31. des 2013
Krakkarnir voru komin austur um hádegið, Gunni Har kom svo um
kaffileitið. Nú við vorum svo 16 sem borðuðum heima hjá tendó en það var
að venju kalkún og léttreyktir lambahryggir sem voru reyndar af veturgömlu í
matinn og rosalega var þetta gott. Gunna reykti fyrir mig hryggi og þetta
tóks líka svona rosalega vel. Hluti af okkur fór svo út á Borg á brennuna,
en það var ansi leiðinlegt verður og mikið rok, fólk stoppaði stutt, en alltaf
gaman að fara þó svo að í þetta sinn hafi veðrið ekki verið okkur hliðholt.
Krakkarnir fóru svo á Selfoss eftir miðnættið en við Þorbjörn Óðinn fórum að
sofa um miðnættið.
Nú
Auður hringdi svo í mig í dag en Gunni bróðir hennar var sendur á gönguskíðum í
Hrafnarbjargarhálsinn og viti menn þar sá hann 15 kindur, og miðað við lýsingar
þá finnst okkur nú ekki ólíklegt að þarna sér hann Harrý, svo er bara að sjá
hverjir komast já og hvenær og hvernig en Auður er að vinna í þessu.
30. des 2013
Um hádegið þá fóru Auður og Gunni á Bjarnastöðum, Bjössi, Kjartan
Gunnar og Gummi í Hólum inná afrétt að ná í féð sem sást þar í gær, Auður
og Gunni byrjuðu að ná í eina kind frá Jóa í þjóðgarðinn sem Jói ætlaði svo að
taka en hún var bara skilin eftir í kerru, farið innað Lágafelli og þar
biðu bara skjáturnar eftir þeim eða þannig, fjórar frá Miðengi og fjórar frá Jóa
í Mjóanesi, en enginn hrútur í hópnum því miður. Nú mér skildist svo þegar
Jói kom að ná í kindina í kerrunni þá var hún bara farin hafði stokkið yfir og
laumað sér inní garð aftur.
Fór svo á
Selfoss eftir hádegið og kýkti aðeins til mömmu, nú fór aðeins í búð.
Nú svo er ég búin að kaupa miða á landsmótið en þeir verða eitthvað dýrari eftir
áramót svo það er ekki seinna vænna.
29. des 2013
Fórum í jólaboð í bæinn í dag en þetta árið var það hjá Kötu og Árna,
alveg ágæt mæting og ótrúlega góð mæting hjá mínu fólki bara Guðni Reynir,
Sigrún og Aron sem ekki mættu. Vorum komin aðeins lengra en Litla
Kaffistofan þegar Kristín hringdi en bíllinn hjá þeim var eitthvað leiðinlegur á
heiðinni þannig að við snérum við og sóttum þau í Litlu Kaffistofuna en ætluðum
svo að reyna að taka hann austur seinnipartinn.
Hittum svo
nýjasta frændann sem var skýrður Árni Björn í gær en hann er sonur Kamillu og
Þorra frænda algjör gullmoli. Ákváðum svo að fara ekki seint austur til að
þurfa ekki að fara með hálfbilaðann bíl í myrkri, en þegar við vorum komin út úr
bænum sáum við að það var búið að loka heiðinni þar sem það varð bílsslys á
heiðinni þannig að bíllinn verður bara að bíða til morguns. Þegar við
komum svo heim voru bæði Gunni Har og Kjartan Gunnar í kaffi hjá Guðna Reyni og
Sigrúnu. Horfðum svo á Hellisbúann á stöð 2 í kvöld bara gaman að því og
ótrúlega mikið til í þessu.
Heyrði svo í Auði á Hömrum áðan en hún frétti af átta kindum við Lágafellið
fjórar dökkar og fjórar hvítar svo það er spurning hvenær hægt eðr að ná þeim,
best sem fyrst áður en þær fela sig aftur
28. des 2013
Bara búið að vera notalegt í kotinu í dag, Adam kýkti við í dag, Guðni
Reynir, Sigrún og Aron fóru í matarboð á Selfoss í kvöld og Sigga, Arnar og
Þorbjörn Óðinn fóru í bæinn þannig að við erum bara ein með Dóra litla í kotinu
en held að Guðni og co komi aftur í kvöld svo er bara spurning hvort Dóri tolli
heima.
27. des 2013
Bensi bróðir á
afmæli í dag til lukku með daginn þinn.
Það var jólaboð hér á jóladagskvöld og þar sem hann Steinar fékk
10 í heimspeki þá fékk hann þessa spurningu: Ef Guð væri almáttugur gæti hann þá
búið til svo stórann stein, að hann gæti ekki lyft honum sjálfur og ef svo væri,
væri hann þá almáttugur? Nú svarið kom í limru og hljóðar svona:
Ef Guð ekki getur lyft steini,
sem gerði hann sjálfur, þó reyni,
Hann sigraður segist,
um svarið er slegist,
svo lyftir hann grjótinu í leyni.
S.S
Hann Steinar er bara snillingur rosa gaman að þessu.
Annars fór ég á Selfoss eftir hádegið með tengdamömmu, er nú að vona að ég þurfi
ekki aftur á þessu ári en það er nú ekkert örggt í því. Gunni Har kýkti
svo við í dag, Sigrún og Aron komu svo heim með Guðna Reyni seinnipartinn en
Aron fór í fjárhúsið að stjórna gjöfum hef ég trú á. Sigga,
Arnar og Þorbjörn Óðinn komu svo austur í kvöld :)
26. des 2013
Letidagur í dag, allavega hjá mér. Krakkarnir fóru í bæinn um
hádegið en Arnar þarf að mæta í vinnu í fyrramálið nú svo koma þau aftur austur
á morgun. Kláraði að lesa nýju bókina hans Arnalds í dag, rosa
spennandi bók og fullt af bókum sem ég á eftir að lesa.
25. des 2013
Fórum í hið árlega súkkulaði til Ingu og Reynis það klikkar aldrei
alveg rosalega gott, takk fyrir okkur. Nú svo var hið árlega jólahangikjét
hér og bara næstum full mæting, Ingi Seinn komst ekki en Guðni Reynir, Sigrún,
Sverrir, Karítas og krakkarnir komu eftir matinn. Þetta tókst bara
ljómandi vel, kjötið bara rosa gott en þetta var reykt á Böðmóðstöðum bara
snilld.
24. des 2013
Gleðileg jól kæru vinir og takk
kærlega fyrir okkur.
Skaust á Selfoss í morgun, alltaf hægt að finna eitthvað sem á eftir að
gera. Annars bara allt að verða klárt, Dóri tók sig meira að segja til og
stjórnaði tiltekt og breytingum ekki leiðinlegt það.
23. des 2013
Sigga og Þorbjörn Óðinn voru komin hér uppúr sjö í morgun passaði fyrir
þau að skutla Arnari í vinnuna og koma svo austur. Ég fór svo á Selfoss
ásamt tengdamömmu að klára það sem ég átti eftir að gera en gleymdi nú samt smá
en ekkert sem máli skiptir. Fórum svo í skötuna á Borg en hún var bara góð
að venju, mamma og pabbi komu einmitt í skötu líka. Um kaffileitið kýkti
ég svo á nöfnu mína í Vaðnesi alltaf gaman að kýkja á hana.
Ingþór kýkti svo við í
dag, ég er svo búin að sjóða hangikétið sem verður í matinn á jóladag.
Annars er ég ekki nætti búin að ,,öllu'' á held ég enn eftir að klára ýmislegt
fyrir síðustu jól en hvað um það, pakkar og matur klárir svo annað bíður kannski
bara til næstu jóla.
22. des 2013
Sigga og Þorbjörn Óðinn fóru í bæinn í morgun, strákarnir fóru svo á
Selfoss eftir hádegið þannig að það er orðið frekar rólegt í kotinu. Gunni
Har kom svo með hangikjötið mitt sem var í reyk á Böðmóstöðum, Bensi úrbeinaði
svo kjötið fyrir mig þannig að nú er það klárt fyrir jóladaginn.
Sláturbíllinn
kom svo og sótti tvö naut.
Ég á
svo eftir að kaupa örfáar jólagjafir en ég redda því bara á morgun.
21. des 2013
Byrjaði daginn á að sækja Guðna Reyni en bíllinn hans bilaði aðeins
neðan við Vaðnesafleggjarann, Bensi fór svo og dró bílinn heim. Eftir
hádegið fór svo allur mannskapurinn út í fjárhús að heypa til, en hér voru Gunni
Har, Bjössi, Dóri, Guðni Reynir, Hjalti Pétur, Kjartan Gunnar og Bjarki, Sverrir
og Jaki mættu líka, Jonni, Reynir og Bensi veit ekki alveg hvort ég er að gleyma
einhverjum. Við Sigga og Þorbjörn Óðinn vorum svo bara að dúlla
okkur hér inni.
20. des 2013
Bara búin að vera heima í dag, aðeins búin að vera að laga til.
Kolla kom svo í dag en Jón bróðir Hreins skutlaði henni mikið gaman að sjá þau.
Sigurður í Ásgerði kom svo ásamt Telmu að sækja sér hvolp . Sigga og
Þorbjörn Óðinn komu svo seinnipartinn en Steinar er með útskriftarveislu í kvöld
en bæði hann og Karítas útskrfuðust sem stúdent í dag til hamingu með daginn
ykkar krakkar. Stúdentaveislan var svo heima hjá Sverri og Karítas en við
Þorbjörn Óðinn fórum ekki svo seint heim en restin af mínu fólki kom um fjögur í
morgun bara frábært veisla, takk fyrir okkur.
19. des 2013
Fór á Selfoss með tengdamömmu um hádegið nóg að snúast svosem alltaf
eitthvað eftir. Heyrði svo í Siggu og Þorbjörn Óðinn ekki orðinn góður svo
þau fóru með hann til læknis sem sendi þau á bráðamótöku barna þar sem hann var
farinn að þorna aðeins upp en þeim leist nú ágætlega á drenginn þannig að hann
var sendur heim og í kvöld var hann nú aðeins farinn að drekka þannig að þetta
er allt í áttina. Bjarki og Kjartan Gunnar kýktu svo hér í dag og hjálpuðu
til við að bólusetja veturgamla féð. Brúney kýkti í kaffi og Gunni Har
kýkti líka við
18. des 2013
Kjartan Gunnar kýkti í kaffi hér í morgun og kom svo aftur þegar Guðni
Reynir var komin heim en þeir voru að rýja hrútana. Fór á Selfoss eftir
hádegi og kláraði næstum allt. Vandaði mig mikið við að kaupa súrar gúrkur
og raurrófur já og 75 umslög ætlaði sko ekki að fá asíur eða rauðkál.
Þegar heim var komið voru súru gúrkurnar ekki í sneiðum heldur heilar ;( og
rauðrófunar voru orðanar að rauðkáli já og umslögin voru 15, jæja á svosem eftir
að klára að kaupa ýmislegt.
Nú af
bæjarbúunum mínum er það að frétta að Arnar er að verða góður, Sigga slöpp en
hangir uppi á þrjóskunni en þau fóru með Þorbjörn Óðinn til læknis, hann er með
hita og smá roða í öðru eyranu en það á að kýkja á hann aftur á morgun, en hann
var nú orðinn mikið kátari í núna í kvöld, og farinn að borða svo vonandi er
hann að hrista þetta af sér.
17. des 2013
Þorbjörn Óðinn var bara orðinn sprækur í morgun en svo eftir hádegið
fór hann aftur að kasta upp, en samt ekki eins slappur og í gær, vonandi verður
hann bara orðinn góður á morgun. Arnar svo svo orðinn veikur i dag og Dóri
veiktist í nótt þannig að nú erum við Sigga bara eftir en við höfum engann tíma
í það. Fór svo til Alberts Páls í dag, lítið um það að segja svosem
niðurstöður úr MRI vildu bara alls ekki birtast á skjánum hjá honum þannig að
það kemur líklega í ljós á morgun en ef ég heyri ekkert er allt óbreytt enda á
ég ekki von á öðru. Hinkraði svo eftir Trítlu litlu sem kom í bæinn og fór
með mér austur, munaði örugglega innan við mínútu fyrir mig að komast fyrr
austur en ég var rétt komin austur fyrir Litlu Kaffistofunu þegar öll umferð
austur var stopp og var örugglega stopp í hálftíma eða meir en það var semsagt
þversum flutningabíll nokkrum bílum fyirri framan mig og ég varð að bíða þar til
búið var að rétta bílinn af. Annars dálítil þoka á leiðinni en engin
snjókoma eins og ég átti von á. Annars bara gott að vera komin heim.
16. des 2013
Fór í bæinn í morgun og var komin rétt um hádegi litli kúturinn
bara kominn með ælupest en var nú orðinn skárri í kvöld, vona bara að
hann verði orðinn góður á morgun. Ég fór svo í MRI eftir hádegið
og á morgun fæ ég að vita hvað kom út úr því en sjálfsagt er allt við
það sama í kollinum á mér :)
15. des 2013
Búið að snjóa í nótt, þannig að enn bætir í. Hér komu
fjögur folöld í fóðrun í dag, fór út og örmerkti eitt þeirra. Fór
svo með kjöt til Gunnu en hún og Gunni ætla að reykja það fyrir mig.
Þannig að það er búið að gera slatta kom svo með forystukindina hans
Gunna en hún er að fara undir forystuhrútinn minn hann Heimi, enn er þó
Harrý ekki búinn að skila sér og ekkert sést til hans síðan hann stakk
af úr smölun á Hoffmannaflötinni í haust.
Siggi Torfi kom svo og járnaði Dynjanda fyrir Dóra. Nú og
hvolpurinn sem fór í gær ætlar ekkert að koma heim aftur þannig að hann
hefur tekið að sér ábyrgðarmikið hlutverk og tekst það vonandi vel.
Fer svo í
bæinn á morgun en nú er það MRI, aðeins að kýkja á kollinn á mér bara
svona reglubunið eftirlit en fer þrisvar á ári í svona tékk.
14. des 2013
Það snjóaði bara helling í dag, Þórunn og Halli kýktu í morgun
á hvolpana og tóku nokkrar snjómyndir, bara gaman að því. Svo kom
hér fólk eftir hádegið að kýkja á hvolpana. Annars er heilsuleysi
á liðinu hér, Guðni Reynir byrjaði með ælupest seinnipartinn í gær,
Bjössi í nótt og Sigrún í morgun, en held að það sé nú að komast lag á
karlana en Sigrún enn hálfslöpp.
Fórum svo í bæinn seinnipartinn í matarboð sem Sigga og Arnar buðu til
en héldu það heima hjá foreldrum Arnars þar sem það er nú varla pláss
fyrir okkur öll heima hjá þeim, fengum æðislegann mat, takk fyrir okkur
en við áttum frábæra kvöldstund og að sjálfsögðu var Þorbjörn Óðinn
aðalmaðurinn enn ekki hvað. Vorum svo komin heim uppúr miðnætti.
13. des 2013
Sigga fór í síðasta prófið í dag og gekk bara vel lítur út
fyrir að það séu komnar 32 einingar í hús en svonsem ekkert klárt fyrr
en hún fær út úr prófunum. Við brunuðum svo austur og vorum komnar
austur um kaffileitið. Sigga fékk svo frekar leiðinlegt símtal
seinnipartinn en meira um það síðar.
Bjarki og Ási komu svo og héldu uppá próflokin með Siggu en Arnar fór í
árlegann strákahitting með félögum sínum. Það er svo aðeins farið
að snjóa.
12. des 2013
Brunaði í bæinn um hádegið en nú er síðasta prófið hjá Siggu á
morgun. Hún fékk svo einkunn úr fyrsta prófinu í dag og
náði því en það var prófið sem hún var hræddust við þannig að nú eru 10
einingar komnar í hús, svo er bara búið að vera að lesa í allann dag á
meðan við Þorbjörn Óðinn erum búin að vera að dúlla okkur bara gaman.
11. des 2013
ER nú farin að halda að það sé bara allt annað tímabelti á
facebook-inu mínu í Reykjavík heldur en hér fyrir austan, sendi
afmæliskveðjur til afmælisbarna sem áttu afmæli í gær samkvæmt FB og
sendi semsagt afmæliskveðju í gær, kom svo austur í gærkvöldi og í dag á
sama fólk afmæli mjög dularfullt.
Áttaði mig svo á því að
hvolparnir verða átta vikna á sunnudaginn og ég ekki búin að finna tíma
til að fara með þá í dýralæknisskoðun og hef ekki tíma til þess fyrr en
í næstu viku en var svo heppin að fá tíma í dag þannig að ég brunaði með
þá á Selfoss og Svafa skoðaði þá og allir fengu fulla skoðun, heyrðist
ekki í þeim hvorki pissuðu né kúkuðu á gólfið og höguðu sér alveg eins
og Kersins hvolpar, gátu semsagt enganvegin verið, uppum allt og út um
allt :) Svafa slapp þó í þetta sinn við að vera bitin í rassinn
eins og einum hvolpi tókst hér fyrir tveimur árum síðan.
Annars er bara slatti snjór hér og snjóað aðeins hér í dag og svo er það
bara borg óttans á morgun síðasta prófið hjá Siggu á föstudaginn.
10. des 2013
Um hádegið fórum við Þorbjörn Óðinn að heimsækja Guðrúnu Láru
og Óðinn á meðan Sigga var í prófi, henni gekk bara ágætlega held ég en
ég brunaði svo austur seinnipartinn, veðrið alveg ágætt en kominn
dálítill snjór.
9. des 2013
Var komin í bæinn um hádegið og ég auðvitað var Þorbjörn Óðinn
agalega kátur að sjá ömmu sína allavega fannst mér það. Veður of
færð bara í góðu lagi en svo snjóaði aðeins í bænum eftir að ég kom
suður en ekkert að ráði. Sigga búin að vera að læra í allann dag
þannig að ég geri nú ráð fyrir að hún sér klár í prófið á morgun en það
er ekki fyrr en eftir hádegi.
8. des 2013
Vaknaði með agalegt mígreni í morgun, en sprauta og pillur komu
lagi á mig sem betur fer má ekkert vera að því að leggjast í mígreni,
ekki það að ég sér að gera neitt spes en ef mér ditti það í hug væri
gott að vera í lagi.
Hvolparnir blása alveg út þarf að reyna að koma þeim í heilbrigðisskoðun
í viknni eða þeirri næstu, en þeir eru sjö vikna í dag. Þarf líka
að taka myndir af þeim og auglýsa þá.
Frostið næstum farið. Sigrún og Aron komu hér eftir hádegið, Gunni
Har kýkti svo við. Mikið kátur Aron sem kom svo inn hér í kvöld og
búinn að gefa kindunum, skilst að hann vilji helst hafa umsjón með
að vatna, ekki leiðinlegt að sulla í vatni þegar maður er tveggja ára
:). Tókst svo að baka pönnukökur í kaffinu.
7. des 2013
Ég búin að vera að hjálpa Siggu í dag en Arnar búinn að vera að
stússast í kjöti í allann dag, nú og hinir karlarnir á bænum verið að
vasast í hrossum, nautum kindum og kjöti svona eftir því hvað hefur
hentað. Krakkarnir fóru svo í bæinn í kvöld en ég fer svo á
mánudaginn aftur suður en næsta próf er á þriðjudaginn. Mamma og
pabbi kýktu svo aðeins við hér í dag en þau voru að koma úr jarðaför en
það var verið að jarða hana Elínborgu í Laugardalshólum.
