31. des 2016
Þá er þetta ár að lokum komið sem er bara gott. Við vorum
ellefu í mat hér í kvöld, og bara rólegheit, fórum svo öll á brennuna út
á Borg nema mamma og tengdamamma sem ákvaðu að vera heima. Þetta
var bara gaman og frábært veður, reyndar dálítið kalt, en fengum
norðurljós í staðinn náði svo flottri mynd og bara á símann minn, en
gleðilegt ár öll sömul.
29. des 2016
Við Inga fórum í bæinn í dag en ég þurfti að vera mætt uppá
spítala í nýja lyfið mitt klukkan átta í morgun en Inga notaði tækifærið
og heimsótti Hödda og Möggu en Inga og Magga fóru uppí kirkjugarð
og í ýmislegt stúss líka á meðan ég fékk lyfið mitt en það átti nú að
taka allann daginn en var búin uppúr tvö og við vorum komnar heim um
hálf fjögur. Skilst að þetta lyf farin nú jafnvel ekkert að virka
nærri strax en var nú að vona að það myndi tikka inn sem allra fyrst en
hef nú oft verið betri en sjáum til.
27. des 2016
Guðrún Lára og Óðinn skutluðu strákunum austur í dag, en veðrið
var nú ekki spennandi, en þetta slapp samt allt til.
26. des 2016
Rólegheita dagur í dag en búið að rigna helling, krakkarnir
fóru á ball í kvöld en leigubíllinn sem sótti þau lenti í bölvuðu veseni
og festi sig á afleggjaranum, þannig að Bensi var kallaður út til að
draga bílinn upp og ég skutlaði krökkunum út á veg, en það gekk svona
líka vel að skila þeim heim aftur því þá var orðið næstum autt hingað
heim.
25. des 2016
Sigga skutlaði strákunum í bæinn til föðurfólksins í dag.
Vorum svo með hangikjöt í kvöld en við vorum fimmtán í mat en Steinar,
Rebekka, Sverrir, Karítas og krakkarnir komu svo eftir matinn.
Mikið gaman og spilað fram á nótt.
24. des 2016
Gummi Óskar kýkti við og Adam kom líka við. Gróa og Toni
fóru í bæinn til krakkana, Kjartan Gunnar, Fríða og Sigurbjörn Ragnar
komu líka við hér í morgun. Guðni Reynir og Árni Kristinn komu svo
hér fyrir hádegið en um hádegisbilið mættu hér tveir jólasveinar,
Þorbjörn Óðinn var rosalega spenntir en yngri mennirnir héldu sig nú
aðeins til hlés, leist nú ekki alveg á lætin í þessum gaurum, en
allir fengu þeir bók í pakka og voru mjög sáttir. Hér var
svo möndlugrautur í hádeginu og Dóri vann spilið Segðu, sem er bara
skemmtilegt segja krakkarnir.
Maturinn tóks ljómandi vel, það var þannig í fyrra að Þorbjörn
Óðinn vildi bara opna einn pakka og var næstum ófáanlegur til að opna
fleiri en í ár tók hann upp alla pakkana sína þó svo að einn hefði dugað
allavega ef hann hefði ekki byrjað á mjúkum pakka, Halldór Rafn
tók aftur allt annann pól í þetta og vildi opna alla pakkana á bænum
hvort sem hann átti þá eða einhver annar en mikið sátt fjölskylda sem
fór að sofa takk fyrir okkur.
23. des 2016
Var svo heppin að ég slapp við að fara á Selfoss í dag, Sigga
og Dóri fóru og kláruðu jólainnkaupin. Fórum svo í skötuveisluna á
Borg klikkar aldrei held ég bara. Annars bara tilteki og
undirbúningur. Hjalti Pétur og Ólöf komu hér við alltaf gaman að
fá þau í heimsókn.
22. des 2016
Tengdapabbi var jarðsettur í dag, þetta var virkilega falleg
athöfn, og einsöngvarinn algjörlega frábær. Það komu svo um 200
manns í kaffið en einhvað af fólki kom bara í kirkju. Takk
æðislega öll fyrir daginn.
20. des 2016
Kjartan Gunnar kýkti hér við í morgun með fullt af fötum
sem eru orðin of lítil á Sigurbjörn Rafn, þannig að nú fer þetta til
Hjalta og Ólafar svona til að finna út hvort þau geta notað eitthvað á
dömuna sem kemur í mars.
Skellti mér svo á jólaball út á Borg og tók Ingu með mér það var bara
mjög gaman, drengirnar nokkuð sáttir held ég bara en bara Árni Kristinn
sem vildi sitja hjá jólasveininum. Leiðindarveður svo um miðjann
daginn heiðinni lokað rétt á eftir að Toni lagði af stað austur en þetta
slapp allt til.
19. des 2016
Búið að vera ansi mikið snjófjúk í dag og allt orðið hvítt, svo
er bara spurning hvað það endist eða hvort það bætir í. Er búin að
græja jólakortin en finn svo ekki listann yfir þá sem eiga að fá kort,
sem ég skil nú ekki alveg hélt að þetta væri í minni tölvu en sjálfsagt
er þetta á lykli eitthverstaðar svo ég verð bara að reyna að rifja þetta
upp.
18. des 2016
Rölti yfir til tengdó í morgun í smá spjall, svo kom séra Pálmi
um tvö leitið mjög gott að hitta á hann. Nú svo kom hún Gunna mín
með kjötið mitt sem hún var að reykja en ég plataði Hödda til að skera
það áður en hann fór í bæinn. Sigga sótti svo strákana í bæinn en
Sigga, Bjössi og Þorbjörn Óðinn brunuðu niður að Snæfoksstöðum að kaupa
jólatré en Þorbjörn Óðinn valdi tréð og bara nokkuð ánægður með
sig skildsist mér. Sigga og Bjössi fóru svo yfir til Ingu í kvöld
með strákana. Ingþór og Hulda kýktu við og svo koma Auður aðeins
við hér líka en hún var að sæða forystuskjáturnar mína og nokkrar aðrar.
17. des 2016
Hittumst öll hjá Ingu í hádeginu í dag en Gísli frá
útfararþjónustinni, kom og hjálpaði okkur með að átta okkur á hvað þarf
að vera klárt fyrir hvaða tíma. Held að þetta sé allt að smella
saman nema kannski að átta sig á því hversu mörgu fólki er von á.
Við áttum svo miða á jólatónleika Baggalúts kl 17.00 en við fórum
átta saman við hjónakornin, krakkarnir, Toni og Bjarki en
Gróa var að vinna, og mikið var þetta gaman, eigum klárlega eftir að
fara árlega á þessa tónleika, og eins er alveg á hreinu að ef Eyþór
verður aftur með svona jolatónleika þá missi ég ekki af því heldur.
Nú svo fengum við okkur að borða á Kaffi Krús á leiðinni heim.
16. des 2016
Fór til tengdó fyrir hádegi í dag og var framyfir kaffi, Inga
gat þá farið á röltið, hringdi í Dóra sem var á leiðinni suður og komin
í Mosó og gat skilaði kveðju frá honum til afa síns en þá blikkaði gamli
maðurinn augunum en hafi ekki séð mikil viðbrögð fram að því. Ég
fór svo og verslaði smá og var komin heim um fjögur leitið eins og Dóri,
og Sigga fljótlega eftir það en við Gróa og Sigga vorum rétt búnar
að fá okkur kaffi þegar Inga hringdi og lét vita að Reynir væri dáinn,
hún var svo heppin að gera verið hjá honum síðustu andartökin. Við
fórum svo öll niður á sjúkrahús og eyddum dálítlum tíma þar, en mikið
gott að geta kvatt hann og séð hvað hann var friðsæll og loksins
verkjalaus.
Orðið ansi stutt til jóla en það verður jarðað 22 des frá Bústaðarkirkju
kl 13.00
Ási og Bjarki komu hér svo í kvöld mikið gott að fá þá í heimsókn.
15. des 2016
Allt óbreytt já tengdapabba. Sigga fór til hans í kvöld
og var lengi hjá þeim, en Inga gat þá farið aðeins út og fengið sér
frískt loft.
Það var svo band og snúrumúlanámskeið hér í dag, það voru tveir
hópar fyrri hópurinn var kl 15.00 og þar mættu ég,
Brúney, Eva, Gunna, Kjartan Gunnar og Fríða og í seinni hópnum voru
Ingólfur, Guðrún, Tinna, Toni og Auður, þetta var bara gaman.
14. des 2016
Það var hringt af spítalanum í morgun en Reynir orðinn ansi
lélegur, fór með Ingu niðureftir en nú er komið að því að það er gott ef
einhver getur verið hjá honum. Mamma og pabbi ætla svo að kýkja
kvölds og morgna til þeirra en Inga skaust heim í kvöld og náði sér í
náttföt en hún fær að gista hjá honum sem er mjög gott fyrir þau bæði.
10. des 2016
Ég, Bjössi, Sigga, Gróa og Toni fórum á Jólagesti Björgvins í
kvöld mjög skemmtilegt, komum svo við á leiðinni heim í Kaffi Krús og
fengum okkur að borða.
5. des 2016
Kýkti á tengdapabba í dag en hann var mikið kátur með að sjá
mig, ég þurfti svo að mæta í bæinn til Alberts Páls kl 17.00 og Reynir
passaði vel uppá að ég færi tímanlega af stað svo ég kæmi nú ekki of
seint, lofaði honum svo að koma aftur til hans þegar ég kæmi aftur
austur. Var komin tímanlega til Alberts Páls lá bara vel á honum
og á að panta mér aftur tíma í júní, eins gott að ég gleymi því ekki þar
sem læknaritarinn var jú farin þegar ég var búin hjá lækninum. Kom
svo við hjá Reyni í bakaleiðinni en við áttum
mikið góða stund og spjölluðum mikið saman, ómetanlegt.
4. des 2016
Við Sigga brunuðum í bæinn í morgun að sækja strákana en Guðrún
Lára og Þorbjörn voru veik í alla nótt og Arnar var svo orðinn veikur í
morgun. Vorum ansi heppnar því strákarnir bara ágætir Þorbjörn
Óðinn greinilega búinn en Halldór Rafn ekkert orðinn veikur svo
við krossum fingur og vonum bara að hann sleppi. Ég skaust svo út
að Bjarnastöðum með smá kjöt til að hengja upp í kofann hjá Gunnu og tók
eins og eina rolluskjátu til baka sem er að fara í slátur.
Við Gróa áttum svo miða í leikhús að sjá Maður sem heiir Uwe og Bjössi
og Toni áttu miða á Boney M tónleikana. Þegar á reyndi treysti
Bjössi sér ekki svo pabbi fór í hans stað, Toni var orðinn ansi veikur
og Svenni fór í hans stað og Gróa var heima að hugsa um Tona og Magga
fór þá í hennar stað. Var komin heim fyrir miðnætti en þá var Toni
kominn með yfir 40 stiga hita þetta er nú meiri ljóta pestin. En
við sem fórum í leikúsið og á tónleikana skemmtum okkur mikið vel takk
fyrir mig.
3. des 2016
Gróa á afmæli í dag til lukku
með daginn þinn kæra vinkona
Sigga lagðist í ælupest í gærkvöldi, Bjössi í nótt en ég náði
að klára þetta ógeð í nótt og morgun, Gróa með smá ónot en vonandi
er þetta að verða búið. Komumst því miður ekki að fylgja
Elíasi í Haga en það fannst okkur mjög leiðinleg hefðum svo gjarnar
vilja komast. Vorum samt orðin skrárri seinnipartinn en ekki
þannig að maður færi mikið innanum fólk.
2. des 2016
Það var fundur í dag niður á spítala þar sem okkur var gerð
grein fyrir stöðunni en held nú að allir hafi svosem vitað í hvað
stefnir, ákveðið að Reynir fengi líknandi meðferð á Selfssi og áfram
reynt að verkjastilla hann en hann var ekki á miklum verkjalyfjum
skildist okkur miðað við hvað hann er veikur en vonandi gengur vel að
koma jafnvægi á þetta.
Guðrún Lára kom svo og sótti strákana en það er pabba helgi um helgina.
Í kvöld fórum við Sigga og Gróa í Selfosskirkju en þar var Eyþór Ingi
með Jólatónleika og mikið var þetta flott hjá honum. Sigga náði
ekki alveg að klára tónleikana áður en þessi leiðindar ælupest fór að
angra hana.
1. des 2016
Aron
Rafn ömmugull 5 ára í dag til hamingju með daginn molinn minn
29. nóv 2016
Gengur illa að verkjastilla Reyni en hann var lagður inn á HSU
í dag og vonandi gengur þeim að verkjastilla hann þannig að honum líði
bærilega. Fór svo í bæinn í kvöld en átti tíma kl 20.00 í MRI en
það gekk bara ljómandi vel var svo komin heim um tíu leitið.
28. nóv 2015
Fór með tengdó uppí Laugarás í morgun en hann er mikið
verkjaður elsku karlinn, komum svo við á Selfossi á heimleiðinni.
Annars bara allt við það sama.
26. nóv 2015
Mikið að gera í dag, byrjaði á að pakka kæfunni og var svo
heppin að Þorbjörn Óðinn og Aron Rafn hjálpuðu til á vacum
pökkunnarvélinni, Halldór Rafn og Árni Kristinn voru voða duglegir
:) Nú svo var eitthvað af hakki sem ég þurfti að hakka nú og svo
að baka eina lottó köku. Fór svo í afmælisveislu til Arons Rafns
og Árna Kristins uppá bæ, þegar það var búið brunaði ég að Hömrum
í smá hitting bara gaman að því en var svo komin heim um sjö leitið og
þá byrjaði streðið að koma hangikétinu í net en Bensi var búin að
úrbeina það en allt hafðist þetta nú, Bjössi kláraði svo að hakka en
ætla að bíða með að pakka hakkinu þar til í fyrramálið held að þetta sé
alveg nóg í bili fyrir mig og rúmlega það.
25. nóv 2016
Annar í kæfugerð í dag en í dag var allt tekið af beinunum og
allt hakkað saman, þetta var svo hitað aftur upp en á morgun verður
þessu pakkað en mikið bragðaðist þetta nú vel.
Fór svo á Selfoss í dag og skaust svo og sótti hangikétið mitt og vá
hvað ég hlakka til að borða það. Nú Haukur taugalæknir hringdi svo
í dag og nú var eitthver fundur ekki búinn en ég fæ semsagt ekki nýja
lyfið fyrr en þessi fundur er búinn, en allar blóðprufur sem komið var
út úr litu svona ljómandi vel út og á svo tíma í MRI næsta
þriðjudagskvöld en það er klukkutíma rannsókn en eftir það ætti ekkert
að vera því til fyrirstöðu að ég byrji á lyfinu.
24. nóv 2016
Við Gróa ákvaðum að gera kæfu og komum okkur loks í það í dag,
settu í pott allt sem okkur datt í hug og svo var þetta soðið hálfann
daginn held ég bara. Nú svo kom Ari Gauti og setti upp net frá
Gagnaveitu suðurlands eins gott að það virki nú en á svosem ekki von á
öðru.
23. nóv 2016
Hún Sigga frá Ásgarði var jarðsett í dag, mjög falleg athöfn og
finnst alltaf jafn notarlegt þegar séra Egill jarsyngur því hann er svo
persónulegur og segir svo skemmtilega frá. Fór svo í kaffið á Borg
og tók pjakkana hennar Siggu svo með heim en það var fundur en það var
fundur eftir vinnu hjá henni í leiksólanum.
22. nóv 2016
Fór í bæinn í morgun til Hauks taugalæknis og hann hafði bara
þetta fína plan handa mér, sendi mig í allskyns blóðprufur og á svo að
fara í MRI og þá ekki bara í 10 mín eins og undanfarin ár heldur
klukkutíma rannsókn en er svo að fara á nýtt lyf sem heitir Mabthera og
er notaði við krabbameini, blóðskjúdómum og gigt en er víst að reynast
MS fólki svona rsalega vel. Skildist að þar sem ég er búin að
verja lyfjalaus í rúma þrjá mánuði þá á ég að byrja á þessu sem fyrst
því nú ættu MS einkennin að fara að hellast yfir, svo það verður ágætt
að sleppa við það en er svosem farin að finna fyrir gömlum einkennum en
á þetta fína lyf sem heitir Modiodal sem heldur mér vakandi svo það
sleppur alveg til.
Fékk svo skelfilegar fréttir á leiðinni heim en ungur drengur hér í
sveit dó í nótt, sendi fjölskyldunni mínar dýpstu samúðarkveður.
21. nóv 2016
Rollan mín komin í salt sem er þið besta mál. Haukur
læknir hringdi í dag, og ég á að mæta á morgun til hans klukkan 11,
spennandi hvað hann hefur í pokahorninu handa mér.
20. nóv 2016
Heilmikið að stússast í dag, bakaði meira að segja smá
smákökur, kom svo rollunni minni í frost svo hægt verði nú að
setja hana í salt á morgun en svo fer hún í reyk blessunin. Fór
svo í Þrastalund og sótti pizzur en það er líka þetta flotta tilboð í
gangi og vá hvað þetta eru góðar pizzur.
19. nóv 2016
Buðum mömmu og pabba á jólahlaðborð á hótel Selfoss í tilefni
sjötugsafmælis mömmu í haust, vorum tíu sem fórum og mikið gaman, tendó
drifu sig með sem var bara frábært, takk öll sömul fyrir skemmtilegt
kvöld.
15. nóv 2016
Fór í bæinn í dag með tengdó en tengdapabbi fór í lyfjagjöf,
blóðprufurnar komu því miður ekki nógu vel út,
en mætum aftur í des og þá verður ákveðið hvert framhaldið verður en
fyrst þarf jú alltaf eitthverjar rannsóknir eins og gengur.
14. nóv 2016
Áslaug Fjóla kom í dag með hana Kröflu sem er búin að vera
félagsskapur fyrir folald sem missti mömmu sína, virtist nú ekki alveg
vera að sinna folaldinu en betri en engin skildist mér. Við Gróa
löbbuðum uppá bæ, kýktum í fjárhúsið og hesthúsið, ætlaði að koma við
hjá Guðna og Sigrúnum sem ég og gerði en gleymdi því sem ég ætlaði að
láta þau hafa svo það verður bara í næstu ferð.
13. nóv 2016
Bára og Lárus komu með stelpurnar í dag í heimsókn og að gera
og græja í bílskúrnum hjá Gróu og Tona, Síta fór svo heim í dag og
Svenni og Baddi tóku Þóru með sér en hún var nú aldeilis heppin að fá
far alla leið uppá Skaga.
12. nóv 2016
Hrossin rekin heim frá Hrauni í dag og gekk bara ljómandi vel,
fórum líka með Topp og Glanna Glæp á folaldasýningu í dag og gekk bara
ágætlega ég var allavegana alsæl með Glanna Glæp þar sem mér fannst hann
nú ekkert rosalega fallegur í vor en nú er hann mun skárri en enn jafn
glæpaskjóttur verð ég að segja.
