti Jonni hér seinnipartinn en nú eru menn farnir að velta fyrir sér fjallferð, hver á að vera hvar og á hvaða hesti ekki seinna vænna að átta sig á því. 

28. ágúst 2012

         Mikið stússast í hryssum í dag, ein fór til Spuna, og önnur sótt þangað, tvær fóru svo í Aron, við Anna Dóra verðum svo bara að krossa fingur og vona það besta.  Nokkrar rolluskjátur fóru svo í SS en á morgun byrjar Guðni að vinna þar á fullu.

      Það kom svo kona í heimsókn frá Bandaríkjunum, hundakona að sjálfssögðu og alveg yndisleg gaman að því. 

27. ágúst 2012

          Þá er verið að klára heyskap en í dag var verið að klára að rúlla í Arnarbæli.  Þá er bara eftir að keyra heim, held að þá teljist heyskapur búinn.  Fór svo eftir hádegið í bæinn að kýkja á Siggu en hún er bara ansi slöpp hiti, hálsbólga og hósi en vonandi verður hún orðin góð áður en skólinn byrjar. 

26. ágúst 2012

           Fór vestur í dag með Kjartani, Möggu og Brúney að sækja hvolpana þeirra. Frábært veður að vanda.  Alltaf jafngaman að heimsækja hjónin á Bergi takk fyrir okkur. 

25. ágúst 2012

        Fórum í fimmtugsafmæli til hennar Guggu í kvöld ekkert smá flott veisla enda flott kona.  Takk fyrir okkur þetta var bara gaman. 

24. ágúst 2012

         Fórum á Hellu í morgun en Dóri var að sýna Þoku á yfirlitinu og gekk bara ágætlega honum tóks að hækka skeiðeinkunn upp í 8 sem er bara gott.  Fórum svo í Hemlu með Valíant og tókum Lísu heim.

23. ágúst 2012

         Vignir og Lotta komu hér í kvöld að kýkja á hann Valíant en það vantaði víst hest til að leika í bíómynd og hann virðist henta í hlutverkið vonandi stendur hann sig svo bara vel, við förum svo með hann austur í fyrramálið þegar við förum með Dóra á Hellu. 

22. ágúst 2012

         Heilmikið að snúast á Selfossi í morgun en eftir hádegið fórum við Inga og kýktum á Herdísi, Siggu og Arnar en þau eru búin að koma sér rosalega vel fyrir í Kópavoginum.   Gaur fékk að fara með okkur en hann var nú ekkert á því að koma með okkur austur aftur, þóttist ekki sjá mig þegar ég labbaði út í bíl og beið bara inní í gangi, bara skondinn. 

21. ágúst 2012

          Í morgun fórum við Bjössi og Dóri með Þoku á Hellu í dóm.  Vera sem áður hét Spari Brúnka fór í byggingardóm í morgun og kom út með 8.03 sem mér fannst nú bara fínt en Bragi var nú ekki alveg sáttur.  Svo kom að Þoku en þetta gekk svona rosalega vel hjá Dóra, allt gekk upp og hún var bara fín en greinilega fannst dómurunum það ekki og hún lækkaði heilmikið frá því í fyrra en okkur finnst hún alveg jafn góð :)

       Sigga og Arnar komu svo heim í dag og kýktu í ber, þau komu með slatta heim en er nú ekki viss um að mikið verið eftir á morgun.  Annars er ég alveg að verða vitlaust á þessum húsflugum en þær spretta hér upp eins og þeim sé borgað fyrir það og allt flugnaeitur uppselt á suðurlandi held ég.  

20. ágúst 2012

         Letidagur í dag en fór nú samt á Selfoss aðeins að gera og græja.  Hitti Hönnu Kötu í Krónunni og við ákváum að kýkja á Kristínu hans Nonna, gaman að kýkja til hennar.   Mætti svo Gunna Har þegar ég var að koma heim en hann hafið komið í kaffi til Guðna.  

       Haukur taugalæknir hringdi svo í mig í morgun en ég átti víst tíma á miðvikudaginn næsta hjá honum ég var auðvitað alveg búin að gleyma því en hann hafi líka gleymt að panta fyrir mig MRI svo ég fer bara í MRI í sept og til hans í okt og allir sáttir enda ég svo spræk að ég held ég þurfi ekkert til læknis yfir höfðu.

16.-19. ágúst 2012

Hestaferð Ganda og Gúbba.

          Á fimmtudegi var lagt af stað frá Miðengi um sex leitið en rúmlega helmingurinn af hópnum fór ríðandi héðan en hinn hópurinn frá Selfossi.  Héðan var riðið út á Borg, svo var næsta stopp á Bjarnastöðum og þá á Spóastöðum. Ég kom inní hópinn á Spóastöðum en þaðan var riðið í gegnum skóræktina þeirra og uppí Hrosshaga, rosalega falleg leið og veðrið bara gott.  Hver áfangi var um klukkutími sem var bara alveg passlegt.

      Lögðum af stað frá Hrosshaga um hádegið, ég ákvað að vera í hnakk allann daginn enda með frábæra hesta og veðrið rosalega gott.  Þarna vorum við Bjössi, Jonni, Sverrir, Gestur, Gummi Óskars, Hafdís Ingþór og Hulda, og Sigga og Arnar  nú og Adam sá um að trússa ekki leiðinlegt að hafa bíl með sem vissi hvað þurfti að vera klár hvort sem það var stopp eða rimlahlið.  Fórum frá Hrosshaga og að Aratungu, þá var farið yfir nýju brúnna og í gegnum Flúðir, og stefnan tekin á Birtingarholt, Arnari og Jonna tókst að detta af baki en það var mjúkt undir.  Eftir að hafa stoppað vel í Birtingarholti var síðasti áfanginn farinn en það var í Þrándarholt, held að við höfum verið að lenda þar um sjö leitið.  Frábær dagur en ekki laust við að ég hafi aðeins verið orðin aum en samt ekkert að ráði.  Selfoss hópurinn kom svo dálítið seinna og gekk bara ljómandi vel hjá þeim líka.  Í þeim hóp voru Davíð og Solla, Gummi og Gugga, Eyrún og Áki, Bragi og Svava, Eva og Gunni.

       Laugardagur og enn er bara blíða, bræðurnir í Þrándarholti fóru með hópinn og viðruðu okkur, fórum að Búða, síðan í Árnes, og heimsóttum Höllu og fj á Hæli sem fylgju okkur svo úr hlaði, en fórum þaðan heim í Þrándarholt, krossuðum Litlu Laxá tvisvar en þetta var alveg frábær dagur, nema hvað Gugga og Davíð tóku að sér bylturnar þennann daginn en í báðum tilfellum duttu hrossin.  Held að þetta hafi líka verið um sjö tímar í hnakk, ég hélt nú að ég yrði aum um morguninn þegar ég fór á bak en fann bara ekki fyrir neinu.

       Sunnudagur og enn er bíða, nú skiptist hópurinn upp aftur nema hvað Solla ákvað að koma með okkur heim þar sem við vorum með rekstur og Davíð settur í bílinn með Adam, en Davíð hefði nú mátt vera skárri eftir byltuna og Gugga reyndar líka.  Heimferðin gekk svona líka rosalega vel, hrossin rákust vel og við komin heim sjö leitið allt á áætlun.  Takk fyrir frábæra ferð. 

15. ágúst 2012

          Við Guðni Reynir fórum í morgun að Hömrum með eina hryssu sem Bjössi kom með frá Einari í gær, en við Guðni sóttum svo hana Bóthildi og Slaufu Hringsdóttur, rosalega fínar báðar tvær, sjáum svo til með að sóna þá gömlu í haust.  Nú þegar ég var komin heim brunaði ég með bílinn í smuringu til Gests og aðeins í Bónus að sækja hundafóður.  Nú aftur brunað heim og skipt um bíl og nú var ferðinni heitið í Holtsmúla að sækja Hæru mína sem er búin að vera hjá honum Þey en hún er með 14 daga fyli.  Nú folladið hennar er nú ekki eins mikil bolla og Slaufa enda Hæra aldrei sérlega mjólkurlagin en fallegur er folinn nú samt. Hann lítur nú út fyrir að ætla að verða móálóttur vindóttur og enn trúi ég því að hann verði ekki grár en sjáum til með það. 

14. ágúst 2012

          Fór í bæinn í dag í Tysabri gekk bara vel að venju.  Kom við í Bónus í Hveró á heimleiðinni en það vantaði morgunkorn í Guðna Reyni, nú svo sótti ég mjólkurvörurnar í Mjólkurbúið. 

       Bjössi og tengdó skutluðu svo tveimur hrossum til Dóra en hann er hjá Einari en Einar er að leiðbeina honum með þetta, ekki slæmt það. 

      Anna Dóra, Jón Bjarni og Sól komu svo hér í heimsókn en þau voru í merarflutningum en þau komu með eina hryssu hingað í millilendingu en hún fer svo undir Aron þegar ég fer með mína. 

13. ágúst 2012

           Fór í dag með hana Hildi undir hest sem heitir Sjálfur og er frá Austurkoti, er ekki talaði um fullreynt í fjórðu svo ég ætla bara að vona að hún fyljist núna.

        Gunni Har kom svo við í dag, mamma og pabbi kýktu líka við.

12. ágúst 2012

        Fór í morgun með Cathy og Connor út á flugvöll.  Hanna Kata kýkti svo við hér eftir hádegið, Steini kom líka í heimsókn með Sænska stelpu og svo var hún Dorte líka með í ferð.  Seinnipartinn komu Bjössi og Lára ásamt Gunnu við en þau voru að láta örmerkja tvö hross sem eru á leiðinni í SS, þannig að það er heilmikið rennerí.

11. ágúst 2012

          Elduðum humar í kvöld og ekkert smá flott tókst aveg fullkomnlega held ég bara.  Sigga og Arnar komu austur í mat en í fyrramálið fara Cathy og Connor úr :(

9. ágúst 2012

          Við Cathy og Connor fórum með Júlíu út á flugvöll í morgun.  Í bakaleiðinni komum við svo við hjá Siggu í morgukaffi.  Fórum svo í Kost og keyptum fullt af allskonar matvöru, mikið af pakkamat sem hentar útlendingunum. 

8. ágúst 2012

         Bjössi og Guðni Reynir fóru með hana Leiru í morgun í Austurás en þaðan fékk hún svo far undir Álf svo er bara að krossa fingur og vona að eigandinn fái nú fyl í merina.

      Fékk svo símtal í morgun og hún Jóra er köstuð en hún fór undir Klett frá Hvammi en það kom rauðskjótt hryssa eiginlega endaskjótt með blésu set inn mynd um leið og þær berast.

        Linda Björk og Andrea kýktu svo við hér í dag, mikið gaman að hitta þær en hef bara ekki séð þær lengi.

      Adam kom svo við en hann er búinn að vera með Kjartani Gunnari að járna.  Fékk svo skilaboð úr Hemlu um að Spóla sem hann Kjartan á núna sé með fyli við Klæng ekki leiðinlegt það. 

7. ágúst 2012

         Fór í morgun með Bjössa í Laugarás en við héldum að hann væri kannski puttabrotinn, þaðan vorum við send á Selfoss þar sem rönkentækið í Laugarási er bilað og karlinn myndaður en sem betur fer er hann nú líklega ekki brotinn.  Adam og Hafdís kýktu svo hér í kvöld en þau eru að stússast í hrossunum sínum.  Annars bara allt við það sama. 

6. ágúst 2012

         Þá er þessi helgi að baki, búið að taka saman og hýsið og fólkið komið heim.  Þrír strákar voru svo sofandi hér í stofunni í morgun þegar ég kom fram.  Gróa og Toni kýktu svo við hér áður en þau fóru heim,  Gunni Har kom líka í kaffi og Haddi á Skálabrekku kom líka í kaffi.  Dóra frækna rölti svo úr bústaðnum og kýkti á okkur þannig að það er alltaf eitthvað um að vera. 

5. ágúst 2012

        Enn bara blíða líklega er verið að bæta okkur upp rigninguna sem var í fyrra.  Margt skemmtilegt um að vera í dag, Óli kom á flugvélinni sinni og lenti í Kúakróknum veit ekki hvort börnunum eða okkur fulorðna fólkinu fannst þetta meira spennandi.

      Það var svo hestaleiga í dag, Miðengismenn fóru líka á hestbak í dag bara gaman.  Svo var hlustað á brekkusönginn í útvarpinu.  Þegar ég fór svo heim um eitt leitið í nótt sýndi hitamælirinn á bílnum eina gráðu, ansi kalt. 

        Strákarnir fóru svo á Flúðir í kvöld ég sagði þeim svo að koma bara heim og sofa hér því það var svo kalt að það var ekki gerandi að sofa í tjaldi. 

4. ágúst 2012

          Linda á afmæli í dag til lukku með daginn þinn :)

         Enn leikur veðrið við okkur bara sól og hiti en ansi kalt á kvöldin. Það var kveikt í brennunni eða varðeldinum í kvöld og ekkert smá flottur bálköstur, þetta brann hratt og vel enda mikið af timbri. 

3. ágúst 2012

          Fórum í morgun með hýsið í Kúakrók um að gera að fara að raða upp held að þetta verið bara gaman.   Held að flestir hafi verið komnir í kvöld vantaði allavega ekki marga af þeim sem ætluðu að vera.  Við fórum svo heim að sofa en einhvað af krökkunum gistu í hýsinu niðurfrá enda ansi kalt og ekki spennandi að liggja í tjaldi

2. ágúst 2012

          Þóra kom í dag manni finnst bara langt síðan hún kom síðast en nú eru semsagt allir mættir eða þannig.  Við Bjössi fórum í bæinn í dag með búslóðina hennar Siggu en krakkarnir eru að flytja inn í dag. 

1. ágúst 2012

           Fór til Svanhvítar í morgun að ná mér í smá grænmeti ekki leiðinlegt það, hitti þar frænkur mínar frá Ormstöðum þannig að þetta var hálfgerður frænkuhittingur.  Fór svo á Selfoss með Tíbrá í læknisskoðun en hún fékk fulla skoðun eins og ég átti nú von á.

31. júlí 2012

            Við Sigga fórum í bæinn í dag að skoða íbúðina hans Kristgeirs og Sigga fékk bara lyklana þannig að hún getur farið að flytja, ekki leiðinlegt það en Sævar og Herdís ætla að búa þarna líka en þau eru ekki búin að fá íbúið í stúdentagörðunum svo þetta er bara frábært, íbúin á rosa skemmtilegum stað í Kópavogi alveg við Digranesskóla, stutt í allt.

30. júlí 2012

           Í dag var mikill höfðingi borinn til grafar en hann Grétar var jarðaður í dag, falleg athöfn og rosalega mikið af fólki.  Við Bjössi fórum ásamt Siggu og Guðna Reyni.           

29. júlí 2012

           Brunaði með Dóra í Kringlumýri í morgun en maður varð að senda eitthvern með reksturinn heim.  Það var suddi þegar við lögðum af stað héðan en þau fengu svo alveg frábært verður.  Farið frá Kringlumýri og í Kaldórhöfða og þaðan á Úlfljótsvatn.  Niður Grafning og yfir vatnið og heim.  held að þau hafi verið komin heim uppúr fimm en þau lögðu af stað um hádegi þannig að þetta var ekki svo langur dagur en alveg frábært.

        Ég fékk svo alveg frábæra heimsókn í dag en hún Íris og Snjólaug mamma hennar sem bjuggu í Öndverðanesi þegar ég var krakki, komu í heimsókn, held að við höfum bara ekkert breyst sveim mér þá.

28. júlí 2012

        Kerhestaferðin í gangi í dag, skutlaði Bjössa og Cathy inní Kringlumýri, fór svo og sótti Siggu og Arnar en við hittum á fólkið í Gjábakka,  Bjössi var svo óheppin að detta af baki en brotnaði sem betur fer ekki, en ansi hruflaður í framan.  Við Cathy  skelltum okkur svo  á bak með mannskapnum en það var riðið í Skógarkot og svo aftur í Gjábakka en þar tókum við Cathy bílinn og fórum í Kringlumýri.  Þar grillaði Bragi læri sem voru ekkert smá góð enda ekki von á öðru.  Fór svo með Sverri og Arnari niður á Laugarvatn að sækja rafstöðina en það var allt orðið vatnslaust, allavega hjá hrossunum.  Ég, Bjössi, Sigga, Arnar og Cathy fórum svo heim eitthverntímann eftir miðnættið. 

        Brúney hringdi svo í mig í kvöld en hún var búin að frétta að við værum að leita að íbúð fyrir Siggu og Arnar í bænum og hún vissu um lausa íbúð sem hann Kristgeir hennar Birnu á. Skoðum það klárlega starx eftir helgina. 

27. júlí 2012

           Dóri ansi aumur í dag, ætlaði að setja eitthvað skárra á puttann á honum en leist nú ekki alveg á þetta og sendi hann til Ingu ömmu sem leist ekkert á þetta heldur svo hann var sendur í Laugarás þar sem það var búið um þetta en hann á svo að koma aftur á mánudaginn til að láta skipta á þessu svo það var eins gott að Inga sendi hann uppeftir annars hefði hann klárlega fengið í þetta ígerð og ógeð.

