28. des 2005
Hér erum við búin að hafa það gott
um jólin, mikið étið og allir
sælir held ég bara. Í gær
kom hér maður eða menn til að
sjóða saman heitavatnsrörin sem á
að leggja frá borholunni og hér
heim, þetta er heilmikil
útgerð og besta aðstaðan til að
sjóða þetta saman er í fjósinu,
það er semsagt soðið inni í
fjósskemmu og rörin svo dregin í
gegnum fóðurganginn og út um
fjósið austan megin. Það var
nú ekki að sjá að þetta hefði nein
áhrif á mjólkina í kúnum allavega
var ekkert minna í þeim í
gærkvöldi og morgun en venjulega.
Þó datt hér einn klálfur úr fyrsta
kláfls kvígu hér í morgun alveg
óbeðin eða þannig en það var
svosem komin tími á að hún bæri en
hún var samt ekkert burðarleg í
gærkvöldi.
Nú af hundum er það að frétta að
Samba er komin á heimili í
Reykjavík og gengur bara vel, nú
ég var ansi stórtæk í að skrá á
sýninguna sem er núna í jan, en ég
skráði Tíbrá, Frey og Gosa nú og
svo var gamla góða Brella skráð
líka og kominn tími til að mæta
með þá gömlu enda allir þessir
Kersins hundar meira og minna út
af henni.
Við fórum til Reykjavíkur í gær
með Guðna Reyni til ofnæmislæknis,
heppilegt fyrir Siggu og Freydísi
að þessi læknastofa var í
Kringlunni heheh, nú Guðni Reynir
er ekki með ofnæmi sem betur fer
en það er einhver asmi að angra
hann, en ekkert alvarlegt samt, en
þó nóg til að hann hósti dálítið
þegar hann er ekki að taka lyfin
sín, en þetta ætti að vera á góðri
leið úr þessu.
19. des 2005
Hér er allt
í rólegheitum, hundagirðingin að
rísa og jólaverðrið komið, verst
er að þessi snjór verður örugglega
farinn þegar jólin koma en hvað um
það er á meðan er. Það er
svo leiðinlegt þegar þessir
umhleypingar eru alltaf hreint.
Ég er svosem ósköp lítið farin að
undirbúa jólin en hugsa að þau
komi nú samt, Sigga ætlar að
skrifa á jólakortin í dag enda
ekki seinna vænna en að drífa í
því.
17. des 2005
Þá er búið
að taka folöldin inn, búið að
örmerkja og gefa ormalyf á alla
súpuna, held að það hafi bara
gengið vel, Gráni gamli hans
Bjössa var samt ekkert hrifin af
því að fá ormalyf lét eins og
smátryppi, hoppaði og skoppaði
þegar hann loks náðist.
Ekkert bólar enn á merinni sem ég
ætlaði að fá að norðan, en hún er
víst upp á heiði ásamt fleiri
hrossum, held að nú hljóti að vera
kominn tími á að ná þessum hrossum
og vona ég að jólafríið fari í
það.
16. des 2005
Við Brella
urðum ömmur í dag en það eru
komnir hvolpar hjá Sillu undan
Urði endilega kýkið á síðuna
hennar
www.grisara.is bara flottir
hvolpar en ekki hvað...
Hundagirðingin er eiginlega alveg
tilbúin en það á í raun bara eftir
að raða henni upp, held það
allavega, búið að smíða alla
skjólveggina og ég held að á
mánudaginn eigi að henda þessu upp.
Það stendur svo til að taka inn
folöldin á morgun, vona að Lísa
geti komið og örmerkt, jafnvel
sónað eina eða tvær hryssur, ekki
veitir af eftir svona ,,gelt"
sumar eða þannig, á eina hryssu
hér ósónaða sem var ásamt 4 öðrum
hryssum hjá klár í allt sumar, það
er búið að sóna 2 af þessum 5 og
báðar geldar svo það er engu að
treysta í þessum efnum, en kannski
fannst klárnum mín meri bara
flottust hver veit..........
Samba komin til Reykjavíkur til
Kollu í von um að það finnist
einhvað spennandi fyrir tíkina.
Dagatalið er komið og bara flott,
þó er þar ein mynd sem ég er ekki
alveg heilluð af en allt annað
rosa fínt.
14. des 2005
Jæja karlarnir komnir frá Englandi,
þessir tveir yngstu vilja helst
fara beint út aftur..... gætu
alveg hugsað sé að búa á Chelsea
hótelinu held ég bara og éta egg
og beikon í morgunmat.
Hér er annars bara rigning alltaf
hreint held ég, alveg snjólaust og
ekkert bólar á jólaskapinu, er
ekki alveg að trúa því að það séu
ekki nema 10 dagar til jóla en
vonandi kemur smá föl fyrir jólin
ekki gaman að hafa allt svona
dimmt.
Nú Samba er búin að fá
mjaðmalosniðurstöðu og er með C,
sem gerir það að verkum að ég ætla
ekki að rækta frá henni og er að
vinna í að finna heimili handa
henni, setti reyndar Kollu og
Lindu í það, það virkar alltaf.
Ég er enn að bíða eftir díf
dagatalinu ætlaði að senda
erlendis fullt af dagatölum en það
fer nú að verða í allra síðasta
lagi ef það ætti að skila sér
fyrir jól.
Bjössi og Valli eru að slá utanaf
sökklinum í hundagirðingunni minni,
Bensi búinn að keyra fullt af möl
þarna í kring svo þetta er bara að
verða flott, hef grun um að
skjólveggirnir séu langt komnir í
smíðum inni í stóru skemmu, þannig
að þetta gerist hratt þegar þessu
verður púslað upp.
11. des 2005
Búin að taka
það ansi rólega í dag, dottað yfir
sjónvarpinu og datt svo inn í
einhverja talnaþraut í Mogganum,
þetta er ekkert svo erfitt eða
þannig. Það var svo annar kálfur í
fjósinu í morgun, núna kom svart
naut.
Það er svo von á öllum körlunum
mínum heim í kvöld og Emma kemur
líkast til að norðan líka í kvöld.
Í gær fór ég til Reykjavíkur á
aðalfund Arons, það var bara gaman
og margt sem kom á óvart. Nú
svo þegar ég ætlaði austur var
lokað á milli Selfoss og
Hveragerðis þannig að ég ákvað
bara að snýkja smá kaffi hjá Selmu,
auðvitað var hún ekki heima
blessunin en svona getur þetta
verið.
Þegar ég var að fara af stað suður
ákvað ég að kýkja aðeins við í
fjósinu og viti menn komin
kvígukálfur, mig grunaði þetta um
morguninn.
Nú Selfoss menn tóku inn hrossin
sín í gær, það fækkaði ábyggilega
ansi vel í stóðinu úti við það en
við tókum okkar hross inn um
síðustu helgi. Við reynum að
taka sem mest inn á þessum tíma
til þess að losna við traðkið sem
verður úti í kringum rúllurnar á
þessum tíma, við eigum enga mýri
sem við getum haft útiganginn á
þannig að við reynum að legga hart
að mönnum að taka inn á þessum
tíma, þau hross sem eru hér það er
ekkert ljótara en að sjá landið
úttraðkað eftir hrossin á þessum
tíma og í raun bara algjör óþarfi
enda klikka Selfoss menn aldrei á
að taka inn þegar þessi tími er
kominn.
Vitið þið að hann Valli er að
smíða í kringum hundana mína.
Þetta verður ekkert smá flott
girðing með steyptum sökklum og
háu timburverki. Hugsa að
Tíbrá og Samba verði einhvað þarna
en það er kannski ekki skrítið að
þær gelti í bíla greyjin því fólk
virkilega heldur að Íslenskur
hundur forði sér ef bíllinn
flautar á þá...........en það
virkar alveg þveröfugt, hundarnir
verða bara æstari og eru farnir að
þekkja bílana sem flauta á þá,
halda að þetta sé einhver leikur,
mér finnst alveg ótrúlegt að fólk
átti sig ekki á að hundarnir verði
enn æstar þegar er flautað, en það
virðist ekki duga að tala um þetta
við fólk hvernig sem á því
stendur.
9. des 2005
Þá erum við Sigga bara einar í
kotinu, karlpeningurinn farinn til
London að sjá Chelsesa-Wigan sem
er fótboltaleikur sem verður á
morgun. Emma á leið norður í
land, en Sigga enn heima en það
stendur nú til bóta því þær
vinkonur Sigga og Freydís eru víst
á leið til Reykjavíkur á morgun.
Guðni Reynir var varla farinn úr
hlaði þegar hann hringdi í Bensa
og bað hann að telja lambhrútana
hvort nokkuð vantaði einn, og viti
menn það var einn komin í féð og
farinn að sinna því einhvað.
Þannig að það verða kannsi
fyrirmálslömb í vor, en
lambhrútarnir eru búnir að finna
út að þeir geta grafið sig undir
hliðið skilst mér.
Nú svo var ég í síðasta prófinu í
morgun, gekk nú ekkert sérlega vel
enda átti ég ekki von á því svosem.
En þetta er búið í bili að minnsta
kosti.
6. des 2005
Loksins
gef ég mér einhvern tíma í að
skrifa einhvað, búin að vera á
fullu í skólanum, fyrst að klára
að skila ullinni minn, svo að koma
lokaritgerðinni á blað, nú og að
koma henni svo til skila, nú svo
var ég í fyrsta og næstsíðast
prófinu í morgun, var í hrossarækt
og gekk ágætlega held ég.
Svo er það bústjórn á föstudaginn,
og þá er komið jólafrí eða þannig,
bústjórnin er algjör steypa fyrir
mér, er ekki alveg að átta mig á
henni.
Þarf svo að fara að vinna í
vinnubók sem á að skilast í janúar.
En þá byrjar líka síðasta önnin
held að það sé alveg kominn tími á
að klára þetta.
Gunni Har kom hér um daginn með
fulla poka af ull handa mér og nú
er stefnan tekin í Þingborg til að
fá ullina þvegna og einhvað unna.
Guðmundur í Klausturhólum kom hér
einhvert kvöldið með fullorðinn
hrút frá Gvendi frá Hæðarenda.
Þegar við fórum að spyrja Gvend um
hrútinn þá kom nú í ljós að hann
var ekki á Hæðarenda í fyrravetur
og er því örugglega útigenginn.
Held að það fari ekkert á milli
mála því hrúturinn er grár og
ferhyrntur og ekkert smá horn.
Eiginlega frekar ótrúlegt að svona
skepna hafi gengið úti heilann
vetur með þessi rosahorn, því mér
hefur nú skilist að þessir
ferhyrntu hrútar megi nú bara
passa sig að lifa sumarið af með
svona rosahorn.
Nú við vorum að heimta tvílembu í
gær, hún var í Búrfellinu með tvo
hrúta með sér. Einhvað frá
Klausturhólum en flest frá
Efri-Brú.
30. nóv 2005
Hér er alltaf verið að vinna við
að gera og græja nýja húsið og
allt stefnir í að hægt verði að
taka féð inn um helgina og eins
ætti að vera hægt að taka öll þau
hross inn sem inn eiga að fara
núna á næstu dögum.
Hér er bara snjókoma en samt ekki
búið að snjóa neitt mikið miðað
við að það snjóaði bæði í gær og
einhvað í nótt.
Nú fer að styttast í prófin hjá
okkur Guðna Reyni og ég á bara
eftir að skila tveimur ritgerðum
fyrir helgi.....kannski ráð að
fara að byrja.
Guðni Reynir er alltaf á fullu í
boltanum og farinn að mæta á
æfingar í meistaraflokk, held að
honum hafi tekist að raða inn um 8
mörkum á æfinu í gærkvöldi, það er
munur að vera fljótur að hlaupa
því annars væri hann líklega í
klessu hehe en held að það sé
ágætt að venjast þessari baráttu
ef hann ætlar að tolla í þessum
bolta.
Jæja þarf að fara að kýkja á
ritgerðirnar.....
21. nóv 2005
Þá er
hlöðuballið afstaðið, þetta tókst
þvílíkt vel í alla staði held ég
bara, nýjustu tölur segja að það
hafi verið um 160 manns svona
allavega það sem ég kemst næst en
kannski og örugglega gleymi ég
einhverjum, samt búin að fara yfir
einhvað af myndum heheh.
Þetta var bara stuð Maggi Kjartans
kom og hélst uppi fjörinu, en held
að hann hafi spilað til hálfþrjú
nú síðustu menn fóru svo að sofa
um klukkan 5 held ég.
Það kom svo í ljós í gær að
ýmislegt hafði gleymst hér og
annað horfið held að það sé
kannski einn sími enn ófundinn.
Það kom fólk allstaðar að,
sveitungar vinir og kunningjar, og
maður sem þekkti mann, fólk sem
býr á Höfn, Færeyingur og Svíi.
Saknaði kannski dálítið að
foreldrar kæmu með unglingunum
sínum en sendu þá ekki bara.
Varð eiginlega að lauma einni mynd
inn úr dansinum......og geri aðrir
betur.
8. nóv 2005
Jæja þá erum
við komnar frá Dublin en við fórum
4 saman rosa gaman þar og
fataskápurinn hennar Siggu ekki
alveg eins tómur og áður en við
fórum. Nú á sunnudaginn 6.
nóv var bara stór dagur í
fjölskyldunni en tengdó áttu 45
ára brúðkaupsafmæli og Sverrir
varð 24 ára. Til hamingju með
daginn öll sömul, og nú má Sverrir
verða leiðbeinandi hjá GR í
æfingarakstrinum svona allavega
þegar búið er að stimpla alla
pappíra sem þarf.
Jonni, Ingþó og Bjössi eru orðið
öll kvöld úti í nýju skemmunni að
gera og græja svo allt verði nú
klárt þegar hlöðuballið verður
þann 19 nóv en það stendur til að
halda heljarins ball, með
hljómsveit og alles, þetta verður
bara gaman hugsa ég.
2. nóv 2005
Það er búið
að vera ansi kalt í dag, og nálægt
því að vera snjókoma, og ansi hált.
Ég fór á hreppsnefndarfund í dag,
þar var ansi margt spennandi í
gangi og alltaf gott með kaffinu,,,,
Nú það er orðið nokkuð ljóst að
hér verður hlöðuball þann 19
nóvember, í tilefni þess að stóra
skemman er nú lokst að verða orðin
tilbúin, það verður hljómsveit og
alles, endalaust stuð svo er bara
að voða að veðrið leiki við okkur
og að vinir og vandamenn sjái sér
fært að mæta í stuðið, er það ekki
bara málið, held að sviðaveislan á
Borg sé þetta sama kvöld og þetta
væri nú ágætt framhald fyrir þá
sem nenna að mæta.
Dóri er ekki heima það er
hálfskrítið finnst mér, enginn að
rífast yfir því hvaða stöð er
verið að horfa á eða ekki horfa á,
og enginn heldur sem veit
nákvæmlega hvað það er sem mér
finnst spennandi í sjónvarpinu í
kvöld svo ég missi líkast til af
einhverju spennadi. En hann
kemur nú heim á morgun blessaður
karlinn enda erum við Sigga,
Freydís og Magga hans Hödda að
fara til Dublin á föstudaginn og
ég er ekki frá því að Dóri þurfi
að hugsa um að elda í þá sem heima
eru.
Nú Valli er á fullu við að gera og
græja, held að það sé einhvert
kofadæmi utan um borholuna svona
með ýmsu öðru sem þarf að fara að
klára.
Emma fór á hestbak í dag eins og
alla aðra daga en í dag byrjaði
hún á að prufa Brján minn sem er
auðvitað alltaf bestur, en svo fór
hún á Blésa hans Bjössa, það er
semsagt hestur sem við fengum í
haust og lýsingin á honum var sú
að hann lyftir ekki nóg til að
vera sýningarhestur en of viljugur
sem barnahestur,hugsa að
drengurinn sá sem lét okkur hafa
þessar lýsingar selji nú ekki
mikið á næstunni því svona er
fljótt að fréttast. Klárinn
semsagt rauk og ekki í fyrsta sinn,
nema hvað hann rauk að girðingu og
stökk svo yfir án þess að hika,
held að Emma hafa hlegið svo mikið
að þessum vitleysing að hún varð
bara ekkert smeik, lét okkur hin
um það, ég er nú alveg hissa, en
hún á víst hryssu sem er með
svipaða takta svo hún er öllu vön
greinilega.
Dagurinn var svo tekin í það að
slátra einhverjum lömbum hér heima
þannig að nú fer að skýrast hvað
vantar og hvað ekki, og auðvitað
er alltaf einhvað sem vantar
klárlega annað flokkast nú undir
afföll hugsa ég.
1. nóv 2005
Tengdapabbi
átti svo afmæli í gær og
tengdamamma þann 26 okt til lukku
með dagana.
Það er jú
löngu kominn tími til að uppfæra
og ýmislegt búið að vera að gerast.
Er til kolfallin í þetta ullardæmi,
nú er bara spunnið og prjónað og
ekkert uppfært.
Annars ætlaði ég nú alveg að missa
mig hér í gær, hversu vitlausir
geta menn eiginlega verið hér á bæ?
Hvað um það, þar sem ég er á kafi
í þessari ullarvinnslu þessa
dagana hafið ég orð á því að ég
ætlaði á fá ullina af
ásetningsbimbrunum og reyna að
gera einhvað úr ullinni og ég var
nú ekki lítið kát þegar Bjössi
sagið mér í gærmorgun að það ætti
að koma rúníngsmaður og taka af
þessum 36 gimbrum ekkert smá
spennandi svo ég rauk nú að kýkja
á ullina mína rosa spennt, en viti
menn þessir snillingar höfðu
spreyjað rautt og ekkert lítið í
bakið á hverri einustu gimbur og
ullin því ónýt, samt áttu þeir að
vita að ég ætlaði að nota þessa
ull, svo vísa þeir hver á annann
einn segir ég var bara að sprauta
lömbin annar var bara að skrifa og
sá sem spreyjaði sagði þeir sögðu
mér að gera þetta svona......Það
er kannski spurning hvort ég get
náð mér í nokkra lokka sem ekki
hefur úðast á, en það er ótrúlegt
hvað svona sprey nær að útast vel
sérstaklega þegar svona stendur á.
Það eru búnir að vera 5 hestar á
húsi og Emma að temja á fullu, svo
voru teknir inn 7 núna áðan þannig
að nú er bara að kaupa skeifur og
koma þessum hrossum í stand, það
eru komnir inn tveir folar sem á
að frumtemja en það eru þeir
Kubbur sem er undan Tývar og
Bóthildi og svo er það hann Fengur
hans Bjössa en hann fékk þennann
fola í afmælisgjöf þegar hann varð
fertugur og nú er bara að sjá
hvort folinn á roð í þann gamla.
Það styttist í að skemman góða
verði komin í gangnið en Valli er
mættur á svæði og ætlar að hjálpa
okkur að klára þetta.
7. okt. 2005
Mamma átti
afmæli 3 okt, til hamingju með
daginn þann. Nú annars er maður
endalaust á hlaupum í kringum
sjálfann sig og lítið annað gert.
Skólinn er aðeins að komast á
skrið hjá mér og ég farin að viða
að mér efni í ritgerðina, mjög
skemmtileg lesning allavega það
sem komið er, en ég ætla að fara
einhvað út í hrossaliti, á eftir
að staðsetja mig aðeins í því.
Hvolparnir fóru í
heilbrigðisskoðun á miðvikudaginn
og allir agalega fínir líka sá
litli ekkert að honum, bara
smávaxinn.
Það gerist bara ekkert í boltanum
hjá Guðna Reyni, leikur eftir viku
og æfingar ekki enn byrjaðar, ekki
skrítið þó 2. flokk hafi gengið
misvel ef þetta eru vinnubrögðin
eða þannig, farin að heyra á mínum
að hann nenni ekki þessu rugli og
um leið og bílprófið er í höfn í
mars þá verður leitað á önnur
boltamið ef ekkert verður komið í
gagnið af viti.
27. september
2005
Það er
svosem heilmikið búið að vera að
gerast hér undanfarið. Húsið
það er nýja stálgrindarkemman er
bara öll að kom til og hver veit
nema hægt verði að nota hana í
vetur.
Heita vatnið í dýjinu er á leið
heim eða þannig það er verið að
vinna í að koma því heim og í
húsin og þetta lítur úr fyrir að
geta gerst á næstunni.
Held að það hafi borði einar þrjár
fyrsta kálfs kvígur í síðustu viku,
ein á fimmtudag, ein á föstudag og
sú þriðja á laugardagskvöldið,
þannig að þetta er allt að gerast.
Við fórum í Laugskálarétt á
laugardaginn var, við byrjuðum á
að fara norður að Hofi í Vatnsdal
á föstudeginum og gistum þar, þar
var nú aldeilis gott að vera og nú
þegar er búið að skipuleggja
hestaferð næsta sumar og leggja
staðinn undir sig hehehe. Það var
svo allt á kafi í snjó á
laugardagsmorguninn líklega 15-20
ca jafnfallinn snjór, en við vorum
svo forsjál að við vorum komin á
nagladekk enda værum við líklega
enn á leiðinni ef það hefði ekki
verið. Þarna var full rétt
af sunnlendingum og nokkur hross.
Við keyptum ekkkert og NB það var
ekki ég sem var að bjóða í
eitthver folöld þarna svo það komi
nú skýrt fram. Það var svo
brunað suður seinnipartinn á
laugardaginn og mannskapurinn
svona flestir skelltu sér á
réttarball en Linda tók við af mér
að keyra, enda ég búin að fá alveg
nóg af þessum langa akstri í
frekar leiðinlegu veðri.
Elsku besta Doppa Dóra lenti undir
bíl hér á laugardaginn og dó, hér
er búið að gráta út í eitt, en
svona er þetta bara og ekkert við
þessu að gera. Ég er búin að
fá e-mail allstaðar frá og eitt
kom frá konu sem ég þekki ekkert
og orðrétt stóð í því:
,,There
are folks all over the world that
share your grief".
Þetta var ansi fallega sagt af
henni. En Dóri minn sagði á
laugardaginn, hvað gerum við nú í
ræktuninni mamma? En við
reddum okkur með góðra manna
aðstoð. En ekki meira um það
í bili.
Í dag er svo von á konu frá
Svíþjóð sem heitir Emma og ætlar
að hjálpa til hér á búinu með
fjósið og svo hrossin. Maður
er farinn að bíða spenntur eftir
að fá hrossin inn, og gott ef
Brjánn er ekki líka orðinn
spenntur en hann kemur að hliðinu
og bíður þegar honum finnst orðið
kalt.