11. nóv 2016
Matarkúbbur í kvöld í Klausturhólum, mikið gaman og góð mæting
það var bara Mæja sem ekki komst en hún var að vinna. Mikið spáð
og spöglerað í utanlandsferð næsta ár og líklega verður farið næsta
haust en Sigrún og Linda voru sjálfskipaðar í nefnd og verða vonandi
komnar með hugmyndir næst þegar við hittumst sem verður í febrúar en þá
eigum við Bjössi og Jóa og Snæbjörn að sjá um klúbbinn.
7. nóv 2016
Var mætt með Siggu bíl til Gests og Adams um níu í morgun, en
það þurfti að skella nagladekkjunum undir og ýmislegt, mamma og pabbi
sóttu mig svo en ég brunaði svo með þeim í bæinn en það var verið að
jarða hana Þórunni Gísladóttur mikil merkiskona og gull í gegn verð ég
að segja, blessuð sé minning hennar.
6. nóv 2016
Sótti Dóra á Selfoss í morgun en hann var bara rólegur heima
framyfir kaffi en þá var kominn tími á að drífa sig norður á Hóla en
próf í fyrramálið og ekki mikið verið lesið um helgina.
Annars bara rólegheit í dag, karlarnir fóru reyndar niður að Gölt að
sækja hross og auðvitað var merin sem virkilega þurfti að nást í síðasta
hópnum sem náðist, meira streðið hef ég grun um.
Sigga fór svo í bæinn að sækja strákana sína.
5. nóv 2016
Hér var svo kjúklingasúpa fyrir þá sem
voru hér eða á ferðinni hér í dag, um hádegið, bara gaman að því, sofið
í öllum rúmum og sófum líka eins og svo oft áður. Kristín hans
Sveins kýkti hér svo í kaffi, verst að ég hitti hana ekki mikið þar sem
ég var búin að lofa að skutla Dóra í bæinn en hann var að fara á
uppskeruhátið hestamanna, við komum við í Austurkoti og tókum Palla með
okkur, og tókst að plata hann til að taka hest fyrir okkur eftir
áramótin en það er hann Dalur sem er undan Árelíusi frá Hemlu og henni
Lísu minni en þetta er ansi efnilegur foli finnst okkur.
4. nóv 2016
Sviðaveisludagur í dag, hér er búið að vera heilmikið í gangi,
Brúney og co voru hér að hjálpa með að skræka rófurnar, taka til og
alles Inga og mamma og pabbi komu líka að hjálpa til nú og svo
heimafólkið. Dóri kom ekki heim fyrr en um sjö leitið, Þóra Beta
kom svo austur með Tona. Inga og Gísli á Spágílsstöðum komu svo og
eins Svala og Eyþór. Sviðaveislan gekk svona ljómandi vel um 200
mann sem mættu, mikið gaman eins og alltaf.
3. nóv 2016
Fór á Selfoss og náið í restarnar sem mig vantar fyrir
sviðaveisluna, kom svo aðeins við í Þingborg að ná mér í smá ull.
2. nóv 2016
Kláraði að hakka og pakka öllu kjötinu,
orðin aðeins þreytt verð ég að segja en gott að þetta er búið í bili
allavegana. Það passaði svo að í kvöld voru komnir akkúrt 200
manns í sviðaveisluna sem er bara rosa flott. Stefanía okkar kemur
svo að syngja í veislunni en hún er algjörlega frábært verð ég að segja.
1. nóv 2016
Fór á Selfoss í dag í plokkun og litum, allt að gerast, nú svo
er alltaf að bætast í sviðaveisluna þannig að þetta verður bara gaman.
Allir dúkarnir kominir í hús svo undirbúningu er langt komin en
stelpurnar eiga nú eftir að skella þessu á borðin og gera fínt.
Arnar kom svo austur í kvöld og skar helling að kjöti. Ég búin að
vera að pakka kjöti allann seinnipartinn, enginn smá munur að hafa svo
vacumpökkunarvél verð ég að segja.
31. okt 2016
Tengdapabbi er 75 ára í dag til lukku með daginn
þinn Reynir minn
Undirbúningur á sviðaveislu á fullu, búið að velja nýja
dúka en Sigga og Rebekka völdu þá, það þurfti að panta þá úr nokkrum
rúmfatalagersbúðum en ekki nóg til á Selfossi en sótti hluta af þessu í
dag og var svo heppin að það var taxfri í rúmfó bara snilld.
Hringdi svo í taugalækninn minn og fékk út úr MRI
sem leit vel út skildist mér spurði svo hvort hann væri búinn að finna
nýtt lyf en þá var hann búinn að vera í sambandi við hinn taugalækninn
minn sem átti að víst að vera búinn að hafa samband við mig og var með
eitthverjar hugmyndir um ný lyf þannig að þeir benda hvort á annann og á
meðan fæ ég engin lyf hehe en það gerir ekkert til er bara nokkuð góð,
og á svo tíma í des hjá öðrum lækninum svo við sjáum til hvað verður.
28. okt 2016
Við Bjössi, Sigga og Toni fórum í mat til Sirrýar og Magga í
kvöld og vá hvað þetta var flott og gaman takk æðislega fyrir okkur,
Sigga var búin að svæfa strákana áður en við
fórum og Guðni Reynir sat hjá þeim, takk fyrir það Guðni minn.
Annars var þjóðgarðssmölun í dag, smalaðist um 40-50 held ég og slatti
eftir eins og alltaf, þessar smalamennskur hér í sveit er sagan
endalausa enda svosem ekki von á öðru þegar féð getur falið sig svona
vel í þjóðgarðinum.
26. okt 2016
Inga á afmæli í dag til lukku með daginn þinn Inga
mín.
Fór á Selfoss eftir hádegið, alltaf einhvað sem vanar , kláraði
líka að prjóna peysu á Rebekku en held að þetta hafi tekist ljómandi vel
allavega er stelpan sátt og það er nú fyrir öllu. Sigga og Rebekka
fóru svo í jóga á Selfoss seinnipartinn held að þetta sé bara snilld hjá
þeim. Það var svo verið að slátra slatta af fé og gekk bara vel.
25. okt 2016
Ætlaði að reyna að ná á taugalækninn inn hann Albert Pál en
hann er í fríi en næ vonandi á hann í næstu viku en væri gott að vita
hvað kom út úr MRI og eins hvert framhaldið verður en nú er ég búin að
vera lyfjalaus í 12 vikur og ætti í raun að vera að byrja á nýju lyfi en
ekkert að gerast en kannski dálítið mér að kenna hef nú ekki verið að
reka mikið á að fá ný lyf þar sem ég er nú frekar vanaföst og vill helst
engu breyta en í þessu tilfelli fékk ég ekkert val.
Fór svo með Siggu í bæinn í morgun en hún átti tíma í magaspeglun, gekk
bara vel, hún fékk fullt af upplýsingum og er víst með aðeins þindarslit líklega
einhvað svipað og pabbi hennar en þetta er víst arfgengur galli.
24. okt 2016
Mikið rignir þessa dagana. Fríða kom og nuddaði Siggu og
Sigga öll að koma til held ég, ég brunaði svo austur í Vík að
sækja Ingu og Reyni sem voru í hvíldarinnlögn þar og voru bara nokkuð
sátt held ég. Passaði svo um leið og ég kom heim að þá sótti ég
strákana í leikskólann en það var ósk um að þeir yrðu sóttir kl 14.30
þar sem konur í landinu ætluðu að klára sinn vinnudag kl 14.38 held ég
en þetta slapp allt saman til.
23. okt 2016
Sigga og Rebekka fóru í smá dekur í dag en þær fóru á
Laugarvatn í Fontana, bara flott hjá þeim. Nú Guðrún Lára kom svo
efir hádegið með strákana. Mamma og pabba kýktu svo líka við en
þau komu frá Tenirife í gær.
22. okt 2016
Rólegheita dagur í dag, Svenna og Badda tókst að plata Siggu
með sér í Ljósafossstöð að skoða sem var bara gaman. Svo
var nú líka verið að að smala einhvað eins og gengur en það er nú sagan
endalausa.
21. okt 2016
Fríða kom hér svo í morgun og nuddaði Siggu aftur þetta er allt
í áttina vona ég. Guðrún Lára kom svo og sótti strákana í
leikskólann en það er pabbahelgi þessa helgina. Við Sigga fórum
svo á Selfoss í kvöld svona rétt áður en Krónan lokaði en nóg sem þarf
að versla alltaf hreint. Þegar við komum svo aftur heim voru Baddi
og Svenni komnir bara gaman að því. Gróa að vinna alla helgina og
Toni líka að vinna einhvað um helgina. Nú svo er verið að undirbúa
sviðaveisluna en Eiki og Siggi á Hömrum komu hér og voru að smíða ásamt
Gesti og Ingþóri nú og svo heimafólkinu held að þeir hafi verið búnir
einhverntímann eftir miðnætti, en mikið búið að gera.
20. okt 2016
Fór í bæinn í dag í MRI það gekk ljómandi eins og alltaf.
Ætlaði svo aðeins að kýkja á líknardeildina til hennar Þórunnar en hún
var orðin ansi veik svo ég sendi henni bara kveðju. Sigga ansi
léleg í dag en það var svosem von á því eftir nuddið.
19. okt 2016
Fríða hans Kjartans kom hér í dag og nuddaði Siggu en Fríða er
lærður nuddari og ætlar að reyna að koma lagi á stelpuna, en þetta er
ansi mikil vöðvabólga en vonandi tekst að koma stelpunni í lag. Sigurbjörn
Ragnar svar svo með í ferð og var bara að dúllast hér með mér þvílíkur
moli þessi drengur.
18. okt 2016
Sigga átti tíma í Laugarási í dag þar sem hún er ansi slæm af
vöðvabólgu og Pétur sendi hana í viku veikindaleifi, svo var
blóðþrýsingurinn mældur líka og ekki var það nú gott en hún var 180/120
og með 120 í púsl svo nú er það bara slökun og dekur eins og hægt er.
17. okt 2016
Jarðaför í bænum í dag en fór með Láru og Kristínu frá Hömrum
en það var verið að jarðsetja hana Svönu kennara.
16. okt 2016
Dóri fór svo norður í dag, en það vildi svo heppilega til að
gamla rúmið hans sem ég var búin að koma fyrir í stofunni, bak við sófa
smellpassaði á pallinn á Raminum þannig að hann brunaði með það með sér
norður, sem er bara hið besta mál.
15. okt 2016
Slatti af krökkum sem voru hér í morgunkaffi bara gaman að því.
Fórum svo í villibráðarhlaðborð í Grímsborgir en Kerfélagið bauð og vá
hvað þetta var flott og mikið gaman takk fyrir okkur. Ég fór á
mínum bíl en allir hinir fóru í rútu finns gott að geta laumað mér heim
þegar ég er búin að fá nóg.
14. okt 2016
Krakkarnir hittust hér í kvöld en Bjarki er jú á landinu þannig
að þau ákvaðu að hittast, bara gaman hjá þeim. Og gaman að sjá krakkana
sem eru nú samt fullorðið fólk, en Dóri kom heim í dag í tilefni
dagsins.
12. okt 2016
Fór aðeins á Selfoss í dag, fórum svo í matarboð til Gests og
Krissu en þau eru í bústað hér bara gaman takk fyrir okkur, mikið fínt
og gaman.
10. okt 2016
Slatti af lömbum send í sláturhús í dag, það kom bara ágætlega
út. Það var nú samt ekki neinar uppl á viktarseðlinum um gerð og
fitu en það voru 103 lömb sem fóru og meðalþyngdin 16.1 en held að
gerðin sé ca 8.39 minnti Guðna.
8. okt 2016
Smalað slatta hér í dag aðalega austurgirðingin, kom bara
slatti af fé svo var rekið saman á túninu og viti menn haldið þið ekki
að hér séu um átta fallega ferhyrntir lambhrútar til hugsa að þeir verði
sendir í uppstoppun svona hægt og rólega, kostar jú slatta.
4. okt 2016
Halldór Rafn fór í rör í morgun en hann var víst kominn með
eyrnarbólgu en fékk samt að fara í aðgerðina, en Sigga og Arnar fóru með
hann. Ég fór svo í bæinn með tendó í læknastúss en það koma allt
bara ágætlega út.
3. okt 2016
Mamma er sjötug í dag til hamingju með daginn þinn elsku mamma.
Fór í Laugarás í morgun en hafði ferið um daginn þar sem annað augnlokið
er farið að leka leiðinlega mikið niður á kvöldin, fór reyndar um daginn
út af þessu en gleymdi því svo. Mundi þetta semsagt núna og
niðurstaðan líklega MS tengt en auðvitað gleymdi ég að láta vita að það
fylgir þessu verkir öðru hverju en man það bara næst.
1. okt 2016
Fórum í afmæliskaffi til mömmu í dag, þar mættu systur hennar
og einhvað af systkinabörnum bara gaman og étið á sig gat eins og
alltaf, takk fyrir okkur.
29. sept 2016
Fór með Siggu í morgun með strákana til hálsnef og
eyrnarlæknis, annað rörið hans Þorbjörns Óðins er farið en Halldór Rafn
á að mæta á þriðjudaginn og fara í rör það verður mikið gott og vonandi
fer hann þá að sofa alla nóttina.
27. sept 2016
Gróa og Toni flutt í sveitina mikið er það nú gaman þetta á
eftir að verða skemmtilegur vetur.
22. sept 2016
Var að hakka og pakka smá kjöti í morgun, fór svo eftir hádegið
með tengdó í bæinn en það var viðtal hjá hjúkrunarfræðingum hjá
tengdapabba en svosem engar fréttir.
20.
sept 2016
Fór í morgun með Raminn í smurningu og fékk nýjar rúðuþurrkur á
hann en svo uppúr tíu þá brunuðum við norður með fjögur hross, þrjú
fyrir Dóra, Spyrnu sem hann ætlar að vera með í skólanum og svo Bjarka
og Krumma sem eru graðhestar spurning hvort þeir fá geldingardóm en þeir
eru báðir undan Kjarna frá Þjóðólfshaga en Bjarki er undan Hæru og
Krummi undan Nös, og svo fórum við með Öskubusku handa Hörpu.
Vorum komin um þrjú leitið með hrossin, skildum svo raminn og kerruna
eftir hjá Dóra og tókum hans bíl og brunuðum á Akureyri og sóttum eins
og einn haus sem var verið að stoppa upp fyrir Guðna Reyni og Sigrúnu.
Vorum komin heim um hálfeitt í nótt en hélt að ég yrði nú ekki eldir á
heimleiðinni mætti svo mikið af stórum flutningarbílum í ljósaskiptunum
að ég var farin að halda að þetta væru allir flutningbílarnir á landinu.
18. sept 2016
Fór í nótt uppá flugvöll með Sofi og Símon, var svo komin heim
á milli sjö og átta í morgun, það var svo farið í Kaldárhöfðann að smala
sem gekk bara vel, áttum líklega um 12 hausa. Tókum svo alla
graðhestana sem voru í Ásgarðsmýrinni heim gekk nú ekkert allt of vel en
tveir folar voru ansi óþekkir gott ef annar endar ekki bara í SS hehe
17. sept 2016
Fórum á tónleika með Cris Norman í kvöld en við vorum sex sem
fóru, ég, Bjössi, Sofi Gunna, Gróa og Sýta, þetta var rosalega
skemmtilegt verð ég að segja. Hirtum svo upp einn dreng í bænum
sem er líka úr skólanum hennar Sofi en honum vantaði far uppá völl í
nótt þannig að það var mikið betra að finna hann núna heldur en að hafa
uppá honum í nótt.
16. sept 2016
Brunaði til Sæunnar á Lágafelli í dag að sækja mér folaldakjöt,
ákvað að kýkja aðeins á Skóga í leiðinni til að sýna Sofi Skógarfoss og
skoðuðum svo Seljarlandsfoss líka þannig að hún er búin að sjá helling
af fossum í þessari ferð. Elduðum svo folaldasteik í kvöld en það
var á óskalistanum hennar Sofi en í Svíþjóð er ólöglegt að borða hross
svo þetta var einvhað sem hún varð að prufa og var auðvitað alsæl.
15. sept 2016
Fórum að skoða Þingvelli í dag en Vala skellti sér með okkur,
fengum bara ágætt veður komum aðeins við á Stóra Hálsi á heimleiðinni og
það passaði að þegar við vorum að koma heim var komin hellirigning.
14. sept 2016
Klausturhólaréttin var í dag en þar áttum við slatta af fé í
kerru en enginn Harrý kominn en sonur hans kom í Kringlumýrarréttinni og
hagaði sé bara vel. Fór svo með Sofi að skoða Faxa, Geysir og
Gullfoss en stefnum á Þingvelli á morgun.
13. sept 2016
Kringlumýrarréttin var í dag, áttum þar fulla hestakerru og
fullann fjárvang sem var nú bara flott.
12. sept 2016
Fjallmenn komu heim í dag, og bara slatti af fé sem kom
allavegana ekki minna en undanfarin ár.
11. sept 2016
Brunuðum inní Gatfell í morgun og sáum
skjátuna sem varð eftir í gær en Bjössi og Sverrir fóru með okkur Sofi
og náð þessu pari en þetta var veturgömul skjáta frá okkur með lambi en
hún virðist nú vera einhvað hölt ræfillinn. Brunuðum svo heim en
þá sáum við fimm skjátur til viðbótar, allt grátt og svart sem brunaði
uppí Lágafellið en nást vonandi í seinnileit en þær gáfu ekkert færi á
sér í dag. Við sóttum svo Siggu og strákana og nú var ferðinni
heitið í Tungurnar að sækja fjögur hross að Kjóastöðum sem Hjalti Pétur
og Ólöf voru með, fórum með tvö hross í Birtingarholt og eitt var skilið
eftir á Spóastöðum og eitt kmum við með heim, en Hjalti Pétur kom með
okkur á þennann rúnt. Litlu gaurarnir voru svo orðnir ansi
þreyttir þegar við komum heim. Sigga og Rebekka kýktu svo aðeins í
Kringlumýri í kvöld.
10. sept 2016
Fyrsti dagur í fjallferð í dag, við Sofi vorum á bílnum en hún
tók að sé að vera Gunni Har en mikið sakna ég nú karlsins.
Smalamennskan gekk bara ljómandi vel, aldrei séð féð renna svona vel en
það var ein ferhyrnt skjátla frá Gunna sem fór fyrir og hagaði sé alveg
óaðfinnanlega held að kannski hafi Gunni verið að hjálpa til.
Vissum svo bara af rollu og lambi sem urðu eftir en skoðum það á morgun.
Dóri fór svo í smölun á Skörðugili en þegar ég heyrði í honum í kvöld
skildist mér að það hefði bæði verið blautt og kalt og þoka líka og
mikið fé sem varð eftir en líka fullt af fé sem náðist.
8. sept 2016
Fórum með Skvísu í sónar í dag og engir hvolpar, sem gerir bara
ekkert til prufa bara aftur seinna ef ég nenni.
7. sept 2016
Selfssstúss í morgun. Sótti svo strákana í leikskólann en það var
fundur í vinnunni hjá Siggu, hún var svo ekki komin heim fyrr en um sjö
leitið en drengirnir eins og englar auðvitað.