        Það fór svo hópur ríðandi héðan inní Kringlumýri í kvöld og Dóri fékk ekki að fara með eða treysti sér bara ekki þar sem hann getur ekki haldið um taumana eins og hann vill en ég var nú að benda honum á að nota bara eina hendi en það þykir nú ekki flott eins og mér finnst það nú þægilegt. 

26. júlí 2012

            Gunni Har kom við í dag en hann var að koma úr rollustússi með Kolla í Eyvík.  Við Júlía fórum svo uppá flugvöll að sækja Cathy og Connor mikið gott að fá þau heim :)

          Fékk þá ,,ekki" snilldar flugu í höfuðið að fara þennann merkilega suðurstrandaveg suðreftir, úff það geri ég nú ekki aftur, fannst frekar ónotalegt að fara þarna um, nú og svo var þessi leið sko ekkert styttri, 129 km ca héðan að heimann og uppá flugvöll.  Fórum svo gömlu góðu leiðina heim sem voru í kringum 112 km þannig að þetta numar góðum slatta og þrátt fyrir að þurfa að fara í gengum höfuðborgina þá finnst mér ekki spuring að fara þá leið, já fyrir utan að GPS tækið mitt vildi alls ekki fara þessa leið sem ég skildi vel svona eftir á. 

         Dóra tókst svo í eitthverju hestastússi að rífa skinnið ansi vel af putta á sér, ekki gott nú og svo fór hann í fótbolta og brenndi á sér löppina þannig að hann er hálfónýtur. 

25. júlí 2012

           Mikið gaman í dag en við Júlía ásamt Brúney og Sigga og Evu og Kristberg fórum að heimsækja Önnu Dóru í dag en Kjartan Gunnar fór í gærkvöldi að járna hross fyrir vestan.  Mikið var þetta nú gaman eins og alltaf að koma vestur, fórum út að vita og kýktum fram af klettum sem mér fannst nú bara alveg nógu háir þó svo ég vissi að maður dræpist tæpast þó maður dytti en hvað um það ég er agalega lofthrædd og sé alveg fyrir mér að einhver annar detti því það var jú bara Brúney sem mér fannst hugsa eins og ég en mikið gaman.  Komum við hjá Kollu í baka leiðinni en held að við höfum ekki verið komin heim fyrr en eftir miðnætti. 

       Fórum Uxahryggina vestur, sáum fullt af fé og tókum heimildarmyndir handa Guðna Reyni, hann átti alveg eina tvílembu þarna og Gunni Har eins og einn gemling með lambi, nú og svo var fullt af fé sem við þekktum ekki. 

24. júlí 2012

              Bara þó dálítið rennerí í hestaleigunni í dag hjá Siggu.  Fór svo uppað Búrfelli í stykki sem við erum með þar og kýkti á hryssurnar sem eru ókastaðar en þær eru tvær þarna uppfrá. Sá bara aðra og leist nú ekki á þar sem hin var sú eina sem vantaði.  Bjössi og Sigga komu svo að hjálpa mér að leita, það rifjaðist nú upp að kannski vantaði  Kötlu líka en við fundum þær í stykki sem Hólmar er með ásamt einni hryssu enn sem ég var líka búin að gleyma.  Nú svo var brunað á Selfoss með hana Kröflu í sónar en ég leigði hana þýskri stelpu undir hann Álf.  Hún reyndist vera með 16-17 daga fyli ekki leiðinlegt það.

23. júlí 2012

             Fór í morgun með bílinn hennar Siggu til Gunna Sveins en það þarf að sprauta hann aðeins og svo er stefnan að setja hann á sölu. 

22. júlí 2012

            Letidagur í dag, bara beðið eftir að það þorni upp svo hægt verði að klára fyrri slátt en það gæti nú orðið í vikunni. 

21. júlí 2012

Pabbi á afmæli í dag til hamingju með daginn þinn :)

          Það átti að vera kolvitlaust veður í dag en það fór nú lítið fyrir því.  Búin að vera að skutlast í dag nú og í kvöld komu svo Adam og Hafdís í heimsókn ekki leiðinlegt það. 

20. júlí 2012

          Fórum uppí bústað til mömmu og pabba í grill bara gaman en tilefnið er að pabbi á 65 ára afmæli á morgun. 

19. júlí 2012

          Fór í morgun með bílinn hans Guðna Reynis í skoðun og viti menn bíllinn fékk fulla skoðun, það virðist nú samt alltaf vanta númeraljós á þessa bíla en ég blikka bara Gest næst þegar þarf að smyrja bílinn. 

18. júlí 2012

           Skutlaði Perlu í vinnuna um hádegið og brunaði svo austur í Hemlu að sækja Dóra, alltaf gaman að koma þangað.  Fór svo í kvöld með Gaurinn að kýkja á kindur hjá henni Gunnu og gekk bara svona ljómandi vel, hann áttaði sig alveg á hvað ætti að gera og gengdi bara nokkuð vel, þetta verður ekki neitt stórmál held ég svona ef eigandinn sinnir þessu.

        Loksins er farið að rigna og ekki veitti af, allt orðið ansi þurrt.   

17. júlí 2012

            Fór í bæinn í morgun í Tysabri, gekk bara ljómandi vel að venju.  Sótti svo eitthvað dót fyrir Sverri í heimleiðinni og kýkti til Karítasar og krakkana þegar ég skilaði af mér.

16. júlí 2012

           Brunaði með Dóra austur í Hemlu en hann ætlar að vera þar í tvo daga held ég hann tók bæði Þoku og Jaka með sér.

14. júlí 2012

          Heilmikið að snúast í dag, fór með Dóra og Bjössa og tvo hesta í Þykkvabæinn en þar voru þeir settir í rekstur með um 130 hrossum og fullt af skemmtilegu fólki.  Fór svo með hana Hildi í Austurkot en eftir að hafa hugsað fram og til baka varð Borði fyrir valinu, vonandi heldur hún í þetta sinn.  Fór svo með hryssu frá Kjartani til Óla Péturs.   Nú þá var kominn tími á að fara heim, nú og svo að sækja Perlu í vinnuna og aftur af stað að sækja Dóra og Bjössa já og eina sex hesta en þeir voru alsælir eftir ferðina.

12. júlí 2012

           Gulla frænka kom í heimsókn í dag með  Rúnar Atla og Sistu og Hjalta mikið gaman að fá þau öll í heimsókn, mamma og pabbi komu líka við bara gaman.

11. júlí 2012

           Fór í dag með tvær merar í sónar, Nös var með fyli við Kjarna frá Þjóðólfshaga en Hildur var tóm, hún var skoluð út og tilraun þrjú verður gerð um helgina.  Það lítur ekki út fyrir að það komi mörg folöld næsta vor ef þetta heldur svona áfram, en kannski þær litföróttu lumu á fyli hver veit.

8. júlí 2012

           Guðni Reynir kom snemma heim  í morgun, byrjaði á að fá sér morgunmat og svo kaffi og settist svo í stofuna í spjall.  Ég spurði hann hvort Sigga hefði ekki farin snemma að sofa svo hún gæti nú keyrt heim og þá kveikti Guðni Reynir allt í einu á perunni og sagði  ,,Ég gleymdi Perlu úti í bíl" þá hafi Perla semsagt komið með honum heim og sofnað og hann hreinlega gleymdi henni.

         Sedda kom hér við í dag og kýkti á hryssuna sína, hryssan lítið farin að stálma en aðeins farin að gildna.  Ég brunaði svo austur á Bestu útihátíðina þar sem annar bílstjórinn var ekki ökufær og sá ökufæri ekki með meirapróf til að koma herlegheitunum heim, það var rosalega mikil umferð fannst mér í bæinn en enginn umferð austur. 

         Dóri og Perla brunuðu svo í bæinn en það var verið að skýra hjá systur hennar Perlu. 

       Það var svo hestaleiga hér um fjögur leitið nú og Kiddi frændi kom svo með Dódó og krakkana á hestbak og gekk bara svona ljómandi vel nema hvað flugan var að angar þau en um leið og lygnir þá er ólíft fyrir flugu. 

7. júlí 2012

         Gunna og Gunni frá Bjarnastöðum komu í dag með tvær hryssur sem hún Sigga er að hugsa um að eiga eitthvað við.   Nú svo komu Kjartan Gunnar og Kristgeir komu svo og sóttu Spólu en hún er að fara undir hann Klæng frá Skálakoti.  ÉG örmerkti folaldið hennar og ekkert smá flottur sem hann er orðinn bara gaman að því.  Ég fór svo seinnipartinn og sótti hana Kröflu undir Álf svo er  bara að krossa fingur og vona að hún sé með fyli en ég leigði hana undir klárinn.  Hér fór svo stór hópur á hestbak í kvöld ég nennti nú ekki með grunaði að þetta tæki lengir tíma en hentar mér og viti menn héðan var farið um átta leitið held ég og komið heim um hálfeitt svo þetta var nú nokkuð rétt hjá mér. 

6. júlí 2012

           Ingþór, Hulda og Jonni kýktu hér við í kvöld, eitthvað hrossastúss á fólki held ég örugglega.  Fór í kvöld og sótti Júlíu á Bestu útihátíðina en hún er búin  að vera með hita og hausverk svo það er bara best að vera heima.  

5. júlí 2012

          Fór á Selfoss í morgun aðeins að snúast.  Krakkarnir fóru svo á Bestu útihátíðina seinnipartinn.  Það var nú aðeins vesen með að fá rafmagn þannig að það var nú dálítið kalt til að byrja með en svo kom rafmagnið þannig að það er hlýtt og gott í hýsinu en það er nú aðalmálið finnst mér.

         Bjössi og Dóri fóru svo með tvær hryssur fyrir Flemming undir Tígul frá Gýgjarhóli vonandi fyljast þær en klárinn er að fara norður um 19 júlí svo þetta er nú ekki langur tími en Víóla er nýköstuð svo það er nú möguleiki með hana spuring svo með Stjörnu en henni var ekki haldið í fyrra. 

4. júlí 2012

           Fór með Hæru undir Þey frá Holtsmúla í dag og fór svo með Bóthildi undir Þyrni frá Þóroddsstöðum.  Heilmikið stúss í kringum þessar merar.

       Júlía kom svo heim í kvöld en Sigga, Arnar og Ási fóru uppá flugvöll og sóttu hana, yndislegt að vera búin að fá hana heim. 

3. júlí 2012

          Guðni Reynir fór á Selfoss í morgun að láta mynda á sér puttann og viti menn hann er brotinn, en okkur var nú farið að gruna það.  Fór svo eftir hádegið á Selfoss að snúast aðeins.    Eitthvað af fé var svo keyrt inná afrétt í dag og ekkert smá orðinn flottur afrétturinn mikið gras sem er bara hið besta mál.  Nú svo fer að styttast í að það þurfi að fara að keyra merar út um allt undir hesta en byrja á að fara með Hæru á morgun undir Þey frá Holtsmúla.

2. júlí 2012

           Mitt fyrsa verk í morgun var að fara uppað Búrfelli að athuga hvort það væru komin fleiri folöld og hún Víola hans Flemmings er köstuð en hún átti álóttann hest hvort sem hann verður nú bleik eða móálóttur.  Silla kom svo í heimsókn með hana Oddný frænku sína en hún var með hann Gýg með sér hann er nú alltaf jafn flottur.  Skaust svo á Selfoss og sótti Siggu en það var hestaleiga í dag.  Þá kom hún þýska Julía með vinkonum sínum að kýkja á hana Leiru sína.  Við kýktum svo niður á hraun á hrossin þar nú og litföróttu hryssurnar og þeirra folöld.  Þannig að það er svosem ekki búin að vera lognmolla hér í dag, ætlaði að þvo fullt af þvotti en náði nú bara þrem vélum. 

       Nú svo þarf að fara að undirbúa hýsið fyrir Bestu en krakkarnir eru að fara þangað með hýsið vonandi verður bara gaman hjá þeim. 

      Bóthildur fór svo í sónar í dag og ekkert fyl í henni, meira ástandið á þessum merum en Bóthildur er víst með eitthverjar blöðrur sem vonandi hverfa af sjálfu sér en við sjáum bara til hvað maður gerir. 

25 júní - 1 júlí 2012

           Jæja þá er landsmótsvikan að baki, ég fór á mánudegi með hýsið en Perla fór með mér suður.  Dóri fór snemma um morgunin og tók Siggu með sér, Arnar kom svo alltaf eftir vinnu.   Bjössi kom svo á þriðjudeginum.  Guðni Reynir kom svo á fimmtudeginum.  Veðrið var bara meiriháttar helst til of mikil sól stundum en ekkert sem ekki var hægt að nýta sér.  Það kom aðeins skúr einn daginn og svo góð demba á sunnudeginum.  Við Bjössi fórum svo heim seinnipartinn en við lentum ekki í neinum umferðartöfum eins og þeir sem lögðu fyrr af stað.  Bara frábær vika að baki í alla staði. Perla fór norður nú og restin af krökkunum fóru heim bræðurnir heim og Sigga, Arnar og co á Selfoss.   Bensi hringdi svo í mig á laugardeginum og tilkynnti mér að Hæra væri köstuð, vindótt hestfolald en það var svo mitt fyrsta verk þegar ég kom heim að kýkja á gripinn en ég er ekkert viss um hvernig vindottur hann er, en álóttur er hann hvort sem það er nú bleikálóttur eða móálóttur vindóttur svo er bara að vona að hann hafi ekki fengið gráa litinn frá pabbanum en hann er undan Kjarna frá Þjóðólfshaga.

24. júní 2012

          Allt of heitt í dag fyrir minn smekk, en auðvitað frábært veður, sól og blíða en seinnipartinn fór aðeins að blása sem var okkur alveg að meinalausu.  Búin að vera að gera og græja fyrir landsmót, hýsið allt að verða klárt enda Toni búinn að grúska heilmikið í því, mæla rafmagn koma loftnetinu í stand og ekkert smá flott gæði í sjónvarpinu þar.  Þannig að á morgun verður allt klárt fyrir landsmót.

       Bára og Lárus komu í heimsókn með litla gullið sitt hana Linddísi Lilju þvílíkt mikil dúlla þetta barn bara yndisleg.

      Nú ég er svo alveg hissa á því að ég skuli ekki vera með neina stengi eftir hestbakið í gær en finn bara ekki nokkrar harðsperrur skrítið..

        Búney og Eva komu svo hér í dag, en þær voru að klára reiðtúrinn síðan í gær og koma hestunum niður í Vaðnes.

23. júní 2012

          Sverrir, Gestur og Bjössi fóru í Jónsmessureiðtúr Trausta en það var farið frá Litla Hálsi og niður í Hveragerði held ég örugglega, komið svo aftur að Litla Hálsi.  Þetta tókst svona líka rosalega vel.  Þeir ákváðu svo að ríða heim.  Nú Gróa og Toni komu svo hér seinnipartinn og við ákvaðum bara að ríða niður að vatni á móti körlunum sem komu yfir vatnið.  Sigga, Arnar, Ingþór og Hulda fóru svo með okkur en ég var að fara á hestbak í fyrsta sinn í nokkur ár og gekk bara svona ljómandi vel.  Fékk líka eðalgæðin lánaðann en það var hann Fengur hans Guðna.

22. júní 2012

         Kjartan Gunnar kýkti hér við í dag, ég fór svo með honum í Vaðnes að sækja hross en skutluðm þeim uppað Litla Hálsi en það er semsagt komið að hinni árlegu Jónsmessureið Trausta á morgun. 

21. júní 2012

          Nú fer að styttast verulega í landsmót, farin að gera og græja enda ekki seinna vænna ef við förum á sunnudag-mánudag, ég er bara orðin rosalega spennt verð ég að segja.

        Það bólar svo ekkert á folöldum en þau ætla að láta bíða eftir sér þetta árið. 

19. júní 2012

           Tysabri dagur í dag svo ég fór í bæinn, tók tengdamömmu með, við heimsóttum svo Immu frænku hennar Ingu, fórum aðeins í rúmfatalegarinn og svo í Bónus í Hveró.  Tókum svo Perlu með okkur heim þegar hún var búin að vinna. 

18. júní 2012

           Doddi frændi kom í heimsókn í dag ásamt konunni sinni mikið gaman að hitta þau en fyrir þá sem ekki vita þá býr Doddi í Svíþjóð. 

       Bjössi fór svo með Hildi og Lísu í sónar og báðar tómar en ég er viss um að Lísa var með fyli í vor en svona getur þetta verið.  Ég fór svo á rúntinn seinnipartinn byrjaði á að fara með Eldingu fyrir Bensa undir Aron, þá fór ég í Hemlu með Lísu undir Árelíus og endaði svo með Hildi í Austurkot, en ég fór með hana undir Snæ.  Held að ég hafi verið að koma heim um ellefu leitið. 