6. des 2013
Sigga fór í próf í morgun og gekk bara rosalega vel og nú eru
bara tvö próf eftir hjá henni. Við fórum svo öll austur en ég var
komin heim um sex leitið, aðeins skafrenningur á Sandskeiðinu en annars
bara þokkalegt veður og ekki nærri eins kalt og í gær.
5. des 2013
-16°C hér í morgun ansi kalt bara en ég fór uppað Böðmóðstöðum
í morgun ásamt tengdamömmu en nú á að láta reikja einn sauð fyrir jólin.
Frostið uppí Laugardal var svo -20°C en bíllinn sýndi það allavega hef
hann nú samt grunaðann um að bæta einni gráðu við. Um hádegið
brunaði ég svo í bæinn til að hjálpa Siggu en hún fer í próf í
fyrramálið en þetta smá styttist hjá henni, voða munur fyrir hana þegar
prófin eru búin.
Sótti mér svo Nova búnað fyrir netið í gær (4G í boði hjá mér) og setti
það upp í morgun orðin ansi þreytt á því hvað gamla netið er þreytt á
kvöldin sérstaklega. En nú eru 365 miðlar búnir að kaupa emax svo
mér datt nú í hug hvort ég fengi netið ekki frítt eins og þeir sem kaupa
þessa stöð tvo pakka og er alltaf verið að auglýsa en ég má bara borga
fullt verð fyrir allar þessar stöðvar hjá þeim og ekki krónu í afslátt
af netinu svo ég sagði netinu bara upp en auðvitað tekur það ekki gildi
fyrr en búið er að skrúfa þennann búnað niður og skila honum í bæinn en
það verður vonadi gert þegar frostið minnkar eitthvað, ekki gerandi í
svona miklu frosti.
4. des 2013
Fór í lyfjagjöf um hádegið og dullaðist svo aðeins með Þorbjörn
Óðin, en var svo komin austur um hálffjögur held ég sótti ostinn minn,
fór einn hring í Krónunni og sótti svo Sigrúnu og Aron Rafn. Ansi
er nú orðið kalt það voru -11C° á heiðinni en núna í kvöld voru orðnar
-14°C og á víst eftir að kólna enn.
3. des 2013
Sigga fór í fyrsta prófið í morgun og gekk bara þokkalega hélt
hún. Eftir hádegið fórum við Sigga og Þorbjörn Óðinn að heimsækja
Guðrúnu Láru en sá stutti vefur okkur öllum um fingur sér.
Krakkarnir fóru svo í bíó í kvöld en um að gera að nota tækifærið fyrst
ég er í bænum en ég er að fara í Tysabri í fyrramálið þannig að það
tekur því ekki að fara austur fyrr en á morgun.
2. des 2013
Fór í bæinn í morgun en nú er fyrsta prófið hjá Siggu á
morgun svo ég er búin að vera að leika við Þorbjörn Óðinn í dag og passa
svo í fyrramálið þegar Sigga fer í prófið.
Kom aðeins við á Selfossi áður en ég fór í bæinn, aðeins renningur á
heiðinni en samt fínt skyggni.
1. des 2013
Aron Rafn á afmæli í dag orðinn tveggja ára til
lukku töffari
Letidagur í dag, Guðni Reynir fór á Selfoss í tveggja ára
afmæli og mér skildist að enski boltinn yrði í sjónvarpinu sem hentaði
honum bara vel svona miðað við úrslitin. Skaust á Selfoss
seinnipartinn, mamma og pabbi kýktu aðeins við annars bara allt við það
sama svo er það borg óttans á morgun að hjálpa Siggu fyrir prófin.
30. nóv 2013
Kýkti
í hesthúsið í dag og sá Dóra fara á þrjár merar líta allara ljómandi vel
út. Nú Bragi kom hér og skar smá kjöt sem við fórum svo með til
hennar Helgu í Vaðnesi til að pakka takk fyrir það :) Nú Gunni Har
kýkti við, þannig að það er engin lognmolla hér frekar en fyrr i daginn.
Við Bjössi vorum svo boðin í mat hjá foreldrum hennar Sigúnar, takk
fyrir okkur ;) algjörlega frábært takk kærlega fyrir okkur :)
29. nóv 2013
Hjalti
Pétur þessi eðaldrengur á afmæli í dag orðinn 19 ára til lukku með
daginn þinn kæri vinur.
Hér kom gámabíll um hádegið að sækja ull en Gauji í Vaðnesi var
búinn að koma með sína ull hingað og Auður á Hömrum kom líka með sína
ull en Kjartan Gunnar kom svo að hjálpa til við að koma ullinni á bílinn.
Tengdamamma rölti niður bæ í dag en fór svo aðeins með mér á Selfoss
eftir hádegið en Siggu gengur líka svona ljómandi vel að læra fyrir
prófin svo hún tók sér smá pásu til að knúsa litla kútinn. Gunni
Har kýkti svo við hér í dag nú og Arnar kom austur. Sigrún kom svo með
Guðna Reyni í dag og tók að sér að klippa Bjössa aldeilis flott það takk
fyrir þetta mín kæra :) Annars er bara búið að snjóa aðeins
hér í dag en ekkert sem tollir held ég. Sigga, Arnar og Dóri fóru
svo á Engjó í kvöld að kýkja á afmælisbarnið :)
28. nóv 2013
Skaust á Selfoss í hádeginu en Bjössi passaðir drenginn
á meðan Sigga var að læra, held reyndar að honum hafi verið skilað rétt
á meðan það þurfti að skipta á kúkableyju. Annars er Sigga bara
búin að vera að læra í allann dag. Haddi frá Skálabrekku kýkti svo
við hér í dag. Kjartan Gunnar kom svo í morgun og járnaði Skjálfta
Hrinu og Alísu, hann kom svo aftur í kvöld en karlarnir fóru á Flúðir að
kýkja á fyrirlestur eða sýnikennslu allavega hrossa eitthvað.
Guðni Reynir kom svo heim með Sigrúnu og Aron Rafn en Aron sá
alveg um að gefa fénu skildist mér ansi duglegur í því en hann veður
tveggja ára núna 1 des.
27. nóv 2013
Lítið gert í dag en því meira hugsað um hvað ég þarf að gera en
svo gerist bara ekkert :) Sigga og Þorbjörn Óðinn komu svo austur
í dag og ég fæ að dekstra drenginn á meðan Sigga ætlar að læra og læra,
fyrsta prófið verður 3 des og það síðasta 13 des hjá henni svo þetta
tekur nú fljótt af og styttist rosalega mikið í jólafrí hjá henni
allavegana.
26. nóv 2013
Við Þorbjörn Óðinn vorum bara að dúlla okkur fram yfir
hádegi en þá fór ég austur kom við á tveimur eða þremur stöðum áður en
ég fór austur, frekar leiðinlegt veður, rok og rigning já og þoka líka
en ekkert sem hægði á mér að ráði. Gunni Har var svo mættur í
kaffi þegar ég kom heim.
Skjálfta Hrina öll að koma til þannig að vonandi er hún bara komin yfir
þetta. Dóri fór svo með Dynjandi í smá dekstur í dag.
25. nóv 2013
Fór í bæinn í morgun og var komin suður um hádegi en Sigga fór
í skólann eftir hádegið um að gera að nýta daginn sem best þar sem
prófin fara að skella á en ég verð svo í bænum í nótt þar sem Sigga þarf
að mæta í skólann í fyrramálið. Þorbjörn Óðinn bara þægur borðar,
sefur og brosir ekki leiðinlegt að vera í svona félagsskap.
Skjálfta Hrina svo aðeins að braggast held ég svo er bara að vona að hún
verði enn sprækari á morgun.
24. nóv 2013
Lítið lagast hún Skjálfta Hrina en er svosem ekki að versna
heldur, tryppin tvö sem voru með hestapestina eru samt orðin góð.
Það var svo klárað að rýja féð hér í dag og nú er það bara fullorðnu
hrútarnir sem eru eftir. Sigga og Þorbjörn Óðinn skruppu austur í
dag en nú fer að styttast í prófin hjá Siggu svo það er bara verið að
lesa og lesa. Sigrún hans Guðna kom svo eftir vinnu í dag og og
kýkti á rúninginn og hjálpði Guðna Reyni svo að gefa.
23. nóv 2013
Skjálfa Hrina bara þokkalega spræk í morgun en er nú samt að
skíta dálítlu blóði, vona að hún verið betri í kvöld. Brúney,
Baddi, Kjartan Gunnar, Hjalti og Siggi komu svo hér í morgun og byrjuðu
að rýja rollurnar en þær voru teknar inn í gær. Fór svo út að
Bjarnastöðum og sótti kind sem hún Gunna gaf mér, en sú tollir víst illa
þar sem hún á að vera inní fjárhúsi vill helst vera uppí garða,
en sjáum hvar hún vill vera helst, en í kvöld var hún búin að færa
sig úr veturgömlu ánum í sláturrollurnar ekki viss um að hún sé að átta
sig á þessum mistökum sínum.
Sá svo Dóra á
Barbabrellu og Öskubusku, Bjössi fór svo á Slemmu og Svörtu Gránu, Jonni
var svo á Sprett og Elju ég held nú með Barbabrellu held að hún verði
bara flottust ;)
Lísa dýralæknir var
svo á ferðinni hér og kýkti á Skjálfa Hrinu en það sett í hana AB mjólk
en vonandi verður hún orðin enn betri á morgun. Tryppin hér eru
svo að næla sér í hestapestina en það eru semsagt árgangur 2012, sum
semsagt búin með þennann pakka en önnur að veikjast núna.
Það á svo að
halda áfram að rýja á morgun en hef grun um að einhvað af strákunum séu
að fara á ball í kvöld.
22. nóv 2013
Hún
Vala frænka mín á afmæli í dag til hamingju með daginn þinn.
Fór á Selfoss eftir hádegið með tengdó, kýktum aðeins í
Þingborg, kýktum svo líka í kaffi til mömmu og pabba, vorum svo komnar
heim um kaffi leitið. Sá að púströrið á mínum fína Ram er bara í
tvennt held ég en ekkert sem ég heyrði sá þetta bara af tilviljun
kannski þetta sér búið að vera svona lengi.
Nú svo tók hún Skjálfa-Hrina uppá því að fá hrossasótt vona bara að hún
nái sér en Mía kom í kvöld og gerði eitthvað fyrir hana, krossa fingur
og vona það besta.
21. nóv 2013
Letilíf í dag, búin að vera að horfa á þáttaröð sem heitir
Vikings ekkert smá skemmtilegir og fróðlegir þættir mæli algjörlega með
þeim og ætla rétt að vona að þeir verið sýndir hér heima fljótlega.
Nú svo til þess að ég fái ekki legusár hef ég sett reglulega í þvottvél
og þurrkara. Við Guðni Reynir fórum svo í gegnum rollubókhaldið og
skiluðum inn í fjárvís, þannig að þá er það frá.
Fékk svo mjaðmamyndaniðurstöðu Kersins Skvísu og hún er hún fékk exelent
sem er nú aldreilis flott getur ekki verið betra og augnskoðun komin í
hús svo það er í raun ekkert því til fyrirstöðu að fá hvolpa undan henni
en hefði nú viljað hafa hana aðeins stærri blessaða en það er ekki á
allt kosið.
20. nóv 2013
Fór á Selfoss í morgun, en annars bara búin að láta fara vel um
mig heima, búin að vera á svo miklu flandir undanfarið að það er bara
ágætt að slaka smá á annars sakna ég nú litla mannsins en Þorbjörn Óðinn
er svo þægur og góður á nú eftir að skutlast eitthvað í bæinn og líta
eftir honum á næstunni en nú fer að styttast í prófin hjá Siggu.
Heyrði svo í Cathy og hún komst til Boston í heilu lagi er svo bara á
leið heim til sín núna búnar að vera yndislegar tvær vikur hjá
okkur. Nú svo er von á drengjunum heim í kvöld en vélin á að lenda
uppúr níu í kvöld geri nú ráð fyrir að það hafi verið voða gaman hjá
þeim.
Er svo búin að vera
að reyna að klára að skila fjárvís en vantar Guðna Reyni til að hjálpa
mér við þetta vona að það sleppi til að skila þessu á morgun.
19. nóv 2013
Passaði Þorbjörn Óðinn aðeins í morgun eða þar til það var
kominn tími á að koma Cathy uppá flugvöll í bakaleiðinni fór og og
snýkti mér kaffi hjá Dóru frænku en passaði nú að vera komin heim fyrir
leikinn en Dóri og Guðni Reynir fór út til Króatíu að horfa á leikinn
bara gaman að því skulum við allavega vona.
18. nóv 2013
Við Cathy fórum snemma í bæinn í morgun fékk bílinn hjá Dóra og
hann Raminn í staðinn, byrjðum á að fara til Siggu og rétt nái að komast
með henni og Þorbirni Óðni í sex mánaðar skoðun og sprautu hann kom
agalega vel út og bara þægur. Nú um miðjann dag fórum við Cathy
aftur að kýkja á Önnu Kristínu og fötin hennar ekkert smá sem þau eru
flott fórum nú ekki alveg tómhentar heim. Ég fór svo á
námskeið en krakkarnir og Cathy fóru út að borða og nú var það Argentína
steikhús sem varð fyrir valinu þau voru agalega kát með þetta.
17. nóv 2013
Folaldasýning í morgun, engar dollur heim en ég fór nú ekki í
þetta sinn. Þórunn og Halli komu og kýktu á hvolpana. Nú svo var
verið að slátra smá hér í dag þannig að það er nóg að gera. Búið
að snjóa ansi mikið í dag og kvöld. Annars bara allt við það sama.
Já og búin að selja eitt hross og einn bíl :)
16. nóv 2013
Gekk svona ljómandi vel með Þorbjörn Óðinn í nótt bara rosa
þægur. Sigga og Arnar komu svo austur um hádegið. Brúney,
Kjartan Gunnar, Baddi og Siggi komu svo hér í rúning, mamma og pabbi
komu líka. En lömbin voru rúin í dag. Gestur og Ingþór komu
svo líka en hrossin voru rekin heim af Hrauninu í dag, Lísa og
Dóri komu svo með sónarinn og ansi margar með fyli en þó þrjár tómar,
þannig að það er vona á slatta af folöldum í vor.
Cathy bauð
okkur svo út að borða á Rauða Húsið vá hvað þetta var flott og gott,
Þorbjörn Óðinn fór með en þetta er í fyrsta sinn sem hann fer svona fínt
út að borða en hann tók nú með sér nesti. Hann var ótrúlega þægur
sat í barnastól við borðið eða í fanginu á foreldrunum í nærri tvo tíma
og alltaf kátur. Takk fyrir okkur Cathy ;)
15. nóv 2013
Fór í bæinn í morgun með Skvísu í augnskoðun hún flug í geng :)
ekki slæmt það nú er bara að bíða eftir mjaðmamyndarniðurstöðunni sem
hlítur að fara að detta í hús. Nú Hanna Kata kýkti svo hér
í kaffi í dag skoða hvolpana og hitta Cathy, mikið spjallað og mikið
hlegið. Nú Sigga skaust svo austur með gullmolann sem ætlar að
vera í pössin í nótt en krakkarnir koma svo austur í fyrramálið.
Strákarnir fóru svo á landsleikinn þannig að það er bara rólegt í
kotinu.
14. nóv 2013
Tekur því ekki að fara austur í dag en við vorum komnar til
Siggu og Arnars uppúr níu, Cathy lagði sig og þegar við Sigga fórum með
Þorbjörn Óðinn til Gunnu ömmu sinnar þá uppúr tvö þá var Cathy enn
sofandi. Við Sigga fórum svo í jarðaförina hans Hreins en þetta
var afskaplega falleg athöfn en þarna vorum við að kveðja kæran vin,
samúðarkveðjur elsku Kolla okkar.
Í
heimleiðinni kýktum við á hana Önnu Kristínu og fatahönnunina hennar en
þar var kaffi konfekt og hvítvín ekkert smá flott og fötin maður
sem hún er að hann þetta er ekkert smá flott en hún er með nafnið My
beutiful Raven, Cathy fann ýmislegt flott enda fara henni öll föt vel,
hún keypti meira að segja á mig kápu takk fyrir mig.
13. nóv 2013
Mættum til Siggu í morgun, ég að passa :) og Sigga tók
Cathy með sér og skildi hana eftir í bænum hún átti svo að taka leigubíl
heim til Siggu. Hún kom svo ekkert fyrr en um sjö leitið held ég
en þá var orðin stórhríð á heiðinni svo við fengum bara gistingu hjá
Gunnu og Óðni, alveg eins og prinsessur takk fyrir okkur.
12. nóv 2013
Var komin til Siggu og Arnars um hálfátta en Sigga þurfti að
vera mætt í skólann uppúr átta. Það gekk svona ljómandi vel hjá
mér og Þorbirni Óðni, Sigga kom svo heim í hádeginu og þá sótti ég Cathy
og við fórum aðeins á Laugarveginn held hún hafi komist í eina búð.
Fórum svo aftir til krakkana og pössuðum þegar Sigga þurfti aftur í
skólann. Cathy bauð okkur svo út að borða á Grillmarkaðinn um
kvöldið ekkert smá flott og æðislega góður matur takk fyrir okkur.
11. nóv 2013
Fór um hádegið ásamt Cathy í bæinn með Julíu og Connor en
krakkarnir eiga flug út í dag. Skutluðum þeim uppá völl fórum svo
aðeins í Hagkaup og svo til Siggu og Arnars. Ég var svo búin að redda
okkur gistingu í tvær nætur í MS íbúðinni sem er jú bara snilld íbúin
rétt hjá krökkunum svona þar sem ég ætla að passa á morgun og
miðvikudaginn þegar Sigga þarf í skólann.
10. nóv 2013
Cathy vinkona okkur á afmæli í dag og er
fimmtug til hamingju með daginn þinn elsku Cathy
Búið að vera rólegt í dag, Mark fór út í nótt og í morgun fóru
Höddi og Magga í bæinn og tóku Þóru með sér og Dylan sem fór með flugi
seinnipartinn til Boston, en hans flug átti að vera klukkan fimm í dag
en vegna veðurs var fluginu frestar til hálfsjö en það sleppur til þar
sem hann á ekki framhaldsflug fyrr en á morgun þarna úti. Annars
er veðrið bara búið að vera leiðinlegt í dag, rok, snjór, slydda og
rigning.
Dóri og
Kartan Gunnar fóru í bæinn í gærkvöldi og kýktu á LH árshátiðina
allavega á ballið á eftir og var bara gaman, Sigga og Arnar fóru líka
suður í gærkvöldi sem betur fer þar sem veðrið var ömurlegt í dag.
En kotið er nú samt ekki tómt, Cathy, Júlía og Connor eru hér enn nú og
Bjarki og Hjalti líka, Sigrún og Guðni já og við Bjössi nú og Dóri
skilaði sér svo heim í dag. Gunni Har kýkti í kaffi og Adm og
Hafdís kýktu líka við þannig að það er aldei lognmolla í Miðengi.
Nú svo eru myndir úr sviðaveislunni að raðast inná facebook en ég tók nú
ekki mikið af myndum.
9. nóv 2013
Arnar okkar á afmæli í dag
til hamingju með daginn þinn Arnar minn
Löngu kominn
tími á að uppfæra síðuna mín hef allskornar afsakanir klárar t.d að
gamla tölvan er alvega að deyja. En aðallega er þetta nú bara leti
held ég.