6. sept 2016
Bæjarferð í dag með tendó en það var læknastúss sem kom bara
þokkalega út. Kýkti aðeins í Parka á gólfefni á stofuna og sá líka
þessar flottu flísar á gólfi spurning um að finna svo bara einhvern sem
getur lagt þetta, en get það svosem alveg sjálf en ekki viss um að það
yrði nógu flott hehe. Það komu svo tvær konur frá
Svíþjóð í dag en þær eru kennarar í skólanum hjá henni Sofi, held að sú
sem var á hundastússinu hafi verið mest spæld að vera svo timabundin að
hún hafið ekki tíma til að kýkja á Gunnu og sjá BC vinna live með kindur
en kannski að ári.
4. sept 2016
Í morgun var svo túnið smalað en Gunna og Skrauta komu
og hjálpuðu til bara gaman að því, Gaur líka orðinn svo yfirvegaður að
hann kann að reka inn þarna. Féð svo allt sorterað og ókunna féð
tekið úr og lömbin sett í Kertúnið og rollurnar út í Hraun. Búin
að vera ansi heppin með veður um helgina ssem er nú alveg ómetanlegt,
svo er bara að krossleggja fingur og vona að veðrið verði gott um næstu
helgi þegar farið verður á fjall en skilst að það sé farið að sjást
óvenju mikið fé á leið til byggða svo grösin eru nú kannski farin að
láta á sjá innfrá en sjáum til.
3. sept 2016
Smaladagur í dag en það var byrjað á að smala Búrfellsmýrarnar
og rekið heim í Miðengi og Klausturhóla svona bara eftir því hvert féð
vildi fara, eftir hádegið var svo farið út í hraun og það smalað
en held að mannskapurinn hafi ekki verið kominn heim fyrr en að ganga
sjö en gekk bara ágætlega og takk fyrir hjálpina öll sömul.
2. sept 2016
Við Sofi skelltum okkur á rúntinn í dag og fórum með drengina
í bæinn í leiðinni, þegar við svo komum ausur var Dóri kominn heim
en máttum nú lítið vera að því að spjalla við hann en fórum beint út á
Borg að hitta Láru með hundana og svo hittum við Gunnu með Gaur og gekk
bara ljómandi vel allt saman.
1. sept 2016
Fór í bæinn í dag með tengdó í læknastúss en gekk bara
ljómandi, nú kýkti svo aðeins í Hagkaup í leiðinni og sótti stígvél á
drengina en Þorbjörn Óðinn var kominn með tærnar niðurúr stígvélunum
sínum. Mikið montnir gaurar sem þrömmuðu hér um allt á stígvélunum
sínum.
29. ágúst 2016
Þorbjörn Óðinn var komin með hitavellu í gærkvöldi svo hann var
bara heima í dag en bara nokkuð hress. Skutlaði bílnum hans Guðna
Reynis á Selfoss en það átti eftir að laga einhvað fyrir skoðun.
Mamma kom svo og skutlaði mér heim og hjálpaði með að sússast aðeins hér
í húsinu en nú er Sigga að flytja í Dóra herbergi og stákarnir að fara í
sér herbergi, nú og svo þegar líða tekur á september þá flytja Gróa og
Toni suður og verða í bílskúrnum til að byrja með en svo stendur til að
byggja hér á torfunni.
28. ágúst 2016
Lögðum snemma af stað heim í dag þar sem Fríða og Kjartan
Gunnar voru að láta skíra drenginn sinn í dag, hann fékk þetta líka
fallega nafn Sigurbjörn Ragnar, til hamingju þetta þetta flotta nafn
litla fallega fjölskylda. Fórum í veisluna sem var á Hellu,
brunuðum svo heim þar sem Dóri var á leið norður að Hólum í skólann,
honum tókst að leggja af stað um fimm leitið og var komin norður um níu
leitið held ég og gekk bara rosalega vel.
27. ágúst 2016
Í dag var farið á bílum á svipaðar slóðir og var farið ríðandi
á í gær, Halldór Rafn lagði sig bara á meðan en þetta var ansi
skemmtilegt, um kvöldið var svo farið ríðandi í kringum Kirkjufellið og
að Kirkjufellsfossinum þar sem Þorri stökk út í bara gaman að því.
Sofi var alveg í skýjunum þegar hún kom heim og fannst þetta bara
æðislegt, á sjálfsagt aldrei eftir að gleyma þessu stelpuskottið.
Síminn hans Dóra dó reyndar í morgun sem var nú ekki gott og úr varð að
hann fékk minn síma þar til á mánudaginn en þá fer ég og græja nýjann
síma en hann fer þá bara með minn norður en á nú von á drengnum heim um
næstu helgi að smala og þá fæ ég nú símann minn aftur.
26. ágúst 2016
Brunuðum vestur að Bergi um hádegið, það var ákveðið í gær að
taka bara litlu guttana með. Mamma og pabbi skelltu sér líka með
og við Sofi fengum far með þeim en Bjössi, Sigga, Dóri og strákarnir
fóru svo á Raminum. Dóri smiður, Lísa og Brimar komu svo með
hrossin vestur en Gróa og Toni komu líka úr Búðardal.
Það var svo riðið út að Krossanesvita og í Sandvíkina í kvöld og mikið
gaman, ég ásamt mömmu og pabba vorum svo með drengina heima. Mikið
gaman að hitta svo strákana hans Markúsar en Benni sá eldir er fæddur
sama dag og Þorbjörn Óðinn.
Jonni fór svo og sótti Nös sem var hjá Völsung en hún er með fyli á
reyndar eftir að forvitnast hversu gamalt fylið var.
22. ágúst 2016
Leikskólinn lokaður í dag eða starfsmannadagur, þannig að
drengirnir fjórir heima, ansi fjörugt en fékk nú góða hjálp með þá en
Árni Kristinn og Aron Rafn komu ekki fyrr en um hádegið. Verður
samt voða gott þegar þeir komast aftur í leikskólann aftur á morgun.
20. ágúst 2016
Brúðkaupsdagur Huldu og Axels í dag, ekkert smá flott brúðkaup,
fullt af fólki og mikið gaman takk æðislega fyrir okkur.
18. ágúst 2016
Fór í bæinn um hádegið með tengdamömmu til læknis, gekk bara
ágætlega. Við fórum svo með Hróa, Gaur og Hektor til Gunnu í smá
æfingar bara gaman að því. Hugsa að það verði svo framhald í næstu
viku á því.
17. ágúst 2016
Dreif mig í plokkun og litun á Selfoss í morgun og átti svo
tima í Laugarási eftir hádegið. Við Sofi kýktum svo aðeins í
heimsókn til Sollu í leiðinni bara gaman að því. Áslaug Fjóla kom
svo seinnipatinn og sótti hana Kröflu sem við erum að vona að geti
fóstrað folald sem missti mömmu sína í gær.
16. ágúst 2016
Fór á Selfoss í morgun í haustklippinguna og smá litun og
ekkert smá ánægð en fór til hennar Piu hans Gumma, algjörlega æði.
Paraði svo hana Skvísu þannig að nú er vonandi
von á hvolpum eftir níu vikur mjög spennandi. Við Sofi fórum svo
með Hróa til Gunnu og gekk bara rosalega vel. Nú svo var ég svo
óheppin að missa folald í dag sem slasaði sig en það var undan Kröflu og
Völsung, frétti svo af folaldi sem missti mömmu sína í dag svo það
verður reynt að púsla þeim saman en sjáum hvernig það gengur.
15. ágúst 2016
Við Sofi skutluðumst á Selfoss í dag, allskonar stúss, svo kom
hún Hugrún seinnipartinn og skilaði Dóra heim, ekki leiðinlegt að hafa
svona heimsendingarþjónustu. Helga A og Brynhildur kýktu svo hér í
dag og Halldór Rafn fór í leikskólann í fyrsta sinn og gekk svona
ljómandi vel.
14. ágúst 2016
Norðurlanamótið kláraðist í dag, og það var svo rétt fyrir
miðnætti í Noregi sem Dóri náði að selja merina og þvílíkur léttir en
hann kemur heim á morgun. Fór svo uppá flugvöll og sótti hana Sofi
sem er stelpa frá Svíþjóð sem ætlar að vera hér í fimm vikur og vinna
með hundana hér, líst rosalega vel á þessa stelpu.
13. ágúst 2016
Í dag var svo keppt í B úrslitunum en
munaði ekki miklu að Dóri kæmist upp úr þeim í fjórgangi en endaði í
öðru sæti þar, svo held ég að hann hafi lent í fjórða sæti í B
úrslitunum í tölti en þetta var bara rosalega gott, svo er bara að
krossa fingur og vona að honum takist að selja merina áður en hann kemur
heim. En það er samt einhvert plan B í gangi.
12. ágúst 2016
Í dag svo svo keppt í tölti og þar komst Dóri líka í B úrslit
og þar var hann mjög sáttur þar sem töltið var aukagreinin hjá honum.
11. ágúst 2016
Í dag keppti Dóri í fjórgangi á norðurlandamótinu og gekk bara
vel komst í B úrslit en hann ætlaði nú að vera í A úrslitum en þetta var
nú samt rosalega flott og mikið flottir hestar.
10. ágúst 2016
Halldór litli lasinn ennþá og með hita á svo til að gráta mikið
og greinilega finnur til en vonandi fer hann nú að lagast. Dóri
norski fór svo á bak gránu sinni í morgun og hún var svona glimrandi fín
en á morgun er hann að keppa í fjórgang en held að það sé kl 9.15 á
norskum tíma þannig að þetta er eldsnemma svo nú er bara að krossa
fingur og vona að honum gangi nú vel.
9. ágúst 2016
Halldór litli ansi pirraður og veikur ennþá Vala langamma kom
til að vera með hann á meðan ég fór í bæinn með tengdó í læknastúss en
Sigga var nú fljótlega send heim úr leikskólanum til að vera með
drenginn.
Jónína hjúkkan sem sér um tysabrigjöfina mína hringdi svo í dag var að
koma úr sumarfríi og var að athuga hvort ég vissi að búið væri að færa
næsta tíma hjá mér sem ég svosem vissi. Spurði hana svo út í
blóðprufuna þar sem ég var nú ekki alveg sátt með hvernig
afleysingarhúkkan tók á þessu, svo Jónína kýkti á prufuna svo heyrði ég
bara úps....sagði svo bara að ég fengi ekki Tysabri meira því það yrði
sko ekki spiluð rússnesk rúlletta á hennar vakt, mátti svosem vita það
en fékk hana til að samþykkja að við skildum sjá hvað Haukur
taugalæknir segði eftir helgi þegar hann kæmi úr fríi, var reyndar búin
að heyra í Alberti Páli líka sem ætlaði líka að ræða framhaldið við
Hauk, en Jónína sagðist jafnframt ætla að ná á Hauk áður en ég næði á
hann hehe en þetta er semsagt JCV mæling þar sem ég er jákvæð gagnvart
þeim vírus og á þá á hættu að geta fengið heilabólgu, var einusinni
komin í 0,9 og þá var farið að ræða um að taka mig af lyfinu og aðrir
möguleikar skoðaðir en svo lækkaði ég aftur, allir sem fara í 1,5 eru
teknir af lyfinu skilst mér en ég var komin í 2,01 sem er allt of hátt,
ég spurði reyndar afleysingarhúkkuna hvor hún þyrfti ekki að athuga við
lækni hvort ég mætti fá lyfið sem hún og gerði að minni beiðni en sá
læknir vildi ekkert skipta sér af því þar sem minn læknir var í
sumarfríi og ég fékk lyfið í 80. skipti. Verð nú samt að segja að
þó ég vilji alls ekki hætta á Tysabri er nú gott að hafa eina svona
ákveðna hjúkku í sínu horni sem hefur vit fyrir manni. Að öllum
líkindum tekur nú við lyfjapása á meðan ég er að losa mig við lyfið úr
kerfinu sem tekur nokkra mánuði held ég. Á meðan verður klárlega
reynt að finna út hvað tekur við, en nenni nú ekki þessu veseni samt,
kannski verð ég bara þokkalega góð lyfjalaus en finn reyndar ef það
hefur orðið of langt á milli gjafa þá fæ ég einkenni en sjáum til.
Nú það gekk líka svona ljómandi vel hjá Dóra í dag með Óperu sína en það
er á fimmtudaginn sem hann keppir í fjórgangi, mikið vildi ég vera þarna
og sjá hann en hann var jú búin að velja sér lag sem verður spilað undir
þegar hann keppir og það er nú ekkert slor hehe vonandi getur maður séð
það á video hjá einhverjum.
8. ágúst 2016
Fyrsti vinnudagurinn hjá Siggu í dag, Guðrún Lára og
Arnar komu svo austur og voru með strákana en Halldór Rafn er ansi
veikur, ég brunaði svo í bæinn með mömmu og pabba en í dag var
jarðarförin hennar Lúlú frænku og mikið var þetta falleg athöfn og
gaman að hitta allt frændfólkið og eins og tíðkast í jarðaförum í
þessari fjölskyldu var mikið helgið. Hitinn svo ekkert að lækka
hjá Halldóri Rafni í kvöld svo við Sigga fórum með hann á bráðamóttökuna
á Selfossi þar sem hann var skoðaður í bak og fyrir en líklega er hann
með í eyranu og fékk sýklalyf.
7. ágúst 2016
Halldór Rafn kominn með bullandi hita en líklega sama pestin og
Árni Kristinn er búinn að vera með. Við Þorbjörn Óðinn fórum í
bíltúr að sækja Bjössa út á Brjánstaði en hann hefur verið að heyja þar
og auðvitað fórum við í sjoppuna í leiðinni og keyptum ís, en þegar við
keyrðum framhjá Borg var ég spurð hvort við værum ekki að fara í
leikskólann þannig að minn maður er alveg klár í það.
6. ágúst 2016
Grímsævintýrin í dag, var í miðasölunni fyrir tombóluna ásamt
Siggu Jóns og gekk bara glimrandi en það seldist upp og ekkert smá flott
og fullt af flottum vinningum, verð ég að segja. Bjössi og Guðni
Reynir voru svo með hesta og teymdu undir krökkum en hef aldrei séð
svona margt fólk á Grímsævintýrunum, leikfélagið var út um allt með
hinar ýmsustu persónur bara gaman. Guðrún Lára kom austur og var
með Halldór þannig að Sigga gat farið með Þorbjörn Óðinn og gekk bara
vel vorum aðeins stressaðar um að honum myndi nú ekki líka mannmergðin
en lét sig hafa það.
5. ágúst 2016
Dóri kominn til Noregs heyrði í honum í dag en Íslendingarnir
fóru í bankann í dag og ætluðu að skipta evrum í norskar krónur en viti
menn það er bara gert á flugvellinum þannig að það er bara kort sem þau
geta notað meira klúðrið en meira að segja á Íslandi getur þú skipt
gjaldeyri í banka.
4. ágúst 2016
Tysabri dagur í dag, fékk niðurstöður úr blóðprufu en sumt
hefði mátt vera betra en verður bara betra næst. Veðrið frábært að
venju og því nauðsyn að fá sé ís í Norðlingaholtinu til að komast yfir
heiðina en Kristjana var í samfloti með mér að venju. Skutlaði svo
Dóra og Palla uppí Norðlingaholt þar sem Elvar hirti þá upp og stefnan
tekin á Noreg
1. ágúst 2016
Snilldarhelgi að baki, mikið gaman og takk fyrir komuna.
Bara Gróa og Toni eftir en þau stefna á að fara vestur á morgun.
Aðeins fór nú að rigna í dag þannig að við reynum bara að ná öllu upp á
morgun eða þegar það þornar.
31. júlí 2016
Enn er veðrið bara sól og blíða, held að fólk hafi meira að
segja brunnið ofaní það sem liðið brann í gær, en er sjálf ekki mikið
fyrir að vera úti í sólinni, bættist aðeins við af fólki í dag bara
gaman.
30. júlí 2016
Það kom komu bara slatti af fólki á Dýjarflötina í dag, bara
gaman og gott að geta sleppt krökkkunum lausum þannig að þau gátu bara
verið út um allt. Ansi heitt í dag en
kuldaskræfunni mér fannst nú orðið ansi kalt í kvöld og nótt.
29. júlí 2016
Skaust á Selfoss í morgun en Bjössi fór með mér og tók eins og
einn bíl heim ég fór aðeins í verslun en brunaði svo heim. Fórum
svo út á Dýjarflöt með fellihýsið og tjölduðum en Bjössi, Sigga og ég
fórum ásamt fjórum ungum mönnum sem gerðu nú mismikið gagn en mikið
fannst þeim nú gaman. Gróa og Toni komu svo seinnipartinn og með
bílinn sinn og pallhýsið. Veðrið enn allt of heitt fyrir.
Held að allir hér í neðri byggð hafi svo farið í tjaldbyggðina í kvöld
en ég ákvað að vera heima með litlu gaurana, voru reyndar báðir sofnaðir
en aldrei þessu vant vaknaði Þorbjörn Óðinn aftur og ákvað að vera ömmu
sinni félagsskapur í kvöld ekki hægt að hafa hana eins vakandi í húsinu.
28. júlí 2016
Ansi gott veður í dag eiginlega of
heitt fyrir mig. Fór á Selfoss með Ingu og Reyni um hádegið á
meðan yngri tveir vinnumennirnir sváfu en þeir tveir eldri voru að
hjálpa Siggu og afanum. Dóri brunaði svo með Óperu sína í bæinn í
dag en það var einhver dýralæknisskoðun í gangi fyrir útflutninginn sem
verður snemma á sunnudagsmorgun.
27. júlí 2016
Ekkert smá gott veður í dag, mikið stuð í kotinu með fjóra
drengi en tveir yngstu leggja sig nú samt um miðjann daginn, setti tjald
út á pall sem vakti mikla kátínu. Það kom í ljós í dag að Dóri fer
ekki út með hestunum en sá sem fer með hrossunum þarf víst að taka
bílaleigubíl frá Belgíu til Noregs og til þess þarftu að vera 25 ára
þannig að Dóri fer út 5 ágúst sem er bara fínt. Annars bara gengur
allt sinn vana gang.
26. júlí 2016
Engin smá blíða hér í dag, hentum upp hundatjaldinu til að
þurrka það eftir sýninguna og það þornaði nú bara um leið, hér
voru svo fjórir ungir drengir í dag, Guðni Reynir og Sigrún að vinna,
nú og Sigga þurfti til læknis svo það var nóg að
gera. Mamma og pabbi kýktu aðeins við, annars bara allt við það
saman. Sá svo að LH er búið að tilkynna formlega liðið sem er að
fara til Biri í Noregi þannig að það er orðið opinbert að Dóri er að
fara til Noregs ;=)
25. júlí 2016
Skaust á Selfoss í morgun þurfti að skjótast í bankann aðeins
og kom svo líka við í Krónunni já og Hestabúðinni, var nú samt komin
aftur heim um tíu. Mamma og pabbi kýktu svo
aðeins við en þau eru farin að hugsa um að fara í smá ferðalag norður
fyrir helgina allavega þannig að þau verði komin heim fyrir helgi.