17. júní 2012

         Letidagur í dag en fór nú samt ásamt Kjartani Gunnari að sækja hana Bóthildi sem er búin að vera hjá honum Þey frá Holtsmúla svo nú er bara að krossa fingur og vona að hún sé með fyli.

         Sigrún mamma hennar Perlu kom svo hér í dag og kýkti á stelpuskottið sitt. 

16. júní 2012

           Ekkert smá flott og stór terta sem hún Brúney færði mér hér í dag, takk fyrir mig.  Nú svo var farið í Álftarvatnið í kvöld ég taldi 72 sem fóru héðan úr hlaði á hestum, rosa flottur hópur.  Það fóru nú ekki alveg allir út í vatn en samt langflestir.  Þetta tókst bara rosalega vel og allir alsælir já nema þessi eini sem var hjálpað að detta í vatnið, en þegar menn bjóða uppá þetta þá verða þeir bara að taka afleiðingunum. 

15. júní 2012

         Skutlaði Perlu í vinnuna fyrir hádegið og verslaði aðeins inn.  Kippti svo Siggu með uppí sveit og svo var aftur farið á Selfoss í jarðaförina hans Sigga.  Þetta var mikið falleg athöfn en Karlakór Selfoss sá um sönginn en það virtist ekki vera nokkur mál að ná saman mönnum í kórinn þó svo það væri vinnudagur, það er nú ekki hægt að segja þetta um alla.

14. júní 2012

           Fór í kvöld að hjálpa Brúney og co að gera salinn klárann á Borg fyrir erfisdrykkjuna hans Sigga á Villingarvatni.  Fullt af fólki að hjálpa til en þetta tókst bara allt saman enda fólk á staðnum sem vissi alveg hvað það var að gera og gat sagt okkur hinum til svo þetta gengi nokkuð hratt og vel fyrir sig. 

13. júní 2012

        Fór á Selfoss í morgun með Perlu í vinnuna fór í leiðinni í klippingu endilega að nota ferðina.  Eftir hádegið fór ég svo og tók mynd af folaldinu hans Flemming en þetta reyndist vera rauð hryssa og bara nokkuð falleg. 

12. júní 2012

         Við Gróa drifum okkur  með Kötlu í sónar og Katla er með 16 daga fyli við Klett frá Hvammi, ekki leiðinlegt það.  Fór með hana uppí stykkið á Búrfelli og sá þá að Rauða Fjöður er köstuð, stefni á að fara á morgun og taka myndir. 

11. júní 2012

         Gróa og Toni mætt i sveitina ekki leiðinlegt að fá þau í heimsókn, þau mættu með hjólhýsið og eru búin að planta því hér. 

10. júní 2012

       Svosem ekkert að frétta héðan, ég búin að næla mér í eitthverja kvefdrullu, frekar pirrandi en það hlítur að vera komið í lag fyrir næsta Tysabri nú annars fæ ég ekki að fara í lyfjagjöf en sjáum til. 

8. júní 2012

         Hryssunum smalað heim í dag, ég er nú farin að halda að þær séu næstum allar geldar, en sá þó eina frá Flemming sem ég er viss um að er með fyli og svo er Hæra örugglega með fyli, nú og sjálfsagt eitthverjar fleiri en er nú farin að efast um að Lísa sé með fyli en sjáum til. 

6. júní 2012

        Þá var komið að því að bruna heim á leið og vorum komin um þrjú leitið held ég, bíllinn eyddi 18,9 l í þessari ferið en við fórum Hvalfjörðinn, fórum líka í gengum Þingvelli svo mér finnst þetta nú ekki mikil eyðsla með svona vagn aftaní. 

5. júní 2012

       Þá var stefnan tekin aftur í Búðardal en tengdó urðu eftir fyrir vestan og koma líklega heim á morgun.  Við aftur létum bara fara vel um okkur hjá Gróu og Tona við Gróa fórum í pottinn ekkert smá notarlegt það. 

4. júní 2012

         Fórum á Tálknafjörð í dag, vorum komin þangað um miðjann dag, veðrið ansi gott, mér tókst nú að brenna smá en ekkert sem ég get ekki jafnað mig á. 

3. júní 2012

         Frábært verður í Búðardal í dag, við vorum nú bara að sóla okkur og hafa það gott of gott verður til að nenna að flakka eitthvað. 

2. júní 2012

          Við Bjössi fórum í smá ferðalag í dag, fórum í samfloti við tengdó en í dag fórum við semsagt í Búðardal til Gróu og Tona, fórum með hýsið með okkur og þeim tókst að klára að græja miðstöðina þannig að nú gengur hún eins og klukka. 

30. maí 2012

         Bóthildur kastaði hér snemma í morgun og ég fékk rauðskjótta hryssu ekkert smá kát með það.  Nú svo um tíu leitið held ég að það hafi verið sem hún Tvíbaka var köstuð nóg um að vera, þar kom rauðblésóttur hestur.   Hér kom svo maður frá Austurríki að skoða hross og þegar hann var búinn að skoða sig um hér heima fór ég með hann niður á Hraun að skoða tryppin þá er þar hún Elja að standa upp frá nýköstuðu folaldi, sú átti nú ekki að vera fylfull og alls ekki að hafa komist í hest en okkur reiknast það til að þegar Lísa var búin að gelda sinn fola þá hefur honum líklega verið sleppt of snemma niður á hraun því allir heimafolarnir voru geltir 11 maí en sá bleiki ekki fyrr en 1 júní en það er stundum ágætt að geta flett upp á heimildium á heimasíðunni.  Þegar búið var að koma Elju og folaldinu heim þá brunaði ég út að Hömrum að henda nokkrum örmerkjum í  tryppi og folöld, þannig að það var nóg að gera þann daginn en ég er nú að uppfæra dálítið eftir minni því tölvan var svo í viðgerð.

29. maí 2012

          Þegar karlarnir hér voru að smala hrossunum sá Bjössi að Erla var köstuð svo ég dreif mig að skoða og viti menn komin jarpstjörnótt hryssa hugsanlega litförótt ekki slæmt það en það stóð nú til að fá skjótt en það kom allavega folald. 

28. maí 2012

          Katla sem er búin að vera hjá Klett frá Hvammi var sótt í dag svo er bara að krossa fingur og vona að hún sé með fyli.

 

25-27 maí 2012

          Þessa daga var hin árlegi sleppitúr en nú var farið á föstudegi ríðandi alla leið að Minni Borg, þar var svo gist í tvær nætur og riðið heim á sunnudegi.  Við vorum 37 í gistingu og líkla um 30 á hestum bara gaman og tókst alveg frábærlega vel eins og alltaf.  Þegar við Linda komum hér heim með föruneiti þá beið hún Nös hér nýköstuð eftir okkur og þessi líka fallega jarpa Spunadóttir komin í heiminn :) 

24. maí 2012

             Var að keyra út fé í vikunni með Guðna Reyni og Gunna Har þegar Guðni Reynir segir að það sé flugvél fyrir aftan okkur ég kýkti í spegilinn og viti menn það var að lenda flugvél á veginum fyrir aftan okkur, sjálfsagt hefur flugmanninum verið mál að pissa en hann var allavega farinn þegar við komum aftur en ég er nú nokkuð viss um hver var þarna á ferð.

          Annars er bara allt gott, komin langþráð rigning svo nú ætti að fara að grænka og spretta sem er bara frábært.  Sauðburður tosast áfram,  veit ekki hvort ég var búin að segja frá því að mér áskotnaðist lamb um daginn en ein af sjátunum mínum átti dautt lamb og hann Kjartan Gunnar átti stakt lamb sem við settum undir gibbu og viti menn þetta tókst svona ljómadi vel og allir sáttir, takk fyrir Kjartan Gunnar. 

23. maí 2012

             Er búin að vera ansi löt við að uppfæra, auðvitað er svosem búið að vera mikið að gera en alveg tími til að fara í tölvuna bara ekki komið því í verk að uppfæra.   Sauðburður gengur bara vel hefði reyndar viljað aðeins fleiri tvílembur en þetta er samt mikið betra en í fyrra.  Rosalega mikið af skræpóttum lömbum og allar útgáfur af þeim. 

22. maí 2012

             Fór í bæinn í morgun í Tysabri.  Perla skrapp með en það var nú slatti sem við ætlum að gera og vera komnar austur klukkan þrjú en ég þurfti að bíða ansi lengi eftir að koma í lyfjagjöfina uppá sjöundu.  Margir að fá gigtarlyf og verið að þjálfa nýtt starfsfólk en þetta hafðist nú allt og við komnar austur um þrjú leitið. 

          Svenni dýralæknir kom svo seinnipartinn en það átti að gelda 10 veturgamla fola og einn tveggja vetra.  það var hægt að ná kúlum úr 9 veturgömlum en einn var bara með eina kúlu svo hann þarf að bíða en sá tveggjavetra var líka bara með eina stóra kúlu svo það þarf aðgerð til að ná henni.  Veit svosem ekkert hvað eigandinn ætlar að gera.

20. maí 2012

           Guðni og Arnar urðu að fella einn hrút í dag en hann var líklega með barkabólgu og stóð alveg á öndinni, þetta var hann Blési sem var arnhöfðóttur botnóttur eða eitthvað.  Allavega flekkóttur sé nú svosem ekki mikið eftir honum hann var svo grimmur en það eru komin ansi mörg falleg lömb undan honum svo er bara að sjá í haust hvernig þau flokkast en sjálfsagt fer nú eitthvað í ásetning út á litinn. 

17. maí 2012

             Hér gengur bara allt vel, sauðburður kominn á fullt og gott ef það er nú ekki farið að hlýna en það er  búið að vera ansi kalt síðustu daga, við erum búin að setja eitthvað af lambfé út á tún en það var ansi mikið að snúast í fénu í dag.  Mikið af hrútlömbum sem fæðist svo ég er farin að halda að það verði bara allar gimbrar settar á í haust en það er nú svosem ágætt að fá slatta af hrútum, nú og svo eru líka allflestir litir komnir, bolsótt, botnótt, flekkótt og flestar útgáfur af þessum litum vantar aðeins mórauða litinn. 

10. maí 2012

              Fyrstu rollurnar farnar að bera þannig að úr þessu ætti sauðburður að fara á fullt bara gaman, en eins og það er nú gaman þegar sauðburður byrjar þá er maður alltaf fengin líka þegar hann er búinn.

           Stefnan tekin í Hemlu á morgun en ég heyrði í Vigni á þriðjudagskvöldið og gott ef ég á ekki nýkastað folald þarna, þau lánuðu mér semsagt Laumu undir hest í fyrra og ég var nú alveg búin að gleyma því, og vissi ekki einusinni undir hvaða klár hryssan fór svona get ég verið utan við mig en þetta er ekkert smá spennandi litur á folaldi sem ég fékk, jarptvístjörnótt hryssa og hringeygð á öðru auga undan jörpu og brúnu fer austur á morgun og tek myndir af gripnum. 

9. maí 2012

             Við Sigga fengum far í bæinn með mömmu og pabba en Sigga ætlaði að snúast eitthvað í bænum og ég fór í jarðaförina hennar Stínu frænku, mjög falleg athöfn.

            Skaust svo í Vaðnes til hennar nöfnu minnar á dollukynningu bara gaman af því. 

8. maí 2012

            Fór í bæinn í morgun en ég átti tíma hjá taugalækninum mínum, allt í fínu standi enda ekkert að mér.  Hann gaf mér nú samt eitthver lyf til að koma lagi á mígrenið man svosem ekkert hvort ég hef prófað þau áður.

         Sauðburður gengur sinn vanagang, Finnur kom hér í dag til að láta frostmerkja folöldin sín nú og Kjartan Gunnar kom og járnaði eitthvað af hrossum. 

7. maí 2012

            Skutlaði Þóru á rútuna, nú og svo var bara farið heim að stússast í sauðburði. 

6. maí 2012

             Stefnan tekin á Stokkseyri í fermingarveislu hjá honum Alfreð Loga syni Bigga og Mæju, hittum fullt af skemmtilegu fólki og áttum bara skemmtilegann dag.  

5. maí 2012

              Mikið að gera hjá mér í dag, byrjuðum daginn á að smala saman folaldsmerunum og reyna að næla sér í mjólkursopa fyrir folald sem missti móður sína, það náðust nú ekki nema 250 ml úr þrem hryssum sem er nú ekki mikið en samt mundar nú um allt.   Fór á Selfoss með fulla kerru af hrossum og fullann bíl af körlum en þeir voru að fara ríðandi út á Kríukrá í góðra vina hóp. Tók svo Þóru Betu með heim en hún var að koma með rútunni úr bænum.   Nú svo fór ég aftur á Selfoss og sótti fulla kerru af hrossum en það var kvennareið á Selfossi og ég sótti hrossin.  Nú sótti svo seint hrossin sem karlarnir voru á og tók Bjössa, Siggu, Arnar, Sverri og Karítas heim.  Nú undir miðnætti held ég var aftur reynt að ná mjólk úr hryssunum, þær eru nú ansi nískar á sopann þegar það er svona kalt.  Stjáni og Íris kýktu svo við hér þegar við vorum búin að mjólka hryssurnar.

3. maí 2012

              Eitthvað tregar að bera í dag en það kom lamb í nótt og svo ekkert meir.  Við Guðni Reynir mörkuðum 24 lömb held ég og það voru settir nokkrir gemsar út mikið kátir með að komast í grænu grösin.

           Bjössi og Bensi búnir að vera að traktorast í allann dag, en það er verið að koma skít á túnin.

2. maí 2012

           Kom slatti af lömbum í dag þannig að þetta er allt að gerast. 

1. maí 2012

             Slatti af gemsum báru í dag og einn tvílembdur sem átti nú ekki að vera en svona getur þetta verið.  Krakkarnir allir heima í dag, nú og svo er Gunni Har búinn að vera hér í dag að stússast í fénu.  Bragi og Svava kýktu svo við líka.  Kjartan Gunnar kom svo að járna fyrir Siggu og Dóra.  Á morgun járnar hann kannski fyrir mig :) 

30. apríl 2012

           Jæja þá er sauðburðurinn byrjaður af eitthverju viti, gimbrarnar farnar að bera og vonandi heldur þetta bara áfram. 

29. apríl 2012

             Spóla kastaði í morgun, brúnn hestur undan Dynjanda.  Nú svo bar hún Jarma í dag, það kom botnótt gimbur.  Annars bara allt í rólegheitunum. 

28. maí 2012

           Dóri og Perla voru í bænum í nótt en Perla ætlar að vera að læra með vinkonu sinni í bænum en Dóri kom heim í morgun,  það gekk nú ekki alveg smurt að koma sér austur hjá honum en hann var að villast í bænum í morgun og fyrir rest stoppaði löggan hann og lét hann blása og vildi vita á hvaða leið hann væri.  Hann útskýrði það að hann væri á leið austur fyrir fjall en rataði bara ekki út úr bænum.  Þeim fannst þetta nú dálítið skondið en fylgdu honum nú áleiðs út úr bænum svo hann myndi nú enda heima hjá sér,  Dóri hafi nú á orði þegar hann kom heim  ,,guð sér lof fyrir lögregluna"  annars væri hann líklega enn ókominn hehe.

        Þeir feðgar fóru svo að Flúðum en Dóri var að keppa í uppsveitadeild æskunnar, hann fékk fjórða sætið í A flokki en nennti svo ekki að bíða eftir skeiðinu það var svo kalt og barnaflokkurinn settur þarna inná milli unglinana svo hann fór bara heim.

        Nú tengdamamma kýkti við í dag, Gunni Har kom líka, Arnar og Sigga og svo hún Guðrún Lára mamma Arnars komu og kýktu á lömbin og folaldið en það bólar ekkert á fleiri lömbum né folöldum sem er kannski bara ágætt þar sem það er búið að rigna helling í dag en var nú samt skárra seinnipartinn.  Anna Dóra og Jón Bjarni komu svo en þau voru að fara í Ölfushöllina að horfa á ræktunnarveisluna sem var núna í kvöld en eitthvað áttu þau af hrossum þar. 

27. maí 2012

            Skaust á Selfoss eftir hádegið, þurfti aðeins að snúast en það tók nú ekki langann tíma.  Sigga og Arnar komu svo úr bænum í dag og komu með hana Þóru okkar með sér en það var svo matarklúbbur í Klausturhólum í boði Gumma og Leifu og Mæju og Birgis þetta var rosalega gaman eins og alltaf, maturinn æði og full mæting sem hefur nú bara ekki gerst í ansi langann tíma.  Takk fyrir okkur.   Þegar heim var komið kýkti ég í fjárhúsið og sá að það hafði borðið einn gemlingur hjá Guðna Reyni sem var búið að koma í stíu svo það þurfti nú ekki mikið að kýkja á það. 

26. apríl 2012

           Ekkert að frétta úr kotinu í dag, engin ný lömb komin og ekki fleiri folöld en nú hlítur þetta að fara að skella á en lambgimbrarnar ættu að fara að bera. 

24. apríl 2012

          Fór í morgun í bæinn í Tysabri það gekk bara ljómandi eins og alltaf, en var nú ansi löt þegar ég kom heim.  Annars er svosem lítið um að vera ekkert meira borið og ekki fleiri folöld í bili. 