Á
þriðjudaginn síðasta komu Mark og Cathy rosalega gaman að fá þau loksins,
nú þeim fylgdi fartalva svo nú er engin afsökun fyrir því að uppfæra
ekki síðuna. Nú á fimmtudaginn var komu svo Julía, Dylan og Conor þannig
að nú er fólk farið að koma alla leið frá Ameríkunni til að mæta í
sviðaveislu en Cathy verður svo fimmtug 10
nóv svo það er nú líka ástæðan fyrir komunni til landsins.
Sviðaveislan var svo hér 8 nóv og ekkert
smá gaman. Sigurður Ingi var veislustjóri, Maggi Kjartans sá um
tónlistina og tók Brokkkórinn með sér þetta var algjör snilld fyrir 200
manns mættu í fjárhúsið og allir skemmtu sér rosalega vel held ég bara
bara snilld takk takk öll sömul fyrir komuna og heimafólk fyrir að gera
þetta mögulegt.
Smalamennskur hafa svo bara gengið þokkalega okkur vantar nú samt aðeins
af fé innan af afrétt nú og svo vantar enn forystusauðinn hann Harrý hef
hann grunaðann um að vera í þjóðgarðinum en það á nú eftir að koma í
ljós.
Ætla svo að reyna að vera duglegi að uppfæra
síðuna mína lofaði Aroni því :)
21. okt 2013
Fór eftir hádegið með Gaur í umbúða
skipti en hann var myndaður og þarf að vera í umbúðum í tvær vikur enn
aumingja karlinn okkur Gaur finnst þetta ganga hægt en það er nú bara
þannig með allt sem er leiðinlegt. Skvísa fór svo í
mjaðmamyndatöku svo nú er bara að krossa fingur og vona það besta en
þetta leit vel út allavegana. Nú Tíbrá gamla er svo farin að lóða
einn ganginn enn, mér finnst hvolparnir hennar varla vera farnir að
heiman.
20. okt 2013
Komnir hvolpar en Una átti sína hvolpa í nótt og morgun, en hún
er með þrjá flotta rakka, en hún átti fimm rakka en tveir lifðu því
miður ekki :(
Karlarnir
fóru svo að leita að kindum en þeir sáu fjóra svarta hausta í Búrfellinu,
þrír náðust en ein skjátan fór ofaní gil og verður bara að hunskast heim
sjálf.
19. okt 2013
Bara búin að vera rosalega löt að uppfæra en nóg svosem búið að
vera um að vera það vantar ekki. Fórum vestur í dag, ég, Gunni Har
og Brúney, hrútadagurinn var að Hömrum og engin smá veisla, glæsilegir
hrútar og svo ekkert smá flottar veitingar að venju. Skaust svo að
Bergi og sótti þar ferhyrntann hrút sem Gunni var búinn að festa sér.
Hann féll svo fyrir gráum hrút sem var þarna á sýningunni ekkert smá
myndarlegur hrútur en í heimleiðinni komum við við á Fáskrúrarbakka og
sóttum einn hrút. Vorum komin heim um hálfníu en þá voru þeir
einir heima Guðni Reynir og Þorbjörn Óðinn en aðrir voru farnir á
ársátíð Trausta, Loga og Smára sem var haldin að Flúðum.
Kaldárhöfðinn var svo smalaður í dag en þar náðist fullur vagn af fé og
allir fengu einhvað við áttum þrjár ær og fjögur lömb.
2. okt 2013
Fór á Selfoss í morgun með Gaur en hann var myndaður aftur,
hann ber sig nú þokkalega og reyndi að sannfæra Ásdísi og Gunnu um að
hann þyrftir ekki þessa spelku en brotið er ekkert farið að gróa svo það
er spelka áfram.
Annars bara allt við það sama.
30. sept 2013
Fór á Selfoss í morgun með Gaur í umbúðaskipti en hann var
aðeins farinn að nuddast undan umbúðunum svo hann á að mæta aftur á
miðvikudaginn og svo föstudaginn.
Sigga, Arnar og Þorbjörn Óðinn fóru svo í bæinn í dag. Hjalti
Pétur kýkti hér við í dag og eins kom Kjartan Gunnar við að sækja lambið
sitt sem fannst svo hvergi, spurning hvað hefur orðið um það.
29. sept 2013
Gunna mætti hér í morgun með Skrautu og Snúð en nú var stefnan
tekin í Tröllhálsinn að sækja hann Harrý. Við fórum ásamt Gunna
Har, Bjössa, Arnari og Guðna Reyni inneftir. Fundum fjórar kindur
við Sæluhúsakvíslina en ekkert í Tröllhálsinum. Jonni og Linda
komu svo og voru búin að hitta á Auði og Sigga inná Hoffmannaflöt en þar
var jú allt féð.
Mér finnst þetta hljóma best svona. Harrý sem var semsagt inná
Tröllhálsi var búin að smala næstum öllu fénu niður á Hoffmannaflöt á
milli 50 og 60 kindur. Auður og Siggi voru búin að koma slatta af
fénu inn í réttina og þegar við komum var mannskapnum dreift og reynt að
ná utan um allt féð. Harrý forystusauður stökk að sjálfsögðu eins
hátt upp í fjall og hann gat og ekki af því að hann væri óþekkur heldur
vildi hann sjá yfir hjörðina þegar hann svo sá að þetta hefðist nú
líklega allt þá brunaði hann eins og eldibrandur niður og sást síðast á
hraðferð inní þjóðgarð en hann veit eins og er að þar verður smalað næst
og geri ég fastlega ráð fyrir því að hann verði búinn að smala
þjóðgarðinn þegar farið verður þangað og klárlega bíður hann með allt
féð við Gjábakka þegar við komum þangað hvenær sem það nú verður.
Arnar og Guðni Reynir höfðu á orði að þetta væri stórhættuleg skepna
sem bæði mönnum og hundum stafar hætta af og
ætti að skjóta á færi en ég trúi því alveg að þeir hafi verið að grínast,
gott ef Siggi hafi ekki svipaða sögu að segja, en spyrjum að leikslokum
hehe spurning hvort einhver fari vopnaður í þjóðgarðinn eða með
brauðpoka handa dekurdýrinu.
Við áttum semsagt rollu og tvö lömb innvið kvísl annað
lambið stakt en rolluna vantar en það er sjálf Sunddrottningin spurning
hvar hún er blessunin. Inná flöt áttum við tvílembu og svo voru
heimalingarnir þar en þeim var nú sleppt hér út á læk þannig að það
hefur nú aldeilis verið ferðalag á þeim á meðan féð hefur verið að
tosast heim hafa þau laumað sér inneftir spurning hvort þau hafa fengið
hjálp. Nú svo var rolla og lamb í Ingólfshólfinu frá okkur.
Við
áttum svo 33 hausa í Klausturhólum held ég þannig að fénu fækkar sem
vantar en í morgun voru ærnar 55 sem vantaði, þarf svo að ná sambandi
við Guðna Reyni til að vita hvað vantar mikið núna.
28. sept 2013
Það var farið á tveimur bílum uppí
Giljatungu að ná fé og bara gaman að hlusta á lýsingar á aðförunum við
að ná þessum skepnum sem dróu tvo fullvaxta karlmenn eins og ekkert væri
á eftir sér já eða þegar Sverrir hélt að hann væri Súperman og lét sig
gossa á eina en allt náðist þetta og menn nokkuð heilir. Eftir
hádegið var svo farið austur í girðingu já og Búrellsmýrarnar teknar og
náðist held ég næstum allt það fé sem sást. Karlotta mín sem er
forystuær kom heim en henni var ekkert bölvað, þannig að þetta er allt
að gerast.
Gróa og Toni fóru svo vestur búið að vera rosa gaman að hafa þau hér í
sveitinni. Við Bjössi og svo Jonni og Linda fórum svo í
fimmtugsafmæli hjá henni Evu sem var bara gaman.
26. sept 2013
Við Bjössi fórum og sóttum Mirru og Hlölla já og hryssuna sem
Jón Bjarni og Anna Dóra eiga til Arons svo er bara að korssa fingur og
vona að þær séu með fyli.
Anna Dóra og Jón Bjarni komu svo við hér og tóku hryssuna en þau voru að
tína saman hryssur hér á suðurlandinu. Toni er svo komin suður en
þetta er síðasta vikan hennar Gróu í starfsnáminu hér á suðurlandinu.
Mamma og pabbi kýktu svo við hér í morgun.
Kjartan Gunnar kýkti svo við en hann járnaði fyrir Dóra og skellti svo
skeifum undir Aronsdóttirina mína :) takk fyrir það.
Það er svo von á Siggu, Arnari og Þorbirni Óðni á morgun bara gaman.
Reynir Már er svo í sveitinni en hann er að vinna í SS en var kominn með
hálsbólgu í dag eins og við erum búin að vera með hér í tvær vikur held
ég en hann verður vonandi orðinn sprækur á mánudaginn.
Guðni Reynir er svo farinn að vinna á fullu í SS bara gaman að því held
ég.
25. sept 2013
Búin að vera rosalega löt við að uppfæra. Get svosem fundið
allskonar afsakanir en enga túverðuga svo þetta flottast bara undir
kæruleysi og leti.
Það var farið á fjall hér um daginn og annað eins rok hafa þeir bara
varla lent í, fólk fauk hreinlega af hrossunum en það var bara ekki
stætt. Vesturleitin slapp þó að mestu við að lenda í byl en
austurleitin fékk byl og allt sem því fylgdi. Held að menn og
konur hafi sjaldan verið eins fengi að komast heim, en það smalaðist
samt ótrúlega miðað við veður. Samt full af fé eftir en Harrý minn
er allavega í Tröllhálsinum með nokkrar skjátur með sér en ég tel mér
bara trú um að hann ætli ekki heim fyrr en hann er búin að ná þessu öllu
í einn hóp :) en sjáum til.
Lentum í
ævintýri hér fyrir viku en þá var rolla að
flækjast uppá malbiki, en hún var með tvö lömb þetta hafðist nú allt
fyrir rest eftir að rolluskátan skellti sé í Kerið og synti nokkra
hringi ég beið bara eftir að hún færi á kaf fyrir framan nefið á
túristunum en sem betur fer kom hún í land aftur. Nú lömbin náðust
en Gaur var svo upptekinn af þeim að hann gleymdi sé og stökk fram af
klettum og braut á sér löppina þannig að nú er hann með spelkur :( og
ekki sáttur.
Gróa er svo komin í sveitina en hún er að vinna á Heilsugæslunni á
Selfossi og verður í þrjár vikur :) bara gaman en Toni kom með henni
suður.
8. sept 2013
Held að tölvudruslan sé alveg að gefa sig en mér tekst stundum
að uppfæra en stundum vill hún bara ekki vera neitt almennileg við mig
býður bara upp á bláann skjá og sendir allskonar skilaboð sem ég nenni
ekki að lesa en fróðir menn segja mér að þetta sé ekki hægt að laga og
að hún sé nú bara alveg að gefast upp.
Annars kýktu Adam og Thelma Sif hér í dag, mamma og pabbi voru svo að
koma að vestan og kýktu við.
Í gær fóru svo slatti af körlum og hundum hér út í sumarbústaðahverfi og
náðu fimm skjátum sem fara svo bara beint í SS á morgun ómögulegt að
hafa svona skepnur sem tolla ekki þar sem þær eiga að vera.
7. sept 2013
Stefnan tekin í Ljárskógarrétt í dag en Gunni var mættur hér um
átta í morgun svo var brunað í Vaðnes og Helga sótt, nú Brúney og Siggi
komu svo með Evu og Kristberg. Byrjuðum að fá kaffisopa hjá Gróu,
fórum svo í réttirnar en þar var fullt af fallegu fé í réttunum já og
fullt af fólki. Eftir réttina fórum við
svo að Hróðnýjarstöðum og svo brunað heim en verðrið var farið að versna
en við fengum heilmikið rok og hellings rigningu líka á leiðinni þannig
að það var voða gott að koma heim en við vorum komin heim um hálftólf
held ég.
6. sept 2013
Fór á Selfoss í morgun og hitti þar nöfnu mína í Vaðnesi,
tilkynnti henni að ég myndi sækja hana á milli hálfníu og níu í
fyrramálið, en við værum að fara í Ljárskógarrétt. Þetta verður
bara gaman hjá okkur. Fór svo og heimsótti Huldu, nú svo í
heimleiðinni kýkti ég á Magga og Sirrý þannig að ég er nú búin að gera
heilmikið í dag.
3. sept 2013
Heimatúnið smalað í dag og slatti af lömbum og rollum fóru í SS
en það á að slátra þar á morgun. Ásgarðstúnin smöluð seinnipartinn
í dag, ætluðum líka að ná hóp sem var við Syðri Brú en sá hópur ákvað að
stefna uppí fjall og náðist ekki en náðum næstum fullum heyvagni og
næstum allt frá okkur, örfáar úr Klausturhólum og aðeins frá Hömrum, en
það lítur úr fyrir að féð okkar sé á heimleið innan af afrétt :( frekar
fúlt að fá þær þarna en þetta er svosem allt opið. Nú þegar heim
var komið fóru Jonni og Bjössi og sóttu Nös en hún er með 19 daga fyli
við Þey frá Holtsmúla svo er bara að vona að þeir fái fallega vindótta
hryssu næsta sumar.
31. ágúst 2013
Bauð mömmu og pabba, tendó og öllum krökkunum í mat í kvöld en
í matinn höfðum við folaldafille og folaldalund já og folaldainnlæra
bara rosalega gott og tókst bara ljómandi vel.
30. ágúst 2013
Búin að vera með hnút í maganum í allann dag en við erum búin
að vera að bíða eftir fréttum af hestaíþróttadómaraprófinu hans Dóra það
var svo um kaffileitið sem tölvupósturinn kom og viti menn hann stóðst
þetta með glans, agalega montin af honum en hef svosem ekki frétt
hvernig gekk almennt nema þó að tveir náðu og tveir féllu af þessum
ellefu sem voru þarna bara spurning með hina. En auðvitað á maður
að gera þær kröfur að dómarar viti hvað þeir eru að gera og fái ekki
réttindi í Cocopuffspakka :)
28. ágúst 2013
Anna Dóra kom hér í nótt með eina hryssu sem á að fara í
eftirgangmál hjá Aroni en við áttum báðar geldar merar frá honum í fyrra
gangmáli svo það á að reyna þetta. Ég fór svo um hádegið með
hennar meri og hana Mirru svo er bara að krossa fingur og vona að við
fáum fyl í hryssurnar.
25. ágúst 2013
Fórum af stað suður um hálfellefu í morgun. Fyrsta stopp
var á Blönduósi en þar hittum við Eline og Jón á Hofi, og meintur
draugagangur ásamt sakbendingu rifjaður upp en það gerist ýmislegt í
Ganda og Gúbba ferðum. Þarna hittum svo Stærri-Bæjar hjónin sem
voru líka á leið suður. Komum svo við hjá Malín í Syðra-Kolugili
og skoðuðum hvolpana ekkert smá fínir hvolpar. Nú svo var
brunað heim en vorum komin heim um kvöldmatarleitið eftir rosa fína ferð,
takk fyrir okkur Inga og Reynir.
24. ágúst 2013
Skoðuðum okkar aðeins um í dag, fórum á smá rúnt í Kjarnaskóg
og fórum uppað Hlíðarfjalli þannig að nú vitum við hvar það er.
Fórum svo út að borða á Strikinu en ég fékk mér nautasteik á meðan hinir
fengu sér villigæs allir sátti með sitt val held ég bara. Vorum
svo heppin að það var verið að steggja mann þarna sem söng svo fyrir
okkur og tókst bara svona ljómandi vel til.
23. ágúst 2013
Byrjaði á að heimsækja hana Brynju Baldursd frænku mín á morgun,
rosalega var gaman að hitta hana eftir öll þessi ár. Nú við fórum
svo á Akreyri, skoðuðum okkur aðeins um og versluðum eitthvað smá, fórum
á Bautann og fengum okkur súpu og brauð nú og svo var það Brynjuís sem
var alveg nauðsynlegt að smakka annars bara rólegheit.
22. ágúst 2013
Lögðum af stað norður í ferðalag um hálfníu í morgun.
Enduðum á Siglufirði en þangað hef ég held ég aldrei komið áður.
Fengum bara fínt verður.
18. ágúst 2013
Þá eru allir komnir heilir heim úr hestaferð og bara gaman
skildist mér. Dóri var að keppa á suðurlandsmótinu á Hellu um
helgina, hann var fimmti inní úrslit í gær og fékk svo 4 sætið í dag
bara flott hjá honum. Nú drengirnir sem fóru að horfa á Chelsea
leikinn í dag misstu svo af fluginu heim en þeir vissu svosem það
það stæði rosalega tæpt þannig að þeir koma bara heim á morgun skildist
að það hefði kostar um 20 þúsund á mann að gista þarna á hótelinu á
flugvellinum svo þeir lögðu sig bara á bekkina svo er bara að vona að
þeir fá flug heim á morgun en það stefnir nú allt í það.
17. ágúst 2013
Kýkti í Hveró í dag með Unu gekk nú ekki að para í þessari
tilraun en líklega er hún bara ekki alveg tilbúin, rosalega mikil umferð
og stífla á hringtorginu þegar ég var að fara heim en það er jú
Kjörísdagurinn í dag. Þorbjörn Óðinn kom svo í sveitina í dag
ásamt foreldrunum alltaf gaman að fá þau í heimsókn.
16. ágúst 2013
Skutlaði Bjössa, Jonna, Gumma, Gest og Ingþóri austurundir
Hvolsvöll uppúr hádeginu en nú er hin eina og sanna Ganda og Gúbba ferð
að fara af stað. Rétt áður en við fórum af stað sá Bjössi að Mirra
var komin heimundir með folaldið en það er rauður hestur sagið Braga að
réttast væri að kalla folaldið Hlölli svo þar við situr :)
15. ágúst 2013
Skutlaðið Bjössa, Jonna, Ingþóri, Gest og Hafdísi í Pulu en þau
eru semsagt lögð af stað í Ganda og Gúbbaferð dagur eitt hjá Bjössa en
dagur tvö hjá hinum. Þau fengu líka þessa fínu rigingu en engum
varð kalt og það er nú fyrir öllu.
14. ágúst 2013
Fór
með bláu Toyotuna í skoðun og hann bíllinn flaug í geng ekki leiðinlegt
það.
13. ágúst 2013
Fór á Selfoss í morgun og eins og einn bíll keypur Skódi
Oktavia dísel. Fór svo eftir hádegið í bæinn ásamt Gunna Har fórum
með Skódann í bæinn og tókum bláu Toyotuna austur en sá á eftir að fara
í skoðun. Við Gunni kýktum Skógarveginn og fórum svo í Elkó en svo
var brunað austur enda ekki mikið sem við þurftum að fera í bænum.
12. ágúst 2013
Fór á Selfoss í morgun og tókst að koma heilmiklu í verk.
Nú er svo bara að bíða eftir að Dóri komi heim en hann kemur rétt fyrir
miðnætti svona allavega ef hann gleymir sér ekki á flugvellinum í
Amsterdam. Búið að klára að rúlla niðurtúnið en veðrið í dag er
búið að vera rosalega gott.
11. ágúst 2013
Búið að slá niðurtúnið og því snúið í dag. Þetta er
síðasta túnið hér heima en svo á eftir að slá og heyja dálítið meira en
allt stefnir í að það verði til næg hey. Nú Guðni
Reynir sá að það er komið folald úti í hrauni en á eftir að fara og
skoða kyn og lit já og fullvissa mig um hver á folaldið en er nú samt
nokkuð viss.