Í síðustu viku var ég í skólanum
að leysa af og far aftur í dag,
vonandi fer þetta nú að lagast þar
en það er búið að auglýsa eftir
fólki sem kemur vonandi sem fyrst
til starfa.
21. september
2005
Jæja loksins
kem ég því í verk að skrifa smá.
Um síðustu helgi var ég á
Hvanneyri og þið ættuð bara að
vita hvað ég er montin núna, ég
var semsagt í ullariðn, og nú kann
ég að spinna band, hver hefði
trúað þessu og ekki nóg með það
heldur spann ég band í heila peysu
sem er nú enn ótrúlegra, þá er
bara eftir að prjóna peysuna.
Ég er ekki að segja að þetta sé
voða flott band en peysan á samt
eftir að tolla saman held ég.......vona
ég allavega.
Nú svo þegar ég kom heim á
sunnudagskvöld var Geir mættur á
svæðið með eitt stykki hreindýr
handa mér, og það ekkert smá dýr.
Þannig að nú verður veisla í
kotinu ef ég tími þá að elda þetta
fína kjöt, hef nú smá áhyggjur
varðandi eldamensku á þessu en það
hlítur að reddast.
Svo var ég búin að láta plata mig
í afleysingar í skólanum og var á
mánudag, þriðjudag og svo í dag að
snúast í kringum krakkana, fæ held
ég frí á morgun og reyndar held að
ég sé ekkert að fara á næstunni
enda nóg ógert í mínum skóla.
Þarf eiginlega að fara að koma upp
plöntusafninu mínu og að komast af
stað í lokaritgerðinni.
10. september
2005
Lítið um að
vera en fórum þó í matarboð upp í
Tungur í gær ásamt Jonna og Lindu
en það er orðið árvisst að fara í
mat eða reiðtúr og mat til Valla
og Siggu á þessum tíma, var samt
orðið fullseint að fara í reiðtúr
að kvöldi til þetta árið.
Rosa fínn matur og heimabakað
brauð ekki að spyrja að því.
Nú við erum farin að reyna ða gera
og græja eitthvað á Engjaveginum,
voða gaman en samt varla tími í
það er komin á eftir með ýmislegt
sem viðkemur skólanum en verð að
reyna að klára fyrir mánudaginn en
þá er Hvanneyrarheimsóknin þetta
haustið en ég á reyndar eftir að
gera ansi mikið. Var samt
svo heppin að hún Sigríður á Fossi
reddaði mér dálítið með
plöntusafnið en þetta óx mér nú
dálítið í augum en hver veit nema
ég eigi eftir að þekkja í sundur
gras frá grasi þegar upp verður
staðið.
Nú hvolparnir dafna og myndir sem
ég lofaði fyrir löngu voru teknar
í dag og komnar inn á síðuna.
6. september
2005
Í gær 5
sept átti hún Halla Karen afmæli
til hamingju með daginn
Það
er örugglega búið að vera
heilmikið um að vera en þegar ég
gleymi að uppfæra, þá er nú ekki
hægt að ætlast til að ég muni hvað
hefur verið í gangi. Hvað um
það, man að það var farið að Útey
á laugardaginn líklega að sækja
tvær hryssur sem voru hjá Sólrík,
önnur er hún Hildur Hektorsdóttir,
brúnskjótt og hin heitir Rispa og
er litförótt, það verður spennandi
að sjá hvað þær koma með næsta ár.
Við erum búin að fá lykla af
Engjaveginum, mér finnst þetta hús
æði svona gamalt og vinalegt.
Guðni Reynir laumaði sér þarna inn
í gær og það fór svo vel um hann
að hann steinsofnaði og missti af
æfingu......sem var kannski bara
ágætt því honum veitir ekki af að
slaka aðeins á en hann er á
pencilinkúr og ætti auðvitða
ekkert að vera í boltanum á meðan.
Fann þessa mynd á netinu af pilti
en hann var að keppa við
Aftureldingu á
laugardaginn, því miður töpuðu
Selfoss, en auðvitað hlaut að koma
að því það fór 3-4 fyrir
Aftureldingu
en auðvitað áttum við að vinna,
munaði bara 1000 kalli sagði GR en
það væri það sem gleraugu á
dómarann hefðu kostað.........
Sigga of Freydís fóru í lax um
helgina með Eddu og Gunna, ég
spurði Siggu hvernig hefði gengið
og hvort þær hefðu reynt að veiða
en fékk þau svör að áin hefði
verið svo langt í burtu frá húsinu
að þær létu það eiga síg í bili
heheheh
31. ágúst 2005
Jæja það er
bara allt að gerast í dag, til að
byrja með er HÆRA mín með fyli við
Aron frá Strandhöfð, ég er ekkert
smá kát með það. Nú svo erum
við orðin húseigendur á Selfossi,
en ég sé nú samt ekki hann Guðna
minn elda sér eitthvað.......nú og
svo í þriðja lagi eru Jonni,
Bjössi og Reynir Már að koma
baðinnréttingunni upp, ég er nú að
reyna að segja þeim eitthvað til
en er ekki viss um að það fýti
verkinu neitt, en eitthver verður
að stjórna heheh
30. ágúst 2005
Þá er
síðasti leikurinn í deildinni hjá
Guðna Reyni búinn og bara eitthver
úrslit eftir. Síðasti
leikurinn fór 12-2 fyrir Selfoss
og þetta passaði alveg 12 markið í
leiknum var mark númer 100 hjá
strákunum í sumar, ansi flott.
Nú Rúnar er búinn að vera hér á
fullu í gær og í dag, og búinn að
setja á veggina á baðinu og
hjálpaði okkur af stað með
innréttinguna. Þetta verður
bara flott þegar þetta verður loks
búið.
Hvolparnir blása út, bara flottir,
ekki að spyrja að því, þarf að
reyna að taka myndir á morgun eða
hinn en þeir verða tveggja vikna á
morgun held ég.
28. ágúst 2005
Það er nú
ýmislegt sem maður er búin að
sýsla síðan síðast, Bjössi búinn
að fá sér blésóttann hest sem
vonandi virkar, nú og svo á hann
orðið hálfa fyrstu verðulauna meri
en það er hún Nös en Bjössi
keypti Gumma hlut og á nú merina
með Jonna, það verður spennandi að
sjá hvað þeir bræður ætla með hana.
Nú svo var tekin sú ákvörðun að
gera kauptilboð í hús á Selfossi í
von um að það spari okkur
eitthverjar Selfossferðir á dag,
bæði í sambandi við boltann og svo
skólann en þetta er líkast til
fyrsti veturinn af 10 eða eitthvað
sem við eigum börn í fjölbraut á
Selfossi svona ef allir stefna á
stúdent. Hugsa jafnvel að
við gætum leigt út tvö til þrjú
herbergi í vetur ef það eru
eittherjir sem maður þekkir sem
vantar inni. En meira um það
seinna.
Nú erum við búin að rústa út af
baðherberginu hér heima, og von á
Rúnari á morgun að setja upp
eitthverjar veggplötur sem líta út
eins og flísar, og svo á ég von á
að baðinnréttingin komi á morgun
þannig að seinnipartinn í vikunni
ætti baðið að vera orðið fínt.
Þá er það bara gangurinn og
eldhúsið sem á eftir að mála og
svo herbergið hana GR en það er nú
ekki eitthvað sem hann er tilbúinn
að samþykkja, þar má aldrei breyta
neinu heheh.
22. ágúst 2005
Klikkaði
alveg að uppfæra í gær enda svaf
bara næstum allann daginn.
Nú annars er bara allt gott,
börnin að fara í skólann, nema
Dóri sem er svo heppinn að þurfa
ekki að byrja fyrr en eftir viku.
Nú hvolparnir dafna aldeilis vel,
blása bara út en það eru enn 6
hundar og bara ein tík, var
eiginlega að vona að þetta hefði
verið eitthver vitleysa í mér en
svona er þetta bara.
20. ágúst 2005
Það er
hálftómlegt í kotinu núna, Sigga
svosem aldrei heima, en nú brá svo
við að bæði Guðni Reynir og Reynir
Már fóru af bæ á Menningarnótt,
það sem bjargar okkur nú eiginlega
er að Dóri er heima og svo er
Sverrir búinn að vera hér í dag,
þannig að þetta er ekki alveg eins
tómlegt.
Hvolpar dafna þvílíkt vel blása
bara út, og svo kom ein kvíga hér
í gær, þannig að það er allt að
gerast, nema kannksi plöntusafinð
sem ég á að vera að safna........
18. ágúst 2005
Við Bjössi
fórum að Vorsabæ að sækja
brúnskjóttur Galdursdótturina hans
Jonna, en hún var hjá Forseta, nú
merin er með fyli svo það verður
vonandi skjótt næsta sumar handa
þeim Jonna og Lindu.
Hvolparnir dafna vel og gott ef
ekki er þarna einn hundur sá númer
1 sem er hreinlega með brúnt
pigment, en auðvitað er nefið
bleikt á öllum ennþá þannig að það
á eftir að koma í ljós en ég er
næstum viss um að þetta nef verður
brúnt og hver veit nema þarna
leynist kannsi eitt brúnt nef enn,
en ekki gott að segja.
17. ágúst 2005
Í dag er afmælisdagur, en bæði
Selma og Geir eiga afmæli í dag
Til
hamingju með daginn bæði tvö.
Nú
svo bættist nú aðeins á daginn því
Salka gaut í dag og kom með 7
stykki takk fyrir, 1 tík og 6
hunda, hefði mátt vera öfug
kynjaröð en svona er þetta, hélt
að það væru kannsi í henni 4-5
hámark, en það bar nú ekki mikið á
að tíkin ætti von sér og hvað þá 7
stykki.
Nú hún Nös þeirra Jonna og Gumma
var sýnd á Hellu í gær og endaði í
7,97 minnir mig og búin að vera
hjá Daníel í 2 dag.......og hver
veit nema meri laumi sér í betri
einkunn á yfirlitinu en hún á víst
betri einkunn fyrir borkk og það
ætti að duga.
16. ágúst 2005
Þessi bragur
datt hér inn á borð í dag,
Þau fóru í
hestaferð,
Og þvílík var fákamergð,
Að flestir fengu sér þrjá.
Þau fóru um fjallaskörð,
Og feikna var gatan hörð,
En gæðingarnir gerðu það gott.
Í skógarhóla
skotist var,
Og skelfing sjálfsagt gaman þar,
En fréttir ei fengust af því.
Að Krínglumýri var komið brátt,
Í kofanum þótti heldur kátt,
Þá forðuðu sumir sér heim.
Meðan knapar í
kofanum hrutu,
Komu hestar við hliðið og brutu,
Og í þokuna þutu á braut.
Í gerðinu fundust fákar fimm,
Sem feiknalega þótti þokan dimm,
Það þurfti að koma þeim heim.
Þeir vöknuðu við
vondann draum,
En virtust þó gefa þvi gaum,
Að ganga þeir þyrftu senn heim.
Þá kom þar bíll úr byggð,
Og bjargaði af stakri tryggð,
Þau fóru á vélfáki heim.
Þrír lögðu á
heiðina,
Sem best þekktu leiðina,
Og voru ei villunum vant.
Þeir sendu heim S.M.S.
Og gættu að geta
þess,
Að götuna þekktu þeir vel.
Við erum á
leiðinni,
Og villumst ekki á heiðinni,
En vonandi náum brátt heim.
Svo hittum við hrossahóp,
Þá kváðu við köll og hróp,
En síðan við töpuðum tveim,
Loks komust þó hestarnir
heim.
V.K.
Þannig var nú það, en ég fór í
bæinn í dag með Siggu í tatú rosa
flott. Magga var svo agalega
dugleg að hún flæktist með mér svo
ég mundi ekki villast. Það
voru sóttar gardínur í stofuna og
alles, Bjössi og Reynir Már búnir
að setja þær upp, nú og svo var
skoða gólfefni.
Hvað um það
það sem mér þótti merkilegast var
að við fórum í eitthverja
búsáhaldabúð í Kringlunni þar sem
mig vantaði dósaupptakara, fann
ekki svoleiðs græju í Nóatúni á
Selfossi. Semsagt í þessari
búsáhaldaverslun sá ég líka þessa
flottu græju, bæði til í rauðu og
bláu, agalega flott, svo ég spurði
afgreiðslukonuna hvað þetta væri
eiginlega, þvi það var nú ekki
alveg ljóst fannst mér og svarið
sem ég fékk var að þetta væri
eiginlega ekkert........og vitið
þið hvað þetta ekkert kostað???
Tæp sextíuþúsund takk, og fyrir
ekkert, mjög merkilegt.
15. ágúst 2005
Jæja nú er
ég aldeilis búin að vera löt við
að uppfæra, en vonandi er þetta að
komast í rétt horf. Kom heim
úr hestaferð í gær og best að
byrja á byrjuninni.
Dagur 1
Fimmtudagur 11 ágúst.
Það byrjaði ansi illa, en
þegar var verið að fara með seinni
ferðina af hrossunum til Sólmundar
þá þruftir rolluskjáta að hlaupa
fyrir bílinn sem varð líkast til,
til þess að hliðarhurðin gaf
eitthvað eftir við það að bíllinn
þurfti að negla niður, nú það var
ekki að spyrja að því en hann
Grettir féll af bílnum og dó starx,
nú rétt á eftir datt Hrói af
bílnum en hann slapp með skrámur,
en hann lenti á brúarhandriði og
algjört kraftaverk að hann skuli
vera á lífi.
Það var svo lagt af stað frá
Sólmundi seinnipartinn á
fimmtudeginum og farið inn að
virkjunnarframkvæmdunum á
Hellisheiði, ég sleppti þessum
degi þar sem ég fór með Hróa á
dýraspítalann í skoðun. Nú
svo var farið niður í Hveragerði á
bílum í gistingu en við gistum
held ég á gistiheimili sem heitir
Fögruskógar, minnir það allavega,
frábær aðstaða, borðuðum svo í
Kjöt og kúnst held ég, nú
mannskapurinn fór svo snemma í
bælið en gott ef ekki var eitthver
ælupest í gangi en það kom víni
ekkert við, bara alvöru pest.
Dagur 2
Föstudagur 12 ágúst.
Nú var farið af stað fá
Hellisheiðavirkjuninni og stefnan
tekin á Maradal, held að þetta sé
nokkuð rétt hjá mér, við vildum nú
frekar kalla hann Magradal þar sem
við löbbuðm upp úr dalnum
eitthverstaðar, og engu mátti muna
að kalla þyrfti út hjartabílinn
þetta var svo ansi bratt og sum
okkar kannski ekki í mikilli
þjálfun, enda hestaferð en ekki
gönguferð. Hvað um það þetta
gekk rosalega vel en þegar átti að
fara að bak inn í dal þá var
eitthver galsi í klárunum og Inga
Dóra fékk að fjúka af baki, en kom
nú ótrúlega brött úr byltunni.
Úr Maradalnum var stefnan tekin á
Skógarhóla, og gekk svona ljómandi
vel, það þurfti reyndar að járna
eitthvað, og gott ef ekki heyrðist
í Sólmundi eitthverntímann ,,Merinni
er alveg sama hvort það er fram
eða afturfóta skeifa á henni"
og þar með var afturfótaskeifan
sett að framan.
Ferðin
gekk svo áfallalaust inn í
Skógarhóla eitthvað halt undir
Axel en það þykir nú ekki
fréttnæmt.
Dagur 3
Laugardagur 13 ágúst.
Nú var stefnan tekin á
Kringlumýri, fengum frábært veður
og reiðleiðin líka æðisleg, enn
bættist í höltu hrossin hjá Axel
en nú voru 2 af 3 hölt, Sverrir
skaut því hesti undir Axel en ekki
tókst betur til en Axel datt af
baki úr kyrrstöðu var varla sestur
í hnakkinn, og klárinn stóð eins
og klettur, mjög skrítið en fengum
þetta endursýnt hehe. Nú við
stoppuðum svo í aðhaldi við
rimlahliðið í Gjábakka og enn
tókst Axel að gera rósir en nú
datt hann undir sjálfum sér, og
draghaltur þá voru orðin 75%
afföll í hans flota, 2 hross og
karlinn sjálfur, ein brún meri
brúkleg en auðvitað slapp það til.
Nú hann var ekki einn um að detta
í þessu hólfi en ég sá ekki betur
en að Hafís dytti líka en ekki af
hestbaki og hún var svo snögg að
standa upp að það sá þetta varla
nokkur maður en svo heyrðist ,,
hvað datt ég?" Hún var svo
snögg að koma undir sig fótunum
aftur. Það gekk svo ágætlega
niður í Kringlumýri, reyndar
sprakk á einu dekki af 4 á
trússkerrunni, en það var látið
sleppa til.
Þegar
komið var í kofa sáum við að það
var búið að stela rúllinni okkar
en við áttum þarna eina rúllu sem
var merkt í bak og fyrir,
Miðengi á ekki taka, nú rúllan
var nú samt tekin en ný komin í
staðinn en við vissum svosem ekki
hvort við vorum að stela frá næst
hóp eða hvort þessi átti að koma í
staðinn fyrir okkar, hvergi orð um
það hvorki á rúllunni né í
gestabókinni, Nú um kvöldið
stóð svo til að vatna hrossunum,
mikið spáð í hvernig best væri að
standa að því, kannski hefði verði
einfaldast að taka nokkur hross og
reka svo í vatnið en það varð úr
að best þótti víst að fara á
trússbílnum með hestakerruna niður
að vatninu og fylla nokkra dalla
og keyra í hrossin, auððvitað
festist bíllinn, en hann náðist
upp og komst eitthvað nær, það
voru víst mjög merkilegar aðfarir
við að ná þessu vatni því það varð
að taka pott með í ferð til að
setja vatnið í dallana og
rúlla svo döllunum upp að kerrunni,
nú þetta er mjög þýft og frétti ég
að Adam hefði verið lagður á milli
þúfna til að hægt væri að rúlla
döllunum yfir karlinn svo
dallarnir sætu ekki fasti á milli
þúfna, jæja það komust allir
heilir frá þessu, farið að sofa
ekki mjög seint skildist mér og
satt best að segja er ég farin að
hald að hópurinn sé farinn að
eldast.
Dagur 4
Sunnudagur 14 ágúst.
Það byrjðai ekki vel Einar
trúss þurfti endilega að vakna
snemma, og segja frá því að af
þssum rúmlega 60 hrossum sem fóru
í ferðina væru bara 5 eftir í
griðingunni, held nú að þar sem að
það var mikil rigning þá hafi
þetta svosem ekki verið neitt
slæmar fréttir. Davíð og
Solla áttu þessi 5 hross, það var
ákveðið þrátt fyrir fyrri reynslu
að senda Sverrir, Davíð og Gunnar
Sveins yfir heiðina í þokunni og
rigningunni, með þessi 5 hross.
Nú 4 hross voru svo komin niður að
Kaldárhöfða en Sólmundur átti þau
og fór á þeim í átt að Ölfusi
ekkert frétt af þeirri ferð meira.
Nú rúmlega 30 hross voru svo komin
hingað heim eins og við gerðum ráð
fyrir að Miðengishrossin mundu
raman nema þegar að var gáð voru
þetta allt nema Miðengisrossin og
reyndar vantaði hrossin frá Braga
og Svövu líka. Þeirra hross
fundust á Björk og voru handsömuð
af Bjössa á Björk, Miðengishrossin
voru svo fyrir ofan Hallkelshóla,
það passaði þegar búið var að
finna öll hrossin þá tókst þessum
snillingum sem komu ríðandi með 5
hross, að tapa tveimur hrossum,
þau fundust svo og um klukkan
20.00 voru öll hross komin í
aðhald og bara eftir að ná í
hrossin á Björk.
Nú það sem stendur kannski uppúr
er að Solla datt ekkert af baki,
hver hefði trúða því allavega ekki
Solla sjálf.
26. júlí 2005
Enn og aftur
er bara blíða. Dagurinn fór nú
samt mestmegnis í breytingar
innandyra og nú er fj.. skápurinn
farinn af gangnum og inn í
herbergi enda búin að mála okkar
herbergi og alles.
Steini kom í gær með Dorte og
Alina, Dorte er frá Danmörku og á
hann Kersins Kút, hún kemur svo
aftur hér á morgun og ég fer með
hana upp á flugvöll á fimmtudag en
hún á flug heim þá, var svo sniðug
að bóka flugið á hvolpinn sem fer
til USA á sama tíma og sama dag
þannig að ég slepp með eina ferð,
vona bara að allir vegir verði
ekki lokaðir. Alina er svo
frá Finnlandi en er að vinna hér á
Íslandi í eitthern tíma en fer svo
fljótlega út aftur.
Sáum í kvöldfjósi að ein kusan sem
komin var að burði var borin, hún
stóð nú samt ekki yfir kálfi
þanngi að það var farið að leita
og það fannst dauð kvíga ansi
litskrúðug, leiðinlegt að fá
dauðann klálf en það er ekki við
öllu séð.
Í dag fór svo Kersins Töfra Tíbrá
austur með Móniku, hef nú ekki trú
á öðru en að tíkin eigi eftir að
fá mikla athygli enda á hún svosem
ættir til þess að láta taka eftir
sér. Hugsa að það séu bara
allir hvolparnir komnir með
heimili og vonandi komnir heim til
sín fyrir Vesló.
24. júlí 2005
Það var ansi
mikið logn í morgun og væta, en
undir hádegi fór að birta til og
orðið hávaða rok undir kvöld.
Það bættist einn kálfur við í dag,
rauð kvíga undan Stíg sem er víst
voða fínt naut.
GR fór á Selfoss á keppa í
fótbolta og mæting um kl. 1800 svo
hringir hann uppúr 1900 en þá átti
leikurinn að vera byrjaður mér
leist nú ekki alveg á þetta hvort
drengurinn væri búinn að tapa
sætinu í liðinu en þá var víst
leiknum frestað þar sem mótherjinn
náði víst ekki að smala saman í
lið, þetta er nú ekki hægt okkar
menn klárir og fá svo ekki að vita
þetta fyrr en leikurinn ætti að
fara að byrja.....og þeir sem
ætluðu að busta þetta.
Nú er ég kominn af stað aftur í að
mála, nú er það mitt herbergi, það
er svosem ekkert stórmál þar sem
það var hvítt og verður það áfram
og því slepp ég með tvær umferðir
sem ég slapp ekki með hjá Siggu
því þar var herbergið vínrautt.