24. júlí 2016
Gekk nú ekkert allt of vel hjá Keisaraynjunni í gær en fékk
very good. Í dag fékk hún svo exelent og meistaraefni og þriðja
sætið skildist mér sem er bara frábært, mikið kát með það þar sem ég var
nú eiginlega búin að ákveða að athuga hvort Brynhildur yrði ekki bara
áfram með tíkina þar sem Keisaraynjan var bara strax eins og heima hjá
sér þarna og Hjálmur svo kátur að fá leikfélaga eftir að Sif gamla dó,
þannig að þegar upp var staðið gekk þetta allt saman upp og allir
sáttir. Fór svo seinnipartinn í bæinn á
hundasýninguna og á úrslitin bara gaman af því, kom svo við í
Brekkuhvarfinu og sótti Halldór Rafn fyrst ég var nú á annað borð á
ferðinni. Við Halldór Rafn vorum rétt komin í Hveró þegar lokað
var á milli Hveragerðis og Selfoss svo við þurftum að fara lengri
leiðina, en ansi var nú þung umferðin að komast út frá Selfossi, endaði
á að laumast Hrísmýrina en þá komst ég beit á hringtorgið þar og löggan
hleypti mér strax í geng þar sem ég var að fara uppí Grímsnes.
22. júlí 2016
Mikið stuð hér í morgun en það voru þrír gaurar hjá ömmu sinni
í dag en það voru Aron Rafn, Árni Kristinn og Halldór Rafn en Þorbjörn
Óðinn var í bænum hjá pabba sínum, en Sigga var nú líka heima með
drengina. Fór svo seinnipartinn með Gunnu í bæinn að horfa á
hvolpasýninguna, mikið gaman að því. Hitti fullt af fólki og
sá helling af hvolpum, við Gunna tjölduðum fína hundatjaldinu þannig að
nú er hægt að hafa þá undir þaki ef það rignir mikið en líka bara gott
að koma þeim í skjól frá öllum hinum hundunum hehe, á nú samt ekki von á
að komast neitt um helgina en Brynhildur ætlar að sýna Keisaraynjuna
bæði á laugardaginn og sunnudaginn.
21. júlí 2016
Pabbi á afmæli í dag til lukku með daginn gamli
Pabbi og mamma kýktu í dag, Inga rölti og Brúney kom aðeins í
kaffi. Sigga og Dóri fóru svo seinnipartinn og kýktú á litla
molann hjá Kjartani Gunnari og Fríðu. Nú það er svo komin
lokadagsetning á flugið með hrossin og Dóra en þau eiga flug 31 júlí.
Aron litli kom svo heim í gærkvöldi og var mættur hér í morgun mikið
gott að fá hann heim litla ljósið sagði okkur að hann hefði stækkað svo
mikið í Svíþjóð að hann væri orðinn fimm ára :) en samkvæmt
mínum bókum veður hann ekki fimm ára fyrr en 1 des.
20. júlí 2016
Fór á Selfoss í dag og svo kýkti ég til Brynhildar
seinnipartinn og tók Keisu með mér en þær ætla að máta sig saman en það
er víst hundasýning um helgina. Nú svo er allt að skýrast hjá Dóra
með ferðalagið en hann fer út 3 ágúst og fer með hestunum, byrjar á að
fljúga til Belgíu, fer þaðan til Danmerkur með bíl og svo þaðan til Biri
í Noregi þannig að þetta verður ekkert smá ferðalag á þeim. Nú svo
er bara sendur póstur í allar áttir að safna styrkjum fyrir ferðalagið.
19. júlí 2016
Jæja þá er það líklega orðið opinbert en Dóri og Ópera eru að
fara að keppa á Norðurlandamótinu í hestaíþróttum með landsliðinu í Beri
í Noregi núna í byrjun ágúst. Ópera flaug í gegnum dýralæknaskoðun
í dag svo nú er bara að reyna að finna sölu á merina erlendis og eins að
safna styrktaraðilum en það smá tosast en kostar alveg helling koma
merinni út, en held að Dóri fari í fyrra fallinu út og fari með
hrossunum en það verður bara spénnandi. Nú svo er búið að heyja
allt hér heima nema gamla góða niðurtúnið, veit ekki alveg hvenær það
verður slegið, en það ringdi smá í dag en náðist samt að klára að rúlla
fyrir norðan farvegs.
18. júlí 2016
Engin smá blíða í dag, verið að heyja á fullu og nú kom þessi
líka einkennilega snúningsvél í heimsólk endurbætt síðan í fyrra en
virkaði nú samt ekki eins og hún átti að gera en þetta er mjög góð
hugmynd svo vonandi hefst þetta nú á endanum. Annars bara lítið að
frétta.
17. júlí 2016
Fór snemma ásamt tengdó í Borgarnes að horfa á Dóra keppa á
Íslandsmótinu, þetta gekk bara ágætlega, reyndar byrjaði hann á A
úrslitum í fjórgang á Óperu sinni en einhvað var
hún ósátt svo þau hættu og fenginn dýralæknir sem sagði að hún væri hölt
svo það náði nú ekki lengra, en flottur árangur samt. Svo var
komið að skeiðinu en þar var hann með Ylfu og Vörð í gæðingaskeiði og
þau komust klakklaust í gengum það, en Diljá var ekki á því að skeiða í
100 m skeiðinu, Nú svo voru það A úrslit á Verði í fimmgang en
hann fór inn í úrslitin með 6.27 og fékk 6.47 og hélt sínu 5 sæti held
ég, en það sem klikkaði sagið Dóri var fetið en hesturinn kann ekkert að
feta svo það var viðbúið hehe. Veðrið var alveg rosalega gott en
leiðinlega fátt fólk að horfa á krakkana en svona er þetta nú oft skilst
mér.
16. júlí 2016
Í dag keppti Dóri í slaktaumatölti á Óperu sinni og fékk 6.47
sem setti hann í 6-7 sæti og B úrslit, hann afskráði sig nú samt því A
úrslitin í fjórgangnum er bara fljótlega á eftir. Svo eru
skeiðgreinarnar og A úrslit í fimmgangi en hann ætlar að reyna við
samanlagðann árangur í fimmgang en þetta verður ansi strembinn dagur
lítur út fyrir að hann rétt nái að henda hnakknum á milli hrossa og hita
smá upp en þetta hefst nú allt saman eins og alltaf. Ég er að
hugsa um að fara í Borgarnesið og horfa á ásamt Ingu og Reyni í
fyrramálið þannig að þetta verður bara gaman. Brúney kýkti svo
aðeins við í kvöld, Sigga, Bjarki, Rebekka og Steinar fóru í afmæli og
litlu molarnir hugsa um afann og ömmuna ekki leiðinlegt það.
15. júlí 2016
Byrjaði daginn á að baka nokkrar pönnukökur fyrir jarðarförina
hans Sigga, skaust svo á Selfoss. Fór svo og sótti Guðna Reyni og
tengdamömmu en við urðum samferða í jarðaförina hans Sigga frá
Bjarnastöðum vorum komin í Skálholt um hálftvö og kirkjan orðin næstum
full. Alvega rosalega margt fólk enda svosem ekki von á öðru.
Dóri er svo enn á Íslandsmótinu og í dag keppti hann í tölti á
Verði en takmarkið var að ná yfir 6 í einkunn þar og fékk 6.07 svo
keppti hann í fimmgang á Verði líka seinnipartinn og endaði í 6.27 sem
var nú dálítið lægra en hann ætlaði en klárinn kannski þreyttur eftir
töltið í morgun en þeir komust nú samt í A úrslit þannig að það er
ekkert smá flott hjá þeim. Svo er víst
skaktaumatölt á morgun með Óperu og sunnudagurinn verður ansi þéttur, A
úrslit bæði í fjórgang og fimmgang og svo eihvað af skeiðkappreiðum en
veit ekki hvort hann afskráir Vörðinn en hann hann er með bæði Ylfu og
Diljá skráðar líka.
14. júlí 2016
Sigga brunaði í bæinn í morgun en hún átti tíma í einhverri
myndatöku, annars er nú bara heilsuleysi á henni og stákunum
kvef og hósti en ekkert bítur á mig hehe Búin að
eyða deginum í að klára tvö teppi fyrir litla gullmola en þarf að reyna
að koma þeim til drengjana um helgina. Inga kýkti svo aðeins við í
dag, Guðni Reynir kýkti við og Brúney. Nú og af Dóra er það að
frétta að hann er að keppa á Íslandsmóti yngri flokka sem er í
Borgarnesi og í dag var það fjórgangur og þar tosaðist hann nú áfram og
mætir aftur með Óperu sína í A úrslit líklega á sunnudaginn. Held
svo að hann sé í slaktaumatölti í fyrramálið á Óperu sinni og fimmgangur
á Verði seinnipartinn á morgun. Svo sýnist mér skeiðið vera á
sunnudaginn en sjáum til.
13. júlí 2016
Skaust á Selfoss í morgun með tengdamömmu, tókst að fara á
nokkra staði og kýkti svo á litla molann hjá Fríðu og Kjartani Gunnari
mikið er þetta nú flottur drengur sem þau já eða við eigum, en þau fóru
svo heim af sjúkrahúsinu í dag. Annars bara rólegheit svona eins
og þegar á heimilinu eru þrír litilir snáðar sá elsti þriggja og yngsti
ársgamall en Árni Kristinn kom í heimsókn. Mamma og pabbi kýktu
við en það var hurðarhúnn hér að stríða mér. Dóri og Jón fóru svo í
Borgarnes í dag en þeir eru að fara að keppa á íslandsmóti yngri flokka
en það byrjar í dag og er fram á sunnudag, en Dóri fór með 4 hross ætlar
að prufa tvær ungar merar í skeiðinu og tók svo Vörð og Óperu líka með
sér. Fékk svo skemmtilega heimsókn í kvöld en Dóra frænka og Birta röltu
hingað úr bústaðnum bara gaman að því.
12. júlí 2016
Halldór Rafn eins árs í dag til lukku með daginn
þinn ömmu gullið
Fór í morgun og sótti Siggu, Freydísi og Ása uppá flugvöll,
mikið gaman að sjá þau sólbrún og fín en fannst nú Sigga hafa lagt ansi
mikið af, ekki dugleg að borða greinilega. Skildi Siggu svo eftir
í bænum en þar sótti hún bílinn og drengina sína og fékk auðvitað
afmælisveislu.
Heyrði svo í hestamönnum og frétti að þetta væri nú búið að ganga
brösulega en þeim tókst að glata þremur hrossum sem enn voru ekki fundin
seinnipartinn þegar ég heyrði í þeim en þau eru nú ekki í símasambandi
almennt þarna inná Fjallabak.
11. júlí 2016
Heilmikið um að vera í dag, ég fór með Göndum og Gúbbum austur
að Búlandi sem er einhverstaðar í Skaftafellssýslunni en þau eru að fara
í hestaferð og ætla að fara fjallabak nyðri. Ég fór semsagt með í
dag til að taka bíl og kerru aftur heim, gekk bara ljómandi vel lagði af
stað frá hópnum rétt fyrir þrjú og var komin heim með kerruna rétt um
sex leitið og búin að skila bílnum og taka Dóra bíl heim um sjö leitið
fór þá og sat aðeins hjá Árna Kristni þar sem nautin voru komin í
Niðurtúnið og Guðni Reynir og Bensi röltu af stað og ráku þau í rétta
girðingu. Dóri skutlaði svo Cathy uppá flugvöll en hún þurfti því
miður að fara heim út af einhverri vinnu. Dóri svo búinn að vera á
rúntinum í dag með hross, fór og sótti klár fyrir Jón í Halakot, fór með
Gránu að taka video og fór svo og sótti Lísu sem var hjá Sjálf í
Austurkoti en hún er með 6 vikna gamalt fyl svo það verður spennandi að
sjá hvort leirljósa folaldið sem ég fæ næsta vor verður með blésu eða
ekki og hvort ég fær hest eða hryssu.
7. júlí 2016
Tysabri dagur hjá okkur Kristjönu í dag gekk bara vel eins og
alltaf, ekkert slugs í bænum brunuðum bara fram og til baka.
Nös fór svo undir Völsung í dag.
6. júlí 2016
Fór í bæinn í dag með tengdó en Reynir fór í læknastúss og við
Inga hittum á Möggu og fórum í Perluna bara gaman af því, ekkert smá
heitt endalaus sól ekki mitt uppáhalds veður verð ég að segja.
Anna Dóra var svo á rúntinum í dag og sótti Hæru og fór með hana undir
Sægrím fyrir mig bara spennandi.
5. júlí 2016
Skutlaði Siggu, Freydísi og Ása uppá flugvöll í dag en þau eru
að fara í viku til Maiorka sem verður örugglega bara gaman hjá þeim.
4. júlí 2016
Letidagur í dag en fékk líka skemmtilega heimsókn en Júlía og
Emelia komu í heimsókn ásamt vinum sínum alltaf gaman að hitta þær
systur, skoðuðum slatta af hrossum bara gaman, nema hvað það er rosalega
mikil fluga allstaðar núna.
3. júlí 2016
Brunaði heim í dag en bílllinn var aðeins að stríða okkur og
því fórum við Kjósaskarðið en sem betur fer eiginlega því bæði Kjartan
Gunnar og svo Dóri lentu í ekkert smá langri bílalest við að komast í
göngin við vorum komin heim fyrir leik, mikið gaman að sjá drengina alla
þegar við komum heim aftur nema hvað Aron var ekki heima.
2. júlí 2016
Var ansi löt við að fara uppá völl í dag en seinnipartinn var
það A úrslitin í bæði B og A flokki mikið gaman af því og mjög spennandi
verð ég að segja, sérstaklega í A flokknum, svo var mótinu slitið en það
var ansi skemmtileg athöfn og gaman að sjá Bjarna Bjarna taka smá
skeiðsprett á Heru en þau settu heimsmet á mótinu sem var nú ekki
leiðinlegt.
1. júlí 2016
Sundlaugin á Hofsósi skoðuð í dag bara flott verð ég að segja
en full mikið af fólki í pottinum og laugin sjálf víst ansi köld.
Kýktum samt fyrst á yfirlit stóðhesta í dag og vorum svo klár í
brekkunni kl 19.00 þegar ræktunnarbússýningarnar voru, ansi gaman að
því, sá mikið af uppáhalds hrossum þar. Horfðum svo á B úrslitin í A
flokk og úrslitin í Töltinu og vá hvað var kalt.
30. júní 2016
Notuðum daginn í dag í að kýkja í Viðvík til Gígíar en Dóri er
að spá í að fá bása þar í vetur svo hann geti nú tamið aðeins með
skólanum. Okkur leist bara rosalega vel á en sjáum svo hvernig
þetta raðast allt saman í haust. Undir kvöldið fórum svo svo og
horfðum á B úrslitin í B flokk og svo B úrslitin í Tölti.
29. júní 2016
Dagurinn í dag fór meira og minna í að horfa á kynbótahestana, en það
voru hestar í öllum flokkum sem mér fannst ég verða að sjá, sérstaklega
hann Sægrímur frá Bergi sem stóð algjörlega undir væntingum og Hæra
gamla fer undir hann. Nú svo var það fyrsta umferðin af töltinu í
kvöld sem var bara gaman líka finnst nú samt alltaf mest gaman að sjá
úrslitin.
28. júní 2016
Fór af stað um sjö í morgun heim aftur til að fylgja henni
Jóhönnu, var komin vel tímanlega heim og í jarðaförina, mikið var þetta
nú falleg athöfn, aldrei farið í jarðaför þar sem enginn kór er heldur
bara einn einsöngvari sem var hún Kristjana Stefánsd og já þetta var
rosalega flott. Nú eftir kaffið fór ég heim og sótti Bjössa en
skipti fyrst um bíl á Selfossi en fór núna á Transporter norður sem er
jú bara snilld fullt af plássi í bílnum, vorun komin norður um níu
minnir mig.
27. júní 2016
Fór uppá flugvöll og sótti Cathy í morgun flugið svona
nokkurnvegin á tíma ekki alveg samt. Drifum okkur svo heim og
brunuðum svo í bæinn verslaði aðeins í rúmfó á Koprutorgi svo brunaði í
Borgarnes að sækja miða inná Landsmótið og svo bara bein á Hóla
vorum konmar tímanlega til að horfa á Dóra keppa en Vörður ákvað að
þetta værin daguirnn sem hann ætlaði ekki að brokka svo hann brokkaði
lítið, en Dóri bara nokkuð sáttur held ég bara.
26. júní 2016
Letidagur í dag, en fór nú samt á Sefoss að versla smá sem ég
mundi eftir að vantaði en fer svo snemma í fyrramálið að sæka Cathy uppá
völl en hún ætlaði að koma á laugardagsmorguninn en frestaði svo fluginu
þar til í fyrramálið. Þegar hún verður svo komin þá brunum við
bara beint norður að horfa á Dóra en hann er að keppa á morgun en nú er
hann með Vörð sinn krossum bara fingur og vonum að vel gangi en klárinn
var bara góður í gær skildist mér.
25. júní 2016
Byrjuðum á að fara að kjósa í dag en maður lætur sig nú ekki
vantar í svoleiðs viðburði. Nú ég fékk svo þá snilldar flugu í
hausinn að bruna bara norður með fellihýsið handa Dóra og plataði Ingu
með mér svo við gætum nú bara komið því upp með drengnum, þetta var bara
skemmtilegt ferðalag hugsa að það hafi tekið hátt í 12 tíma en vorum
komin heim um hálftvö í nótt. Leiðingarveður hér fyrir sunnan en
æðislegt veður fyrir norðan, Dóri mátti nú varla vera að því að henda
þessu upp með okkur en hann var á Sauðárkróki að þjálfa hrossin sín
sagði hann eða bara inná kaffistofum að spjalla, allavega held ég að
drengnum leiðist ekkert.
Það var svo farið í jónsmessureiðtúr í dag held samt að það hafi nú bara
verið sex sem fóru af stað og þrír sem komu í mark, heyrði svo aðeins í
Bensa og komið folald undan Mirru hans og gott ef þetta er ekki
jarpvindóttur hestur, kannski fæddur nýr Vindur hver veit.
24. júní 2016
Dóri fór norður í dag en hann átti von á að fá sendann
tjaldvagninn að Hólum en það klikkaði nú einhvað svo átti að redda honum
pallhýsi þar til við kæmum en það klikkaði líka svo honum var nú bara
reddað húsi ekkert smá kátur með það en það var nú bara ein nótt.
Gekk bara vel norður skildist mér og kominn landsmótsfiðriðringur í
mannskapinn. Fórum svo í matarboð til Gumma og Píu og ekkert smá
sem það var flott, maður borðaði aldeilis yfir sig og rúmlega það takk
æðislega fyrir okkur mikið var þetta nú gaman.