10. ágúst 2013
Ég kýkti á tombóluna á Borg í fyrsta skipti i mörg ár, nú
var svo komin heim um þrjú leitið en þá fór mitt fólk með tvær kerrur af
hrossum uppað Villingarvatni en það átti að ríða uppað Kattartjörnum,
við Þorbjörn Óðinn vorum heima en fórum svo ásamt tengdamömmu að
Selflatarétt en þar var þessi líka flott og rosa góða kjötsúpa í boði og
súkkulaði afmæliskaka takk æðislega fyrir okkur þetta bara bara frábært.
9. ágúst 2013
Brúney á afmæli í dag og orðin fimmtug, til
hamingju með daginn þinn kæra vinkona.
Mætti í vöfflur og rjóma til Brúneyjar í morugun klukkan 10
vona gaman að kýkja til hennar nú og svo komu blakstelpur til hennar
líka mikið stuð á þeim eins og von er.
Við Bjössi fórum svo á Selfoss í kvöld ásamt Siggu, Arnari og Þorbirni
Óðni en litla fjölskyldan varð eftir á Engjó á meðan við fórum og
hlustuðum á KK, þegar það var búið fórum við á Engjó og tókum litla kút
með okkur heima en krakkarnir ætluðu aðeins að fara á röltið með
krökkunum.
8. ágúst 2013
Kláraði teppið hennar Brúneyjar í dag og setti það í þvott svo
það ætti að vera tilbúið í fyrramálið en þá er ég búin að bjóða mér í
morgunkaffi :)
7. ágúst 2013
Var komin í bæinn í MRI fyrir átta í morgun og mér rúllað þar í
geng, fór svo og heimsótti Siggu og Þorbjörn Óðin, fór svo í Tysabri en
þá var búið að kýkja á myndirnar mínar sem voru jú agalega fínar.
Fór svo í Kost og aftur til Siggu en hún þurfti að skjótast útí banka og
ég fékk að líta eftir gullinu á meðan. Svo brunað austur en Brúney
og strákarnir kýktu í kaffi.
6. ágúst 2013
Heyri
reglulega í Dóra og allt í fínu þarna úti þó skildist mér að litlu hefði
mátt muna í dag að hann hefði bara dáið úr hita, 35 C° sem er jú allt of
mikið og skilaboðin sem ég sendi honum út voru á þá leið að passa að
drekka nóg hélt að ég ætti nú ekki eftir að senda honum svona skilaboð.
5. ágúst 2013
Anna Dóra og krakkarnir komu við seinnipartinn og tóku
hryssurnar sínar, já og hvolpinn sem hún Sól á. Adam og Hafdís kýktu
líka við í dag. Annars bara rólegheit.
4. ágúst 2013
Linda á
afmæli í dag til lukku með daginn þinn.
Gróa og Toni fóru snemma suður í dag en þau voru að fara í
afmæli. Dóri kominn á leiðarenda og
búinn að tjalda og koma sér fyrir svo nú er bara að horfa á hross í viku
skilst mér á honum.
Sigga, Arnar og Þorbjörn Óðinn fóru svo suður í dag þannig að það er
orðið ansi tómlegt í kotinu en Guðni Reynir er þó alltaf heima.
3. ágúst 2013
Ætluðum að fara á Flúðir í dag en svo varð ekkert úr því, Sigga
og Arnar fóru með slatta af fólki í hestaleigu og gekk bara ljómandi
vel. í kvöld fór svo mitt fólk aðeins í
Úthlíð en þau stoppuðu stutt þau kýktu svo í Klausturhóla en þar var
voða gaman skildist mér. En þau voru nú samt komin heim uppúr
miðnætti.
Dóri fór svo í bæinn í dag en Guðni Reynir skutlaði honum til Dóra og
Lísu en hann fer með þeim suður í kvöld en þau eru öll að fara til
Berlínar.
2. ágúst 2013
Sigga, Arnar og Þorbjörn Óðinn komu austur í dag og komu með
Þóru með sér. Það var svo slatti af fólki sem fór á hestbak hér í
kvöld en annars bara rólegheit. Anna Dóra, Jón
Bjarni og krakkarnir kom svo aðeins við í dag með tvær hryssur en á
mánudaginn koma þau aftur og taka aðrar tvær hryssur vestur.
1. ágúst 2013
Fór snemma í bæinn í morgun byjuðum á að fara til Kötu en Bensi
fór með mér í bæinn, svo þurfti ég að snúast ýmislegt en var svo komin
til Siggu um hádegi en við fórum svo til tengdaforeldra Sigga með
Þorbjörn Óðinn og brunuðum svo í bæinn en útförin hans Bubba var í dag.
Mjög falleg útför og gott veður. Við Sigga fórum svo aftur suður
og ég brunaði svo austur. Gróa og Toni komu svo ér í kvöld og ætla
að vera um helgina.
30. júlí 2013
Sól og sumar í dag svo þvottavélin hefur ekki stoppað og allt
út á snúru. Fór svo seinnipartinn í Austurkot en þar millilentu
tvær hryssur frá Bergi önnur fór svo á Kvisti en hin kom hér heim og
bíður eftir næsta fari vestur.
29. júlí 2013
Fór til tannlæknis í morgun. Fór svo eftir hádegið ásamt
Bjössa og fórum með Mirru hans Bensa í Holtsmúla og sóttum svo Lísu sem
var hjá Konsert frá Korpu en hún var með 30 daga fyl, þannig að þær Hæra
og Lísa ættu að vera á svipuðum tíma næsta vor. Nú svo þegar ég kom heim
brunaði ég í Hveragerði en þar var hundakerlingum boðið út að borða en
það var í tilefni afmælis sem danski Jörgen á, bara gaman og takk fyrir
mig.
27. júlí 2013
Rosalega heitt í dag og reyndar í gær líka. Krakkarnir
drifu sig niður á Hraunborgir í sund og svo var farið í Þrastalund um
kvöldið. Allir mikið sáttir og sælir, strákarnir kýktu svo í partý
í bústað, en Guðni Reynir, Kjartan Gunnar og Sævar, fóru á Selfoss og
tóku Bjarka og Ása með sér í bæinn að kýkja á lífið. Sigga, Arna
og Þorbjörn Óðinn fóru svo í bæinn í kvöld en þetta er búin að vera fín
helgi.
26. júlí 2013
Krakkarnir komu austur í dag, nú svo var farið í reiðtúr en það
var farið að heimsækja Ragga Hinriks og Helgu að Fossi, rosalega gaman
skildist mér en það var líka rosa gaman hjá mér og Þorbirni Óðni hér
heima hann hann var bara þægur og skemmtilegur eins og alltaf. Það
komu svo allir heim uppúr miðnætti nema Dóri sem ákvað að kýkja í
síðbúið afmæli hjá Emblu að Hæðarenda, hugsa nú að hann hafi vakið smá
athygli komandi á hrossum í afmæli en hann skilaði sér heim undir
morgun.
24. júlí 2013
Búin að vera á heilmiklu flandir í dag, fór í morgun með
dekk í viðgerð, við Brúney fórum svo á Hellu að
horfa á hann Sjálf frá Austurkoti ekkert smá flottur og ég rosalega
montin að eiga undan honum merfolald. Fórum svo í Austvarðsholt að
sækja Nös og hryssu frá Önnu Dóru þær voru báðar á sama róli ekki með
staðfest fyl en ekkert sem sagði heldur að þær væru tómar svo þær eiga
að fara aftur í sónar eftir ca viku. Sótti svo Hæru uppað
Þóroddsstðum en hún var hjá Lord frá Vatnsleysu og er með 21 daga gamalt
fyl :) bara gaman.
Nú það var svo klárað að rúlla allt hér heima sem búið var að slá,
þannig að það er bara Niðurtúnið sem á eftir að slá og reyndar á það
eftir að spretta líka.
21. júlí 2013
Pabbi á
afmæli í dag til lukku með daginn þinn gamli minn :)
Hér sást nú sólin ekki í morgun fyrir skýjum og sudda, en það
þornaði nú upp seinnipartinn. Bjössi og Bensi fóru svo að slá
austurtúnið þannig að það er eins gott að það verði þurrt alla næstu
viku.
Hreinn kýkti við hér í dag, Gunni Har kom líka við. Annars bara
rólegheitadagur.
20. júlí 2013
Eva kom í morgun að sækja skeifur, Ragnhildur og Siggi Torfi
komu svo eftir hádegið að sækja mórauða gengið sitt. Annars er
búið að slá nýræktina og Kjarrtúnið svo er bara að krossa fingur og vona
að það rigni ekki allt of mikið en spurning með morgundaginn.
Sigga
og Þorbjörn Óðinn fóru svo í bæinn seinnipartinn.
19. júlí 2013
Elva
Lillian á afmæli í dag orðin 4. ára þessi líka flotta skotta, til lukku
með daginn þinn.
Sigga og Þorbjörn Óðinn komu austur seinnipartinn, strákurinn
er bara alltaf að stækka enda drekkur hann bara og sefur sem er jú bara
gott.
Kýkti svo í Vaðnes í morgun, alltaf eitthvert rennerí á manni.
18. júlí 2013
Fór með Bangsa á Selfoss í morgun en það á að reyna að koma
hvolpum í tík sem fór í sæðingu. Fór svo með dekk af
snúningsvélinni í viðgerð svona ef það skildi þorna upp á næstunni.
Hanna Kata kýkti svo í kaffi mikið spjallað alltaf gaman að fá hana í
heimsólk. Sigga sæta kom svo og sótti tvö hross svo hún geti nú
farið að leika sér smá í sumarfríinu sínu. Annars rignir bara og
rignir.
16. júlí 2013
Dóri fór með Jaka með sér í morgun en held að hann ætli
að fara slálfur á morgun á Akureyri en hann er að fara að keppa á
Íslandsmótinu í hestaíþróttum en þar er keppt frá barnaflokki uppí
ungmennaflott en hann er í ungmennaflokk.
Saumavélin mín fór svo að hrekkja mig í dag þannig að ef hún jafnar sig
ekki í nótt svona sjálfkrafa hugsa ég að ég bruni með hana í bæinn og
láti kýkja á hana.
Nú svo var Kertúnið slegið í dag fullt af grasi á því svona þar sem
áburðurinn hafði farið ein þetta hefur nú eitthvað klikkað enda var ég
að tala um það við Bjössa hvað það væri leiðinlegur litur á túninu, nú
er svo bara að vona að það náist að þurrka þetta og rúlla en það lítur
svosem ekkert alltof vel út en samt smá möguleiki krossum bara fingur
varðandi það.
15. júlí 2013
Aðeins byrjuð á að sauma bútasaumsteppi, ætla nú samt að flýta
mér hægt svona svo ég ferði ekki öll aum í skrokknum, en sjáum hvernig
þetta á eftir að ganga.
14. júlí 2013
Bara löt í dag, við fórum samt niður á Brúnaveg að sækja
rolluskjátu sem við áttum þar en náðum bara rollunni og öðru lambinu
bara ömurlegt hitt hvarf bara inní gróðurinn og ekki var hægt að sleppa
rollunni aftur svo hún er komin heim í tún og tollir vonandi þar en með
henni kom heim þessi líka flottir ferhyrnti hrútur.
13. júlí 2013
Sótti Hönnu Kötu og Mímir í morgun og svo brunuðum við vestur á
Akranes á hundasýninguna. Ringdi heilmikið á leiðinni en var betra
uppfrá en rigning samt en logn þarna í skógræktinni sem við vorum.
Þetta var bara ljómandi gaman en við fórum nú áður en tíkurnar kláruðust,
skilaði svo Hönnu Kötu og Mími fór svo í Vaðnes með Bangsa ansi held ég
að hann hafi nú verið kátur að komast heim blessaður karlinn en hann
stóð sig ljómandi vel svo þægur og prúður algjört æði.
12. júlí 2013
Sigga, Arnar, Þorbjörn Óðinn, Styrmir og Selma komu austur í
dag, eldaði folaldakjöt sem tókst svona ljómandi vel, Jonni, Adam,
Hafdís og Gestur komu hér líka við en allur
hópurinn fór svo á hestbak held að það hafi verið 11 manns í hnakk, ég,
Guðni Reynir og Þorbjörn Óðinn pössuðum svo húsið, gekk bara ljómandi
vel en sá stutti var nú orðinn afskaplega svangur þegar hann sá mömmu
sína þrátt fyrir að vera búinn að drekka 80 ml í pela, algjört matargat.
11. júlí 2013
Fór niður í Vaðnes seinnipartinn að sækja Bangsa en hundasýning
framundan og baðtími :) mikil umferð á Vaðnesveginum og mest ómerktir
löggubílar eitthver hasar í gangi.
Stefanía kom svo og hjálpaði mér að baða já eða baðaði bara hundinn
fyrir mig þannig að nú ætti hann að fera tilbúinn á sýningu en hann var
nú bara ekkert skítugur en svona vill fólkið víst hafa þetta og maður
verður að gera eins og fyrir mann er lagt til að hafa alla góða :)
9. júlí 2013
Fór í bæinn í morgun með tengdamömmu byrjuðum á að fara
í Virku en svo fór hún á röltið í Skeifunni en ég fór í Tysabri, gekk
allt frekar hægt uppá spítala ja nema blóðprufan, greinilega undirmannað
uppá B7 en það er dagdeild fyrir gigtarskjúklina en þar fáum við Tysabri
fólki lyfið okkar. Fór svo og kýkti á Siggu og Þorbjörn Óðinn en
tengdamamma og Magga voru komnar þangað í kaffi. Nú svo var bara
brunað austur en Ragnhildur sem á hana Njálu kom með Njálu og hvolpana í
pössun en þeir eru bara æði verða fimm vikna á morgun og bara fínir.
8. júlí 2013
Skaust á Selfoss í morgun en það vantaði fjaðrir svo hægt væri
að járna hross nú og svo vantaði eitthvað í traktórinn svo ég dreif mig
í þetta. Gunni Har kýkti svo við í dag og Eva kýkti líka við en
Eva var að koma með fólk í hestaleiguna. Við Bjössi fórum svo með
Gaur að hitta Gunnu og nokkrar kindur, Gaur er alveg með þetta....bara
duglegur ekki amalegt ef það gengur svona vel með hann þar sem við höfum
nú verið léleg við að æfa heima það sem okkur var sett fyrir í vor.
7. júlí 2013
Letidagur hjá mér í dag, varla nennt að glugga í bók hvað
þá meira. Enn rignir en vonandi næst nú að heyja eitthvað í sumar
alveg kominn tími á að heyja eitthvað. Guðni Reynir kom svo heim
uppúr hádeginu en Dóri, Hjalti Pétur og Árný komu heim seinnipartinn og
gekk bara ljómandi vel með hýsið eins og Dóri hafi bara aldrei gert
annað en að keyra með ferlíkið.
6. júlí 2013
Fór uppí Haga í morgun að sækja kransatertu ekkert smá flott.
Nú svo var brunað í bæinn en skírnin var klukkan fjögur.
Drengurinn fékk svo fallegt nafn en hann heitir Þorbjörn Óðinn og var
svo afskaplega þægur og góður, held að hann hafi nú sofið þetta næstum
af sér nú og svo sofnaði hann í kjólnum eins og lög gera ráð fyrir bara
frábær dagur í alla staði.
5. júlí 2013
Verið að undirbúa skírn það er að segja súpuna sem verður á
morgun. Það virðist ætla að rigna á morgun en það verður bara svo
að vera en samt ágætt að rokið og rigningin var núna í kvöld.
Guðni Reynir fór vestur til krakkana á Fjórðungsmót en þar var víst
frekar hvasst seinnipartinn en það væsir nú ekki um krakkana í hýsinu.
4. júlí 2013
Eva byrjaði á að kýkja hér við í morgun og koma dóti á
Dóra sem á að fara vestur á Kaldármela til Kjartans Gunnars.
Hreinn kýkti svo við hér fyrir hádegið. Eftir hádegið kom svo
Gunni Har við, nú svo brunaði ég á Selfoss með Kötlu í sónar en hún er
með 25 daga gömlu fyli við Glóða Feyki ekki leiðinlegt það en Dóri á
þetta fyl. Nú svo fóru Dóri, Hjalti og Árný vestur á Raminum með
hýsið nú og þegar ég var að reyna að segja Dóra hvernig þetta og hitt
virkað þá sagði hann mér að hann Toni yrði þarna og myndi redda öllu sem
ekki virkaði sem ég veit að hann gerir. Við Bjössi fórum svo með
Gaur til Gunnu að kýkja á kindur og annar eins smali hefur nú varla sést
hehe hann gerði allavega ekkert af sér og gengdi bara vel meira fer ég
nú ekki fram á.
3. júlí 2013
Fór á Selfoss í dag heilmikið að snúast, en maður er jú að
undirbúa skírn kaupa skírnargjöf og í súpuna svo það verði nú allt klárt
á laugardaginn. Rúlluvélin bilaði í gær
svo það þurfti að byrja á að láta laga hana í morgun svo þegar langt var
komið með að rúlla í dag þá bilaði aftur en vonandi tekst að klára að
rúlla þetta á morgun.
2. júlí 2013
Fór uppí Haga til Stínu í kaffi í morgun alltaf gaman að
kýkja þangað og í bakaleiðinni tók ég Bjössa með en hann var að snúa á
Ormsstöðum, svo er bara að rúlla á morgun. Fór
svo í bæinn eftir hádegið og kýkti á Siggu og fj, fór svo til Sistu
frænku en Sista og Jóhanna Gerða komu með mér að kýkja á drenginn.
Var svo komin heim um kvöldmatarleitið.
1. júlí 2013
Brunuðum inná afrétt í morgun með fé 68 fullorðnir hausar þetta
gekk bara ljómandi vel, í bakaleiðinni fórum við Gunni Har að Heiðarbæ
og sóttum okkur einn kassa af kjúkling ekkert smá flottir og stórir
kjúllar.
30. júní 2013
Bensi og Bjössi fóru út að Ormsstöðum í dag að slá, svo er bara
að vona að þurrkurinn haldist eitthvað en á morgun þarf að byrja á að
rúlla fyrir Svenna á Brjánstöðum. Nú Gunni Har kýkti hér við en nú
er búið að smala fénu heim sem á að fara inná afrétt en það verður keyrt
inneftir í fyrramálið, fjárvagninn í Vaðnesi komin hér heim og Bjössi
búinn að sjóða aðeins í hann svo nú er bara að fara að koma fénu
inneftir.
29. júní 2013
Í dag var ættarmót hér í Miðengi en það voru afkomendur
Halldóru og Benedikts í Miðengi, það mættu 49 manns allavega voru 49 sem
fengu merkispjald en ekki nærri allir sem skrifuðu í gestabókina en ég
finn nú út úr því. Þetta tókst rosalega vel fannst mér fullt af
fólki sem ég hafði bara aldrei séð en aðalega úr Halldórs legg þó hafði
ég smá forskot á marga þar sem ég man nú eftir slatta af fólki sem kom
hér í denn að heimsækja Halldóru ömmu á meðan hún var á lífi. En
þetta var bara flottur hópur takk fyrir komuna öll sömul.
Það var svo farið á hestbak hér í kvöld og nú dreif Sigga sig með og ég
fékk að passa drenginn hann er nú ansi meðfærilegur sefur bara og brosir
og hjalar þegar hann er vakandi en lætur þó í sér heyra ef hann er
svangur, mikill matmaður enda fljótur að stækka þessi elska.
28. júní 2013
Hildur kastaði í morgun og það kom rauð hryssa, mátti nú eiga
von á því en hún er rosalega falleg bara.
Guðrún Lára kom svo í dag en við vorum aðeins að skipulegga
skírnarveisluna en að sjálfsögðu fór mestur tíminn í að horfa og dásama
drenginn.