Bjössi og tengdapabbi skutust með
Gerplu í graðhest en Selma heldur
merinni núna enda er þetta hennar
meri og nú er það grár klár sem
varð fyrir valinu ætli hún fái
ekki gráa hryssu, það kæmi nú ekki
á óvart.
23. júlí 2005
Ég kom engu í verk í dag nema
kannski að brenna að eins í
sólinni en það er nú full vinna að
sóla sig.
Það kom svo annar kálfur um
hádegisbilið nú var það nautkálfur
voða fínn líka en tók nú samt ekki
myndir af honum.
Það er búið að vera rosa gott
veður í dag, en núna undir kvöld
er komin þoka svona svipað og í
gærkvöldi, Bjössi, Reynir, Sigga,
GR og Halldór fóru ríðandi
Búrfellshringinn og ég vað að
gjöra svo vel að fara á móti
mannskapnum með nesti handa
Halldóri en hann fer jú ekki í
svona langferð matarlaus og þetta
var betri kostur en hnakktaskan
sem hann var búin að finna til.
Var næstum búin að gleyma frétt
dagsins en það var víst keyrt yfir
Orra minn í dag það er hundinn,
hann kom nú samt jafnheill út
þessu, vona bara að hann hafi lært
aðeins af þessu blessaður karlinn,
sá á honum að honum var nú aðeins
brugðið heheh
22. júlí 2005
Veðrið er
búið að vera æðislegt í dag, það
var reyndar ekki alveg bjart í
morgun og tók ekki af fyrr en
undir hádegi, en svo kom þvílíkt
mikil sól en núna undir klukkan
tíu að kveldi er komin þoka og
sést varla á milli húsa, ferlega
skrítið.
Sigga, Sævar og Ási ætla í útilegu
út að læk, GR nennir nú ekki með
þeim.
Það bar hér kýr í dag sem er nú
kannsi ekki í frásögu færandi en
kálfurinn er undan annars kálfs
kvígu sem er undan Soldánsdóttur
sem er nú ekki slæmt og svo er
klálfurinn sjálfur undan Teini, en
bæði Soldán og Teinn þykja voða
fínir, nema hvað kýrin hún Brella
bar bara út á túni og þegar hún
var sótt kom í ljós að kálfurinn
sem er kvíga er rauðhryggjótt,
bara flott, hugsa að Sigríður á
Fossi geti öfundað mig af þessum
kálfi heheh reyni að taka mynd á
morgun og setja ínn.
21. júlí 2005
Hann pabbi á
afmæli í dag, til hamingju með
daginn. Ég hringdi í gamla
og viti menn þau voru bara að
flækjast í kringum Mývatn í dag og
bara gott veður þar, en hér er
líka rosa gott veður.
Það var klárað að rúlla í Ásgarði
held að þetta sé í síðast sinn sem
við heyjum þar því það er víst
búið að skipuleggja túnin þar
undir sumarhúsabyggð, og þá þýðir
lítið að heyja það. Nú svo
voru túnin á Búrfelli slegin og
væntanlega verða þau rúlluð upp á
morgun og þá er bara eftir að
keyra heim, en fyrr er ekki
heyskapur búinn.
Bjössi og tengdapabbi sóttu
Bóthildi í dag en hún er búin að
vera hjá Núma frá Þóroddsstöðum,
vonandi er hún fylfull. Nú
Hæra mín var sótt í leiðinni, ætli
ég fari ekki bara með hana í
graðhest fljótlega.
20. júlí 2005
Í gær var
þvílíkt gott veður bara steik, í
dag var líka ansi heitt en ekki
eins mikil sól. Bára frænka
kom í heimsókn til Siggu og verður
fram á morgundag.
Í gær var rosa spennandi æfing hjá
Guðna Reyni en Selfossstrákarnir
fengu Sænskt lið í heimsókn og mér
fannst nú á mínum manni að þessir
Sænsku væru bara ekkert mikið
betri en þeir Selfossstrákarnir
sem við vissum nú alltaf svosem.
18. júlí 2005
Það er bara
búið að vera gott veður í dag en
samt dálítið hvasst sem er jú bara
betra fyrir bændur, því þá þorna
heyjin. Það var klárað að
slá Kertúnið í gær og byrjað að
rúlla eitthvað af því í kvöld og
svo var niðurtúnið slegið í dag og
auðvitað búið að snúa. Við
höfum varla undan að bruna á
Selfoss að sækja ,,rauða" olíu sem
ég svo sá í dag að er græn en ekki
rauð ég hef eitthvað mikilið þetta
allt saman. Við erum semsagt
að bíða eftir olíutank til að
setja traktóraolíuna á það er
þessa lituðu en vonani fer það að
koma því bar í dag erum við búin
að sækja tvær ferði og ég held að
magnið hafi verið um 330 lítrar.
17. júlí 2005
Ég rauk í
bæinn á föstudaginn, en Sigga og
Freydís þurftu nauðsynlega að
kaupa sér föt, nú
fimmtudagskvöldið hafði farið í að
leita að nýja debit kortinu hennar
Siggu og hún gekk svo langt að
fara upp á gámasvæði og gramsa í
ruslinu en ekki var kortið þar,
þannig að á föstudeginum fór hún á
Selfoss lét ógilda kortið og
pantaði nýtt. Hvað um það
farið í bæinn og nú átti að vesla
þær þurftu að fara í bæði
Kringluna og svo Smáralindina og
þar sem við ætluðum í útilegu upp
að Flúðum um helgina þá urðu þær
að taka rútu alla leið þangað.
Þegar ég var á leið austur, að
nálgast Hveragerði þá hringdi
Bjössi og nú skildi lagt af stað
og skipti engu þó ég ætti eftir að
snúast á Selfossi, þannig að ég
fór bara beint heim og af stað, í
þeim fötum sem ég stóð í og mátti
ekkert vera að því að taka aukaföt,
Jonni og Linda voru jú farin og
alveg óvíst að við fengjum stæði
ef ég flýtti mér ekki.
Nú það ringdi þvílíkt á
laugardeginum ég fór varla út úr
húsi, enda ekki einusinni með föt
til skiptana hehe, annars var bara
gaman og nú erum við Halldór búin
að finna út hvað vantar og hvernig
er nú best að græja sig fyrir
Galtalæk, ætli ég byrji ekki að
pakka með viku fyrirvara svo ég
verði nú klár þegar á að fara af
stað. Nú í morgun þegar var
við vorum að leggja af stað heim
þá var komið þetta fína veður og
líklega hafa menn náð þurru.
Nú tekur bara við enn önnur vikan
sem ég þarf að mála en nú er
það mitt herbergi sem er næst á
dagskrá.
Reynir Már og Bensi eru svo farnir
að slá en þeir voru búnir að taka
saman allar rúllurnar sem við
áttum út á túni. Það er
Kertúnið sem á að slá núna, en mér
sýnist spáin var þurrkur eins
langt og spáin nær.
Held að hvolparnir hafi hreinlega
stækkað um helgina engir smá
boltar, finnst aftur að DD sé
orðin ansi mjó, líklega ganga þeir
full nærri henni þessir vargar.
Nú Guðni Reynir fór svo að keppa í
fótbolta við Hauka, Selfoss var á
heimavelli og vann 7-1 GÓÐIR....
GR tókst að pota inn marki en
þetta er fjórði leikurinn í röð
þar sem honum tekst að skora
13. júlí 2005
Ansi er ég
orðin léleg að uppfæra og það er
ekki eins og ekkert gerist í
Miðengi, ó nei það er sko nóg að
gera. er búin að mála
Sigguherbergi og er að klára að
mála inni hjá Dóra, en hann er
harður húsbóndi og rekur mikið á
eftir mér, vona að ég geti komið
herberginu alveg í standi ekki
seinna en í fyrramálið og þá er
það bara næsta herbergi sem fer í
málingu.
Hvað um það, Gerpla kastaði alveg
óvænt á laugardaginn var, líkst
til um nóttina og þar kom brúnn
hestur enda ekki von á öðru en
rauðu eða brúnu því Jonni og Linda
eiga gripinn hehe en svo er bara
von á einu folaldi enn og það er
frá Bensa þar þarf ekki að spyrja
um litinn en rautt skal það vera.
Guðni Reynir fékk að keppa með
öðrum flokk á sunnudagskvöldið en
þeir voru að keppa á móti Keflavík
og ekki var nú verra að Kiddi
frændi okkar er að þjálfa annann
flokk í Keflavík svo það var til
mikils að vinna fyrir minn mann, í
fyrsta lagi að vera með í hópnum
því hann spilar jú með þriðja
flokk, og svo var markið bara sett
á að vinna en ekki hvað, skilst að
Keflavíkur liðið sé efst eða
ofarlega í deildinni og Selfoss
neðst, ekki unnið leik síðan ???,
jæja minn maður kom ansi kátur
heim um kvöldið því þeim tókst að
vinna Keflavík 0-1 en Keflavík var
á heimavelli.
Nú Sigga var svo á
Eiríksstaðahátíð um helgina með
Báru frænku og ca. skilst að það
hafi verið rosalega gaman, en ekki
hvað í rigninu og alles, mín kom
allavega heim í lopapeysu en það
er fatnaður sem var alveg vita
ómögulegt að koma henni í áður en
hún fór, það þótti ekki inn, en
hvað um það hún semsagt keypti sér
lopapeysu af "Báruömmu" og
ekkert smá flott peysa, þyrfti að
ná í eins svoleiðis með rennilás
og alles.
Það er verið að reyna að heyja
eitthvað hér á bæ, það er svosem
ekki nokkur þurrkur en spáð góðu á
morgun en svo á að fara að rigna
en upphaflega stóð til að byrja á
morgun og klára á föstudag en svo
er þetta nú er spáð rigningu á
föstudag þannig að það var byrjað
seinnipartinn að rúlla.
7. júlí 2005
Jæja þá er
ég byrjuð að mála, byrjaði á
herberginu hennar Siggu af því að
hún er ekki heima og getur þá ekki
skipt sér af litnum hehe, hvað um
það hrímhvítt skal það vera, en
Sigga er að fá nýtt rúm rosa stórt
og flott rúm en það er svona þegar
afi og amma eru að flytja þá
er ýmislegt sem ekki passar í nýja
húsið og við græðum á því.
Nú það voru gerð stórkaup í dag en
það var ákveðið að kaupa bíl handa
GR en hann er kominn með
æfingarleifi og BÍLINN það er sá
gamli hvíti með grindina sem allir
þekkja, er ekki alveg að henta nú
bílinn sem varð fyrir valinu er
Ford Mont...einhvað, ekki alveg
viss en flottur bíll set inn mynd
þegar hættir að rigna.
Nú Bensi var að rúlla í gærkvöldi
og klárið undir klukkan 4 í morgun
skilst mér, og sem betur fer því
að í morgun var ekki þurkurinn sem
mér fannst að okkur hefði verið
lofað, allavega fram að hádegi, en
svona er þetta maður á ekki að
trúa öllu sem maður sér í
sjónvarpinu...én semsagt nýræktinn
svokallaða sem er um 20 ára
náðist.
6. júlí 2005
Vorum
eitthvað að reyna að heyja í gær
gekk ekki vel, við semsagt keyptum
í fyrrahaust nýja samstæðu sem
bæði rúllar og pakkar, nú þegar
við Halldór vorum í Eyjum þá var
slegið um einn ha og vélin gekk
bara eins og smurð, nú í gær átti
svo að taka saman fullt af heyji
en vélin gerði ekkert annað en að
bila og í dag er sama staðan búin
að vera í gangi, þetta er bara
ömurlegt og svo á að rigna á
morgun.
Nú veðrið er búið að vera æðislegt
í dag og ég auðvitað ekkert heima,
eða þannig, og á svo eftir að fara
á Selfoss í kvöld að sækja GR en
hann er að keppa með öðrum flokk í
fótbolta.
Bóthildur var köstuð í morgun og
átti hryssu, hún er svona
endaskjótt og fékk nafnið Þoka en
það var svo mikil þoka í gærkvöldi
og nótt.
4. júlí 2005
Jæja Dóri
svaf í hjólhýsinu í nótt og var
bara alsæll, Bjössi hafði nú smá
áhyggjur af honum og laumaði sér
út til hans.
Nú er búið að vera mikið um að
vera í dag í lóðunum, held að það
hafi verið ca 14 lóðir teknar frá
í dag, það gerðist voða lítið
síðustu helgi en allt í einu í dag
gerist allt í einu, en hvað um það
þetta kemur í misstórum skömmtum.
Suma daga gerist ekkert hvort sem
það er í þessu eða eitthverju öðru
og aðra daga gerist bara allt í
einu.
Guðni Reynir fór á æfinu í kvöld
sem er ekki í frásögu færandi nema
hvað hann var settur upp í annann
flokk og látinn keppa með þeim,
leikurinn fór 2-2 þetta var
einskonar æfingarleikur og minn
maður skoraði bæði mörkin fyrir
Selfossliðið, held að þetta hafi
verið eitthver blanda af leik og
æfingur....en minn maður seigur.
3. júlí 2005
Það er búið að vera aðeins rennirí
á fólki hér í dag, eins og vant er.
Búin að lofa einum karlhundi hér
innanlands og á þá tvo stráka
eftir en líkast til búin að selja
annann þeirra út.
Sigga búin að lifa eins og
Prinssessa úti í hjólhýsi en fer í
Ártanga í kvöld og þá ætlar Dóri
að flytja út, mikið sport það.
Nú eitthvað er verið að skoða
sumarhúsalóðirnar, þrátt fyrir að
verðir sé nú ekkert spes.
2. júlí 2005
Sigga er bara flutt út í hjólhýsi
og ætlar að búa þar um helgar en
Halldór ætlar að búa þar í miðri
viku.
Guðni Reynir er búinn að vera á
Höfn í Hornafirði í allann dag,
eða þannig, hann fór semsagt
austur í morgun en 3. flokkur
Selfoss átti leik við Sindra í
fótbolta í dag, nú Selfoss vann
4-2 og Guðna Reyni tókst að skora,
hann var eiginlega mest hissa á
því hvað leikurinn var vel
auglýstur á Höfn og mikið af
áhorfendum, þetta er líkst til
skot á okkur stuðningsmenn Selfoss.......eða
hvað.
Nú Bjössi er búinn að snúast hér í
hringi í allann dag, þurrkur eða
ekki þurrkur, snúa eða ekki snúa,
veðurspáin skiptir um skoðun á
klukkutíma fresti og ekki gott að
átta sig á þessu.
1. júlí 2005
Jæja þá er fyrsta fylið staðfest,
en Bjössi og Guðni Reynir fóru með
hana Spólu í sónar í dag og það er
þetta stærðar fyl í henni, hún
hefur líkast til haldið um miðjan
maí. Spóla fór undir Galdur
frá Laugarvatni í þetta sinn,
þetta er sama blanda og í honum
Hrekkja Brún sem heitir reyndar
Neisti, og fannst okkur alveg
ástæða til að prufa þessa blöndu
aftur, því klárinn er bara flottur.
Nú Vignir er byrjaður á Hæru minni,
það er semsagt þessi bleikvindótta
sem er hér í vinstra horninu á
síðunni, það gengur bara vel
skilst mér og nú er bara að sjá
hvort eitthvað vit verður í að
sýna hana í ágúst.
Halldór er búinn að vera á fullu í
að kanna hjólhýsið, hringdi svo í
Ingu ömmu sína til að fá
upplýsingar um hvernig þetta og
hitt virkar, nú Inga og Reynir eru
á leið austur og minn maður er
alvetg óvinnufær því ekki ætlar
hann að missa af því að sýna ömmu
sinni gripinn og læra á klósettið
sem er víst aðalmálið.
29. júní 2005
Það er búið að vera á dagskránni
að fá sér hjólhýsi eða fellihýsi
eða eitthvað, hjólhýsi er auðvitða
besti kosturinn þar sem það er nú
ekki mín sterka hlið að pakka
saman og laga eitthvað til, þannig
að Hreinn var settur í að fylgjast
með hvort eitthvað spennandi dytti
inn á sölurnar í höfuðborginni og
viti menn seinnipartinn hringi
hann og búinn að finna eitthvað
spennandi svo það var bara brunað
í bæinn, þvi ekki vill maður missa
af þessu því svona gripir stoppa
ekki lengi á sölunum, við vissum
svosem að fyrst Hreini leist á
gripinn væri þetta pottþétt og við
komum heim með hjólhýsið, hugsa að
Sigga flytji bara út og kannsi
Dóri líka, held samt að Guðna
Reyni þyki þetta nú ekki merkilegt
það þarf nú meira til að raska
hans ró.
28. júní 2005
Jæja ég er ekki alveg dauð en við
Halldór erum búin að vera í
Vestmannaeyjum í næstum viku á
Shell móti, semsagt í fótbolta.
Er að reyna að koma lagi á þessa
síðu en er búin að vera ansi löt
að uppfæra en vonandi fer þetta að
koma og það stendur til á morgun
að taka myndir af hvolpunum.
13. júní 2005
Það er búið að vera svo gott veður
í dag að það er bara varla verandi
úti eða þannig, var auðvitað samt
úti í sólinni.
Nú ég ræddi við óköstuðu merarnar
og þær eru bara ekkert á því að
fara að kasta skilst mér, allavega
ekkert sem þær vilja segja mér, en
auðviðað kemur þetta þegar ég er í
Vestmannaeyjum á fótboltamótinu
með Dóra, hvað um það það eru til
myndavélasímar og alles svo ég
missi nú ekki alveg af þessu.
12. júní 2005
Endalaust
flakk búið að vera á mér í dag,
fyrst var það Stokkseyri, en þar
var Halldór að spila fótbolta.
Ég notaði tækifærið og kýkti á
Stefaníu og hvolpana hennar, leist
bara vel á og gaman að sá svona
hvolpa sem eru fæddir sama dag og
DD hvolparnir.
Nú
svo var farið í bæinn með Orra á
æfingu, en ,,sumum" finnst hann
þurfa að æfa sig smá fyrir
sýninguna hehe
11. júní 2005
Það var matarlúbbur haldin af Jóu,
Snæbirni, Mæju og Bigga í
gærkvöldi, matarklúbburinn var
haldinn í nýja húsin
Hæðarendafólksins á Selfossi.
Þetta tókst rosalega vel og full
mæting en það hefur nú bara ekki
gerst síðan elstu menn muna eða
jafnvel lengra síðan.
Í dag er búið að vera frábært
veður, sól og hlýtt, ég náði mér í
smá roða þegar ég bar pallaolíu á
skjólvegginn.
Það kom reyndar kálfur í gærmorgun
og ekkert nema gott um að það
segja en auðvitað naut, ekki það
að við höfum þurft að kvarta held
að það hafi komið um 4 kvígur í
röð um daginn. Nú svo þurfti
endilega ein fyrstakálfskvígan á
ná sér í hita en hún er líkast til
númer 3 í þessari vikur sem ríkur
upp í hita, ekki gott. Nú
svo held ég að kvígan sem var
eiginlega komin að burði í febrúar
sé kannski að fara að bera, þori
þó ekki að lofa neinu svona af
fenginni reynslu.
Hvolparnir dafna og dafna, þeir
bara blása út og eiga örugglega
eftir að verða eittherjar
orkusprengjur heheh það verður
gaman að sjá þá á nýjum heimilum
eftir um 6-7 vikur að endurhanna
húsin,,, nei ég segi nú bara
svona.
9. júní 2005
Allt í
rólegheitum hér, ekkert bólar á
folaldi en það eru þrjú sem eiga
eftir að koma. Ég er nú
farin að halda að Bóthildur verði
kannsi á undan Gerplu en sjáum til.
Það kom hér bíll fullur af
girðingarefni þannig að nú á að
fara að girða þetta er endalaust
alveg sama hvað er mikið girt
alltaf er eitthvað eftir, en nú á
að reyna að ganga frá í kringum
nýja húsið sem er ekki enn búið að
klára. Verktakinn segist
ælta að koma og klára húsið eftir
eina til tvær vikur.... vonandi
stendur það en er nú ekki bjartsýn
miðað við það sem á undan er
gengið.
8. júní 2005
Dagurinn fór
í skólaslit hjá Guðna Reyni og
Siggu en Guðni Reynir er semsagt
búinn með grunnskólann og fer í
Fjölbrautarskóla Suðurlands næst
vetur. Þetta gekk ljómandi
vel og við erum agalega sátt með
árangurinn, sér í lagi miðað við
ástundun, nema kannski með sundið
hjá henni Siggu ekki gott, en hún
átti að taka sig á eftir áramót og
ég vissi ekki betur en hún hefði
gert það því það kom ekki orð um
það hér heim að þetta væri ekki í
lagi, samt er hún lækkuð um tvo
heila, frekar ósátt og á kannsi
bara eftir að fá betri skýringar á
þessu frá skólanum.
7. júní 2005
Jæja nú er
ég loksins búin að ná sjálfri mér
með þessar uppfærslur, það er búið
að vera rosalega mikil rigning hér
í dag og þoka. En undir
kvöld hætti að rigna og sólin
laumaði sér í gegn.
Guðni Reynir fékk merkilegt bréf í
dag en það var boðskort í brúðkaup,
við erum búin að liggja yfir þessu
sjá myndir af væntanlegum
brúðhjónum og nöfn á foreldrum, og
ekkert kveikir á perunni, aldrei
heyrt af þessu fólki og aldrei séð
þessi andlit áður. Ég
hringdi í Valla Siggu en hafði
grun um að hún þekkti til og hún
var sett í málið og ætlar að
rannsaka þetta dularfulla mál.
6. júní 2005
Dagurinn í dag fór í að fara í
bekkjarferð til Reykjarvíkur með
Halldór og félaga, byrjuðum í
húsdýragarðinum, rosa gaman, sumir
fóru í parísarhjólið, aðrir eins
og ég vorum svo heppin að
eitthverjir vildu ekki fara og ég
var fljót að grípa það að passa þá
drengi heheh. Nú næst var
það bíó fyrir helminginn sem það
vildi og keila fyrir hina, við
Dóri fórum í bíó á Svamp Sveinsson
rosalega gaman og svo pizza hut á
eftir. Í heimleiðinni hirtum
við Guðna Reyni upp sem hafði
verið að keppa á Selfossi í
fótbolta og viti menn enn og aftur
unnu Selfossstrákarnir 17-0 og
geri aðrir betur.