23. júní 2016
Við Inga skutluðumst í bæinn í dag svona að eins að versla smá
en ég sótti svo Traustaúlpurnar sem við Miðengisfólk eigum en restin af
úlpunum voru ekki alveg klárar. Náði svo á Jón vinnumann áður en
hann fór heim úr vinnunni svo hann gæti nú fengið sína úlpu, en þetta
eru rosalega flottar úlpur og ekkert smá heitar.
22. júní 2016
Dóri brunaði í bæinn í kvöld með Óperu en það er alltaf einhver
sala í kortunum en sjáum hvað verður en hann ætlar svo að taka hana með
norður svo hann geti nú haldið henni í trimmi fyrir næsta mót, dugar nú
ekki að slá slöku við þó það sé landsmót.
21. júní 2016
Fékk hringingu í kvöld þar sem það voru sænskar konur hér á
ferð á vegum bændaskóla í svíþjóð og vanaði verknámsbæji þar sem
væru hross eða jafnvel hundar og úr varð að ég á nú
líklega vona á svona nema sem er búin að vera á hundabraut en ég þarf
ekkert að kenna þessum krökkum bara eiga hunda sem þau geta svo kennt
einhvað ekkert smá sniðugt.
19. júní 2016
Búið að tjalda bæði tjaldvagni og fellihýsi hér í dag en bara
svona til að sjá hvort þetta virkar ekki fyrir landsmótið, og allt komið
í gott lag held ég bara. Gróa og Toni fóru svo uppúr hádeginu
eftir frábæra helgi mikið gaman takk fyrir samveruna. Fórum svo út
í bústað til Dóru frænku en þar var eiginlega ættarmót en afkomendur
Guðmundar og Valgerðar foreldra Kristins afa hittust þar í tilefni af
því að afi hefði orðið 100 ára þann 17 júní. Jonni fór svo uppað
Hæðarenda og kýkti á hrossin og komst að því að folaldið mitt er
hestfolald en ekki hryssa, en mikið er það nú fallegt ekki vantar það.
Nú í kvöldfréttum stöðvar 2 voru svo sýndar myndir úr
Álftarvatnsreiðtúrnum og bara mikið flott.
18. júní 2016
Rólegheitadagur í dag allavega fram að fótboltaleiknum en
Jonni, Linda, Steinar og Rebekka komu að horfa á leikinn hér með okkur
en Gróa og Toni voru líka, vá hvað þetta var spennandi og gátum nú bara
verið sátt með jafnteflið. Sigga fór í bæinn með strákana að sækja
Arnar en hann var að koma að utan, nú svo var bara spilað og spjallað
mikið gaman.
17. júní 2016
Allir hressir og kátir hér í dag, það var svo farið í reiðtúr
seinnipartinn og nú var farið niður í Far og þaðan í skóræktina og til
Magga og Sirrýar, skaust svo með Sirrý til mömmu hennar sem er orðin
ansi veik, áttum yndislega stund í spjalli og rólegheitum.
16. júní 2016
Græjaði kjúlingasúpu í dag en alveg ómögulegt að segja hversu
margir mæta hér í súpu í kvöld eða nótt. Held að
það hafi farið tæplega 70 manns þetta árið en það er svipað og var í
fyrra, gekk bara rosalega vel, Magnús Hlynur mætti þarna og tók viðtöl
og myndir sem verða sýnd um helgina gerði hann ráð fyrir. Að venju
datt einhver og nú var það Kjartan Gunnar sem tók það á sig, nú og Gróa
tók smá veltu líka. En þetta var bara mikið gaman og fólk að
tosast heim uppúr miðnætti held ég. Hér mættu svo slatti af fólki
í súpu en fór að sofa um fjögur í morgun, þegar ég var búin að skutla
þeim heim sem það þurftu.
15. júní 2016
Við Inga brunuðum á Selfoss um leið og Sigga kom heim úr
leiksólanum, Bjössi hafði farið uppað Hæðarenda í dag og sá að Krafla
var köstuð og það kom brúnt merfolald heldur hann bíð spennt eftir að
fara að skoða gripinn.
14. júní 2016
Fór í bæinn
um hádegið með Ingu og Reyni en það var verið að jarða hana Hrafnhildi
vinkonu hennar Ingu, mjög falleg athöfn, fórum svo í Fossvogskirkjugarð
og kýktum á leiði foreldra Reynis en Silla og Halli eru búin að vera að
ditta að þvi og mikið var það nú fallegt. Vorum komin heim um
kaffileitið og þvílík sól og hiti eiginlega bara allt of mikið fyrir
mig. Guðrún Lára kom í morun til að líta eftir
Halldóri og svo Þorbirni Óðni þegar Sigga þurfti að fara á fund þannig
að það er nóg að gera.
13. júní 2016
Dóri fór af stað uppúr 4 í morgun, en hann var svo heppin að
stelpa úr Mýrdalnum átti að mæta í dag svo þau voru samferða.
Inntökuprófið gekk bara ljómandi vel hjá þeim báðum, en Dóri ekki búinn
með stúdentinn en það er mjög æskilegt að hafa stúdent, en krakkarnir
voru ekki komin í Staðarskála þegar það var komið svar og þau bæði komin
inn þannig að Dóri er að fara á Hóla í haust.
12. júní 2016
Sofið frameftir allavega sumir ég var nú komin á ról uppúr sjö
en við komum heim um hálffimm í morgun. Veðrið alveg frábært fórum
aðeins út í móa að skoða hvar íbúðahúsalóðirnar eru bara flott held ég.
Annars bara rólegheitadagur en stór dagur á morgun hjá Dóra en hann er
að fara í inntökupróf á Hóla, svo er spurning um hvenær hann fær
niðurstöðu en hann á að mæta 10.30 svo það verður lagt snemma af stað.
11. júní 2016
Brúðkaupsdagur
Sverris og Karítasar í dag innilega til hamingju með daginn ykkar
Fórum í brúðkaup hjá Sverri og Karítas í dag og ekkert smá
falleg athöfn í Selfosskirkju, svo var þessi líka rosalega flotta veisla
í Félagslundi þvíkt flott allt saman KK kom og spilaði í örugglega um
hálftíma mikið af skemmtilegum ræðum og svo endað með Skímóballi, ekkert
smá flott og varla hægt að toppa þetta takk æðislega fyrir okkur flotta
fólk.
Solla kom svo og sótti Keisaraynjuna en þær voru að fara á hundasýningu
í Hvalfjörðinn, það gekk bara ljómandi vel Ásta María sýndi
Keisaraynjuna og Solla var með Bekku systir hennar. Báðar fengu
exelent og Bekka fékk 2 sæti og Keisaraynjan 3 sæti sem er bara frábært,
takk fyrir þetta stelpur mínar þið eruð bara bestar.
10. júní 2016
Fékk sms frá Guðna Reyni uppúr sex í morgun um að Nös væri
köstuð og ég svo forvitin að ég rauk af stað, og þetta líka flotta
brúntvístjörnótta sokkótta hestfolald komið, ekki vildi það nú standa
upp og Nös var nú ekki að heypa mér nálægt horfði bara á mig og bakkaði,
hélt þetta væri hestur en ekki viss svo ég tók myndir sendi Jonna í sms
og hugsaði með mér að hann myndi þá fórna sér í að athuga með kynið, sem
hann auðvitað gerði enda folaldið hans og Bjössa, nú folaldið reyndist
vera hestur en honum alveg fyrirgefið þar sem liturinn er svo flottur og
fékk nafnið Toppur frá Miðengi.
Brúney kom svo og passaði Halldór Rafn en við fórum í jarðaför á Selfoss
en Lillian mamma hennar Lindu var jörðuð í dag, blessuð sé minning
magnaðrar konu.
Gróa og Toni komu svo í kvöld en það er jú brúðkaup á morgun og mikil
spenna.
8. júní 2016
Fór í bæinn snemma í morgun en það var læknastúss hjá
tengdapabba, kýktum svo aðeins á Hödda og fórum líka í Kringluna þannig
að við náðum að gera helling fyrir hádegið.
7. júní 2016
Við Kristjana fórum í bæinn í morgun og byrjuðum á að fara uppá
Borgarspítala í blóðprufu en þurftum að vera komnar þangað fyrir klukkan
11, fórum svo þaðan í Kjólar og Konfekt en auðvitað þurftum við kjóla ég
jú að fara í brúðkaup og Kristjana að dúllast í garðinum hehe kýktum svo
á kaffihús en ég skutlaði svo Kristjönu til sonar hennar á meðan ég
hitti Albert Pál, við brunuðun svo austur.
4. júní 2016
Mikið gott verður hér í dag, sérstaklega fyrripartinn,
Sigga fór með strákana í pottinn og voru mjög kátir með það.
Skaust á Selfoss í morgun og sótti smotterí sem vantaði. Fórum svo
í kvöld í afmæli til Sólmundar og ekkert smá stuð sem var þar eins og
við var að búast. Kýkti svo á hryssurnar þegar við komum heim og
farið að leka úr Hæru en Hæra vildi ekkert leifa mér að skoða Nös og
kannski enn alveg einfalt að brölta yfir girðingu í kjól svo Nös verður
skoðuð í nótt.
1. júní 2016
Brunaði í bæinn í morgun, kom við í Hveró ogsótti Kristjönu og
við fórum svo í Tysabri. Var eiginlega búin að gleyma þessu en
fékk sms í gær svo ég gleymdi þessu nú ekki. Kom við á Selfossi á
leiðinni heim og var komin heim rétt fyrir fjögur. Var eiginlega
búin að ákveða að setja staðsetningartæki á Harrý en gleymdi að segja
Guðna Reyni það en hann setti Harrý út í morgun ég var meira að segja
búin að kaupa slatta af nammi handa honum sem ég ætlaði að gefa honum í
nótt svo nú verður Dóri bara að borða nammið held ég.
31. maí 2016
Fór með Keisaraynjuna í sýningarþjálfun í bæin í kvöld, gekk
bara ljómandi vel enda fór hún síðast í band fyrir tæpu ári, en
tíkarrófan er hálóða þannig að hún verður nú vonandi gengin yfir þegar
kemur að sýningunni. Það var bara hellings rigning á heiðinni og
ansi mikil þoka en þetta hafðist nú allt og ég komin heim rétt fyrir
níu.
30. maí 2016
Fór í fjárhúsið í nótt um þrjú leitið og þar voru tvær rollur
bornar, var með smá nesti eða Góa nammikúlur í poka og ætlaði að fá mér
smá bita þegar Harrý heyrði skrjáf í poka og mikið var hann snöggur að
koma og snýkja, og viti menn hann át kúlurnar bara frá mér, hélt að
karmellan myndi nú fæla hann frá en svo var nú ekki. Fór svo í
morgun að marka þar sem Sigrún er farin að vinna aftur eftir
sauðburðarfríið. Tók með mér slatta af brauði handa Harrý og ákvað
að prufa að gefa honum eins og eitt Snikers súkkulaði og vá hvað honum
fannst það gott, gleypti það í sig í tveimur bitum mikill sælkeri.
Fór svo á Selfoss fyrir hádegið en bara búin að hafa það gott í dag og
nenna ekki neinu.
29. maí 2016
Síðasti hvolpurinn farinn á nýtt heimili. Nú svo er
Keisraraynjan að lóða og allt í hershöndum hehe. Rölti svo út að
girðingunni þar sem folarnir eru og tók nokkrar myndir en þetta eru 6
folar og ansi ljósir litir nú og svo bætist Bjarki við og ekki er það nú
verra, en það er einn jarpur, einn brúnskjóttur og allt hitt í ljósum
litum. Páll og Freyja komu svo hér í dag og ætluðu að reyna að ná
myndum af litlu Sprökudótturinni en ekki viss um að það hafi tekist en
hryssan frekar stygg.
28. maí 2016
Fór að hjálpa Guðna Reyni að draga úr rollu snemma í morgun og
þegar ég var á að fara heim sá ég að Spraka var köstuð. Komin
brúnstjörnótt hryssa, en það voru 75% líkur á álóttu sem kom ekki
en svo eru líka 75% líkur á litföróttu en það á eftir að koma í ljós.
Spurning um að skíra þetta folald Borg þar sem að í dag er hátíð hér í
sveit sem heitir Borg í sveit, en sjáum til. Guðrún Lára kom svo
hér í dag en Sigga og Arnar fóru til Freydísar í kvöld og við Bjössi
fórum ásamt tengdó að sjá Guðrúnu Gunnars og Jón Ólafs en þetta var bara
gaman en leiðinlega fátt fólk sem mætti.
26. maí 2016
Farið að rigna í Miðengi og þá byrjar jú sauðburður á fullu,
finnst gemsalömbin leiðinlega léleg en svona getur þetta stundum verið.
Frjósemin í ánum samt fín en óvengju mörg lömb lin hjá rollunum líka eða
einhvað skrítin. Skellti mér svo í bæinn í kvöld og plataði Gunnu
með mér á aðalfund hundaræktarfélagsins, finnst nú almennt ekki
gaman á svona fundum en því meira gaman á leiðinni í bæinn og austur
aftur hehe
25. maí 2016
Haldið þið ekki að folaldið hafi bara verið dautt í morgun, en
það var svosem viðbúið svo er bara að vona að aumingja Hildur fái
fósturfolald en sjáum til, en það vantar alltaf fóstrur á hverju vori
svo er bara að sjá hvort það dettur inn á réttum tíma. Skutlaðist
með folaldið að Keldum en þar er verið að rannsaka folaldadauða, þannig
að við þurfum ekkert að borga bara koma folaldinu til þeirra og fáum
vonandi fullt af nýrri vitneskju í staðinn. Inga dreif sig með
komum svo aðeins við á Selfossi á leiðinni heim.
24. maí 2016
Skaust á Selfoss með tendó eftir hádegið en ýmilslegt sem maður
þarf alltaf að stússast. Karlarnir keyrðu svo slatta af hrossum
niður á Hraun, en þau verða þar í sumar. Sauðburður loksins farinn
af stað og farið að ganga betur en búið að vera ansi leiðinlegt
undanfarið mikið drepist af lömbum líklega einhver efnaskortur í
gemsalömbunum en komin með Selen sem við skellum í lélegu lömbin nýfædd
og gott ef það hefur ekki bara einhvað að segja. Dóri svo búin að
fá út úr öllum prófum og náði öllu með glans mikið gott því þá er það
ekki eftir.
23. maí 2016
Skrapp að Hömrum í morgun að líta eftir gibbunum ennar Auðar á
meðan hún kýkti að kynbótasýningu á Selfossi, það var ekkert að
bera þar og bara rólegheit en sauðburður að verða búinn þar en rétt að
byrja hér. Mamma kom og var með Halldór Rafn á meðan þar sem
foreldrarnir voru að vinna. Var svo komin heim um hádegið.
Gunna kýkti svo við hér seinni partinn, mamma og pabbi kýktu lika við en
þau voru að græja pappíra varðandi húsið á Tálknarfirði. Fór svo í
fjárhúsið í kvöld aðeins að skoða gibburnar og marka einhvað sem ég
vildi nú hafa með mínu marki. Kýkti á merarnar og ekkert folald
sýnist mér á næstunni líklega ekki fyrr en i júní en svosem ekki langt í
það. Dóri skutlaðist svo með Lísu mína undir Sjálf í Austurkot en
það kom svo ansi fallegt folald núna undan Sjálf en Dóri á það svo nú
verð ég að toppa það.
22. maí 2016
Litla Kötludóttirin kastaði í nótt og það kom voða sætur
rauðblésóttur hestur. Nú svo þegar Dóri var í A úrslitunum í
fjórgangi ungmenna þá kastaði Kalta sjálf og þar kom glæpaskjóttur
hestur með ansi mikla og breiða blesu, held að hann fái nafnið Glanni
Glæpur en Dóri vill bara láta hann heita Glæpur en sjáum til. Nú
og aftur að A úrslitunum í fjórgangnum en þar rétt náði hann að vinna
með 6.63 en Guðmunda Ellen nartaði aðeins í hælana á honum með 6.60 ekki
gott fyrir stressaða mömmu að horfa á þetta. Nú svo voru það A
úrslit í slaktaumatöltinu en þar landaði hann 2-3 sæti í 1 flokki og
þarf var dregið um sæti og fékk hann 3 sætið mikið góður dagúr í dag hjá
Miðengismönnum.
21. maí 2016
Sauðburður aðeins að byrja en mætti nú samt vera meiri kraftur
í þeim. Dóri var svo að keppa í fjórgang og slaktaumatölti á
Selfosi í dag, er fyrstur inn í A úrslit á Óperu í fjórgang ungmenna og
í 2-3 sæti með Óperu í slaktaumatöltinu í 1 flokk en það voru svo fáir í
ungmennaflokknum að þau voru flutt upp í 1 flokk skildist mér.
Dóri var líka með Öskubusku en það gekk ekki eins vel, náði ekki að hita
hana nægilega upp svo hann hætti bara í miðri sýningu held ég og fékk
þar af leiðandi 0 en þetta kemur bara næst. Var svo í basli með að
draga úr gemsa og var svo heppin að Lísa var uppí bústað og náði að
redda þessu og kýkti á folaldið í leiðinni en það var ennþá frekar
slappt en það er greinilega með hjartagalla eða einhvað þessháttar því
miður.
20. maí 2016
Þá er Undramundur kominn með nýtt heimili en hann er búinn að
vera dálítið útundan hér sérstaklega síðan Gutti kvaddi vegna veikinda.
Gilla brunaði suður og sótti gripinn en þetta er nú engin smá keyrsla
alla leið frá Ísafirði fyrir einn hund svo það er eins gott að þetta
eigi eftir að ganga vel hjá þeim. Kýktum í fjárhúsið og eins á
folöldin en það er eins og það sé einhvað að folaldinu hennar Siggu,
hann nær ekki að fylgja hrossunum og stendur bara á öndinni.
Bjössi og Guðni Reynir sóttu merina og settu inn í nótt svo er bara að
vona að þetta sé bara tilfallandi.
18. maí 2016
Sigga á afmæli í dag og í tilefni dagsins kastaði
Hildur og Sigga fékk folaldið í afmælisgjöf.
Hildur kastaði í morgun en hún var köstuð þegar ég kom frá
Auði, þetta er líka þessi flotti móvinskjótti hestur, ekkert smá flottur
og ekkert að gera annað en að gefa Siggu hann í afmælisgjöf.
Sauðburður rokgengur á Hömrum en hér er hann varla farinn af stað.
15. maí 2016
Þorbjörn Óðinn á afmæli í dag
orðinn þriggja ára til hamingju með daginn þinn ömmugullið
Fyrsta folaldið kom í morgun,
leirljósblesóttur hestur undan Lísu og Sjálf frá Austurkoti, Dóri á
þetta folald en þetta er mikið fallegur hestur. Annars var smá
afmæliskaffi hér í dag fyrir afa og ömmur. Við Bjössi fórum svo
til Ingu og Reynis í kvöldmat en þar buðu Höddi og Magga okkur
ásamtJonna og Lindu í mat, mikið flott og takk fyrir okkur. Fór
svo í fjárhúsvakt til Auðar en við Særún tókum vaktina bara gaman.