Gróa og Toni komu og krakkarnir komu með drenginn en það var
Jónsmessureiðtúr í kvöld og farið frá Klausturhólarétt í gegnum
Snæfoksstaði og niður í Vaðnes en þar var grillað á pallinum hjá henni
nöfnu minni, Sigga skutlaðist niður eftir ásamt tengdamömmu og ég fékk
að passa drenginn á meðan bara gaman.
26. júní 2013
Guðni og Gunni Har fóru inná afrétt að kýkja á ástandið í
morgun og leist líka svona ljómandi vel á, og sjaldan verið eins mikið í
Sandkluftavatni skildist mér. Ekkert smá sem er búið að rigna hér
í dag en var þó betra seinnipartinn.
25. júní 2013
Fór af stað uppá flugvöll klukkan sex í morgun með hvolpana,
þeir voru nú ósköp rólegir og gekk rosalega vel allt saman þeir
voru svo komnir í hendurnar á nýjum eigendum seinnipartinn sem voru
alsælir með hvolpana sem er bara gott.
Kom svo við í rekstrarvörum á leiðinni heim en þufti að kaupa slatta af
allskonar en það verður ættarmót hér á laugardaginn, en það eru
afkomendur Benedikts afa og Helgu ömmu sem ætla að mæta svo er bara að
vona að veðrið verði gott og þokkaleg mætin nægur var allavega
fyrirvarinn.
Það
er svo komin niðurstaða úr DNA sýni sem tekið var úr folaldinu hennar
Hæru en hann er arfhreinn um álótta litinn, er rauður í grunnlit og
semsagt bleikur en það er ekkert vindótt í honum þannig að hann getur
bara gefið bleikt, og svo annað hvort móálótt eða bleikálótt já eða bæði,
þó meiri líkur held ég á bleikálóttu en maður veit svosem ekki fyrr en
það koma afkvæmi ef honum verður haldið gröðum.
24. júní 2013
Fór á Selfoss í morgun en átti tíma hjá tannlækni voða gaman
það. Annars bara letidagur.
23. júní 2013
Í morgun fór svo rafmagnið af hýsinu svo Bjössi snéri eitthverjum takka
og viti menn rafmagnið komið á og miðstöðin komin á þannig að þetta var
klárlega rafmagnið sem var með stæla en samt ekkert sem hægt var að átta
sig á að væri að allavega allt í fínu standi.
vorum svo komin heim um kaffi leitið þá kýkti G.Har við eins kom Helga A
ásamt Finnksri konu en þær voru að skoða hunda.
Við Bjössi fórum svo til Óla Hjalt að henda einu örmerki í tryppi.
Dóri og Hjalti Pétur voru svo sendir í Hemlu að sækja Kröflu en hún er
búin að vera hjá Klæng hugsa að maður sóni ekkert fyrr en í haust orðin
ansi þreytt á þessu sónardæmi svo það er bara að vona það besta.
22. júní 2013
Rosa fínt á Stóra Hofi ekkert smá flott aðstaða, Sigga og litli
drengurinn komu svo um miðjann daginn og ætluðu að gista en hann er nú
búinn að vera aðeins kvefaður nú og svo hætti miðstöðin að virka svo þau
fóru í bæinn, það var nú samt ekkert kalt í hýsinu.
21. júní 2013
Brunaði uppá flugvöll með dönsku stelpurnar og hvolpinn og
kýkti svo á Siggu og drenginn í leiðinni heim. Nú þegar ég kom svo
heim þá brunuðum við Bjössi að Stóra Hofi í útilegu með hýsið. Auðvitað
var ég á síðustu stundu með allt enda átti ekkert að leggja af stað fyrr
en klukkan fimm var mér sagt svo ég var komin heim um hálffimm en þá
átti ég auðvitað að vera tilbúin klukkan fjögur, nokkuð viss um að það
kannast margir vit þetta stress.
20. júní 2013
Það er smá auka hljóð í hjartanu á Ösku en á skalanum 1-6 og 6
er verst er hún með 1, sú þýska ákvað því að taka bara tíkina uppá von
og óvon en það eru nú góðar líkur á að þetta sé vanþroski og þetta verði
orðið gott eftir nokkrar vikur svo nú krossar maður bara fingur.
Fór svo eftir hádegið uppá flugvöll og sótti Nete og Maíru sem eru að
koma og sækja tíkina sem er að fara til Danmerkur. Vorum komnar
heim seinnipartinn hvolparnir skoðaðir og svo kýktum við til Gunnu á BC
hundana hennar sem þær féllu algjörlega fyrir, enda ekki skrítið bara
æðislegir.
19. júní 2013
Fór með hvolpana í dýralæknisskoðun í morgun, þrír fengju fulla
skoðun en ein tíkin var með pínu blásturshljóð í hjartanu, samt
svo lítið að það var frekar óljóst svo ég þarf að mæta aftur á morgun
þegar ,ggóða" hlustunarpípan verður á staðnum og þá mætir líka
tilvonandi eigandi og fær útskýringar hjá Ásdísi hvað þetta og ákveður í
framhaldinu hvað hún ætlar að gera.
Páll sótti svo Spröku sem fór undir eitthvern eðalfola og vonandi fá þau
óskalitinn hver sem hann nú er.
17. júní 2013
Byrjaði daginn á að taka olíu á bílinn svo settum við Tinnu og
folaldið hennar á kerru, Bótu og Baug en Stefanía og stelpurnar komu svo
og við brunuðum vestur á Snæfellsnes. Það passaði að þegar allt
var komið á kerru þá sá ég að það var farið að leka úr Hæru svo ég
hringdi reglulega í Dóra og sagði honum að fylgjast með. Vorum
komnar vestur uppúr hádeginu, ég skildi Baug, Stefaníu og stelpurnar
eftir í Grundafirði en fór með merarnar að Bergi. Þar settum við
Anna Dóra Bótu hjá Móaling og Tinnu hjá Ugga svo er bara að krossa
fingur og vona að það komi agalega falleg folöld næsta vor. Tókum
svo Snilld með okkur suður og skildum hana eftir í Vesturkoti þó svo ég
hefði alveg getað hugsað mér að taka hana bara heim en hún er að fara
undir Spuna en Kolla keppti á henni fyrir vestan í dag og vann töltið,
fjórganginn og var glæsilegasta hross mótsins líka þannig að þetta var
nú dýrmætur farmur sem ég kom með suður. Var komin heim úppúr tíu
og þá var það hvolpaskoðun og svo út í Grobbhólsgerði að kýkja á Hæru
sem var greinilega bara að bíða eftir mér og kom með (ó)ljósann hest
gæti verið arfhreinn vindóttur eða álóttur eða bæði spennandi bara.
16. júní 2013
Letidagur hjá mér í dag eins og svo oft áður, smá saman fækkar
fólkinu sem mætti hér til að fara í Álftarvatnsreiðtúrinn. Bjössi
og Jonni fóru svo með Nös til Arons og Kröflu til Klængs þannig að nú er
bara að krossa fingur og vona að þær fyljist báðar. Stefni svo á
að fara vestur til Önnu Dóru og Jóns Bjarna á morgun með tvær hryssur
þannig að nú fer þetta nú allt að vera ljóst hver fer undir hvaða hest,
þó eru nokkrir lausir endar en Hæru og Mirru er óráðstafað nú
og Katla er ekki enn fengin en vonandi fyljast hún núna í þessari
tilraun.
Sigga og
Arnar eru svo farin með drenginn í bæinn, en litla ljósið er búinn að
vera rosalega vær og góður nú og svo sér maður hann bara stækka, enda
duglegur að drekka.
15. júní 2013
Það voru komin tvö folöld hér í morgun ekki leiðinlegt það.
En Bensi fékk rauða hryssu undan Eldingu og Aron og Bjössi fékk mikið
rauðskjóttskræpóttann hest undan Bóthildi og Þyrni.
Ég, Sigga, litli drenguinn, Bensi og Vala löbbuðum svo út í bústað til
Dóru en þar var ættarmótskaffi en þar komu afkomendur systkina Kidda afa
held að það hafi verið nálægt 40 manns sem mættu.
Sverrir
útskrifaðist svo í dag sem lögfræðingur til hamingju með það.
Adam og
Inga Dóra kýktu svo við hér í kvöld bara gaman að því. Mamma og
pabbi kýkti líka við.
14. júní 2013
Álftavatnsreiðtúrinn í dag, 90 manns sem fóru víst úr
hlaði en rúmlega 70 sem fóru alla leið út í eyju, þetta gekk allt
rosalega vel skildist mér Sigga dreif sig með og ég fékk að vera heima
með drenginn :) það gekk líka rosalega vel hann er jú bara
yndislegur þægur og góður.
Fékk svo far með Kristínu á Selfoss í dag en rauði bíllinn er tilbúinn
svo það er um að gera að sækja hann.
Ég var svo búin að útbúa kjúklingasúpu held að það hafi verið um 30
manns sem kýktu hér inn og fengu sér súpu.
13. júní 2013
Sigga, Arnar, Styrmir og dengurinn komu austur í dag en allir
að vera klárir fyrir morgundaginn. Er nú ekki frá því að dengurinn
hafi bara stækkað síðan í fyrradag en þau voru með hann í skoðun í dag
og hann fékk fullt hús stiga en hann dafnar agalega vel.
12. júní 2013
Rauða bílnum komið á Selfoss í dag og startarinn settur í
viðgerð. Ég fór svo með Auði og Sigga á Hömrum í landsveitina held
ég en þar voru þau með hross en þau voru í hestaferð. Held að það
heiti svo Nautavað þar sem þau fóru yfir Þjórsá en ég kom með bílinn í
Árnes og hitta á þau þar en þau enduðu í Hrepphólum.
11. júní 2013
Tysabri dagur í dag, við Inga vorum komnar snemma í bæinn en
Arnar mætti með bláa bílinn til þess að láta laga svissinn held ég en
lykillinn var orðinn svo slitinn svo það þurfi að raða eitthvað uppá
nýtt í hann en nú snarvirkar hann, rauði bíllinn fór ekki í gang í
morgun svo ég stal Guðna bíl. Ég mætti svo í Tysabri sótti svo
Arnar svo hann gæti tekið bláa bílinn og náði svo að vera komin í Dómus
til læknis klukkan eitt. Fann Ingu svo í Skeifunni en við fórum
aðeins í búðir og fórum svo og heimsóttum Siggu, Arnar og drenginn.
Komun svo við hjá Sistu og Hjalta í bakaleiðinni en þar var fatapoki sem
þurfi að koma í sveitina.
Hanna Kata kýkti svo við hér í kaffi í kvöld en þetta var búinn að vera
erfiður dagur og gott að fá góðann gest. :) takk fyrir mín kæra.
10. júní 2013
Var á röltinu í alla nótt að fylgjast með Kröflu en hún kastaði
svo uppúr sjö í morgun en það kom rauðskjóttur hestur undan Álf en hún
Júlía Hess á þetta folald en hún býr í Þýskalandi.
9. júní 2013
Í morgun þegar við komum úr afmælinu
kýkti ég á hryssurnar og hún Glóblésa var köstuð, Vala á þetta folald en
hún fékk rauða hryssu sem hún skírði Dís.
Hreinn og Kolla kýktu við, Helgi Anna Krístín og krakkarnir komu líka og
eins mamma og pabbi :)
Sá svo í morgun að Krafla er komin að köstun allavega farið að leka úr
henni svo ég er búin að vera á röltinu í allann dag að skoða hana en
ekki köstuð um miðnætti.
8. júní 2013
Fórum
í 100 ára afmæli í kvöld en Jóa og Snæi á Hlemmiskeiði voru að halda
uppá afmælin sín ekkert smá gaman fullt af fólki og mjög skemmtilegt
takk fyrir okkur.
Höddi
og Magga kýktu við í dag að skoða drenginn, bara gaman.
7. júní 2013
Krakkarnir
komu austur í dag með drenginn litla bara gaman að fá þau heim.
Þóra Beta kom svo austur með strætó þannig að það fjölgar í kotinu.
5. júní 2013
Skaust á Selfoss í morgun að ná mér í mjólkurduft í lömbin en
það er nú ekki endalaust hægt að gefa þeim nýmjólk. Gunni Har var
mættur þegar ég kom heim en hann var að venja undir rollu sem missti
lambið sitt í morgun en það gekk bara vel að venja undir nú og öðru
lambi náðum við að koma undir einlembu sem bara í dag allavega leit það
vel út í kvöld. Kjartan Gunnar og Magga voru svo á ferðinni hér í
dag að sækja kerru, Brúney kýkti hér við að skoða drenginn, Freydís
kýkti líka við við og Fannar kom aðeins við. Brósi, Ída og Jakob
komu líka þannig að það er búið að vera dálítið rennerí á fólki hér í
dag.
Það
eru svo bara þrjár eftir óbornar svo þetta er nú alveg að veraða búið.
4. júní 2013
Höddi á afmæli í dag til
hamingju með daginn þinn kæri vinur
Krakkarnir komu austur í dag með gullmolann, mamma og pabbi
kýktu við en drengurinn var ekki kominn þegar þau fóru.
Við Bjössi
skutluðumst svo með Lísu undir Konsert frá Korpu nú krossar maður bara
fingur og vonar að hún fyljist enda á ég nú ekki von á öðru.
Ekkert bólar á fleiri folöldum en það hlítur nú að fara að gerast.
1. júní 2013
Fór og kýkti á Gunnu og hvolpana í morgun þetta eru ansi
flottir hvolpar finnst mér. Eftir hádegið brunaði ég svo í bæinn
byrjaði á að hitta á Gróu og fj en það voru bara allir hjá Báru en þar
var eins árs afmæli í gangi heppin ég fullt af kökum og flottheitum.
Fór svo á smá fund hjá Tótu Davíðsd en Kiddi frændi mætti þar líka en
það er verið að skipuleggja ættarmót sem verður hér heima 29 júní.
Þetta eru semsagt afkomendur Halldóru og Benedikt í Miðengi en okkar
fólk kom hér fyrir 90 árum.
Kýkti
svo á Siggu, Arnar og drenginn sem er alltaf að stækka. líklega er búið
að finna dag til að skíra hann en það er 6 júlí.
31. maí 2013
Kýkti í fjárhúsið um sex leitið í morgun og kýkti á Nös í
leiðinni en hún var frekar nýköstuð, og átti ansi fallegann jarpann hest
sem verður grár. Auðvitað var hún frekar stygg en held að þetta sé
næstum alveg klárt með kynið.
Það
voru svo nokkrir karlar sem fóru héðan í hina árlegu karlaferð. Þeir
fengu slagverðursrigningu þegar þeir fóru af stað og held að það hafi
verið ansi blautt á þeim í allann dag en þeir komust á leiðarenda
frétti ég. Bjössi sagi nú samt að Hrói hefði dottið í ánni og
ístaðsólin slitnað já og Brynja fór í rimlahllið en allt fór nú vel.
Gunni Har kom svo og hjálpaði okkur að reyna að venja tvílembinga undir
rollu sem átti lamb sem varð að lóga þetta lítur bara vel út en hún var
nú hálfhissa kindin þegar lasburða lambið sem hreyfði sig varla var allt
í einu orðið að tveimur stálpuðum svöngum lömbun en held að þetta eigi
eftir að ganga.
26. maí 2013
Rétt eftir miðnættið kastaði Lísa, enginn litur á folaldinu
eiginlega, kassabrúnn einna helst en það var rigning og myrkur og eftir
að átta sig á því. Það var nú ekki leiðnlegt fyrir þá Ausurrísku
að sjá folaldið fæðast. Ég alsæl með folaldið en var að vonast
eftir fölum hesti og svona þegar fór að birta þá er ég nú ekki frá því
að þetta gæti verið fölur hstur með brúnann grunn en ég sækji alla mína
visku í hana Freyju.
Þegar ég
var svo að fara niður á Hraun um hádegið að skoða hrossin þá birtast hér
tvær ungar stúlkur svona ca 7 ára en þá höfðu þær séð kind og röltu á
eftir henni svo sáu þær hest sem þær ákváðu að elta og voru svo komnar
niður á bæ. Þær komu semsagt úr sumarbústaðahverfinu en voru
nú ekki vissar hvar bústaðurinn væri svo ég keyrði af stað og var svo
heppin að önnur þeirra vissi símanúmer hjá foreldi svo ég gat komið þeim
til skila.
Adam
og Hafdís kýktu svo hér við í dag á prinsinn, svo komu Sverrir og
Karítas með krakkana þannig að það er alltaf eitthvað um að vera í
kotinu.
Drengurinn
drekkur bara og sefur heyrist varla í honum sem er bara æðislegt það
munar um hverja vikuna sem þau eru vær og hver veit nema hann ætli bara
að halda því áfram.
25. maí 2013
Skaust á Selfoss í morgun en það er alltaf eitthvað smávegis
sem vantar. Hér kom svo austurríks kona í kvöld og ætlar að fá að
gista þar til á morgun. Fórum og skoðuðum Lísu og nú er kominn
dropi á spenann á henni svo hver veit nema hún sjái folaldið áður en hún
fer heim aftur.
24. maí 2013
Sigga og Arnar komu austur í dag með drenginn, en hann var í
vigtun í morgun og þyngjist bara vel svo þau skelltu sér í sveitina ekki
nein smá ánægja hér á bæ að fá að hafa litla kútinn í heimsólk.
23. maí 2013
Sauðburður er enn á fullu, þannig að það verður nú ekki margar
eftir, eftir helgina. Fór aðeins á Selfoss seinnipartinn. Nú
svo fer að styttast í folaldið hennar Lísu en hún er farin að stálma
ansi mikið en ekkert farið að leka úr henni. Hugsa að hún kasti nú
um helgina en sjáum til.
21. maí 2013
Búin að vera agalega dugleg að uppfæra svo í morgun þegar ég
ætlaði að kýkja á þetta þá var bara allt horfið en aðalfréttin er
semsagt að Sigga og Arnar eignuðust dreng 15 maí bara æðislegur, erum
öll agalega montin af honum.
Brjálað að gera í sauðburði, og folöldin að smá koma, en það mætti fara
að hlýna aðeins en það er frekar kalt finnst mér.
10. maí 2013
Fór á Selfoss í morgun en átti eftir að versla smá fyrir kaffið
á morgun en það er nú skemmtilegra að eiga smá með kaffinu ef einhver
skyldi kýkja við.
Brúney og Eva komu svo hér færandi hendi en ég fékk líka þessa flottu
afmælistertu og ekki nóg með að hún væri flott heldur er hún rosalega
góð líka. Fengum okkur smá smakk en hef hana svo með kaffinu á
morgun.
Fyrstu sæðingarlömbin komu í dag fyrst fékk Guðni Reynir lamb undan
Stála man bara ekki hvort það var hrútur eða gimbur. Svo bar rolla
frá mér undir miðnættið með tvo hrúta bíldóttann og botnóttann undan
Grámann, spennandi að sjá hvernig þeir verða í haust.
Sigga
var svo í síðasta prófinu í dag og gekk bara ágætlega svo nú er bara að
bíða eftir útkomunni úr prófunum og svo er nú aðalverkefnið eftir en það
er jú drengurinn sem er væntanlegur um 25 maí.
Dóri
fór svo með hestabrautarkrökkum í sumarbústað, spurði hann hvort þau
þyrftu ekki að hafa eitthvað að éta með sér en mér var tjáð það að það
væru jú þrjár stelpu í hópnum og þær hlitu að sjá um þetta.