23. apríl 2012

          Fór á Selfoss í morgun, fór í Byko og Krónuna og held bara að ég hafi fengið allt sem mig vantaði.  Sigga, Arnar og Sverrir fóru svo með hóp af krökkum í hestaleigu í dag, mikið stuð á mönnum og hrossum en allir komu heilir heim, þau sem voru að vinna við þetta komu bölvandi en hinir alsælir og fannst bara stuð að kvetja hestana vel áfram og halda svo bara í hnakknefið í staðinn fyrir að toga í taum eins og var nú lagt upp með en þetta fór nú allt saman vel. 

22. apríl 2012

           Letidagur í dag allavega hjá mér, krakkarnir allavega eitthvað af þeim fóru svo austur á Hvolsvöll að leika sér í fótbolta en aldrei þessu vant þá unnu okkar krakkar, þetta er greinilega allt að koma og vonandi verður þetta bara sigurganga í sumar ;)

21. apríl 2012

Kerhestagaman dagur í dag :)

         Mikið stússast í hýsinu í dag, finna út úr öllu sem þarf að finna út úr og það er nú ekkert smá.  Miðstöð, heitt vatn, kalt vatn, bakarofn, sturta, hvert neysluvatnið fer og svo er jú haughús.  Makrísan bíður svo betri tíma.   Það var svo flaggað hér í tilefni dagsins, held að það hafi verið um 27 manns sem fóru hér á hestbak seinnipartinn og eitthvað fleiri sem voru hér í grilli og gaman.  Held að síðustu menn og konur hafi verið sofnuð hér um fjögur leitið. 

20. apríl 2012

            Fyrsta folaldið þetta árið fæddist í morgun, móvindóttur og hugsanlega litföróttur hestur, bara nokkuð sontur.  Halla Eygló kom svo hér í morgun og tók DNA úr ca 15 tryppum, tveir árgangar já og Erlurnar mínar.   Skaust svo á Selfoss fyrir hádegið, átti eftir að versla aðeins.  Eftir hádegið fór ég svo með Þoku í Votmúla í nudd til hennar Susan, hún fann ýmislegt að og er ekki frá því að hægt sé að laga þetta svo nú er bara fjögra vikna prógram hafið hjá Dóra með Þokuna.

       Gróa og Toni komu svo í kvöld en Kerhestadagurinn mikli verður á morgun útreiðar og grill bara gaman. 

19. apríl 2012

Sumardagurinn fyrsti í dag Gleðilegt sumar allir

             Búið að vera heilmikið rennerí á fólki hér í dag, Dóri og Arnar komu bílnum hans Dóra út á Borg í dekkjaskipti.  Begga frænka kýkti hér við með strákana mikið gaman að fá þau í heimsókn.  Svo kom hún Anna frænka mín Guðmundsdóttir hér labbandi ásamt Fjólu og Erlu og henni Benediktu litlu :) kýktum í fjárhúsið og hesthúsið og sú stutta alsæl og gaf skrátunum hey enda þær mikið svangar.  Gunni Har kýkti svo við í dag, Lára kom og sagði Arnari og Gaur til, fékk svo far með Láru út á Borg til að sækja bílinn hans Dóra sem var komin á sumardekkin.  Útlendingar kýktu í hestaleiguna,  hitti svo á Karítas og krakkana hér á röltinu úti, þannig að það hefur nú ekki verið lognmolla hér í Miðengi í dag frekar en aðra daga.   

18. apríl 2012

            Síðasti vetrardagur í dag, mamma og Vala kýktu hér við í dag. Dóri fór á hestanámskeið og kom alsæll heim, hann kom heim um fimm leitið af námskeiðnu og þá var brunað á Selfoss en við vorum 16 sem fórum saman í rútu í bæinn að sjá Freddy Mercury tónleikana í Hörpu, nú eftir sýninguna fórum við í orðsins fyllstu merkingu ÚT að borða en það var semsagt kýkt á Bæjarins Bestu og mannskapurinn fékk sér pulsu og tilheyrandi,  þetta var ekkert smá skemmtilegt nú og svo forum við líka í svo góðum félagsskap takk fyrir okkur.

            17. apríl 2012

          Frábært veður í dag, kýkti í fjárhúsið og hesthúsið enda þarf maður nú að fara að viðra sig fyrir sauðburð :) 

16. apríl 2012

           Fékk skemmtilega heimsókn í morgun en Brynhildur og Laila frá Kanada komu hér hér í dag, gaman að því.  Kýkti svo í fjárhúsið og á hryssurnar og allt í rólegheitum.

       Hér var svo Tupperwere kynning í kvöld sem tókst rosalega vel vorum um 11 konur held ég bara. 

15. apríl 2012

           Kýkti á hryssurnar í morgun og það er bara farið að koma heilmikið undir Eldingu sérstaklega, en hún er svosem búin að eiga nokkur folöld í röð svo það hefur líka kannski áhrif, en þær eru fimm hryssur sem eru komnar á fæðingardeildina :) og svo Erla önnur sem fær að vera með þeim en það á að taka DNA úr Erlunum mínum svona um leið og tekið verður úr tryppunum.

        Sigga og Arnar komu svo uppí sveit en Sigga var eftir heima því Arnar er að fara í bæinn og á að mæta í vinnu klukkan sex í fyrramálið. 

14. apríl 2012

           Annars mikið um að vera í sveitinni í dag,   Í dag fóru svo Goðverjar í hina árlegu menningarferð og ég var nú ekki frá því að það hefið bara verið rosalega gaman, en héðan fóru Jonni og Ingþór, Reynir Bjössi, Dóri Kjartan Gunnar og Magga kærastan hans Kjartans.  Við Inga fórum í bæinn að stússast í kringum Siggu já og fórum í Rúmfatalegarinn í leiðinni en það er jú alveg nauðsynlegt þegar farið er í bæinn.  Komum svo við hjá mömmu og pabba í heimleiðinni en mamma miskunaði sig yfir mig og sótti lyfin mín út í apótek en ég var á hraðferð í morgun og mátti ekkert vera að því að koma við þar.

13. apríl 2012

         Búin að vera löt við að uppfæra og því búin að gleyma næstum öllu sem er búið að vera í gangi undanfarna daga en man þó að það kom eitt lamb eitthvern daginn.  Seinnipartinn var byggingardómsdagurinn hjá Goða mikið af hrossum mættu og enn fleira fólk en þetta tókst bara ljómandi vel.  Að þessu sinni var þetta haldið hér heima í Miðengi.  Þetta var varla búið þegar við Bjössi og Jonni og Linda skelltum okkur á Selfoss að sjá Reiðmenn vindanna og Karlakór Selfoss VÁ hvað þetta var rosalega flott allgjör snilld bara.

10. apríl 2012

           Fór á Selfoss í morgun að ná í steinefnafötur í skjáturnar, nú og lambamerkin sem biðu á pósthúsinu.  Eftir hádegið fór ég svo í fjárhúsið og ætlaði að taka myndir af lambinu sem urðu svo myndir af lömbunum en það voru tveir gemsar bornir í viðbót, önnur þeirra er meira að segja prívat kind frá mér :) og ég fékk ,,saffranótta" gimbur ekki leiðinlegt það.  Dóri og Perla komu svo heim frá Kanarí seinnipartinn  mikið gott að vera búin að fá þau heim. 

9. apríl 2012

            Fór með Gaurinn í systkinapartý í dag, hann var nú ekki á því að fara í bílinn, hann var jú nýkominn út með Arnari og Siggu og fannst þetta bara fúlt, en við hittumst úti á túni hjá Gunnu þar sem hundarnir hlutu endalaust bara, næst var farið að kýkja á kindurnar hennar Gunnu þannig að Gaurinn var nú búinn að fyrirgefa mér þetta fljótlega.  Næst var það pönnukökur og spjall heima hjá Gunnu, ég hitti á Siggu og Arnar við sjoppuna og við skiptum á bílum ég fékk Dóra bíl og þau fengur sveitabílinn og Gaurinn, endalaus hamingja hjá honum, enda er hann orðinn svo þreyttur undir kvöld að hann sefur bara þessi elska.  Á morgun koma svo Dóri og Perla já og allir Kanarífararnir heim það verður nú ansi gott að fá krakkana heim.

8. apríl 2012

             Páskadagur í dag og fyrsta lambið komið, það var gemsi sem reið á vaðið og átti lambakónginn, þessi gemsi var  víst á eitthverju flakki um fjárhúsið í nóvember, fór bara það sem henni hentaði og úr því varð lamb.

7. apríl 2012

          Fór í morgun ásamt Kjartani Gunnari í Ölfushöllina að horfa á ungfolana, Jonni og Bjössi voru farnir á undan með Dynjanda.  Þetta var bara rosalega gaman og gekk vel Dynjandi komst nú samt ekki á verðlaunapall en fékk mjög  fínar tölur.  Að mínu mati var svo stórstjarnan hann Haukur frá Haukholtum þvílíkt flottur foli sem er bara tveggja vetra, mér fannst hann bera af.

6. apríl 2012

           Föstudagurinn langi í dag og páskareiðtúr.  Hestarnir voru keyrðir að Ormstöðum, þar sem voru þvílíkt flottar veitingar. Sykursaltað svínakjöt, bjór og ýmislegt fleira. Miðengismenn fóru með 18 hesta en það voru 17 knapar héðan.  svo vorum við fjögur í bílnum.  Þetta gekk bara rosalega vel en það voru 38 menn og konur að þessu sinni í reiðtrúrnum líklega algjört met og rosalega vel lukkað.  Það var svo riðið til Hólmars þar sem biðu rjómapönnukökur og gott ef ég sá ekki Koníak líka.  Frá Minni Borg reið svo hver til síns heima.  Miðengismenn voru komnir heim um sex leitið og þá vorum við tilbúnar með Kjúklingasúpu.  Frábært dagur og allir alsælir.  Nú svo í kvöld spurði Hjalti Pétur hvort það ættu að vera naut úti en þá höfðu smákálfarnir laumað sér út en það gekk nú ágætlega að ná þeim aftur inn.

5. apríl 2012

           Við Inga fórum í dag uppað Fossi til Sigriðar og sóttum tvo kálfa það gekk bara ljómandi  vel.  Annars bara lítið um að að vera, vorveður orðið alla daga. 

4. apríl 2012

           Fór á Selfoss í morgun með tengdó og búin að versla það sem ég mundi en fór samt með miða eða litla blokk en týndi henni áður en ég komst í Bónus,,,,þetta er ekki á allra færi.  Við Sigga heimsóttum svo Hönnu Kötu í dag mikið gott og gaman að kýkja á hana takk fyrir okkur.  Nú svo fór ég með Siggu og Arnari og kýkti á uppsveitadeildina þetta gekk allt saman nokkuð hratt fyrir sig og ég komin heim um tíu leitið. 

3. apríl 2012

        Fór á námskeið í dag í sauðburðarfræðum, en náskeiðið var haldið á Hestakránni það var bara rosalega margt á námskeiðinu og voðalega gaman, maður lærði ýmislegt og annað vissi maður en semsagt bara gaman og fróðlegt.   Kom svo aðeins við í Krónunni á leiðinni heim en áttaði mig svo á því að það eru að skella á páskar og ég á alveg eftir að versla inn, en hvað um það ég dey svosem ekki úr hungri, en fer örugglega að versla á morgun, líklega betra að vera með miða áður en ég legg af stað og muna svo eftir að lesa á miðann hehe

       Krakkarnir fóru svo með Gaur og Skvísu á hvolpanámskeið og gekk bara svona ljómandi vel, næst verður það 11. apríl og hver veit nema hægt verið að drusla Skjóna og Dóra Kanarífara með :) 

2. apríl 2012

          Fór með bílinn í skoðun í morgun en það var semsagt breytingarskoðun af því að það er búið að setja stól á hann, nú og svo fór ég með hann í venjulega skoðun í leiðinni og fékk grænann miða :( þoli ekki þessa grænu miða en þetta er nú ekkert stórvægilegt, vantar ljósið yfir númeraplötunni að aftan held nú að það sé alltaf bilað nú og svo er handbremsan óvirk öðru megin held ég, lítið mál að laga það sögðu þeir, svo ég þarf bara að blikka góða menn ;)

         Veðrið bara ljómandi ennþá en það var nú samt allt hvítt í morgun en það entist nú ekki fram að hádegi ;)  

1. apríl 2012

         Það er bara kominn apríl,sé að trén í garðinu hjá mér hafa látið plata sig en held að það eigi nú að fara á snjóa smá á morgun svo þau verða bara að átta sig á að við erum á Íslandi.    Annars bara allt við það sama ég druslaðist út í fjárhús í dag og kýkti á gráa hrútinn sem við fengum héðan úr Ásagarði um daginn hann lítur bara vel út. Heyrði aðeins í Dóra seinnipartinn og bara gaman hjá honum svo heyrði ég í mömmu bæði í gær og dag en það er komið fararsnið á eðalfrú sem við þekkjum og önnur kvaddi í morgun, en þetta er bara gangur lífsins sér í lagi þegar fólk er komuð um og yfir nírætt. 

31. mars 2012

          Fermingrveisla hjá Adam og Hafdísi í dag en það var verið að ferma Elvar.  Veislan var á Borg og var bara flott, takk fyrir okkur.  Nú svo var farið í hesthúsið og heilmikið stússast þar búið að taka frá nokkur folöld sem á að byrja að gera bandvön en það eru þau Kaldi undan Kötlu og Tintron, Hríð undan Hildi og Forseta og svo hann Magnús undan Eldingu og Tintron.

 30. mars 2012

           Búið að stilla upp hýsinu hér fyrir utan og þetta kemur bara vel út.  Fór svo út á Borg að fá gas þannig að þetta verið  nú alveg klárt til notkunnar, en sjálfsagt verður þetta gestahús svona fyrst um sinn þvi ekki fer maður að ferðast mikið fyrr en í sumar.  Annars er veðrið búið að vera rosalega gott í dag, eiginlega vorveður bara.  Lára kom svo í dag og var með hvolpanámskeið  en Sigga fór með Skvísu og Arnar fór með Gaurinn þetta gekk bara rosalega vel, bæði krakkarnir og hvolparnir stóðu sig rosalega vel.  Nú svo kom Finnur með fjögur folöld þannig að það er alltaf eitthvað um að vera.

          Adam kom svo í hádeginu ásamt Elvari en hann var að púsla saman bílnum sínum, tengdamamma kom svo að kýkjá á hýsið og Gunni Har kom líka í kaffi.

          Dóri og Perla eru svo farin til Kanarí með fjölskyldunni hennar Perlu og mér sýnist nú á myndum að þau hafi það bara rosalega gott, sóla sig sjálfsagt allann daginn en Dóri passar sig nú að vera þokkalega klæddur svo hann brenni nú ekki. 

29. mars 2012

         Rosalega gott veður í dag ég meira að segja hengdi út þvott svo er bara spurning hvenær ég man eftir að taka hann inn.  Sótti svo fína hýsið set inn mynd af því á morgun, en þetta er bara flott.   

28. mars 2012

        Fór með bílinn til IB í morgun að láta setja stólinn á hann en það er semsagt búið að fjárfesta í hýsi ;)   geri ráð fyrir að geta sótt það á morgun.  Fyrir hádegið var ég svo hjá Völu en hún er búin að vera veik svo ég sat hjá henni á meðan Bensi var að stússast úti.  Annars fórum við tengdamamma aðeins á Hellu í dag bara gaman að því og fékk þar rosalega flotta pokahryssu :) þetta er semsagt hryssa í kjól sem hengd er uppá vegg í eldhúsinu og plastpokar geymdí henni. 

27.mars 2012

          Fór í bæinn í morgun og tók tengdamömmu með.  Ég var semsagt að fara í mitt mánaðarlega Tysabri og gekk bara vel eins og svosem alltaf.  Kýktum svo aðeins í búðir og að sjáflsögðu var rúmfatalegarinn efstur á blaði, alltaf eitthvað þar sem manni ,,vantar".    Tókum svo Perlu með okkur heim þegar hún var búin í skólanum en Dóri þurfti að vera eitthvað lengur.  Allt krakkastóðið svo heima :) bara gaman af því. 

26. mars 2012

           Fór í morgun í B-12 sprautu í Laugarás, kom svo við hjá Hönnu Kötu í bakaleiðinni og fór í orkupunktajöfnum held að þetta geri mér bara gott allavega fannst mér þetta bara frábært, takk æðislega fyrir mig kæra vinkona.  Nú svo var kaffi og heilmiið spjallað eins og gengur. 

25. mars 2012

          Við Inga fórum í femingarveislu í dag en það var verið að ferma hana Ellen Ósk dóttir Regínu og Jóseps, rosalega flott veisla hjá þeim og flott stelpa.  Takk fyrir okkur.

       Dóri og Perla fóru svo og sáu Vesalingana og voru alsæl held ég þeim fannst þetta rosalega flott enda ekki annað hægt. 