14. maí 2016
Enn bólar ekkert á lömbum. Freyja og Páll kýktu í
heimsókn við kýktum svo á graðhestana, hryssurnar og hrossin í
hesthúsinu, Lísa ansi óróleg, en ekkert farið að leka úr henni en
fylgdist með henni fram á kvöld og mjög óróleg svo kannski fer að koma
folald. Horfðum svo á evrovison í kvöld og gaman að fylgjast með
stigagjöfinni var nú ekki sátt með sigurlagið en fannst rússneska lagið
flott og reyndar nokkur önnur.
13. maí 2016
Við Bjössi eigum 27 ára
brúðkaupsafmæli í dag og sömu 27 árin síðan frumburðurinn Guðni Reynir
var skírður.
Skutlaði Bjössa og slatta af hrossum á Selfoss í morgun en hin
árlega karlareið er í dag, en held að það eigi að fara ríðandi í
Kringlumýri, á morgun fara þeir svo í heimsókn á Ketilvelli og koma svo
heim á sunnudaginn. Ekkert að bera ennþá en það hlítur að skella á
eftir helgina.
11. maí 2016
Ég á afmæli í dag og orðin 48 ára mikið hvað tíminn liður en mér finnst
ég ekkert eldast.
Fór í bæinn í dag með tengdó en tendapabbi átti tíma hjá gigtarlækninum
og svo hjá krabbameinslækninum en þetta kom allt ljómandi vel út og á
meðan tengdapabbi fékk einhvert beinstyrkingarlyf þá fórum við
tengdamamma á rúntinn, vorum svo komin heim um hálffimm en Sigga var á
fundi og Arnar að vinna svo Bjössi var með drengina en ég tók við þeim
þegar ég kom heim. Svo var bara rolluyfirseta hjá Auði í nætt en
bara ekkert að gerast, kýkti á Gunnu í heimleiðinni en þar voru nokkar
að bera og fullt af skrautlegum lömbum.
Ekkert um að vera hér heima þegar ég kom hvorki lömb né folöld.
10. maí 2016
Ansi gott veður í dag, kýkti á hryssurnar og Hildur komin ansi
nálægt köstun en samt ekki farið að leka úr henni að munar svosem um
hvern og einn dag en aðeins farið að vora. Sauðburður ekkert
farinn af stað að ráði hér og rollurnar hennar Auðar bara slakar í nótt.
9. maí 2016
Við Inga fórum á Selfoss eftir hádegið, alltaf hægt að versla
smá en var farið að vanta ýmislegt í kotið hér. Kýkti svo á
merarnar seinnipartinn og er nú á því að Hildur verði fyrst ætli það
komi ekki folald á afmælisdaginn minn. Fór svo í kvöld á næturvakt
í fjárhúsið hjá Auði og Særún var þarna með mér, það fór nú þannig að
við vorum til að verða fjögur í morgun og bara ekkert að gerast, kýkti
hér í fjárhúsið þegar ég kom heim og enginn sauðburður hér, og ekkert
folald komið en fannst nú ansi kalt í nótt.
8. maí 2016
Við Þorbjörn Óðinn fengum okkur göngutúr uppá bæ í morgun,
fórum reyndar alveg uppí Bragga en Hrói var að hrekkja Bjössa, fórum svo
og heimsóttum Sigrúnu og Guðna Reyni en Aron var á Selfossi og Árni
Kristinn sofandi. Ég kýkti á merarnar og niðurstaðn sú að Hekla er
komin ansi nálægt köstun nú og svo eru það Lísa og Hildur sem verða
fyrstar veðja á Heklu fyrst en sjáum til ætli þær kasti ekki allar þann
11 en á þá á ég afmæli og hlít þá að eiga öll folöldin hehe.
Steini kom svo í dag og tók fullt af myndum af hvolpunum, þarf endilega
að fara að koma þeim í sölu en allt búið að vera hálf skrítið þetta
vorið. Fór svo í kvöld að líta eftir gibbunum hennar Auðar
og bara slatti að bera og einhvað voru lömbin nú treg að koma rétt í
heiminn en öll lifðum við nóttina af.
6. maí 2016
Fyrsta næturvaktin hjá Auði í nótt en ætla að sitja yfir ánum
einhvað en get eins sitið yfir þeim eins og að dotta yfir sjónvarpinu
alla nóttina hehe, þetta gekk bara vel, var smá stund að átta mig á
þessu öllu en þetta verður ekkert mál.
5. maí 2016
Sigga aðeins skárri en mætti samt alveg
vera betri en er hörð á því að fara til vinnu á morgun sjáum bara
hvernig það fer. Nú svo er hér smá saga af Þorbirni Óðni en hann
er með allra þrjóskustu börnum sem ég þekki en hann fór á klósettið og
kúkaði eins og oft áður svo varð mér það á að sturta niður, hann varð
alveg brjálaður þar sem hann hafði ætlað að sturta sjálfur og til að
redda málunum þá fór hann bara aftur á klósettið og kúkaði aftur og
sturtaði sjálfur.......
Gróa, Toni
og Stebbi komu hér í mat í kvöld en þau voru á suðurlandsrúnti.
Alltaf gaman að fá þau í heimsókn, Guðni Reynir og Sigrún kýktu
líka í pönnukökur með strákana, bara gaman að því og Inga kýkti líka
við.
4. maí 2016
Fór í bæinn í morgun í Tysabri sótti Kristjönu í leiðinni í
Hveragerði þetta gekk bara ljómandi vel eins og alltaf er reyndar ansi
marin á handleggjunum en yfirleitt gengur þetta án marbletta en svona
getur þetta verið. Sigga fékk svo tíma hjá kvensjúkdómalækninum í
dag sem fannt úr að það hefur sprungið blaðra við eggjastokk held ég og
svo er vökvamyndun bak við legið sem skýrir þetta en hún á að taka því
rólega og vonadi gengur þetta bara til baka. Vorum svo
komnar heim á svipuðum tíma. Bjössi fór svo með
Klettsmönnum og bílasölunni í árlega reiðtúrinn og gekk bara vel.
3. maí 2016
Sigga og Þorbjörn Óðinn voru komin heim um þrjú leitið, en
Sigga fékk allt í einu svo mikla verki en ætlaði víst ekki heim fyrr en
hún væri búin að vinna en þær sáu við henni og sögðu Þorbirni Óðni að
hann væri að fara heim og þegar hann tekur einhvað í sig þá er nú erfitt
að eiga við hann. Ég fór svo með hvolpana í hvolpaskoðun um fjögur
leitið og þeir fengu allir fulla skoðun líka litla tíkin en fékk nú samt
athugasemd um að hún mætti nú fera feitari sem er alveg rétt.
Kýkti svo á hryssurnar en það eru tvær sem eru komnar rúma ellefu mánuði
og svo er hún Hildur líka komin rúma tíu mánuði en hún gengur alltaf
mánuði styttra með en hinar svo nú gætu farið að koma folöld.
Þegar ég kom svo heim brunuðu Sigga og Arnar á læknavaktina en þaðan var
hún send á bráðamótökuna en þetta er einhvað tengt legi eða
eggjastokkum, hún á að fara til kvensjúkdómalæknis á morgun en
fékk mikið af verkjalyfjum og var ansi dofin þegar hún kom heim nema
akkúrat þar sem verkurinn er.
2. maí 2016
Allt í rólegheitum hér ennþá enda ekki von á að sauðburður
byrji á fullu fyrr en eftir viku hugsa ég. Skaust aðeins á Selfoss
í dag. Veðrið svona gluggaveður en finndist nú að þetta rok mætti
aðeins fara að slaka á.
1. maí 2016
Karlarnir fóru að stússast með Tona í morgun en við fórum svo
af stað heim fyrir hádegið. Vorum komin heim um þrjú leitið alltaf
gott að koma heim eftir frábæra helgi.
30. apríl 2016
Fórum hérðan rétt fyrir tíu en Jonni, Linda, Dóri, Bjössi og ég
vorum að fara í Búðardal og tókum Þóru með okkur en
hún varð eftir í bænum, vorum komin í Dalina eftir hádegið en
karlarnir fóru í útreiðar ásamt Gróu en Toni var með okkur Lindu í
trússinu. Þetta var bara gaman, fengum svo veislumáltíð hjá Gróu
og Tona en fórum svo til Eyþórs og Svölu í afmælispartý bara gaman og
takk fyrir okkur.
29.
apríl 2016
Sótti Þóru á Selfoss um hádegið í dag,
klárðuðum svo að versla en það var svo matarklúbbur hér í kvöld en við
ákváðum að hafa humarveislu og slá öll saman í matinn. Þetta tókst
líka svona ljómandi vel en því miður gátu Árni og Sigrún ekki komið og
Biggi og Mæja forfölluðustu á síðustu stundu en svona er þetta nú bara
stundum.
28. apríl 2016
Skipulagas Pétur kom hér í dag, ég fór svo á Selfoss
eftir hádegið með Ingu en við sóttum bílinn hans Dóra sem er líka
rosalega flottur. Held að Dóri sé langt komin með skólann en held
að hann þurfi ekki að fara í nein lokapróf en þetta eru búnir að vera
ansi ásettir dagar undanfarið hjá honum en á morgun fer hann svo með
Afrekshóp LH í Borgarnes með merina sína en það eru nokkrir krakkar sem
eru í þessum hóp bara gaman.
27. apríl 2016
Dóri fór með Raminn á Hraunið í gær í þvott og þrif, hann
sótti bílinn svo glansandi fínann í dag og skildi sinn bíl eftir.
Ekkert smá flott og ódýrt að láta þrífa bílana sína þarna bara snilld.
26. apríl 2016
Svaf eins og engill, eftir morgunmatinn röltum við aðeins um og
kýktum á Bjössa róló mikið er hann nú flottur, kýktum aðeins á Ljómalind
sem er sveitamarkaðurinn þarna ansi flott bara en þar keypti ég mér
nokkur andaregg en mikið sakna ég þess að hafa ekki endur.
25. apríl 2016
Í dag var stefnan tekin í Borgarnes í tilefni þess að það eru
10 ár síðan við útskrifuðumst sem Búfræðingar en við Hildur á Spóastöðum
og Sigríður á Fossi skelltum okkur vestur að heimsækja Berthu sem er
komin með Borgarnes Bed and Brekfast í Borgarnesi og Huldu í Geirshlíð,
mikið var nú gaman að hittast, en vorum komnar vestur uppúr hádeginu og
fórum þá í bíltúr en kýktum á Steðja þar sem bjórinn er bruggaður en það
er nú ansi flott hjá þeim nú og svo kýktum við á konu sem er að búa til
allskonar olíur í gamla mjólkurhúsinu en hún er búin að markaðssetja sig
víða erlendis líka mjög flott. Fórum svo haftur heim til Berthu
þar sem var elduð pizza og mikið gott og rosalega gaman takk fyrir mig.
22. apríl 2016
Halla Eygló koma og stigaði nokkur hross hér í dag en ansi var
nú léleg mæting hjá Goða félögum, en það var mæting frá Miðengi, Hömrum
og Hólmar sendi einn hest en þetta kom bara ágætlega út og allir sáttir
held ég.
21. apríl 2016
Sumardagurinn fyrsti í dag og þetta fína veður en það fraus
saman í nótt sem veitir á gott. Guðrún Lára kom svo hér í dag og
hjálpaði krökkunum að setja upp hillur hjá Þorbirni Óðni þannig að nú
getur hann farið að raða dótinu sínu uppí hillur ;)
20. apríl 2016
Hér eru komin lömb en það bar ein í nótt sem Gunni Har átti og
svo önnur í morgun, ekki laust við að Gunni okkar hafi látið vita að það
væri ástæða til að kýkja í fjárhúsið mikið gott að hafa svoleiðs aðstoð.
Báðar rollurnar voru tvílembdar svo þetta fer vel af stað.
19. apríl 2016
Búin að vera ansi löt að uppfæra síðuna en vonandi fer ég nú að
girða mig í brók og laga þetta. Fór í bæinn í kvöld í MRI en átti
tíma klukkan 21.20 en þetta er nú ansi seint finnst mér
en þetta þetta var svosem ekkert mál, tók um 25 mín í þetta skiptið.
16. apríl 2016
Karlarnir fóru í menningarferð í dag og voða gaman skildist
mér. Adam kýkti svo hér í kvöld alltaf gaman að sjá hann.
Auður og Siggi kýktu aðeins við hér í kvöld bara gaman.
15. apríl 2016
Enn blíða en fór nú reyndar að rigna
undir kvöld. Bjössi og Dóri ríða út eins og enginn sé
morgundagurinn nú og svo er Dóri í skólanum þess á milli. Árni
Kristinn fór svo í eins og hálfsárs skoðun og sprautur í dag, og gekk
bara vel held ég. Fór svo uppá bæ og leit eftir honum þegar Guðni
Reynir fór aðeins út að hjálpa pabba sínum en Árni Kristinn svaf allann
timann, ekki mikið fyrir honum haft.
14. apríl 2016
Arnar fór með Halldór Rafn í Laugarás í morgun en sá litli
búinn að sofa illa og vera ansi pirraður, það kom svo í ljós að hann er
kominn með eyrnarbólgu í bæði eyru og fékk viðeigandi lyf svo er bara að
krossa fingur og vona að þetta gangi hratt yfir.
13. apríl 2016
Þorbjörn Óðinn var heima í dag, en líklega þarf hann að leggja sig smá
um miðjann daginn í leikskólanum en þegar veðrið er svona gott þá eru
menn mikið úti og þurfa smá lúr.
12. apríl 2016
Vorum að heimta í dag en rollan sem
okkur vantaði náðist við þjónustumiðstöðina á Þingvöllum með lambið sitt
en hitt lambið skilaði sér í haust. Hef nú Gunnar Har grunaðann um
að hafa verið með puttana í þessari smalamennsku allavega var lítið mál
að ná rollunni, sá svo meira að segja mynd á facebook sem einhver tók af
rollunni á röltinu á malbikinu við þjónustumiðstöðina í dag, en gott að
hún er komin heim blessunin feit og falleg. Arnar sótti svo
Þorbjörn Óðinn eftir hádegið í leikskólann en ungi maðurinn var ansi
þreyttur og pirraður held að hann hafi sofið í allavega tvo tíma eftir
að hann kom heim en vaknaði hress og kátur en hef nú grun um að hann
verði heima á morgun.
10. apríl 2016
Guðrún Lára kýkti hér í dag en hún var að skutla hillum og
dekkjum austur fyrir krakkana, en bíllinn hjá þeim var fullur þegar búið
var að setja barnadótið allt í skottið. Kjartan Gunnar og Fríða
kýktu svo við hér í dag og fóru heim með fullann bíl af allskonar
barnadóti sem Halldór Rafn er hættur að nota en svo á eftir að fara í
gegnum öll fötin sem er nú ekkert smá. Við Bjössi fórum svo til
Magga og Sirrýar í mat í kvöld áttum mjög gott kvöld mikið spjallað og
ansi mikið borðað takk æðislega fyrir okkur þetta bara bara snilld.
9. apríl 2016
Árni Kristinn vaknaði um átta í morgun hress og kátur, mikið
stuð á þeim frændum en Sigga og Arnar fóru svo í bæinn með sína stráka,
þannig að Árni Kristinn var bara einn að rolast með ömmu sinni en það er
nú ekki hægt að segja að hann sé lengi kyrr á sama stað mikið að gera
hjá ungum manni, foreldrarnir komu svo uppúr hádegi. Ég skutlaði
Dóra svo í Austurkot en hann fór með Palla og co í bæinn að sjá
stóðhestveisluna. Við Bjössi fórum svo í afmæli til Sollu, ekkert
smá stuð á þar enda ekki við öðru að búast. Vorum svo komin heim
um tvö leitið í nótt.
8. apríl 2016
Árni Kristinn kom í pössun hér eftir leikskólann en
foreldrarnir fóru á hótel í bæinn í smá afslöppun. Árni Kristinn
var svo sofnaður klukkan átta í kvöld enda orðinn ansi þreyttur litli
maðurinn.
6. apríl 2016
Fór í bæinn í dag með tengdó en Reynir fór á lansann og fékk
beinastyrkingarlyfið sitt á meðan ég fór í Fossvoginn og fékk mitt
Tysabri, annars bara allt við það saman gott veður og allir við
þokkalega heilsu. Fékk svo e-mail frá Vetgen og nú er það komið á
hreint að Undramundur á alla hvolpana, tíkin litla er farin að braggast
og stækkar hratt þó svo það sé ansi langt í að hún nái bræðrum sínum.
4. apríl 2016
Skaust á Selfoss í morgun og kýkti á framkvæmdir í
Kerinu í leiðinni þetta verður bara flott þessi fíni útsýnispallur að
verða til.
3. apríl 2016
Mikið með hugan hjá Gunna okkar Har í dag en þetta er
afmælisdagurinn hans. Þetta fína veður í tilefni dagsins.
Arnar fór svo með strákana í fermingarveislu í dag og gekk bara ljómandi
vel, voru alveg til fyrirmyndar litlu mennirnir.
30. mars 2016
Við Halldór Rafn búin að vera að dúlla okkur hér heima í dag,
skólinn byrjaður hjá Dóra nú og svo fór hann í Kaffi Krús hitting en það
eru hér krakkar frá Svíþjóð í starfsnámi sem eru búin að vera að kýkja á
hestabrautina. Annars bara ótrúlegt hvað tíminn líður hratt bara
að koma apríl en þá gæti farið að styttast í lömb en það voru nokkrar
skjátur sem komu eins heim og þá með hrúta með sér. Hvolparnir
dafna bara ágætlega tíkarhvolpurinn loksins að taka við sér en líklega
er hún með bakflæði en ég hafði bara aldrei
heyrt um svoleiðs í hvolpum en þetta eldist víst af þeim eins og af
börnunum skilst mér.
29. mars 2016
Skrapp aðeins á Selfoss í morgun en annars bara allt við það
sama.
28. mars 2016
Árni Kristinn var í pössin hér i nótt, meiri molinn sofnaði
auðvitað ekki fyrr en undir miðnætti og var vaknaður um sjö í morgun.
Ég fór svo og leit aðeins eftir honum heima hjá honum í dag og þá svaf
hann allann tímann elsku molinn enda best að sofa heima.
Og enn er verið að ganga frá dótinu hans Gunna en Óskar kom hér í kvöld
með nokkra poka af fötum, og sumt aldrei notað enda óþarfi að nota ný
föt á meðan þau gömlu virka það er nú bara þannig.
27. mars 2016
Gleymdi auðvitað að kaupa pásaegg en með góðra manna aðstoð
náðist að redda því handa mér en páskaeggin á Selfossi voru uppseld í
gær en þó fannst nú einhvað undir og bakvið takk fyrir það. Í dag
var svo staðið á gati í páskaeggjaáti og svo hamborgarahryggur í
kvöldmatinn þannig að ekki lagði ég af í dag sem betur fer hehe
26. mars 2016
Fór uppí Kistuholt í dag og sótti meira dót en það er nú langt
komið með að tæma íbúðina hans Gunna. Fór svo með Siggu, mömmu og
pabba og Hödda og Möggu á leikritið á Borg, og mikið var nú gaman en
þetta var lokasýningin hjá þeim. Takk fyrir okkur.