4. júní 2005
Guðni Reynir
mætti svo klálfi í morgun þegar
hann mætti í halftíu fjósið.
Rautt naut, okkur líst nú illa á
júgrað á kúnni því það lítur út
fyrir að það sé komið drep í það,
en sjáum til hvað verður.
Tryppin voru rekin upp í hólf á
Búrfelli, gekk þokkalega held ég
bara.
3. júní 2005
Kominn
langþráður föstudagur og síðasti
dagurinn í skólanum hjá Halldóri,
loksins búinn í bili. Það
var mæting á slólaslit kl 1600 og
það mátti ekki miklu muna að ég
næði þessu ekki en þannig var að
hún Mýsla sem er kýr í fjósinu
fékk doðavellu en sem betur fer
áttaði Bjössi sig á því í tíma,
Sveinn dýralæknir kom á staðinn og
náði að koma eitthverju í hana
draga úr henni þennann fína klálf
og viti menn sú gamla fór á fætur,
rosalega falleg kvíga undan Teini
sem er víst voða fínt naut.
Nú á meðan við Dóri vorum á
skólaslitunum þá fór Bjössi, Sigga
og Guðni Reynir með hana Hryðju
mín í sónar og hún var tóm svo nú
var bara að finna annann hest gott
að geta skipt svona um skoðun,
hvað um það fyrir valinu varð
Forni frá Horni fer með merina í
girðingu í næstu viku.
2. júní 2005
Meiri
fótbolti nú var það Keflavík sem
keppt var við og gekk ekki alveg
eins vel, unnu semsagt ekki en GR
skorðai þó mark. Nú var hann
að keppa við Keflavík, við vorum
svo heppin að hann er í frí á
morgun og getur bara gist á
Selfossi hjá afa sínum og ömmu og
verður sóttur í fyrramálið.
1. júní 2005
Girðingin
umtalaða var girt og nú er
möguleiki á að fara að sleppa
tittunum.
Ég keyrði svo Guðna Reyni og co í
bæinn en þeir Selfossliðsstrákar
áttu að keppa við Hauka í
fótboltanum í 3. flokk og auðvitað
unnu mínir menn ekki spurning.
31. maí 2005
Áburður
borinn á Ásgarðstúnin og svo fóru
þeir og báru eitthvað á, á
Búrfelli, girðingarmál rædd og
stefnan tekin á að fara að klára
að loka girðingum á milli Miðengis
og Búrfells svo hægt sé að reka
tryppin uppeftir, eins á að reyna
að klára svokallað tittahólf en
allir eiga nú graðhestaefni sem
ekki má gelda.
Sveinn á Bssl kom í dag og dæmdi
um 20 kýr og kvígur held ég bara,
ansi stór hópur þetta árið.
Ég þurftir að rjúka upp í Laugarás
að sækja Guðna Reyni en hann var
eitthvað að vinna þar.
30. maí 2005
Mishressir
Miðengismenn í dag en auðvitað var
áburðurinn drifinn á túnin enda
ekki seinna vænna en það er búið
að vera svo þurrt í vor að það
hefur bara ekki verið hægt að bera
á nú lítur út fyrir að þetta fari
aðeins að lagast.
29. maí 2005
Ég fór
snemma heim úr Efstadal, Guðni
Reynir hringdi og hafði áhyggjur
að einni ánni og svo varð ég nú að
kíkja eftir börnum og hvolpunum.
Nú það var fast fyrsta lambið í
ánni, eitthvernveginn hélt lambið
að herðarnar ættu að koma fyrst,
en þegar ég náði svo lambinu þá
var það dautt og svo komu tvö dauð
til viðbótar en enn áttum við
aukalamb handa henni og hún var
bara alsæl og fékk eitt móflekkótt
í staðin.
Ég fór svo aftur uppeftir og
fylgdi mannskapnum í gegnum
Laugarvatn en fór þá heim að
mjólka, ég vorkenndi nú fólkinu
dálítið sem kom með
reksturinn heim því gott ef ekki
snjóaði bara á mannskapinn upp í
Lyngdalsheiði, hér voru svo allir
komnir heim undir miðnætti og
enginn sem viltist enda Sverrrir
með í ferð og alvanur og rataði.
Keyrið svo þá sem áttu bíl upp í
Efstadal og var komin heim um eitt
leitið.
28 maí 2005
Við Bjössi áttum morgunfjós í
morgun, og Bjössi byrjaði á því að
mæta kálfi, nú ég kýkti í
fjárhúsið og eitthvað hafði borið
um nóttina en ekkert vandamál þar.
Nú Gloría kastaði svo um morgunin
og það kom jarpskjóttur hestur.
Það var svo farið upp í Efstadal
um hádegið en það áttu helst allir
að vera komnir í hnakkinn um
klukkan 1400. Það
passaði þegar búið var að handsama
Hróa fyrir mig þá hringdi Sigga og
Doppa Dóra var að gjóta, auðvitað
rauk ég heim en svo var líka kind
sem virtist ekki geta borið.
Byrjaði á að draga dautt lamb úr
kindinni, eitt rosalega stórt
lamb, og þar sem það var dautt þá
notuðum við tækifærið og vöndum
lamb sem enginn virtist vilja
undir ána, það gekk svo glimrandi
vel. Ég rauk svo heim í bæ
og þá var fyrsti hvolpurinn kominn,
og þegar ég fór í fjósið um kl
1700 þá voru hvolparnir orðnir
fimm, það bættist svo ein tík við
þegar ég var í fjósinu. Nú
þá var kominn tími til að fara af
stað upp í Efstadal og þetta var
það sem mætti mér (Gróa og Toni
tóku þessa mynd).
Vissir reyndar ekki hvort þetta
var tekið fyrir eða eftir að
Prinsinn fór í pottinn... Nú og
svo var matur og alles bara
flott..þarna var frábært að vera
og gott ef Miðengismenn verði ekki
þarna árvisst og þá auðvitað með
allt hótelið, það er nú ekki öllum
bjóðandi að vera í svona merkishóp.
27 maí 2005
Tókum því
rólega hér í dag, veðrið við það
sama, sól og enginn rigning ekki
gott. Fór eitthverjar ferðir
á Selfoss, fótboltinn er víst í
forgang.
Halla Karen útskrifaðist sem
stúdent í dag,
til hamingju með daginn Halla
Karen,
fórum svo í veislu til hennar um
kvöldið, rosalega flott.
Gróa, Toni, Stefán og Bára komu
hér svo um kvöldið frá Búðardal en
Gróa og Toni ætla með í
hestaferðina á morgun, Bára verðu
að bralla eitthvað með Siggu þær
fóru í bíó á Selfoss, höldum við
allavega, jú hugsa það nú og
Stefán var svo liðlegur að keyra
þær.
Nú Reynir Már er svo mættur í
sveitina það stendur til að reyna
ða þræla honum eitthvað út hér í
sumar.
26. maí 2005
Enn er þurrt
og úrkomulaust. Það á að
fara í hestaferð á laugardaginn og
verður riðið frá Efstadal og í átt
að Brúarárskörðum, þetta verður um
30 manna hópur held ég og 50 hross.
Það var farið með rekstur upp í
Efstadal í kvöld og það gekk nú
bara frekar illa eiginlega.
Hrossin rákust ansi illa og ekkert
nema vesenið, við Borg voru
eitthver hross sem ákváðu að
beygja Sólheimaveginn og það var
víst ekkert smá strau á þeim, sem
betur fer hittu hrossin á
Hjálparsveitina sem bjargaði
málunum. Nú svo hafðist
þetta upp að Þóroddsstöðum en þar
var stoppað hjá Bjarna.
Næst var farið að Útey og þar í
gegn upp að Ketilvöllum, en Kiddi
á Ketilvöllum slóst í för með
Mieðngismönnum þar og lóðsaði.
Þetta gekk rosalega vel með
reksturinn og allt nema þessa tvo
sem áttu að loka hliðunum en
eitthvað kom uppá því þeir misstu
af lestinni, hvort þeir voru svona
illa ríðandi eða hvað, því
venjulega hefur það ekki orðið til
þess að menn tapi af rekstrinum þó
þeir þurfi að loka tveimur hliðum.
Hvað um það þetta er svo lýgilegt
að það er varla segjandi frá því,
en semsagt Bensi og Ingþór
villtust fyrir utan eldhúsgluggann
á Ketilvöllum, það er jú þekkt að
menn tapi áttum uppí í fjalli í
skóginum en í björtu veðri á
jafnsléttu og næstum innan
túngirðingar er bara ótrúlegt,
þeir sáust allann tímann frá bænum
og var leiðbeint í gegnum síma en
það dugði bara ekki til, 50 hrossa
rekstur skildi eftir sig slóð á
moldargötum en það dugði ekki
heldur til, það var ekki fyrr en
Kiddi fór á Bronkónum sínum niður
í mýri að hægt var að koma þeim
heim á bæ, en svei mér þá ef honum
Ingþóri hafi ekki tekist að
villast inni í bæ líka þegar hann
kom í kaffið. Hvað um það
við fengum frábærar mótökur, kaffi
og með því á Ketilvöllum, takk
fyrir okkur. Nú þá var
haldið af stað að Efstadal og gekk
rosavel, heimkomu uppúr klukkan
eitt um nóttina hér að Miðengi.
25. maí 2005
Það er búið
að vera ágætt veður í dag, logn og
dálítið skýjað en engin úrkoma því
miður.
Guðni Reynir er búinn með fyrri
hlutann af bóklega dæminu í
ökukennslunni, og voða feginn að
það er búið því ekki má hann nú
missa af fleiri æfingum.....
Boltinn er víst númer eitt, tvö og
þrjú.
Sigga auðvitað aldrei heima, fór
til Freydísar í gær og er víst
farin í bíó núna, og af Dóra er
það að frétta að hann er búinn að
vera slæmur í maganum síðann á
mánudaginn en ætlar að fara í
skólann á morgun.
24. maí 2005
Hér gengur
allt sinn vana gang, það bólar
ekkert á rigningu eða hlýindum,
svo ekki er hægt að vera á og
lítið hægt að sleppa fé, þó sumum
sé nú laumað út vegna plássleysis.
Doppa Dóra (tík) og Gloría (hryssa)
eru báðar alveg rólegar enn en
hver veit nema það fjölgi um
helgina.
Sauðburður tosast og aldrei komið
svona mikið af botnóttum lömbum
enda var botnóttur hrútur svosem í
fénu. Næst er það golsótt
sem verður sett á.
23. maí 2005
Held
endilega að Særún eigi afmæli í
dag,
til hamingju með daginn Særún mín
og ef dagurinn var í gær eða
fyrradag jæja þá þíðir ekkert að
tala um að.
Hér gengur allt sinn vanagang,
aumingja Guðni Reynir er að fara í
ökuskóla í kvöld og næstu tvö
kvöld og missir af tveimur
fótboltaæfingum, sem honum finnst
alveg skelfilegt en það er líkast
til best að drífa þetta af fyrir
sumarið ef það kemur þá nokkuð því
hér er ekki enn farið að vora,
bara skítakuldi en reyndar sól og
þá er auðvitað vindur líka.
Nú er ég búin að búa um hana Doppu
Dóru í stofunni það má nú ekkert
minna en stofan fyrir litla ljósið
hehe, en það er vona á hvolpum á
næstu dögum, eigum við að segja
föstudag kannsi en svo getur þetta
dregist fram yfir helgi.
22. maí 2005
Ég er búin að vera ansi löt að
skrifa en það er enn sami
skítakuldinn og varla hægt að
setja ærnar út með lömbin.
Guðni Reynir er fainn að fara í
ökutíma þó hann megi varla vera að
því vegna anna heheh, en þetta er
nú allt að smella saman hjá honum
og skipulag að komast á
æfingarakstur, sauðburð, skóla og
fótbolta....
Það er búið að klára að setja
vegina í hnit í Farengi en það er
nýja sumarhúsahverfið, þannig að
þetta er allt að skýrast held ég
bara.
18. maí 2005
Hún Sigga á
afmæli í dag og er 15 ára, og svo
á hún Hulda líka afmæli, til
hamingju með daginn báðar tvær.
Veðrið búið að vera æðislegt í dag,
en samt ekkert mjög hlýtt, Bjössi
og Bensi búnir að vera úti í
hrauni að setja vegi og lóðir í
hnit ásamt Kristjáni og þetta er
allt að gerast held ég bara.
Guðni Reynir er búinn í samræmdu
prófunum og gekk þokkalega og er
mættur á fullu í sauðburð fram
yfir helgi en þá þarf víst
eitthvað að klára skólann.
Það virðist vera stanslaus umferð
inn í Farengi kannsi eru menn að
skoða aftur.
17. maí 2005
Það var ekki
fyrr en undir kvöld sem ærnar tóku
við sér en í dag báru 4 kindur,
tvær tvílembur og tvær þrílembur.
Þetta er alveg ótrúlegt með þessar
þrílembur hvað þær eru margar því
ég hélt nú að féð hefði ekki
fengið það góðann aðbúnað í vetur,
en við vorum alltaf að bíða eftir
að húsið yrði tilbúið og kindurnar
úti á meðan, nú húsið er ekki enn
tilbúið en við erum farin að nota
það undir ærnar.
Við Bjössi fórum með Spólu í sónar
í dag en í fyrra þá var hún geld
og ástæðan var víst vökvi í leginu
eða eitthvað, nú Sveinn dýralæknir
komst að því að merin væri í látum
og við ákváðum að reyna að koma
henni bara undir hest núna og sjá
hvort hún héldi, fara með hana
aftur í sónar eftir ca 3 vikur og
athuga hvort hún hafi haldi og ef
ekki þá þarf að gera eitthvað joð
eitthvað. Nú við fundum
auðvitað girðingu þar sem hún
mátti fara og það bara strax, og
það er enginn smá hestur eða hann
Galdur frá Laugarvatni sem er
búinn að vera í miklu uppáhaldi
hjá okkur hér, nú Bjössi skaust
með merina og Galdur var mikið
kátur að sjá hana, fannst hún bara
flott.
16. maí 2005
Það er búið
að vera ansi rólegt í dag,
kindurnar báru eiginlega bara
ekkert, þó bara ein um miðjann dag
og átti tvö móflekkótt lömb, hrút
og gimbur. Veðrið búið að
vera gott og hálfgert letilíf.
15 maí 2005
Sauðburður
farinn að ganga ljómandi vel,
verra að það eru að detta inn
eitthverjar þrílembur sem mér
finnst nú ekki mikið spennandi.
Það er búið að vera stanslaus
umferð inn í nýja sumarhúsahverfið
það er
Farengi, en þar verða lóðir
til sölu í sumar, ótrúlega margir
sem virðast vita af þessu og
farnir að velja sér blett.
Nú folaldið litla er bara sprækt,
hann virðist ætla að verða
ljósmoldóttur en Bragi og Svava
komu og tóku eitthvað af myndum og
vonandi er eitthver sem hægt er að
setja á netið.
Veðrið er búið að vera sumarblíða
og ég er meira að segja byrjuð að
bera á skjólvegginn en við bárum
vel á hann í fyrrasumar en það
virðist ekki veita af að smussa
eitthverju á hann aftur.
14 maí 2005
Klukkan er
orðin 22.30 og Drottning átti
moldóttann hest, myndir á morgun
Það gengur
frekar hægt að fá folaldið úr
henni Drottningu, var alveg viss í
gærkvöldi að það væri að koma og
er reyndar viss ennþá en það bólar
bara ekkert á því, hélt í morgun
að fyrst það var ekki komið um
6.00 þegar við fórum í fjós þá
kæmi pottétt hestfolald, nú er ég
farin að halda að það séu kannsi
tvö hestfolöld fyrst ég þarf að
bíða svona lengi en það var farið
að leka úr henni mjólk í gærkvöldi
og gerir enn, en þetta hlítur að
koma í nótt.
Nú það er enn eitthvert vesen í
sauðburði en ég dró úr kind í dag
lamb sem var bara sprækt en svo
bara allt í einu drapst það, en
hún átti annað sem lifði sem betur
fer, nú og svo undir kvöld þurfti
ég að draga úr tvævetlu sem var að
bera í fyrsta sinn en fyrsta
lambið hennar ætlaði að fæðast með
dindilinn fyrst og lamb númer tvö
gat bara ekki beðið eftir þessu
veseni, nú þetta hafðist allt en
þá þurfti lamb númer þrjú að
bætast við, allt gráir hrútar, og
leit út fyrir að þeir mundi lifa
en sá fyrsti var ansi smár.
13. maí 2005
þannig er nú
það en við Bjössi eigum 16 ára
brúðkaupsafmæli í dag, þvílík elja
í aumingja karlinum. Guðni
Reynir á líka 16 ára skírnarafmæli
í dag....
Það kom að því að það kom lifandi
lamb á bænum, það semsagt það bar ein
kind í dag og átti eitt lifandi
lamb, hún átti víst þrjú í fyrra
blessunin svo henni er alveg
fyrirgefið að koma bara með þetta eina.
Og svo er það nú aðalfréttin en
Drottning er að kasta,
núna er klukkan að verða 2100 og
hún búin að ganga í hringi og
krafsa mikið í allt kvöld, ég var
að vona að ég fengi meri jafnvel
glóbrúna en leirljós hestur er
líka í stöðunni og þá verður hann
skírður Jaki en ekki hvað.
12. maí 2005
Það var
samræmt próf í stærðfræði hjá
Guðna Reyni í morgun, og þetta er
alveg ótrúlegt með hann en í
gærkvöldi bilaði vasareiknirinn
hans og ég rauk á Selfoss og
ætlaði að kaupa eins græju, sem
var auðvitað ekki til svo ég
keypti eitthvað annað sem ég
vonaði að hann gæti lært á en viti
menn þá var það bara batteríið sem
var farið svo ég gat sett batterí
í gamla reiknirinn, og sendi
drenginn svo alsæl í skólann, en
viti menn auðvitað gleymdi hann
reikninum heima.... þetta hefði
enginn nema Guðni Reynir getað, en
skólinn gat lánað honum reikni og
þetta hafðist allt saman þó svo að
hluti prófsins hafi litið út eins
og danska á hvolfi var mér sagt.
Nú það er enn að drepast í
fjárhúsinu en í dag kom fyrsta
einlemban með eitt dautt lamb.
11. maí 2005
Það er ekki
alveg að ganga upp hér sauðburður
enda nokkrir dagar í sauðburð
samkvæmt bókinni, það eru semsagt
4 ær bornar, allar tvílembdar en
bara eitt lamb á lífi. Það
semsagt bar ein í dag sem átti
fyrst eitt hálfdautt sem var allt
snúið og darpst svo auðvitað nú
hitt lambið hennar var svo ekkert
lamb, bara byrjun á lambi eða bara
got.
Það er betra ástand í fjósinu, en
þar kom ein kvíga núna undir kvöld,
Guðni Reynir á þessa kvígu eða
átti en þar sem ég á afmæli í dag
gaf hann mér gripinn, takk fyrir
það Guðni Reynir.
Nú samræmdu prófin tosast áfram
hjá Guðna Reyni, Sigga og Dóri eru
líka í prófum, held að við séum
ekkert að stressa okkur á þessum
prófum, annaðhvort er þetta að
ganga eða ekki, samt vakti Sigga
hér í alla nótt og var að lesa,
hún sullaði í sig kaffi og hélt
sér vakandi þannig á meðan við hin
sváfum á okkar græna.
8. maí 2005
Bjössi og
Jonni fóru með Hryðju undir hest í
kvöld og fyrir valinu varð Hrói
frá Skeiðháholti, en hann er
bleikálóttur og ansi fallegur.
Það er svo verið að keyra í
Bústjórabrautina, var nú búin að
var þá við að velta ekki niður í
Fari og þeir tóku mig svo
alvarlega að þeir byrjuðu að velta
sturtuvagninum í Kúakrók held ég
bara, hugsa að þeir sleppi samt
ekki við brekkuna í Farinu en
líklega héldu þeir að ef þeir
kláruðu að velta strax þá væru
þeir sloppnir heheh.
Steini kom og tók fullt af myndum
af hundunum og gott ef ekki eru
bara fínar myndir þarna.
7. maí 2005
Það er búið
að vera mikið að gera í Miðengi í
dag, búið að loka nýja húsinu en
það voru nú bara heimamenn sem
gerðu það því ekkert bólar á
mönnum á vegum verktakans. En
þetta gengur bara ekki lengur því
við verðum bara að koma fénu inn
og undir kvöld var allt féð sett
inn og ekki seinna vænna, þetta
var gert á betri búum síðasta
haust, en auðvitað stóð það svosem
til hér líka ef allt hefði nú
staðist eins og til stóð.
6. maí 2005
Þetta var
síðasti prófdagurinn og gekk
ekkert allt of vel, var í
markaðsfræði og auðvitað kom þarna
allavega ein spurning sem ég var
búin að liggja yfir hér heima á
þess að finna svar í bókunum en
hvað um það maður annað hvort
lifir eða deyr eheh þannig að við
sjáum bara til, nú og
seinniparturinn af deginum fór í
að keyra fram og til baka,,,,
sækja Guðna Reyni í Reykholt og
svo var fótboltamót á Hvolsvelli
hjá Dóra og co.
Það var farið út í hraun í dag að
hnita út lóðir, gekk nú ekki nógu
vel það var svo hvasst að það
heyrðist ekkert í talstöðvunum nú
og svo lítur allt útfyrir að
vegirnir fari yfir fallegustu
blettina þannig að eitthvað þarf
að hnika því til. Framhald
vonandi í næstu viku.
5. maí 2005
Búin að sitja inni í bæ meira og
minna í allann dag og glugga í
markaðsfærði en það er próf í
fyrramálið en það er síðasta
prófið núna í vor.
Guðni Reynir, Bjössi og Kristján
búnir að vera úti í hrauni í
allann dag að hnita út vegi og
lóðir og gengið vel.
4. maí 2005
Byrjaði
daginn á að fara í próf í
sauðfjárrækt 2, svona þegar ég var
búin að mjólka og smúla.
Þetta gekk ágætlega og rólegheit
fram að kaffi en ég þurftir að
vera komin í Reykholt að sækja
Guðna Reyni klukkann 15.45 fara
með hann heim og sækja Dóra sem
þurfti að vera kominn á Selfoss kl
16.30 á fótboltaæfinu, skildi
Guðna Reyni eftir þar líka.