        Nóg að gera á morgun en þarf að fara í B-12 sprautu og svo ætla ég að heimsækja hana Hönnu Kötu og fara í orkupunktajöfnun mikið held ég að það sé sniðugt er rosalega spennt :) 

24. mars 2012

           Heilmikið um að vera í dag, Sigga, Arnar, Bjarki og Hjalti Pétur mættu í morgun og um hádegið þá fórum við Perla á Selfoss, Perla í ræktina og ég hitti Gróu, Tona Svenna og Stefán og við kýktum á hýsið þetta lítur alltaf jafnvel út vonandi verður hægt að klára þetta dæmi eftir helgina.
        Þá drifum við okkur heim í kaffi, svo var farið í hesthúsið og Emmi skoðaður og myndaður í bak og fyrir.  Páll Imsland kom svo og nældi sér í hárbrúsk úr Erlu og Jökli og hann myndaði Jökul í bak og fyrir vonandi náði hann góðum myndum af augunum í honum en hann er með ægishjálm og ljósbrúnbleika augnumgjörð.
        Svo fékk ég nú ansi spennandi mynd senda í e-mail en hún var tekin hér úti í sumarbúðstaðhverfi við 5. braut en þar var kominn grái hrúturinn sem búið var að leita mikið að og í raun afskrifa.  Guðni Reynir og Bjarki fóru og skönnuðu svæðið og fundu hrútinn svo hann er kominn heim í hús og leit bara þokkalega út miðað við árstíma og hversu snjóþungur veturinn er búinn að vera.
         Nú svo var farið á hestbak fullt af fólki sem fór á bak krakkarnir fóru svo á Selfoss og enduðu sum á balli önnur fóru nú bara heim að sofa hef ég trú á.
         Nú Adam kom að sækja rúllu en bíllinn bilaði hjá honum svo hann fékk L200 til að fara með rúlluna því ekki mega hrossin svelta.  Vonandi tekst nú að koma bílnum í lagi með litlum kostnaði.

          Á morgun förum við Inga svo í fermingarveislu en það er verið að ferma hana Ellen og verður veislan í Grafarvogskirkjunni, rosa fínn salur þar. 

23. mars 2012

            Hún Erla önnur er komin heim að norðan, hún kom hér snemma í morgun og bara nokkuð kát :) ég er allavega rosalega kát með hana hún er bara mjög falleg og dálítið frek eins og gengur með okkur dömurnar hehe.  Annars mikið riðið út hér í dag enda líka rosalega gott veður.   Ég skaust svo á Selfoss og mundi eftir að kaupa næstum allt sem mig vantaði og helling sem ég vissi ekki að vantaði hehe.  Gunni Har kom svo við í kaffi í dag. 

22. mars 2012

             Rok og rigning meira og minna í dag.  Kom nú ekki miklu í verk í dag frekar en oft áður.  Á annars von á henni Erlu minni í kvöld eða morgun en hún er að koma að norðan. Ég reyndar bakaði pönnukökur í dag en það gerist nú ekki oft.  Bjössi fór svo á Selfoss í kvöld á reiðnámskeið veit nú ekkert með hvaða hross hann fór með núna. 

21. mars 2012

             Miðvikudagur í dag og á miðvikudögum eru fótboltaæfingar á Borg og þá er dálítið rennerí á krökkunum hér.  Nú og svo var fótbotaleikur í sjónvarpinu þannig að þau voru alveg föst yfir leiknum þó svo hann færi nú ekki nógu vel skildist mér.

         Ég, Bjössi og Jonni fórum svo á Selfoss í kvöld að skoða ferðavagn og held að þetta sé bara málið svo nú þarf maður ekki að leita meir.

         Þegar ég fór svo að sofa í gærkvöldi og opnaði gluggann þá gaus upp þessi líka rosalega brunalykt, Bjössi og Guðni Reynir fóru út og skoðuðu öll hús og allt í lagi ég hringdi þá til að forvitanst hvað væri í gangi og hvort við þyrftum að fara að leita að eldi en þá var slökkvuliðið að brenna hús og æfa sig svo það var skýring á þessu og sem betur fer ekkert að brenna sem ekki mátti brenna.

20. mars 2012

          Fór héðan af stað í morgun um fimm leitið en ég skutlaði mömmu og pabba uppá flugvöll en þau eru að fara til Canari í sólina. 

19. mars 2012

  Frumburðurinn 23. ára í dag til hamingju með daginn þinn Guðni Reynir minn

            Fór á Selfoss um hádegið í dag og kýkti svo á Engjó og fékk kaffi hjá krökkunum.  Bragi kom svo hér í dag og hjálpaði til við að úrbeina rollurnar sem var lógað um daginn.  Sigga og Arnar komu svo í mat í tilefni dagsins en það var folaldafille og folaldalund með rjómasveppaostasósu bara gott.

18. mars 2012

         Frábær helgi að baki, fórum í voða fínann morgun/hádegismat ásamt hópnum, þetta var bara rosalega gott.  Vorum komin heim uppúr hádeginu og húsið alveg glansandi fínt.

        Fékk svo voða skemmtilegar fréttir af Tintron og Hvata en þeir fóru í byggingardóm þarna úti í Austurríki og Tintron fór í slétta 8 og Hvati í 8.39 sem er nú bara frábært. 

17. mars 2012

         Heilmikið stúss á okkur í dag en mættum snemma í morgunmat og fórum svo að heimsækja Hödda og Möggu og fá smá viðbótar morgunkaffi svo var farið í búð sem heitir Toppskór held ég og er í Grafarhotlinu og átti að vera rosalega ódýrt en þetta var bara alls ekkert ódýrt svo við fórum bara í Hagkaup og fengum þar fína skó.  Svo var kýkt í Kolaportið en þangað höfðum við Bjössi bara aldrei farið.  Nú svo var haldið uppá hótel.  Restin af mannskapnum mætti svo þar og hluti af fólkinu fóru í Ráðhúsið á kynningu held ég en ég og Árni og Sigrún fórum í Spaið á meðan.  Hittumst svo öll 13 í lobbýinu og fórum á Sólon og borðuðum þar, síðan var stefnan tekin í Þjóðleikhúsið að sjá Vesalingana, ekkert smá flott sýning fannst mér algjört æði bara.  Aftur farið á Sólon og fengið sér bjór, hluti af fólkinu labbaði svo uppá hóltel með viðkomu á nokkrum börum en ég ásamt fleirum tókum bara leigubíl uppá hótel.  Mikið skemmtilegt kvöld enda í frábærum hóp.  Ansi skemmtilegur misskilingur sem var þarna í lobbýinu áður en við fórum og við eigum eftir að skemmta okkur lengi yfir þessu.

16. mars 2012

           Lögðum af stað í bæinn uppúr hádegi, Sigga og Arnar mættu hér fyrir hádegi og ætla að hugsa um búið með Guðna Reyni og Dóra, já og passa Gaurinn.  Við  byrjuðum á að fara á Selfoss með gallann hans Dóra í viðgerð til mömmu, svo fórum við í ríkið, hver hefði nú trúað því, svo var brunað í bæinn, kýktum aðeins í Víkurverk og í Höfðahöllina.  Fórum svo á Sögu og hittum þar Þóru og Jonna og Lindu.  Fórum svo og fengum okkur að borða á Kringlukránni en þaðan var svo farið í Borgarleikhúsið að sjá Saga Þjóðar, rosalega skemmtileg sýning fannst mér, þarna hittum við svo Kötu og Árna með fj nú og eitthvað var af Selfyssingum þarna já og allavega einn Grímsnesingur.  Bara skemmtilegt kvöld. 

14. mars 2012

            Bara snjókoma í dag, ég fór nú samt í Gunnbjarnarholt að ná í boltabyssu og Inga dreif sig með í bíltúr.  Nú krakkasúpan var svo öll hér heima í kvöld en strákarnir byrjuðu á að fara á æfingu út á Borg og svo var það fótboltaleikur í sjónvarpinu, en leikurinn fór bara vel fyrir Chelsea enda lætin svo mikil að aumingja litil Gaur laumaði sér bara í fangið á Arnari og var bara þar.

        Svo er Perla komin með vinnu með skólanum og byrjar á mánudaginn hugsa að þetta verði bara sumarvinna hjá henni líka. En hún er að fara að vinna á Selfossi nú og svo er Dóri komin með vinnu líka í sumar að öllum líkindum og hann verður að vinna í hrossum sem er er bara frábært enda þarf hann þess þar sem hann er jú á hestabrautinni í FSu og þarf að vera að vinna hjá hestamanni sem skólinn samþykkir til að fá auka einingar skilst mér.  Hann verður rétt fyrir utan Selfoss svo þetta passar alveg fyrir þau. 

13. mars 2012

           Fór um hádegið að sækja bílinn og ekkert smá finn, nýbónaður og alles.  Fór svo aðeins í Húsasmiðjuna og svo í Krónuna og fór nú með miða í Krónuna en það eina sem ég ætlaði að kaupa var hveiti, og með miðann í höndunum keypti ég ýmislegt en ekkert hveiti áttaði mig svo ekki á því fyrr en ég kom heim, og ath það eina sem stóð á miðanum var hveiti.  En það gerir ekkert til því ég keypti nammi sem ég á jú að borða samkvæmt læknisráði hehehe.... svo var það apótekið að sækja mígrenilyf.  Næsta stopp var í IB að fá tölvukubb í bílinn svo hann myndi nú eyða aðeins minna en var búin að fylgjast með á mælinum að þegar ég fór t.d norður í sumar þá eyddi hann 11.5 ca á hundraðið en það var miðað við að keyra á crusinu og langkeyrsla.  Prufaði svo að núlstilla mælinn þegar ég beygði uppí Grímsnes og hann eyddi 9.9 l á hundraði á þessum kafla þannig að þetta er klárlega að virka. 

        Þegar ég kom svo heim þá mætti Kjartan Gunnar en það átti að slátra fjórum rolluskjátum,  Bragi kom svo líka að hjálpa til þannig að þetta er allt að gerast. 

12. mars 2012

              Ætlaði nú eiginlega á Selfoss í dag en nennti svo ekki að fara enda svosem ekkert sem ekki mátti bíða til morguns en Sævar Ingi tók að sér að þrífa bílinn en það er eitthvað sem er búið að trassa ansi lengi.

         Svo hringdi Pétur læknir í mig og ég búin að fá út úr blóðprufunni og ég er betri en ný eins og ég vissi bara alveg fullkomin svo nú er hægt að reka það ofaní Hauk lækni ;) en er nú reyndar dálítið lág í sykri eða 3,6 svo ég má bara borða meira nammi ekki slæmt það, svo ég fer bara í það næstu daga.... 

11. mars 2012

             Hér kláraðist rúningurinn um kaffileitið þetta gekk bara ljómandi vel og var bara gaman.  Auður og Siggi komu svo við hér með krakkana.  Annars bara allt við það sama.   Adam kýkti við en hann var að sækja sér rúllu í hrossin.  Fórum svo einnipartinn á Selfoss og kýktum á hýsi sem við erum að spá í fyrir sumarið svo er bara að sjá hvað verður.

10. mars 2012

             Tekinn skurkur á rúningi í dag og gekk bara vel, hugsa að þetta fari langt á morgun klárist jafnvel.  Ég fór svo eftir hádegið með Dóra og Bjarka uppað Flúðum en Dóri var að keppa í Smala í Uppsveitadeildinni en hann er að keppa í unglingaflokk, hann fór á Hæring og gekk bara rosalega vel og endaði í þriðja sæti af fimmtán.  Gunni Har var svo mættur hér í rúninginn þegar ég kom heim en við sannfærðum hann um að það tæki því nú ekki að fara heim fyrst hann ætlar að mæta aftur á morgun.    Krakkaskarinn farinn á Selfoss en þau mæta aftur í fyrramálið.

           Sé svo hér á síðunni minni að það er ansi þétt dagskráin hjá mér í mars bara gaman að því. 

9. mars 2012

              Fór á Selfoss í morgun og fannst ég nú bara komst á þó nokkra staði á stuttum tíma.  Eftir hádegið var svo byrjað að rýja féð en snoðið var tekið af lömbunum en á morgun verður tekið af slatta af fé og restin á sunnudaginn held ég.  Nú þeir sem voru að rýja voru Brúney og Kjartan Gunnar, Guðni Reynir, Hjalti Pétur og Arnar prufuð að taka af nokkrum skjátum.  en þeir sáu svo um að vera klárir með féð  í rúning ásamt Baldvin og Bjarka nú og svo vorum við Siggi að skottast þarna í kringum þau líka.  Gunni Har kýkti svo í rúninginn líka.  

8. mars 2012

            Kjartan Gunnar kom hér seinnipartinn en þeir Dóri fóru svo á meistaradeildina.  Bragi kom svo hér með hana Svörtu Gránu aftur heim en hún er nú tæpast tilbúin í tamningu en ég átti nú svosem von á því en í staðinn fór hann með Spari Brúnku sem er orðin vel þorskuð og nokkuð efnileg.

7. mars 2012

          Fór í Laugarás í morgun í blóðprufur en á nú von á að það sé allt í fínu standi en þetta er nú bara gert til að róa hann Hauk lækni í bænum.  Nú í bakaleiðinni kom ég svo við hjá Hönnu Kötu og stoppaði bara þó nokkuð lengi þar í kaffi og hitti þar Hildi líka sem var einmitt að koma við í kaffi líka bara gaman.   Þegar ég kom heim fór Bjössi með Svörtu Gránu í Laugardæli en við Bragi erum að bralla eitthvað og vonandi gengur þetta bara upp, nú annars finnum við eitthvert annað hross, af nógu er að taka. 

6. mars 2012

             Mikið riðið út hér í dag, Sigga, Arnar og Styrmir fóru allavega tvær ferðir nú og svo var bara verið að stússast í kringum hrossin.  Ég skaust svo á Selfoss seinnipartinn að sækja mólkina í mjólkurbúið.  Sótti svo hundamat í gömlu hundana, en gleymdi því í gær eins og gengur. 

5. mars 2012

             Við Sigga fórum á Selfoss  í dag og kýktum aðeins við hjá mömmu og pabba, þegar ég kom svo heim var Gunni mættur í kaffi bara gaman að því en annars er bara allt við það sama. 

4. mars 2012

              Fínt verður hér í dag.  Dóri skaust á Selfoss um hádegið og sótti Perlu sína.  Dálítið rennerí hér í dag á fólki, Hjalti Pétur kom til að horfa á boltan með strákunum.  Mamma og pabbi kýktu við í kaffi, Dóra, Bubbi, Stjáni og Aron komu líka við.  Nú svo kom hann Haddi frá Skálabrekku hér í heimsókn og sagði mér ýmislegt fróðlegt, en hann sagði mér jafnframt að hann hefði orðið sjötugur í haust. 

          Nú úr hesthúsinu er það að frétta að Spuni hans tengdapabba veiktist og var með garnaflækju og ekkert hægt að gera nema svæfa hann alltaf leiðinlegt þegar svona er. 

3. mars 2012

           Ansi hvasst og leiðinlegt verður hér í gærkvöldi og nótt en svo var bara fínt verður í dag.  Gróa og Toni komu hér við í morgunkaffi mikið gaman að hitta þau.

            Mikið riðið út nú og svo fórum við Gunni Har ásamt Auði og Gunnu að smala en það var semsagt tvílemba sem hafði sést nálægt Þóðroddsstöðum sem stefnan var tekin á.  Þær stelpurnar náðu skjátunni á meðan við Gunni vorum á bílnum þetta reyndist vera kind frá Auði sem hafði skilað sér í haust og verði sett niður á mýri og lömbin á kálið, hugsa að hún hafi nú vitað í hvað stefndi og því bara farið og sótt lömbin sín og lagst út,  hún þarf nú varla að sjá eftir því því bæði lömbin lifandi og í fínu standi nú og Auður fær klárlega lömb úr rollunni í vor já og gimbralambinu en hitt lambið var hrútlamb. 

1. mars 2012

              Letidagur hjá mér í dag, sat nú samt við tölvunna eins og fleiri í hádeginu í von um að fá miða í góð sæti á Freddie Mercury tónleikana í Hörpunni og það tóks erum að fara nokkur saman og þetta verður bara gaman held ég.   Annars bara lítið um að vera. 

29. feb 2012

              Skutlaði Perlu í skólann í morgun og fór svo með bílinn hans Guðna til hans Gests í smurningu.  Sigga og Arnar skutluðu svo Dóra á Selfoss með hross en hann var að keppa en þessa dagana eru kátir dagar í skólanum, svo það er ýmislegt skemmtilegt um að vera.   