25. mars 2016
Það var farið í páskareiðtúr í dag, held að það hafi farið ca
18 manns í hnakk hér og riðið að Snæfoksstöðum til Magga og Sirrýar,
gekk bara ljómandi vel og þegar hrossin voru búin að fá nóg fóru þau
bara heim þannig að það þurfti að selflytja mannskapinn heim á bílum, en
hrossin sáu smugu í gerðinu og nýttu sér það. Það var svo farið
aftur á bak hér heima og riðið áleiðis niður í Far. Hér var svo
svipaður hópur sem borðaði kjúklingasúpu í kvöld, en allt komið í ró um
miðnætti, en stór dagur hjá leikurunum í sýningunni á Borg á morgun en
þetta er lokasýning en við ætlum að kýkja á þetta aftur en það verður
bara gaman.
24. mars 2016
Skírdagur í dag, fór uppí Kistuholt að hjálpa til við að ganga
frá búslóðinni hans Gunna. Kom með fullann pall af dóti heim, ekki
leiðinlegt það.
22. mars 2016
Sigrún á afmæli í dag til
hamingju með daginn skvís
19. mars 2016
í dag er afmælisdagurinn hans Guðna Reynis og í dag var hann
Gunni okkar Har borinn til grafar, er ekki enn að trúa því að hann sé
farinn en fengum mjög gott veður í dag. Við Guðni Reynir fórum í
kistulagninguna um tólf leitið en útförin var svo klukkan tvö frá
Skálholti, það voru um 250 manns í kirkjunni og afskaplega falleg
athöfn, það var svo jarðsett á Stóru Borg og kaffi í
félagsheimilinu. Takk fyrir allt og allt elsku Gunni minn hef nú
ekki trú á öðru en þú verðir hér í kringum okkur áfram.
Fórum svo í matarboð til Ingórs og Huldu í kvöld, takk æðislega fyrir
okkur.
16. mars 2016
Fór í Blómaval seinnipartinn í dag á kransakökunámskeið, var
bara mjög gaman og á nú eins kransaköku í frysti.
15. mars 2016
Mamma kom í dag og var með Halldór Rafn á meðan Sigga var í
vinnunni en ég fór með Óskari syni Gunnar Har að hitta séra Egil en það
er í mörg horn að líta, komum svo við í kirkjugarðinum á Stóru Borg og
völdum legstað fyrir Gunna, nú ef ég sef vel í nótt er hann sáttur
annars fer ég bara aftur.
13. mars 2016
Fermingardagurinn hennar Önnu Alexöndru
var í dag, ég fékk far með Völu og Kristínu í bæinn en það var frekar
leiðinlegt veður, ansi hvasst og rigning ekkert frost sem betur fer en
þoka á heiðinni.
11. mars 2016
Elsku vinur okkar og félagi
Gunni Har varð bráðkvaddur í kvöld
9. mars 2016
Bæjarferð í dag en tengdapabbi fór í sína mánaðarlegu sprautu
sem það er einhvert beinastyrkingarlyf sem hann fær. Sótti
hundamat í leiðinni, en við tengdamamma nýttum svo tímann í að snúast
aðeins. Vorum komin heim um fimm leitið. Í kvöld var svo
Halldór Rafn aftur kominn með hita svo Sigga og Arnar skelltu sér með
hann á bráðavaktina en niðurstaðan var að hann er ekki
með Streptakokka og ekki með í eyrunum en rauður í
hálsinum og með ljótann hósta, svo það eru bara stílar til að byrja með.
8. mars 2016
Halldór Rafn orðinn hitalaus svo maður er nú að vona að þetta
sé allt í áttina. Skvísa átti svo hvolpana í dag en það komu 3
rakkar þar af einn dauður og ein tík. Þannig að það eru þrír á
lífi. Brúney og Kjaran Gunnar komu svo í kaffi í dag bara gaman að
því. Nú svo var Gunni Har að heimta en forystulambhrúturinn hann
náðist í dag en Bjössi og Guðni Reynir sóttu hann uppí Miðdal, en þá
vantar rolluna og gimbrina.
7. mars 2016
Guðni Reynir fór með Árna Kristinn í Laugarás í dag en hann er
kominn á sýklalyf held ég þar sem hann er með stíflu í eyrunum skildist
mér, sem skýrir víst græna horið alltaf svo vonandi fer litla gullið að
losna við það en er samt agalega sprækur. Þorbjörn Óðinn var heima
í dag en stefan tekin á leikskólann á fimmtudaginn, en um að gera að
vera orðinn alveg sprækur áður en hann fer af stað aftur fyrst hann
hefur möguleika á að vera heima. Aron Rafn er svo bara sprækur en
Halldór Rafn orðinn skárri. Nú og Skvísa litla orðinn óróleg svo
það fer að styttast í hvolpa hef ég grun um.
6. mars 2016
Aron Rafn og Árni Kristinn komu í heimsókn í morgun, ekkert smá
gaman að sjá Þorbjörn Óðinn þegar hann fattaði að Aron Rafn var að koma,
hann réð sér ekki fyrir kæti og hoppaði hér um allt af kæti. Þóra
Beta fékk svo far á Selfoss með Dóra en hann var að fara með merarnar
sínar á Selfoss fyrir skólann á morgun, og Þóra Beta þurfti jú að ná
strætó uppá Skaga. Mikið talað um leikritið sem krakkarnir og Þóra
fóru á í gærkvöldi en ekkert smá sem þau skemmtu sér, mikið hlegið.
Nú Svo er Halldór Rafn orðinn ansi veikur búinn að vera með um 40 stiga
hita í dag en vonandi gengur þetta hratt yfir.
5. mars 2016
Þorbjörn Óðinn frekar slappur ennþá en sofnaði 2 í dag en
líklega hitalaus. Held nú samt að Halldór Rafn sé að byrja með
hita undir kvöld. Strákarnir hjá Guðna Reyni og Sigrúnu eru í
banastuði en Árni Kristinn samt hálf aumur og svaf lítið í dag.
Karlarnir hér eru svo búnir að vera að smíða í hesthúsinu í allann dag
en það er verið að bæta við stíum undir hrossin. Sigga, Dóri, Þóra
og Guðni Reynir skelltu sér svo á leiksýningu í kvöld en Sigrún var að
vinna langt fram á kvöld.
4. mars 2016
Þorbjörn Óðinn ansi slappur í morgun en Sigga fór í vinnuna en
kom aftur heim um tíu leitið. Ég skaust svo á Selfoss og sótti lyf
handa honum en það er ótrúlegt hvað þetta slær hratt á miðað við hvað
drengurinn er óviljugur að taka þetta. Sótti svo Þóru á rútuna um
fjögur leitið en það var svo matarklúbbur á Stokkseyri í boði Bigga
og Mæju og Árna og Sigrúnar, mikið gaman og vantaði bara Jonna og Lindu
en það var ákveðið að eftir 2 ár skal haldið erlendis og haldið uppá 25
ára afmæli matarklúbbsins svo er bara að finna hvert skal fara.
3. mars 2016
Þorbjörn Óðinn var heima í dag og sem
betur fer því hann var kominn með um 40 stiga hita í kvöld. Hann
er nú samt ótrúlega skrækur og vonandi gengur þetta hratt yfir.
2. mars 2016
Bjössi fór með Siggu í morgun með strákana í Laugarás en það
var þroskapróf á þann eldri og vigtun og sprauta á þann yngir þetta gekk
allt ljómandi vel. Ég fór svo í bæinn í Tysabri, kom við í Hveró
og sótti Kristjönu, Teddu dóttur hennar og strákana hennar þar sem
maðurinn hennar Teddu er á Grensás, en litla fjölskyldan ákvað að fara í
óvænta heimsókn á meðan við Kristjana fórum í lyfjagjöf. Við
fengum svo ekki aftur tíma fyrr en 6 apríl kl 13.00 en það er eftir fimm
vikur. Veðrið alveg frábært í dag og ég komin heim aftur uppúr
tvö en Gunni Har kýkti svo í kaffi.
1. mars 2016
Ansi gott veður í dag, lítið um að vera samt nema karlarnir
alltaf á hestbaki en það eru nú ekki fréttir. Ætlaði í bæinn að
hitta á hundafólk en nennti svo ekki þegar til kom.
29. feb 2016
Skrapp í Laugarás í morgun en er með smá sýkingu í augunum,
flensu held ég bara, og fékk krem svo ég verði nú orðin góð á
miðvikudaginn því annars fæ ég ekki Tysabri. Komst svo að því
þegar ég ætlaði að borga að ég er bara ekki öryrkji lengur, líklega
MS-ið bara horfið, en ég semsagt fékk nýtt öryrkjakort um daginn og
þegar ég skoðaði það sá ég að það tekur ekki gildi fyrr en á morgun, en
gamla kortið datt úr gildi í gær, svo að í dag ætti ég að vera búin að
vera agalega spræk og eins gott að ég fór til læknis í dag því annars
hefið ég bara misst af þessum magnaða degi og ekkert vitað.
Spurning hvort Tryggingarstofnun viti að það eru 29 dagar í feb þetta
árið.
28. feb 2016
Veðrið aðeins farið að versna í dag,
samt ekkert afleitt en spáin var ansi slæm fyrir seinnipartinn þannig að
ég held að það hafi bara sloppið ótrúlega vel en heiðinni var nú samt
lokað. Bjarki okkar búinn að vera hér í dag nú og svo kýkti Gunni
Har í kaffi, Kjartan Gunnar kýkti líka við þannig að það er alltaf
einhvað um að vera.
27.
feb 2016
Brúney mætti svo hér í morgunkaffi alltaf jafn gaman að fá hana
í spjall. Afmæli félagsheimilisns í dag, ekkert smá flott bara
leiðinlegt hversu fáir mættu. Leikfélagið Borg frumsýndi svo
leikritið Er á meðan er, og vá hvað þetta var flott hjá þeim.
Þetta verður svo sýnt aftur held ég um næstu helgi og gott ef ég fer
bara ekki aftur þá það var svo gaman.
26. feb 2016
Við Inga fórum á Selfoss í dag þannig að nú er búið að versla
fyrir helgina og rúmlega það vona ég. Bjössi
og Dóri fóru svo yfir til tendó að spila í kvöld og mikið gaman skildist
mér.
25. feb 2016
Skaust út á Borg í dag að kvitta á pappíra en það kom svo í
ljós að ég þarf að fara aftur á morgun. Guðrún Lára kom svo og
kýkti á okkur, mikið kátur Þorbjörn Óðinn sem kom heim úr leikskólanum
þegar hann vissi að amman væri komin. Við Arnar skutluðumst svo
upp að Efri Brú en þar voru Auður og Bjössi á Börk búin að handsama eina
rollu og þrjú lömb allt frá Björk, þessar skjátur eru þá ekki eftir.
Við Inga fórum svo í leikhús á Selfoss að sjá Kirsuberjagarðinn, mér
fannst þetta bara mjög gaman, sagan mjög skemmtileg og leikararnir alveg
frábærir eins og alltaf. Og Guðný Lára glæsileg eins og alltaf og
syngur eins og engill, takk fyrir frábæra skemmtun.
24. feb 2016
Þorbjörn Óðinn fór í leikskólann í dag, Dóri fór svo á
Selfoss að hrossast, og gekk bara vel. Við Bjössi fórum svo með
Ingu á leikritið Brúðkaup sem er verið að sýna í tungunum, þetta var
bara gaman eins og alltaf.
23. feb 2016
Þorbjörn Óðinn enn heima en samt orðinn nokkuð sprækur, en er
samt með heilmikinn hósta ennþá en fer nú í leikskólann á morgun geri ég
ráð fyrir. Annars bara allt við það sama gluggaveður, það er
semsagt sól en ansi kalt.
22. feb 2016
Mikið fallegt gluggaveður í dag, en frekar kalt. Annars
er flensan enn í húsi en strákarnir eru samt að skríða saman en Halldór
Rafn varð sem betur fer ekki eins veikur og Þorbjörn Óðinn, bara smá
vella í þeim eldir núna en sá yngir bara sprækur svo við vonum að þeir
verði áfram sprækir.
21. feb 2016
Brunaði á kvenfélagsfund í morgun með tengdamömmu, komst að því
að Halldóra langamma er skráður stofnfélagi í kvenfélaginu en það var
stofnað árið 1919 en hún flutti samt í sveitina 1923 mjög dularfullt en
það hlítur að finnast einhvað út úr því. Nú svo komu Júlía
og Emelía og tveir krakkar með þeim en þær systur eiga hross hér alltaf
jafn gaman að fá þær í heimsókn.
20. feb 2016
Ansi mikið rok í dag finnst mér, Bjössi, Dóri og Jonni fóru á
Selfoss í þorrareiðtúrinn en ég skutlaði þeim með hrossin. Gunni
Har kýkti svo við hér um miðjann daginn, karlarnir komu svo heim í
kvöld en ég slapp við að sækja þá þar sem Ólöf hans Hjalta skutlaði þeim
en þ.au gistu svo hér. Þorbjörn Óðinn með
yfir 40 stiga hita hér í allann dag og nú er Halldór Rafn komin með hita
líka. Við horfðum svo á Evrovision hér heima og ég var bara sátt
með hvaða lag komst áfram bara flott
19. feb 2016
Fór á Selfoss með tengdamömmu um
hádegið en Arnar var heima með strákana. Annars bara lítið um að
vera.
18. feb 2016
Við Halldór Rafn vorum bara í rólegheitum hér heima í dag.
Gunna kom svo seinnipartinn og kýkti á hunda og kindur og gekk bara vel.
Sigga og Arnar fóru svo með vinnunni hennar Siggu uppí Aratungu að horfa
á leikritið Brúðkaup en hef enga trú á öðru en það sér rosalega
skemmtilegt, ætla að reyna að finna lausann dag í næstu viku og fara. Þobjörn
Óðinn var svo kominn með bullandi hita í kvöld þannig að nú er flensan
skollin á.
17. feb 2016
Ýmislegt um að vera í dag en dagurinn byrjaði á því að Bensi
var fluttur á sjúkrahús en það leið yfir hann nokkrusinnum en það hefur
svosem gerst áður án þess að nokkuð finndist út úr því en nú fundu þeir
líklega út úr þessu en það er grunur um flogaveiki svo hann fær
viðeigandi lyf og var komin heim í kvöld. Við Reynir fórum svo í
bæinn í dag en nú var það heimsókn til gigtalæknis og gekk bara vel.
Gunna kýkti svo í kvöld en við fórum með hvolpana út í hesthús en þangað
kom Guðni Reynir með þrjá sauði svo nú skal smalað, en þetta gekk bara
vel en það verður aftur æfing annað kvöld.
16. feb 2016
Við Guðni Reynir skelltum okkur á aðalfund
sauðfjárræktarfélagsins Barms og bara gaman, gekk hratt og vel fyrir sig
og ágæt mæting bara. Annars er veðrið búið að vera aðeins dintótt
í dag sól og blíða og þess á milli bylur og sést ekki uppá bæ en vonandi
veður þetta betra á morgun.
14. feb 2016
Rosalega gott veður í dag, aðeins kalt en sól og ekki
mikill vindur, Steini var svo að vinna í Kerinu en þar var Antonio
Banderas á fer en ég var nú einmitt að spá í að þó ég hefði sé manninn
hefði ég ekki þekkt hann, mjög óglögg á fræga fólkið. Sá
svo þegar ég var að uppfæra síðuna að ég hafði gleymt aðalfundi Trausta
en ég hefði kannski ekkert nennt að fara.
13. feb 2016
Kalt og skafrenningur í dag, Dóri fór að keppa í Hrísholti og
var bara nokkuð sáttur en þetta var frumraun með Spyrnu í unghrossaflokk
og frumraun með Vörð í fjórgang en Vörður hefur keppt heilmikið í
skeiði. Bjössi og Reynir kýktu með Dóra en Inga heimsótti okkur
Siggu á meðan. Sigga og Freydís fóru svo á stelpuhitting og Dóri
kýkti á Kjartan Gunnar en ég sótti krakkana svo á Selfoss í nótt.
12. feb 2016
Nokkuð gott veður í dag, Gunni Har kýkti við eins og kom Brúney
hér í dag, annars bara allt í rólegheitum.
11. feb 2016
Byrjaði að snóa í morgun og snjóaði bara í allann dag held ég,
þannig að nú er kominn ansi mikill snjór en á meðan ekki blæs er þetta
nú í góðu lagi, krakkarnir komust allir heim án vandræða um kaffileitið,
svo er bara vona að það fari ekki að blása mikið.
10. feb 2016
Fór um hádegið með tengdó í bæinn til læknis, fengum bara
fullt af góðum fréttum en allar rannsóknir komu vel út, svo nú
þarf tengdapabbi bara að vera duglegur að bæta á sig kílóum, en það er
nú allt að koma. Fengum rosa fínt veður líka svo þetta var
nú aldeilis góður dagur.
9. feb 2016
Ansi kalt í dag, við Halldór Rafn bara búin að vera að dúlla
okkur heima í rólegheitum, Dóri lítið í skólanum í dag og því
hefur hann verið að hrossast einhvað sem er hið besta mál. Nú svo
var hringt í mig af taugadeildinni en ég átti að mæta hjá öðrum
taugalækninum mínum (er með tvo) í mars en nú er
hann bara komin í veikindaleifi sem er ekki gott en vonandi nær hann sér
hratt og vel hvað sem er nú að angra hann, kemst svo bara að því í
næstu lyfjagjöf hvort einhver tekur við eftirlitinu á lyfjagjöfinni eða
hvað, en það eru víst ekki margir taugalæknar sem eru á lausu, en sjáum
til.
8. feb 2016
Fór með tengdó á Selfoss í morgun en tengdapabbi fór í
tölvusneiðmynd og blóðprufu og tengdamamma í sáraskipti og blóðprufu, nú
seinnipartinn fékk ég svo far í bæinn með mömmu og pabba og sótti bílinn
minn, mikið gott að fá bílinn heim.
7. feb 2016
Bolludagsbollurnar bakaðar og borðaðar í dag, bakaði helling og
át helling, en svona er þetta stundum annars bara rólegheit í kotinu.
6. feb 2016
Dóri var að dæma í dag á vetrarmóti Sleipnis á Selfossi og gekk
bara vel. Við Bjössi fórum svo í fimmtugsafmæliskaffi til hennar
Huldu mömmu Sigrúnar á Selfossi, ekkert smá flott veisla, takk fyrir
okkur. Rólegheitakvöld svo hér heima.
5. feb 2016
Við Reynir fórum snemma af stað í morgun en Bjössi og pabbi
fóru með Raminn í ryðvörn. Við Reynir vorum komin uppá Lansa fyrir
hálftíu og en þar fékk hann einhverja sprautu og svo gátum við útréttað
aðeins og mættum svo aftur um tólf leitið í Ísatópa/beinaskanna
vorum búin uppúr eitt held ég og þá var
brunað austur. Komum aðeins við hjá Sverri en hann hafði fengið í
hendur göngustaf sem hann Benedikt langafi hafði gleymt uppí Tungum hér
um árið en hann dó árið 1952 þannig að ómögulegt er að vita síðan hvenær
stafurinn er búinn að vera að heiman mikið gaman að þessu en ætla að
setja stafinn uppá vegg en er með eitt horn hér sem er með ýmislegu
gömlu dóti og passar hann vel þar inn.