Nú svo var að drífa sig aftur heim
í kvöldfjós, fundur aftur á
Selfossi klukkan 18.00, Sækja
strákana klukkan 19.00 koma þeim
heim og vera svo komin í
Ölfushöllina klukkan 20.00 til að
sjá ungfolasýningu. Nú það
er alveg ótrúlegt en þetta hafðist
allt og hvergi mjög sein kannsi
aðeins. Á ungfolasýningunni
voru tveir þriggja vetra folar sem
ég man sérstaklega eftir ennþá,
það var Kjartanstaða Töfrasonur
frá Blesastöðum sem Magnús Trausti
á, folinn var bara alveg eins og
pabbi sinn, nú og svo var þarna
Arons sonur sem var frá Strönd
ansi fimur. Folarnir voru
næstum allir nýjárnaðir, fæddir
2002 og 2003 og ansi flottar og
vissu varla hvað þeir átti að gera
við lappirnar en saknaði dálítið
að sjá þá ekki á flottu tölti,
þeir brokkuðu meira og minna, þó
svo það væri augljóst hjá sumum
allavega að þeir væru góðgengir.
3. maí 2005
Það er lítið
búið að vera hér í gangi í dag,
engir smiðir og líklega ekki von á
þeim meira, held reyndar að Guðni
Reynir hafi verið ánægður með það
núna í kvöld þar sem einn
smiðurinn heldur með Liverpool og
hefur komið hér heim á bæ að horfa
á boltann, ekki meira um það.
Ég fór í fyrsta prófið núna í
morgun og gekk bara ágætlega held
ég, þetta vera heimilisgarðrækt.
Nú þeir feðgar Guðni Reynir og
Bjössi fundu eina dauða rollu í
dag og aðra í fyrradag, veit nú
ekki alveg hvað varð þeim að
aldurstila en þó hafði annari
tekist að troða hausnum undir
rúlluna, nú hin var ferhyrnt það
dugar sem skýring hér á bæ held ég
bara, þessar ferhyrntu ná ekki að
verða tveggja vetra. Nú og
svo hefur ein ær látið eða borði
fyrirmálslömbum.
Í gær lenti ég í dálitlu sniðugu
því Guðni Reynir fór til læknis
fyrir helgi og eitthvert sýni
tekið úr hálsinum á honum þar sem
hann hóstar eins og rolla.
Nú svo kom niðurstaða úr sýninu og
hann er fullur af eitthverjum
sýklum eða bakteríum og átti að fá
símsent lyf á Selfoss, nú svo fór
ég að sækja umrætt lyf, en þá
vildi lyfsalinn ekki afhenda mér
lyfið sem hafði verið skrifað upp
á því það var víst dýralyf,
og þrátt fyrir að drengurinn
hóstar eins og rolla fékk hann
ekki dýralyf heldur var hringt í
lækninn og þessi mistök leiðrétt
og nú er hann farinn að éta
eitthvert mannalyf en hóstar enn
eins og rolla.
1. maí 2005
Við Bjössi
ásamt Siggu og Dóra fórum í
Búðardal í gær að heimsækja Gróu
og Anton, það var rosalega gaman
og við skoðuðum mjólkurbúið þarna
í Búðardal, reyndar var Sigga ekki
með í þeirri skoðunnarferð en Dóri
var ekkert smá hrifinn.
Sigga var eitthvað að flækjast með
Báru frænku sinni sem er jú mun
meira spennandi en við fullorðan
fólkið. Nú svo í morgun þá
fórum við að skoða fjósið og
kýrnar hjá honum Unnsteini á
Leiðólfsstöðum, þetta er ekkert
smá flott hjá honum og örugglega
ansi mikil vinna að vera með svona
stórt kúabú.
Nú við vorum svo komin hér heim um
klukkan tvö held ég bara og ég fór
auðvitað beint út að mynda
folaldið mitt, hann er nú ekkert
svo ljótur blessaður.
Haldið þið að núna undir kvöld sé
svo ekki bara farið að snjóa, vona
að það verði nú ekkert að viti svo
folanum mínum verði ekki kalt.
30. apríl 2005
Hryðja
kastaði núna um kl ellefu og það
kom á síðustu metrunum varð
folaldið hestur og ég sem vildi
svo mikið hryssu. Hvað um
það hann kemur til með að verða
grár hugsa ég en í augnablikinu er
hann eiginlega grájarpbrúnskjóttur
eitthvernveginn, en hann er
eiginlega höttóttur og svo er
annað lærið í lit ásamt taglinu.
Það koma vonandi myndir inn á
morgun en ég þarf að byðja Lindu
um að mynda, enn er stolna vélin
mín ekki komin í leitirnar.
29. apríl 2005
Jæja nú er
komið undir kvöld og það er bara
kominn mjólkurdropi á spenann á
Hryðju sem segir mér að það verður
komið folald í fyrramálið, nú ef
ekki þá er ég smeik um að ég fái
hest en það er samt betra að fá
fallegann lifandi hesta en ljóta
dauð meri eða þannig....
Nú eru smiðirnir mínir alveg
farnir hef ég grun um og ekki er
húsið búið enn, ætla rétt að vona
að það finnist eitthver lausn á
þessu, frekar leiðinlegt að þurfa
að standa í svona vitleysu.
Haldið þið
ekki að Vignir hafi hringt í
morgun og Gjóska mín hefur látið í
vetur þannig að ég fæ ekkert
folald undan Orra í afmælisgjöf.
Hvað um það kíkti á Hryðju í
morgun og enn styttist í folald
enda getur það svo sem ekki annað,
það er samt ekki farið að leka úr
henni mjólk en sjáum til í kvöld
hvað hún segir blessunin.
Það eru fjórir smiðir hér í dag
þetta smá tosast, en ekki sjást
gluggarnir sem verktakinn fékk aur
fyrir um daginn,,,,
28. apríl 2005
Það er búið
að vera allskonar veður í dag, rok,
kalt rigning, sól, logn, skúrir en
í augnablikinu undir kvöld er sól
og aðeins gola og farið að kólna.
Kíkti á Drottningu og Hryðju áðan,
það hefur bara stóraukist undir
Drottningu, ætli það komi ekki
leirljós hestur af því að Jonna
langar í leirljósann hest en ég
sagði honum að þarna kæmi albínói
svo hann þorði ekki að halda
merinni undir Axel heheh, en mig
langar í albínóa meri. Nú
Hryðja er komin á síðustu metrana
held ég bara, ef það verður komið
folald í fyrramálið er þetta
pottþétt meri en það jaðrar við að
það sé farið að leka úr henni en
samt ekki alveg, bíð spennt.
Eins gott að Sverrir verið búin að
skila vélinni minni svo ég geti nú
tekið mynd annars verður Linda
kölluð út í myndatöku sem er
örugglega mikið minna mál.
Nú þarf ég að fara að huga að
dagbók og vinnubók í fjarnáminu
mínu, held að það verði ekkert
stórmál allavega ekkert miðað við
það þurfa að taka plöntusafn,,,,
kvíð því nú dálítið, nú og
svo eru prófin að byrja hjá mér á
þriðjudaginn en þetta tekur fljótt
af síðast próf á föstudag.
27. apríl 2005
Fór að mynda
Drottningu og Hryðju og ekki
von á folaldi í dag hugsa ég.
Kýkti svo á
þær undir kvöld og hver veit nema
Hryðja verði köstuð allavega fyrir
helgi ekki í nótt samt. Ég
geri auðvitað ráð fyrir því að fá
hryssu, kannski skjótta en það
skiptir minna máli með litinn á
orðið svo marga liti að rautt,
brúnt og jarft væri næstum nýr
litur í litaflóruna á mínum
hrossum.
26. apríl 2005
Í dag var bara gott veður, ég er
farin að tína saman merarnar mína
og reyna að átta mig á hvenær er
von á folöldum, Hryðja kastar
jafnvel fyrir helgi eða kannsi um
helgina fyrst við ætlum vestur.
Nú Gjóska sem er hjá Vigni ætti að
kasta á afmælisdaginn minn og gott
ef ekki Gloría, Drottning og
Gerpla velji allar þann dag.
Þannig að nú er bara að velja
hesta á þessar merar almennt.
25. apríl 2005
Nú smiðirnir
eru mættir og það stendur til að
vinna alla þessa viku og klára í
þeirri næstu þó er eitthvað óljóst
með hurðirnar hvenær þær koma og
hvaðan, þannig að þetta verður
hurðarlaust helv... kannski
eitthvað fram á sumar.
Guðni Reynir keppti svo í fótbolta
fyrir Selfoss á móti Aftureldingu,
og kom ansi fúll heim en það kom
að því að Selfoss tapaði og
geðvonskan eftir því.
Ég kláraði siðustu verkefnin í
bili í skólanum í dag, og svo eru
það bara próf í næstu viku.
23. apríl 2005
Það var matarklúbbur hér í
gærkvöldi, tókst rosalega vel
allir mættir nema Snæbjörn sem
þurfti að fara á sjóinn. Nú
síðasti maður úr húsi sem ekki
gisti fór um hálfsjö undir morgun,
þannig að eitthvert hefur stuðið
verið en ég svaf þetta nú af mér,
enda komin með mígreni þarna um
nóttina, þoli svo rosalega
illa reykingar og svo að vaka líka
fram yfir miðnætti það er bara
ávísun á mígrenikast.
Nú dagurinn fór svo í að leggja
sig og keyra á fótboltaæfinu.
22. apríl 2005
Það er
farið að nálgast hádegi og gengur
bara vel að rýja. Gengur
ekki eins vel að laga til hjá mér
og að skila verkefnum en það er
síðasti skiladagur í dag á 4
verkefnum og ég bara búin að skila
tveimur, fæ kannski smá frest á
hin tvö ef þetta er ekki að gera
sig.
Nú og svo er matarkúbbur hér í
kvödl svo það er ekki seinna vænna
en að fara að gera eitthvað en við
Leifa erum þó búnar að ákveða hvað
á að vera í matinn.
Veðrið er rosalega gott og í gær
sá ég að það er komið dálítið
júgur undir hana Hryðju mína
þannig að það styttist í folöld
hjá mér.... vona bara að Hryðja
eignist hryssu undan honum Klett
frá Hvammi.
21. apríl 2005
Folöldin sem sett voru í
niðurtúnið er bara kát þarna en þó
eru þarna tvö sem tolla ekki innan
girðingar, þarna foli sem heitir
Pakki, hann stökk nú bara á
griðinguna og vildi vera hjá
fylfullu merunum en hann rak augun
í mömmu sína þar, nú svo
Þristsdóttirin, hún bara sveif
yfir girðinguna án þess að
skammast sína og svo til baka
aftur. Vona nú að þetta fari
að tolla innan girðingar.
Féð var allt sett inn í sandgerði
í dag, og reynda undir kvöld
þurftur að setja þær inn því það
er jú von á rúningsmanni á morgun
til að rýja þær, ég fékk meira að
segja þá flugu í kollinn að kannsi
væri nú vit að gera þeim ormalyf
svona einsusinni.
Guðni Reynir fór svo til
Grindavíkur að keppa og viti menn
Selfoss vann 1-2 skildist nú að
heimamenn í Grindavík hafi ekki
verið kátir með þetta.
20. apríl 2005
Jæja ég er
nú búin að vera frekar löt að
uppfæra, hef eiginlega ekkert mátt
vera að því en á síðast vetrardag,
fórum við á Borg um kvöldið en þar
var hagyrðingarkvöld, það var bara
gaman og allir hagyrðingarnir
bændaksólagengnir frá Hvanneyri.
Þarna var einn Skagfirðingur hann
Jói í Stapa, svo var hann
Guðmundur í Hraungerði, eini
sunnlendingurinn og svo voru tveir
Borgfirðingar en konan heitir
Þórdís og svo var þarna Dagbjartur
nokkur, semsagt voða gamanþ
19. apríl 2005
Þá held ég bara að sumarið sé að
koma allavega vorið, hér held ég
hreinlega að hafi verið hátt í 17
stiga hiti ýkjulaust í dag, og þó
dálítill vindur líka.
Smiðirnir halda sínu striki og
voru 6 í dag. Þetta ætti að smá
tosast nema hvað það er komið í
ljós að hurðirnar sem búið var að
segja að væru í smíðum, eru líkast
til ekki í smíðum og okkar
heimildir segja að það sé ekki enn
farið að finna eitthvern til að
smíða þær, þetta er alveg ótrúlegt.
Við setttum ormalyf í folöldin í
kvöld og settum þau svo út í tún,
það gekk ágætlega, en svo þegar
gripirnir voru farnir að hlaupa um
túnið voru þarna tvær merar sem
hægðu ekki einu sinni á sér þegar
kom að girðingu, þannig að það var
bara hlaupið á griðingarnar, og
slatti af staurum brotnir, nú svo
fóru þær bara aftur á girðinguna á
öðrum stað til að komast inn í tún
aftur, við nefnum engin nöfn en
önnur er undan Þrist og hin undan
Þórodd, skilst svo að hryssan sem
á Þóroddsdótturina eigi jafnvel að
fara undir Þrist í sumar......það
verður eitthvað skrautlegt og
Selma mína að venja það folald við
rafmagn strax nýfætt eheheh í
garðinum í hveró neiiiiii ætli hún
reddi því ekki eitthvernvegin
öðruvísi hugsa ég.
18. apríl 2005
Hér mættu
slatti af smiðum í morgun og húsið
mjakast áfram þó ég sjái nú ekki
mikinn árangur en þeir eru víst að
klæða húsið að innan, en það sést
ekki úr glugganum hjá mér.
Það er svosem búið að vera rólegt
í dag, en ég er að slást við
eitthver verkefni sem þurfa að
klárast fyrir 22 apríl. Nú
en þann dag verður hér
matarklúbbur þannig að ég vona að
ég geti klárða þessi verkefni
fyrir þann tíma.
Ég er aðeins farin að velta fyrir
mér hvaða stórhesta skal nota
þetta árið en hugsa að það verði
allavega ein undur Foresta og gott
ef Jonni og Linda ætla ekki með
aðra, ég er nú ekki búin að ákveða
með hvaða meri ég fer en það er
örugglega af nógu að taka, er
allavega búin að panta fyrir tvær
í seinna gangmál. En ég finn
eitthverja með flottann lit því ég
á bara flotta liti hehe enga rauða,
brúna eða jarpa þetta árið held ég,
kannski eina rauðglófexta...en
annars bara skjóttar, ein leirljós
og hver veit hvað ég geri með þá
litföróttu og jafnvel albínóann en
tími nú tæplega að halda
albínóanum mínum strax, það er jú
landsmót næsta sumar og ætlum við
ekki að fara með allt sem hreyfist
þangað??? Nei ætli það,
hugsa að það veri bara frétt til
næsta bæjar ef maður durslaðist
sjálfur hvað þá ef maður færi nú
með hross....
17. apríl 2005
Það er bara búið að vera letilíf á
manni í dag, mjólka fara á selfoss
með Dóra í fótbolta, heim aftur
fara með Guðna Reyni í fótbolta og
á eftir að sækja hann en hann var
að keppa við Aftureldingu áðan,
heyrði í honum aðan og A liðið
vann 1-4 og Guðni Reynir náði að
pota inn tveimur af þessum 4
mörkum, gamli seigur...en B liðið
var enn að keppa.
16. apríl 2005
Það stóð nú
aldreilis til ferðalag í dag,
löngu skipulagt og Patrolinn
keyptur bara til þess að við
kæmumst öll sex í þessa
menningarferð. Jæja það átti
semsagt að fara héðan af stað um
klukkan 1400 við Bjössi og Jonni
og Linda og taka Huldu og Ingþór
með á Selfossi. Nú við vorum
búin að koma krökkunum vel inn í
mjaltir og mamma og pabbi komu og
hjálpuðu þeim, en þetta ætlaði
ekki að byrja vel því þegar átti
að fara að hafa sig til þurftir
helv....kvígan sem átti að bera í
janúar, allt í einu að velja
þennann dag og þennann tíma til að
bera.
Það var því ekkert annað að gera
en að fara í fjósið og kanna málið,
auðvitað fannst bara haus á þessum
kálfi, og loks þegar ég fann
lappirnar þá týndi ég hausnum.
Það var þá bara eina vitið að
hringja í Gunnlaug dýralæknir en
hann var í Reykjavík, þá reyndum
við við Sigurð Inga sem var á leið
upp í Gnúpverjahrepp að draga úr
kálf. Nú voru góð ráð dýr og
við máttum ekkert vera að því að
bíða eftir þessu svo það endaði
með að ég fann út hvernig best
væri að snúa kálfinum sem gekk nú
eiginlega ekki en hann kom
eitthvað undinn úr kvígunni, og
auðvitað dauð, rauð kvíga. Þetta
er svosem alveg eins og að snúa
lömbunum nema hvað það dugar lítið
að vera svona handleggjastutt og
ekki mjög sterk þegar kýrnar eru
annarsvegar. Jæja hvað um
það eitthvernveginn tókst þetta því
Bjössi, Jonni og Guðni Reynir voru
svo allir kárir í að toga og þetta
hafðist semsagt allt held samt að
ég hafi verið komin með rauðar
strípur í hárið eftir aðgerðina
heheheh
Þá var semsagt hægt að leggja af
stað, og stefnan tekin á Ármót til
Hafliða að skoða hesthúsið og
alles, þetta er alveg ótrúlega
flott, mikið af hrossum og frábær
aðstaða. Þá var stefana
tekin á Hestheima en þar áttum við
pantað í kvöldmat, ég hef nú bara
varla farið svo flott að borað
þetta var algjört æði, maturinn
æðislegur og frábært að koma í
heimahús og fá að borða æðislegan
mat og hjónin sungu svo fyrir
okkur eftir matinn. Í einu
orði sagt FRÁBÆRT. Þá var
það næsta stop eða Hótel Neðra Sel,
held bara að þar hafið verið
fleiri börn á hlaupum en eru hér
þegar flest er, og svo mikið af
fólki líka, aumingja Guðbjörg,
vona þeirra vegna að þetta sé ekki
alltaf svona, fór nú samt að rifa
upp hvernig þetta var hér fyrir
nokkrum árum, maður vissi varla
hver var að koma og hver var að
fara. Hvað um það það var
rosa gaman að koma til þeirra
Guðbjargar og Daníles og Braga og
Svövu, við kýktum í hesthúsið og
ég var nú bara ansi roggin, sá þar
Foresta frá Vorsabæ, nú og ég að
vona á folaldi undan honum og svo
var Klettur þarna frá Hvammi og
ætli það sé ekki bara rétt ókomið
folald hér undan honum líka, nú
svo var auðvitða húsið fullt af
flottum hestum, þarna voru þeir
Aron og Axel, og fleiri og fleiri
ég var nú ekki alveg að ná að
fylgjast með þessu öllu.
Vorum svo komin hér heim rétt
undir klukkann eitt í nótt held ég
bara.
15. apríl 2005
Búin að vera
ansi löt við að skrifa en það er
svosem nóg annað að gera,
eitthvernveginn hellast allt í
einu verkefnin yfir mann í
skólanum, en um daginn fannst mér
ekkert í gangi eða kannski bara
svo langt í skiladag heheh
Þakið er komið á húsið, þarf
endilega að reyna að taka myndir
en núna eru búnir að vera um 7-8
smiðir hér.
Ingólfur bróðir hann pabba verður
svo jarðaður í dag og ég ætlaði nú
að fara í jarðaförnin en hef
eiginlega ekki tíma þar sem það
hittist þannig á að það er klukkan
13.00 sem er jarðað. En ég
sendi bara bestu kveðjur.
Ég fór til Ingu á Björk í gær en
eitt af verkefnunum sem ég þarf að
skila er stöðumat í sauðfjárrækt
og þá er auðvitað best að finna
eitthvern sem nennir að filla út
skýslurnar sínar þannig að mér
fannst þetta nú aldeilis fínn
kostur enda var mikið prentað út
og ég er margs vísari og orðin
nokkuð viss um að minn metnaður í
sauðfjárrækt er ekki það mikill að
ég farin að skella mér í
skýsluhald.
Mér finnst eins og maður hafi
verið eins og jójó Miðengi Selfoss
alla vikuna og núna í dag loks
þegar Guðni Reynir þarf ekki á
æfingu þá þarf Sigga alveg
nauðsynlega að fara til
Reykjavíkur enda fataskápurinn
alveg tómur.
11. apríl 2005
Hér eru
mættir 8 smiðir og nú skal víst
taka á því hehe en vonandi klárast
þetta fyrr en síðar, þeir eru
semsagt farnir að raða plötunum á
þakið.
Nú Bensi, Kristín og Einar Óli eru
svo að fara til Portúgals í
fyrramálið ég ætla rétt að vona að
þau komi svo með smá sól heima í
Miðengi en mér finnst nú að
það mætti fara að vora smá.
Held bara að það hafi nærri því
verið kveiknað í húsinu í gær en
hér var þvílíkt skrítin lykt og
þegar við fórum að kanna málið þá
var kló og innstunga farið að
bráðna bak við búrið hennar Doppu
Dóra og hún bara steinhélt kjafti
ekki verið að láta mann vita.
Annars er svosem ekki mikið um að
vera hér Guðni Reynir og Dóri
alltaf í boltanum og Sigga alltaf
á flakki. Nú ég flakka líka
aðeins á nýja bílnum ekksert smá
gott að keyra hann.
8. apríl 2005
Lítið búið
að vera að gerast í dag en í
morgun var eiginlega slydda en
þegar ég fór á Selfoss uppúr
háldegi var snjóinn farið að tala
dálítið upp allavega á malbikinu
og þegar ég kom uppúr aftur um
hálffjögur var malbikið að verða
autt. Nú ég kýkti með fína
nýja bílinn til Orra en auðvitað
er það eitt af því fyrsta sem
maður gerir, held bara að honum
hafi litist ágætlega á gripinn,
þorði kannski ekki að segja annað
hehe
Setti mynd af blómunum á síðuna
rosa flott, en þarf að fara að
venja mig á að taka myndir með
videóvélinni því ekkert bólar enn
á digital vélinni minni.
Sigga þurfti alveg nauðsynlega að
fara til Freydísar í dag en ég
held að það verði ekkert af
jöklaferðinni í bili.
Það er ekkert hægt að fara á
hestbak þessa dagana því hér er
flest ef ekki allt komið á
sumarskeifur, en það hlítur að
fara að vora.
Búin að láta Sverri fá folann hann
Amor enda sá ég stórmun á hvað
folinn var ekki eins fallegur
daginn sem Sverrir fékk hann, mun
flottari þegar ég átti hann heheh
eða þannig.