28. feb 2012

            Við Þóra fórum í bæinn í morgun ég skutlaði Þóru á rútuna  og fór svo uppá spítala, byrjaði á að fara til sjúkraþjálfara í allskonar próf, þau sömu og ég fór í fyrir ári og bara heilmikil framför.  Nú svo var það tveggja ára viðtalið við Hauk, mikið spáð og spuglerað varðandi lyfjagjöf og ég get í raun farið fram á að fá Gyneria nú eða halda áfram á Tysabri, kostir og gallar við báðar niðurstöður en líklega held ég mig við Tysabri, það er að virka svo vel og svo er það bara 3,9 af 1000 sem fá heilabólgu og ég ætla bara ekki að vera ein af þeim.  Auðvitað hefði verið best að vera neikvæði í eitthverri blóðprufu fyrir jólin en nú er bara að vona að þetta verði í lagi.  Kom svo við á Selfossi og sótti Perlu og við fórum svo í Bónus nú og svo var bara farið heim.

27. feb 2012

            Fór uppí Laugarás í B-12 sprautu í morgun, kom svo aðeins við í sjoppunni líka.  Nú eftir hádegið fórum við Þóra og kýktum í kaffi til mömmu og pabba og tókum svo Perlu með okkur heim en Dóri var búinn í skólanum á undan henni, svo hann dreif sig heim og fór á hestbak.  Við komum aftur dálítið seinna heim.

26. feb 2012

            Búið að rigna mikið í dag, krakkarnir fóru að tínast í burtu eftir hádegið, Sigga og Arnar þurftu að fara í bæinn, Bjarki og Hjalti fóru svo á Selfoss.  Nú eftir hádegið þá fór ég í bæinn að ganga frá pappírum en við gáfum Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna sumarhúsalóð hér við Bústjórabrautina, en þessi lóð er til minningar um Gumma Þór frænda.  Hugsa að þetta verði kallað Gummalundur til minningar um alla Gummana frá Miðengi en þeir voru þrír í beinann karlegg sem allir eru farnir.  Gurra kom svo uppá félag og vottaði pappírana, mjög gaman að hitta hana og hafa hana með í þessu stússi.  Mikið búin að hugsa um að drífa þetta af og klára en það stóð nú til að klára þetta 18 janúar á afmælisdaginn hans Gumma en þá var bara svo leiðinlegt veður svo dagurinn í dag varð fyrir valinu en þetta er fæðingardagurinn hennar Halldóru langömmu okkar Gurru.

25. feb 2012

             Allt hvítt hér í morgun og snjóinn tók bara ekki upp í dag, fór svo að slydda undir kvöld ekki spennandi veður.  Jonni, Bragi og tengdapabbi kýktu hér við í kaffi nú og tengdamamma en Bragi var að taka myndir af hrossum.    Ég fór svo seinnipartinn að sækja Perlu en hún var á Spóastöðum hjá Áslaugu við komum svo við í Pizzavagninum á leiðinni heim ekki leiðinlegt það nú svo var pizzaveisla nú og svo áttum við eitt læri síðan í hádeginu sem Guðni Reynir, Arnar, Bjössi og Þóra voru voða hrifin af en krakkarnar komu frá Selfossi til að horfa á bardagann í sjónvarpinu í kvöld og fara á hestbak. 

24. feb 2012

             Matarklúbbur í kvöld í Miðengi og tókst rosalega vel, í þetta sinn vantaði bara Jóu og Snæbjörn en hann er á sjónum.  Krakkarnir fóru uppað Flúðum á ppsveitadeildina en Kjartan Gunnar var að keppa á Mósa og Sölvi fékk Hæring lánaðann þetta gekk bara ljómandi vel en því miður gerði Sölvi ógilt í úslitum en gaman samt hvað gekk vel að öðru leiti hjá strákunum. 

23. feb 2012

            Í morgun var nú ekki alveg ljóst hvort það ætlaði að rigna eða snjóa en svo endaði það í rigningu.  Skaust á Selfoss að versla fyrir matarklúbbinn sem verður hér annað kvöld þetta verður bara gaman og lítur út fyrir að verða góð mæting.  Dóri er svo farinn á meistaradreildina.  Sigga eitthvað að lagast en samt ekki nóg en hún verður orðin eldspræk á morgun hef ég trú á.  

22. feb 2012

           Rosalega fínt veður í dag.  Ég fór nú samt ekki mikið út rétt kýkti á púddurnar og tók svo eina mynd af litföróttu hryssunni minni sú er orðin sver bara eins og hún sé komin að köstun en það er ekki von á folaldinu fyrr en um mánaðarmótin apríl-maí.

          Gunni Har kýkti svo hér í kaffi, tengdamamma kom líka í kaffi, mamma og pabbi kýktu hér við í dag, og Adam kom við en hann var að sækja rúllu.  Einhvað var af fólki í hesthúsinu í dag allavega doktorinn og svo Ingþór og Hulda, Bragi og líklega Áki voru líka á sveimi hér.  Bjössi, Bensi og Reynir fóru í bæinn að sækja timbur alltaf hægt að nota timbur í sveitinni.  Strákarnir fóru á fótboltaæfingu, nú og Sigga er að drepast í maganum vonandi verður hún skárri á morgunOg samt finnst mér nú bara allt búið að vera í rólegheitum hér í dag.

          Ég skaust svo aðeins á Selfoss og þarf örugglega að fara aftur á morgun.

21. feb 2012

Magga á afmæli í dag til hamingju með daginn kæra vinkona :)

           Sauð hér saltkjöt í dag, og Sigga og Arnar komu í mat, ég fór svo eftir hádegið með Perlu í bæinn við snérumst helling í bænum og vorum komnar austur um sjö leitið held ég.  Við fórum á Siggu bíl í bæinn og auðvitað gleymdi ég mjólkinni í bílnum hennar Siggu á Selfossi en Dóri fer í kvöld að sækja Perlu sem er núna farin að æfa fimleika á Selfossi og hann gleymir vonandi ekki mjólkinni á Selfossi.  Á morgun fara svo karlarnir í bæinn að sækja timbur sem þeim áskotnaðist. 

20. feb 2012

          Kýkti í morgun til Lindu en ég fór semsagt með afganga í púddurnar og kýkti í vesturbæinn í leiðinni.  Rosalega gott veður í dag og mikið riðið út að vanda hér á bæ.  Ég skaust aðeins á Selfoss í dag vantaði mjólk og þurfti að henda bréfi í póst.

        Guðni Reynir skellti sér svo á aðalfund sauðfjárræktarfélagsins Barms en ég nennti nú ekki að fara, fer kannski bara á næsta ári. 

          Gaurinn litli er nú ekki svo lítill lengur hann bara blæs út, og sefur minna á daginn og óþekktast meira eins og gengur þegar hvolpar stækka. 

19. feb 2012

           Kjartan Gunnar á afmæli í dag til hamingju með daginn :)

           Bakaði fullt af bollum í dag enda bolludagur á morgun, nú svo kom afmælisdrengurinn með fríðu föruneiti hér í dag með þessa líka flottu afmælistertu,  ekkert smá flott þegar afmælisbarnið kemur bara í kaffi með tertu :)  ég bakaði svo slatta af bollum en það er bolludagur á morgun.  Brúney, Kjartan Gunnar, Baldvin, Siggi, Eva, Jósep og Kristberg komu semsagt í kaffið en Kjartan var að prufa hest fyrir Evu.  Það gekk bara svona ljómandi vel. 

         Hér var svo logn og snjókoma í morgun en svo eftir hádegið var komin rigning.  Dóri og Perla fóru svo út að borða í kvöld í tilefni konudagsins en maður er búin að éta á sig gat af afmælistertu svo Bjössi slapp vel :) hefði ekki getað étið bita meir :)

18. feb 2012

             Eydís vinkona Perlu kom hér seint í gærkvöldi en systir hennar skutlaði henni austur, það var bara bylur á heiðinni svo ég sagði krökkunum að það væri ekkert vit að fara aftur yfir heiðina um nóttina og ég fékk þau til að samþykkja að gista hér og fara ferkar í björtu.  Þau fóru svo suður í morgun.  Nú það var svo Þorrareið á Selfossi í dag, Ingþór kýkti hér í morgunkaffi og svona til að græja dótið sitt.  Það var svo lagt af stað héðan með tvær kerrur og níu hesta ekki amalegt það.  Þorrareiðtúrinn gekk bara ljómandi vel, ég reyndi nú að telja og held að ég hafi komist í 130 knapar en það eru sam alveg óstaðfestar tölur.   Við Sverrir keyrðum svo hrossin uppeftir og held að öll hross hafi verið komin í hús og búin að fá að éta um sex leitið.  Þá átti eftir að koma mannskapnum heim.  Sótti Bjössa, Jonna, Adam, Gumma Þór og Ingþór út í Hlíðarskjálf og fór með þá á Engjó, en þeir stoppuðu nú ekkert lengi þar, held að allir hafi verið komnir heim til sín fyrir miðnætti já og sumir fyrr.

17. feb 2012

             Fór í morgun með Undramund í bæinn í augnskoðun og allt í góðu lagi með hann.  Kom við í Bónus á leiðinni heim.  Veðrið bara ágætt en var nú orðið frekar napurt seinnipartinn.  Lúsalyf sett í hrossin seinnipartinn.  Nú svo kom Adam og sótti sér rúllu í sín hross.  Á morgun á svo að fara í þorrareið á Selfoss held að það séu átta manns sem fara héðan en er ekki alveg klár á tölunni en allavega eru þau sex sem fara úr þessu húsi.  Bjössi, Sigga, Arnar, Dóri, Perla og vinkona hennar Perlu sem heitir Eydís. 

16. feb 2012

            Lítið um að vera hér, gott veður samt og mikið riðið út.  Dóri var á járningarnámskeiði eftir skóla en það er  inní hestabrautinni hans í skólanum.  Gunni Har kýkti svo hér í kaffi og og skutlaðist á Selfoss og sótti Perlu í skólann.

15. feb 2012

            Ágætt verður í dag, Dóri var mikið heima og gat því riðið heilmikið út.  Mamma, Pabbi og Vala komu svo hér við í dag.  Brúney og Kjartan Gunnar komu líka við.  Það kom svo sláturbíll hér í dag og sótti eitt naut. 

14. feb 2012

            Skaust á Selfoss í morgun allt orðið kaffilaust.  Krakkarnar komu svo um hádegið og mikið riðið út í dag enda bara rosalega fínt veður.  Vala kýkti svo í heimsókn til mín eftir hádegið en það er vetrarfrí í skólanum þessa dagna.  Nú svo í kvöld fóru Bjössi og Guðni Reynir á C lista fund.  Perla fór á fimleikaæfingu og Dóri skutlaði henni svo við Gaurinn erum bara ein í kotinu.

         Uppfærði svo niðjatalið en það eru komin nöfn á tvö af þremur börnum.  Ármann Andrason og Apríl Lea Pétursdóttir en Lúlú er langaamma þeirra beggja.  Vantar enn nafn á litlu dömuna hjá Gunnari Páli og Völu allavega er ég ekki búin að frétta af nafni þar. 

13. feb 2012

          Skaust á Selfoss í morgun með tengdó en henni vantaði eitthvað augnkrem.

          Eftir hádegið kom svo Svenni dýralæknir og tók úlfstennurnar úr henni Spari Brúnku.  Fylskoðaði hana Þoku sem er geld Dóri er nú bara sáttur með það en ég er ekki avleg viss um hvar hún á að komast fyrir inni en hún er nú samt komin inn.

        Veðrið annars bara búið að vera gott í dag. 

12. feb 2012

          Fínt verður í dag en það var reyndar aðeins rigning seinnipartinn.

         Gunna kom hér í dag að stilla Dóra og Skjóna saman, Guðni Reynir lánaði þeim fjórar kindaskjátur og þetta gekk bara þokkalega tók smá tíma að temja skjáturnar en það hafðist nú allt.  Litli Gaur fékk að vera með og fannst rosalega gaman var ekkert hræddur við rollurnar en held að það hafi nú bara verið af því að hann var svo upptekinn við að reyna að leika við hina hundana sem voru svo uppteknir af kindunum að þeir máttu ekkert vera að því að leika sér.

        Fórum svo að borða á Kaffi Klett upp í Reykholti en mamma og pabbi og tengdó fóru með okkar,  síðan var farið í Aratungu á leikritið Klerkar í klípu.  Þetta var bara rosalega skemmtilegt og ég mæli bara með að fólk fari og kýkji á leikritið hjá þeim í Leikdeild Bisk.  Bara gaman, takk fyrir okkur. 

11. feb 2012

          Við Guðni Reynir fórum í morgun uppað Snorrastöðum að sækja lambhrút sem við vorum að heimta hann var bara í rosalega fínu standi, skógurinn hefur farið vel með hann í vetur.

         Gurra frænka kom svo við hér um hádegið mikið gaman að sjá hana.  Nú svo fór ég með henni Auði og krökkunum einn rúnt um þjóðgarðinn, sáum ekkert fé því miður.

        Ég fór svo með Bjössa og Dóra til tengdó en Höddi og Magga voru þar og buðu í rauðmaga,(ég skrifaði víst rauðspretta og það þótti nú ekki gott að ég skildi rugla því svo ég leiðrétti þetta hér með)  mér fannst kartöflurnar bara rosalega góðar að venju en þetta er matur sem ég hef aldrei lært að borða þá bið ég nú frekar um skötu.

         Krakkarnir eru svo búnir að vera að ríða út hér í allann dag í góða veðrinu, Dóri, Sigga, Arnar, Bjarki og Hjalti held allavega að þau hafi öll farið á bak nú svo var víst kýkt aðeins á fótboltaleik í sjónvarpinu.

         Mætti svo Dóra og Bjössa hér um hádegið með Þoku í taumi en þeir halda að hún sé geld svo það á bara að járna hana og þjálfa, en kannski maður láti kýkja á hana fyrst.

         Kjartan Gunnar kom svo hér í dag og tók nokkar myndir fyrir mig en því miður hitti ég ekkert á hann svoddann hraðferð á honum og flakk á mér en ég á eftir að hitta á hann fljótlega. 

10. feb 2012

          Frábært veður í dag ég hætti mér nú samt ekki út í hesthús þar sem Dóri spurði mig síðast þegar ég sást þar hvort ég væri geðveik.... þeim feðgum fannst semsagt frekar óeðlilegt að ég sæist þarna þó svo veðrið væri gott svo ég hætti ekki á neitt svo þeir láti ekki loka mig inni hehe

        Mikið riðið út í dag enda svosem veðrið til þess, ég skaust á Selfoss  þurfti að sækja lyf.  Nú svo kýkti Gunni í kaffi hér.

        Perla fór svo norður í dag mikið held ég að litil bróðir hennar hafi verið knúsaður já og svosem öll systkinin. 

9. feb 2012

           Mikið riðið út í dag, Sigga og Arnar voru ansi dugleg við að hreyfa hrossin í dag en veðrið var nú ekki mjög spennandi.  Meistaradeildin var svo í kvöld svo Dóri og Perla voru bara á Engjó í nótt.  Perla er svo að fara norður á morgun, hún er að fara á þorrablót já og að kýkja á nýja litla bróður sinn bara gaman hjá henni. 

8. feb 2012

          Gleymdi greinilega að uppfæra í gær en það var svosem ekki frá mörgu að segja fór á Selfoss fyrir hádegið.  Nú hér var svo bara rok og rigning ekki spennandi veður verð ég að segja. Hreinn kýkti hér við.

        Í dag er svosem ekki neitt spennandi heldur í gangi. Fór á Selfoss og sótti Perlu en Dóri fór lítið í skólann í dag, fór til augnlæknis í morgun og sér ekki belju þótt hann haldi í halann á henni, svo er spurning hvort hann fæst til að nota gleraugu er ekki alveg að sjá það en sjáum til.  Svo fór hann í Laugarás en Gylfi kýkti á löppina á honum en hann er mikið skárri og fór á hestbak í dag nú og svo á æfingu en er nú ekki viss um að það hafið verið ráðlagt.

         Mamma og pabbi kýktu svo við hér í dag, já og Gunni Har kýkti í kaffi svo það er nú alltaf eitthver rennerí hér sem mér finnst nú bara gaman. 

6. feb 2012 

         Ætlaði eiginlega á Selfoss í dag en letin að drepa mig í dag, svo ég fer bara á morgun.  Mikið búið að rigna í dag já og hvasst líka bara frekar leiðinlegt veður.  Ég búin að dunda við að setja inn myndir á Facebook eitthvað gamalt síðan ég var krakki já og jafnvel eldra sem ég skannið inn en ég fékk lánað albúm frá mömmu og pabba. 

5. feb 2012

           Fínt verður í dag, Gunni Har kýkti í kaffi.  Sigga og Arnar komu og horfðu á boltann, mikil læti í kringum það, ég  dundaði mér við að skanna inn myndir síðan 1982-3 mestmegnis og dunda kannski við að koma þeim inná FB á næstunni.  Annars bara allt við það sama. 

4. feb 2012

           Strákarnir búnir að vera að keppa í fótbolta í dag og gekk bara þokkalega.  Ég skutlaði svo Perlu á Selfoss eftir hádegið.  Annars er verðrið bara búið að vera þokkalegt í dag dag og í kvöld fórum við Bjössi og Jonni og Linda og borðuðum á Kaffi Krús ekkert smá fínt að borða þar nú og svo var haldið í óvænt afmælispartý til Davíðs Sigmars, það var semsagt bara óvænt fyrir Davíð við hin vissum jú af þessu.  Þetta tókst bara rosalega vel.  Við vorum komin heim um hálfeitt leitið.    Vaknaði svo um fjögur leitið þegar krakkarnir komu heim frá Selfossi.