3. feb 2016
Mamma og pabbi komu hér í morgun að passa Halldór Rafn, en ég
fór í bæinn í Tysabri og kom við í Hveró og tók Kristjönu með mér.
Ég rétt slapp í lyfjagjöf en maður þarf að gera einhvert próf fyrir
lyfjagjöfina og ég var víst einhvað utan við mig en semsagt rétt slapp í
gegn verð bara að vanda mig næst en flýtti mér örugglega full mikið.
Kom svo aðeins við í Virku í heimleiðinni og er komin með efni í eitt
teppi sem þarf að vera klárt um miðjann mars. Svo eru allavega tvö
júlíteppi allt að gerast. Það var svo bara ansi leiðinlegt veður á
leiðinni austur en þetta slapp nú allt eins og alltaf.
1.
feb 2016
Sigga byrjaði að vinna í leikskólanum í dag og Halldór Rafn var
heima hjá ömmu sinni, gekk bara ljómandi vel enda ekkert fyrir
drengnum að hafa. Kýkti aðeins á tengdó en heimahjúkrunin kom í
dag og kemur svo aftur á miðvikudaginn. Gunni Har kýkti við en
annars bara lítið um að vera.
31. jan 2016
Letidagur í dag hjá mér, Dóri fór nú samt með hross á
Selfoss þannig að hann ætti að verða klár í fyrramálið í skólann en það
er nú samt farið að draga hér í skafla þannig að það á eftir að koma í
ljós hvernig færðin verður í fyrramálið hér. Helgargestirnir fóru
svo að tosast heim í dag og Arnar þorði ekki annað en að fara suður í
kvöld svo hann komist nú í vinnu í fyrramálið en hann mætir alltaf kl
sex á morgnana. Sigga er svo að fara í vinnu á morgun en það er
hennar fyrsti vinnudagur í leikskólanum hér á Borg bara spennandi.
30. jan 2016
Annar í Þorra í dag, fórum til Jonna og Lindu í morgunmatinn að
venju og bara gaman. Karlarnir fóru svo á hestbak en ég dreif mig
nú bara heim að græja kjúklingasúpuna. Það kom svo slatti af fólki
í súpu í kvöld. Mannskapurinn fór svo að hluta til í bústaðinn til
Adams og Hafdísar en allir komnir heim uppúr miðnætti.
29. jan 2016
Þorrablótsdagurinn runninn upp, fór á Selfoss eftir hádegið og
sótti tengdamömmu en hún er loksins komin heim. Fórum í Krónuna og
versluðum aðeins fyrir helgina líka. Þegar ég kom svo heim voru
Þóra Beta og Guðrún Lára komnar úr bænum. Fórum svo á blótið í
kvöld en held að við höfum verið um 20 manns ca úr Miðengi. Blótið
var bara æðislegt takk æðislega fyrir okkur hló líka ekkert smá.
28. jan 2016
Druslaðist uppá bæ og fékk klippingu hjá Sigrúnu ekkert smá
flott hjá henni að venju takk æðislega fyrir mig .
27. jan 2016
Enn snjóar en enginn vindur þannig að þetta er bara fínt veður
á meðan ekki fer að blása. Brúney og Balvin kýktu hér í dag alltaf
gaman að sjá þau. Árni Kristinn kom líka í dag í smá pössun, ansi
duglegur drengur en ekkert fyrir honum haft samt. Við Reynir fórum
svo á Selfoss seinnipartinn og heimsóttum Ingu en nú er von í að hún
komi heim á föstudaginn en gengur hægt að græða sárin á sköflungnum, en
gengur samt einhvað. Lá bara vel á henni enda svosem ekki annað í
boði, krossum bara fingur.
26. jan 2016
Hér var allt orðið næstu autt en nú snjóaði bara í allann dag
eiginlega og komið fínt þrifalag yfir allt. Heimahjúkrunin hans
tengdapabba kom í dag, annars bara lítið um að vera. Tengdapabbi
alltaf að sprækjast, heypur hér um allt og fór út að skafa bílinn sinn í
dag, fórum svo út á Borg að sækja bensín. Nú tengdamamma enn á
sjúkrahúsinu en það verður metið á morgun hvort hún
fær að koma heim en sjáum til með það.
25. jan 2016
Fór að snjóa í dag, Þorbjörn Óðinn veikur í dag með hita og
kvef. Ég fór svo á Selfoss eftir hádegið en tengdamamma fékk ekki
að koma heim í dag þar sem fóturinn er ansi ljótur og gengur illa að
græða sár sem er komið á sköflunginn en nú er talað um að hún komi heim
á miðvikudaginn. Kýkti svo á mömmu og pabba til að græja pappír
fyrir þau. Áskotnaðist svo þessi líka flotti skápur sem Bjössi og
Arnar sóttu svo í kvöld og skápurinn kominn upp í stofunni bara flottur.
24. jan 2016
Lasange í hádeginu hjá Gróu og Tona,
brunuðum svo heim eftir hádegið og vorum komin heim um kaffi leitið,
strax komin niðurtalning í næsta blót fyrir vestan en fyrst er það nú
okkar blót um næstu helgi.
23. jan 2016
Dagurinn byrjaði á egg, beikon og tilheyrandi. Anna Dóra
og Jón Bjarni komu svo í morgunmatinn líka. Karlarnir fóru svo
uppí hesthús í karlrembureiðina á meðan við konurnar fórum til Fanneyjar
en þar vorum við á milli 10 og 15 konur flestar fóru í pottinn nú
og svo var verið að mála, máta og greiða bara gaman og ekkert smá sem
við vorum flottar. Nú svo komu karlarnir missprækir, en sá sem er
mest drukkinn ,,er´ann'' en það var nú ekki alveg á hreinu hver fékk
þann titil en þó líklega enginn af Búðarbrautinni þó svo það hafi ekki
miklu mátt muna. Svo skelltu allir sér á blótið, en það var ekkert
smá flott, kostaði ekki nema 3000 á blótið en það var þarna einn
höfðingi sem átti sextugsafmæli og borgaði niður blótið fyrir allann
hópinn takk æðislega fyrir okkur. Maturinn var æði eins og í fyrra
og Gubbi hennar Önnu Berglindar og Skógarpúkarnir voru að spila og
endalaust stuð á þeim. Fór svo fyrstu ferð heim uppúr hálfeitt og
síðasti maður í hús var Dóri en sótti hann um þrjú leitið.
22. jan 2016
Brunuðum í Búðardal í dag fórum
seinnipartinn, hitti á Jóhönnu þegar ég kom uppúr göngunum og fékk Súper
10 fyrir mig, mömmu og Gróu, hittum svo á Hildi í Borgarnesi sem fékk
far með okkur vestur. Mikið gott og gaman að komast til Gróu og
Tona.
21. jan 2016
Rólegheita dagur í dag, Bragi kom og tók myndir af
merunum sem Dóri er að temja en það eru tilbúnar allavega tvær eða þrjár
merar tilbúnar í sölu. Hér rignir svo bara og snjórínn næstum
farin en enn dálítil hálka. Nú af Ingu er það að frétta að hún gat
stigið í fótinn í fyrsta sinn í kvöld án þess að finna til svo þetta er
nú vonandi allt að koma.
20. jan 2016
Fór á Selfoss seinnipartinn þegar Sigga var búin að sækja
Þorbjörn Óðinn í leikskólann. Var búin að heyra í Ingu í morgun og
hún fær ekkert að koma heim fyrr en í næstu viku ansi mikið sem þetta
gengur hægt en gott að hún er í góðum höndum. Lá bara þokkalega á
henni en ég kýkti svo á Sigga frá Bjarnastöðum líka sem er í
hvíldarinnlögn og hitti þar á Árna og Gunnu og auðvitað voru
kindafréttir en Auður og co voru inná afrétt og náðu 11 skjátum sem voru
frá Eyvík, Hömrum, Mjóanesi og Klausturhólum. En þessar skjátur
voru við Gjánna skildist mér, skildist líka að það hefðu jafnvel sést
för eftir fé inn á Hlöðuvöllum en það er tæpast sama féð, en okkur
vantar tvílembu innað að og svo vantar Gunna Har forystukindina sína.
19. jan 2016
Fór í bæinn uppúr hádegi en hitti á Kristrúnu sem var með mér á
Hvanneyri hér um árið en hún var að græja mynd fyrir mig og ekkert smá
flott en myndin ef af Dóra og Óperu og er bara algjört æði, takk fyrir.
Notaði svo dauða tímann í að kýkja í Kjólar og Konfekt og fékk þennann
líka æðislega kjól. Fór svo og hitti á Albert Pál en það var bara
þessi reglubundni hittingur, ekkert nýtt sem er bara gott. Heyrði
í Gunna Har í dag og skildist að nú væri Harrý orðinn slakur í
vínabrauðinu og vildi nú bara túnfisksamlokur, það er nú ekki lítið sem
þetta dýr er dekrað, en veit nú ekki alveg hvernig Gunna datt í hug að
bjóða Harrý túnfisksamlokur hehe
18. jan 2016
Afmælisdagurinn hennar Helgu ömmu í dag hefði orðið 101 árs.
Annars bara lítið um að vera tengdamamma alltaf aðeins að lagast en það
gengur samt ansi hægt.
17. jan 2016
Letidagur í dag, hef í raun bara dundað mér við að snúa mér í
sófanum og lítið meira. Veðrið bara ljómandi gott, allavegana
svona gluggaveður en kalt úti þó svo mælirinn sýni nú ekki mikið frost.
16. jan 2016
Ekkert flakk á mér í dag að ráði skutlaðist þó aðeins uppá bæ
til Guðna Reynis og Sigrúnar. Kjarrtan Gunnar og Fríða kýktu svo
við hér í dag og eins komu Siggi og Brúney en Siggi var að vinna í
Kerinu í dag. Við fórum svo í matarklúbb að Hlemmiskeiði og ekkert
smá gaman eins og við var að búast. Skoðuðum nýja
ferðaþjónustuhúsið sem þau Jóa og Snæbjörn eru að taka í notkun en það
er bara glæsilegt í alla staði.
Raminn er svo kominn heim eftir að fá dekur á Stóru Borg og lítur ekkert
smá vel út takk æðislega fyrir.
15. jan 2016
Bjössi og Reynir kýktu á Ingu í hádeginu, ég fór svo
seinnipartinn ásamt Þóru en hún kom austur í dag. Annars bara allt
við það sama gengur bara vel í kotinu.
14. jan 2016
Við Dóri brunuðum í bæinn í morgun, en hann átti tíma hjá
Illuga bæklunnarlækni, þetta lítur allt þokkalega út en drengurinn
verður nú aldrei algóður, það á svo að taka stöðuna aftur í haust og sjá
hvort það þurfi að taka plötuna sem sett var í síðustu aðgerð.
Sigga kýkti svo á ömmu sína í dag, þetta er allt í áttina en gengur samt
hægt, fær líklega ekki að fara heim fyrr en um miðja næstu viku,
en Kjartan Gunnar fer nú líklega heim á morgun.
13. jan 2016
Kýkti á Ingu í morgun og þetta er í áttina en það á víst að
taka öll lyf í geng hjá henni í leiðnni sem er bara gott mál. Við
Reynir fórum svo í bæinn eftir hádegið til krabbameinslæknislins en
verkefni næstu vikurnar er að bæta á sig smá holdum og sjá svo hvað
verður gert. Kýktum svo á Ingu í heimleiðnni en Brúney var í
heimsókn hjá henni en Kjartan Gunnar var svo lagður inn í dag með
lungnabólgu þannig að maður getur heimsótt þau bæði í einni ferð, finnst
að þau ættu bara að vera í sama herbergi hehe en held að staðan verði
tekin á þeim undir helgina en bæði fá sýklalyf í
æð.
12. jan 2016
Gróa og Toni kýktu hér í dag bara gaman að því.
Tengdamamma hringdi svo seinnipartinn og var einhvað slæm í fætinum svo
við Gróa kýktum yfir en Gróa mat það nú svo að ég ætti bara að bruna
beint á bráðamóttökuna sem var það eina rétta því Inga var komin með
einhvað sem þeir kalla heimakoma, og var lögð inn með sýklalyf í æð.
Rákum svo augun í hann Kjatan Gunnar þarna líka inná bráðamóttöku en
hann var með verk í síðu en ákvað nú að fara heim þó svo að læknirinn
vildi leggja hann inn.
11. jan 2016
Letidagur í dag fór bara varla út úr húsi, veðrið svosem ekki
spennandi snjómugga og skafrenningur. Sigga og Þorbjörn Óðinn fóru
nú samt í fjárhúsið eftir leikskólann en þau gerðu það líka í gær og
mikið gaman hjá þeim, hugsa að Sigga eða Arnar ætli að reyna að gera
þetta að venju verður nú ekki leiðinlegt enda Guðni Reynir og Aron
alltaf í fjárhúsinu seinnipartinn bara stuð. Nú svo komst ég að
því í dag að Halldór Rafn er kominn með fyrstu tönnina en hann verður
sex mánaða á morgun en Þorbjörn Óðinn var rúmlega níu mánaða minnir mig
og Árni Kristinn í kringum ársgamall held ég, er ekki alveg viss með
Aron.
10. jan 2016
Brunaði með Skvísu í bæinn í morgun að para og allt gekk að
óskum. Annars ansi kalt þegar líða fór á daginn, og frostið komið
í tveggja stafa tölu í kvöld. Lára kom svo hér og hitti á okkur
Hróa úti í hesthúsi en þar vorum við aðeins að leika okkur, Gunna kom
svo eftir að hafa verið inná afrétt að leita að rollusjátum sem
létu ekki sjá sig sem var nú frekar fúlt þar sem þær hefðu fengið akstur
til byggða.
9. jan 2016
Það var svo afmæliskaffi hér í dag hjá Dóra, bakaði og gerði og
græjaði eins og fyrir mig var lagt hehe kræsingarnar svo sendar út í
kaffistofu í hesthúsinu það mætti bara góður
slatti af fólki. Hér komu svo góður hópur af krökkum í kvöld en
held að þau hafi verið ellefu sem voru hér að spila og mikið gaman hjá
þeim.
8. jan 2016
Við Inga fórum á Selfoss strax eftir hádegið, Inga fór í
fótsnyrtingu og ég skellti mér í plokkun og litun. Nú svo þurfti
ég að versla fyrir veisluna hans Dóra og eins að koma við á nokkrum
stöðum en það er alltaf einhvað sem maður er að gleyma.
7. jan 2016
Dóri á
afmæli í dag orðinn 21 til hamingju með daginn Dóri minn
Stríðsástanad á heimilinu þessa dagana en Skvísa er hálóð en ég
paraði hana í dag :) hugsa að ég pari hana aftur um helgina ef veður,
færð og nenna leifa. Bjarki kom svo í heimsókn í dag en
annars bara allt við það sama.
6. jan 2016
Engin smá álka hér á hlaðinu í dag, en tókst nú að fljúga
á hausinn hér úti en ekkert agalegt svosem. Fór
í lyfjagjöf í bæinn en kom við í Hveró og sótti Kristjönu. Vorum
komnar austur um tvö leitið en aðeins var nú skafrenningur á heiðinni á
heimleiðinni. Stússaðist smá á Selfossi en var komin passlega heim
til að var hjá Halldóri Rafni þegar Sigga sótti Þorbjörn Óðinn í
leikskólann. Gunni Har kýkti svo við í kaffi. Dóri fór svo í
skólann í dag en þetta var fyrsti dagurinn í skólanum, held að hann sé
bara nokkuð sáttur með stundaskránna en það á nú eftir að raðast betur
held ég.
5. jan 2016
Við Inga fórum á Selfoss í morgun fullt að stússast. Nú
svo var matarboð hjá mömmu og pabba í kvöld og vá hvað maturinn var
góður eins og alltaf en þetta var mikið gaman takk æðislega fyrir okkur.
4. jan 2016
Gekk bara ljómandi vel að koma sér heim í dag, verðrið og
færðin bara mjög fín og strákarnir ótrúlega góðir, vorum komnar heim
uppúr tvö held ég. Annars bara allt við það sama, er mikið að spá
í landsmót þessa dagana en veit nú svosem ekkert hvernig það fer en
sjáum til.
3. jan 2016
Við Sigga skelltum okkur í bíltúr með strákana í dag og fórum í
Búðardal, gekk bara vel og mikið gaman, svo passaði það að þegar við
ætluðum aftur heim þá var búið að loka Bröttubrekku en hún var nú opnuð
aftur seinna en ákvaðum bara að gista þar sem það var jú ekki spennandi
að vera að þvælast með strákana í myrkri á heiðunum.
1. jan 2016
Bjössi
minn á afmæli í dag orðinn 53 ára til lukku með daginn gamli minn
Letidagur í dag, Þorbjörn Óðinn vaknaði síðastur en hann kom
ekki fram fyrr en uppúr tólf, hrossin voru öll heima en tryppin höfðu nú
samt aðeins farið á rúntinn og tekið niður eina girðinu en öll semsagt
heima í morgun, svo heyrði ég og sá að það var heilmikið verið að skjóta
upp í sumarhúsahverfunum hér í kvöld, finnst það nú ekkert gaman
hrossana vegna en eðlilega áttar fólk sig ekkert á því.
Árið 2015 var annars búið að vera ansi erfitt á maga vegu sérstaklega
þar sem veikindi tengdapabba eru búin að vera ansi alvarleg. Nú er
bara að vona það besta og að árið 2016 verði betra, en auðvitað var
ýmislegt gott sem gerðist síðasta ár en hann Halldór Rafn fæddist nú og
svo fórum við til Danmerkur á heimsmeistaramótið í hestaíþróttum svo
árið var nú ekki alslæmt.
31. des 2015
Gleðilegt ár kæru vinir og takk fyrir það gamla.
Áramótapartý hér að venju en Guðni Reynir og Sigrún komu
með strákana í mat en fóru svo á Selfoss, Guðrún Lára og Óðinn komu svo
úr bænum og mamma og pabbi frá Selfossi nú og svo var heimilisfólki,
Inga og Reynir treystu sér ekki yfir og eins kom Gunni ekki þetta árið,
þetta var bara mjög gaman það var svo farið á brennuna á Borg en ég
mamma og pabbi voru heima og svo vorum við Halldór Rafn heima líka.
Þorbjörn Óðinn vakti rugglega til tvo í nótt mikill partýpinni þessi
ungi maður.
30. des 2015
Fór í bæinn í morgun með tengdó en Reynir átti tíma hjá
skurðlækninum en þetta er allt í rétta átt og leit bara vel út.
Fengum dálítið blint í bæinn á heiðinni en svo var þetta mikið betra á
leiðinni austur.
|