Kýkti á hana Hryðju mína í morgun
en henni var haldið frekar snemma
í fyrra og gæti kastað undir
mánaðarmótin en sem betur fer er
ekkert júgur enn farið að myndast
það bíður eftir sólinni. Var
annars að skoða blaðið hestar og
þar sá ég að Daníel er með tvo
klára sem ég á von á folöldum
undan en það er Klettur frá Hvammi
og svo hann Forseti frá Vorsabæ
sem Daníel lætur nú ansi vel af
allavega vil ég hafa það alveg á
hreinu að ég á Forsetafolaldið
alein og reynar Klettsfolaldið
líka og ekki nóg með það heldur er
Forestafolaldið í skjóttir meri
sem er ekki svo slæmt held ég.
7. apríl 2005
Hún Kolla á
afmæli í dag til hamingju með
daginn og það er sko SkelluKolla
tuttugu og eitthvað mjög lítið,
innan við fimm held ég örugglega.
Það er búið
að vera rosa fallegt veður í dag
en rosalega kalt. Og hér er allt
hvítt og núna undir kvöld er 10
stiga frost og það var byrjað að
snjóa og ég sem hélt að það væri
komið vor.
Nýji bíllinn okkar kom austur í
dag og erum við semsagt komin á
nýjann grænan jeppa, myndir á
forsíðunni, rosa flottur hugsa að
ég verið dálítinn tíma að læra á
alla takkana, hef samt mestar
áhyggjur af þvi hvernig ég á að ná
græna ljósinu af, þegar ég fer í
Nóatún, en það er semsagt ljósið
sem segir mér að bíllinn sé í
fjórhjóladrifinu og það þykir ekki
gott á upphituðu bílaplani, en ég
vona að Bjössi viti þetta allavega.
Hvað um það haldið þið að ég hafi
ekki bara fengið þvílíkt stórann
blómvönd með bílnum, og ég er að
tala um risastórann blómvönd,
hugsa að ég kaupi aldrei annað en
Nissan hér eftir hehehe við Bjössi
eigum sko bílinn en ég fékk blómin,
þannig segi ég frá því og er bara
kát með það.
Smiðirnir fóru suður í gærmorgun
eftir að hafa verið fasti í snjó
hehe en ætluðu allavega þá að koma
aftur á morgun föstudag, ætla að
vona að þeir komi og setji þakið á
húsið á morgun og laugardag og
vonandi verður veðrið gott því
annars verður ekki hægt að setja
þakið á, það þarf víst eitthvað
alveg spes veður í þessar löngu
járnplötur, svo enginn slasi sig
og járnið fjúki ekki bara eitthvað
út í loftið.
5. apríl 2005
Það var
þokkalegt veður í morgun, samt
allt hvít þegar ég vaknaði, nú svo
hefur veðrið bara vesnað og núna
um kvöldmatarleiti er bara
blindbylur, hélt að ég yrið meira
að segja úti á leið í fjós áðan en
það var svo blint og mikil
snjókoma að ég vissi ekki fyrr en
ég var afvelta úti í móa hafði
semsagt tapað veginum sem ég ætlað
að labba eftir og var held ég bara
á leið út í hesthús, það er alveg
ótrúlegt hvað maður getur orðið
ruglaður og ekki á það bætandi.
Smiðirnir gáfust upp um hádegi og
hafa ekki sést hér síðan, létu
auðvitað ekkert vita að þeir yrðu
ekki í kaffi og kvöldmat en það er
svosem ekkert nýtt.
Nú við Bjössi erum að fá nýjann
bíl 7 manna það dugar ekkert minna,
enda alltaf með eitthvað af
aukabörnum og þegar maður er
einusinni búin að komast á
lagið með 7 manna bíl er ekki
aftur snúið. Nú er það
Nissan Patrol framsóknargrænn og
með DO númeri skilst mér svona til
að vera örugglega
ríkisstjórnarmegin hehe.
Skilst að Sigga sé á leið upp á
Vatnajökul um helgina það hlítur
að vera gaman en það koma fréttir
af því ef það verður af ferðinni
hjá þeim stöllum.
Guðni Reynir var að keppa í
fótbolta á laugardaginn, við
Gróttu og hans lið vann 14-2 það
er nú alveg ágætt og Guðni Reynir
var svo heppinn eða klár að hann
skoraði 4 mörk og lagði upp hin 10
ekki slæmt. Hann ætlaði
eiginlega með okkur í afmælið til
Gunna Har um kvöldið en Gunni varð
sjötugur, en Guðni Reynir kom svo
seint heim að það tók því ekki.
4. apríl 2005
Búin að vera
léleg við að uppfæra en ætlaði að
taka myndir af skemmunni en
auðvitað fannst ekki myndavélin,
og er farin að halda að henni hafi
hreinlega verið stolið en vélin
var við tölvuna mína á föstudaginn
langa en ekki sést siðan, það
hvarf reyndar eitthvað fleira hér
um páskana en ég er semsagt
eiginlega búin að gefa upp alla
von um að finna þetta og ég er
ekki sú eina sem er búin að leita
hér, þannig að kannski var vélinni
bara stolið það er eiginleg engin
önnur skýring, held samt í vonina
um að hún finnist eitthver daginn
en er ekki bjartsýn úr þessu.
Kannsi ég geti samt tekið mynd á
vídeótökuvélina mína veit að það
er hægt og er kannski ekki svo
flókið þegar á reynir en sjáum
hvort ég redda því ekki það er
alveg ómögulegt að geta ekki sett
inn myndir.
Hvað um að veðrið er alveg
yndislegt í dag og vorverður en
það var samt 8 stiga frost í
morgun þegar ég fór í fjós klukkan
6 í morgun.
Það eru mættir einir 6 smiðir held
ég veit samt ekki hvort þeir ætla
að setja meira járn á húsið eða
hvort á að skipta um járn á
göflunum, held samt að það gæti
bara verið sniðugt að hafa
sitthvort járnið á hliðunum
annarsvega og göflunum hinsvegar
þannig að þegar menn eru að
flækjast í myrkri við hesthúsið
ættu þeir að geta áttað sig á hvar
þeir eru staddir við húsið ef þeir
eru að leita að innganginum hehe
Það var farið út í hraun í morgun
að mæla út hvar nýtt
sumarhúsahverfi á að vera staðsett
en eitthvernveginn þarf víst að
fjármagana borholuframkvæmdir.
Sævar Ingi fermdist svo í gær,
þetta var rosalega vel lukkaður
dagur fannst mér, strákurinn svo
fínn, og ég held bara að allir
hafi verið glaðir og sælir með
daginn, til hamingju með daginn
aftur Sævar okkar.
31. mars 2005
Jæja haldið þið að ég hafi ekki
farið með Mözduna í skoðun í
morgun, en Doppa Dóra fór með mér
og gerði auðvitað gæfumuninn og
heillaði skoðunarmanninn....reynar
er bíllinn ekki nema ársgamall
þannig að auðvitað flaug hann í
gegnum skoðun.
Nú af húsinu er margt og mikið að
frétta, nú það tók ekki nema
hálfann dag held ég að setja
járnið á hliðarnar, allt nema
eitthverjar 4-5 plötur, sem ekki
finnast en svo eru eitthverjar 80
plötur sem ekki er nú alveg ljóst
hvar eiga að fara. Nú í
morgun var svo sett járn á gaflinn
sem snýr í suður, rosa fínt nema
hvað það er ekki sami litur og á
hliðunum og allt annað munstur á
járninu.......verð eiginlega að
fara út á morgun og taka mynd ef
ekki rignir allt of mikið en þetta
er magnað á að líta, og alveg
ómögulegt að átta sig á því
hvernig hægt er að klúðar jafn
miklu, eins og að hafa ekki sömu
gerð af járni allann hringinn en
við eigum eftir að sjá hvernig
járn fer svo á norðurgaflinn mjög
spennandi að sjá, en okkur er ekki
ætlað að byggja skemmu áfallalaust
en eins og kannski sumir muna þá
var byggð hér skemma um 1990 og
ekki tókst betur til með járnið en að
fína járnið sem fór á þá skemmu
var sett öfugt á, það er hliðin sem
var voða fínt máluð, og veðurþolin
var sett inn, og óvarða hliðin
sneri út, og gerir enn, var bara
máluð þegar mistökun uppgvötuðust.
28. mars 2005
Það er búið að vera gott veður í
dag líka held að það styttist
allavega verulega í það.
Stjáni frændi kom í dag og sótti
síðasta hrossið sitt, ekki seinna
vænna áður en þarf að sleppa aftur
en þetta er meri á fjórða vetur
sem hann ætlar að byrja að temja.
Ég þurfti bara eina ferð á Selfoss
í dag, eða reynda tvær eina ferð
með Guðna Reyni á æfinu og svo
fóru Sigga og Freydís með, nú og
svo fór ég aftur til að sækja hann
en stelpurnar ákváðu að fá vin
sinn til að skutla sér uppeftir í
kvöld, mun nær en að nota ferðina
hjá mér, enda er hann væntanlega
voða spennandi heheh
27. mars 2005
Það gekk
ótrúlega vel til byggða í
páskareiðtúrnum, eignlega vonum
framar og tímasetningar stóðust
meira að segja, hver hefði trúað
því.....
Það ringdi ansi mikið í gær en er
svo búið að vera gott veður í dag,
meira að segja ég er búin að fara
út að viðra mig, afutr hefur
Halldór varla sést hér inni eftir
hádegi en fyrir hádegi var tekinn
skurkur á páskaeggjunum en svo
bara bara farið út og þar er hann
ennþá og klukkan að verða hálfsjö.
Ég er búin að finna út úr þvi
hvernig vídeótökuvélin virkar
þannig að maður geti tekið vídeó
af hrossum sem á að selja og valið
besta skotið og sett sem ljósmynd
á netið, þetta uppgvötvaði ég
eftir að hafa átt vélina í meira
en ár en það er semsagt
fjarstýringin sem máli skiptir í
þessu dæmi, þannig að hver veit
nema ég reyni að setja inn link
sem er ,,hestar til sölu" en
stundum er ég að hugsa um að selja
litföróttu hryssuna mína sem er
bara að verða þriggja vetra í vor,
en ég tími auðvitað ekki að láta
hana nema á þeim árstíma sem hún
er í raun brún, þá finnst mér
þetta nú ekki fallegur litur en
svo lagast hún ótrúlega þegar hún
er í raun litförótt. Nú svo
þarf ég að drustlast austur í
Hemlu og taka vídeó af henni Hæru
minni og ef vel tekst til þá set
ég inn mynd en hún er ekki
til sölu...
Nú og svo paraði ég Doppu Dóru í
morgun en það er nánar undir
Kersins Kennel...
25. mars 2005
Veðrið er alveg frábært og komið
vor í mann eða þannig,
Miðengismenn eru lagðir af stað í
páskareiðtúr, og það á að ríða út
að Borg og fá ,,KAFFI" hjá Böðvari
og Lísu á Gömlu Borg. Ég
hugsa að ég nenni ekkert að
flækjast þangað, bara að hafa það
gott heima.
Nú þegar við Bjössi mættum í fjós
í morgun þá lá nýbæran sem bar í
gærkvöldi í doða og gott betur því
legið lá allt í flórnum, það var
lítið annað að gera en að lóga
kúnni, því hún var það langt leidd
greyið.
Annars er ekki mikið búið að vera
í gangi hér síðustu daga,
smiðirnir fóru í páskafrí
seinnipartinn á miðvikudaginn og
mæta svo helmingi fleiri skilst
mér á þriðjudag, en þá er kominn
tími á að klæða húsið held ég bara,
þannig að þetta verður ekki lengi
að klárast sérstaklega ef
mennirnir verða hátt í 10.
22. mars 2005
Veðrið er alveg frábært í dag logn
og blíða eða þannig allaveg held
ég bara að það sé að koma vor.
Hann Loftur fóðureftirlitsmaður
kom í dag, ég held bara að þetta
hafi allt verið í góðu lagi hjá
okkur, allar skeppnur vel fóðraðar
og nægur heyforði. Hann sá
reyndar ekki Doppu Dóru og Voða en
held að þeim veitti ekki af
aðhaldi.
Það mættu smiðir hér í morgun, og
gott ef þeir eru ekki 5 núna
þannig að væntanlega er nægt efni
handa þeim og þetta er bara að
gera sig, ég get samt ekki sagt að
ég sjái neinn mund en það er
ekkert sem segir að þetta gangi
samt ekki vel, allavegana get ég
ekki betur séð en að þeir séu
alltaf að vinna eitthvað.
Það lítur út fyrir að það sé að
bera fyrsta kálfs kvíga hér í
fjósinu en við erum örugglega búin
að mjólka hana í viku 10 daga enda
ekkert annað að gera frekar en að
láta mjólkina leka úr henni,
annast sendi ég sýni úr henni í
gærmogun þar sem mér leist ekki
alveg á þetta, setti í sér glas
fyrir hvern spena, í neinu glasi
var hvít mjólk, nokkuð réttur
litur, í öðru var gult...ekki gott
í því þriðja var ljósbeikt....blóð
semsagt og í þvi fjórað var meira
bleikt, það er meira blóð, það var
samt búið að setja pencilinn kúr í
hana þar sem það var starx útsérð
með að það væri mest blóð í henni
en það hefur ekki dugað til svo nú
er bara að sjá hvað setur.
21. mars 2005
Það er búið að vera ágætt veður í
dag, samt er búið að rigna dálítið
en hálfgert vorveður. Nú það
var svo von smiðum í morgun, og
vit menn þeir mættu klukkan fjögur
í dag, gaman að hafa svona menn í
mat. Hvað um það þeir vinna
vel þegar þeir hafa efni þannig að
við verðum bara að vona að það
klikki ekki.
Nú Sigga er í túlípanavinnu hehe
hjá Freydísi, það er ágætt á meðan
þær standa sig og eru ekki of
uppteknar af því að spjalla.
Svo er að stittast í
páskareiðtúrinn en í ár verður
farið á föstudaginn langa, veitir
ekki af að hafa aðeins lengri dag
í þennann reiðtúr, svona ef miðað
er við hvernig gekk í fyrra.
Nú stefnan er tekin á Gömlu Borg
til Böðvars, og svo heim aftur,
hvernig sem það svo gengur, en ef
skyggnið er gott hlítur þetta að
rokganga eða hvað?
20. mars 2005
Ég dreif mig
í morgun með Halldór á
fótboltaæfingu en við erum búin að
vera ansi löt undanfarið við að
mæta. Nú svo sótti ég Siggu
og Sævar en þau voru hjá Ragnheiði
og Aðalsteini um helgina, mikið
stuð hjá Ingu að Palla að passa
unglingana.
Svo var farið í fermigarveislu á
Borg en hann Elvar Ingþósson var
að fermast, þetta gekk voða vel
fyrir sig og maturinn góður.
Svo er næsta ferming hjá Sævari
Inga en það sunnudagur eftir páska.
Nú svo þegar ég var búin að mólka
þá þurfti ég að skutla Siggu til
Freydísar en þær ætla að
túlípanast eitthvað annaðhvort eru
þær að skera eða pakka túlípönum,
þær eru víst bara duglegar og um
að gera að láta þær vinna aðeins
stelpuskjáturnar.
19. mars 2005
Hann Guðni Reynir frumburðurinn er
16 ára í dag, til hamingu með
daginn Guðni minn en hann er í
Damörku þessa stundina ásamt 10.
bekk í Reykholtsskóla.
Það er búið að vera ágætt veður í
dag, þokkalega hlítt og úði, ég
held nú samt að ég sé nú bara búin
að sofa meira og minna í dag.....en
ekki að það séu neinar fréttir, en
það telst öruggleg til frétta að
ég fór í hesthúsið í dag að kýkja
á hann Hæring minn, ég var bara
rosa ánægð með hann,, hann er til
dæmis ekki eins mikið minni og hin
folöldin, eins og hann var í haust,
nú og ég gat klappað honum og
alles, náði svo aðeins að pota í
Amor hann er líka ansi fínn,
grannbyggður og ansi frekur og
leiðinlegur við hin tryppin...en
hann er jú flottur á litinn,
bleikálóttskjóttur og svo hann
Hæringur sem ég er ekki alveg búin
að finna út úr hvort hann sé
grávindóttur eða
bleikálóttvindóttur, það getur
brugðið til beggja vona með það
enn.
Það var svo komin kvígukálfur í
fjósinu þegar við fórum að mjólka
kvöldmjaltirnar, ansi fínn kálfur
sem vonandi veður eitthvert úrval
þegar það að kemur en það er
ómögulegt að segja.
18. mars 2005
Árshátíðin
gekk bara ansi vel í gær hjá
krökkunum, held að eldri
krakkarnir Guðni Reynir, Sigga og
Freydís hafi bara verið hálfspæld
að hafa ekki verið með.
Halldór var forsetinn í
tískusýningu, hann hafði jú þetta
líka flotta hár en mættu svo með
fléttur......
hann var því
kynntur sem Ólafur Ragnar með nýja
hárgreiðslu, og vakti mikla lukku.
Það gengur bara ekkert með
bygginguna, aumingja smiðirnir
gáfust upp um hádegi í gær en þeir
voru að bíða eftir efni sem átti
að hafa lagt af stað úr Keflavík
ca seinnipart þann 16 í síðsta
lagi snemma morguns þann 17, og
við erum að tala um mars 2005.
Hvað um það þeir semsagt fóru þar
sem það var ekkert efni til að
vinna með, en við áttum nú von á
þeim í morgun en hér bólaði ekkert
á efni og ekkert á smiðum heldur
enda kannsi ekki von þar sem þeir
hafa líklega frétt að það væri
ekkert efni komið. Veit
svosem ekki alveg hvað varð um
efnið tel víst að það hafi bara
ekki lagt af stað, en ef það hefur
lagt af stað væri kannski ráð að
fara og auglýsa eftir vörubíl með
efni.....
Í dag er svo búið að vera ansi
ágætt veður reyndar dálítið hvasst
en maður hefur séð einhverja
vísbendingar um að kannski sé að
koma vor,,,,einhverntímann bráðum
allavega.
Sigga ætlar að vera á Selfossi um
helgina hjá Ragneiði vinkonu sinni,
það er ágætt aðeins að fara að
flakk hehehe en Sigga fer svosem
ekki oft á Selfoss til að vera
yfir helgi þannig að nú er
aumingja Ingveldur í stresskasti
að passa tvær stelpur, nú og svo
veður einhver formúla í nótt held
ég þannig að sú má hafa sterkt
hjarta ehehe en þetta eru svo
þægar stelpur. Hann Bjartur
tók auðvitað á móti mér þegar ég
fór með Siggu, sá er roðinn stór
og fallegur og þessi litur á honum
er alveg frábær.
Hann Guðni Reynir er að fara til
Danmerkur í fyrramálið á 16 ára
afmælisdaginn, það er alveg
ótrúlegt að maður eigi orðið 16
ára ungling, og ég áttaði mig á
þvi að við Bjössi veðum ein heima
í kotinu með Halldór þannig að það
verður ekkert rifridi, og
rólegheit hjá Halldóri en það er
jú hann sem yfirleitt þarf að
rífast og þá helst í systur sinni
sem lætur nú ekki alveg nógu vel
að stórn finnst honum. Guðni
Reynir kemur svo heim á
miðvikudaginn þann 23 mars þannig
að þetta er svosem ekki löng ferð,
Sigga kemur svo á
sunnudagsmorguninn en við erum að
fara í fermingaveisluna hans
Elvars, sonur Ingþórs og Huldu,
verið að ferma restina...
17. mars 2005
Það gengur
frekar hægt með húsið það vantar á
bita, eða spýtu og allt eftir
þessu, mikið vesen semsagt en
vonandi fer þetta að gera sig.
Það er Árshátið hjá Ljósafossskóla
í dag, Halldór fékk Siggu systur
sína til að flétta sig í gærkvöldi,
það tók nú ekkert smá langann tíma
en flétturnar eru komnar og stáksi
voða fínn, veit þó ekki hvort
þetta passar inn í hlutverkin sem
hann á að leika á árshátíðinni.
15. mars 2005
Hálf var
húsið nú tómlegt í gær en það var
bara Halldór sem kom heim úr
skólanum, Guðni Reynir og Sigga
fóru upp í Laguarás og ætluðu að
gista hjá vinum sínum þar.
Það gekk ekkert með húsið í gær
eða þannig það mætti enginn austur
en mennirnir voru víst að vinna
við húsið þó þeir kæmu ekki austur,
en núna eru tveir mættir og
vonandi finnst einhvað út úr
þessum teikningum og því sem ekki
er að passa, þori nú ekki að
útlista það hér því ég botna lítið
í þessu öllu saman en einhvað
passaði ekki það er nokkuð ljóst.
Annars er lítið um að vera bara
skítakuldi vægst sagt hélt bara að
ég mundi ekki ná að komast inn úr
fjósi í morgun það var svo kalt og
vindur það að auki, en núna er sól
og æðislegt gluggaveður þó ég þoli
nú ekki að standa lengi útivið til
að kalla á hundana.
Var að velta fyrir mér hvort ekki
væri ráð að setja inn myndirnar
sem eru á forsíðunni inn á milli
hér í fréttir, en ég kem því
kannski í verk í von um að þær
verið ekki allt of þungar svo
fréttasíðan opnist nú ekki allt of
seint.
Nú Brella gamla er byrjuð að lóða,
hún er alveg eins og klukka, svo
er bara að vona að Doppa Dóra
fylgi á eftir, og helst Samba og
Urður svo þetta verði bara allt í
sama pakkanum. Það þurfa
allir að eiga eins svona Brellu
sem eru að rækta, tík sem lóðar á
6 mán fresti og ekkert vesen.
Það er svo fúlt að þurfa að bíða í
8-9 mánuði eftir þeim og stundum
kannski 11 mán aldrei hægt að
ganga að neinu vísu. En
Brella gamla klikkar sko ekki.
Held endilega að Kristín eigi
afmæli í dag fekar en í gær,
allavega til hamingju með daginn
ef ég skildi nú vera búin að
gleyma því aftur í kvöld í fjósi
heheh.
13. mars 2005
Það er búið
að ganga ljómandi vel með húsið
þar til í gær, þá stóðu smiðirnir
bara og snéru teikningunum í
hringi og fóru fyrir rest, vonandi
er þetta einhvað sem hægt verður
að laga.