3. feb 2012

           Búið að vera rosalega gott veður í dag, ég meira að segja kýkti með skeljasand til hænsna, kýkti í smá kaffi til Lindu, fór í hesthúsið og fjárhúsið bara svona kýkti aðeins við í þessum húsum.  Dóri orðinn mikið betri í löppinni sem betur fer, nú og Sigga og Arnar skelltu sér á hestbak í dag enda svosem veðrið til þess.   Annars bara rólegheit.  Heilmikið svo í gangi á morgun svona ef ég nenni en það er hvolpafjör í borg óttans og ég er að velta fyrir mér hvort ég skelli mér suður með Láru og Gunnu, en það kemur bara í ljós á morgun. 

2. feb 2012

         Fór með Dóra í Laugarás eftir hádegið en hann er að drepast í hnénu, varð fyrir hnjaski í íþróttum í gær.    Skildist að hann væri tognaður allavega ekki brotin og tæplega rifin en þó á hann að mæta aftur til Gylfa  næsta miðvikudag svona til að vera alveg viss.   Hann á semsagt að taka því rólega um helgina og ekkert á hestbak svo er bara að krossa fingur og vona að hann verði orðin alveg sprækur eftir helgina.  Dóri, Bjarki, Kjartan og Hjalti fóru svo í Ölfushöllina í kvöld að horfa á Meistaradeildina en það er skyldumæting hjá Dóra en þetta er inní hestabrautarnáminu , hann hefði nú farið hvort sem var en við sóttum Bjarka og Hjalta á Selfoss í dag því Dóri eginlega ekki ökufær og fékk því Bjarka til að keyra.  Vonandi verður hann bara orðinn nógu góður til að keyra í skólann í fyrramálið.

1. feb 2012

         Fór á Selfoss eftir hádegið það er alltaf eitthvað sem maður þarf að snúast.  Kjartan kýkti hér við í dag og járnaðir fyrir hana Siggu held ég.  Nú Sigga fór svo á hestbak en nú ætla krakkarnir að fara að taka á því og hreyfa hrossin meira, sem er bara hið besta mál.  Sigga fór svo í Zumba í kvöld og strákarnir á fótboltaæfinu, Dóri var nú frekar haltur þegar hann kom heim úr skólanum og ekki lagaðist það við það að fara á æfingu.   Annars bara allt við það sama, allt hvítt úti en samt enginn snjór að ráði.  Það væri fínt ef þetta gæti bara verið svona fram á vor og engin úrkoma að ráði nóg komið að því.

       Hlustaði á fjarfund á netinu í kvöld en það var fundur um nýja lyfið sem heitir Gilenya, ég er nú orðin nokkuð viss um að ég fái ekki það lyf nú svo virkar það víst ekki eins vel og Tysabri, en það eru víst bara örfáir útvaldir sem komast á Gilenya en það eru þeir sem eru jákvæðir gagnvart JC vírus nú og ér er það svosem en þeir sem fá lyfið þurfa líka að hafa verið á ómæmisbælandi lyfjum áður eins og krabbameinslyfjum og ég hef nú sem betur fer ekki verið á þannig lyfjum en þetta fólk semsagt er í mestri hættu á að fá heilabólgu.  Nú þeir sem fá nýja lyfið þurfa svo að hafa fengið hlaupabólu eða verða bólusettir við henni en ég er svosem búin að fá hlaupabólu en ég verð bara áfram á Tysabri og held að ég sé bara nokkuð sátt. 

31. jan 2012

         Ég fór með Dóra og Perlu á Selfoss í morgun og fékk afmæliskaffi hjá Bjarka um klukkan átta í morgun,  en Bjarki er 22ja ára í dag til hamingju með daginn þinn.  Fór svo í bæinn í Tysabri það gekk vel að vanda nú og þar sem ég var svo snemma á ferð í bæinn þá slapp ég snemma heim, fór reyndar í Hagkaup en var komin á Selfoss þegar Perla var búin í skólanum um hálfþrjú leitið.  Gunni Har kýkti svo hér í kaffi.  Nú og svo er Diddi búinn að setja nýjar felgur undir bílinn hennar Siggu ekkert smá flottar felgur og ég ætla bara rétt að vona að nú fari þetta dekkjastand að vera til friðs. 

30. jan 2012

          Fór um hádegið út á Borg,byrjaði að kýkja út í skóla með slatta af gömlum dagatölum sem krakkarnir vilja kannski föndra úr nú og ef ekki þá fer þetta bara í gáminn.  Kýkti svo út í félagsheimili að athuga með slæði sum vantar eftir þorrablót en hún var ekki þar.  Nú svo var það sjoppan en Diddi var með felgu sem var mátuð á Audi, og hún passaði ekki en með því að setja eitthvert milli....eitthvað þá ætti þetta að virka.  Svo stefnan er tekin á að gærja þetta á morgun.

          Sigga kom svo við hér heima í kvöld en hún er að fara í Zumba, og á morgun fer ég í bæinn í Tysabri,  Sigga er með bílinn minn svo ég fæ bara far með Dóra og Perlu á Selfoss fyrir átta í fyrramálið og fer svo í bæinn en Arnar er að fara að vinna í bænum svo hann fer með mér suður. 

           Dóri og Perla fóru svo í bæinn eftir skóla að kýkja á litlu systurdóttur hennar Perlu en hún fæddist núna fyrir helgi, ég er búin að sjá myndir og hún er bara yndisleg :) 

29. jan 2012

         Frábær helgi á enda.  Orðið hálftómlegt í kotinu, Kjartan Gunnar fór þegar Guðni Reynir fór í vinnu í morgun, Freydís fór svo um hádegið, Sigga, Arnar, Bjarki og Hjalti Pétur fóru svo eftir hádegið.  En Guðni Reynir, Dóri og Perla eru svosem ennþá heima svo það er nú ekki alveg tómt kotið en samt helmingi færra fólk en vaknaði hér í morgun og rúmlega það.   Perla tók sig svo til og sópaði hér allt úr úr bara myndarleg nú og þvottavélin fær svosem að snúast líka þannig að þó að ég nenni ekkert að gera þá gerist nú eitthvað samt.  Gunni Har kom svo hér í kaffi í dag.

28. jan 2012

         Annar í þorra skollinn á ég byrjaði á að græja kjúklingasúpu fyrir kvöldið svo var farið í morgunmat til Lindu, hafragrautur og lýsi, flatkökur, brauð og álegg ekki leiðinlegt það.   Þetta var rosalega gaman að velju, mikið stuð og allir kátir.  Seinnipartinn fór svo hluti af mannskapnum út í hesthús og hluti af því fólki á hestbak.  Her var svo um 25 manns í kjúklingasúpu en held að það hafi flestir verið mættir í mat um sex leitið.    Uppúr átta held ég að flestir hafi verið komnir til síns heima, búnir að borða, syngja í Singstar og hlusta á Quinn tónleika og að sjálfsögðu allt í botni.  Frábær þorrahelgi að baki takk fyrir alla skemmtunina, bæði á blótinu og ekki síður hér heima.  Botnakeppni á báðum stöðum og ekki orð um það meir.... ;)

        Þóra Beta fór svo heim uppúr hádeginu en hún fékk far með Steinari og Rakel á Selfoss en Rakel var að fara að vinna og Þóra að fara í afmæli uppá skaga. 

27. jan 2012

           Fór í morgun í klippinu og strípur, veðrið bara svona þokkalegt, en farið að rigna ansi vel.  Heyrði svo í útvarpinu að það væri búið að loka Hellisheiðinni og Þrengslunum.  Þóra ætlaði að koma með rútunni austur þannig að þetta vera ekki alveg að gera sig komst svo að því að Sverrir hafði farið í skólann svo hann tók Þóru með austur en þau komu bara Mosfellsheiðina og voru enga stund sagði Þóra svo ég spurði hana hvenær hún hefi lagt af stað og það var um tvö leitið en klukkan var að verða fimm þegar hún kom heim en þetta hefur nú tosast hægt en hafðist nú samt.

          Nú svo var rúta á þorrablótið en það var bara rosalega gaman.  Hún Perla okkar vann vísubotnakeppnina þvílíkur snillingur verst að ég á ekki mynd af henni þegar hún tók við verðlaununum en hún fékk flotta skál fulla af ávöxtum bara glæsilegt.  Held að við höfum verið að koma heim um fjögur leitið og allir beint í bælið enda annar í þorra á morgun, reyndar voru krakkarnir að útbúa sér eitthvað að borða þegar ég fór að sofa sem er jú bara gott.

26. jan 2012

            Mikið búið að skafa í dag, og skaflar út um allt.  FSu var aflýst í dag og mikið kátir krakkar hér á bæ með það.    Guðni Reynir fór af stað í vinnu en komst ekki nema niðurundir Selfoss og lenti þá útaf, mjög blint svo hann kom bara aftur heim og fór svo um miðjann daginn og kýkti á svínin  en allt var í góðu þar.  Um hádegið í blinbyl komu hér útlendingar og voru að velta fyrir sér að komast á hestbak....ekki alveg í lagi með þá held ég. 
          Gunni Har kýkti hér svo seinnipartinn en hann var að ná sér í eins og einn hrútshaus en restin af hrútnum er fyrir tófuna svo er bara að sjá hvort einhver fæst til að skjóta tófuna.
          Sigga og Arnar komu svo heim seinnipartinn en nú er semsagt farið að styttast í þorrablótið, Þóra kemur svo í fyrramálið en nú fer þetta að skella á :)

25. jan 2012

          Krakkarnir fóru í skólann í morgun það var rutt hér heim fyrir klukkan átta í morgun.  Svo er bara búið að snjóa hér í allann dag næstum.  Sigga kom heim í dag en fer svo aftur á Selfoss í kvöld, þau ætla svo að versla fyrir mig á morgun og koma svo heim sem er voða gott því þá þarf ég ekki að fara á Selfoss á morgun.  Nú það er kominn ótrúlega mikill snjór hér svo Sigga er bara á Raminum enda á meðan hún snýst í kringum mig þarf ég ekki að fara og versla :) fer svo bara á Selfoss á föstudaginn í klippinu og strípur já og að sækja hana Þóru á rútuna.

        Annars er spáin ekki spennandi framundan, snjókoma og skafrenningur í nótt svo það kemur bara í ljós hvort það verður fært í skólann á morgun. 

24. jan 2012

          Mikið stúss á mér í dag, byrjaði á að fara uppí Laugarás í morgun í B12 sprautuna mín.  Var að koma heim um hádegið en þá voru þeir Tintron og Hvati nýfarnir af stað suður en þeir eiga flug á morgun til Belgíu.  
        Eftir hádegið fórum við Perla svo á Selfoss, Perla í neglu og ég fór í Bónus og á Engjó,  bíllinn hennar Siggu var að stríða henni en annað framdekkið var farið að leka og þau á leið í bæinn svo ég skipti um bíl við þau og þau fóru á Raminum í bæinn en ég tók Audi.    Við Perla kýktum svo á útsölu og ekkert smá flott útsala, 70% afsláttur af öllu ekki slæmt það.  Við vorum svo komnar heim um kaffileitið en þá passaði að Lára kom hér og tók okkur Gaur með á Selfoss en hann var að fara í sína sprautu og gekk bara vel.  Sigga og Arnar kýktu svo við hér í kvöld og fengu Gaurinn lánaðann með sér á Selfoss ætla passa hann og skila honum á morgun, bæði Gaurinn og krakkarnir hafa gott af því.  Spurning hvort þau skila honum nokkuð aftur..... 

23. jan 2012

           Mikið að spá í þessa lyfjagjöf mína. Ég veit hvað ég hef en svosem ekki hvað maður fær ef ég færi úr úr  nýja lyfinu ef það fæst þá samþykkt.

         Nýja lyfið sem heitir Gilenya og fæst ekki leyfi fyrir ennþá er í pilluformi og ein pilla á dag og maður þarf að vara á sjúkrahúsi í allavega sex tíma já eða sólahring þar sem það hægist svo á hjartslættinum, já það er víst betra að fylgjast með því hvort dælan stoppar.  Mér skilst að það séu ekki eins alvarlegar aukaverkanir af Gilenya.

 

         Tysabri:                                                                           Gilenya:

           Lyfjagjöf í æð uppá spítala 1x í mánuði                     Pilla tekin 1x á dag, ca fyrsta sólahringinn á spítala og svo ekki meir
         Er á Tysabri og bara nokkuð sátt                              Ekki komið samþykki hér heima fyrir þessu lyfi
         Hætta á alvarlegum aukaverkunum, heilabólgu           Ekki eins alvarlegar aukaverkanir

         Mér skilst að ástæðan fyrir því að Gilenya er ekki samþykkt hér heima sé af því að það sé svo dýrt.  Svo ég kýkti á síðu lyfjastofnunnar og bar þetta saman.  Tysabri á fjögra vikna fresti í ár sem gera 13 skipti gera 3.916.770.- kr + að lyfið er gefið á sjúkrahúsi.  Ansi dýrt og mér datt bara ekki í hug að það væri hægt að fá dýrara lyf, en viti menn Gilenya kostar 4.844.164.- kr á ársgrundvelli, þannig að það er mikið dýrara en auðvitað kostar að gefa Tysabri uppá spítala, svo kannsi er þetta sambærilegt veit að bara ekki.    En ég þarf svosem ekkert að vera að velta þessu fyrir mér á meðan Gilenya er ekki samþykkt, svo líklega verð ég bara áfram á Tysabri þrátt fyrir að ég hafi verið jákvæði gagnvart eitthverjum vírus sem er semsagt neikvætt því þá er meiri hætta á heilabólgu. 

      Annars er bara komin niðurtalning í þorrablót bara gaman. 

22. jan 2012

          Það snjóaði dálítið í dag.  Ég kýkti aðeins út í hesthús og fjárhús.  Páll Imsland kom svo við í dag og tók slatta af myndum og nú var viðfangsefnið hann Undramundur já og nokkrar mórauðar skjátur.  Voandi náði hann bara fínum myndum.

       Annars er bara allt í rólegheitum eins og alltaf.

       

21. jan 2012

          Rosalega fínt veður í dag, en dálítið kalt.   Eftir hádegið kom hann Flemming og kýkti á hrossin sín.  Svo kom Einar vinnuveitandi hans Guðna hér með fimm hross í fóðrun, og Skarphéðinn með eitt merfolald þannig að það er nóg að gera.   Karlarnir fóru svo út að Hömrum í dag að kýkja á Auði og Sigga.

        Stofnaði svo á Facebook svona Ólafíu ömmu hóp en það stendur til að hafa ættarmót sumarið 2013 svo það er bara vit að fara að halda utan um hópinn.  Sá svo líka á Facebook að það bættist í hópinn lítill drengur í dag úti Noregi en hún Mæja var að fá ömmugull. Hann hefur fengið nafnið Baldur.   Til hamingju með litla drenginn ykkar kæra fjölskylda. 

20. jan 2012

          Lítið að frétta svosem en enn og aftur búin að uppfæra niðjatalið hennar Ólafíu ömmu og færði til bókar að það er fædd lítil stúlka hjá honum Pétri Ben til hamingju með það en hún fæddist 17 janúar.

         Dóri, Perla, Guðni Reynir, Steinar og Rakel eru svo að spila og allt í rólegheitum. 

19. jan 2012

            Fórum að leita að fé í dag en vorum búin að frétta af tvílembu á mótsvið Mjóanes sem stefndi á mikilli ferð hér niður úr.  Kýktum við fjárhúsið á Efri Brú, í kringum Kaldárhöfðann en fundum ekkert kýktum þá aðeins inní þjóðgarð en þar hafið sést til tveggja kinda en við fundum ekkert það sáust ekki einusinni för eftir þær bara eftir tófurnar.

         Fór svo á Selfoss eftir hádegið en afruglarinn var í eitthverju rugli en það er allt komið í fínt lag núna.  Nú á meðan ég skaust á Selfoss fóru Bjössi og Guðni Reynir með gimbrarnar hennar Gunnu út að Bjarnastöðum og sóttu hana Karlottu mína til Kolla í Eyvík í leiðinni en það var sko löngu kominn tími á að sækja hana en svona er þetta stundum, allavega en það fór klárlega ekki illa um hana blessaða í vistinni.

18. jan 2012

Afmælisdagurinn hennar Helgu ömmu í dag, hún hefði orðið 97 ára í dag ef hún hefði lifað

Gummi frændi minn hefði líka orðið 17 ára í dag ef hann hefði lifað blessuð sé minning þeirra.

        Þokkalegt veður í morgun og krakkarnir fóru í skólann.  Svo heyrðu þau gangaverðina tala um að það væri spá svo slæmu seinnipartinn að það var nú bara sangjarnt að sveitakrakkarnir færu heim áður en verra verður kæmi svo þau komu heim um hádegið en held að þau hafi komið heim í versta verðrinu þvi svo var orðið þokkalegt um kaffileitið og fínt verður seinnipartinn. 