9. maí 2013
Fór í nótt að draga lamb úr gemsa, það gekk bara ömurlega
lambið samt ekki mikið snúið en svo drapst gemsinn bara, dettur nú helst
í hug að hún hafi verið með hjartagalla eða eitthvað, því oft hefur nú
gengið illa en aldrei þannig að skjátna hafi bara drepist, nú og lambið
líka dautt en svona er þetta nú bara og bæði mórauð :(
Annars fara
þær hægt af stað, en almennt jöfn og falleg lömb hjá gemsunum en nú ættu
sæðingarærnar að fara að bera svona ef þær hafa þá haldið á annað borð.
Aðeins komið undir Kötlu þannig að það styttist í folaldið hjá henni
bara spennandi.
Hvolparnir búnir að opna augun tvær alveg og tvær farnar að kýkja þetta
verður komið hjá þeim um helgina.
8. maí 2013
Ekkert bólar á folöldum sem er nú bara ágætt en nokkuð ljóst að
þau eru klárlega rétt ókomin. Gemsarnir fara rólega af stað en
þetta tosast en nú ættu sæðingarærnar að fara að bera. Skaust á
Selfoss í dag. Kjartan kom hér og járnaði hross í dag og Hjalti
Pétur búin að vera hér á sveimi alltaf gaman þegar strákarnir kom.
Aðeins búin
að baka en ætla að eiga smá kökur með kaffinu á laugardaginn ef einhver
skildi kýkja í kaffi, nú það eru þá allavega einhverjir hér heima sem
láta sig hafa það að éta kökurnar.
6. maí 2013
Einn gemsi bar í gærkvöldi og annar í
nótt og sá þriðji núna í kvöld þannig að nú fer þetta allt að koma.
Fór í bæinn í dag að eitthverja dollukynningu bara gaman að því.
Nú svo Kom hún Freyja og co að kroppa í nokkur
hross en hún var með Svein dýralækni með sér. Svenni skoðaði Myrru
fyrir okkur í leiðinni og viti menn hún er með fyli þrátt yfir að hafa
verið sónuð tóm í nóv þetta eru nú aldeilisgóðar fréttir þannig að ég fæ
undan Aron seinnipartinn í sumar :)
5. maí 2013
Ekkert bólar á sauðburði sem er bara
ágætt. Óli á Svínavatni kýkti hér í kaffi í dag, Gunni Har kýkti
líka við og tengdamamma annars lítið um að vera.
4. apríl 2013
Adam kýkti hér við í dag en það er nú orðið dálítið langt síðan
hann sást hér í kaffi. Ekkert voðaspennandi veður hér en gengur á
með rigningu en auðvitað vantar svosem vætu og megum bara vera fegin að
það snjóaði ekki :)
3. maí 2013
Fór á Selfoss í morgun, kom svo við í Vaðnesi í heimleiðinni en
pósturinn er orðinn ansi duglegur að koma með póstinn hennar Helgu
hingað. Gunni Har kýkti svo við hér í dag.
Hvolparnir allir
að koma til og tosast upp í þyngd kannski bara of langt síðan ég hafi
hvolpa síðast og ég man ekki hversu lengi þeir eru að bæta á sig :)
2. maí 2013
Aftur yfir 10 stiga forst í nótt, en
ekkert folald komið sem betur fer og ekki fleiri lömb en sauðburður gæti
byrjaði um helgina.
Fór í
bæinn í morgun og tók Þóru með en ég fór í jarðaförina hans Jóns Þórs
pabba hennar ,,Kersins" Lindu þetta var rosalega falleg athöfn.
Sótti svo starter hvolpamat fyrir Tíbrá, heimsótti Siggu og Arnar, kom
svo við á Stuðlum í heimleiðinni og fékk kalk í Tíbrá svona til öryggis,
en hvolparnir eru allir búnir að ná fæðingarþyngd en bara einn sem er
virkilega dugleg að þyngjast en þetta hlítur að vera að koma.
1. maí 2013
Þegar ég kom heim í morgun kýkti ég á hitamælinn en ég hafði
núllstillt hann í gær, frostið fór yfir -10 °C í nótt og kominn maí.
Sem betur fer ekkert folald komið.
Rollann sem kom úr Búrfellinu 16 febrúar bar í dag og átti þrjú lömb,
reynar eitt dautt, svo er verið að tala um fengieldi.... líklega bara
ráð að láta þetta ganga úti og nálgast það svo undir vor svo hægt sé að
marka.
Hvolparnir þyngjast smásaman en mættu þyngjast hraðar, en hættir að
léttast en fá ábót 3x á dag, svona þeir sem vilja ábótina.
Stálminn farinn svo nú er bara að vona að
þetta sé allt að koma.
30. apríl 2013
Matarklúbbur í kvöld en Árni og Sigrún og Jonni og Linda voru
með klúbbinn í þetta sinn og héldu hann í bústaðnum hjá Ingu Dóru og
Gumma. Sótti Þóru á rútuna um fjögur leitið. Þetta var bara
rosalega gaman en við gistum í bústaðnum. Takk fyrir okkur,
snilldarhugmynd að vera í þessum æðislega bústað. Ansi kalt samt
úti þessa dagana.
29. maí 2013
Sigga fór í fyrsta prófið í dag og gekk bara ágætlega skildist
mér :)
28. apríl 2013
Vakti yfir sjónvarpinu í næstum alla nótt dottaði aðeins á
milli sjö og hálfníu sem passaði bara ágætlega því þá komu lokatölur.
Bara nokkuð sátt með þetta svo er bara að vona að hægt verði að mynda
ríkisstjórn sem hefur eitthverjar lausnir á öllu sem þarf nú að gera.
Dóri kom nú ekki heim fyrr en um fjögur í morgun og sjálfsagt ansi
þreyttir eftir langann en skemmtilegann dag.
Gunna
kom í morgunkaffi með hvolpamjólk en hvolparnir voru aðeins farnir að
þorna upp svo nú er bara að bæta reglulega á þá þar til Tíbrá
mjólkar nóg. Takk fyrir Gunna mín þú ert bara
best.
Krakkarnir fóru svo í bæinn eftir hádegið.
27. apríl 2013
Kosningardagur í dag, fórum að kjósa um hádegið og fullt af
fólki á kjörstað. Sigga og Arnar komu svo heim svo Sigga gæti kosið.
Aðeins var víst farið á hestbak en það er bara rosalega kalt.
Dóri var á Selfossi í allann dag að sýna hross hann fór svo í
Ölfushöllina í kvöld að hrossast líka held að þetta hafi bara verið
gaman hjá honum í dag.
Tíbrá
er með ansi mikinn stálma en ég vigta hvolpana bara reglulega og reyni
að fylgjast með hvort hún mjólkar ekki nóg.
Hér var svo setið yfir kosningarsjónvarpi en búin að bíða lengi eftir
þessum degi.
26. apríl 2013
Tíbrá var dálítið óróleg í nótt en svo um tíu leitið kom
fyristi hvolprinn frekar smá tík, rétt fyrir hádegið kom svo stór tík ég
kreysti Tíbrá fram og til baka og ekki fleiri hvolpa að finna enda sá
sónarinn bara tvo eftir mikla leit og tíkin frekar eins og hún væri tóm
ekki sver og ekkert mál að hlaupa um. Ég skutlaðist svo á Selfoss en
viti menn þegar ég kom heim voru hvolparnir orðnir þrír og sá fjórði
bættist við seinnipartinn þannig að hér eru fæddar fjórar Kersins tíkur
ekki leiðinlegt það.
25. apríl 2013
Fyrsta lambið kom í nótt en það er
lambakóngur undan gemling sem kom úr Búrfellinu 16 febrúar. Rollan
sem hún er undan er enn óborin en mikið komið undir hana svo hver veit
nema hún beri bráðum.
Fórum
svo í afmæli til Tomma og Karenar á Ormsstöðum ekkert smá flott takk
fyrir okkur.
24. apríl 2013
Skaust aðeins í bæinn í morgun, kýkti á Siggu í leiðinni.
Brunaði svo austur og eftir hádegið fórum ég tengdamamma og Helga í
Vaðnesi í Þingborg og kýktum í Öll með tölu og Krónuna í
heimleiðinni. Komum svo við hjá Braga og Svövu að sækja mynd
sem við ætlum að gefa Ormsstaðahjónunum í afmælisgjöf á morgun.
Þetta var bara gaman og nú er ég komin með Þyngborgarlopa í eina peysu
sjáum svo hvernig gengur að prjóna.
23. apríl 2013
Skaust á Selfoss í dag til að athuga með dekk á bílinn þetta
kostar auðvitað handlegg en þó betra að vera vel dekkjaður þegar kemur
að því að rúnta með hrossin og hýsið í vor og sumar. Þurfti svo að
draga lamb úr gemling en það var snúið og dautt en ekki dautt af því að
það var snúið líklega eitthvað annað verið að hef ég grun um.
Gunni kýkti svo hér í kaffi með fullann poka af kleinum og ástarpungum
ekki leiðinlegt það :)
21. apríl 2013
Letidagur í dag, Gunni Har kýkti að eins við í kaffi og Kjartan
Gunnar kýkti líka aðeins við. Mamma og pabbi komu svo í kvöld að
horfa á Sjálfstætt fólk með okkur en þar var nágranni þeirra við
Tálknafjörð á ferð merkilegur karl.
20. apríl 2013
Ég ásamt Siggu og Arnari fórum í Vaðnes í morgun til hennar
nöfnu minnar og fengum að pakka kjötinu það gekk hratt og vel fyrir sig.
Krakkarnir fóru svo í bæinn eftir hádegið. Bjössi, Jonni
tengdapabbi, Ingþór og Gestur fóru svo í Goðaferðina í dag og ekkert smá
ánægðir þegar þeir komu heim, Dóri var hálfspældur að hafa ekki komist
en hann var plataður til að dæma í Firmakeppni á Flúðum í dag en það
gekk bara vel held ég allavega kom hann heill heim.
19. apríl 2013
Gunni kýkti í kaffi í dag, Sigga og Arnar komu svo austur og
eins Höddi og Magga en þeir félagar Höddi og Arnar skáru svo eins og
eitt hross fyrir okkur :)
Dóri fór svo að keppa á Flúðum en nú getur hann bara rúntað um á stóra
bílnum með kerruna enda kominn með próf á þetta það er enginn smá munur,
held að þetta hafi bara gengið nokkuð vel hjá honum allavega kom hann
heim með einn verðlaunapening og það var fyrir skeið held ég örugglega.
18. apríl 2013
Fór á Selfoss í morgun en þurftir að snúast smá. Fór svo
aftur eftir hádegið því ég var að fara með Unu í mjaðmamyndatöku sem
leit nú bara vel út svo er bara að krossa fingur og vona að hún verið í
langi en hann Hnúks Krösus mætti líka voða fínn hundur, hans myndir litu
líka voða vel út. Ennþá snjór hér en held að hann eigi nú að taka
upp á morgun en engu að treysta svosem.
17. apríl 2013
Brúney, Baldvin og Siggi kýktu hér við
í kaffi í dag, Gunni Har kom líka við í kaffi. Svanný og Maggi Lár
komu svo við hér líka en þau voru að snúast með hross, annars var
bara allt hvítt hér í morgun, og var enn hvítt hér í kvöld.
16. apríl 2013
Fór í bæinn í morgun ásamt tengdamömmu fórum á bláa bílnum til
að skipta við krakkana, ég fór í Tysabri á meðan Inga heimsótti Immu
frænku, við Sigga fórum svo og sóttum Ingu og fengum þessa líka frábæru
súpu og heimabakað brauð hjá Immu alveg frábært. Nú svo fórum við
í Smáralindina til að athuga hvort þar væri ekki kjóll eða skokkur sem
passar á Siggu en hún blæs út eins og hún á að gera. Svo var farið
í Krónuna og keypt í matinn, skiluðum Siggu svo af okkur og skiptum um
bíl þannig að nú er það rauði bíllinn sem fer í dekkjaskipti.
Ætlaði svo að koma við í búð uppá Höfða og kaupa vocumpoka en þá var
búið að loka en það sást til okkar svo maðurinn var svo almennilegur að
hann hleypti okkur inn svo við gátum fengið poka :)
Bjössi
ásamt Miðengismönnum fór svo á námskeið hjá Hugrúnu og gekk bara
ljómandi vel allavega Bjössa veit svosem ekki með hina en geri bara ráð
fyrir því.
15. apríl 2013
Fór á Selfoss í morgun með bláa bílinn frá krökkunum og lét
setja sumardekk undir.
14. apríl 2013
Krakkarnir farin í bæinn aftur,
ömurlegt verður finnst mér úti en það er bara mold eða öskurok þá vil ég
nú frekar rok og rigningu takk fyrir. Nú Gunni kýkti í kaffi í
dag.
13. apríl 2013
Sigga og Arnar komu austur í dag en nú fer að stittast í prófin
hjá Siggu og ég tala nú ekki um barnið sem von er á :) Mamma og
pabbi kýktu svo við í kaffi.
12. apríl 2012
Fór á Selfoss í morgun en ýmislegt sem ég þurfti að snúast.
Gunni Har kýkti svo í kaffi. Það voru svo byggingardómar hér
á vegum Goða, var nú bara mjög sátt með stigin sem mínar merar fengu en
Jón Vilmundar kom og stigaði að þessu sinni, við áttum nú samt ekki roð
í fola sem Bjarni Þorkels kom með vá hvað hann var fallegur. Nú
Brúney kýkti svo í kaffi mikið spjallað að venju :)
11. apríl 2013
Skutlaðist austur í Hemlu í dag að sækja hana Gleym-mér-ei sem
er merfolald sem ég á ansi falleg bara, nú þetta gekk bara ljómandi vel
enda ekki von á öðru annars bara ekkert um að vera.
10. apríl 2013
Ansi kalt í morgun en bjart samt.
Fórum í jarðaförina hans Gunnars frá Hömrum eftir hádegið full kirkja
eins og von var á. Annars bara lítið um að vera.
9. apríl 2013
Ég, Bjössi og Guðni Reynir skruppum í bæinn seinnipartinn en
karlarnir áttu eftir að sjá hvernig Sigga og Arnar eru búin að koma sér
fyrir í nýju íbúiðinni en þetta er bara flott hjá þeim.
8. apríl 2013
Letidagur hjá mér í dag, held að maður
sé búin að éta alltof mikið undanfarið orðin hálfvönkuð af veislum.
Lítið semsagt gert í dag og nánast ekkert. Gunni Har kýkti við í
kaffi annars bara rólegheit.
7. apríl 2013
Hreinn kýkti hér við í kaffi í morgun og bara sprækur.
Ég fór suður með sjó í dag til Keflavíkur en ég mamma og Sigga fórum í
fermingarveislu en Birta Rún var að fermast, tengdamamma fékk svo far
með okkur og heimsótti Erlu systur hans Reynis en það vildi svo
skemmtilega til að veislan var alveg rétt hjá þar sem Erla býr.
Þetta var rosaflott veisla takk fyrir okkur.
Karlarnir komu svo heim frá London í nótt skilst að það hafi verið
voðalega gaman hjá þeim.
6. apríl 2013
Allt orðið hvítt hér í morgun en samt ekkert snjór sem virðist
vera kominn til að vera.
Sigga og Arnar komu austur í dag en við fórum svo í afmæli til
Jaka sem er orðinn 2ja ára, ekkert smá flott veisla sem við fengur bæði
pizzuveisla og svo þessar flottu veislutertur á eftir takk fyrir okkur.
Dóri, Hjalti og Bjarki voru svo að sjá um að gefa í fjárhúsinu nú og í
kvöld horfðum við á nokkrar gamlar árshátíðir úr Ljósafossskóla og
myndina sem krakkarnir gerðu hér um árið og heitir Sveitalíf 1&2
rosalega gaman að horfa á þetta.
5. apríl 2013
Kýkti aðeins á Selfoss í dag með tengdamömmu, Gunni Har kom svo
í kaffi, nú og svo kom Brósi og Guðmundur með fimm hross sem verða fram
á vor, tvö folöld og þrír folar ógeltir á öðrum vetri. Sverrir
sendi mér svo grein sem var í dönsku blaði en þar er verið að segja frá
leiðsöguhundi sem tók á móti útlendingum við Kerið fékk kex eða eitthvað
gott og að launum fylgdi þeim svo hringinn í kringum Kerið og skilaði
þeim svo aftur að bílnum enn slæm auglýsing fyrir Íslenska hundinn og
þeir sem ekki vita það þá hét hann Kersins Prins í ættbók vel við hæfi
fyrir þennann fallna höfðingja.
4. apríl 2013
Karlarnir komnir til London og ég held að það hafi alveg passað
að þegar vélin lenti úti þá voru rollurnar hans Guðna komnar uppí
Stóragerði, held að hrossin séu búin að éta hliðið allavega það mikið að
það er ekki mikið gagn í því, þær komu nú samt heim í kvöld að éta en
Dóri og Hjalti gáfu þeim en ég, Jonni og Bensi röltum uppí gerði og
ýttum við þeim.
3. apríl 2013
Gunni Har á afmæli í dag
orðin 78 ára til hamingju með daginn þinn Gunni minn
Fór á
Selfoss í morgun að gera og græja fyrir karlana en það átti eftir að
sækja gjaldeyri og eitthvað smotterí. Nú svo bauð ég Gunna Har í
mat í kvöld enda afmælisdagurinn hans. Bjössi
fór svo á námskeið hjá Hugrúnu og gekk bara svona ljómandi vel bara
gaman að því.
2. apríl 2013
Alveg með ólíkindum hvað veðrið er gott alltaf hreint ætli
maður fái þá ekki norðaustan og kulda í maí en vonandi fáum við gott vor.
Gunni Har kýkti í kaffi í dag og eins kom Kjartan Gunnar líka en hann
var að járna fyrir Dóra.
1. apríl 2013
Þá fer nú að styttast í vorið held ég bara enda kominn apríl.
Siggi Torfi og Ragnhildur kýktu hér við í dag, Sigurður í Ásgerði
kýkti líka við en þá var ég einmitt á Selfossi þannig að ég rétt missti
af honum. Adam kýkti svo við hér líka annars bara rólegheit að
venju.
31. mars 2013
Dagurinn fór í páskaeggjaát hjá mér allavega annars bara
rólegheitadagur. Tengdamamma kýkti svo aðeins við.
30. mars 2013
Rólegheit í dag, held að strákarnir hafi nú ekki farið mjög
seint að sofa í nótt. Hér var svo bara letidagur í dag, Sigga og
Arnar fóru í bæinn, tengdamamma kýkti í kaffi, pabbi kýkti aðeins við og
Gunni Har kýkti í kaffi. Hjalti fór svo heim uppúr hádeginu og
Bjarki eftir leikinn, ég skutlaði Dóra svo á Engjó en hann var að fara
með Kjartani og co í Ölfushöllina á stóðhestaveislu held ég í kvöld
allavega eitthvað hrossatengt.