Í gær laugardag var rosa gott
veður en frekar kalt og í dag er
enn kaldara og vindur líka, það er
kannski full mikil bjartsýni að
vona að það sé að vora en það
hlítur að koma að því hér líður
vikan bara á tveim þrem dögum
finnst mér þannig að það verður
farið að hausta fyrr en varir.
Guðni Reynir er að fara til
Danmerkur eftir tæpa viku, með
skólanum og verður í ca 3-4 daga
minnir mig, en hann fer á
afmælisdaginn sinn þann 19 mars en
þá verður frumburðurinn 16 ára og
Selma þarf að fara að tryggja
bílinn enn betur hehe, nei varla
drengurinn hlítur að vera rosa
flínkur að keyra eins og hann á
ættir til.
Urður er að átta sig á því að ef
hún étur ekki þurrmatinn þá fær
hún ekkert heheh hún reynir samt
og um daginn át hún gúrku, og
fannst rosa gott, hún er samt að
fá sama fóður hér og heima hjá sér
en auðvitað er um að gera að reyna
hehehe
Þegar Guðni Reynir fór út í fjós
seinnipartinn í gær var þar fæddur
þessi flotti boli og auðvitað
undan Baulu hans Guðna, þetta átti
aðuvitað að vera kvíga samkvæmt
öllum mínum útreikningum en svona
getur þetta verið.
Dóra frænka í Keflavík átti
sextugsafmæli þann 11 held ég
örugglega það er allavega einhver
sem á afmæli þann 11 á því heimili
og það er veisla í dag.
Bensi og fj fara sem fulltrúar
okkar en einhver verður að mjólka
kýrnar, það gerir sig ekki sjálft.
9. mars 2005
Ég hélt bara
í gærkvöldi að hún Urður, tíkin
hennar Sillu væri bara að deyja úr
hræðslu, aumingja tíkin skalf og
nötraði og var meira að segja með
uppköst með þessu, bara aldrei séð
hund svona mikið hræddan, og út af
hverju....jú Guðni Reynir var að
horfa á Chelsea leik og í hvert
sinn sem Chelsea skoraði var bara
eins og þakið væri að fara af
húsinu hann galaði svo mikið og
aumingja Urður var bara alveg að
missa sig.........hvernig er þetta
þarna á Akureyri er ekki horft á
Enska boltann með tilheyrandi
látum?????? En með þessu
framhaldi fær annað hvort tíkin
hjartaáfall eða fer að halda með
Chelsea.
Það eru þrír menn búnir að vera á
fullu í dag að reisa stálgrindina
á húsinu og ég gat nú ekki betur
séð í kvöld að þeir væru að klára
að setja upp síðasta rammann eða
hvað það er nú kallað, svo maður
er bara farin að sjá hvernig þetta
á eftir að líta út og eins á hvað
fjall eða fjöll húsið á eftir að
skyggja á svona frá mínu húsi séð
allavega. Ég ætla að reyna
að druslast til að fara út á
morgun og taka mynd, svona til að
setja á síðuna.
8. mars 2005
Það var bara
ansi ágætt að vera í Stykkishólmi
um helgina, á laugardeginum fór ég
að Bergi til Önnu Dóru að skoða
hunda og hesta og fólkið auðvitað
líka. Auðvitað sá ég ansi
flotta hesta og hunda líka.
Í dag er bara rok og rigning, ekki
mikið spennandi veður og varla
hundi út sigandi, en þó reyna
Brella og Glampi að þrjóskast við
að vera úti, hin voru öll voða kát
þegar ég setti þau inn.
Urður er komin í pössun en Silla
er farin á Crofts hundasýninguna,
gaman hjá henni en við Urður erum
bara kátar að vera ekkert á
einhverju flakki.
Bjössi er farinn í bæinn með
Fordinn og kemur aftur svo heim á
nýja tarktórnum var það ekki New
Holand held það allavega er það
blár traktór.
Það er von á sláturbíl á eftir sem
tekur tvær kýr, auðvitað væri
réttast að losa sig við kýrnar og
kaupa mjólk í Bónus og setja í
tankinn hehehe en það er nú
kannski ekki gott framtíðarplan.
Það mættu tveir smiðir í gær, þeir
voru á fullu allann daginn en en
auðvitað sé ég ekki nokkurn mun
þar sem ég verð víst að fara út úr
húsi til á sjá árangaur en þegar
þeir fara að reisa húsið þá sé ég
þetta út um gluggann og fer kannki
og tek mynd..
4. mars 2005
Þá á að fara
að leggja í hann í Stykkishólm,
við Bjössi mjólkuðum í morgun og
þá var hún Bót að bera, hún átti
svo skjöldótt naut sem varð að
draga úr henni, en hann er lifandi
og það er jú fyrir mestu. Ég
uppfæri þá ekkert fyrr en á
sunnudag eða mánudag, það er alveg
agalegt að komast ekki á netið í 2
daga heheh
3. mars 2005
Það eru
komnir smiðir..........hver veit
nema þetta sé bara að gera sig, og
vonandi getum við notað húsið
einhvað í vor í sauðburðinum.
Nú og kannski á láta tryppin
hlaupa þarna um og monta sig, ekki
má nú blása á þessi grey eða
kannski ekki á mig þegar ég fer að
skoða....
Í gær voru
sóttir tveir gámar þannig að núna
er bara einn eftir, og nú fer
þetta allt að gerast.
Það var mokað undan lömbunum í gær
og Bensi fékk þá flugu í höfuðið
að rýja lambgimbrarnar, það voru
rúnar 4 í gær, þetta tekur viku ca
svona ef ekkert bak gefur sig.
Hörður var svo liðlegur við mig í
gær eins og alltaf og tók fyrir
mig hundafóður, ekki þíðir að fara
í helgarfrí og skilja hundana
eftir matarlausa.
Nú og svo mættu Ræktó menn, mér
skilst að það eigi að dæla 20 l/s
í fjórar vikur og finna út úr því
hvernig vatnið er þegar á reynir
og eins hversu heitt það er við
þessa notkun, nú og hvernig best
verður að nýta það.
1. mars 2005
Jæja
nú er ég kát, það bara mættu menn
í morgun til að tæma gámana og
gott ef ekki er líka búið að ráða
smiði til að reisa húsið, skilst
að það verið byrjað á fimmtudag,
svo mæta þeir aftur á mánudaginn
og fara bara ekkert fyrr en húsið
er risið.... ég ætla að vona að
þetta gangi eftir því þá náum við
að taka ullina af fénu fyrir
sauðburð, það væri nú ekki
leiðinlegt, það er svo mikið betra
líka í sauðburðinum að eiga við
féð, nema kannski að ná þeim....
Ræktó er samt ekki mætt til að
gera það sem þeir áttu að gera,
hvað sem það nú er, er annars
komin með lista frá Kristjáni Sæm,
hvað það er sem þarf að
kanna, sýnist að þetta ferli taki
um 4 vikur svo það er ágætt að
fara að koma einhverju í verk.
Það verður nefninlega farið að
styttast í apríl þá svo það er
bara farið að styttast í vorið
held ég bara.
28. feb. 2005
Það er búið að vera rólegt í dag,
engir smiðir og enginn kom heldur
frá Ræktó... hvað um það veðrið er
búið að vera ansi gott, í dag og
nú er farið að styttast í að við
förum í Stykkishólm en Dóri er
búin að sitja við í dag og
skipuleggja hvað hann ætlar að
gera í bílnum á leiðinni vestur,
og hvað hann ætlar að borða og
hvenær...búinn að liggja yfir mbf
síðunni og spá í hvað safa best sé
að taka með.
Fyrsta fréttabréf ársins á vegum
hestamannafélagsins Trausta fór í
póst í dag, ég var nú farin að
halda að þetta félag væri bara að
deyja hreinlega en það er
greinilega einhvað að gerast,
punktamót og svo árshátíðin sem
verður í apríl ef henni verður
ekki aflýst.....
27. feb. 2005
Hér er nú
ekki mikið um að vera, gámarnir
standa óhreyfðir hér í hlaðinu og
ekki búið að ráða smið til að
reisa húsið, mér fer nú að verða
skapi næst að tala við lögfræðing
og athuga hvað er hægt að gera,
okkur var lofað að húsið yrði
klárt um miðjann mars og það var
miðað við að það næði þessu
ákveðna skipi, það stóðst með
skipið í þetta sinn, en að það
skuli ekki vera hægt að ráða menn
til að reisa húsið er alveg með
ólíkndum og þó skilst mér að það
séu til smiðir á lausu sem mega
vera að þessu það er ekki málið.
Það er vona á mönnum frá Ræktó á
morgun til þess að finna einhvað
út út þessu heita vatni, mæla
einhvað og svoleiðis svo hægt sé
að fara að vinna einhvað í þessum
málum, lítið gagn í þessu vatni á
meðan það er enn neðanjarðar.
Það fæddust tvær kvígur á
föstudaginn minnir mig önnur rauð
og hin dauð.....sú dauða var
aðuvitað hvít og einhvað snúin,
við urðum að fá Gunnlaug til þess
að ná kálfinum, en kálfurinn var
nú ekkert rosa stór bara snúinn,
nú og svo varð Gunnlaugur að koma
aftur á laugardagskvöldið því
kýrin var komin með doða, og önnur
með júgurbólgu og hita, alltaf
einhvert vesen en það fylgir
svosem, við erum samt frekar
heppin held ég með ástandið í
fjósinu svona almennt.
24. feb. 2005
Held að það sé ekki búið að finna
smiði til að reisa húsið......þetta
er nú ekki gott og ég ekki mjög
kát en ætla rétt að vona að þetta
skýrist um helgina.
Það er búið að vera voða gott
veður í dag, kannski að það fara
bara að vora en þó held ég nú að
það sé full mikil bjartsýni.
Er búin að liggja yfir einhverri
markaðsfærði í dag, þetta lítur
voða vel út og auðskiljanlegt þar
til maður þarf að finna út úr
einhverju sjálfur, það er svo
lítið mál að smaþykkja það sem
maður les og þykjast skilja það en
verra þegar á reynir með þessi
verkefni.
Við Sigga vorum að ræða allskonar
skólamál, hvað er gaman og hvað
ekki, skylst að sund sé til dæmis
ekki gaman, skil það svosem vel.
Svo sagði Sigga allt í einu ,,ég
sé það alltaf betur og betur hún
Ingveldur var langbest".
Þannig að hún saknar nú gamla
kennarans dálítið enda var
Ingveldur ekki bara kennarinn
þeirra heldur vinur þeirra líka og
svo mikil ungamamma ef á þurfti að
halda. En það er ekki á allt
kosið, einhver börn á Selfossi
græða bara á því að fá hana núna.
Annars var Sigga að taka þátt í
einhverri stærðfræðikeppni í gær,
hún og Hjörtur Freyr sem býr í
Laugarási fóru úr níunda bekk,
veit nú ekki hverjir fóru úr
tíunda bekk, allavega ekki Guðni
Reynir heheh ef þetta hefði verið
fótbolta keppni hefði hann
örugglega átt sjens á að fara en
kannski ekki stærðfræði.
Dóri átti að fara til tannlæknis í
dag, en fullyrti að hann væri
alveg útskrifaður og harðneitaði
að fara en Sigga átti eftir að
fara og fór í hans tíma, held að
Sigga sé ósköp fegin að bera búinn
en Dóri fékk tíma í mars en þá
átti Sigga að fara þannig að hann
situr í súpunni með það.
23. feb. 2005
Nú eru gámarnir komnir með húsið
okkar, þetta eru þrír gámar og nú
bíður maður bara spenntur eftir að
einhvað meira gerist. Það
þarf fyrst að finna smið...vona að
verktakinn sem er með þetta hús
okkar á sinni könnu verið snöggur
að finna einhvern til að reisa
húsið, hefði auðvitað átt að vera
löngu búinn að ganga frá því en
það er lítið gagn í húsinu í
gámunum.
Það var farið með tvær kýr í
sláturhús í dag, báðar einhverjar
júgurbólgu kýr.
Nú og það hefur verið ákveðið að
kaupa traktórinn sem um ræddi
þarna um daginn, það er semsagt
New Holand traktór sem verður 135
hestöfl þegar búið verður að setja
í hann túrbínu. Við setjum
Fordinn upp í, það vekur mismikla
lukku því Halldór er alveg
öskuillur yfir þvi að það eigi að
selja traktórinn ,,hans" þegar ég
sagið honum svo að ég væri að fara
í fjós í kvöld sagði hann bara ,,ef
það verðu ekki búið að selja allar
beljurnar líka...." mjög fúll
semsagt.
22. feb. 2005
Ef það var vorveður í gær þá er
bara sumar í dag held ég bara,
veðrið búið að vera æðislegt og
engin þoka eins og í Reykjavík
skist mér.
Guðni Reynir ákvað að fara á
hestbak með Dóra frekar en að fara
á fótboltaæfingu, en æfingin átti
að vera inni. Nú ekki
gekk reiðtúrinn eins vel og tíl
stóð því folinn hans Dóra, hann
Skjóni var ekki alveg sammála þeim
bræðrum um ferðahraðann og það
endaði með því að Dóri labbaði
heim og Guðni Reynir varð líka að
labba því Sjóni var ekki á því að
fara einhvað rólega í taumi.
Bjössi fór svo á Skjóna í kvöld og
einhvað fékk aumingja Skjóni að
hreyfa sig.
Nú Sigga og Freydís sáu fram á að
geta snýkt sér far á Selfoss, bara
til að slæpast þar held ég.
21. feb. 2005
Það er búið
að vera rosa gott veður í dag,
manni finnst eins og það gæti
hugsanlega farið að vora bráðum.
Bjössi og Bensi fóru í bæinn í
morgun að skoða traktór sem er
verið að velta fyrir sér að kaupa,
held að þetta sé New Holand rosa
stór og fínn ekki að spyrja að því
en það þarf eða er æskilegt að fá
sér stærri vél við nýju samstæðuna,
svo þetta virki nú allt það er
ekki nóg að kaupa stóra
rúllusamstæðu ef það er ekki tíl
traktór sem ræður við gripinn.
Í dag komu smiðirnir eða allavega
einhverjir á þeirra vegum og tóku
allt dótið sem fylgdi þeim sem
unnu sökklana. Nú er þá
komið pláss fyrir gámana sem húsið
er í, hugsa að þeir komi á morgun
og vonandi er búið að finna
einhverja sem setja svo húsið upp,
auðvitað væri best að fá sömu menn
og gerðu sökklana, en þetta
breytist dag frá degi allavega þær
uppl. sem ég fæ, en það kemur í
ljós vonandi þegar varið verður að
setja húsið upp.
Magga
á afmæli í dag, þetta er einn af
fáum dögum sem ég man yfirleitt
eftir, til hamingju með daginn
Magga mín.
20. feb. 2005
Maður er
bara alveg hættur að nenna að
skrifa nokkurn skapaðann hlut hér,
en samt er nú alltaf einhvað að
gerast.
Í dag er búið að vera hálfgert
letilíf en þó erum við Dóri búin
að fara á Selfoss, en bara eina
ferð í dag, en á sunnudagsmorgnum
er æfing klukkan 10 á morgnana,
þetta er svosem ágætur tími.
Annars er daginn farinn að lengja
alveg ótrúlega, það er bara orðið
ansi bjart ansi lengi, það er svo
skrítið að það er bara myrkur
finnst manni og svo bara einn
daginn orðið bjart, það er ekki
eins og þetta hafi verið að smá
gerast.
Við Halldór fórum á Selfoss í
gær,en 6. fl í fótboltanum var með
kökubasar til að safa fyrir
Vestmannaeyjarferðinni í sumar, nú
þetta gekk vonum framar og þegar
það voru rétt um 10 tertur eftir
og þá er ég að tala um alvöru
hnallþórur, þá duttu þarna inn
jakkafatamenn úr stórborginni sem
höfði augastað á plássinu sem við
vorum að nota og viti enn þeir
keyptu bara upp allar kökurnar.....rosa
heppnar við, held að þetta hafi
bara verið búið um 15.00 ekki
seinna.
Á meðan var Guðni Reynir og co. í
3 fl. í fótboltanum á Selfossi að
keppa á Íslandsmóti innanhús held
ég örugglega og þeir fengu 4 sæti
sem er nú ansi góður árangur,
bíðið bara þar til þessir drengir
komast út í rok og rigningu þá
fara þeir að raða inn titlum.
Sigga, Bjössi, Jonni og Sævar fóru
líka á Selfoss en krakkarnir tóku
með sér hesta en gömlu mennirnir
fengu lánaða hesta á Selfossi, og
það var farið í Þorrareiðtúrinn á
Selfossi, þetta var víst rosa
gaman. Allt þetta
Selfossstúss í gær kostaði mig
fjórar ferðir á Selfoss... ekki
mjög gaman fannst mér.
16. feb. 2005
Held bara að
við séum að ná heilsu, ég fór
allavega í fjós í kvöld og við
Bjössi förum í morgunfjós í
fyrramálið, nú og Dóri fer í
skólann á morgun. Sigga er
enn spræk, reyndar eru þær
vinkonur Sigga og Freydís í
singstar núna......er nú hreinlega
ekki viss um að það sé í lagi með
þær..
Hvað um það haldið þið ekki að
húsið fína sé bara komið til
landsins og búið að borga svo hægt
sé að ná gámunum úr tolli, þannig
að það er bara von á 3 tuttugu
feta gámum hér á morgun eða hinn
allavega fyrir helgi skilst mér,
svo nú þar að klára að fylla inn í
sökklana en ég held nú að Gummi í
Hólum sé langt komin með það.
Þá er bara að vona að verktakinn
sé búinn að ráða menn til að reisa
húsið, svei mér þá ef þetta er
ekki bara að gerast.
Nú Guðni Reynir hafði það af að
komast á fótboltaæfingu í kvöld en
þessi æfinga er jú alveg
nauðsynleg það er bara þannig,
valið í einhvað lið og allt að
gerast, og aumingja Guðni Reynir
búinn að liggja í flensu og
fótboltaferillinn í molum....en
vonandi er hann það sprækur að
hann tolli í liðinu, en það er
svosem gott að menn þurfi að
keppast við að vera í liðinu ekki
gott að vera sjálfkrafa þar það
getur ekki verið gott.
15. feb. 2005
Það gengur
frekar hægt að ná heilsu þó held
ég að við Dóri séum á
endasprettinum, er ekki eins viss
um að Bjössi sé nokkuð að skána,
en reyndar ekki að vesna heldur en
sjáum hvort við lifum ekki fram að
helgi úr þessu.
14. feb. 2005
Hér liggjum
við bara í hita og flensudruslu,
það er Bjössi, Halldór og ég,
sjálf held ég að ég hafi bara ekki
fengið hita síðan ég var krakki,
en hvað um það þetta hlítur að
líða hjá fyrir rest.
Sævar Ingi á afmæli í dag og er
líkast til 14 ár og svo er það
hann Voði sem á líka afmæli held
að hann sé 8 ára.
Til hamingju
með daginn báður tveir.
13. feb. 2005
Guðni Reynir loksins að komast á
skrið eftir flensuna en nú er
Bjössi orðinn veikur og Halldór
líka, sjálf er ég hálf slöpp en
þetta bítur ekkert á Siggu ennþá.
Við fórum á Selfoss til mömmu og
pabba í matarboð, Bjössi var heima
með hita en Dóri fór með, var ekki
komin með hita um hádegið.
Það er alveg merkilegt að þeir sem
eiga lengst að eins og Halldóra
frænka sem býr í Húnavatnssýslunni,
hún mætir alltaf en hinir sem búa
nær er voða uppteknir og er ég
svosem engin undartekning þar.
Annars kom Líney reyndar ekki en
hún býr í Bandaríkjunum.
10. feb. 2005
Það var frí í skólanum í dag og
foreldraviðtöl, Guðni Reynir er
enn veikur og með hita, held þó að
það hafi ekki verið veikur af
áhyggjum heheh þetta kom ágætlega
út hjá krökkunum öllum, eru bestu
skinn og gengur bara vel.
Það snjóaði ekkert smá í gærkvöldi
og er orðið ansi mikill snjór hér,
það snjóaði reynda aðeins í dag
líka, Orri minn, það er hvolpurinn
var voða kátur með þetta en það
var nú ekki meira en svo að það
rétt sæist í trýnið á honum up úr
snjónum, það var alveg mesta furða
hvað hann komst um í svona miklum
snjó.
Bjössi og Sigga eru búin að vera
dugleg að fara á hestbak í dag,
búin að hreyfa slatta af hrossum
og gott ef ekki er búið að járna
Hrekkja Brún upp líka. Nú
Gráni gamli er kominn á járn og er
óhaltur skilst mér svo þetta
stendur allt til bóta, samt alveg
agalegt að reiðhöllin skuli nú
ekki vera tilbúin. Við vorum
samt heppin að það var ekki í
skiptinu sem fórst um daginn en
það voru víst gluggar og hurðir
frá Guðmundi Rúnari og Særúnu, sem
átti að fara í nýja húsið sem þau
eru að byggja, þannig að það tefst
líklega einhvað að húsið þeirra
verið fokhelt.
9. feb. 2005
Þá er það öskudagurinn, ég fór á
Selfoss, en Dóri og Ingþór á
Bíldsfelli ætluðu að hittast þar
og vera með í öskudagsstemmingunni
þar. Það var bara rosalega
gaman, og þreyttir drengir sem
komu heim með verki í fótum þrátt
fyrir að vera keyrðir á milli
staða meira og minn, held að þeir
hafi bara komið við í næstum
hverju einasta fyrirtæki á
Selfossi.
Það fór ekki svo að flensuskömmin
næði okkur ekki en í morgun þegar
stóru krakkarnir ætluðu í skólann
þá var Guðni Reynir með mikið af
beinverkjum og 39 stiga hita,
karlræfillinn veit varla hvað það
er að vera veikur og veit bara
ekkert hverng hann á að vera.
8. feb.2005
Það er bara snjókoma í
augnablikinu hér, en annars voða
gott veður. Halldór er búinn
að ákveða að fara á Selfoss á
morgun Öskudag og ganga á milli
búða og syngja....það gengur samt
ekki alveg að fá frí í skólanum
fyrir hann en þar á að vera
kennsla fyrir hádegi og svo
einhver samkoma eftir hádegi á
Borg sem mínum manni finnst nú
ekki spennandi miðað við að hafa
farið á Selfoss undanfarin ár.