      Ætlaði annars í bæinn í dag með pappira í dag en veðrið bauð ekki uppá það.

      Nú svo átti ég að fara í Tysabri á morgun en því hefur verið frestað til 31 jan en ég fór semsagt í eitthverja blóðprufu sem átti að segja mér hvort ég væri jákvæð eða neikvæð gagnvart eitthverjum vírus og auðvitað var ég jákvæð sem er neikvætt því þá ér ég í meiri hættu á áð fá heilabólgu heldur en þeir sem eru neikvæðir.    Heilabólga er semsagt ekki mjög spennandi kostur svo það er ekkert víst að ég fái meira Tysabri.  Þá er það þessi nýja pilla sem er verið að bíða eftir en það er ekki búiðað samþykkja hana ennþá hér heima, var nú svo samt í dag að það væri bara vitað um eitt dauðsfall út af henni en sú manneskja dó daginn eftir að hafa fengið lyfið....finnst það kannski ekkert spennandi heldur þannig að ef það verður ekki fyrir valinu þá fer ég kannskí bara á gömlu lyfin aftur og þá ekki Avonenx heldur Copaxone held ég að það heiti, en það eru sprautur.

17. jan 2012

       Skutlaði Þóru á Selfoss eftir hádegið en Sigga og Arnar voru að fara í bæinn svo hún fékk far með þeim.  Fór svo aðeins í Bónus og brunaði svo heim.  Fékk þá flugu í hausinn að reyna að bræða snjóinn aðeins sem er hér á fyrir utan húsið, þetta var ekkert smá mikill klaki en hafðist fyrir rest, Vala frænka mín kom svo og hjálpaði mér.

       Gunni Har kom svo hér við í dag, kýkti í fjárhúsið og svo gaf Guðni Reynir honum kaffi.  Annars bara allt gott, nema veðurspáin á morgun en það er spáð alveg kolvitlauu veðri en sjáum hvernig það verður. 

16. jan 2012

         Rigning í dag og svo kom rok líka en svo lagaðist þetta aðeins undir kvöld.  Annars bara ekkert að frétta. 

15. jan 2012

           Lítið um að vera í dag svosem, þokkalegt verður samt en manndrápshálka hér á hlaðinu og í fjósabrekkunni.  Gunna frá Bjarnastöðum kýkti hér í kaffi, Adam kýkti líka við.  Dóri var í skólanum í gær og í dag eitthvað tengt hrossabrautinni, hann kom svo heim um fjögur leitið og brunaði svo í bæinn að sækja Perlu sína en tók Hjalta Pétur með sér en krakkarnir fóru í bíó og komu svo heim um hálfellefu.  Sigga og Arnar komu svo heim seinnipartinn voru orðin svöng þessar elskur.  Nú svo er hún Þóra okkar hér en hún er hætt að vinna svo henni liggur ekkert á uppá Skaga bara yndislegt.

14. jan 2012

         Ansi strembinn dagur í dag, fór af stað fyrir hádegi á hundasýningu sem er nú ekki mitt uppáhald en á svosem ekki að kvarta í frábærtum félagsskap og sat bara eins og prinsessa og fylgdist með.  Linda og Ásta María sáum um þetta fyrir mig að velju takk fyrir það stelpur.  Byrjaði semsagt að fara raða í bílinn en ég tók Skvísu og Unu með sem fóru báðar í sitthvorn hvolaflokkin, held að þær hafi báða fengið heiðursveðlaun, nú svo var það Undramundur sem stóð sig með stakri prýði alveg  pollrólegur og eins og hann hefði bara aldrei gert annað en að sýna sig hann fékk bláann borða sem er very good, mjög sátt með það, svo var það drottingin hún Tíbrá feita fallega feldlausa :)  hún fékk líka very good þótti aðeins í of góðum holdum og feldlaus en ég var allavega mjög sátt með dómana hennar.  Við semsagt fórum af stað og sóttum svo Hönnu Kötu og Mími en hann fékk líka very good sem við vorum bara rosalega sáttar með.  Takk æðislega fyrir samfylgdina Hanna Kata mín það var bara frábært að fá þig með :)  Ætli ég hafi ekki verið komin heim um hálfníu og þá var brunað yfir til Jonna og Lindu í martarklúbb.  Rosalega gaman, og ég líklega ekki komin heim fyrr en klukkan þrjú í nótt en það var svo rosalega hált að ég varð að keyra hér á milli húsa sem mér finnst nú eiginlega ekki hægt en það var nú bara ófært vegna hálku.
       Við eigum svo að vera með næsta matarklúbb ásamt Árna og Sigrúnu og gott ef það er ekki bara komin dagsetning 25 febrúar sem er bara flott.

13. jan 2012

          Búið að vera frekar leiðinlegt veður í dag rigning fyrripartinn og rok og rigning seinnipartinn, mjög skemmtilegt.

        Við Inga fórum á Selfoss eftir hádegið, ég þurfti að versla smá nú og svo kýktum við líka í Húsasmiðjuna og þar var líka verslað smá fyrir krakkana á Engjó.  Nú ég skutluðist með krökkunum með fullann pall af peningum í endurvinnsluna, þau voru bara nokkuð kát með afraksturinn og flest ákveðin í að nota aurinn í fleiri dósir, þó heyrði ég hugmynd um að nota aurinn í ruslafötu, skúringarfötu og þessháttar en það fékk nú ekki góðar undirtektir, þó svo það hefði nú enst mun lengur en innihald dósanna.  Já og mikið hamingjusamari hópur sem hefið vaknað í fyrramálið, engar tómar dósir út um allt en svona er þetta og hver veit hvað var svosem keypt fyrir aurinn.

12. jan 2012

         Gott veður í dag kalt en ekki neinn vindur að ráði.  Það gekk nú aðeins á afturfótunum í morgun þegar Dóri og Perla fóru í skólann en það sprakk á bílnum en það var brunað með dekkið í viðgerð en Dóri átti ekki að byrja í skólanum fyrr en um ellefu þannig að ég skutlaði Perlu bara í skólann og svo var farið að stússast í bílnum hans Dóra en þetta hafðist nú allt saman.

       Eftir hádegið fórum við Bjössi á rúntinn en við byrjuðum á að taka Gunna Har upp í Bjarnabúð svo var stefnana tekin á Langholtskot að sækja folald sem Gunni átti þar,  síðan var farið að Fossi að sækja tvo kálfa nú og svo brunað með gripina heim, ja nema Gunna sem var skilin eftir í Tungunum.

        Sigga, Arnar, Dóri og Perla komu svo heim uppúr fjögur en það var verið að sækja ýmislegt sem gleymdist í gær, svo brunuðu þau aftur á Selfoss en það er spáð ömurlegu verðri í nótt og á morgun svo það er bara best að litlu krakkarnir verði á Selfossi í nótt, Perla má líka sofa út en Dóri er í fyrsta tíma eins gott að hann skrópi ekki.... en ætli það verði þá nokkur skóli ef veðrið verður eins slæmt og spá verður. 

11. jan 2012

           Bara gott veður í dag, en dálítið kalt, hér var mokað heim í morgun en klárlega ekki hann Helgi því hann veit að það á að moka áleiðis til Jonna og Lindu en þessi snéri bara við út við fjós þannig að Dóri og Perla fóru ekki í skólann.

       Sigga og Arnar komu svo austur í dag það var svo fjölmennt út á Borg en þar voru bleiku stákarnir að keppa í blaki við konurnar hér í sveit, held að þær hafi unnið fyrstu lotu en svo tóku strákarnir og Perla sig á og unnu næstu lotur, en það var klárlega ekki eins létt og sumir áttu von á en ég hafði nú heyrt báðar útgáfur að þeir myndu rúlla þessu upp en aðrir voru nú hálfsmeikir um að þetta yrði nú ekki eins einfalt sem varð nú svo raunin.  Þegar hér var svo komið heim þá var liðinu gefið að éta nú og Sigga og Arnar eru svo bara farin á Selfoss með fulla poka af dóti bara spennandi, hef nú grun um að nú verði húsið eitthvað tekið í geng og málað það sem átti eftir að mála já og annað málað aftur.

       Nú svo var sýningarþjálfun í dag í bænum fyrir hundasýninguna, ég var svo spennt að horfa á blakið að ég sá mér leik á borði og plataði Hönnu Kötu og Hjört til að taka Skvísu með sér, hef nú fulla trú á að það verði ekkert mál með Unu nú og veit að Tíbrá kann þetta alveg nú og svo er það hann Undramundur á eftir að sjá hvernig hann höndlar þetta en Skvísa litla stóð sig bara nokkuð vel, prúð og góð  þrátt fyrir að hafa ekki farið í band áður þannig að þetta ætti að sleppa til.

10. jan 2012

         Bara leiðindarveður hér í allann dag, enginn skóli hjá krökkunum og við sem höfðum fyrir því að senda þau á Selfoss í gær svo þau kæmust örugglega, en uppúr hádeginu þá komu þau heim það var nú frekar blint en þetta slapp alveg til.  Sigga og Arnar eru föst í bænum, en ég reikna nú með að þau komist heim á morgun.

      Annars bara allt gott svona miðað við veður. 

9. jan 2012

         Það var svo ekkert agalegt veður í gær.  Ég fór á Selfoss eftir hádegið þurfti að fara á Sýsluskrifstofuna, aðeins í Krónuna og svo í Frumherja þannig að ég kom ýmislegu í verk í dag.  Dóri og Perla rétt skutust heim eftir skólann og fóru strax aftur á Selfoss þar sem veðurspáin var ekki mjög spennandi.  Sigga og Arnar eru bara enn í bænum enda ekkert ferðaveður.  Nú hér undir kvöld var komin ansi leiðinlegt veður, snjókoma og blint, rafmagnið fór 2x af en vonandi tollir það nú í nótt.   Held reyndar að verðurspáin sé ekkert spennandi á morgun heldur en það er langt síðan það var svona leiðinlegt verður og svona oft, allavega í minningunni en kannski er þetta bara svona á vetri.....nei held nú ekki.

        Nú það fer að styttast í að Hvati og Tintron fari út, í byrjun feb í síðasta langi held ég jafnvel fyrr, það er bara spruning um pláss í flugi. 

8. jan 2012

          Gunni Har og Adam komu hér við í kaffi í dag.  Nú er Dóri kominn með bílpróf og þar sem veðurspáin er afleit á morgun fóru Dóri og Perla með Bjarka og Hjalta á Selfoss uppúr kaffinu, Kjartan Gunnar fór um hádegið og Sigga og Arnar fóru í bæinn um kaffileið líka þannig að nú finnst mér ansi tómlegt í kotinu, bara Guðni Reynir eftir í kotinu með okkur gamla settinu, mér finnst þetta bara alveg ómögulegt en vonandi er þetta nú bara tilfallandi með veðrið þannig að Dóri og Perla verða mikið heima í vetur en Sigga og Arnar verða örugglega mikið á Engjó en það á nú eftir að koma betur í ljós. 

7. jan 2012

            Dóri á afmæli í dag og er orðin 17 ára til hamingju með daginn þinn og bílprófið.

          Hér mættu um 25 manns í afmæliskaffi í dag, bara gaman að því, takk fyrir komuna :)  Nú svo eru Bjössi og Guðni Reynir að fara í nautalifur til tengdó í kvöld en maður er nú svo útbelgdur eftir kaffið að það endist manni í marga daga.

        Annars bara búin að vera rosalega mikil hálka hér í gær og í dag, frekar leiðinlegt en svona er þetta bara. 

6. jan 2012

           Fórum í hið árlega þrettándaboð hjá mömmu og pabba, fengur æðislegann forrétt sem heitir víst púkar á hestbaki, Sigga heyrði þetta eitthvað vitlaust og hélt að þetta væru punkar á hestbaki og vildi nú vera viss um af hverjum þessir pungar væri en svo var nú hægt að útskýra þetta fyrir henni.  Fengum svo hreindýr sem var bara æðislegt og svo ís í eftirrétt rosalega gott allt saman og takk fyrir okkur. 

5. jan 2012

         Fórum í birtingu í morgun að leita að fé í þjóðgarðinum ég svosem var bara inní bíl og beið og ég beið og ég beið....það semsagt fundust ekki nokkrar einustu rollur, frekar fúlt því að sem hefur verið að nást af fé undanfarið lítur orðið ekki nógu vel út og nokkuð ljóst að það sem ekki næst á næstunni drepst líklega sem er bara leiðinlegt.

      Brúney, Kjartan og Siggi kýktu svo við hér í kaffi alltaf gaman að því.  Annars bara allt í rólegheitum. 

4. jan 2012

         Við Bjössi fórum á Selfoss í morgun en hann átti gjarfabréf í hestabúðina og fékk sér úlpu.  Þegar Guðni Reynir kom svo heim um hádegið kom hann með Bjarka og Hjalta með sér heim en það er semsagt æfing á Borg seinnipartinn en Perla, Bjarki og Hjalti tóku sig til hér í dag og byrjuðu á að gera snjóhús en þau kláruðu það nú samt ekki held ég.  Krakkarnir fóru svo öll á æfingu seinnipartinn.

        Á morgun er svo stefnan tekin inná afrétt og í þjóðgarðinn en við Bjössi verðum nú bara í byggð með jeppann og kerru að hirða upp það sem finnst ef eitthvað finnst en einhverjir eru að fara á snjósleðum innúr, vonandi vinnst eitthvað af fé.

       Sigga byrjra svo í skólanum á morgun en Dóri og Perla byrja ekki fyrr en á föstudaginn orðin dálítið spennt að sjá stundaskrárnar þeirra allra, spurning hvernig Sigga hefur þetta svo í vetur og hvar þau verða en það fer jú eftir stundaskránni hennar og veðrinu en ég á nú von á að þau verið mikið á Enjó og svo í bænum þegar það hentar. 

3. jan 2012

          Skaust á Selfoss í dag, þurfti að ná í smá hundafóður í hundana og lýsi í Bjössa.  Laumaðist til að kaupa vínabrauð og snúða svona af því að maður hefur lagt svo mikið af um jólin ;)  það þarf nú  að passa að liðið haldi holdum.

         Annars dreif Perla sig í ræktina í morgun, ótrúleg elja. 

       Sigga og Arnar fóru í bæinn í dag en nú fer skólinn að byrja á fullu hjá henni held að hún byrji 5 jan og Dóri og Perla byrja 6 jan.   Gunni Har kýkti svo við í kaffi, já og í fjárhúsið en held að hann sé að dekra ferhyrntu kindina sína og færa henni brauð ;)

         Nú Gaurinn litli er bara yndislegur og heillar alla uppúr skónum. 

2. jan 2012

           Sá í morgun þegar ég vaknaði að Sigga og Arnar komu heim í nótt.  Skildist á Siggu að færðin á milli Selfoss og Hveragerðis hafi nú ekki verið neitt spennandi en þau komust allavega heim.

        Fór í bæinn í dag að sækja Dóra og Perlu á rútuna en þau eru búin að vera fyrir norðan um áramótin, skildist á Dóra að hann hafi bara verið alsæll þarna fyrir norðan mikið spilað en honum leiðist það nú ekki.  Já og mikið borðað þau komu rúllandi hér heim.   Nú ég eldaði svo bæði folaldafile og nautalund í kvöldmat en það´tókst bara rosalega vel og allir saddir og sælir.  Það styttist svo í næsu átveislu en verður á föstudagskvöldið hjá mömmu og pabba.   Dóri á svo afmæli á laugardaginn og vill fá sína rjómatertu, heitann brauðrétt og ég veit ekki hvað og hvað.  Held að svo verði pása á veisluhöldum fram á þorrablót en nú er komin niðurtalning á þorrablótið, hlakka mikið til.        

1. Jan 2012

Bjössi minn á afmæli í dag orðinn 49 ára til hamingju með daginn elsku kallinn minn :)

           Bara rólegheit í dag,  Adam og Elvar kýktu við í dag.  Heyrði í Siggu í dag og hún er búin að ná sér í eitthvern flensuskít vonandi verður hún fljót að ná sér en hún var orðin slöpp í fyrrakvöld.  Veit ekki alveg hvort Sigga og Arnar koma heim í kvöld eða á morgun en ég reikna með að Dóri og Perla komi heim á morgun.

         Eldaði svo folaldafile í kvöld með piparosasósu svona í tilefni dagsins, ekkert smá sem þetta folaldakjöt er gott.  Nú af Gaurnum er bara allt gott af frétta honum hefur tekist á örskömmum tíma að heilla alla enda bara yndislegur hvolpur.   

                   

 

 

[Miðengi] [Fréttir 2017] [fréttir 2016] [Fréttir 2015] [Fréttir 2014] [Fréttir 2013] [Fréttir 2012] [Fréttir 2011] [Frettir 2010] [Fréttir 2009] [Fréttir 2008] [Fréttir 2007] [Fréttir 2006] [Fréttir 2005] [Fréttir 2004] [Fréttir 2003]