29. mars 2013
Í dag var farið í páskareiðtúr en úr hlaði Miðengi fóru held ég
18 manns held ég gleymi engum nú úr Vaðnesi fóru 5 og 2 úr Klausturhólum,
aðeins færra var af austursveitinni en nálægt 10 manns, þannig að í
heildana voru á milli 30 og 35 manns sem mættu á hestum að Minni Borg nú
og svo voru nokkrir sem komu þangað á bílum sjálfsagt ekki færri en 10
þannig að það var góður hópur sem mætti í kaffi hjá Hólmari en þar var
veisla að venju takk fyrir okkur. Held að það hafi bara einn
dottið af baki og aldrei þessu vant var það ekki Miðengismaður en allir
komu heilir heim eftir því sem ég best veit. Þetta var bara
frábært dagur í alla staði takk fyrir skemmtilegann dag ;)
28. mars 2013
Mættum í morgunmat í morgun og svo var farið í kirkju en
Dagbjört var fermd í Staðarkirkju ásamt annari stúlku. Þetta var
bara flottasta ferming sem ég hef farið í held ég bara, Kalli pabbi
Dagbjartar hafið samið fyrsta sálminn sem var sunginn bara flott nú svo
fór þetta bara fram eins og vant er held ég nema þegar búið var að ferma
stúlkurnar sunu þær og Kalli spilaði á gítar, þær sungu til skiptis
erindin í nýja Eurovision laginu okkar og svo sungu þær viðlagið saman
og vá hvað þetta var flott, gæsahúð og allur pakkinn mátti engu muna að
maður tárfeldi líka þetta var svo flott. Svo var farið aftur að
Reykjum þar sem þessi flotta veisla var og étið á sig gat takk
æðislega fyrir mig.
Var svo
komin heim um átta leitið.
27. mars 2013
Fór með mömmu og pabba norður að Reykjum í Hrútafirði
seinnipartinn, en Dagbjört Dögg fermist á morgun. Það var nú
slatti af fólki sem kom þarna um kvöldið en það beið okkar þessi líka
rosalega góða kjötsúpa bara snilld :)
26. mars 2013
Fór í klippingu á Selfoss í morgun já og plökkun og litun
aðeins að laga það sem hægt er. Gunni Har kom svo hér færandi
hendi með fullt af fisk handa mér ekki amarlegt það ;) Karlarnir
fóru svo á námskeið hjá Hugrúnu í kvöld og mikið ánægðir :) Nú svo
er bara að skella sér norður á morgun það verður bara gaman.
25. mars 2013
Fór á Selfoss í morgun í sjúkraþálfun. Kjartan Gunnar kom
svo við hér og sótti Þoku. Gunni Har kýkti í kaffi.
24. mars 2013
Bara blíða í dag en það er búið að vera ansi ljúft veður
undanfarið dálítið kalt en það er jú vetur. Sá á Facebook að það
kom lamb í Klausturhólum í gær en ansi hefur sú gimbur gengið snemma en
líklega í okt en hrútadagur er ekki fyrr en 1 nóv, sá líka að það var
komið lamb fyrir norðan og eins eru fréttir af nýbæru í Laugardalnum,
svo við ættum að geta fengið lamb líka fljótlega eða hvað :)
23. mars 2013
Mamma og pabbi kýktu við í dag, en það var dót í bílnum
hjá þeim sem kom úr bænum. Það passaði svo að þau gátu skutlað
Þóru á rútuna en hún er að fara í fermingu á morgun. Það var svo
klárað að rýkja í dag enginn smá gangur á mannskapnum takk fyrir þetta
allt saman.
22. mars 2013
Í dag er rúningsdagur en hér mætti fullt af hraustu fólki í
rúning, við Bjössi stungum af til Reykjavíkur og fengum Ása, mömmu og
pabba með okkur í flutninga, tengdamamma sá um
að gefa rúningsfólkinu að borða en það voru þau Brúney, Kjartan Gunnar,
Baldvin, Bjarki, Hjalti og Siggi nú og svo auðvitað Guðni Reynir þetta
gekk bara vel hjá þeim og eins gekk rosalega vel að flytja, ég tók Þóru
með en hún var komin í bæinn þar sem það var matarklúbbur í kvöld.
Flutningarnir gengu bara rosalega vel, mamma og Þóra þrifu svo íbúðina í
Kópavoginum þannig að þetta er bara allt klárt. Við brunuðum svo
austur til að komast í matarklúbb, en tengdaforeldar Siggu hjálpuðu þeim
svo að koma sér fyrir en þegar við fórum var rúmið komið á sinn stað og
sófinn. Matarklúbburinn var svo í Klausturhólum og tókst svona
ljómandi vel eins og alltaf, full mæting en það gerist nú ekki oft.
Nú og svo var spilað páskaeggjabingó og viti menn ég vann þrjú páskaegg
ekki leiðinlegt það :) Takk æðislega fyrir okkur.
21. mars 2013
Hringt í mig um miðjann dag og það myndaðist glufa í MRI en nú
á ég að mæta þrisvar á ári skilst mér í stutt MRI en nú semsagt átti ég
að mæta á Hringbrautinni klukkan 17.30 það passaði bara ljómandi vel því
ég hitti á Söndru og Garðar um klukkan fimm en Trítla litla var semsagt
að fara heim mikið var hún nú kát. Ég hitti litlu Bryndísi Huldu
en það er nú ekki að sjá að þetta barn hafi verið í stórri hjartaaðgerð,
þvílíkt sem hún leit vel út litla ljósið. Kýkti svo á Siggu og
Arnar en þau eru langt komin með að pakka, kom svo við í Vaðnesi í
heimleiðinni.
19. mars 2013
Guðni Reynir á afmæli í dag orðinn 24 ára til
hamingju með daginn Guðni minn
Tysabridagur í dag, fór í bæinn og tengdamamma fór með mér,
þetta gekk bara ljómandi eins og alltaf fórum svo og kýktum á Siggu en
þau eru farin að undirbúa flutning í skólagarðana bara gaman fyrir þau.
16. mars 2013
Það komu þýskar konur hér í dag að horfa á hross sem önnur
þeirra á. Sigga kýkti svo austur en Arnar er veikur heima, vonandi
að hann fari nú að braggast. Karlarnir fóru svo á aðalfund Goða í
kvöld en ég nennti bara ekki að fara. Annars bara vorblíða en samt
ekki því að það er ansi kalt úti en sól og léttskýjað.
15. mars 2013
Fór eftir hádegið með Undramund og Unu af stað í augnskoðun kom
við í Vaðnesi og sótti Bangsa og Brúney en Brúney fór í bæinn með mér að
hjálpa mér með hundana. Þetta gekk ljómandi vel og voða gott þegar
þetta var allt búið allir hundarnir fengu fína niðurstöðu úr
augnskoðuninni sem betur fer, ekki það skemmtilegasta sem ég geri en
illu er best aflokið, en þetta er kannski ekkert mál að fara með einn
hund en sem betur fer fékk ég góða hjálp annars hefði ég þurft að bögga
karlana hér :) Nú svo í kvöld fór Dóri beint úr Austurkoti að
Flúðum og tók þátt í uppsveitadeildinni og gekk bara svona ljómandi vel
komst í B úrslit en hann var á Tón frá Austurkoti.
Annars er þetta búin að vera ansi
strembin vika hjá mér mikið að gera og hlakkað mikið til þegar það fer
að róast en nú sé ég fram á að næsta vika verði líka strembin, samt ekki
alveg eins og sú síðasta. En viti menn loks þegar fer að róast þá
verður komið eftir páska og þá er nú ekki langt í folöld, sauðburð og
litla drenginn en hef trú á að þetta verði í þessari röð en engu svosem
að treysta.
14. mars 2013
Allt hvítt hér í morgun en orðið snjólaust seinnipartinn.
Sjúkraþálfun í dag, hundslappadrífa á leiðinni á
Selfoss og eiginlega bara sjókoma á Selfossi. Kýkti á krakkana á
Engjó þau alltaf jafn flott. Nú og strákarnir mínir þeir Kjartan
Gunnar, Ási og Dóri fóru svo í kerruprófið í morgun og nú eru þeir allir
komnir með trukkaprófið og kerrupróf, líklega aldrei farið aðrir
eins snillingar í svona próf hér fyrir austan fjall síðan Sigga tók
prófið :) Til hamingju drengir og nú er bara að keyra varlega eins
og alltaf.
13. mars 2013
Fór í bæinn í morgun en átti tíma hjá Hauki Hjaltasyni
taugalækni en en ég á að mæta hjá taugalækni á þriggja mánaða fresti,
þannig að næst er það Albert Páll eftir þrjá mánuði. Nú svo á ég
að fara í MRI þrisvar á ári, ekki hægt að segja annað en að vel sé
fylgst með mér en það er jú út af því að ég er jákvæð fyrir JC veiru en
er samt á Tysabri og því smá líkur á heilabólgu einn
af hverjum tvö þúsund minnir mig hann segja eða þúsund eða eitthvað.
Kýkti svo aðeins á Siggu og svo var brunað austur. Bjössi og
Reynir sóttu svo tvær merar sem eru að fara í fóðrun hér og fara svo út
í haust held ég örugglega. Annars bara allt gott að frétta úr
sveitinni fór aðeins að snjóa hér seint í kvöld.
12. mars 2013
Byrjaði á að fara á Selfoss í morgun með Bjössa en hann þarf
víst nýtt vegabréf áður en hann fer út, Guðni Reynir fór svo líka og
sóttu um vegabréf þannig að þetta er allt að verða klárt. Fór svo
í bæinn með bílinn til Siggu og Arnars þannig að nú eru þau á sitthvorum
bílnum sem er nú aðeins betra en Arnar byrjar að vinna klukkan sex og
enginn strætó þá og Sigga þarf að fara í skólann :) Fór svo með
Siggu aðeins út í skóla en hún þurfti að skila verkefni kýktum svo á
hvar íbúðin er sem þau fá þann 22 mars svo fórum við í Kringluna og
fengum okkur að borða smá. Fórum í Kost og svo fór Sigga og hitti
fæðingarlækni, hún má fara áfram í skólann en á bara að fara vel með
sig. Fékk svo far með tengdó austur en þau voru í
jarðaför í bænum.
11. mars 2013
Sjúkraþjálfun í morgun, gekk bara vel. Brúney Siggi og
Baldvin kýktu svo hér við alltaf gaman að hitta þau annars bara
rólegheit.
10. mars 2013
Það er nú bara vorverður úti ekki alveg eins og það á að
vera í mars en auðvitað er þetta fínt ef ekki kemur neitt hret. Nú
Gunni Har kom í kaffi, Hreinn kýkti líka við nú og svo kom Dóri að
norðan mikið ánægður með helgina sem er bara frábært.
9. mars 2013
Rölti út í hesthús í morgun og tók nokkrar myndir af folöldunum
fattaði svo þegar ég kom inn að ég gleymdi aðal folaldinu en það er
semsagt hann Bjarki ætli ég verði ekki að fara aðra ferð og taka myndir,
horfði samt mikið á þetta fallega folald og var að spá í hver ætti þetta
hehe
Höddi og Magga komu svo austur í dag
langt síðan við höfum hitt það, en okkur var boðið í mat til þeirra en
það var eldaður rauðmagi hjá tengdó, við Reynir fengum reyndar silung :)
þetta var alveg rosalega gott. Takk fyrir okkur.
Dóri
er svo fyrir norðan og gekk bara vel skildist mér, klárinn gerði allt
sem hann átti að gera og drengurinn tolldi á baki hvað vill maður meir
:)
8. mars 2013
Heilmikið um að vera í dag og þá aðalega hjá Siggu og Arnari en
þau eru komin með íbúð í skólagörðunum og fá hana afhenta 22 mars þetta
gerist ótrúlega hratt og svo er þetta á fínum stað en þetta er við
Borgarspítalann held að þetta heiti Skógarvegur. Nú svo var hún
hjá lækni og að að hreyfa sig sem minnst helst að liggja uppí loft þar
til hún fer til fæðingarlæknis sem er á þriðjudaginn. Annars
bara gott verður í sveitinni næstum vorblíða.
7. mars 2013
Forritið sem ég nota til að uppfæra síðuna mína er búið að vera
að stríða mér dálítið og sambland af því og leti við að finna út úr því
varð því valdandi að ég hef lítið uppfært en reyni að bæta því inn sem
ég man eftir.
Fór í
sjúkraþjálfun í morgun og þurfti að gera fullt af æfinum en sjáum hvort
ég lifi þetta ekki af.
6. mars 2013
Hjartaddrottningin fór í aðgerð í morgun og ég búin að vera smá
stressuð yfir þessu öllu á meðan Trítla litla hefur sofið í næstum
allann dag, hefði svosem verið óhætt að treysta á hana því aðgerðin gekk
svona rosalega vel en það er búið að stofna facebook síðu svo hægt sé að
fylgjast með Drottningunni og síðan heitir að sjálfsögðu
Hjartadrottningin.
4. mars 2013
Sjúkraþálfun í morgun og ég komst lifandi frá því enda ekki von
á öðru. Sigga fór í mæðraskoðun og ljósan ekki alveg ánægð með
hana en Sigga á að fara í nálastugur, sjúkraþjálfun, heimilislæknir á að
skoða hana og fæðingarlæknir, þannig að það verður nóg að gera á
næstunni hjá henni nú og svo er það skólinn en sem betur fer er farið að
styttast í páksafrí hjá henni en þetta er heilmikið labb í kringum
þennann skóla en ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, komið vor áður en
maður veit af.
3. mars 2013
Fór í rúmfó með Siggu og Arnari að
skoða dýnur en um að gera að nýta sér afsláttinn sem er í boði þar núna
um helgina, ómögulegt að hafa stelpuna á lélegri dýnu þegar hún er orðin
svona léleg af gridargliðnum.
2. mars 2013
Gunna kom hér í morgun og eins Brúney en það var verið að æfa
hundana og gekk bara vel, bara gaman að því. Sigga og Arnar komu
svo austur og gistu í sveitinni Sigga mætti nú vera sprækari til gangs
en hún fer í mæðraskoðun á mánudaginn en líklega er þetta grindargliðnum
sem er að hrjá hana, en sjáum hvað ljósan segir.
27. feb 2013
Fór í bæinn í dag en það var verið að jarða hana Jónu frænku,
þetta var rosalega falleg athöfn og nú svo hitti maður fullt af
frændfólki suma hitti ég svosem í jarðaför fyrir viku en svona getur
þetta verið.
Fór svo til Siggu og sótti hana Trítlu en hún er að koma í pössun en
Sandra og Garðar fóru með Bryndísi Huldu sem er líka kölluð
Hjartadrottningin til Svíþjóðar í morgun en hún er að fara í
hjartaaðgerð litla stráið og bara þriggja mánaða gömul og nú þegar búin
í einni aðgerð.
24. feb 2013
Aðeins bæst í kotið í nótt en þegar Guðni Reynir kom heim í
nótt eða morgun tók hann Kjartan Gunnar mér sér sem er bara hið besta
mál en þeim tókst nú að tapa Bjarka í bænum var nú frekar ósátt með það
en hringdi nú bara í kappann og þá var hann hjá foreldrum sínum sem
betur fer en sagði þeim að næst yrðu þeir að handjárna Bjarka við sig
ekki viljum við nú að hann tapist aftur og óvíst að hann endi heima hjá
foreldrum sínum næst en sem betur fer slapp þetta nú til.
Jonni kom svo við hér í morgun en það endað ekki neitt rosaskemmtilega
hjá þeim þorrareiðin í gærkvöldi . Annars bara heilmikil rigning
hér í dag og gott ef Valla hefur ekki bara tekist að laga þakið allavega
ekkert lekið :) er á meðan er. Uppfærði svo
niðjatalið en það fæddist ný frænka núna 22 feb.
23. feb 2013
Heilmikið að snúast í dag, fór fyrst með karlana á Selfoss en
þeir voru að fara í Þorrareiðtúrinn, kom svo heim og sótti Þóru og kom
henni á rútuna. Kom aftur heim og þá var Gunni Har mættur í kaffi.
Fór svo með Tíbrá á Stokkseyri að hitta hann Vask, tók svo Bjössa, Dóra
og Hjalta Pétur heim, Sverrir og Jonni ekki alveg tilbúnir að fara heim
með mér nú svo er bara eftir að koma þeim í bælið hvernig
sem það nú gengur.
22. feb 2013
Fór í bæinn í morgun í jarðaför en það var verið að jarða hann
Guðmund Skaptason þetta var rosalega falleg athöfn. Fór svo niður
á Barnaspítala og heimsótti hana Söndru og hana litlu Bryndísi sem er að
bíða eftir að fara út til Svíþjóðar held ég í hjartaaðgerð, hún gengur
líka undir nafninu Hjartadrottningin, rosalega flott og dugleg stelpa.
Sótti svo Þóru og brunuðum austur. Nú svo var farið með
matarklúbbnum á Kaffi Krús og þaðan að sjá Þrek og Tár sem leikfélag
Selfoss er að sýna rosa skemmtileg sýning nú og aftur farið á Kaffi Krús
og þaðan heim.
20. feb 2013
Búin að vera að saum í allann dag og langt komin með teppið
klára það í fyrramálið hugsa ég. Fór með Gaur og hjálpaði Bjössa
að æfa sig á nokkrum rolluskjátum.
Dóri snillingur kom svo
til mín í kvöld og spurði ,,Hvernig er eiginlega með þessa ömmu" ég
spurði hann hvað hann væri að spá ,,fullt af rennilásum bilaðir" sagði
hann og ,,amma er bara á Kanarí og heldur að hún sé að éta nautasteik
sem er örugglega hrossasteik" fannst á Dóra að honum findist þetta
alveg nógur tími sem þau eru búin að vera þarna
úti og ekki laga ég rennilása...
Á morgun
fer Dóri svo í bóklega prófið í meiraprófinu vonandi nær hann því það
verður ansi gott þegar hann verður kominn með prófið þá get ég fengið
bílinn hans lánaðann í bæinn og hann farið á mínum í vinnuna ef þannig
stendur á annars hefur Guðni nú verði liðlegur við mig og farið á L-200
í vinnuna þegar þannig hefur staðið á.
19. feb 2013
Kjartan
Gunnar á afmæli í dag til hamingju með daginn ljúfurinn minn :)
Byrjaði daginn á að fara í bæinn í Tysabri, það gekk rosalega
vel að venju, Jónína skoðaði niðurstöðurnar ú blóðprufu og spurði hvort
ég væri á lyfjum útaf kólestróli, ég spurði nú bara hvort ég ætti að
vera á svoleiðis lyfjum en hún sagði að ég væri svo agalega fín í
kólestróli að hún taldi víst á ég væri á lyfjum, en það er nú ekki öllum
gefið að vera svona heilbrigð og ég ;) Fór svo í Virku og keypti
efni í teppi fyrir litla dömu sem gengur undir nafninu Hjartadrottningin
en hún er þessa dagana á barnaspítalanum og á leið í hjartaaðgerð
númer tvö sem verður gerð erlendis og bara nokkra mánaða skotta.
Fór svo til Siggu og við fórum í Bónus og versluðum slatta, sá þar konu
sem ég kannaðist við en vissi og veit reyndar ekkert hver er ennþá en
þegar hún sá að ég var í úlpunni minni sem er merkt Miðengi þá vissi hún
alveg hver ég var en hún á víst sumarhúsalóð hér í Farengi hef ég grun
um. Þá var brunað austur, Tíbrá og Undramundur sótt og farið með
þau á Stuðla en en ég þurfti vottorð fyrir Tíbrá svo hægt sé að para
hana en það má para hana eftir 3-6 daga þannig að helgin fer í það.
Lét svo taka sæðisprufu úr Undramundi til að vita hvort hann sé nú í
lagi og hann er í fínu lagi 90% virkni skildist mér. Kom svo
hundunum heim og brunaði svo í Hveragerði að sækja Gunna Har því hann er
bíllaus en við fórum svo á Aðalfund Barms sem er fjárræktarfélagið hér
það var nú bara ansi margt fólk á fundinum og bara gaman.
18. feb 2013
Sista
frænka er áttræð í dag til hamingju með daginn þinn kæra frænka
Skaust aðeins á Selfoss í dag en það vantaði mjólk og eitthvað
smotterí annars er bara gott verður súld eiginlega og ekki eins og það
sé febrúar.