Nú og ekki þýðir að fara eftir
klukkan 15.00 á Selfoss en þá
veður búið að loka á alla krakkana
með að fá nammi í poka, sjálfsagt
allir búnir að fá nóg þannig að
það er annað hvort fyrir háldegi
eða ekkert skilst mér. Hef
grun um að það séu fleiri sem ætla
sér á Selfoss þannig að það er
dálítil pressa á skólastjórann með
þetta en ég skil svosem bæði
sjónarmiðin en þegar maður er
komin á tvítugsaldurinn er ekki
mikið spennandi að slá köttinn úr
tunnunni ásamt leikskólakrökkunum....en
þetta skýrist vonandi í dag hvað
verður, en mér skilst að minn
maður sitji frekar heima en að
fara í skólann, búinn að fá að
fara á Selfoss í nokkur ár í röð
minnir mig.
Ég er aðeins farin að velta fyrir
mér hvaða stóðhestar eru INN í
sumar og eins hvort ég ætti að
halda merunum mínum sem eru að
verða þriggja vetra í vor þær
mundu þá kasta fjögra vetra, en ég
prufaði þetta í fyrra með Hæru og
nú er verið að temja hana og ég
get ekki séð annað en að hún sé
bara vel stór og ansi öflug.
En í augnarblikinu held ég að ég
eigi tvær hryssur á þessum aldri
það er hún Rispa sem er litförótt
og svo hún Lísa sem er albínói.
Við eigum hér fola sem verður
tveggja vetra í vor og er ógeltur,
hann er reyndar staðsettur í Hemlu
núna hjá Lottu og Vigni, hann er
úti og á að veita folanum þeirra
félagsskap í vetur... þetta er
jarpur foli undan Gerplu frá Hofi
sem er Kolfinnsdóttir og svo er
hann undan Hrym frá Hofi.
Nú ætti að fara að styttast í að
húsið okkar komi til landsins en
eftir því sem ég best veit er það
í skipi núna og ætti að koma í
höfn í næstu viku, held að ég hafi
einhverntímann heyrt talað um 12
feb.
Svo
erum við farin að velta fyrir
okkur hitaveituframkvæmdunum, það
þarf að fara að finna út úr því á
hvaða enda er best að byrja þannig
að þetta verði nú allt eftir
settum reglum og að þessi
hitaveituframkvæmd komi til með að
virka þannig að þeir sem fá vatn
fái þá nóg af því maður hefur
heyrt um nóg af klúðir í svona
framkvæmdum, svo það er bara að
vona að við hittum á að gera þetta
rétt.
5. feb. 2005
Það
var rosalega kalt í morgun þegar
ég fór í fjós, en í gærdag var
nokkuð hlítt. Smiðirnir sem
eru að smíða sökklana á
stálgrindarhúsinu kláruðu í gær og
eru farnir, nú er bara að bíða
eftur húsinu sjálfu en það er
komið í skip skilst mér og von á
því á hafnarbakknann eftur um viku.
Þá fer nú allverulega að stittast
í að húsið komist upp en við erum
með loforð um að það verði klárt
um miðjann mars, vonandi ekki
seinna en 1 apríl 2005, en sjáum
til kannski verður það bara klárt
fyrir páska það væri nú ekki
leiðinlegt.
Það kom eitt stykki nautkálfur í
gær, hann fer til Guðmundar og
Stínu á Bíldsfelli.
Ég er nú ansi lítið farin að
glugga í skólabækur held að ég
hafi bara tekið allt of fáa áfanga,
en í raun er ég með 6 áfanga en
tveir þeirra eruð aðalega unnir í
sumar, og einn dreifist á heilt ár
þannig að í raun eru bara þrjú fög
sem ég er að glugga í núna og er
bara varla farin að líta í bók þar
sem ég þarf ekki að skila neinu
verkefni fyrr en 11 feb. held ég.
En það er svosem ekki ástæða til
að líta á þetta fyrr en á síðustu
stundu hehe.
Jonni og Bjössi reyndu að fara á
hestbak í gær og ætluðu margar
ferðir en gáfust upp eftir eina
ferð út af kulda, veit svosem ekki
hvort Bensi fór með þeim en hann
ætlaði ekki þar sem hann er
núbúinn að vera í einhverri pest
og ekkert vit að fara á bak, en
auðvitað er ómöguelgt að segja
hvað mönnum dettur svo í hug.
2. feb. 2005
Nú er maður
að verða sprækur aftur eftir
þorrablót allavegana ég, Bensi
bróðir reyndar lagstur í bælið með
flensu held það komi þorrablótinu
ekkert við.
Það er búið að vera ansi
leiðinlegt veður í dag, rok og
rigning, ég druslaðist samt á
hreppsnefndarfund og fór svo á
Selfoss með Guðna Reyni á
fótboltaæfingu og hundana í
dýralæknisskoðun, Orri og Doppa
Dóra fóru í parvó allir auðvitað
við hestaheilsu hittum meira að
segja litla kútinn hennar Stefaníu
hann var bara svo sprækur, litli
kraftaverkahvolpurinn.
Ég var alveg orðin fóðurlaus í
hundana í gær og auðvitað hringdi
ég í Hörð, það er alveg með
ólíkindum hvað hann nennir að
snúast í kringum okkur
kerlingarnar og ætti að fá orðu
fyrir, en hann semsagt sótti
fóðrið og ég kýkti svo í kaffi í
gærkvöldi, fór með Orra með mér
hann var aðeins feiminn við Kát en
ekkert agalega, fljótur að átta
sig.
31. jan. 2005
Á föstudagskvöldið var stormað hér
á þorrablót, það var bara ansi vel
lukkað, við Bjössi búin að
undirbúa okkur undir að lenda í
þorrablótsnefndinni enda ekki
verið þar síðan þorrablótið 1991
minnir mig, Bjössi var jafnvel
búinn að ráða hljómsveit og alles,
en viti menn, einn ganginn enn
sluppum við og ekki laust við að
manni hafi létt aðeins.
Skemmtiatriðin voru bara ansi
góð og ágætis matur sjálf hefði ég
viljað að súri maturinn þessi eina
sneið af slátirnu sem ég smakkaði
hefði mátt vera aðeins súrari en
þetta var bara fínt.
Hér hefur tíðkast undnafarin ár að
hafa annann í þorrablóti, sem er
alveg bráðsniðugt, það vaknar jú
ekki nokkur maður þunnur hér eftir
þorrablót og því er upplagt að
hafa hesthúsveislu og fara á bak.
Í einhverju ölæði lofaði ég Jonna
og Bjössa því að nú skildi ég fara
á hestbak með þeim á laugardeginum
og þegar svoleiðs ákvarðanir eru
teknar þá er nú ekki aftur snúið.
Ég komst nú á bak en það var svo
hvasst og mikil rigning að ég hélt
á tímabili að húddið á merinni
myndi fjúka upp enda ekki stætt
hér á laugardaginn út af roki.
En það var dágóður hópur sem dreif
sig af stað, annar hópur þurfti
svo að sinna gestum sem voru
mættir í hesthúsið en það voru
Birgir og Guðmundur Friðmar á
Hæðarenda, það stóð hélt ég til að
þeir færu með á bak eins og í
fyrra en vegna veðurofsans var því
fresta, en koma tímar Birgir minn...
Nú Magnús nætti svo en hann átti
eftir að taka síðustu hrossin sín
á hús, hef svosem ekki heyrt um
jeppa með kerru sem fauk þann dag
svo við gerum ráð fyrir að hann
hafi komist suður með klárana.
Það var svo mikið vatnsveður hér
og rok að húsið hjá mér fór að
leka, og viti menn það lak vatn
niður um eitt ljósastæðið, veit
ekki alveg hvernig það gat gerst,
og skil heldur ekki alveg af
hverju rafmagninu sló ekki út, en
það er svo sem ekki gott að segja,
reyndar var hér hópur manna á
laugardaginn sem ætluðu að ganga í
að kanna þetta en kannski sem
betur fer gleymdist það.
Sunnudagurinn hjá mér fór svo í að
leggja mig hehe en 24 byrjuðu jú í
gærkvöldi og því rík ástæða til að
leggja sig aðeins til þess að geta
nú vakað yfir sjónvarpinu til
ellefu...
27. jan. 2005
Það er verið að steypa einhvað í
nýja stálgridarhúsinu sjálfsagt
sökklana skulum við ætla, þannig
að nú er bara að bíða og sjá hvort
húsið sjálft fari svo ekki í skip
á tilsettum tíma þarna í
útlöndunum annast líst mér illa á.
Nú er búin að vera hláka í nokkra
daga, við Bjössi notuðum tækifærið
í gær og fengum lánaða hestakerru
á Selfossi til þess að koma henni
Hæru austur í Hemlu en það á að
stefna á að koma henni í sýningu í
vor. Nú hestakerran okkar er
enn í viðgerð eftir að hún valt í
haust en vonandi fer hún að komast
að gagnið, það er ómögulegt að
vera svona kerrulaust og ekki gott
að þurfa að hendast á stóra bílnum
en við eigum 8-9 hesta bíl sem
meira að segja ég má keyra.....
Nú að styttist í Þorrablótið það
er bara á morgun takk fyrir og svo
annar í þorrablóti sem verður hér
í hesthúsinu á laugardaginn, hugsa
að það verði kannski bara
skemmtilegra en þetta sem verður
annað kvöld en það er þó ekki gott
að segja hvernig það verður.
Bjössi og Bensi eru svo að moka út
úr hesthúsinu, væntanlega svo það
verði fínt í því á laugardaginn.
24. jan. 2005
Mér finnst ég bara búin að fera á
ferðinni alla helgina, að keyra á
æfingu eða sækja af æfingu nú og
sækja Siggu.
Nú tengdó virðast vera að ná sér
af flensunni og farin að huga að
þorrablóti en mamma og pabbi mæta
ekki en pabbi var í aðgerð á hné
og eins og honum einum er lagið
fékk hann sýkingu og allt sem því
fylgir, en er að skríða saman og
kom heim af spítalanum í dag,
fannst nú ekki árennilegt að koma
karli heim í þessari líka hálku en
Bensi fór og sótti hann og allt
gekk bara vel.
Annars er búið að vera
rigning í dag og þvílík hálka að
það hefur bara varla verið fært út
í fjós, en kýrnar fengu samt þá
hugmynd hvort ekki væri nú ráð að
kýkja út en leist ekki á blikuna
þegar framlappirnar komu á klakann
og ákváðu að vera bara inni enda
áttu þær ekkert að vera að þessu
veseni, en þær fundu út í nótt
hvernig ætti að opna hliðið og sáu
að rétt væri að æfa þetta aðeins í
dag.
Ég varð dálítið hissa í dag þegar
pósturinn kom með risa pakka handa
mér í póstkröfu, en svo rifjaðist
upp að eitthverntímann fyrir jól
hafði ég sent haus af ferhyrntum
lambhrút í uppstoppun og hér var
hann kominn, og viti menn hann
lítur mikið betur út svona en á
meðann hann var á fæti, þetta er
rosa flott en Stefán frá Gilhaga
sem er staðsttur í Varmahlíð gerði
þetta svona listavel.
Nú þorrablótið verður svo á
föstudagskvöldið, og ég er
alvarlega farin að velta fyrir mér
að fara bara með rútunni, og taka
sjens á að vaka þar til ballið
verður búið, þó er nú engu að
treysta í þeim málum.
22. jan. 2005
Það er ansi lítið búið að vera í
gangi hér, bara kalt og meira kalt,
annars fór Dóri á æfingu í
gærkvöldi og kom heim með frekar
slæmar fréttir en það stefnir allt
í að þjálfarinn hans sé að hætta
sem er jú alveg agalegt fyrir þá
sem þekkja Dóra þjálfara, það
verður ekki auðvelt að fá annann
þjálfara sem kemst í hálfkvist við
Dóra, en mér hefur fundist bæði
strákarnir og foreldrar vera alsæl,
en svona er þetta bara og vonandi
fá strákarnir góðann þjálfara
þegar þar að kemur.
Annars eru strákarnir á hestbaki,
Sigga ekki heima.....úps erum við
hissa, ég held ekki hehe.
19. jan. 2005
Það var ansi leiðinlegt veður hér
í dag en spáinn sagði víst að það
ætti að vesna þegar liði á daginn
allavegana hélt ég það og fór á
Selfoss í morgun og skrapp svo
aðeins á Stokkseyri, þegar ég var
svo komin þangað og rétt farin að
smakka kaffið þá skall bara á
leiðindarveður svo ég flýtti mér
bara heim og var komin hér heim
rétt fyrir hádegi.
Það var svo eitt stykki kálfur í
fjósinu í morgun þegar Bensi og
Kristín fóru í fjós en hún Gosa
átti kvígu í þetta sinn. Nú
og í gær fæddist nautkálfur undan
fyrsta kálfs kvígu og gekk bara
vel.
Annars er maður bara búin að gera
ekki neitt í dag, það getur alveg
verið full vinna stundum.
Nú tengdaforeldar mínir eru bæði
búin að liggja í flensu, og pabbi
var í aðgerð á hné og er bara alls
ekki búinn að vera nógu góður,
fékk sýkingu og er með sýklalyf í
æð, fær skammt á sex tíma fresti,
annars var honum farið að líða
eitthvað skárr í dag, og allar
líkur á að það hafi verið hægt að
komast fyrir þessa sýkingu sem
betur fer.
18. jan. 2005
Ég var á Hvanneyri allann
gærdaginn, ég fór ásamt Hildi
Maríu á Spóastöðum og Halldóru á
Fossi, hálf var maður nú
stressaður yfir veðrinu en við
þorðum ekki annað en að fara þar
sem við vissum að Rósa sem býr að
Fjarðarhorni í Hrútafirði mundi
komast og jafnvel þó
Holtavörðuheiðin og Brattabrekka
væru ófærar þá kom Rósa samt, svo
við sunnlendingarnir sáum nú ekki
hvernig við gætum fóðrað það að
vera veðurtepptar.
Nú það er komin skýring á því af
hverju mér var ekki boðið í
afmælið hans Stjána en viti menn
það er ekki fyrr en í febrúar,svo
það er enn möguleiki á
afmæliskaffi.
16. jan. 2005
Nú er ég
búin að finna út að ég get haft
sér fréttasíðu fyrir hundana og
ætla að gera það, það er þá bara
undir kersins kennel, rosalega er
ég nú klár og svo get ég kannski
haft þetta svona fyrir krakkana
líka.
Ég var búin að lofa einhverju upp
í ermina á mér með þessa borholu,
svo breytist þetta svo hratt að ég
næ varla að fylgjast með en
aðalatriðin eru þau að það er
fullt af vatni ca. 35
sekúndulítrar og 58 gráður heitt
þegar það er komið upp úr honunni
en það lekur ekki sjálfkrafa upp
en þó gæti farið svo eftir nokkra
daga. Nú efnagreiningin kom
ekkert rosa vel út en svo þarf
víst að dæla upp úr honunni í ca 2
daga og taka þá sýni til að vera
viss.
Það er búið að vera mikið
hundastand á mér síðustu daga og
allt um það sent ég bara inn á
Kersins kennel síðuna.
Annars er leiðindar veður núna
snjókoma og lélegt skyggni.
Gott ef hann Stjáni frændi á ekki
afmæli í dag en ég hef nú ekki
fengið boð um að mæta í
afmæliskaffi...til hamingju með
daginn.
11. jan. 2005
Ég fór á Selfoss í dag og ætlaði
að fara að ganga frá tryggingunum
á hvolpana, en þetta var nú ekki
eins einfalt og ég hélt, ég get í
raun ekki keypt trygginguna og
selt hvolpana með tryggingu þvi að
hundseigandinn verður að vera
tryggingartaki... ég þarf að finna
eitthvað út úr þessu.
Nú það er ansi mikill snjór hér,
og farið að draga í skafla hér á
afleggjarnanum.
Af borholunni eru nú bara
heilmiklar fréttir en ég ætlað
ekkert að segja ykkur frá því
hvernig þetta er fyrr en á morgun
því ég á eftir að fá betri
upplýsingar.
10. jan. 2005
Bjössi og Guðni Reynir fréttu af
lambhrút í sumarbústaðgirðingunni
hans Gvendar Ben og fóru og sóttu
gripinn sem reyndist vera frá
Vaðnesi, það er lengi von á einu
lambi... svona á milli bæja.
Það vour fjórir hvolpar sem komu
sem er bara ágætt fyrir Stássu,
þetta eru bara ansi snotrir
hvolpar finnst mér og líkast til
flestir ef ekki allir seldir.
Það var nú ekki spennandi veður í
morgun snjókoma og rok en það er
eitthvað skárra núna, Stássa er að
gjóta og gengur bara vel þetta
hefst allt saman fyrir rest.
8. jan. 2005
Það er búið að
vera rosalega kalt í dag finnst mér. Ég mætti einum nýfæddum
kálfi í morgun þegar ég fór í fjós, þetta var kvíga sem var bara
komin á röltið og virtist burðurinn hafa gegnið vel, en þetta
ver fyrsta kálfs kvíga sem bar.
Við héldum upp á
afmælið hans Dóra í dag, Sigga bakaði pönnukökur og alles.
Nú hún Stássa er
búin að vera alveg róleg en svo í kvöld ákvað hún að reyna að
laga aðeins til í gotkassanum, fannst nú að ég hefði líkast til
raða haldklæðunum upp í vitlausri röð eða einhvað en svo fór hún
bara út í horn að sofa en í dag er hún á degi 61.
7. jan. 2005
Halldór á afmæli í dag
og er orðinn 10 ára, hann tilkynnti það svo þegar hann kom heim
úr skólanum að hann væri kominn á tvítugsaldurinn....rosalega er
maður orðin gamall þegar yngsta barnið er komið á
tvítugaldur,,en það veru víst skiptar skoðanir á því hvenær
maður kemst á þann aldur, daginn þegar maður veruð 10 eða 11 ára?
Í morgun vaknaði
ég með mígreni, og lá fram að hádegi, en þá druslaðist ég suður
á flugvöll með hann Spurðann í flug til Boltemore. Ég var svo
heppin að Bjössi gat komið með og keyrt, nú flugið gekk svo bara
ágætlega frétti ég og Spurðann bara hress og skíturgur þegar
hann kom til Álfhildar sem tók á móti honum í Boltimore.
5. jan. 2005
Ég hitti borararana
áðan, og náði mér í uppl. fyrir heimasíðuna. Þeir eru komnir
niður í 206 metra, hitinn er 53 C° og ca 20 sekúndulítrar, mér
skildist svo að allar þessar tölur ættu eftir að hækka ef allt
fer sem horfir.
Annars er búið að
vera ágætt veður hér í morgun allavegana svona gluggaveður en
núna um hádegið þá er bara þreifandi bylur.
4. jan. 2005
Í dag fór ég með
restina af hvolpunum í dýralæknisskoðun og það fundust örmerki í
allann hópinn ég var nú ósköp fegin. Það var allt í lagi með
alla en ég var aðeins farin að hafa áhuggjur þar sem ég fann
ekki alveg öll eistun en Ásdís fann þetta allt saman það sem mér
fannst vanta er bara að detta niður svo ég þarf ekki að hafa
áhyggjur af þessu. Nú þá fara þeir að tínast á nýju heimilin,
Lukka sem var einusinni Krafla er komin til síns heima og er
bara alsæl, eins heimilsbúar, menn hundar og köttur. Nú svo er
það hann Klútur sem heitir núna Bjartur, mér skilst að hann hafi
náð að heilla alla á sínu heimili, nú þá hann bara eftir að taka
Ecco skóna hans Palla heheh.
Hér er borðað
eftir vatni og smíðað á fullu ég veit svosem lítið hvernig
gengur en reynið að komast að því og læt ykkur vita.
3. jan. 2005
Það er búið að vera
ömurlegt veður í dag, fyrst var rok og snjókoma og svo rok og
rigning, en núna undir kvöld var farið að ligna.
Það var svo vont veður
að ég ákvað að sleppa því að fara á Selfoss með strákana til
tannlæknis en þrátt fyrir þetta veður komst fröken Sigríður til
Reykjavíkur en mjög áríðandi virtist að komast í bæinn með
Freydísi.
Nú þrátt fyrir þetta
vonda veður, þá komu smiðir hér í dag og svo komu borararnir
líka, svo er bara að sjá hvort þeir hafi getað gert eitthvað, en
smiðirnir eru búinir að vera að moka með gröfunni í allann dag,
til þess að finna það sem þeir voru að gera síðast.
2. jan. 2005
Það er búið að vera
rosa kalt í dag, fór niður í -15 C° í morgun, en sem betur fer
er búið að vera logn þannig að það hefur bjargað deginum.
Ég er búin að sofa
megnið af deginum heheh, það kemur engum á óvart sem þekkja til.
Ég er enn að finna út
hvernig þessi síða virkar en ég held bara að þetta eigi eftir að
kom hjá mér, ég er semsagt búin að setja fréttirnar hér til
hliðar, en þarf að finna út úr því hvernig ég linka gömlu
fréttirnar inn, semsagt set svona undirdálk fyrir þær.
Nú við fórum á
brennu og flugeldasýningu í gærkvöldi, það var bara flott en
rosalega var kalt jafnvel inn í upphituðum bíl var skítakuldi,
svo mannskapurinn stoppaði ekki lengi við.
1. jan. 2005
Bjössi á
afmæli í dag, til hamingju með daginn og árin 42 held ég bara.
Nú byrja vandræðin með síðuna, hvað
skal gera við gamla árið... er nú ekki alveg búin að átta mig á
því en ekki hendir maður því sisvona í ruslið eða hvað????
Jæja nú er bara komið nýtt ár þetta
er nú ótrúlegt hvað þetta líður orðið hratt þessi tími þetta var
ekki svona í denn...
Við fjölskyldan fórum í gærkvöldi til
Ingu Dóru og Gumma á Selfoss, það var rosa gaman, ég var að vísu
orðin dálítið sibbin og hef nú sterkann grun um að ég hafi verið
farin að dotta í stólnum, en hvað um það, við komum heim um
kllukkan 4 í morgun sumir þreyttari en aðrir, Dóri var þó á því
að athuga hvort ekki væri eitthvað í sjónvarpinu sem hann gæti
horft á .... hann var ekki kátur þegar ég kom og slökkti.
Nú það stendur svo til að fara út á
Borg á brennu í kvöld skilst mér og sjá flugeldasýningu hjá
Hjálparsveitinni Tindron.
|