17. feb 2013
Við Bjössi fórum með Gaur og Skjóna í Hólmarshöll að hitta fólk,
hund og nokkrar skjátur þetta gekk bara ljómandi vel og gott ef það
verður ekki bara fullt af hundum sem hægt verður að smala með í haust.
Ég fékk svo far með Brúney heim en hún og Kjartan Gunnar kýktu í heitt
kakó en allavega mér var orðið frekar kalt.
16. feb 2013
Settum fullorðinsmerkin í lömbin í dag, og það passaði þegar
við vorum passlega búin að þessu þá voru Helga, Guummi og Aron í
Klausturhólum búin að handsama 6 skjátur í Búrfellinu en þar áttum við
rollu og gimbralamb, svo var eins par frá Eyvík, stök rolla frá
Klausturhólum og hrútur frá Björk þannig að það var nú gott að það var
hrútur í hópnum.
14. feb 2013
Fór í bæinn í morgun í jarðaför en það var verið að jarða hann
Guðmund Óla pabba hennar Kristínar þetta var mjög falleg athöfn og gott
veður og mikið af fólki þekkti ansi fáa enda átti ég ekki von á öðru.
Fór svo til Siggu en við fórum í Virku að kaupa efni í teppi fyrir
prinsinn sem er á leiðinni, kýktum svo aðeins í Smáralindina og fundum
það sem vantaði þar. Adam og Telma kýktu svo aðeins við í kvöld en
þau voru að sækja rúllu. Gunni Har kýkti við en annars bara allt við það
sama.
12. feb 2013
Enn er vorblíða en þó aðeins farið að kólna, sem er bara gott
held ég. Valli smiður kom hér í morgun og kýkti á þakið og setti
klístur hér og þar svona til að það hætti nú að leka vonandi virkar það.
Kjartan Gunnar kýkti svo hér um miðjann daginn, Gunni Har kom svo í
kaffi og Kjartan kom svo aftur seinnipartinn þannig að það var dálítið
rennerí á fólki hér í dag.
11. feb 2013
Bara vorblíða úti, ekki alveg eins og maður vildi hafa það á
þessum árstíma betra bara að fá vorið í vor en svona getur þetta verið.
10. feb 2013
Við Bjössi fórum í Hólmarshöll með
Gaur í dag að hitta hana Gunnu sem mætti með nokkrar skjátur ásamt
fleira fólki og nokkrum hundum þetta er alveg nauðsynlegt nú og Gaurinn
gerði engann skandal svo hann má mæta aftur í næsta hitting. Annars
bara ansi blautt úti svona vorúði en vonandi fer nú gróðurinn ekki að
lifna.
9. feb 2013
Mikið að gera hjá Dóra þessa dagana í gær morgun fór hann í
vinnu svo beint á meiraprófsnámskeið eftir vinnu, svo beint á árshátíð
skólans gisti svo á Selfossi og þaðan beint á mámskeiðið aftur, hann kom
svo heim í dag eftir námskeiðið út í hesthús og á eitthverjar
sparitruntur og svo beint á Selfoss aftur.
Guðni Reynir er að skríða saman og farinn að geta farið í fjárhúsið,
snjórinn næstum alveg farinn svo Sigga skellti sér austur svona rétt til
að fá smá bollur, Brúney og allir strákarnir hennar kýktu svo við hér í
dag, alltaf eitthvað um að vera hér á bæ.
8. feb 2013
Guðni Reynir aðeins að skána en þó ekki nærri nóg og verður því
heima í dag hann mætur bara öflugur á mánudaginn til vinnu.
Dálítil snjókoma í nótt og í morgun en eins og það ætli að rigna núna
seinnipartinn þó ekkert að ráði en allavega frostlaust. Nú
folaldið undan Nös og Spuna var bara dautt í morgun þegar Bjössi kom í
hesthúsið, búið að vera dálítið skrítið síðan það veiktist í haust en
ekkert dauðalegt svosem en svona getur þetta verið.
Gunna
kýkti svo við í kaffi og spjall alltaf gaman að því.
7. feb 2013
Fór á Selfoss í morgun með læknisvottorð og eitthverja pappíra
fyrir Dóra á sýsluskrifstofuna en nú er hann kominn með
fullnaðarskírteini enda orðinn 18 ára og nú er semsagt
meiraprófslærdómur að skella á á fullu. Guðni Reynir var heima í
dag enda með hitavellu og hálfónýtur.
6. feb 2013
Guðni Reynir kom frekar slappur heim úr vinnunni en líklega er
hann búinn að næla sér í flensuskít en vonandi lagast hann nú fljótt.
5. feb 2013
Mamma og pabbi eru komin til Kanarí og gekk bara vel á ekki von
á öðru en þau eigi eftir að hafa það mikið gott þarna úti í hitanum.
ÉG
fór á Selfoss í morgun til augnlæknis, þarf ný gleraugu sem eru ekki
eins sterk og þessi sem ég er með þannig að nú er nærsýnin farin að
ganga til baka :) en auðvitað er þetta skrítið að þurfa allt í einu að
taka af sér gleraugun við lestur en svona er þetta bara. Gunni Har
kýkti svo við í kaffi og Adam kom að sækja sér rúllu.
4. feb 2013
Fór á Selfoss í morgun þurfti að útrétta smá. Það var
dálítill snjór hér í morgun og er enn, en ekkert sem truflar mann.
Bjössi fór að sækja hana Spari Brúnku á Selfoss en hún heitir nú Vera
blessunin, spurning hvað maður gerir með hana. Annars bara allt
við það sama.
3. feb 2013
Það var komin snjóföl hér í morgun og seinnipartinn bara smá
bylur þannig að ég var nú bara kát með að krakkanir fóru í bæinn í
gærkvöldi. Annars bara rólegheit. Gunni Har kýkti við.
Helgin búin að vera rosa fín í alla staði, takk fyrir góða helgi kæru
vinir.
2. feb 2013
Dóri og Guðni Reynir voru fyrstir á fætur hér á bæ, Guðni
Reynir fór í fjárhúsið en Dóri fór á Selfoss á skyndihjálparnámskeið en
hann ásamt Ása og Kjartani Gunnari eru í meira prófinu þessa dagana.
Það var svo farið í grautinn til Jonna og Lindu, ég fór svo eftir
hádegið og skutlaði Þóru á rútuna. Dagurinn í alla staði mjög
góður, útbjó svo kjúklingaspúpu fyrir mannskapinn í kvöldmat.
Sigga og Arnar brunðu svo í bæinn undir kvöld nú og Gróa og Toni fóru
svo líka eftir matinn. Horfðum svo á söngvakeppnina sem var bara
gaman eins og alltaf.
1. feb 2013
Þorrablótsdagur
í dag, Sigga og Arnar komu heim seinnipartinn en við vorum 13 sem
fórum á þorrablót héðan, sátum uppá sviði þetta árið svo næst verður við
líklega í salnum. Blótið tókst bara ljómandi vel en hér voru allir
komnir heim og farnir að sofa um fjögurletið enda annar í þorra á morgun
svo það er nú betra að vera klár í hafragrautinn hjá Jonna og Lindu.
31. jan 2013
Búin að
vera ansi léleg í að uppfæra, samt svosem heimikið um að vera, bara löt
og sjónin eitthvað að hrekkja mig kannski það sé bara ellikerling en
trúi því nú samt tæpast.
Fór á Selfoss og útréttaði
slatta, Þóra kom svo með rútunni og allt að verða klárt fyrir blótið í
kvöld.
22. jan 2013
Fór eftir hádegið og heimsótti Hönnu Kötu alltaf mikið gaman að kýkja
til hennar. Bjössi og tengdapabbi kýktu í Kringlumýrina og allt í fínu
standi þar. Gunni Har kýkti svo við hér í kaffi en annars bara
rólegheit.
21. jan 2013
Fór í bæinn í morgun og tók Þóru með mér við byrjuðum á að
kýkja til Siggu svo skutlaði ég Þóru á rútuna, nú svo var það Tysabri en
þegar ég var búin þar kýkti ég til Sistu og Hjalta og sótti
barnarúm fyrir Siggu og Arnar, skutlaði svo Arnari heim eftir vinnu hjá
honum og sótti USB lykilinn sem ég skidi eftir hjá Siggu í morgun, var
komin heim um fimm leitið.
20. jan 2013
Ég fór ásamt Þóru og tengdamömmu á dollukynningu til
Huldu í dag, ekkert smá mikil hálka á Selfossi kannski minnst á
aðalgötunni en ansi hált á bílaplönum og gangstéttum. Gunni kýkti
við í dag og Ingþór kom líka við, Kjartan Gunnar og Magga litu líka inn.
19. jan 2013
Sigga
og Arnar kýktu austur í dag. Bjössi, Guðni Reynir, Jonni og
tengdapabbi fóru og kýktu á fjárhúsin hjá Auði á Hömrum og leist bara
rosalega vel á. Annars bara slydda og eða rigning og ekkert mjög
spennandi veður í dag.
18. jan 2013
Afmælisdagurinn hennar Helgu ömmu í dag hefði
orðið 98 ára í dag
Ég er öll að koma til, Þóra mín er búin að vera eins og
stormsveipur hér í dag með tuskuna og ryksuguna og bara allt á fullu
fyrir matarklúbbinn. Valli kýkti svo hér í dag og kýkti uppá þak
hann er með eitthverjar hugmyndir hvar skal setja smá plástur á þakið og
sjáum hvort það hættir að leka. Kjartan Gunnar og Magga kýktu svo
við hér í dag og ekkert smá sem strákurinn minn er oðinn flottur :)
Nú svo var matarklúbbur
hér í kvöld og tóks svona ljómandi vel, Bara Jóa og Snæbjörn sem ekki
komust en það er nú bara eins og gengur. Rætt um leikhúsferð í
bæinn og allt sem því fylgir var nú ekki alveg agalega fínt tilboð í
Gaflaraleikhúsið gisting leiksýning og matur en svo þegar maður fór að
reikna þetta saman þá er þetta bara ansi dýrt þrátt fyrir tilboð, eða
kannski ekki dýrt pr mann en þegar það eru hjón og svo þarf að kaupa vín
líka nú og keyra í bæinn þá er þetta bara orðið um 50 þúsund , ég var
allavegna ekki búin að reikna þetta til enda. En við
erum að spá í að athuga með að sjá bara leiksýningu á Selfossi,
það er örugglega bara gaman.
17. jan 2013
Fór í Laugarás í morgun og fékk lyf hjá Pétri svo ég væri nú orðin góð í
maga og svo ég komi í lyfjagjöf eftir helgina. Brúney
og Siggi kýktu svo við hér þegar ég kom heim um hádegið. Eftir
hádegið fór ég á Selfoss og áttaði mig á því að ég er með ofnæmi fyrir
þessu lyfi sem ég fékk en það er samt ekki með sama nafni og lyfið sem
ég vissi að ég væri með ofnæmi fyrir. Fór í apótekið, og fékk mér
ofnæmislyf, hringdi í Pétur og bað hann að senda mér eitthvað skárra,
heimsótti svo Huldu í vinnuna, sótti Þóru á rútuna nú svo fórum við í
ríkið og Bónus og brunuðum svo heim. Ég skánaði bara ekkert
og þegar ég loks druslaðist inní rúm var ég komin með bullandi hita,
skellti svo í mig panodil en ég er nú næstum aldrei með hita hvað þá
rúmlega 39 stiga hita. En þar sem ég er með tysabri lyfið í
kerfinu þá er lítið mótefni til staðar en hugsa að þessvegna hafi ég
fengið hitann.
12. jan 2013
Hún Sara kom
hér í dag ásamt mömmu sinni held ég örugglega og fóstra. Þau voru
að koma með fylfulla hryssu í vetrarfóðrun, nú þegar ég vissi að fylið í
hryssunni væri undan Hellnafellshesti var ég nú ekkert viss um að skila
folaldinu í haust en það eru ansi spennandi hestar. Fór svo á
rúntinn en Kjartan Gunnar fór með mér, byrjuðum á að fara með eina
hryssu til Gests, svo aðra til Adams. Næst var farið í
Þjóðólfshaga og þar var ein hryssa skilin eftir sem fer svo í Holtsmúla
en við tókum svo Þoku með okkur, fórum næst að Syðri Rauðalæk og kipptum
með okkur einu folaldi sem er að koma hér í fóðrun. Ansi mikil
hálka fannst mér nú og ég var rétt komin heim þegar Bjössi lítur út um
gluggann og í brekkunni við Kerið voru þrír bílar
með blikkandi ljós. Þegar ég skutlaði svo Dóra í Austurkot sá ég
að þarna var hvítur Vitara held ég á toppnum í vegkantinum, vona bara að
fólkið hafi ekki slasast en þegar bíllinn sem ég held að hafi verið
skjúkrabíll fór niðrúr var hann ekki með bláu ljósin svo vonandi slapp
þetta til.
11. jan 2013
Fór í bæinn eftir hádegið í kistulagningu og jarðaför en Guðbjörg Ólína
Guðnadóttir hálfsystir hans pabba var borin til grafar í dag. Prestinum
tóks ekki vel upp, held að honum hafi aldrei tekist að nefna fullt nafn
hennar rétt en stundum var það Ólöf og allavega einusinni Ólafía, nú svo
ruglaði hann gælunafninu á henni við eftirlifandi systur hennar sem sat
bráðlifandi hjá okkur. Presturinn sagði jafnframt að fyrir hefði
Guðni afi átt Gústav og Ólafíu sem dó ung. Pabbi og Ólafía voru nú samt
yngst af Guðna börnum nú og Ólafía náði nú líklega að verða fimmtug en
auðvitað er það ungt en samt.... jæja hvað um það
blessuð sé minning Lólóar frænku. (eins gott að ég fari nú ekki að
rugla þessum gælunöfnum)
Kom svo við á þremur stöðum í
bænum, henti svo dóti inn til Siggu og Arnars og brunaði heim.
10. jan 2013
Tók smá skurk í þvottahúsinu í morgun og fann rúmlega 200 VHS spólur sem
ekki hefður verið horft á í mörg ár, sendi Brúney með þetta handa
Sigga vini mínum á Villingarvatni, veit ekki alveg hvort hann kemst í
skólann á morgun ;) en hef nú trú á að móðir hans gefi það nú ekki eftir
en allavega hefur hann nóg að gera um helgina. Kjartan Gunnar
kýkti líka við en hann kemur svo aftur í fyrramálið að járna fyrir Adam
og Svein.
8. jan 2013
Fór í
bæinn í dag í Tysabri en í fyrsta sinn held ég bara fékk ég ekki lyfið
þar sem ég er búin að vera slæm í maga og þar sem Tysabri er svo mikið
ónæmisbælandi þá verð ég að vera komin í lag áður en ég fæ lyfið aftur
sem gæti verið eftir ca tvær vikur. Við Inga byrjuðum á að kýkja á
Siggu þar sem hún verður farin í sónar þegar við förum austur.
Allt leit svona ljómandi vel út í sónarnum allt á sínum stað, já og
pungurinn líka sagði Sigga þannig að það er von á strák í vor ;) en það
er nú fyrir öllu að allt er á réttum stað. Dagsetningin hefur
ekkert breyst og er hún skráð 25 maí.
6. jan 2013
Matarboð hjá mömmu og pabba í kvöld frábær matur eins og alltaf
og bara gaman. Sigga og Arnar fóru svo beint í bæinn enda vinna
hjá Arnari í fyrramálið. Takk fyrir okkur.
5. jan 2013
Annar í afmæli samt bara rólegheit farið á
hestbak, gestagangur eins og gengur og bara yndislegur dagur
4. jan 2013
Mikið um að að vera í dag byrjaði daginn á að fara í klippinu
og strípur, því næst brunað heim og svo aftur á Selfoss en hann
Guðmundur Snæ var borinn til grafar í dag og fylgdum við honum að
sjálfsögðu. Aftur brunað heim og út á Borg að græja salinn fyrir
afmælið sem gekk bara ljómandi vel, held að málið sé bara að hafa eina
góða manneskju í að skipulegga og við hin gerum eins og okkur er sagt
annars hefðum við verið langt fram á nótt að raða borðunum upp.
Afmælið tóks líka svona rosalega vel, reyndar var okkur sagt að
rafmagnið yrði tekið af á miðnætti og gerðar ráðstafanir varðandi það
svo var því seinkað til fjögur um nóttina en fyrir rest var rafmagnið
ekkert tekið af, sáum samt þegar við komum heim að hér hafði rafmagnið
verið tekið af.
Takk æðislega fyrir
frábært afmæli og fyrir alla hjálpina þetta gerir sig ekki sjálft.
3. jan 2013
Fór með Skjálfa Hrinu og Alísu til Dóra í Austurkot um hádegið,
skildi bílinn og kerruna eftir þar en við tengdamamma fengum bílinn hans
Dóra og fórum á Selfoss, ég fór í plokkun og litun, nú svo fórum við og
keyptum gosið í bolluna, og bjórinn sóttum svo bílinn, kerruna og
hryssurnar eftir prufuna í Austurkoti, sóttum svo Þóru á rútuna.
Nú svo er bara allt að verða klárt fyrir afmælisveisluna annað kvöld,
þetta verðir bara gaman, rúta fyrir mannskapinn og alles.
2. jan 2013
Jæja þá þarf maður nú að fara að hrista af sér jólaslenið.
Fór á Selfoss með föt í hreinsun en það má nú ekki klikka fyrir afmælið.
Annars kem ég nú lítið nálægt þessum undirbúningi en betra að hafa
karlinn fínann nú og svo þarf ég víst að versla inn í mat og drykk.
Geri svo ráð fyrir að einhvað af fólki gisti hér þannig að ég þarf að
fara að huga að því að raða í herbergi, en þetta verður bara gaman og
ótrúlega fáir sem hafa aboðað sig en nýjustu tölur eru að 107 manns mæti
bara gaman hlakka bara mikið til.
1. jan 2013
Bjössi minn fimmtugur í
dag til hamingju með daginn þinn elsku karlinn minn :)
Rólegheitadagur í dag, ekkert farið af bæ og við bara fjörgur í
kotinu Sigga og Arnar fóru jú í bæinn í nótt.
31. des 2012
Frekar kalt í dag en kannski ekki svo margar mínusgráður á mæli.
Hér er allt autt og stefnir ekki í neinn snjó í bili held ég.
Skaust á Selfoss í morgun með tengdamömmu, verið að ná í það sem
gleymdist fyrir kvöldið.
Við borðuðum svo saman hjá tengdó, vorum ellefu í mat, tengdó, mamma og
pabbi, Gunni Har og svo við ásamt börnum og tengdasyni. Maturinn
tókst svona ljómandi vel en við vorum með kalkún og léttreyktann
lambahamborgarahrygg sem var reyktur á Böðmóðstöðum og annann hrygg af
veturgömlu sem var reyktur í Krás aðeins misjafnt hvað fólki fannst best
en niðurstaðan með hryggina var sú að þeir voru rosalega ólíkir en báðir
bestir ekki slæmt það. Fórum svo á brennuna á Borg rosalega flott
flugeldasýning fannst mér. Nú svo var horft á skaupið hér mér
fannst það nú bara ljómandi gott hló alveg helling en fannst nú
þjóðhátíðarsketsarnir langt út fyrir öll mörk. Annað bara fínt.
Gleðilegt ár kæru vinir og takk fyrir samfylgdina á liðnu ári reyni að
vera duglegri að uppfæra að ári...
|